Innlent - fimmtudagur - 4.2 2010 - 15:38

Forseti Íslands lét stöðva tug- milljóna styrk Carnegie til einka- fyrirtækis Kristjáns Guy Burgess

olafurragnarnyar2010.jpgForseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, óskaði eftir því að Carnegie-stofnunin í New York frestaði greiðslu 500 þúsund dollara styrks – jafnvirði um 64 milljóna íslenskra króna – sem veittur hafði verið árið 2008 til ráðgjafarfyrirtækisins Global Center sem er í eigu Kristjáns Guy Burgess, aðstoðarmanns Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra. Styrkurinn var til rannsókna á bráðnun jökla á Himalaja.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Carnegie-stofnunin sendi Eyjunni í dag eftir fyrirspurnir um málið.

Ekki er útskýrt hvernig forseti Íslands tengist málinu. Fram kemur að forsetinn hafi hafi óskað eftir þessu vegna efnahags- og stjórnmálaástandsins á Íslandi. Ekki kemur fram hvernig það ástand hefur áhrif á rannsóknir á bráðnun jökla á Himalaja.

kristjan_guy_burgess.jpgFram kemur í yfirlýsingu Carnegie-stofnunarinnar að Global Center hafi fengið þennan stóra styrk sem „not-for-profit“ stofnun, þ.e. stofnun sem ekki er rekin í ágóðaskyni. Samkvæmt fyrirtækjaskrá er Global Center hins vegar rekið sem einkahlutafélag og þar með í ágóðaskyni. Ekki hefur fengist skýring á þessu misræmi.

Kenningar um öra bráðnun jökla á Himalaja hafa verið í sviðsljósi alþjóðlegra fjölmiðla undanfarnar vikur eftir að í ljós kom að þær voru byggðar á upplýsingum sem ekki hafa staðist vísindalegar athuganir. Einn forvígismanna slíkra rannsókna er Indverjinn Rajendra Pachauri, formaður loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna, en hann er góðkunningi forseta Íslands og hefur nokkrum sinnum komið hingað til lands og dvalið í gestabústað forsetans. Pachauri sætir harðri gagnrýni á alþjóðavettvangi fyrir málið og hefur þess m.a. verið krafist að hann segi af sér nefndarformennsku í loftslagsnefndinni, en hann hafnar því. Á dögunum var fullyrt í London Times að styrkurinn sem Global Center fékk hefði verið millifærður til Teri-stofnunarinnar, sem Pachauri rekur, en það hefur ekki reynst rétt, því styrkurinn hefur enn ekki verið greiddur út.

Ráðgjafarfyrirtæki Kristjáns Guy Burgess er enn með starfsemi þótt eigandinn gegni störfum sem aðstoðarmaður utanríkisráðherra. Einn maður sinnir þeim í fjarveru Kristjáns.

Kristján Guy Burgess hefur á undanförnum árum unnið ýmis ráðgjafarstörf fyrir þekkta útrásarvíkinga eins og Björgólf Thor Björgólfsson, forsetaembættið og iðnaðarráðuneytið og utanríkisráðuneytið.

40 ummæli

Rita ummæli

Bubbi
04.02 2010 kl.16:03

Hann sá herslags kauði þetta er ... enda aðstoðarmaður Össurar Reykás

bergur bergur
04.02 2010 kl.16:05

I don’t trust them.

Bubbi
04.02 2010 kl.16:10

p.s.

á að vera hverslags

P. Bergmann
04.02 2010 kl.16:10

Bráðnum jökla, væri ekki nær að fá þennan styrk til að rannsaka bráðnum Íslenska hagkerfisins. Give us the money.

Óskar
04.02 2010 kl.16:13

Forsetinn hefur gert sé grein fyrir að jöklar Himalaja bráðnuðu í réttu hlutfalli við upphæð styrkja til að sýna fram á bráðnun :)

Góð ákvörðun.

Procopius
04.02 2010 kl.16:27

Lyktar af vissum þvætti í anda útrásar með viðkomu á Íslandi ?? Sumir vita etv. meira en aðrir.

Héðinn Björnsson
04.02 2010 kl.16:28

Hvað segið þið um að rannsaka þetta aðeins áfram og segja okkur svo frá þegar þið skiljið sjálf eitthvað í hvað gerðist!

hlín
04.02 2010 kl.16:28

Ætlar PR fyrirtæki að fara að stjórna vísindarannsóknum? Ég er alveg hætt að skilja hvað er í gangi.

X no
04.02 2010 kl.16:29

Dýr væri jökullinn allur.

joi
04.02 2010 kl.16:42

Eru ekki neinar stofnanir á Íslandi sem eru að fást við þessi verkefni? Hvar kemur þessi aðstoðarmaður ráðherrans inn í málið?

Kristinn
04.02 2010 kl.16:54

Þetta er afburðargreindur drengur hann Kristján Guy , ég ólst upp í sama hverfi með þessum strák og man vel eftir honum. Það var augljóst strax að þarna var klár strákur á ferð. Minnist hans eingöngu sem góðum og einlægum náunga!

HA
04.02 2010 kl.17:00

Skildu vera hægt að kenna gróðurhúsaáhrifum um hitnun íslenska hagkerfisins?

Ása
04.02 2010 kl.17:06

Pass - skil ekki málið.
Verð að kafa dýpra.

Ása
04.02 2010 kl.17:07

Er verið að reyna að koma höggi á ‘ORG?
Hann er þó sá eini sem reynir að gefa okkur kost á að hafa áhrif.

Ása
04.02 2010 kl.17:09

Ekki víst að forsetinn hafi sloppið.
Það er nefnilega sórhættulegt að eyða samverustundunum með hinum illa í háloftunum og hvar sem er.

Ása
04.02 2010 kl.17:13

Þvílík spilling.
Bless er að fara að æla.

Ása
04.02 2010 kl.17:14

Ekki meir, ekki meir, ekki meir.

HTH
04.02 2010 kl.17:16

Hann mæðist í mörgu, Forseti vor.

Guðmundur
04.02 2010 kl.17:31

Kristinn

Það hvort hann hafi verið góður og einlægur í æsku skiptir eiginlega ekki máli. Afhverju svarar maðurinn ekki fyrir sig?

Ásgeir
04.02 2010 kl.17:52

Jú, víst er forseti vor einstakur og spurning, hvort bráðnar hraðar í návist hans, hjarta íslenskrar þjóðarsálar eða jöklar heimsins?
http://www.youtube.com/watch?v=V-gHdFhgdC8

Runi
04.02 2010 kl.17:53

þetta verður einhver að útskýra betur..

1.forsetinn stoppar styrkveitingu til íslensk fyrirtækis?!?

2. Aðstoðarmaður utanríkisráðherra á ehf sem átti að fá styrkinn??!

3.Hann er eini starfsmaðurinn og á að fá 60 milljónir í styrk?!?

Hvað er á bakvið þetta allt saman,, hvað segir forsetinn um þetta?!

th
04.02 2010 kl.18:04

það er farið að verða ljóst að þingmenn og aðstoðarmenn þeirra eru að tefja útkomu bankaskýrslunar þeir eru að koma þífinu undan

kk
04.02 2010 kl.18:07

Spurning hvort Decode Kári geti þróað lyf “pillu” sem slær á græðgi það er alveg augljóst hvaða samfélagshópur kemur til að taka lyfið

tverhaus
04.02 2010 kl.18:08

Ég hlustaði á þetta 22 mínútna viðtal og ég svei mér þá, held að maðurinn sé ekki að hugsa um sjálfan sig, hann er að hugsa um þjóðina.

Hann veit sem er að við vorum barinn og niðurlægð af stærri öflum og hann er að berjast til baka.

Arnar
04.02 2010 kl.18:20

Af vefsíðu Carnegie, útdráttur úr umsókninni sem Global Center setti inn fyrir hönd íslensks-indversks vísindasamstarfs með forseta Íslands sem verndara:

“Given the potential security and humanitarian impact on the region, there is an urgent need for greater awareness of this challenge and the actions needed to address it. To help meet this need, the Icelandic-based, Global Center, a private institute with links to the office of the president of Iceland, Olafur Ragnar Grimsson, is establishing a major research and training program involving scientists from South Asia, Europe and the Americas.”

Umsóknin var byggð á sömu gögnum og skýrslum og SÞ studdist við á þeim tíma. Af þessu vísindasamstarfi varð ekki þar sem Ísland hafði ekki bolmagn eftir hrun til að leiða það með sínum vísindamönnum. Forsetinn sem verndari lét Carnegie vita að af verkefninu yrði ekki og þessi styrkur var því aldrei greiddur út.

Kíkið á það sem ég setti inn hér að ofan um aðdragandann sem er lýst opinberlega.

Hvað er óljóst í þessu?

Kristinn
04.02 2010 kl.19:01

Nei Guðmundur það er kannski rétt hjá þér , það skiptir engu máli hvort hann sé einlægur og góður drengur.

Mar er hættur að skilja hvað skiptir máli orðið.

Mér finnst svo skrýtið hvað fólk er að velta sér upp úr 60 miljóna styrk sem var ekki einusinni greiddur !! Hvernig væri að fara að huga að því sem skiptir máli. Fólkinu í landinu sem er að blæða út og þjófahyski sem gengur laust og er búið að gera landið gjaldþrota!!

Loftslag
04.02 2010 kl.19:15

Hvað sem um þetta mál má segja, þá er mikilvægt að rannsóknir á jöklum Himalaja fari fram. Það virðast vera einhverjar gloppur í þekkingu okkar á þeim jöklum og því mikilvægt að rannsaka þá nánar, til að komast að því hvert ástand þeirra er, enda eru þeir u.þ.b. 5.000 talsins. Hver örlög jöklanna í Himalaja verða er mjög mikilvægt fyrir alla þá sem búa á vatnasvæði Himalaja. Þrátt fyrir mikilvægi jöklanna hefur alþjóðleg stofnun um vöktun jökla, World Glacier Monitoring Service, bent á að of lítið sé gert af mælingum og rannsóknum á jöklum Himalaya, með það fyrir augum að fylgjast með þróun þeirra.

Ólafur Ágúst
04.02 2010 kl.19:52

Andrew Carnegie var skoskur auðróni (burgeis) með umsvif í Bandaríkjunum.

Er þetta bótasjóður frá honum?

J
04.02 2010 kl.20:07

Var þetta ,,vinabragð” forsetans vegna þess að ,,töskuberin” vildi ekki vera með í för ?

FG
04.02 2010 kl.21:08

Hvað er hér á ferðinni? Af hverju er þetta ekki í Fréttablaðinu á forsíðu? Aðstoðarmaður ráðherra - ýmis ráðgjafastörf - hvaða - fyrir hvað mikið? Allt upp á borð - eða var það ekki krafan? Hefur “einkavinavæðingin” breytt um ásjónu? Össur og Spron í dag - einnig Árni Þór en hvað á morgun?

Guðmundur Guðmundsson
04.02 2010 kl.21:14

Það er ekki logið á SF-spillinguna.
Ætli Össur hafi skrifað upp á vottorð(meðmæli) fyrir þetta? Er Össur hluthafi?

jóhann
04.02 2010 kl.23:16

ég spyr þess sama eins og aðrir ætli össur sé að plotta með þessum gaur

Guðbjörg
04.02 2010 kl.23:26

Djö.. líst mér vel á Ólaf Ragnar núna. Hann ætlar greinilega ekki að láta negla sig fyrir að vera presentera einhverja lyga gúrúa.

Óli er að standa sig eins og hetja og vex sífelt í áliti hjá mér.

Arnar M
04.02 2010 kl.23:52

Gott PR stunt hjá fossanum. Sá er að reyna að tryggja sig í sögubókunum. Ódýrar aðferðir samt en svínvirka. Innhringiaparnir á útvarpi sögu eru alveg að fara að kokgleypa þetta, hustið bara á símatímann á morgun milli 11 og 12.

Brosi
05.02 2010 kl.01:16

Gott hjá ORG

Guðrún Sigurðard
05.02 2010 kl.01:39

Arnar M - heitir þú Hrannar, eða ...?

Loki
05.02 2010 kl.06:18

Össur sér um sína, er sagt.

Duglegur að nota “skúffufé” ráðamanna í ýmis “verkefni” sem koma sér vel ....

Arnar
05.02 2010 kl.08:48

Forsetinn var og er verndari þessa rannsóknarverkefnis samkvæmt því sem fram kemur á vefsíðu Carnegie og Global Center og lykilaðili í að koma á því vísindasamstarfi sem verkefnið spratt úr. Ef einhverjir hér eru í þeirri trú að sú ákvörðun að fresta verkefninu vegna efnahagsástandsins á Íslandi sé ný eða tengist samskiptum forsetaembættisins við utanríkisráðherra þá virðist það alrangt. Ef Eyjan hefur svona mikinn áhuga á málinu ætti hún næst að spyrja forsetann sjálfan um hvenær ákvörðun um frestun var tekin.

S.Á.
05.02 2010 kl.10:42

Arnar, ég meina Hrannar B Arnarson: Hvað segir forsætisráðuneytið um málið? Er þetta efnismikið mál þar sem allt er undir? Málfarið á yfirlýsingu Jóhönnu bar öll merki spunameistara hennar, tvíeykisins Hrannars B og Einars Karls. Hvílík moðsuða af bulli! Svo má ekki skrifa komment um þetta rugl.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar