Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingar og fyrrum viðskiptaráðherra, fullyrðir að íslensk stjórnvöld hafi ekki logið neinu að erlendum eftirlitsstofnunum eins og haldið hefur verið fram af hálfu yfirmanns eftirlitssviðs hollenska Seðlabankans um íslenska Fjármálaeftirlitið.
Svo fullyrti Björgvin á Alþingi í dag en fyrirspurn þessa efnis kom frá Pétri Blöndal, þingmanni Sjálfstæðisflokksins. Var Björgvin ráðherra viðskipta með yfirumsjón með Fjármálaeftirlitinum þegar starfsmenn þess eiga að hafa gefið hollenskum starfsbræðrum sínum kolrangar og villandi upplýsingar um stöðu Landsbanka Íslands þegar bankinn vildi hefja starfsemi í Hollandi.
Rök Björgvins voru þó ekki önnur en að benda á yfirlýsingu Jónasar Fr. Jónssonar, fyrrum forstjóra FME, sem vísaði öllum slíkum ásökunum frá Hollandi til föðurhúsanna. Sagði Jónas þar að starfsmenn Fjármálaeftirlitins hefðu veitt þær upplýsingar um fjárhag Landsbankans, sem þeir töldu réttar hverju sinni byggðar á fyrirliggjandi gögnum frá bankanum og hálfsársuppgjöri 2008, árituðu af endurskoðendum bankans. Hefði starfsfólk Fjármálaeftirlitsins lagt sig fram um að sinna starfi sínu af fagmennsku og heiðarleika.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
41 ummæli
Rita ummæli03.02 2010 kl.15:06
Slóð
Kennimyndir sagna:
Ljúga, laug, lugum, logið - mun ljúga.
Fallbeyging nafnorða:
hér er lygamælir
um lygamæli
frá lygamæli
til lygamælis
03.02 2010 kl.15:08
Slóð
Alltaf fær maður HRUN-HROLL þegar maður sér þennan kjána.
03.02 2010 kl.15:08
Slóð
Bíðum eftir skýrslu rannsóknarnefndar og þá kemur það í ljós hver gerði hvað og gerði ekki. Þeir sem voru í ríkisstjórn á þessum tíma voru ekki að vinna vinnuna sína það er nokkuð ljóst. En hvað er að gerast á Alþingi það er eins og menn séu allir sem einn að reyna að þvo hendur sínar, ég hef misst allt álit á þingmönnum og var það ekki mikið fyrir.
03.02 2010 kl.15:14
Slóð
Er eitthvað skárra ef þeir stóðu sig svo illa í eftirlitinu, að þeir trúðu bulli úr bönkunum og endurtóku það fyrir erlenda aðila?
03.02 2010 kl.15:19
Slóð
Er Rannsóknarnefnd Alþingis ekki einmitt að komast að þeirri niðurstöðu að ráðamenn þjóðarinnar, hafi brugðist í ákvörðunum og lagabreytingum sem gerðu mönnum kleift að gera það sem þeim sýndist?
Hver samdi tillögur af öllum þessum lagabreytingum sem viðskiptaráðherra var látinn leggja fram?
Var það ekki Viðskiptaráð?
Hvort sem það var heimska eða viljandi gert verður að dæma þessa menn, það verður engin sátt hjá þjóðinni á meðan þessir menn ganga lausir.
03.02 2010 kl.15:27
Slóð
Hverju lugu íslenskar fjármálastofnanir og eftirlitsstofnanir og hagfræðingar og stjórnmálamenn ekki?
03.02 2010 kl.15:28
Slóð
Vil bæta við það sem ég skrifað hér kl. 15:19, menn eiga ekki að taka að sér störf sem þeir ráða ekki við, allra síst þegar um þjóðarhag er að ræða.
Ef ráðherrar fyrrverandi ríkisstjórna verða dæmdir, verður það vonandi til þess að hæfir menn bjóði síg fram til Alþingis.
03.02 2010 kl.15:30
Slóð
Það sem Björgvin vissi ekki:
http://www.visir.is/article/20081212/FRETTIR01/730425346
03.02 2010 kl.15:30
Slóð
Verðum við ekki að taka þessa endurskoðendur í yfirheyrslur??
Þeirra þáttur er greinilega stærri en menn hafa haldið hingað til.
03.02 2010 kl.15:30
Slóð
Ég bíð eftir rannsóknarskýrslunni. Hún varpar vonandi ljósi á þessa hluti.
03.02 2010 kl.15:30
Slóð
Björgvin G. Sigurðsson:
Stjórnvöld lugu engu að erlendum eftir- litsstofnunum
Thid lugu ad thjodinni og thid lugu um stodu bankanna ... hvernig tekur mark a thessum kjana....
03.02 2010 kl.15:31
Slóð
Björgvin G. Sigurðsson enn að pukrast. Síðast þegar maður heyrði frá honum var hann að bjóðast til að segja af sér, í þann mund sem stjórnin var að falla. Nú er hann að lesa upp það sem Jónas Fr. sagði, hafði engu við það að bæta.
Það er með hreinum ólíkindum að bankamálaráðherra þegar bankarnir hrundu skuli ekki hafa opnað á sér gogginn um eitt einasta mál varðandi þetta rugl allt saman, ekki reynt að bera af þessu blak hvað þá meira.
Er maðurinn ekki bara duglaus með ÖLLU.
03.02 2010 kl.15:41
Slóð
Ég tapaði miklu fé vegna þess að ég trúði þessum manni þegar hann sagði að sparnaður landsmanna væri tryggður.
Skömm kjósenda Samfylkingarinnar er mikil að kjósa þennan mann til setu á þingi.
03.02 2010 kl.15:42
Slóð
hverju lugu fjármálastofnanir að viðskiptavinum sínum ???
hver laug og hvursu mikið ?
hvern andskotann hafa Góðæris framhaldsskólar og Góðæris Háskólastofnanir verið að kenna nemendum sínum síðustu árin ?
og hver laug barrasta alls ekki neitt ?? var það maðurinn á götunni kannski, sem eru að missa húsin sín og bílinn ?
( á meðan virðist mér, verið að afskrifa hjá sukkurunum og óábyrgum hámenntuðum, hálaunuðum skrílnum sem lýðurinn hyllti og treysti ..... ojbarasta )
Guð Blessi Ísland
03.02 2010 kl.15:45
Slóð
Eiginkona Björgvins G. Sigurðssonar, María Ragna, var deildarstjóri á gjaldeyrissviði Kaupthings á Selfossi árið 2008. Einhverra hluta vegna hefur það aldrei mátt koma fram og hefur verið þaggað niður í umræðunni. Það hlýtur að teljast afar ótrúlegt að sjálfur bankamálaráðherra hafi ekki vitað neitt um neitt allan þann tíma sem hann sat í fv. ríkisstjórn miðað við þau tengsl sem hann og eiginkona hans höfðu inni í Kaupþingbanka.
Skv. vef Alþingis er eiginkona hans skráð sem nú sem sambýliskona og tölvunarfræðingur, ekki sem bankastarfsmaður né lögmaður á lögmannsstofunni LEX.
skv: http://www.lex.is/?PageID=1483
María Ragna Lúðvígsdóttir
Starfsheiti: kerfisstjóri
Netfang: mrl@lex.is
María er fædd í Stykkishólmi 1970
Menntun: Stúdent af eðlisfræðibraut frá Menntaskólanum í Reykjavík 1990.
Tölvunarfræðingur B.Sc frá Háskóla Íslands 2007.
Starfsferill: Kaupþing 2007 - 2009
María Ragna hóf störf hjá LEX í apríl 2009
Hvers vegna er þessi leynd?
Björgvin G. Sigurðsson. F. í Reykjavík 30. okt. 1970. Sambýliskona: María Ragna Lúðvígsdóttir (f. 11. jan. 1970) tölvunarfræðingur.
http://www.althingi.is/cv.php4?nfaerslunr=653
03.02 2010 kl.15:49
Slóð
Það kom ábending frá einum sem hringdi í Útvarp Sögu um að Myntkörfulánin væru alls ekki væru ekki fjármögnuð af erlendum bönkum heldur íslenskum lífeyrissjóðum.
Er það ekki umhugsunarefni að lífeyrissjóðirnir eru komnir með sömu eignastöðu og fyrir hrun?
Hverjir eru að borga hvað?
03.02 2010 kl.15:54
Slóð
Jæks SSGG!
Þetta væri gott að fá staðfest einhvers staðar (af eða á). Ég á bágt með að trúa því að slíkum upplýsingum hefði mönnum tekist að halda leyndum en maður skyldi aldrei segja aldrei.
03.02 2010 kl.15:57
Slóð
Hvað veit Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingar og fyrrum viðskiptaráðherra, um hvort íslenska Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn hafi ekki logið neinu að erlendum eftirlitsstofnunum?
Hann er sjálfur búin að lýsa því yfir að hann hafi ekki vitað hvað væri í gangi þar sem honum hafi verið haldið utan við allt á meðan hann var ráðherra. Hann fékk ekki að sitja samráðsfundi með Ingibjörgu Sólrúnu, Geir og seðlabankamönnum - alls fimm eða sex fundi.
Hvar var Björgvin júni 2009 þegar yfirstjórn Seðlabankans sagði ráðherrum Alþingis að það væru 0% líkur á að bankarnir myndu lifa af.
Hvernig er hægt að treista þessum manni og afhverju er hann á þingi?
03.02 2010 kl.15:59
Slóð
Formaður þingflokks Samfylkingarnar
segir sennilega af sér fljótlega
vonandi fellur ríksistjórnin daginn eftir
einsog síðast
03.02 2010 kl.16:06
Slóð
Rétt Jói í júni 2008.
03.02 2010 kl.16:08
Slóð
@Æsir: MJÖG ÁHUGAVERÐAR UPPLÝSINGAR. Af hverju hefur þetta aldrei komið fram fyrr og hvað er Björgvin að reyna að fela?
Annars veltir maður því fyrir sér hvað hafi orðið um sprenglærða hagfræðinginn frá Samfylkingunni sem var aðstoðarmaður og hægri hönd Björgvins G.Sigurðssonar í viðskipta- og bankamálaráðuneytinu? Hann hét Jón eitthvað. Man einhver nafnið? Hvar er hann nú?
03.02 2010 kl.16:16
Slóð
Kæri Björgvin ég held að það er best að þegja og bíða eftir rannsóknarskýrslunni.
03.02 2010 kl.16:24
Slóð
Var Björgvini ekki haldið frá öllu sem skipti máli í þessu bankahruni? Manni hefur skilist það að hann hafi ekki verið með í ráðum þegar teknar voru afdrifaríkar ákvarðanir?
Mér finnst að Björgvin eigi að segja þjóðinni hver talaði við Hollendinga og laug að þeim. Hann á að segja allt sem hann veit og gera hreint fyrir sínum dyrum. Heyrst hefur að það hafi verið eitthvað stirt á milli hans og Ingibjargar Sólrúnar- er það satt? Var honum haldið utan við allar meginákvarðanir stjórnvalda á þessum tíma?
Ég sem kjósandi Samfylkingar á rétt á að vita þetta.
03.02 2010 kl.16:27
Slóð
@Æsir
Þetta er hið æsilegasta mál sem þú hefur fundið. Er kerfisstjóri lögmannsstofunnar Lex virkilega titlaður tölvunarfræðingur á vefsíðu Alþingis? Hvaða menntunarkröfur gerir þessi lögmannsstofa eiginlega til kerfisstjóranna sinna?
Svo er spurning hvort rannsóknarskýrsla Alþingis eigi eftir að leiða í ljós að dílarnir í Selfossútibúi Kaupþings hafi verið af sama kalíberi og hjá Kaupþing Luxembourg!
03.02 2010 kl.16:37
Slóð
Hver kaus þennan mann á þing, sá hin sami ætti að skammast sín.
03.02 2010 kl.16:53
Slóð
Látið ekki svona þeir lugu engu, öpuðu bara eftir sem þeim var sagt án umhugsunar.
Það gerði enginn neitt rangt samt fór allt á hausinn hér á klakanum.
Hversu lengi ætla menn að halda þessum fíflagangi áfram ?
Er þetta ekki orðið gott.
Eða er svart orðið hvítt.
03.02 2010 kl.17:07
Slóð
Hvað veit Björgvin um það; hann sem vissi ekki neitt sjálfur vegna þess að hann viðrist hafa verið lagður í einelti sem ráðherra með því að vera haldið utan við flest mál.
03.02 2010 kl.17:11
Slóð
Jú þetta er nefnilega málið Íslenskir stjórnmálamenn ljúga uppí opið geðið á samlöndum sínum, þess vegna erum við í þessari stöðu sem við erum í dag,
gjaldþrota.Holland er siðmenntað samfélag þar sem þingmönnum leyfist ekki að ljúga
t.d hvað varð um skýrsluna sem var stungið undir stól í tíð Sjallana og Samfylkingar skýrslan sem varaði við hruninu,það hefði ALDREI gerst í Hollandi
ÍSLENSKUM stjórnmálamönnum er EKKI treystandi það er það sem þjóðin þarf að’ lifa við því miður
03.02 2010 kl.17:19
Slóð
Spillingin nær út firrir landsteinana það er alveg augljóst ég hef trú að það eigi eftir að koma í ljós þegar nær dregur að Bretar og Holendingar eru meðsekkir bankaþjófum Íslendinga.
03.02 2010 kl.17:20
Slóð
Segir maðurinn sem sagði strax eftir bankahrunið að allir starfsmenn bankanna væru með vinnu sína tryggða og að öll bankastarfsemi færi fram eins og vanalega ;)
03.02 2010 kl.17:28
Slóð
Þetta er merkileg speki hjá... fyrrum yfirmanni bankamála sem var í öllum
veislum sem þessir snillingar-kóngar buðu upp á.
En núna eigum við að borga fyrir Breta og Hollendinga alt IceSlave
Vegna loforða þessa sama TRÚÐS.... sem hann skrifaði Águst 2008 til starfsfélaga sinna í Bretlandi og Hollandi um að við undirgengjum alla ábyrgð fyrir þessa auðróna Íslands
Svo hleypur þessi kjáni um og vill að við förum að hans ráði í ESB umsókn
Er þetta Samspillingar lið með heilabú .....
03.02 2010 kl.18:32
Slóð
Eftir að hafa lesið fréttir á eyjuni í dag (og ummælin) er ég farinn að vorkenna sérsveit lögreglunar og þeim sem vinna á þingi.
Næsta bylting verður, og verður örugglega harðari en sú fyrri.
03.02 2010 kl.19:01
Slóð
trúið þið honum?
03.02 2010 kl.20:34
Slóð
Bara að við hefðum verið komnir í ESB þá hefðum við haft almennilega eftirslitsstofnarnir en ekki einhvern klíkuskap
03.02 2010 kl.21:00
Slóð
Já já þetta var alt í fínasta lagi eins og sést hérna, oh my god
http://www.dv.is/frettir/2010/2/3/verdlaunabokhald-landsbankans/
03.02 2010 kl.21:37
Slóð
Ef einhver fótur er fyrir dylgjum SJS um brot íslenskra embættismanna, af er þá ekki löngubúið að kæra þá?
Er ekki komin tími á að SJS hætti að tala eins og véfrétt þegar kemur að kjarna málsins?
03.02 2010 kl.21:52
Slóð
Hverning væri að taka þessar ásakarnir alvarlega og kæra umræddar stofnanir strax fyrir rógburð, eða er samviskan ekki eins hrein hjá okkar stofnunum ? Ég held að ef menn séu að skálda upplygnum ásökunum á okkur sem þjóð þá er kominn tími á að láta hendur standa fram úr ermum. Nú dugar enginn diplómatískur kjaftagangur, í dómstóla með þessar ásakanir.
03.02 2010 kl.23:52
Slóð
Þessi drengur er blautur á bak við eyrun ef hann heldur að hann sé að segja satt.
03.02 2010 kl.23:56
Slóð
Það er í raun stórfurðulegt að Björgvin og fleiri sem stóðu vaktina fyrir hrun plús margir þeirra sem hafa sennilega gerst sekir um alls konar fjárdrátt og markaðsmisnotkun komi hvað eftir annað í fjölmiðla algjörlega forhertir.
Nú rúmu ári eftir hrun erum við almenningur að berjast við þessa afstöðu sjálfskipaðra milljónamæringa sem ekki voru fínir í kantinum þegar kom að viðskiptum. Þjóðin nánast á hausnum og allt í volli og samt leyfir Björgvin sér þetta.
HÉR ÞARF SIÐBÓT.
04.02 2010 kl.08:56
Slóð
Bjarni Benediktsson var faglegur framkvæmdastjóri Lex 2002-2003.
http://www.althingi.is/cv.php4?nfaerslunr=652
04.02 2010 kl.09:00
Slóð
Það má ekki gleyma verðlaununum sem Björgvin veitti Sigurjóni Árnasyni fyrir besta íslenska ársreikninginn um miðjan september 2008, eða um tveimur vikum áður en Glitnir var yfirtekinn.
http://www.dv.is/frettir/2010/2/3/verdlaunabokhald-landsbankans/