Fréttaskýring, Innlent - þriðjudagur - 1.12 2009 - 10:56

Úttekt: N1 fær versta útreið olíufélaganna íslensku á okursíðu dr. Gunna

bilde.jpgEngum vafa er undirorpið hvaða íslenska olíufélag þykir bjóða hvað lakasta þjónustu og hæstu verðin sé tekið mið af færslum á hinni vinsælu okursíðu dr.Gunna en sá vefur hefur nú verið starfræktur um rúmlega tveggja ára skeið. Olíufélagið N1 er í algjörum sérflokki hvað fjölda kvartana þar varðar. Svo mjög reyndar að hin tvö rótgrónu olíufélögin í landinu samanlagt ná ekki upp í þann fjölda sem er óánægður með þjónustu og verð hjá olíufélaginu N1.

Eyjan hefur tekið saman og greint allar færslur neytenda á hinni þekktu okursíðu dr. Gunna en sú hefur verið starfrækt um rúmlega tveggja ára skeið. Er lítið lát á fjölda þeirra er þar tjá sig enda skiptir nú heildarfjöldi færslna þar þúsundum. Má enda svo heita að sá vefur sé í raun eini vettvangur neytenda í landinu að frátöldum Neytendasamtökunum sjálfum og Talsmanni neytenda. Mun Eyjan nú og á næstu dögum birta niðurstöðurnar í hinum ýmsu þjónustu- og verslunargeirum.

Alls er að finna 56 aðfinnslur við þjónustu eða verðlag hjá N1 meðal notenda okursíðunnar. Eru þar samantaldar allar færslur um fyrirtækið en N1 rekur sem kunnugt er smur- og dekkjaverkstæði, varahlutaverslun og margt fleira. Það er því stærsta fyrirtækið í hópnum og það mögulega útskýrir þann mikla mun sem á N1 er og næstu olíufélögum á eftir.´

Það er Olís sem næstflest neikvæð ummæli fær eða 23 í heildina og olíufélagið Skeljungur er þar skrefinu á eftir með 22 færslur. Þrír einstaklingar kvarta yfir Atlantsolíu en önnur olíufélög komast ekki á blað þeirra neytenda sem tjá sig á okursíðunni.

 Nokkur handahófskennd dæmi má finna hér að neðan.

Örg út í sjálfa mig ók ég heimleiðis og ákvað að koma við á N1 til að fullvissa mig um að þjónustan hefði ekki verið ranglega gjaldfærð og ég óvart látin borga of mikið. Ég hitti fyrir sama aðila sem afgreiddi mig daginn áður og hann staðfesti að ég hefði borgað rétt fyrir jafnvægisstillinguna, 5.890 krónur og það var með 654 króna afslætti. Þá stóðst ég ekki mátið að segja honum að Nesdekk tæki 2.500 krónur fyrir sömu þjónustu.

Keypti karamellutopp frá Kjörís í N1 í Hveragerði. Kostaði 419 krónur en 298 krónur hjá Shell í Hveragerði. Flutningskostnaðurinn?

Ég fór úti Olis Álfheimum áðan til að skila 5kg plast gashylki, sem ég keypti um daginn á tæpar kr 9000.- en þau vildu kaupa af mér á ca kr. 2500.- eða kr. 6500.- minna en ég borgaði fyrir það fyrir nokkrum dögum síðan.

En þeir eru ekki allir þar sem þeir eru séðir hjá ÓB því að á sama plani eru fleiri dælur og ef maður er rosalega vakandi þá ætti maður að fatta að þar er Olís á ferð. Hjá þeim er hærra verð en hjá ÓB og maður getur jú fengið þjónustu og greitt inni en hvergi merkja þeir lítraverðið heldur vakir ÓB merkið fyrir utan planið þeirra af því að það er jú ein ÓB-dæla inn á planinu. Ég gekk í þessa gildru og las lítraverðið á ÓB skiltinu renndi inn á planið og dældi á bílinn.Svo verður mér litið á lítraverðið á dælunni og sé að það er allt annað en á stóra ljósaskiltinu og hef orð á þessu þegar ég fer inn til að borga og konan segir, hin rólegasta, nei það er verðið hjá ÓB. Bíddu er þetta ekki ÓB? Nei, nei þetta er Olís.

Okursíðu dr.Gunna má finna hér.

*Hver færsla var talin en henni sleppt ef athugasemdir þjónustuaðila gáfu tilefni til eða þegar engin rök voru til færð sem ástæða kvörtunar. Ummælum við færslur var sleppt jafnvel þó þar komi yfirleitt fram mun fleiri dæmi enda velflest nafnlaus.

20 ummæli

Rita ummæli

Stefán
01.12 2009 kl.11:09

Þarna er um að ræða fyrirtæki sem Bjarni Ben formaður Sjálfstæðisflokksins og Gunnlaugur faðir Sigmundar Davíðs formanns Framsóknarflokksins hafa haft mikil ítök í síðustu ár. Fólk á einfaldlega að sniðganga bensínstöðvar N1 og EGO í kjölfar svona upplýsinga.

Arnþór Sigurðsson
01.12 2009 kl.11:12

Bendi á að stofnað verður áhugamannafélag um Orkuskipti og innlenda orkugjafa í kvöld. Boðað er til fundarins á facebook með síðu sem heitir Orkufélagið

Þröstur
01.12 2009 kl.12:39

N1 hefur verið að kaupa upp lítil og meðalstór fyrirtæki á síðustu árunum þegar þeim var ótakmarkað fé á hönd.

Þeir skella N1 merki á fyrirtækið og hækka allar vörur og þjónustu 30-50%.

Þeir sem falla í þessa gildru að halda áfram viðskiptum sínum við þetta fyriræki getur sjálfum sér kennt að borga meira fyrir vörur og þjónustu en ella .

Þeir sem eru vakandi neytendur vita hvar á að versla og við hverja. Hvet ég fólk að styðja við bakið á þeim fyrirtækjum sem ekki eru komin í hin risapott útrásarfyrirtækja og hjálpa okkur við að halda verðinu niðri svo að það sé eðlileg samkeppni til staðar.

Þrálátur Orðrómur
01.12 2009 kl.13:30

Fólk sem verslar við N1 eru einfaldlega fífl.

Ása
01.12 2009 kl.13:32

Sögðu upp leigunni við smurstöð í Hafnarfirði fyrir ca. 2 árum og þá hætti ég endanlega viðskiptum við N1.

Aldrei aftur fá þeir peningana mína. Frekar keyri ég lengra.
Eini möguleikinn væri ef ég þyrfti að versla eldsneyti á bílinn og mjög langt væri í næstu bensínstöð.

Sammála - refsum með fótunum. Þetta fyrirtæki er þekkt fyrir að beita auglýsingabrellum og hefur verið sektað fyrir ósæmilegt athæfi á þeim vettvangi.

Hver vill versla við N1? Ekki ég.

Jón
01.12 2009 kl.13:48

Ég elska N1......Frábær þjónusta, frábært starfsfólk og frábærar staðsetningar á landsbyggðinni...Ég meina þeir eru með bensín stöðvar á öllum krummaskuðrum landsins...Þetta kalla ég góða þjónustu....Svo minnir mig að einn af vinsælustu bloggurum landsins hafi skrifið sér færslu um þá snilldar þjónustu sem hann fékk um daginn af syngjandi glöðum og bóðnum starfsmanni sem vildi ALLT fyrir hann gera...

þetta er fyrirtæki með um 1000 manns í vinnu. Held að við þurfum á fleiri svoleiðis fyrirtækjum að halda.....

ÞÞ
01.12 2009 kl.13:53

Ég var að skoða uppgjör N1 á netinu. Ég sé engin spor um Umtak ehf sem var með miljarða á lánalista Kaupþings sem lak á netið. Hvar eru þeir miljarðar? ÞÞ

Hermann Guðmundsson
01.12 2009 kl.14:23

Góðan daginn

Ég þakka öllu fögru orðin hér að ofan frá fólki sem er væntanlega að vinna að endurreisninni frá morgni til kvölds.

Mig langaði að koma 2 punktum til skila:

1) Árið 2008 er versta rekstrarár fyrirtækja í manna minnum. Það að árið 2009 sé skárra eru varla stórtíðindi. Ég tel meirihluta fyrirtækja sýna betri niðurstöðu í ár en í fyrra. Sem sagt engin tíðindi í því.

2) Að við skulum fá 56 athugasemdir á vef Dr. Gunna eru vonbrigði. Þegar horft er til þess að við erum búin að klára 7.8 milljón afgreiðslur á árinu á yfir 140.000 vörunúmerum þá tel ég hlutfallið þolanlegt þótt að við hefðum viljað hafa þetta villufrítt.

Við mundum halda áfram að gera okkar besta og vonandi aðrir íslendingar líka.

Lifið heil.

Hermann Guðmundsson

Sigurður #1
01.12 2009 kl.14:40

Hermann Guðmundsson telur það vel viðunandi að vera með fleiri kvartanir en hin féögin til samans.

hvað segir það neytendum????

Þið eruð fífl.

Björk Bergmann
01.12 2009 kl.15:16

Ég fer alltaf í Engihjallan og fæ mér bensín og fæ alltaf rosa góða þjónustu og allt starfsliðið er bara yndislegt.En ég mundi vilja hafa þvottaslöngurnar oftar úti þegar það er ekki ofkallt fynnst þeir oft fljótir að taka þær niður.:)))

Ása
01.12 2009 kl.15:31

Þetta er, var og verður aldrei spurning um fólk á plani heldur siðferði eigenda og verð til neytenda.

Ekki rugla saman tveimur ólíkum málum. Fyrr mætti nú vera úrvalið ef allir starfsmennirnir væru vanhæfir.

Neytendavernd er fótumtroðin á Íslandi miðað við flest önnur lönd.
Eigendur skulda mikið og velta verðlaginu yfir á neytendur.

Runi
01.12 2009 kl.16:54

....versla eingöngu við Atlantsolíu.......og hef gert það síðan samráðið kom upp um árið.....

Jón aftur
01.12 2009 kl.17:41

Er ekki betra að versla við íslensk olíufélög en hið Bandaríska Atlantsolíufélag. Ekki eru þeir nú að bjóða bestu verðin!

Hálfdán D.
02.12 2009 kl.09:07

Hver á Atlantsolíu?
Keypti ekki eitthvert hinna stóru og rótgrónu olíufélagana Atlantsolíu fyrir 1-2 árum síðan?

Sigrún
04.12 2009 kl.11:19

Hermann Guðmundsson
01.12 2009 kl.14:23:

“Góðan daginn

Ég þakka öllu fögru orðin hér að ofan frá fólki sem er væntanlega að vinna að endurreisninni frá morgni til kvölds...”

Lýsandi dæmi um hroka, yfirlæti, siðleysi og smekkleysi þessháttar manns sem er í forsvari þessa fyrirtækis. Þegar smellt er á undirstrikað nafn Hermanns er lendingarsíðan forsíða N1.
Þessi maður beinlínis segir að allir sem áður hafa ritað séu illa máli farnir aumingjar.
Og þetta heldur hann að hann hafi sér til málsbótar.
Mér er spurn, hver er markhópur þessa manns?

Sigrún

Mín skoðun
05.12 2009 kl.14:52

Ég versla helst ekki við N1, bölvuð okurbúlla.

Jónsi
07.02 2010 kl.20:36

Verzla ekki við N einn.
Neinn er okurfyrirtæki rekið af siðspilltum gróðapungum.

bessi
15.02 2010 kl.18:11

Eigendur N1 hafa verið að kaupa upp fyrirtæki sem þeir taka lán fyrir og neytendur þurfa að borga kostnaðinn af lánunum en þeir eignast fyrirtækin.

Fyrirtækin geta ekki bæði staðið undir afborgun af lánum og skilað hagnaði til eigenda ,nema okra á viðskiptavininum svo einfalt er það.

Sigurður M.
19.02 2010 kl.08:00

Ég versla ekki við N1, bölvuð okurbúlla, og ég hef það sem mottó að fara ekki inná N1..

has
28.02 2010 kl.17:18

Er ekki hvað skrýtnast í þessu öllu að Atlantsolia hefur aldrei verið neitt mikið ódýrari en hin olíufélögin alveg frá upphafi svona ef maður teklur tillit til þess kostnaðar sem er hjá hinum olíufélögunum, þ.e húsnæði starfsfólk allsskonar fastur kostnaður ofl. mér finnst það helst vera athugavert þeir hafa bara ellt álgningarhækkun olíufélagana í stað þess að standa í samkeppni við þau. Þetta er bara samkomulag milli félagana um að halda verðinu uppi og hafa ca 1 krónu mun þegar hann gæti líklega verið 10-20 krónur í mun.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar