Fréttaskýring, Innlent - miðvikudagur - 2.12 2009 - 10:45

Úttekt: Ekki þykir öllum Íslendingum skemmtilegast að versla í Hagkaup

bud.jpgHvort sem það endurspeglar almennt andann í íslensku þjóðfélagi undanfarna mánuði eður ei þá er það verslunin Hagkaup sem fær langflest atkvæði neytenda sem okurverslun þegar teknar eru saman kvartanir almennings á okursíðu dr. Gunna. Reyndar fær ekkert annað íslenskt fyrirtæki jafn slæma umfjöllun á þeim vef af þeim hundruðum fyrirtækja sem þar eru nefnd til sögunnar. Lágverðsverslanirnar Bónus og Krónan fá reyndar næstum jafn margar kvartanir og Hagkaup.

Eyjan hefur tekið saman og greint allar færslur neytenda á hinni þekktu okursíðu dr. Gunna en sú hefur verið starfrækt um rúmlega tveggja ára skeið. Er lítið lát á fjölda þeirra er þar tjá sig enda skiptir nú heildarfjöldi færslna þar þúsundum. Má enda svo heita að sá vefur sé í raun eini vettvangur neytenda í landinu að frátöldum Neytendasamtökunum sjálfum og Talsmanni neytenda. Mun Eyjan nú og á næstu dögum birta niðurstöðurnar í hinum ýmsu þjónustu- og verslunargeirum.

Einir 115 einstaklingar kvarta yfir því sem þeir flokka sem okur í verslun Hagkaupa en fær ekkert fyrirtæki eins slæma útreið og Hagkaup þegar allt er talið. Meginþorri kvartana neytenda hefur með háa verðlagningu að gera en allnokkrir fárást einnig yfir þeim mikla verðmun sem fyrirfinnst á sömu vörum hjá Hagkaup og í Bónus.

Lágverðsverslun Krónunnar er næsta á blaði en 112 neytendur töldu ástæðu til að tjá sig um þá verslun á okursíðunni. Ólíkt Hagkaup er meirihluti kvartana yfir Krónunni þó vegna rangra verðmerkinga en aðeins er skammt síðan Neytendastofa birti fréttir þess efnis að verðmerkingum væri mjög ábótavant hjá mörgum verslunum.

Sama gildir um Bónus sem fær 103 kvartanir á okursíðu dr. Gunna. Verðmerkingar reynast rangar en flestir uppgötva það ekki fyrr en löngu síðar. Getur þar munað töluverðum upphæðum eins og dæmin sýna á okursíðunni.

Ekki kemur á óvart að verslanir 10/11 fá sinn skerf af ummælum.  61 neytandi tjáir sig um þá verslunarkeðju og er þar undantekningarlítið ekki verið að kvarta yfir vitlausum merkingum heldur beinu okri eins og þar stendur.

Nóatún er svo í fimmta sætinu en 44 kvarta yfir verðum og gæðum í þeim verslunum. 23 kvarta yfir verslunum Samkaupa og 16 vilja meina að ekki sé allt með felldu í verslunum Europris.

Nokkur handahófskennd dæmi má finna hér að neðan.

Reynsla minnar fjölskyldu hvað varðar slæma þjónustu setur Nóatúnsverslunina í Hamraborginni í algjöra sérstöðu hvað varðar framkomu við neytendur. Í fyrst lagi þá heyrir það til undantekninga að þær vörur sem eru á tilboðsverði séu með rétt afsláttarverði þegar komið er á kassa. Í öðru lagi þá úir og grúir af útrunnum vörum í versluninni sem verið er að selja sem nýja. Nákvæmlega sama vandamálið og Nóatún í Smáralindinni átti við að stríða ef einhver skyldi muna eftir því.

Mér blöskraði þegar ég sá verðmuninn að ég er enn í sjokki. Sama öndin kostaði 3.998 kr. í Nóatúni og 8.998 í Hagkaupum!!!!!!!!!!!!!!!

Ég fór í Hagkaup um daginn og sonur minn var fljótlega kominn í Lego-deildina. Þar sá ég að Star Wars Lego pakki sem ég hafði keypt í Toys ‘r us um miðjan september á 13.999 kostaði um miðjan nóvember í Hagkaup 19.999 kr. Hvað ætli hann kosti í Toys ‘r us í dag? Svo var þarna líka Legokastali sem kostaði 7000 kr síðustu jól sem sonurinn fékk í jólagjöf kominn á 12.690 kr.

Til “gamans” vil ég benda á að það var þann 26. nóvember sem ég borgaði þessar 1249kr fyrir malt & appelsínkassann EN daginn eftir er heilsíðuauglýsing í Fréttablaðinu frá Krónunni, tilboðsvörur helgarinnar............ þar er þessi sami kassi auglýstur á TILBOÐI á 1299kr. Sem sagt varan fer á tilboð og hækkar þá um 50 kr?!!!!!!!!!!

Barnamatur hefur hækkað óeðlilega mikið í Bónus. T.d. í mars kostaði Gerber sveskjumaukskrukka 33 kr í Bónus, í dag kostar sama litla krukkan 69 kr. Sem sagt hækkun um 109% á 5 mánuðum. Einhver hækkun er sennilega eðlileg í ljósi breytinga á gengi o.fl. en 109% hlýtur að vera óeðlilegt.

Okursíðu dr.Gunna má finna hér.

*Hver færsla var talin en henni sleppt ef athugasemdir þjónustuaðila gáfu tilefni til eða þegar engin rök voru til færð sem ástæða kvörtunar. Ummælum við færslur var sleppt jafnvel þó þar komi yfirleitt fram mun fleiri dæmi enda velflest nafnlaus.

15 ummæli

Rita ummæli

Við í Samspillingunni
02.12 2009 kl.11:10

Þetta er okkar búð Dr.Gunni ekki skrifa gagnrýni á Haga

Stefán
02.12 2009 kl.11:15

Hagkaup einkennist af okri á öllum sviðum, slæmri þjónustu og nánast börnum á afgreiðslukössunum. Eigendur Bónus og Hagkaup ná upp lága verðinu í Bónus með okrinu í Hagkaup. Í öllum bænum forðist jólainnkaupin í Hagkaup !

Rósa
02.12 2009 kl.11:16

Merkilegast er að mínu mati að verslanir skuli almennt komast upp með þá lélegu þjónustu sem þær veita og lýsir sér m.a. í villandi upplýsingum um verð, afsláttarkjörum sem ekki rerynst rétt og svo framvegis.

Það virðist sem Neytendasamtökin og önnur apparöt sem eiga að veita þessum skríl aðhald séu gjörsamlega gangslaus.

Þetta yrði aldrei þolað í menningarríkjum á borð við Þýskaland.

Hér er hins vegar hægt að bjóða almenningi upp á allt.

Þjóðin lætur endalaust troða á sér eins og dæmin sanna.

Þetta sannast á netsíðunni sem sagt er frá.

Mér finnst það vera fréttin.

Andri
02.12 2009 kl.11:37

Rósa
02.12 2009 kl.11:16

Það er svo sannarlega rétt. Ég hef ekki orðið var við neitt slíkt hér í Þýskalandi. Þar líðist heldur ekkert okur í lágvöruverslunum.
Ég er staddur hér í dýrustu borginni, München og mikið er ég feginn að þurfa ekki að versla við Bónus og Vínbúð ríkissins.

innfæddur reykvíkingur
02.12 2009 kl.11:40

- það sem mér hefur lengi þótt “merkilegt” er að Hagkaup hefur komist upp með að auglýsa sig, sem búðina “sem Íslendingum finnst skemmtilegast að versla” - en hef aldrei séð að fjölmiðlar eða nokkrir aðrir hafi spurt hvort eitthvað standi raunverulega að baki þeirri fullyrðingu.
Hvað var gerð einhver könnun einhverntímann þar sem fram kom að Íslendingum þætti absolút skemmtilegast að versla hjá Hagkaupum, eða hvernig var þetta?

Sigurður Viktor Úlfarsson
02.12 2009 kl.11:57

Það er eðlilegt að þær verslanir sem hafa mesta markaðshlutdeild og flestir versla við fái flestar athugasemdir. Annað væri mjög einkennilegt.

Það að fólk fari aftur í viðkomandi verslun og versli við hana hlýtur að gefa það til kynna að viðkomandi viðskiptavin þyki hag sínum best borgið í þessari tilteknu verslun þrátt fyrir að hún geti vissulega bætt sig á einhverjum sviðum, annars myndi hann einfaldlega versla annars staðar.

fannarh
02.12 2009 kl.12:14

það á að setja harðar refsingar. rangar hyllumerkingar og vörumerkingar eiga varða háum sektum eða nokkura daga lokun á viðkomandi verslun.

taka þarf á lögum um samkeppni/fákeppni á Íslandi. ef einhver aðili er með meir en 25% markaðhlutdeild skal skipta fyrirtækinu/fyrirtækjunum upp og neyða viðkomandi til að selja á opnum markaði. ef viðkomandi neitar þá ætti samkeppnisstofnun að fá leyfi til þess að taka fyrirtækið yfir tímabundið til þess að skipta því upp og selja helmingin.

Brandur
02.12 2009 kl.13:44

Og hvað með rugl slagorðið “Ein ferð betra verð” heimskulegt fyrir dýrustu verslun landsins fyrr og síðar...

johann
02.12 2009 kl.14:01

Baedi hagkaup og bónus eru okurbúdir, lagt er a vöruna ádur en hún er flutt inn (af innkaupafyrirtaekjum Haga sem sídan legggur inn peningana á reikninga erlendis), !!!BURT MED OKRID !!!

Doddia
02.12 2009 kl.16:19

Það eru nokkrar verslanir sem maður forðast að eiga viðskipti við og er Hagkaup ein þeirra.

Einnig að þær verslanir og útvarpsstöðvar sem þjófstarta jólunum eru í banni hjá mér. Ef menn byrja og snemma að fagna jólunum þá er maður búinn að fá nóg loksins þegar þau koma.

jóhann
13.12 2009 kl.00:32

ég versla aldrei í bónus og hagkaupum,er löngu hættur því

Ninnik
20.12 2009 kl.18:19

Gott ráð ef verð ber ekki saman á hyllu og kassa, er að skilja allt eftir á kassanum óborgað að sjálfsögðu og labba út. Lokar kassanum í hálfan klukkutíma. Sennilega það eina sem kaupmenn skilja.

Sigurður
16.01 2010 kl.12:06

Guðmundur Marteinsson framkvæmdastjóri Bónusar er með 2 millur á mánuði í laun.
Hvað þarf að selja mörg tonn af kjötfasi til að hægt sé að borga honum laun??

Svo tíma þeir Bónusfeðgar ekki einu sinni að gefa krökkunum eina samloku eða djús. Hvaða bjánar semja fyrir þessa krakka??
Er ekki ennþá búið að hreinsa út úr VR?

gestur þorláksson
14.02 2010 kl.23:33

ein staðreind gagnvart vöruverði þá hefur bónus alltaf verið með lægsta vöruverðið og eg ásamtmörgum öðrum haft hag af því að versla þar. meðan einginn býður betur er bónus besti kosturinn.

bjst
18.03 2010 kl.20:20

Það er einstaklega gefandi að versla í Hagkaupsbúðunum.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar