Innlent - miðvikudagur - 13.1 2010 - 09:53

Aðstoðarmaður Jóhönnu segir Facebook-síðuna ekki opinbera: „Eins og í eldhúsinu heima“

hrannar.jpgHrannar Björn Arnarson, aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra, hefur birt tilkynningu á Facebook-síðu sinni þar sem segir að hún sé óopinber síða fyrir fjölskyldu sína, vini, kunningja og aðra þá sem vilji halda tengslum við sig. „Hér vil ég geta tjáð mig eins og ég geri í eldhúsinu heima. Ekkert á síðunni er ætlað til opinberrar birtingar“, segir hann.

Spurningar hafa vaknað um gildi slíkra yfirlýsinga, ekki síst þegar haft er í huga að opinber persóna í mjög háu valdaembætti á í hlut. Þá hafa rúmlega 1700 manns aðgang að efni síðunnar sem vinir Hrannars á Facebook.

Fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag. Þar segir að athygli hafi vakið þegar Hrannar Björn „tíndi til neikvæða erlenda umfjöllun um Ísland í Icesave-málinu á síðunni og lét fylgja með að hún væri „með kveðju frá Bessastöðum“. Hafa sumir túlkað þetta þannig að embættismaðurinn hafi verið að hæðast að forsetanum eða ákvörðun hans.“

Í ágúst í fyrra varð nokkurt uppnám þegar Hrannar Björn lét falla ummæli um Evu Joly, ráðgjafa sérstaks saksóknara bankahrunsins, sem skilin voru sem niðrandi. Lýsti Hrannar því yfir í kjölfarið að hann sæi eftir orðum sínum.

67 ummæli

Rita ummæli

Bloggi
13.01 2010 kl.09:55

Er þessi maður ekki starfsmaður á ” lágu” plani.

Joi Erlendsson
13.01 2010 kl.09:59

hver borgar launin hanns?

sexylady
13.01 2010 kl.10:00

Svona heimasíða hjá aðstoðarmanni forsætis á ekki að líðast. Hann á að halda kjafti og sinna sinni vinnu í staðinn fyrir að vera að rugla þetta á netinu og þykjast vera einhver forsætisráðherra. Sýndu nú smá vit og lokaðu síðunni ef þú vilt halda starfinu!

ES
13.01 2010 kl.10:00

Talar hann við fólk í eldhúsinu heima hjá sér með aðstoð tölvu? Facebook er opinber birting.

Guðrún
13.01 2010 kl.10:05

Það væri nær að hann skrifaði politískagrein að heiðarlegum hætti.

Anna
13.01 2010 kl.10:06

Þessi maður á ekki skilið að vera aðstoðamaður forsætisráðherra. Jóhanna á að losa sig við hann sem fyrst og finna einhvern heiðarlegan og trúverðugan kandidat í hans stað. Hann dregur ráðherrann og ríkisstjórnina niður í svaðið....

Grímur
13.01 2010 kl.10:06

Ansi stórt eldhús sem Hrannar er vanur að tjá sig óopinberlega í

Bogga
13.01 2010 kl.10:07

Guð blessi Ísland.

Mamma
13.01 2010 kl.10:09

Ef hann hugsar svona og talar svona um landið sitt í eldhúsinu heima hjá sér þá vil ég ekki hafa hann hjá okkur í vinnu!!

bjst
13.01 2010 kl.10:10

Er þetta ekki sá sem seldi “áskriftarkröfurnar” hér á árum áður?

Jósí
13.01 2010 kl.10:10

Guð margblessi Ísland.

Pétur 2
13.01 2010 kl.10:11

Smjörklípa frá hádegismóum, allir pólitíkusar sem ég hef séð skrifa á fésið nota það sem vettvang til að koma höggi á andstæðinga sína.

Ólinn
13.01 2010 kl.10:12

Hvað er hann í eldhúsinu hjá Jóa Fel eða?

1700 manns bara í mat, uzzz....

Hlýtur að vera stór kalkúnninn þar...

Arnar
13.01 2010 kl.10:28

Pólitísk efnisleg umræða á sama háa planinu og vant er.

Hrannar var kallaður “landráðamaður” þegar hann benti vinum sínum á Facebook á að hinn miklu viðsnúningur í umfjöllun erlendra miðla um Ísland væri fjarri því einhlítur.

En hér er gerð skilyrðislaus krafa um algert húmorsleysi.

Einn pirraður...
13.01 2010 kl.10:29

Við skulum hafa það í huga að yfirmenn fyrirtækja eru farnir að lesa það sem starfsmenn skrifa á facebook... og dæmi eru þess að fólk hafi tapað vinnunni sinni fyrir skrif á facebook síðum sínum.

Það sem hann skrifar á síðuna sína.. er ekki hans einkamál.

HANN ÆTTI AÐ KOMA ÞVÍ Á HREINT Í HUGA SÍNUM HJÁ HVERJUM HANN STARFAR.

Salka Valka
13.01 2010 kl.10:30

Maðurinn hlýtur að mega tjá sig, eins og aðrir í eldhúsi sínu.

Og synjun forsetans var glapræði. Eða muniði ekki eftir viðbrögðunum erlendis þann 5. janúar.

Forsetinn hefði með synjunin getað leitt skelfilega hluti fyrir þjóðina sína, hluti eins og annað og verra Hrun. Hluti eins og Hollendingar og Bretar hefði fellt ALLA Icesaveskuldina á okkur. Og það er ekki forseta að þakka að ekki fór verr - heldur heppni.

Það var heppni að enskumælandi blaðamenn brugðust jákvæðir við á öðrum degi, það tók síðan Eva Joly upp. Og áfram hélt m.a. Egill Helgason með málið, leitandi að lausnum.

Hvernig þetta svo fer á endanum, það stendur í stjörnunum.

En verum kúl og skynsöm og niðri á jörðinni krakkar...!!!
Hættum þessum asnalegum flokkadráttum sem færa okkur ekki neitt.

Bragi
13.01 2010 kl.10:31

Er þetta ekki maðurinn sem var í borgarstjórn Reykjavíkur, það sem eftir hann liggur þar og afrek hans eru, villikattarveiðar.

joi
13.01 2010 kl.10:33

Sagði sig úr borgarstjórn vegna klúðurs á sínum tíma. Hann virðist enn vera á sömu bylgjulengd og áður. Gerandi ekkert nema tóma vitleysu.

valgarður
13.01 2010 kl.10:34

Menn í hans stöðu eru ekki á Smettinu og hafa aldrei verið. Hrannar lokaðu Smettinu, eða hún kemur þér í koll eins og hefur sýnt sig.

Halldór Þýskalandsbúi
13.01 2010 kl.10:35

Er svolítið gáttaður á ykkur.

Af hverju mega sumir alltaf tjá sig, en ekki þessi maður á Facebook?

Erum við Íslendingar orðnir svona lítið jafnir? Hér einu sinni vorum við jafnari og frjálsari.

Það var um það leyti sem ég flutti úr landi, eða fyrir 20 árum síðan. Áður en þessi frjálshyggja Hannesar og Davíðs kom, sem keyrði Ísland í kaf.

Ef þið haldið að Hrannar megi ekki tjá sig, af því að hann er aðstoðarmaður forsætisráðherra, þá verð ég að segja ykkur að því miður eru Íslendingar ekki orðnir svo prófessionell, að hægt sé að gera slíkar kröfur.

Alma Jenný Guðmundsdóttir
13.01 2010 kl.10:37

Það hefur oft verið mjög gaman að fylgjast með skrifum Hrannars.

Mikið hefur verið sett inn um jólabækur - við höfum mörg - án þess að þekkjast persónulega, verið í hóp um bókina um Snorra Sturluson og svo mætti telja.

Varðandi pólitík - þá hef ég aldrei verið flokkspólitísk - en margir af t.d. þingmönnum þjóðarinnar ef ekki allir eru með síðu á Fésinu og hefur mér þótt gaman að fylgjast með þeim, en þeir koma úr öllum flokkum.

Fæ mjög reglulega fréttir af hinum pólitíska vettvangi - úr eldhúsum sem öðrum vistarverum húsa -

HMV
13.01 2010 kl.10:40

Það segir allt um það hvað við höfum vonlausan forsætisráðherra að þessi fyrrverandi bóksali og kosningasmali skuli vera aðstoðarmaður hennar.

En fyrir mér má hann blaðra hvað sem er á Facebook. Best að hann afhjúpi sig sem mest.

ES
13.01 2010 kl.10:41

Þú ert illa áttaður Halldór. Það er verið að tala um það hvort facebooksíða sé opinber eða ekki.

Krösus
13.01 2010 kl.10:48

Það vantar í upptalninguna á afrekum Hrannars ummæli hans “er ekki sama hvaðan gott kemur” sem hann lét falla í tilefni af peningum IcesaveBjörgúlfs til Verne Holdings.

Þessi maður er kross Jóhönnu Sigurðardóttur og heimtar núna að það verði settar sérreglur um sig svo hann geti haldið áfram að vangefnast.

Ólinn
13.01 2010 kl.10:48

Halldór minn... þetta er embættismaður og ef hann vill tjá sig, þá á hann að gera það í eldhúsinu heima hjá sér, ekki á “blaðamanna”fundi á Facebook...

Búandi í útlöndum, ættirðu vel að vita um afleiðingar af óábyrgum yfirlýsingum stjórnmálamanna á netinu. Það þýðir án undantekninga, afsögn.

Held að það sé enginn að segja að þetta sé bannað, en að halda því fram að þetta sé eitthvað einkamál er í besta falli, hlægilegt.

Held að kollegum hans svíði mest ef eitthvað er.

Alma Jenný Guðmundsdóttir
13.01 2010 kl.10:55

Munum svo ævinlega að aðstoðarmenn ráðherra eru ráðnir á pólitískum forsendum - en ekki öðrum.

Prófessor við Háskóla Íslands er ekki ráðinn vegna pólitískra skoðana sinna, heldur vegna fagþekkingar - ekki getum við bannað prófessor að hafa sínar skoðanir á stjórnmálum en hann má ekki nota það í sínum verkum sem prófessor.
En aðstoðarmenn ráðherra eru pólitískt kjörnir - og eins og hver annar prófessor sem hefur sínar skoðanir og viðrar þær við vini síni á fésinu, sé ég ekki neitt slíku til fyrirstöðu á netinu.

Fáránleg frétt - by ðe vei

Kristján Elís
13.01 2010 kl.11:00

hvað eru margir hér sem hneykslast á Hrannari með facebook síður og hver borgar launin þeirra? er ekki rétt að fá þetta allt upp á borðið;))????

Arnar
13.01 2010 kl.11:02

Hvort er hér til umræðu; tjáningarfrelsi pólitísks ráðins aðstoðarmanns forsætisráðherra á Facebook síðu sinni eða álit einhverra Eyjaskeggja á persónu Hrannars? Hefur það einhver áhrif á rétt hans til að tjá sig að einhverjum hér sé illa við hann eða ósammála honum?

Málefnalegt að venju.

ES
13.01 2010 kl.11:07

Arnar. Hrannar virðist sjálfur telja að hann geti ekki sagt hvað sem er opinberlega. Þess vegna er hann að segja okkur hinum að facebook síða sé ekki opinber.

Ólinn
13.01 2010 kl.11:12

Enda held ég að engin sé að banna honum að vera með facebook síðu.

Held að fólk sé bara að minna hann á að það að vera á facebook sé ekki eins og að vera í eldhúsinu heima hjá sér.

En það er náttúrulega eins og annað frá þessum brandara, nú brandari...

Hannes
13.01 2010 kl.11:14

Ekki er ég opinber persóna en ég geri mér samt grein fyrir því að allt sem ég segi á Facebook er “opinbert” ekkert 2 manna tal, Facebook er set þannig upp. Ef hann vill koma einhverju á framfæri í gegnum tölvu en ekki gera það “Opinberlega” getur hann notað tölvupóst.

Þannig er það bara... og 1700 vinir, það eru ekki vinir... það eru tengiliðir. Minnstakosti 80% af þeim.

Halldór Þýskalandsbúi
13.01 2010 kl.11:14

Er ykkur bara illa við manninn? Af því að hann hefur aðrar skoðanir en þið? Er það ekki málið? Ekki þekki ég manninn, þess vegna er ég svona hissa á þessum látum.

Islendingar hefur því miður ekki þann þroska sem þarf að skilja á milli einkasíðna og opinberra síðna. Sama hvort þær heita Facebook eða eitthvað annað.

Áður en sá þroski næst, þurfa menn að koma upp úr skotgröfunum, hætta að svívirða og móðga, læra að tala sama og leysa vandamálin saman.

KR
13.01 2010 kl.11:17

Ekki skarpasti hnífurinn í skúffu stjórnarinnar.....

Glaumur
13.01 2010 kl.11:18

Facebook er opinn vefur og því allt sem þar kemur fram opinber birting á netinu. Aðstoðarmaður forsætisráðherra er opinber starfsmaður og handritshöfundur og því er hlustað eftir því sem hann segir.
Ef það sem hann bullar á Facebook stenst ekki skoðun þá ætti hann að finna sér annað starf eða hætta að bulla.
Þessi manni virðast engin takmörk sett í dómgreindarleysi og hroka.

Lúðvík
13.01 2010 kl.11:19

Ekki er hann gæfulegur

Skammarlegt að sjá þetta fólk sem sannarlega er bara að hugsa um sinn eigin hag en ekki hag almennings. Er ekki við hæfi að minna fólk á að samspillingin var við stjórn í hruninu.

Ólinn
13.01 2010 kl.11:24

Halldór:

Eigum við að hringja á vælubílinn?

fannarh
13.01 2010 kl.11:27

er þetta ekki sakamaður sem hefur dæmdur ellihrellir?

Pétur 2
13.01 2010 kl.11:30

Væri ekki ráð að einhver blaðamaður gerðist vinur allra pólitíkusa á smettinu og héldi úti síðu sem sýnir statusuppfærslurnar fyrir okkur sótsvartan almúgan?

Páll
13.01 2010 kl.11:31

Með 1.700 vini þá fer ekki milli mála að þetta er opinbert.

Georg
13.01 2010 kl.11:34

þessi maður er greinilega illa gefin

Ólinn
13.01 2010 kl.11:41

Ehm Pétur 2... held að þú ættir að fara að skoða DV á næstunni

Þar er ca þriðja hver frétt, Facebook-frétt...

vandræðalegt...

Guðrún
13.01 2010 kl.11:44

Var Hrannar ekki bara að vísa í umfjöllun erlendra miðla um málefni Icesave. Eru þessar upplýsingar ekki allar opinberar?

Allir stjórnmálamenn viðra skoðanir sínar á opinberum vettvangi, á Facebook, bloggsíðum, eða öðrum miðlum.

Hvað er vandamálið ?

Ólinn
13.01 2010 kl.11:48

Guðrún...shiiiii...

Það er ekkert vandamál, vandamálið er að hann heldur að hann sé heima í eldhúsi þegar hann er á facebook...

veit ekki með ykkur, en ég myndi allavega láta tékka á mér...

Pétur 2
13.01 2010 kl.11:49

@ Ólinn

Ég veit að DV og pressan ofl. hafa verið að vísa í fréttir af fésinu. En væri ekki betra að við fengjum að sjá allar færslurnar en ekki bara einhverjar handvaldar af blaðamönnum? Fréttamatið á DV og Mogganum er einhliða þó séð frá sitthvorum pólnum.

Tg
13.01 2010 kl.11:54

1.700 manns í eldhúsinu heima ? Það hlýtur að vera stórasta eldhús í heimi.

Jói
13.01 2010 kl.12:14

En Facebook er opinber. Herra minn, ef þú lest þetta vinsamlegast athugaðu að þú getur afmarkað skýrt hverjir hafa aðgang að síðunni þinni og hverjir ekki.

Þar til þú gerir síðuna þína þannig úr garði að einungis þeir sem mega sjá hana geta það, þá er hún opinber.

Ólinn
13.01 2010 kl.12:25

Herra leiður... sé nú ekki alveg spillinguna í þessu reyndar...

Meira svona dómgreindarleysi...

En gott að vera fúll... það er líka stemmning...

Örn Guðmundsson
13.01 2010 kl.12:44

Ógeðfellt í meira lagi sé heildarmyndin skoðuð. Þetta er aðstoðarmaður forsætisráðherra Íslands.

Theódór Norðkvist
13.01 2010 kl.12:53

Hrannar ætti ekki að ver að tjá sig annars staðar en í eldhúsinu.

Sýnist reyndar margt líkt með stjórnmálaferli hans og eldhúsverkunum hjá honum. Hvort tveggja endar í vaskinum.

Hinsvegar tókst honum mjög vel að forðast vaskinn þegar hann var í sjálfstæðum rekstri.

joi
13.01 2010 kl.12:54

Þýðir tjáningafrelsi að hver sem er geti sagt hvað sem er, hvenær sem er? Er þá frelsi fólgið í því að hafa engar reglur? Þýðir það þá að séu engar reglur, þá sé fullkomið frelsi?

Svona umræða er komin á villigötur.

Hrannar B. Arnason er vafasamur pappír, og margir undrandi á að hann skyldi vera valinn aðstoðarmaður Jóhönnu. Hann er í þannig stöðu að manninum hlýtur að vera ljóst að ekki er hægt að segja hvað sem er fyrir framan nefið á þúsundum manna, og segja svo að þetta sé svona eldhússpjall.

það hefur lítið breyst síðan uppþotin urðu á síðasta ári. Skrýtið að mótmælendurnir skuli vera sáttir við ástandið núna, miðað við hversu ósáttir þeir voru í fyrra.

S.H
13.01 2010 kl.13:01

Mikið rosalega er þessi blairisti líkur sjálfum Tony Blair.

Skyldi vera hægt að setja hann upp í Icesaveskuldirnar?

Ari
13.01 2010 kl.13:07

Æji þessi kall er aðeins of kjánalegur! Að tala í sínu eldhúsi... maður fær nú bara kjánahroll við svona réttlætingu

gg
13.01 2010 kl.13:17

ég hélt að forsætisráðherra veitti ekki af gáfulegum aðstoðarmanni.

Þorleifur Dagbjartsson
13.01 2010 kl.15:05

Facebook er skítasíða

Hellcat
13.01 2010 kl.16:54

Fullkominn stormur í vatnsglasi!

Annars er Hrannar ekki embættismaður, hann er pólitískur aðstoðarmaður, mjög mikilvægur munur á þessu tvennu.

Sigún G.
13.01 2010 kl.17:23

gg 13:17

Sammála.

Trúverðugleiki Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra verður sannarlega ekki meiri með þennan klaufabárð sem aðstoðarmann.

Sigurlaug Eggertsdóttir
13.01 2010 kl.18:50

Ha ha. Facebook er ekki prívat skv. Mark Zuckerberg http://www.eweekeurope.co.uk/news/facebook-s-zuckerberg-questions-privacy-expectations-2983
En þar segir m.a.:

Privacy is no longer a social norm, according to the founder of Facebook, Mark Zuckerberg commenting on the rise of social networkin.

Viðar Ingvason
13.01 2010 kl.18:52

Með því að tala niðrandi um Evu Joly, gekk Hrannar í Ruslflokkinn, öllu trausti rúinn.

V. Jóhannsson
13.01 2010 kl.19:43

Hrannar er í þessu starfi í gegn um vinatengsl, ekki út af gáfum.
Þetta er típikal Ísland og kemur ekki til með að breytast, því miður.

j.a.
13.01 2010 kl.20:53

Maðurinn hlýtur að vera sauðdrukkinn, við eldhúsborðið.

IS
13.01 2010 kl.21:40

Hann virkar ekki mjög vitiborinn - eða réttara sagt að vitið flækist ekki fyrir honum.
Jóhönnu veitti nú ekki af að hafa þroskaðri aðila sér til aðstoðar.
Hann virðist hafa staðnað á þroskaskeiðinu og skilur ekki í hvaða stöðu hann er.

has
13.01 2010 kl.21:47

Þetta er náttúrulega bara forheimska að láta svona út úr sér. Auðvitað er þetta áróður sem er verið að koma á framfæri þessi dindill er bara lygamörður og óheiðarleikinn uppmálaður og til skammar að hann skuli vera í því starfi sem hann er í og svo sannarlega er hann þar ekki vegna gáfnafars eða hæfileika heldur vegna vinatengsla þess utan algerlega óþarfur

Ólöf
13.01 2010 kl.21:59

Jæja, erum við sem sagt alltaf til í að drulla yfir náungann sama hvort það er 16 ára stelpa að stíga sín fyrstu skref í júróvisjón eða opinber starfsmaður sem reynir að verja sig á krítískum tímum?

Hef mína skoðun á málinu en þessi „umræða“ er bara komin á það plan að ég ætla að halda henni fyrir mig.

Vildi bara óska að við (ég líka!) hefðum um mikilvægari hluti að hugsa en þetta.

Sigurður Viktor Úlfarsson
14.01 2010 kl.00:52

Þetta er auðvitað alveg fráleitt mat á aðstæðum.

Ef hann er að ræða um sunnudagsbíltúrinn með fjölskyldunni þá er síðan hans auðvitað einkamál.

Ef hann er hins vegar að fjalla um málefni tengd vinnunni, málefni sem eru til umræðu og vinnslu í stjórnkerfinu eða tengjast því á einhvern hátt þá er staður þar sem 1700 manns sjá ummælin að sjálfsögðu opinber birting. Að telja annað er alvarlegur dómgreindarbrestur.

Bubbi
14.01 2010 kl.01:26

Er þetta ekki eftir öðru hjá Flugfreyjunni ......að aðstoðarmaður.....
er byrjaður að telja Facebook eldhúsi hjá sér... hvað er... W.C. hjá honum

Sannleikur
14.01 2010 kl.07:58

13.01.2010
Fésbók er opinbert eldhús

Aðstoðarmaður forsætisráðherra getur ekki verið prívat á Fésbók með 1733 (!) vinum. Reynslan sýnir, að Fésbók er opinbert eldhús. Hrannar Björn Arnarson er valdamaður með raðhneyksli á bakinu.

Gerði í ágúst grín að Evu Joly og nú að Ólafi Ragnari.

Þetta gengur ekki. Ríkisstjórnin hefur næg vandamál, þótt hún burðist ekki með Hrannar á bakinu, erkitýpu blaður-fulltrúans. Venjulegt fólk má gera grín að hverjum sem er, en almannatengill forsætisráðherrans má það ekki. Þetta er alvarlegra vegna þess, að Jóhanna forsætis er mannafæla. Hún forðast að koma fram fyrir hönd Íslands og styðst við aðstoðarmennina.

www.jonas.is

Sigurður Jóhann Steingrímsson
14.01 2010 kl.16:24

Hrannar er aðstoðarkokkur Jóhönnu.

Hann notar fésbókina til að koma með prufu-rétti á viðbjóð þann sem kokkaður er af honum og Einari Karli fyrir Jóhönnu. Hann og Helgi Hjörvar voru með allt niður um sig á sínum tíma í skattamálum sínum. En þannig menn upphefur Samfylkingin.

Hrannar er sá, sem Jóhanna valdi sér til aðstoðar.
Segir allt sem segja þarf um dómgreind hennar.
Líkur sækir líkan heim.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar