Innlent - mánudagur - 23.11 2009 - 12:15

DV: Helmingur skulda 1998 ehf, 25 milljarðar, hefur þegar verið afskrifaður

kaupthing-1998.jpgDV segir í frétt í dag að þegar hafi verið afskrifaðir 25 miljarðar króna af 50 milljarða skuldum 1998 ehf, eignarhaldsfélags Haga, við Arion banka, áður Kaupþing.

Samkvæmt heimildum blaðsins koma þrír breskir kaupsýslumenn, nánir viðskiptafélagar Baugs og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, að líkindum með sjö til til tíu milljarða króna í nýtt hlutafé inn í 1998.

Bretarnir þrír eru samkvæmt DV Malcolm Walker, forstjóri Iceland matvælakeðjunnar, sir Tom Hunter sem talinn var ríkasti maður Skotlands og sá fyrsti sem eignaðist yfir einn milljarð punda og Don McCarthy, stjórnarformaður House of Fraser og skartgripakeðjunnar Aurum. Hunter var einn af stærstu eigendum félagsins Jötunn Holding sem átti stóran hlut í bæði FL Group og Glitni.

Baugur átti 14% í Iceland og 35% eignarhlut í Aurum. Skilanefnd Landsbankans stýrir nú Aurum og hefur haldið hlutnum í Iceland.

Samkvæmt lánabók Kaupþings sem birt var á wikileaks.org á Gaumur Jóns Ásgeirs og fjölskyldu 82,3% í 1998. Eignarhaldsfélagið ISP, sem er í eigu Ingibjargar Pálmadóttur, á 8,9% og Bague SA, sem Hreinn Loftsson útgefandi DV ræður yfir,  á 8,8%.

Fresturinn sem Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og félögum var gefinn til að koma með nýtt hlutafé inn í 1998 á að renna út í dag.

Sjá frétt DV.

68 ummæli

Rita ummæli

Kristján Kristjánsson
23.11 2009 kl.12:27

Síðan á að láta sömu snillinga halda áfram.
Það þarf náttúrulega meira en meðalvit til að safna jafn miklum skuldum og vera snöggur að því.
Og vandfundinn sá banki sem gengur út á að tapa peningum.
Nema þá hér á landi, hér er nefnilega land fáránleikans.

Reikningurinn fyrir mismuninum sendur landsmönnum.
Flottir hjá Arion endilega haldið áfram annan hring það er hægt að setja landið á hausinn aftur ekkert vandamál.

P. Bergmann
23.11 2009 kl.12:28

Ef rétt reynist á að afskrifa hjá öllum landsmönnum. Gangi þetta eftir verður allt vitlaust í þjóðfélaginu það er ekki flóknara.

Sóða-Gandur
23.11 2009 kl.12:30

Þetta er bjálkinn sem felldi húsið

Sóða-Gandur
23.11 2009 kl.12:30

Skjaldborgin um heimili bónusfeðga hefur verið tryggð

Pétur
23.11 2009 kl.12:31

3 leppar?

Ari
23.11 2009 kl.12:32

Þessir menn eru ekkert annað en leppar... held að allir vita það!

Sóða-Gandur
23.11 2009 kl.12:33

Þar með eru þeir sjálfsagt ekki persónulega ábyrgir. Ég legg til að Enron Banki verði tæmdur

Áki
23.11 2009 kl.12:33

Ég skil ekki að landsmenn geri innkaup sín hjá þessu liði.

joi
23.11 2009 kl.12:36

Ef DV hefur sagt þetta, þá er það líklega rétt. Þetta blað er framlenging á eigendum haga.

Spurningunni um í hvað fóru allir þessir 40 milljarðar sem Hagar skulduðu í? Er ekki fyrirtækið money making machine? Af hverju skuldar það svona mikið? Eru ekki líkur á að það fari bara að safna skuldum aftur ef þeim tókst að safna svona miklum skuldum á svona stuttum tíma? Ekki er kaupmáttur landans að aukast?

Hr. Óskar Nafnleyndar.
23.11 2009 kl.12:36

Nú er nóg komið af lygi og óheilindum ef satt er.

Nú þarf að spyrja Finn og Jóhennes og Jóhönnu og fá svör.

tverhaus
23.11 2009 kl.12:46

Getur þetta mögulega ekki verið pólitískt?

Steingrímur J og Jóhanna eru ekkert nema aumir pólitíkusar sem þora ekki að standa vörð um sína eigin þjóð.

Spillingin er jafnvel meiri í dag en fyrir hrun, og svo að koma með eitthvað mál í gær, sem allir fjölmiðlar hikuðu ekki við að slá upp sem fyrstu frétt um einhverja kellu sem gerði ekkert af sér nema að lán ættingjum og vinum, veit ekki betur en að þetta hafi verið viðurkenndir starfshættir innan kaupthings.
http://www.dv.is/frettir/2009/11/23/fjardratturinn-i-kaupthingi-ovist-hvers-edlis-hann-var/

Ætlar þjóðin núna að sitja og gráta yfir því að 25.000 milljónum sem hægt væri til þess að laga eignastöðu 25 þúsund heimila um 1 milljón króna heima og velta því fyrir sér afhverju staðan er svona eða ætlar fólk ekki að mótmæla þessari augljósu spillingu.

Og ætla stjórnvöld að leyfa spillingu að viðgangast í ríkisreknum bönkum? það er spurningin, hvort Íslensk stjórnvöld leggi blessun sýna á spillingu með því að segja að þeir vilji ekki skipta sér af þessum málum þar sem þetta sé alfarið í höndum bankans.

Hjördís Vilhjálms
23.11 2009 kl.12:53

Man ekki betur en að Jóhannes hafi fullyrt í Kastljósi fyrir stuttu síðan, að ENGAR skuldir hafi verið afskrifaðar og yrðu ekki, því best sem hann vissi ?

En hvað verður um alla peninga sem kemur inn í þessi fyrirtæki þeirra ? Beint til Tortula ?

Af hverju skulda þeir svona mikið ?

Kristján
23.11 2009 kl.12:54

Ísland einfaldlega spilltasta land í heimi.

SS
23.11 2009 kl.13:01

Ef fréttir reynast á rökum reistar þá má ljóst vera að Anna Heiðdal var að vinna eftir skýrum verklagsreglum bankans: Hún var að sjá um sína líkt og Sigurjón Pálsson í málefnum Haga. Hún er meðhöndluð eins og glæpamaður en hann ekki. Þetta hróplega ósamræmi kallar á harðorða fordæmingu Femínistafélagsins.

Hr. Óskar Nafnleyndar.
23.11 2009 kl.13:01

Ef verslanir 1998 eru 50 talsins á Íslandi þá gerir þetta 500 milljónir á hverja verslun!!!

Það er ekki nema von að þessir menn geti niðurgreitt vöruna...eða þannig.

Það er hægt að reka verslun með 10 milljóna tapi á mánuði í 50 mánuði fyrir hálfann milljarð eða 8 ár með 5 milljána tapi á mánuði.

Er fólkið ekki með öllum mjalla?

SigG
23.11 2009 kl.13:07

Hvet almenning til að hætta að versla við Haga og Arion. Í stjórn Arion situr systir besta vinar hans og systir lögmanns Baugs Gest Jónssonar. Þessi framsóknarfjölskylda er til í allt fyrir peninga, eins og sást í Baugsmálinu, Gestur Jónsson var til í að selja æru sína fyrir Jón Ásgeir.

Besta ráðið, takið peninga og skilið inn kortum hjá Arion og ekki fara í Bónus/Hagkaup eða aðrar verslanir Haga þessa vikuna!

SS
23.11 2009 kl.13:09

Þurfa konur að sveifla sér í súlum til að ná augum og eyrum femínista?

Maur
23.11 2009 kl.13:09

SS: Góður! Mér sýnist DV vera strax vera farið að draga í land með meintan fjárdrátt konunnar. Hún hafi ekki haft kunnáttu til að leggjast í fjárdrátt. Um að gera samt að blása upp frétt og draga síðan allt til baka. HVAR ER FEMÍNISTAFÉLAGIÐ????????? EF KONAN ER REKIN ÞÁ HEIMTA ÉG AÐ SIGURJÓN PÁLSSON SÉ LÍKA REKINN.

Hamarinn
23.11 2009 kl.13:11

hættið þá að versla við þessi fyrirtæki það er svo einfalt. Hættið að væla yfir þessum hlutum og gerið eitthvað í málunum strax!!

Rósa
23.11 2009 kl.13:16

Spilling

Samfylkingin.

Nýja Ísland

Lalli
23.11 2009 kl.13:18

Auðvitað er búið að fella niður skuldir feðgana, þess vegna er ekki
til umræðu að selja öðrum því þá væri allt upp á BORÐINU og allir
gætu séð hvað var fellt niður.

ÞAÐ ER SVO MIKIÐ UNDIR BORÐINU HJÁ JÓHÖNNU OG SKALLA
AÐ MANNI BÍÐUR VIÐ ÞEIM.

Sjonni H.
23.11 2009 kl.13:34

Hvenær á að fella niður skuldir almennings?

Ég vil fá mínar skuldir niðurfelldar. Ég bara krefst þess. Ég hlýt að eiga rétt á því eins og allir auðmennirnir og útrásarkrimmarnir.

Sigurður #1
23.11 2009 kl.13:36

HVERJIR TAKA ÞÁTT Í AÐ AFHENDA ÞESSUM FEÐGUM MILJARÐA Í HVERJUM MÁNUÐI Í VIÐSKIPTUM VIÐ ÞÁ!!!!!!!

ERT ÞAÐ ÞÚ LESANDI!!!!

Bónusheilinn
23.11 2009 kl.13:38

Nýja hlutaféð er bréf í Högum/1998 ekki kemur króna með gati inní nýja Banka Keisarans.
Og lýðurinn verslar í gráum jogging í Bónus.
Og Spaugstofan upplýsir heimsku lýðsins.

feldur
23.11 2009 kl.13:39

Er þessi Sigurjón Pálsson mágur Ara Edwald drykkujufélaga Jóns Á ? og Helga Jónsdóttir í bankaráði Arion systir Gests Jónssonar ? vá flott örugglega eitthvað meira líka sem varla stenst skoðun, uss viðbjóðurinn fossar um allt þjóðfélagið.....

Fannar
23.11 2009 kl.13:42

Jæja, ég var að enda símtal þar sem ég var að láta flytja mig frá Kauprán AKA arion banka yfir í annan banka.

Legg til að fleirri beini sýnum viðskiptum annað.

Rúnar
23.11 2009 kl.13:43

Helvítis fokking drullufokk

jonatan_Berg
23.11 2009 kl.13:45

Vúhú, greiðsluaðlögun á skuldum heimilanna, þvílíkt grín.!

Ein erum við lítil, en saman erum við nógu stór.
Berjumst fyrir nýjum samningum.- Við almenningur eigum þetta lið, og það erum við sem stjórnum - Lýðurinn ræður!

krissa
23.11 2009 kl.13:46

Hvað er eiginlega búið að afskrifa hjá mörgum stórum fyrirtækjum. Geta litlu fyrirtækin ekki vænst þess sama hjá bönkunum? Eða við einstaklingarnir?

Runi
23.11 2009 kl.13:49

ég er nýbúinn að senda uppsögn á mínum viðskiptum við Kaupþing/Arion

..og versla núna eingöngu í Fjarðarkaup og Kosti.

það er mín leið til að mótmæla.

Jón Rafn
23.11 2009 kl.13:50

Verið róleg. Jón Ásgeir verður að eiga fyrir Diet kók, enda er það nóg.

Glaumur
23.11 2009 kl.13:52

Það eru skýr skilaboð sem norræna velferðarstjórnin er að senda frá sér með þessu!

kvistur
23.11 2009 kl.13:54

Sigurður#1 ,Ég er sammála þér,enn það virðist eins og fólk skilji ekki hvernig hægt er að koma þessum aulum á kné,það er of einfallt svo fólk skilji það,Hætti öll að versla við Bónus og þær verslanir sem þeir eiga og málið er DAUTT,Ef ekki verið þið þá ekki að tjá ykkur um þetta mál,HRÆSNARAR,

Þetta er vonandi ekki satt
23.11 2009 kl.14:10

Eiga þeir virkilega að halda fyrirtækinu og reka það áfram
....eru þetta skilaboðin til okkar alþýðunnar....Best að koma með 500 þús kall og
borga inná ibúðalánið sitt og krefjast þess að afgangurinn verið felldur niður og eignin skráð að fullu á mig eftir sem áður... skítt með almenning ..!!! hvers virði er hann nú eiginlega nema til að blóðmjólka og drulla svo yfir hann....ef bankinn keyrir þá ekki í þrot verður almenningur að standa saman og gera það. Einfaldlega með því að sniðganga nákvæmlega öll fyrirtæki sem tengjast þessu glæpagengi Jóni Ásgeir og hans fjölskyldu og vinum....

Hjördís Vilhjálms
23.11 2009 kl.14:27

,,Síðasta lánið undir sólinni sem á að afskrifa” - Steingrímur Joð, 9.júlí sl.

Og hversvegna heyrist ekki neitt í honum nú ?

Hversvegna ganga blaða-og fréttamenn ekki á hann ?

http://www.amx.is/tilvitnanir/11708/

Diddi
23.11 2009 kl.14:39

Steingrímur og Jóhanna... vaknið!!!!!!!!!!!!!!!!!

Hvað er að ykkur? Tjáið ykkur um málið. Setjið þessa skilanefnd af.

Aldrei aftur mun ég kjósa þessar bleyður ef af þessu verður.

Þvílík skömm

Vonin
23.11 2009 kl.14:43

Það á nú eftir að fá þetta staðfest af ARION, en satt reynist verða þeir að koma með haldbærar skýringar, annars verður fjandinn laus

steinhissa
23.11 2009 kl.14:45

Ja, ég er nú svo aldeilis steinhissa, er enginn endir á spillingunni?
Finnur Sveinbjörnsson er alls ekki hæfur í sínu starfi.

Guðbjörg
23.11 2009 kl.14:48

Ja hérna,,

Dettur ykkur svo í hug að þið fáið að kjósa um ESB ?

Það er hagstætt fyrir útrásar-gúbbana en ekki almenning, en stjórnvöldum er sama svo framarlega sem þeir fái pening í sinn kostningasjóð,

ojbara

linka
23.11 2009 kl.14:48

Íslendingar, hættum að versla hjá þeirra fyrirtækjum, Þetta er alger siðblinda, og ég mun aldrei aftur kjósa þessa ríkisstjórn ef þeir láta þetta yfir okkur ganga.

Vonin
23.11 2009 kl.14:51

Annars skil ég ekki þennan flótta Ríkisstjórnar í að blanda sér ekki í málið, því það varðar svo mikla þjóðarhagsmuni í samkeppnismálum og maður talar nú ekki um þeim völdum sem gefin eru feðgunum sem þeir geta notað til að hafa hreðjartak á nánast öllu atvinnulífi þjóðarinnar og þjóðinni.

kvistur
23.11 2009 kl.14:55

Kominn tími á AUSTURVÖLL NÚ Á ÞJÓÐINN AÐ LÁTA HEYRA Í SÉR,BÆÐI HVAÐ SPILLINGU VARÐAR,OG AÐ VERÐTRYGGINGINN VERÐI AF NUMINN,ÞAÐ ER SKOLLIÐ Á STRÍÐ KÆRU LANDS MENN,

jonatan_Berg
23.11 2009 kl.15:00

Á AUSTURVÖLL !

Lífklöpp
23.11 2009 kl.15:18

Róleg.
Ég bjóst reyndar ekki við svona miklum afskriftum. En það eru allavega að koma 7milljarða gjaldeyri inní landið. Seinast þegar það kom svona mikill peningur inní landið þá styrktist krónan töluvert.

Guðmundir Franklín var að reyna að kaupa þetta ásamt öðrum. Ef ég segi alveg einsog er þá treysti ég honum ekkert betur.

Ása
23.11 2009 kl.15:26

Mér er flökurt.
Það stakk einhver upp á að við versluðum ekki í verslunum tengdum Högum þessa vikuna. Hvernig væri að setja sér háleitari markmið ef af þessu verður og ákveða að kynna sér hvaða FT þeir tengjast og versla ALDREI við þau.

Getur ekki verið svo erfitt að sneiða fram hjá þeim og loka augum og eyrum fyrir gylliboðum.

KB, Arion eða hvað svo sem þið heitið. Við fylgjumst með gerðum ykkar og refsum með fótum, kortum, seðlum.

Er ekki allt í lagi með ykkur í bankanum?
Settuð þið ykkur enga stefnu í málefnum Haga aðra en þá að bankinn kæmi sem best úr úr þessu einstaka máli.

Hvernig leggst það í ykkur að allir frjálsir menn flytji viðskiptin frá ykkur að eilífu.
Eilífð er L A N G U R tími.

Ása
23.11 2009 kl.15:27

Skilanefndir og bankamenn farið á SIÐFRÆÐIK’URS og það ekki seinna en strax.

Almenningi verður misboðið ef af verður.

Ása
23.11 2009 kl.15:29

Það er mikið um hræætur á línunni satt er það en fyrr má nú vera félagsskapurinn.

Gjaldeyrir getur verið blóði ataður ekki síður en demantar.
Burt með þessa glæpaheila - burt frá mínu matarborði.

Maur
23.11 2009 kl.15:31

Það er þægilegt fyrir Baugsfeðga að eiga við Sigurjón Pálsson. Mágur hans og Finnur Árna í Högum eru vinir og konurnar þeirra saman í saumaklúbb. En frúin í eignastýringu Kaupþings um að gera að slá á puttann á henni fyrir tengsl.

tverhaus
23.11 2009 kl.15:31

Það átti náttúrulega aldrei að selja þetta fyrirtæki í einu lagi, brjóta þetta upp í smábúta og leyfa markaðnum svo með hertum samkeppnislögum að vinna sig upp aftur, auk þess sem það myndi kalla á mun fleirra starfsólk heldur en þegar staðan er nú eins og hún er.

Þetta er viðbjóðslegasta spilling sem ég hef heyrt um síðan í hruninu.

Og er alveg 100% að Serious Fraud Office í Bretlandi sé ekki að rannsaka neinn af þessum kauðum sem eru að koma hér inn í landið?

Ása
23.11 2009 kl.15:32

Skuldir almennings verða ekki felldar niður nema að þær verði metnar algjörlega tapaðar. Það er það sama með Haga - en sannleikurinn á eftir að koma í ljós - sanniði til.

BGG
23.11 2009 kl.15:34

Hvernig er hægt að ´´EIGA´´ 82% í hlutafélagi sem skuldar 50 þúsund miljónir?????????????????????????????????????????????

Færakall.
23.11 2009 kl.15:34

ALMENNINGUR VERÐUR AÐ FÁ ÞAÐ Á HREINT MEÐ AFSKRIFTIRNAR.

Jóhannes sagði í sjónvarpinu að engar afskriftir hefður verið gerðar og
MYNDU EKKI VERÐA.

FINNUR (fingralangi áður hjá ICEBANK) sagði einnig að ENGAR AFSKRIFTIR
VÆRU OG MÁLIN ÖLL TIL SKOÐUNAR.

Hver þeirra lýgur að almenningi. Sannleikan á borðið STRAX.
GERUM “KAUPVERKFALL ÞAR TIL MÁLIÐ ER Á HREINU”.

Við meigum EKKI bregðast svona sjálf við hverju sem er. SAMSTAÐA UM
MÁLIÐ ER LÍFSNAUÐSIN.

Ása
23.11 2009 kl.15:45

Ég er í samstöðu með að versla ekki við feðgana og hef nóg að bíta og brenna.

Nú verða allir lífeyrissjóðirnir,
stjórnmálamenn, skilanefndir og allir þeir sem málið varðar að

segja okkur umbúðarlaust hversu miklu lífeyrissjóðirnir hafa tapað á þessum kónum.

Við eigum líka rétt á upplýsingum skv. upplýsingalögum, réttlætismálum og fl.

Sjonni H.
23.11 2009 kl.15:58

Nú skilur maður af hverju það á að hækka á okkur skattana.

Skattahækkanirnar á okkur almenning eiga að fjármagna allar þessar afskriftir hjá auðmönnunum. Allt í boði Jóhönnu og Skallagríms.

Ása
23.11 2009 kl.16:15

Vantar ekki siðareglur á Nýja Íslandi?

Valur
23.11 2009 kl.16:32

Hef ekki bara mistt alla tiltrú á stjórnvöld og elítuhópinn sem svífist einskis í að halda öllu sínu meðan þjóðin er kjöldregin heldur er ég líka að missa vonina á að fólkið rísi upp gegn þessu ofbeldi sem það er beitt. Enginn dugur í íslendingum til að verja sig og sína?

ekkinn
23.11 2009 kl.16:39

Hefur undanfarna daga komið æ oftar í hug myndir úr Lukku-Láka bókunum þegar eg hefu verið að hugsa um Haga og þá bónus feðga. Þar var til siðs að taka þjófa og svikahrapp, ata þá fraá toppi til táar í tjöru og fiðri og bera þá að endamörkum bjæarins, og fleygja þeim slippum og snauðum út, og segja þeim að koma aldrei til baka. Þetta er sú eins traktering sem þeir ( og bankamennirnir sem “lánuðu” þeim á nokkura skikknlegra trygginga öll þessi ár) eiga skilið af hendi okkar íslendinga. Tjara og fiðurm, í árbát og burt með þá.

Kaus samfylkinguna og er sammála flestum stefnummálum hennar, en ef hún lætur það viðgangast að þessir kónar, tapi miljarða hundruðum úr þjóðabúinu með annari hendinni en haldi öllum islensku eigununum sýnum með hinni, þá fær hún ekki atkvæði mitt aftur. Þá er sýnt að íslenska stjórmálstéttin er algjörlega vonlaus, og ekkert eftir nema að kjósa með fótunum.

Guðríður
23.11 2009 kl.16:41

Ég kýs aldrei framar Samfylkinguna ef þetta verður raunin.
Þvílík spilling !!!!

linka
23.11 2009 kl.16:48

Já á Austurvöllinn

ZZz
23.11 2009 kl.17:19

Aðgerðir¨Farið í Kaupþing og hirðið allt út í seðlum. Millifærið. Skiptið um banka.

Maur
23.11 2009 kl.17:35

ZZz: Mun gera það á morgun. Ein spurning. Hvaða banki er ekki ræningjabæli?

S.Á.
23.11 2009 kl.17:46

Mafíuskríll!

S.Á.
23.11 2009 kl.17:52

Ég myndi hætta að skipta við Kauphring, ef annar banki væri í mínu byggðarlagi.

Sigún G.
23.11 2009 kl.19:22

HFF

Arnar Ívar Sigurbjörnsson
23.11 2009 kl.19:54

Nú þarf að mæta á austurvöll.

Hannes Hólmbert
23.11 2009 kl.22:37

,,Nú þarf að mæta á austurvöll.”

Kem með!

Ragnheidur Magnúsdóttir
25.11 2009 kl.21:29

Er tetta löglegt? Tid aettud ad kaera tetta.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar