Fólk - fimmtudagur - 4.2 2010 - 18:05

Brittany lést úr of stórum skammti eiturlyfja

Leikkonan Brittany Murphy lést úr of stórum skammti eiturlyfja. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem lögregluyfirvöld Los Angeles borgar sendu frá sér í dag.

brittany-murphy-heart-attack4.jpg

Á heimasíðu RadarOnline greinir frá því að Brittany hafi tekið margskonar (eitur)lyf og að andlát hennar hafi verið “slys”. Þar segir jafnframt að Brittany hafi verið þjökuð af alvarlegum járnskorti.

Endanleg krufningarskýrsla mun þó liggja fyrir innan tveggja vikna.

Brittany Murphy (32) fannst látin á heimili sínu í Hollywood þar sem hún bjó með eiginmanni sínum, Simon Monjack. Það var móðir hennar sem kom að henni.

Bæði móðir Brittany og eiginmaður halda því fram að unga konan hafi látist af eðlilegum orsökum. Enn fremur neita þau því að hún hafi átt við átröskunar eða eiturlyfjavanda að etja.

Brittany var þekktust fyrir leik sinn í myndunum Clueless, Just Married og 8 Mile þar sem hún lék á móti Eminem.

You need to a flashplayer enabled browser to view this YouTube video

4 ummæli

Rita ummæli

...
05.02 2010 kl.13:50

þetta var nú samt ekki eiturlyfjaskammtur sem hún var að taka. hún var með lungnabólgu, og tók vitlaus LÆKNA-lyf við veikindunum..

Doddi
05.02 2010 kl.15:33

Hvernig fá fréttamenn eyjunnar þetta út? Þetta er allavega allt annað en fréttamenn Reuters fá út í myndbandinu sem fylgir þessari frétt: http://mbl.is/mm/folk/frettir/2010/02/05/lat_brittany_murphy_var_slys/

Sverrir Friðriksson
06.02 2010 kl.01:16

Skil ekki svona fréttamennsku.

Björgvin
08.02 2010 kl.22:25

Frekar ósmekklegt að láta þessa mynd fylgja frétt um andlát hennar.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar