Fólk - fimmtudagur - 4.2 2010 - 17:34

Tiger Woods lýkur kynlífsfíknarmeðferðinni: Elin kemur að ná í hann

Kynóði kylfingurinn Tiger Woods kemur til með að ljúka meðferð við kynlífsfíkn nú í lok vikunnar.

itr__1235647290_tiger_woods_elin_nordegren__.jpgEiginkona hans, Elin Nordegren, mun koma að ná í karlinn en flest bendir nú til þess að hún sé hætt við skilnaðinn og hyggist láta á sambandið reyna.

Tiger hefur nú verið í um sex vikur á meðferðarstofnuninni Gentle Path í Hattiesburg, Mississippi. Þar munu menn fremstir meðal jafningja í meðferð við kynlífsfíkn.

Að sögn heimildarmanna Radaronline er Tiger yfirfullur iðrunar og þráir ekkert heitar en fyrirgefningu spúsunnar og fjölskyldu sína til baka.

Þau hjónin ætla beint í siglingu á einkasnekkju Tigers þegar þau snúa aftur til Flórída.

Elin hefur dvalið með Tiger á meðferðarstöðinni en á síðustu dögum hefur sést til tvíburasystur hennar þar sem hún gætti barna þeirra hjóna og fór m.a. með þau í Sea World í Orlando.

Tiger ætlar að snúa sér aftur að golfi með vorinu og jafnvel fyrr ef allt gengur að óskum. “Hann þráir líf sitt aftur”.

Segja má að þessi “fullkomni” íþróttamaður hafi lifað tvöföldu lífi á borð við Dr. Jeckyll og Mr. Hyde. Á yfirborðinu var hann sómakær fjölskyldumaður sem klæddi sig snyrtilega og átti fáa jafnoka í sportinu en í hliðarsjálfinu var hann kvensamur flagari sem gat ekki haldið upp um sig brókunum.

Það var National Enquire sem fyrst greindi frá því að Tiger hafi átt í fimm mánaða löngu, alvarlegu sambandi við Rachel Uchitel en síðan hefur hann verið bendlaður við fjórtán konur á stuttum tíma.

6 ummæli

Rita ummæli

Raftur
05.02 2010 kl.13:11

Hann er ekkert verri maður þó hann sé ekki fullkomin og þeir íslendingar sem dæma hann ættu að líta í eigin barm í landi sem framhjáhald þykir sjálfsagt.

Bjarki
05.02 2010 kl.16:31

fjórtánfalt framhjáhald þar sem hann borgaði fyrir margar kvennanna? þetta er svívirðileg hegðun gagnvart eiginkonu og börnum í alla staði og hann er mun verri maður fyrir vikið.

jajaja
05.02 2010 kl.18:14

Í hvaða heimi lifir þú í Raftur??
Framhjáhald er ekki sjálfsagt hér á Íslandi og hefur aldrei verið.Furðulegt hve margir menn finnst það sjálfsagt að heimsækja aðrar konur til þess eins að notfæra sér þær.Framhjáhaldarar hér á landi fara viðbjóðslega með hjákonur sínar þeim er skítsama um þeirra líf og tilfinningar.

Ómar Ragnarsson
06.02 2010 kl.12:20

“Það þarf tvo til” segir Danskurinn. En hugsunarháttur Einsa kalda úr Eyjunum hefur lengi verið við líði hér á landi og í honum hefur fólgist mismunur á því hvernig kynin eru dæmd. Það sjá menn ef þeir þeir setja konur í hlutverk Einsa kalda, Gústa í Hruna eða skipstjórans í Skipstjóravalsinum.

Kristín
09.02 2010 kl.12:41

“Framhjáhaldarar hér á landi fara viðbjóðslega með hjákonur sínar þeim er skítsama um þeirra líf og tilfinningar.”

þú talar eins og það séu bara karlmenn sem halda framhjá?

jajaja
12.02 2010 kl.14:43

@ kristín

Nei auðvitað halda konur líka framhjá en bara í miklu minna mæli.
Því miður varð ég viðhalds gifts manns og sé ég eftir þeim tíma sem ég eyddi í hann.En jú hann kom ekki vel fram við mig og niðurlægði mig.En konan hans hans á von á bréfi sem sent verður á vinnustað hennar eða símhringingu bráðlega.Mitt ráð til kvenna sem halda við gifta menn komið ykkur út úr þessu þá verðið þið ekki niðurægðar og fl..það er ekki einu sinni þess virði að standa í þessu og þetta er slítandi og eyðileggjandi fyrir þitt líf...

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar