Innlent - miðvikudagur - 3.2 2010 - 11:58

„Stóra plottið“: DV segir Bjarna Ben í miðju viðskipta um að koma 45 milljörðum úr landi

stora_plottid.jpgAðstandendur eignarhaldsfélagsins Milestone og hópur Engeyinga, eigendur BNT, móðurfélags N1, söfnuðu 45 milljörðum króna í aðdraganda hrunsins. Aðferðirnar voru flóknar og ógagnsæjar, en niðurstaðan var að 45 milljarðar voru sendir úr landi. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur áður sagt að hann hafi ekkert komið nálægt ákvörðunum um Vafning. Samkvæmt leyniskjölum sem DV hefur undir höndum var hann í miðju viðskiptanna.

Þetta er fullyrt í DV í dag.

Eyjan hefur óskað viðtals við Bjarna vegna málsins en hann hefur ekki orðið við því.

Blaðið segir að Bjarni hafi gegnt lykilhlutverki í að koma viðskiptunum í gegn. Það hafi hann gert sem stjórnarmaður í BNT. Hann hafi skrifað upp á umboð sem veitti honum sjálfum heimild til að veðsetja hultabréf félagsins í eignarhaldsfélaginu Vafningi 8. febrúar 2008. Það hafi reynst vera mikilvægur hlekkur í umfangsmiklum viðskiptum sem hafi haft þann tilgang að gera Milestone og ættingjum Bjarna kleift að borga Morgan Stanley 45 milljarða. Öðrum kosti hefði Milestone væntanlega farið á hliðina, með mögulegri keðjuverkun fyrir tengd félög.

DV segir að Bjarni hafi verið einn þriggja stjórnarmanna frá eignarhaldsfélaginu BNT sem hafi skrifað upp á umboðið sem veitti honum sjálfum heimild til að veðsetja hlutabréfin í Vafningi, sem hélt utan um fasteignaviðskipti með lúxusíbúðir í Makaó suður af Kína. Hinir tveir mennirnir hafi verið stjórnarmennirnir Jón Benediktsson og Gunnlaugur Sigmundsson, sem er þekktur athafnamaður og meðal annars faðir Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins.

93 ummæli

Rita ummæli

sexylady
03.02 2010 kl.12:01

Ekki persónugera hrunið, segir systir Þorgerður:)

Joi
03.02 2010 kl.12:02

Nei var thad ekki Geir Gunga sem sagdi thad lol..

Pétur 2
03.02 2010 kl.12:02

Af hverju fjalla engir fjölmiðlar um þetta mál annar en DV og nú eyjan? Af hverju er Bjarni Ben ekki fengin í kastljósið???

Hannes Hrun
03.02 2010 kl.12:08

Var þá Björn líka með eitthvað óhreint í pokahorninu? Alveg eins og Kjartan vinur okkar!

En mega menn ekki græða á daginn og grilla á kvöldin?

Það var jú alltaf markmiðið...

HA
03.02 2010 kl.12:10

@Pétur2

Ummm, kannski vegna þess að fréttin birtist í dag og Kastljósið verður ekki sýnt fyrr en í kvöld?

Jón Kr.
03.02 2010 kl.12:10

Það voru allir helstu forystumenn Sjalfstæðisflokksins og atvinnulífsins á kafi í braskinu. Líka í Framsókn (sbr. Finnur Ingólfs og faðir núverandi formanns)

Þeir settu þjóðina á hausinn, með eigin græðgi.

Robbi
03.02 2010 kl.12:11

Bjarni Benediktsson lenti greinilega í slæmum félagsskap með Karli Wernerssyni. Enn er samt til fólk, sem hefur geð í sér til að versla í Lyf og heilsu og Apótekaranum, lyfjakeðjum Karls Wernerssonar, sem er höfuðpaurinn í Milestone og sólundaði fjármunum Sjóvár. Karl Wernersson hefur réttarstöðu grunaðs manns. Auk þess má á síðu Hæstaréttar www.haestirettur.is lesa dóm, sem hann hlaut, ef nafnið Karl Wernersson er slegið inn á Leita.

Elfa Jóns
03.02 2010 kl.12:13

Pétur

Hvaða fjölmiðlar eiga að fjalla um þetta?
Þeir eru annað hvort í eigu Sjálfstæðisflokksins eða útrásarvíkinga.

... nema RÚV.

Ekki von á miklu frá öðrum. Stöð2 sigar nú löggunni á menn sem hafa upplýsingar um þeirra vildarvini. Svo við getum sleppt að líta í þá átt eftir upplýsingum.

Gunna
03.02 2010 kl.12:13

Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð, nú verðið þið að gera grein fyrir þessu máli. Eruð þið virkilega á kafi í þessum skít?

Pétur 2
03.02 2010 kl.12:17

@HA

DV er búið að vera fjalla um Bjarna Ben, vafning, milestone, sjóva og Wernersbræður undanfarnar vikur og það er þegar búin að vera full ástæða um að krefja bjarna ben svara fyrir ofangreinda frétt. Eftir ofangreinda frétt er það algjörlega ljóst ef að hinir fjölmiðlarnir taka ekki málið upp núna þá stimpla þeir sig algjörlega sem málpípur FLokksins. Hvernig munu þessir fjölmiðlar taka á rannsóknarskýrslunni?

Halldór Á
03.02 2010 kl.12:18

Ég skil ekki alveg í hverju glæpurinn er fólginn. Samkvæmt þessu var mannskapur í byrjun ársins 2008 - löngu fyrir hrun - að tíma saman peninga til að borga lán í Morgan Stanley bankanum.

Varla er það orðið glæpsamlegt að borga lán? Nema auðvitað ef fólk er sammála Bjarna Ármannssyni um skynsemi þess að borga það sem maður skuldar.

Þessi umfjöllun um Milestone og Bjarna Ben er reyndar mjög flókin og ég skal viðurkenna að ég botna hvorki upp né niður í málinu. Sem sýnir kannski hvað hér voru flóknir gerningar - vafningar? - í gangi, hver svo sem tilgangurinn var.

Kristján Kristjánsson
03.02 2010 kl.12:22

Bankarnir hrundu.
Stjórnkerfið hrundi.
Stjórnmálamenn og flokkar hrundu.
Heilt samfélag hrunið og enn ganga glæpamennirnir lausir.

Rómverjar komust að þeirri niðurstöðu að þegar of margir lögfræðingar væru komnir á þing þá hrindi ríkið.
Kenningin hefur verið staðfest á Íslandi.

Hvað svo ?

Gunnar
03.02 2010 kl.12:24

Þá er bara að drífa sig í fleiri húsleitir kæri sérstaki saksóknari og svona í leiðinni viltu ekki kíkja við hjá venjulegun Valtýr saksóknara og taka tölvuna hans líka........

Kalli
03.02 2010 kl.12:25

Stórfrétt DV:

“Fyrirtæki endurgreiddi erlendum banka 45 milljarða lán”

Nei, ekki nógu krassandi höfum það frekar:

“Hægri menn voru með plott að koma 45 milljörðum úr landi”

Ah! Miklu betra!

tjörvi
03.02 2010 kl.12:27

Bjarni spilltur! Jóhanna vitlaus, Steingrímur skiptir um skoðanir eins og nærbuxur. Össur er trúður. Þorgerður með 950 milljóna kúlulán. Katrín Jakobs skellir sér í bíó til Kanada á kostnað skattgreiðenda. Ég elska Alþingismenn.

Árni
03.02 2010 kl.12:27

Þetta er hálf undarlegt allt saman. Frá byrjun hefur ekkert annað komið fram hjá DV en að Bjarni “hafi skrifað upp á umboð sem veitti honum sjálfum heimild til að veðsetja hlutabréf félagsins” og eiginlega ekkert annað. Engin tenging við neitt - heldur er reynt að fjalla um aðra aturði samhliða til að láta þetta líta út fyrir að vera tengt.

Það er ekkert undarlegt að aðrir fjölmiðlar fjalli ekki um málið því að það liggja engar sannanir eða vísbendingar fyrir um nokkurn skapaðan hlut.

Kannski er stóra plottið að DV er að reyna að koma höggi á Bjarna no matter what og finnur ekkert betra.

Mér myndi finnast áhugavert að sjá rannsókn á þessu máli eins og svo mörgum öðrum. Ef Bjarni hefur gert eitthvað af sér á hann að sjálfsögðu að borga fyrir það. En trúverðugleiki DV er því miður nákvæmlega enginn.

Magnús
03.02 2010 kl.12:34

Málið snýst um að Bjarni Ben er tengdur viðskiptum sem snérust um að taka marga milljarða úr bótasjóði Sjóvá til að standa í fasteignabraski í Macau. Gott að hafa í huga að ríkið þurfti að setja nánast jafn marga milljarða í Sjóva þannig að tryggingafélagið færi ekki á hausinn með alvarlegum afleiðingum.

ala
03.02 2010 kl.12:35

Voðaleg haturskrif eru þettað,mynd af Birni Bjarnasyni hvað kemur hann þessu máli við

Birgir Rúnar Sæmundsson
03.02 2010 kl.12:35

Þagar árið 2007 þegar svikakettirnir sáu að allt var að fara af þeirra sökum til helvítis, ákváðu þeir að tæma allt mögulegt og ómögulegt til að senda úr landi. Tæma sjóði, banka ofl.ofl. Inn á offshore accounts.

Þetta eru ótýndir ræningjar og ekkert er gert í því.
Réttarkerfið ræður aðeins við súpuþjófa, því spillinger er svo mikil.

Svo kemur forsætis kellingin í kastljós og veit ekki neitt, bullar rullu,
er nema von að ræningjarnir eigi náðarsamlega daga.

Ræningjarnir vilja endilega viðhalda þessari vitlausu ríkisstjórn.
Á meða geta þeir athafnað sig óáreyttir.

Runi
03.02 2010 kl.12:37

Hvað sem mönnum finnst um þessi viðskipti, þá er þarna svart á hvítu að Bjarni og Sigmundur Davíð eru innmúraðir inní fjármálaklíku okkar lands.

Fjármála klíka sem er búinn að eigna sér allt hér á landi, og við smælingarnir eigum bara að þegja og borga.......

Nú er einfaldlega nóg komið, ef það verður ekki hreinsað til núna, þá mun landið verða í sama flokki og Bólívía næstu áratugina. svo einfald er það.

Gestur
03.02 2010 kl.12:39

Málið er að þetta verður aldrei neitt mál. Samtryggingin...tengslin...vinirnir...osfrv. Sama gildir um Skýrsluna þegar hún kemur, ef hún þá kemur...

Haukur Kristinsson
03.02 2010 kl.12:39

Fylgi Sjálfstæðisflokksins hlýtur að rjúka upp núna.

En þannig virðast Íslendingar vera af Guði gerðir.

Hilmar
03.02 2010 kl.12:47

Björn Bjarna hlýtur að svara þessu á blogginu sínu. Ekkert komið enn. Er þetta ekki annars hann þarna vinstra meginn?

gunnur
03.02 2010 kl.12:48

Af hverju eru Síamstvíburunum Bjarna og Sigmundi svo mikið í mun að æsa upp Icesavemálið ?

Sumir segja að það sé til að koma stjórninni sem fyrst frá - svo ekki verði hægt að skoða fleiri misferli.

Pétur 2
03.02 2010 kl.12:48

Magnús er með þetta hér að ofan og það er ótrúlegt að menn sjái þetta ekki. Margir milljarðar hafa verið settir inn í sjóva til að Sjóva færi ekki hausinn. Þeir peningar koma beint úr vasa skattgreiðenda. Og formaður sjálfstæðisflokksins er stór spilari í þessum gjörningi.

Hilmar
03.02 2010 kl.12:51

Sjóva, áttu þeir ekki Avant svikamylluna, menn ættu að skoða gengið á þessum myntkörfum þeirra!!!

Sigurður #1
03.02 2010 kl.12:53

Ef maður les aðeins meir en fyrirsögnina, þá kemur fram að þessum peningum var safnað saman til að borga af láni hjá Morgan Stanley.

Hver er fréttin, og hver er glæpurinn?

Þó ég hafi viðbjóð á þessum flokki og forystumönnum hans að þá verð ég nú bara að viðurkenna að ég sé ekki skandalinn í þessu?

Runi
03.02 2010 kl.12:54

ala

ef þú skoðar hverjir eru eigendur þessa fyrirtækis BNT (N1)

Björn Bjarnason
Gunnlaugur Sigmundsson (faðir Sigmunds Davíðs)
Benedikt Sveinsson (faðir Bjarna Ben)

... og ef þú síðan lest það sem þessir menn segja opinberlega með hliðsjón af þessum tenginum,, þá opnast nýr heimur fyrir þér.

Doddi
03.02 2010 kl.12:55

Halldór Á
03.02 2010 kl.12:18

Þegar búið er að flækja hlutina með þessum hætti er yfirleitt verið að fela eitthvað óhreint, það hefur reynslan kennt okkur.

Runi
03.02 2010 kl.12:56

Sigurður #1
03.02 2010 kl.12:53

það vantar inní þessa frétt er að þeir eru að borga lán uppá 45 milljarða, -peningar sem þeir fengu í hendurnar sjálfir.. með því að tæma sjóði Sjóvá.

Vilhjálmur
03.02 2010 kl.12:58

ef þetta snérist bara um að borga af láni, hvers vegna allt þetta ógangsæi?

Pétur 2
03.02 2010 kl.12:59

Úr lögum um tryggingafélög.

Vátryggingaskuld.
34. gr. Vátryggingaskuldin skal metin þannig að hún samsvari óuppgerðum heildarskuldbindingum vátryggingafélags vegna gerðra vátryggingasamninga. Í reglugerð um ársreikning og samstæðureikningsskil vátryggingafélaga skulu sett nánari ákvæði um mat vátryggingaskuldarinnar.
Vátryggingafélag skal, auk þess að uppfylla á hverjum tíma gjaldþolsskilyrði samkvæmt lögum þessum, sjá til þess að á hverjum tíma séu fyrir hendi eignir, sérstaklega tilgreindar til jöfnunar vátryggingaskuldinni. Eignirnar skulu valdar með tilliti til öryggis, ávöxtunar og markaðsaðstæðna og skal félagið tryggja fjölbreytni og dreifingu eignanna. Skal í hverju tilviki fyrir sig meta þá áhættu sem felst í þeim eignum sem ætlað er að mæta vátryggingaskuldinni og sérstaklega með tilliti til dreifingar þannig að vægi einstakra tegunda og eignaliða verði takmarkað. Taka skal tillit til þeirrar áhættu sem felst í fjárfestingu af tiltekinni tegund og takmarka fjárhæðir til jöfnunar vátryggingaskuldinni í samræmi við það.
Setja skal nánari ákvæði í reglugerð1) um þær tegundir eigna sem telja má til jöfnunar vátryggingaskuld félags, samsetningu þeirra og vægi.
1)Rg. 646/1995, sbr. 581/1997, 699/2003 og 484/2006.
35. gr. Eignir til jöfnunar vátryggingaskuld vegna vátryggingaáhættu sem er í aðildarríki skulu ávaxtaðar í aðildarríki nema [Fjármálaeftirlitið]1) veiti undanþágu frá því skilyrði sérstaklega.
Velja skal eignir til jöfnunar vátryggingaskuldinni með tilliti til gengisáhættu þannig að dregið sé úr vægi hennar svo sem kostur er. Vátryggingafélagi er heimilt að ávaxta eignir á móti allt að 20% vátryggingaskuldbindinga, sem eru í tilteknum gjaldmiðli, í öðrum gjaldmiðli.
Vátryggingafélagi skal frjálst að ávaxta eignir sem ekki er þörf til jöfnunar vátryggingaskuldinni að teknu tilliti til varfærnissjónarmiða og að uppfylltum skilyrðum um fullnægjandi gjaldþol félagsins.
1)L. 84/1998, 5. gr.

bergur bergur
03.02 2010 kl.13:00

Ef Bjarni Benedikt hreyfir ekki við andmælum þá hlýtur hann að vera sekur um föðurlandsvik, verður að segja af sér og hugsanlega að fara í fangelsi.

Guðgeir
03.02 2010 kl.13:00

DV virðist vera eini almennilegi fjölmiðillinn í dag. Þeir einu sem elta uppi óþverrann og reyna að upplýsa almenning. Gerðist áskrifandi nú rétt í þessu og hvet aðra sem hafa áhuga á að komast til botns í þessum málum að gera slíkt hið sama.

Ljóst nú að BBen kemur ekki eins hreinn út úr hruninu eins og reynt var að kynna landsmönnum. Einnig áhugavert að sjá hverjir eru með honum í þessum business, faðir Sigmundar Davíðs..... -- gæti útskýrt þessa ást og samstöðu þeirra í stjórnarandstöðunni undanfarið.

Nú er ég ekki búinn að vera ánægður með störf þessarar ríkisstjórnar en ég er nú viss að það sé hreinlega stórhættulegt að fá þessa tvo menn í stjórnarráðið.

Óskar Þ.
03.02 2010 kl.13:03

Er sorpritið DV að “búa” til frétt um Bjarna Ben. Til hvers? Hvað er plottið í þessu hjá þeim?

Af hverju er DV svona mikið í nöp við Bjarna Ben?

Ekki er DV í nöp við Jón Ásgeir, eða Hannes Smárason, eða aðra hrunverja.

Guðný
03.02 2010 kl.13:04

Áfram DV!
Er ekki einhver sem getur lekið upplýsingum´úr rannsóknarskýrslunni í DV ef hún dregst frekar? Margir hafa fengi að lesa hana,

heimskur
03.02 2010 kl.13:05

Hvaða neikvæðni er þetta?

Traust efnahagsstjórn Sjálfstæðisflokksins er það eina sem getur komið okkur út úr þessari kreppu.

Við trúum þessu náttúrulega ekki uppá Bjarna. DV hefur annarlegar hvatir.

Og ef þetta er satt, þá er Bjarni samt góður og við fyrirgefum honum. Svo sem vér og fyrirgefum Árna Johnsen.

Jói
03.02 2010 kl.13:10

Sagði ekki Bjarni fyrst þegar þetta kom upp að hann hefði einungis verið að gera ættingum sínum greiða með að ganga frá þessu því þeir hefðu verið erlendis. Er ekki ljóst að ef hann hefur skrifað undir umboðið sjálfur er hann ekki að segja satt?

Forvitinn
03.02 2010 kl.13:13

DV tør hvor andre tier .... Vid verdum ad komast til botns i thessu ljota mali og afhjupa thessa glæpi , en Island er ordid svo skitugt af spillingu ad erfitt reynist ad na botninu a thessu rugli...

Öglir
03.02 2010 kl.13:21

ja hérna það dugar ekket minna. Er Bjarni Ben. svona mikill vinur Breta?

bergmal
03.02 2010 kl.13:21

Hver er glæpurinn er spurt??

Það að tæma bótasjóð og fá stórlán frá innlendum banka til að endurfjármagna kaup á eigin bréfum í öðrum bönkum þegar allt er komið í steik, snýst bara um völd og aftur völd. Þegar vel gengur hirða menn arð af eignahluta sínum, en dettur ekki í hug að borga niður fjárfestinguna, og leika sér en þegar illa gengur borgar lýðurinn, vær so god.

Ætli Bjarni hafi eins miklar áhyggjur af þessum skuldum sem almenningur fær að borga og hann hefur af icesave???

Vlad
03.02 2010 kl.13:23

Til þeirra sem ekki botna í hver “glæpurinn” hafi verið í þessu:

Glæpurinn felur í sér að Bjarni Ben og Milestone tóku stór lán út á skúffufyrirtæki hjá Glitni og Sjóvá án þess að:

a) hafa tilskilin veð fyrir upphæðunum. Veðin voru ónýt.
b) þeir ætluðu sér aldrei að reyna standa skil á lánunum. Til stóð að láta eignirnar (veðin) ganga upp í greiðslu.

Þetta er svo spillt og ótrúlegt að þeim hafi verið veitt þessi fyrirgreiðsla - sérstaklega m.v. hvernig Glitnir stóð á þessum tíma. Og að tæma Sjóvá með þessum hætti er absúrt.

Er ekki komið að því að koma þessum mönnum í járn?

Gubbi
03.02 2010 kl.13:26

Vona að DV sé ekki að halda fram e-h sem ekki fær staðist, þurfum ekki á því að halda. En skuggaleg staða ef satt reynist!!!

Guðný
03.02 2010 kl.13:30

Eru þetta gögnin sem stráksi var með?

Öglir
03.02 2010 kl.13:30

Yfirleitt hefur nú allt það sem Reinir Traustason þyrlar upp, leyst upp
í froðu , þegar hann tekur ofan Hattinn.

Vlad
03.02 2010 kl.13:32

Eitt í viðbót:

Gerum við okkur grein fyrir því að formaður Sjálfstæðisflokksins var/er einn af útrásarvíkingunum. Varaformaður flokksins kúlulánadrottning sem tók þátt í að blása upp verðmat Kaupthings sem leiddi til þess að bólan sprakk.

Er þetta málið? Ef við upprætum þetta ekki og rekum þetta fólk ekki í burtu úr valdastólum þá erum við að “kóa”. Verðum sjálfum okkur og börnum okkar til skammar.

Baldur
03.02 2010 kl.13:32

Þögn Moggans og Rúv um þetta mál Bjarna og Co verður æ meira æpandi...

skyr
03.02 2010 kl.13:32

gunnur
03.02 2010 kl.12:48

Einmitt, í lok 2008 hafði SjálfstæðisF(l)okkurinn ekkert á móti að skrifa undir Icesave samning með 6,6% vexti, en er svo að æsa upp múgin yfir 5,5%.

Allt gert til að beina athyglinni annars staðar.

Sérhver
03.02 2010 kl.13:33

The shit has hit the fan!
Var það þetta sem Karl Löwe átti við?

bergur bergur
03.02 2010 kl.13:34

Þessi frétt fær ekki að hanga lengi á forsíðunni.

Baldur
03.02 2010 kl.13:51

Ég man að þegar Bjarni var fyrst spurður um þetta mál þá sagðist hann ekkert vita og ekki hafa komið nálægt neinu. Hvað var hann þá að gera við stjórnartaumana á þessu fyrirtæki? Þetta sýnir svo ekki verður um villst að stjórnmálamenn eiga ekki að koma nálægt viðskiptum. Alþingismenn eiga að segja frá sér allri annarri vinnu og ábyrgð þegar þeir setjast á þing.

Nú skilur maður betur samstöðu þeirra félaga í Icesave, Bjarna og Sigmundar. Icesave var bara aðferð til að beina athyglinni að öðru. Smjörklípa.

Jónartar
03.02 2010 kl.13:53

Þar fauk óskadrengur Sjálfstæðismanna fyrir mikið fé.

Hver ætli verði næsti formaður Sjálfstæðismanna ?

Þeir skipta væntanlega um formann og varaformann á þessu ári.......
nema að þeir vilji pissa í skóinn sinn og hafa gróðapunginn og kúlulánadrottninguna sem fronta.

Brosi
03.02 2010 kl.13:53

Það er sama hver er Landráðamenn og Föðurlandsvikarar og aðrir Glæpamenn og Skósveinar þeirra eiga ekki að vera í stjórn eða á þingi eða í annarri opinberri stjórnsýslu. Í þessum stöðum á að vera heiðarlegt og hæft fólk sem sýnir lýðnum gott fordæmi.Við eigum fullt góðu heiðarlegu frábæru menntuðu fólki til að sinna þessum stöðum

P. Bergmann
03.02 2010 kl.14:04

Nú skilur með vináttu Bjarna Ben og Sigmundar, eitthvað hlaut að búa að baki. Manni skilst að þeir hafi vonast til að ríkistjórnin færi frá þegar forsetinn synjaði lögunum um Icesave og þá hefðu þeir getað stoppa rannsóknarskýrslun. Ég held að Bjarni verði að segja af sér þingmennsku þetta er búið dæmi svo og varformaðurinn og bókhaldsbrotamaðurinn.

Bubbi
03.02 2010 kl.14:15

B.B. verður að upplýsa okkur um þetta mál

Kona3000
03.02 2010 kl.14:27

Á lágu plani eru rótarlegur rógur.
Faðir/sonur, sonur/faðir!!!! Er til hallærislegri áróður???
Fyrir mitt leyti er ég hvorki faðir minn né móður! Ég er það sem ég er!
Eimitt þess vegar er Sigmundur Davíð hann sjálfur en ekki eitthvað annað og hann hefur staðið sig með prýði undanfarið!

Guðný
03.02 2010 kl.14:29

Stráksi hefði ekki verið handtekinn just like that ef þeir hefðu bara verið að borga lán.

Lánsamur
03.02 2010 kl.14:45

Þetta er mjög einfalt.
Þessir þjófar, nutu þess meðan vel gékk að eiga stóran eignarhlut í bönkunum í góðærinu. Svo þegar halla fór undir fæti með veðköllum þá fara menn í þessar aðgerðar til að bjarga sjálfum sér á kostnað almennings.

Almenningur borgar annars vegar með gjaldþroti Glitnis og his vegar með aðkomu ríkisins í björgun á Sjóvá.

bergur bergur
03.02 2010 kl.14:51

Hvaða aðgerða ætlar ríkisstjórnin og Jóhanna að grípa til við að ná þessum mönnum? Hvenar kemur skýrslan og hvað svo eigum við eftir að sjá þessa menn sem eru núna valsandi um allt vera gerða upp og dæmda?

Ólafur Ágúst
03.02 2010 kl.14:56

Bjarni er erfingi.

Sigmundur Davíð er erfingi.

Þetta er liðið sem Steingrímur Jóhönnunautur hefur með sér á uppgjafarfundina í þýska flæðarmálinu.

Roosevelt inn fyrri var búinn að átta sig á ógninni sem lýðræðinu stendur af stóreignaerfingjum. Bandaríkjamenn settu á erfðafjárskatt svo erfingjar gætu ekki keypt sig til valda.

Frekar en láta ríkið fá skattfé, fóru Rockefeller og félagar að “gefa til góðgerðamála”.

http://en.wikipedia.org/wiki/Presidency_of_Theodore_Roosevelt

http://www.williams.edu/humanities/sdunn/op-ed/pages/teddyrooseveltbetrayed.htm

SS
03.02 2010 kl.15:00

Við nokkur stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins höfum rætt talsvert um Nýtt Ísland, sem við viljum sjá og eigum vonandi samleið með mörgum skoðannabræðrum okkar. Fyrst ættu bæði Bjarni Ben og Þorgerður miljarða kúlulána eiginkona og nú Icevave drottninginn og varaþingmaðurinn Erla ?? að segja af sér. Eins og þetta hefur gengið hjá okkur frá Hruninu þá hefur ekkert breyst, fjórflokkurinn lifir góðu lífi, en það verður að taka á þessu og forusta Sjálfstæðisflokksins á að hafa greind til þess að nýta sér þetta sem meðbyr að taka til hjá sjálfum sér.
Ef við skoðum aðeins þessa þrjá einstaklinga þá er það þannig að Bjarni Ben er innvinklaður í braskið með bótasjóð Sjóvá uppá marga milljarða, Þorgerður Katrín er gift einum æðsta yfirmanni gamla Kaupþing og kúlulánakóngs sem er með lánið í nafni einkahlutafélags sem væntanlega fer í gjaldþrot en er þó búinn að fá 80 milljónir í arðgreiðslu frá Kaupþingi vegna kaupa sinna á hlutabréfum í bankanum vegna kaupa sinna þar fyrir kúlulánið. Varaþingmaðurinn Erla er einnig í vondum málum sem einn helsti starsmaður Landsbankans og er ekki góð sending inná Alþing.

Comon
03.02 2010 kl.15:02

Skil ekki fréttina.

Voru að borga skuld hjá Morgan Stanley.

Hver er glæpurinn?

Að borga skuldir er ekki glæpur. Það er ekki heldur glæpur að taka ný lán til að borga eldri lán - þó erlend séu.

Ef svo væri þá væri Steingrímur J í fangelsi.

Valur1.
03.02 2010 kl.15:02

Jah hérna hér, nú er ég sko aldeilis hissa.

Steini
03.02 2010 kl.15:08

Það er gjörsamlega ótrúlegt að hlusta á sum ummæli hér....Bjarni og co hafa ekki gert neitt rangt í þessu máli. Og það er ekki að ástæðulausu að Bjarni er og verður ekki yfirheyrðu útaf þessu máli. Fyrir þá sem eru yfir meðalgreind þá skilja menn úta hvað þessi viðskipt i ganga.

Að tala um spilling og annað er fáranlegt.....Og menn spyrja hér, af hverju hafa ekki aðrir fjölmiðlar en DV fjallað um þetta mál. Góð spurning....Því að það eru blaðamenn í öðrum fjölmiðlum sem eru yfir meðalgreind og þeir sjá að það er EKKERT til í þessum spuna DV. DV er bara með einni tilgang og hann er að rústa XD og engum öðrum á meðan að þjóðfélag bæður út vegna vanhæfni ríkisstjórnarinar....Þeir eru alveg með forgangsatriðin á hreinu....

Brosi
03.02 2010 kl.15:13

Ég er með 2 spurningar til Bloggara

Hvaða fjölmiðill í landinu á á oftast þann heiður með sannanlegum hætti að fletta ofan að svikum og sora í landinu Svar ??

Hvað fólk er það sem rífur mestan kjaftinn þegar upp kemst svikin og sorann Svar ??

Rétt svar mun berast síðar í kvöld

Gussi
03.02 2010 kl.15:23

Bjarni er ekki í ábyrgð fyrir Sjóvá, Milestone né Vafning....Hann var ekki í stjórn þessara félaga né hluthafi.....Af hverju er fólk svona vangefið og horfir ekki á staðreyndirnar í þessu máli ???

DV er í eigu Hreins Loftssonar sem er lögmaður hrunsins og einn helst útrásarlögfræðingur landsins og sá sem vildi fá Davíð Oddsson í baugsliðið og vildu múta honum um 300 milljónir....Hans hatur á XD flokknum er vegna afskipta þeirra til baugs og þess vegna dregur hann Bjarna inní þetta mál en hann er ekki ábyrgur fyrir bótasjóðin né turnanna....það er gjörsamlega ótrúlegt að menn lesi DV eins og biblíuna og trúi öllu sem þar er sagt...

Bjarni hefur útskýrt sína aðkomu að þessu máli og allir meðalgreindir menn sjá að hann gerði ekkert rangt.....Annars væri maður að sjálfsögðu í yfirheyrslu og væri búið að reka hann af þingi......

Stína
03.02 2010 kl.15:26

Þögn Bjarna BeN1 er æpandi.
Aðferð klíkunnar er að þegja hlutina í hel.
Þetta er ekki í fyrsta skipti þessi taktík er venjan þar á bæ.

ekkinn
03.02 2010 kl.15:29

@Steini
Er það af því að BB er formaður XD og getur þar með samkvæmt skilgreiningu ekki gert neitt rangt?

Það að ræna bótasjóðinn er náttúrulega bara eðlilegir viðskiptahættir skv. ykkur í ræningjaflokknum. Sjálfstæðismenn hefur ekki mátt sjá neitt fé í þjóðfélaginu undanfarin ár án þess að gera tilraun til að sölsa það undir sig og eyða í sukk og brask. Og helsta og nánast eina tillagan sem frá ykkur hefur komið í efnahagsmálum er að ræna næst meira af fé lífeyrissjóðanna.
Ekki skrýtið þótt illa sé komið fyrir þjóð sem hefur lútið forystu flokks af jafn lágu siðferðis- og gáfnafari.

Guðný
03.02 2010 kl.15:42

Eru Hreinn Loftsson og Sigurjón Árnason félagar, vitið þið?

hoffmann
03.02 2010 kl.15:49

sko Gussi 15,23

ástandið hjá okkur býður uppá mikla og ótakmarkaða tortryggni. þaðer ekkert skrítið að fólk hafi illan bifur á Bjarna Ben og Sigmundi uns öll spilin hafa komist á borðið. gríðarlega stór hluti þess fólks sem hefur kosið framsókn og sjálfstæðsfl er gjörsamlega arfavitlaust útí þá. fólk vill geta treyst þeim sem það kýs.

Steini
03.02 2010 kl.15:52

ekkinn....Þarna er einmitt heimskan þín uppljóstruð.....Bjarni rændi ekki bótasjóð Sjóvá....Þetta er einmitt vitleysan sem menn halda....Sjóvá var í eigu Milestone og Wernersbræður áttu Milestone...Bjarni átti ekki neinn hlut í Sjóvá né Milestone og hvernig á hann að geta veðsett bótasjóðinn þegar hann er hvorki í stjórn Sjóvá né hluthafi í Sjóvá...

Kommon....ekki vera svona vitlaus.....En þetta er einmitt heimskan sem skín í gegn hérna....

Gussi
03.02 2010 kl.15:54

Hoffmann.......Öll spilin er uppi á borðinu ....Það er einmitt málið. Fólk vill bara ekki kynna sér málið heldur apar upp vitleysan af sorpritinu DV.....Þeir eru báðir búnir að gera hreint fyrir sínum dyrum....

Glaumur
03.02 2010 kl.16:03

Hvernig getur fólk með vott af samvisku látið kenna sig við þessa glæpaflokka á meðan þeim er stjórnað af þessum klíkum?

Hvað þarf til að fólki ofbjóði? Mannát á stjórnarfundi hjá Vafningi þar sem Bjarni Ben ber fram aðalréttinn en Sigmundur Davíð hellir í glösin hjá pabba gamla? Allt í fína lagi því servisinn var í umboði ættarinnar.

Hallur
03.02 2010 kl.16:06

Ef að þei r”hefðu bara verið að borga lán” þá væru komnar nokkrar yfirlýsingar frá þeim, ekki satt?

Jói
03.02 2010 kl.16:11

Glaumur.....Af hverju á þetta lið að fara á Litla Hraun ??? ....Eru menn ekki aðeins að missa sig ??

Högni Brekason
03.02 2010 kl.16:25

Jói,
Það eru öll félögin sem þeir sugu pening út úr farin í þrot og skattfé hefur verið dælt inn í þau til að reyna að halda þeim á floti.
Upphæðin sem sett var inn í Sjóvá er u.þ.b. jafn há og lánið (þýfið) sem þeir tóku út. Formaður stærsta stjórnmálaflokks landsins er þarna í lykilhlutverki.

Jú Jói þetta er ekkert svo mikið mál, finnst fólk vera alveg að missa sig...

Annar Jói
03.02 2010 kl.16:26

Nei :-)

Jói
03.02 2010 kl.16:32

Högni......Alveg sammála því að margt hefur farið úrskeiðis, en það þarf að fara rétt með þessi mál.

Bjarni Ben tengist ekki Sjóvá á neitt hátt né Vafningi né Milestone.....Hann átti ekki hlutabréf í þessum fyrirtækjum, né sat í stjórn og átti ekkert með stjórn Sjóvá að gera....hann veðsetti ekki bótasjóð Sjóvá...það er sjúkleg heimska að halda því fram....Milestone veðsettu bótasjóðin og turnanna....og að blanda Bjarna sem einhvern sekan mann í þessu máli er fáranlega kjánaleg...

Högni Brekason
03.02 2010 kl.17:09

Nei Pabbi hans Bjarna og föðurbróðir áttu saman bréf í Glitni á móti Wernerbræðrum. Morgan stanley hótaði að leysa til sín eigur þessara manna fyrir hrun, þ.e. bréf í Glitni og félag sem heitir Invik í Svíþjóð.
Til að koma í veg fyrir það þurfti að ná í meiri pening að láni út úr Sjóvá, Glitni og Kaupthing, sem fóru síðan öll í þrot á kostnað almennings.
Svar til Jóa
Bjarni greiddi götu þessara manna í þessum gjörningum.
Með því að sem stjórnarmaður BNT (Móðurfélag N 1) veita sjálfum sér umboð til að veðsetja hlutabréf í Vafningi. Sem síðan voru notuð sem veð fyrir tugmiljarðaláni í áðurnefndum tilgangi.
Þetta er mjög einfölduð mynd sleppi þarna nöfnum á eignarhaldsfélugum sem mennirnir eru á bakvið.

Hitt er síðan rétt að Bjarni er ekki hluthafi í vafningi eða milestone.
Wernerbræður eiga MILESTONE
Faðir Bjarna og föðurbróðir eiga Þáttur int.
Milestone(í gegnum Sjóvá) og Þáttur int. áttu umrædd Glitnisbréf

Þór
03.02 2010 kl.17:21

Bjarni og Sigmundur Davíð hafa leynt og ljóst reynt með öllum ráðum að fella þessa ríkisstjórn til þess að ekki verði komist lengra með rannsókn þeirra og þeirra feðra í ljótum leik. Icesave er kjörinnn vettvangur hjá þeim til þess að slá ryki í augu almennings og þeir reyna með öllum ráðum að dreifa athygli fólks frá þeirra ljóta leik fyrir hrun.

Helgi
03.02 2010 kl.18:37

Þetta eru stór orð hjá DV. DV verður að byrta sýn gögn án ritskoðunar ef þeir ætla halda þessum ofsóknum á Bjarna áfram. Gæti verið að DV sé að sigla sitt síðasta með þessu ef ekki er rétt farið með málin að hálfu DV. Þeir hafa nú oft lent í því áður að bulla fréttir sem kom svo á endanum í ljós að þeirra “heilmildir” voru rangar.

Brosi
03.02 2010 kl.20:07

Ég er með 2 spurningar til Bloggara

Hvaða fjölmiðill í landinu á á oftast þann heiður með sannanlegum hætti að fletta ofan að svikum falsi og sora í landinu Svar ??

Hvað fólk er það sem rífur mestan kjaftinn þegar upp kemst svik fals og sora í landinu Svar ??

Rétt svar mun berast síðar í kvöld

masson
03.02 2010 kl.21:07

Bjarni N1 vafningur, Þorgerður kúlukelling, Illugi sjóður 9, Gulli flokkssjóðssafnari,þessir siðspilltu sækopatar eru í forsvari fyrir flokk sem hefur 32% fylgi.Þessari heimsku þjóð er ekki viðbjargandi.

Annar Jói
03.02 2010 kl.21:33

xD er ekki stjórnmálaflokkur heldur eru þeir Glæpasamtök eins og Mafían eða Vítisenglar...

AC TC
03.02 2010 kl.21:47

Hvernig datt sjálfstæðismönnum að velja þenna fálka til að leiða flokkinn.
Hann er mjög lélegur í öllum viðtölum og vantar alla útgeislun.
Hann er með mjög vafasamt siðferði þegar kemur að því að græða pening og enn meiri pening.

Högni Brekason
03.02 2010 kl.22:56

Árni Johnsen : Hlaut refsidóm og sat í fangelsi fyrir stórfeldan þjófnað frá þjóðleikhúsinu. Var síðan veitt uppreisn æru af flokksbræðrum sínum í fjarveru forseta lýðveldisins.

Ásbjörn Óttarsson : Braut lög um hlutafélög og greiddi sér út 65 milj. í arð úr fyrirtæki sem skilaði tapi upp á 600milj. Viðurkenndi lögbrot en sagðist ekki hafa verið kunnugt um það.

Bjarni Benediktsson : Gaf sjálfum sér umboð til að veðsetja eignir félags til að forða föður sínum og föðurbróðir frá veðkalli Morgan Stanleys í eigur þeirra. Reikningurinn á skattgreiðendur.

Guðlaugur Þór Þórðarsson : Fór í herferð til að smala inn tugmiljóna styrkjum frá fyrirtækjum til sjálfstæðisflokksins rétt áður en lög tóku gildi um 300 000kr hámarks styrk til stjórnmálaflokka sem þingmenn sjálfstæðisflokksins studdu.

Illugi Gunnarsson : Var stjórnarmaður í sjóð 9 sem fór á svig við eigin fjárfestingarstefnu og lánaði tengdum aðilum stórfé. Sjóðurinn endað í gríðarlegu tapi og ríkið kom inn í til að borga sjóðsmenn út. Reikningurinn sendur á skattgreiðendur.

Tryggvi Þór Herbertsson : Fékk 300 miljóna kúlulán fyrir bréfum í Askar Capital og Glitni. Askar Capital keypti síðan félagið af honum og lánin með. Tryggvi var Forstjóri Askar á þeim tíma.Hann var líka sérstakur efnahagsráðgjafi Geirs H. Haarde fyrir hrun, og fullvissaði okkur um að bankarnir mundu ekki fara á hausinn.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir : Eiginmaður þorgerðar, Kristján Arason fékk kúlulán hjá Kaupþingi upp á 900 milj fyrir kaupum í Kaupthingi. Lánið er ógreitt en hann er búin að fá 80 milj í arð af bréfunum. Hann sagði við DV. „Ævisparnaðurinn er farin en við eigum allavega húsið“ Þau búa í 400fm nýbyggðri glæsivillu í Hafnarfirði.

sigríður
03.02 2010 kl.23:12

XD

Comon
03.02 2010 kl.23:17

Högni Brekson,

Samansafn af sannleika, ýkjum, lygum og óhróðri - er verri en hrein argasta lýgi.

Því lesandinn þarf að hafa fyrir því að skola út ýkjurnar, greina lygarnar og forðast óhróðurinn.

Þegar því er lokið stendur eftir Árni Johnsen - sem greiddi fullt verð fyrir syndir sínar með fangelsisvist.

En sumir þurfa að smjatta á ógæfu annarra - það er svo gott fyrir sálina þeirra.

XXX
03.02 2010 kl.23:57

@Comon

Þú hefur ekki mikið fyrir að hrekja þessar “ýkjur, lygar og óhróður”. Þú getur væntanlega skotið þetta í kaf ef enginn fótur er fyrir þessu.

Árni Johnsen var ekki lengur kjörgengur eftir að hafa stundað þjófnað sem starfandi alþingsimaður. Hann var með meira en 500.000 í laun en stundaði þjófnað sem þingmaður og því var sópað undir teppið.

Mér er slétt sama um flokkapólitík per se en þetta andskotans fótboltaliða kjaftæði í íslenskum stjórnmálum er með öllu orðið óþolandi.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur jafnan gefið sig út fyrir að standa fyrir borgarleg gildi eins og lögum og reglu. Siðferðisþrekið innan hans fer sífellt þverrandi sem er með öllu óþolandi.

Skúffustrumpurinn
04.02 2010 kl.00:58

Og nefndur stjórnarformaður Jón Benediktsson, myndi þá vera stóri bróðir Bjarna.

Brosi
04.02 2010 kl.04:37

Það er sama hver er. Landráðamenn Föðurlandsvikarar Glæpamenn og Skósveinar þeirra eiga ekki að vera í stjórn eða á þingi eða í annarri opinberri stjórnsýslu. Í þessum stöðum á að vera heiðarlegt og hæft fólk sem vinnur fyrir fólkið og sýnir lýðnum gott fordæmi. Við eigum fullt góðu heiðarlegu frábæru menntuðu fólki til að sinna þessum stöðum

Friðrik Már
04.02 2010 kl.07:00

Svo eru menn að blása upp Icesave.....feluleikur ihaldsins....

kristin
08.02 2010 kl.23:21

Það safnast bara siðblindingjar , þjófar og drullusokkar inná þing. Ekki gleyma flokkssystkinum hans þeim Þorgerði og Tryyggva Þ’or

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar