Eyjan hefur undanfarna daga birt niðurstöður greiningar á þeim þúsundum færslna sem birtar hafa verið á hinum vinsæla okurvef dr.Gunna. Hefur birting þessa efnis vakið athygli þó sitt sýnist hverjum um gildi upplýsinganna enda vefurinn opinn öllum til athugasemda.
Það er þó óumdeilt að umræddur vefur er einn af sárafáum stöðum þar sem neytendur hérlendis geta komið á framfæri upplýsingum sem þeim finnst skipta máli. Óumdeilt er einnig að neytendamál almennt á Íslandi hafa lengi verið í lamasessi og um það hafa margir tjáð sig í ræðum og riti, hvort sem er Alþýðusamband Íslands eða Talsmaður neytenda. Þá liggur ennfremur fyrir að þúsundir Íslendinga hafa tjáð skoðanir sínar á vef dr.Gunna og meirihluti allra færslna eru merktar með nafni.
Eyjan birtir hér lokaúttektina og að þessu sinni lista yfir þau þrjú fyrirtæki í hinum ýmsu greinum sem hvað flestir tjá sig um á umræddum okursíðum. Áberandi óvinsælustu fyrirtækin á vef dr. Gunnar eru matvöruverslanirnar Hagkaup, Krónan og Bónus en engum á að koma á óvart að óvinsælustu fyrirtækin í öllum flokkum eru einnig meðal þeirra stærstu á Íslandi og því kannski fátt óeðlilegt við þá stöðu.
Listinn í heild sinni:
Bóka- og ritfangaverslanir:
Penninn/Eymundsson (30)
Office 1 (15)
Mál & Menning (10)
Söluturnar:
Bónusvídeó (10)
Aktu Taktu (9)
Snæland Vídeó (8)
Ferðaskrifstofur:
Heimsferðir (4)
Úrval Útsýn (3)
Norræna (2)
Verkstæði:
Bíla Áttan (6)
Max 1 (6)
Stilling (4)
Líkamsrækt:
World Class (5)
Hreyfing (5)
Sporthúsið (3)
Kvikmyndahús:
Sambíóin (19)
Háskólabíó (5)
Önnur (3)
Tískuvöruverslanir:
Debenhams (9)
Zara (8)
Ólavía og Óliver (6)
Bakarí:
Bakarameistarinn (18)
Jói Fel (9)
Bakaríið við brúnna (9)
Tölvuvörur:
Elko (40)
BT (29)
Apple búðin (20)
Matvöruverslanir:
Hagkaup (115)
Krónan (112)
Bónus (103)
Stórverslanir:
Húsasmiðjan/Blómaval (56)
Byko (44)
IKEA (21)
Bankar:
Glitnir (15)
Arion banki (15)
Landsbankinn (12)
Olíufélög:
N1 (56)
Olís (23)
Skeljungur (22)
Fjarskiptafyrirtæki:
Síminn (44)
Tal (19)
Vodafone (17)
Flugfélög:
Icelandair (47)
Iceland Express (18)
Flugfélag Íslands (4)
Bílaumboð:
Hekla (17)
Toyota (12)
Ingvar Helgason (9)
Kaffihús:
Te & Kaffi (11)
Súfistinn (7)
Maður lifandi (4)
Lyfjafyrirtæki:
Lyfja (41)
Lyf og heilsa (38)
Lyfjaver (3)
Útilífsverslanir:
Intersport (18)
Útilíf (15)
Ellingsen (4)
Öryggisfyrirtæki:
Securitas (12)
Öryggismiðstöð Íslands (2)
Veitingar:
Pizza Hut (13)
KFC (11)
Dominos (9)
Aðrir:
Toys ´R Us (25)
Fríhöfnin (21)
Íslandspóstur (17)
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
10 ummæli
Rita ummæli06.12 2009 kl.13:47
Slóð
Er maðurinn ekki farinn að auglýsa fyrir Iceland Express og þanning grafa undan sjálfum sér fyrir einhverja aura.
06.12 2009 kl.14:21
Slóð
iceland express 18 je right mjög trúlegt
06.12 2009 kl.14:35
Slóð
okursíðu dr. Gunna sem er gott framtak
en þessu (drullumalli) verðum viða að þakka VG og Samspillingunni fyrir
frábæran árangur fyrir okkur neytendur í að gera vont VERRA
06.12 2009 kl.21:38
Slóð
Ég tek undir orð Gunnr um trúverðugleika Dr. Gunna, sem skrifar nú mjög í glamúrstíl, pönkarinn:
“Er maðurinn ekki farinn að auglýsa fyrir Iceland Express og þanning grafa undan sjálfum sér fyrir einhverja aura”.
Trúverðugur er hann Dr. Gunni orðinn sínum herrum. Sálin í grautinn?
Að öðru leyti er kallinn yfirleitt fínn, sér í lagi í prumpinu.
06.12 2009 kl.22:00
Slóð
Dr. Gunni gaf það út áður en að hann fór að auglýsa fyrir Iceland Express að nú væri komið nóg og að hann væri kominn í pásu í þessum málum og nú væri annarra að taka við neytendamálum..
Ekki það að ég fljúgi með þessi fyrirtæki eftir að hafa öðlast flughræðslu með að fljúga með þeim.... núna flýg ég helst ekki neitt..
06.12 2009 kl.22:47
Slóð
vaeri gaman ef eyjumenn gerdu eitthvad gagn vid sinn tima annad en ad tuda og uppnefna flokka sem eru ad reyna hreinsa upp eftir saudaflokkinn, XD.
13.12 2009 kl.20:24
Slóð
10.02 2010 kl.10:24
Slóð
Er ekki kominn tími á nýjar fréttaskýringar?
17.02 2010 kl.11:45
Slóð
Þarf ekki að normalisera tölurnar?
27.02 2010 kl.18:52
Slóð
Þessi listi er svo mikið bull. Það er fullkomnlega eðlilegt að sum fyrirtæki koma oftar en önnur í sama business þar sem þau eru kannski miklu stærri.
Auðvitað kemur Penninn / Eymundsson oftast upp þegar kemur að bókabúðum, þar eru þær næstum einráðir.
Síminn kemur eðlilega upp oftast hjá símafélögunum þar sem þeir eru stærstir á markaðnum.
Það þarf að skoða þessa tölur aðeins betur, allt má nú kalla fréttaskýringu.