Madonna hefur nú greint frá því að hún sé hætt með karlfyrirsætunni Jesuz Luz og kennir aldursmuni um en það eru 28 ár á milli þeirra.
Jesuz, sem er 23 ára, segist sammála Madonnu um ágreininginn en þau eigi fá sameiginleg áhugamál og að líf þeirra samræmist illa. Það mun hafa verið hann sem átti frumkvæði að því að hætta saman en móðir hans, sem er 14 árum yngri en Madonna, hefur aldrei verið sátt við sambandið.
Margir hafa furðað sig á því hvað sambandið entist þó lengi en þau hafa verið á föstu
í eitt ár, eftir að þau kynntust við myndatökur hjá Dolce og Gabbana.
Þetta var eftir að Madonna skildi við breska leikstjórann Guy Ritchie (41) í október 2008.
Madonna giftist Sean Penn (49) árið 1985 en þau skildu fjórum árum síðar.
Þá átti hún í stuttu sambandi við leikarann og glaumgosann Wareen Beatty og því næst við rapparann Vanilla Ice (42) og körfuboltaleikarann Dennis Rodman (48).
Eftir þessa þrjá deitaði hún einkaþjálfarann sinn, Carlos Leon (43) og eignaðist með honum dótturina Lourdes sem er 13 ára.
Madonna og Guy byrjuðu saman árið 2000 og eignuðust drenginn Rocco sem er níu ára. Þau ættleiddu einnig David sem er 4 ára en hann er ættaður frá Malaví. Madonna ættleiddi svo litla stúlku frá Malaví í fyrra en hún heitir Mercy og er fimm ára.

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
4 ummæli
Rita ummæli04.02 2010 kl.12:22
Slóð
Bíddu, var mamma hans ekki nema 14 ára þegar hún eignaðist hann? Það hlýtur að vera ef hún er 14 árum yngri en Madonna.
04.02 2010 kl.19:30
Slóð
bíddu bíddu bíddu, var mamma Jesuz bara 14 ára þegar hún eignaðist kauða?
05.02 2010 kl.13:22
Slóð
24ára.
05.02 2010 kl.14:15
Slóð
Sigurður: 14 ára.
Mamma hans er 14 árum yngri en Madonna svo hún er 37 ára. Hún eignaðist strákinn fyrir 23 árum. Þá hefur hún verið 14 ára (ef aldursupplýsingar Eyjunnar eru réttar).