Lyfjafyrirtækið Lyfja stendur sig verst allra slíkra fyrirtækja á Íslandi sé mið tekið af umkvörtunum neytenda á okursíðum dr. Gunna. Fær Lyfja reyndar harða samkeppni frá hinu stóra lyfjafyrirtækinu Lyf og heilsu. Önnur lyfjafyrirtæki eða apótek komast varla á blað en hafa ber í huga að þessi tvö hafa verið langstærst á markaðnum á Íslandi.
Eyjan hefur tekið saman og greint allar færslur neytenda á hinni þekktu okursíðu dr. Gunna en sú hefur verið starfrækt um rúmlega tveggja ára skeið. Er lítið lát á fjölda þeirra er þar tjá sig enda skiptir nú heildarfjöldi færslna þar þúsundum. Má enda svo heita að sá vefur sé í raun eini vettvangur neytenda í landinu að frátöldum Neytendasamtökunum sjálfum og Talsmanni neytenda. Mun Eyjan nú og á næstu dögum birta niðurstöðurnar í hinum ýmsu þjónustu- og verslunargeirum.
Ekki færri en 41 einstaklingur sér ástæðu til að tjá sig um Lyfju. Þykir verðstefna fyrirtækisins ekki til eftirbreytni að mati gagnrýnenda en ólíkt færslum neytenda í öðrum geirum atvinnulífsins eru nánast allar kvartanir yfir lyfjafyrirtækjunum vegna þess sem flokkast undir okur í huga þeirra sem tjá sig.
Fyrirtækið Lyf og heilsa er reyndar lítill eftirbátur Lyfju hvað kvartanir um okurverð varðar. Fær það fyrirtæki 38 kvartanir alls og aftur er stærstur hluti neytenda að kvarta yfir verðum í hærri kantinum.
Athygli vekur að þrátt fyrir töluverðan fjölda lyfjafyrirtækja og apóteka komast aðeins tvö önnur slík fyrirtæki á blað. Eru það Lyfjaver og Lyfjaval sem fá þrjú atkvæði hvort um sig fyrir okur eða slaka þjónustu.
Nokkur handahófskennd dæmi má finna hér að neðan.
Vissulega er ekki mikið magn notað í einu en verð á 4 ml í Lyfju Smáratorgi er á kr. 2,876.- Oft er það hagur að selja hluti í litlum einingum til að auka framlegð, ennfremur sem lyf geta runnið út fljótlega eftir opnun, en umreiknað kostar 1 líter af þessum augndropum kr. 719,000.-
Álpaðist til að versla af ykkur (lyf og heilsa) firði í hádeginu í gær 05.05.09 um kl 12:20 . Astma lyf 3 stl ventolin, 3 stk seretide 50/500 og 3 stk flixonase - kostnaður uppá 12.585 kr. Eftir verðkönnunn kom í ljós að ég hefði einungis þurft að greiða 6.418. - kr fyrir sömu lyf. hjá Lyfjaveri. Finnst ykkur þetta vera í lagi ?
Ég get því keypt nærri 4 skammta þar sem hægt er að versla hagkvæmast á móti 1 skammti í Lyfjum og heilsu. Veitir ekki fólki af hverri krónu þessa dagana, sérstaklega þeim, sem þurfa á lyfjum að halda? Ég vildi vekja athygli á þessum hrikalega verðmun, til að fleiri en við geti nýtt krónurnar sínar betur.
Pakkinn af Nicotinell nikótíntyggigúmmí, 2 mg. mint, 204 stk., kostar kr. 7.280 í Lyfju, Staðarbergi, Hafnarfirði (kannað 10. desember 2008, kl. 18:30). Daginn eftir keypti ég sama skammt (Nicotinell 2 mg. mint, 204 stk.) í Lyfjaveri, Suðurlandsbraut, Reykjavík. Pakkinn kostaði þar kr. 4.682!! Mismunur á Lyfju og Lyfjaveri: kr. 2.598, Lyfjaveri í hag.
Mér er það gersamlega óskiljanlegt að nokkrum manni skuli detta í hug að versla við Lyfju.
Okursíðu dr.Gunna má finna hér.
*Hver færsla var talin en henni sleppt ef athugasemdir þjónustuaðila gáfu tilefni til eða þegar engin rök voru til færð sem ástæða kvörtunar. Ummælum við færslur var sleppt jafnvel þó þar komi yfirleitt fram mun fleiri dæmi enda velflest nafnlaus.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
10 ummæli
Rita ummæli03.12 2009 kl.11:33
Slóð
af hverju verslar fólk í okurbúllum? Þetta er lönguvitað.
03.12 2009 kl.11:36
Slóð
Lyfja er okurverslun af verstu gerð, en ég sniðgeng líka alveg Lyf og Heilsu sem er í eign Wernersen-krimmanna.
03.12 2009 kl.11:36
Slóð
Þetta er OKURBÚLLA.
Að fólk skuli versla þarna..........
03.12 2009 kl.11:40
Slóð
Alveg sammála mönnum hér á síðunni:
Wernersen-krimma OKURBÚLLA.
Af hverju eru þessir þjófar og okrarar ekki á bak við lás og slá?
03.12 2009 kl.11:43
Slóð
Lækkið lyfjakostnaðinn um helming, með því að versla við Lyfjaver Suðurl.br 22
03.12 2009 kl.12:26
Slóð
Ekki bara er það siðferðislega rétt að sniðganga sóðafyrirtækin,, heldur líka margborgar það sig fyrir budduna...
Ef að við Íslendingar förum nú að drullast til að beina okkar viðskiptum frá Hrunafyrirtækjunum og til þeirra sem sem ekki eru tengdir hruninu þá fara þessir gaurar á hausin endanlega og samkeppnisaðilarnir geta boðið hagstæðari verð.. þeir eru jú að taka meira frá byrgjum með meii verslun.
Þessi þróun ætti með samstöðu ekki að taka lengri tíma en 3-6 mánuði...
Allt sem þarf er vilji okkar til að knýa þetta í gegn með því að versla við “Rétt Fyrirtæki”
Lyfja, Lyf og Heilsa, Haga fyrirtæki, Sjóvá, eru á bannlista hjá mér
Það væri til að minda sterkur leikur að sniðganga verslanir Haga um fyrir jólin.. Það yrði banabiti Haga
Einnig forðast ég samskipti við Íslenska banka eins og hægt er.
Er markvisst að vinna í að koma mér útúr Íslensku fjármálakerfi.
Mæli með því að fólk geri slíkt hið sama
03.12 2009 kl.12:55
Slóð
Rima Apótek í Langarima hefur oft komið best út í verðkönnunum.
03.12 2009 kl.15:25
Slóð
Alveg rètt Zatarra. Fòlk à ad snidganga fyrirtæki audrònanna, eins og apòtek Karls Wernerssonar, Lyf og heilsu, Apòtekarann og Skipholtsapòtek. Minni à greinina ì DV um hvernig Karl Wernersson kom Lyf og heilsu med òlôglegum hætti ùt ùr Milestone, til ad fordast gjaldthrotamedferd à lyfjakedjunni. À sìdu Hæstarèttar www.haestirettur.is mà lesa dòm, sem Karl Wernersson hlaut fyrir ad standa ekki skil af virdisaukaskatti.
Hvernig getur fòlk lagt sig svo làgt ad fara ì Lyf og heilsu àn thess ad rodna af skômm. Ef fòlk væri samtaka um ad versla ekki vid thà, sem àbyrgd bàru à bankahruninu væri hægt ad fà thessar lyfjakedjur à hausinn.
Mèr skilst ad Lyfja sè ad hluta til ì eigu Baugsfedga.
04.12 2009 kl.11:10
Slóð
Enn við búm úti á landi hvað eigum við að gera neiðumst til að versla við þá sem eru á staðnum.Annað hvort er það Lyfja eða Lyf og Heilsa.Lyf og heilsa í þessu tilviki
13.12 2009 kl.01:38
Slóð
Til upplýsingar
Hver ákveður lyfjaverð?
Lyfjagreiðslunefnd sem er ríksstofnun .
“Á skrifstofu lyfjagreiðslunefndar er umsóknum um heildsöluverð og greiðsluþátttöku í lyfjum veitt móttaka af starfsmönnum nefndarinnar. Þeir eru einnig tengiliðir við nefndarmenn varðandi fyrirspurnir, bréfaskriftir og annað.”
Hver ákveður hvað sjúklingar eiga að borga í lyfseðilsskyldum lyfjum ?
Svar : Ríkið
” Greiðsla sjúkratrygginga vegna kaupa á lyfjum miðast að hámarki við viðmiðunarverð, sbr. 3. mgr. Í þeim tilvikum sem smásöluverð þess lyfs sem afgreitt er, er hærra en viðmiðunarverð lyfs samkvæmt viðmiðunarverðskrá, greiðir sjúkratryggður þann viðbótarkostnað sem til fellur. Þegar ekki er tilgreint viðmiðunarverð miðast greiðsla sjúkratrygginga við greiðsluþátttökuverð, sbr. 5. mgr”
Hver ákveður smásöluálagningu apóteka á lyfseðilsskyldum lyfjum ?
Svar: Ríkið
“Hámarks heildsöluverð Smásöluálagning
0-11.999 kr 9% + 675kr
Meira en 12.000 kr 0% + 1.755 kr “