Fólk - föstudagur - 5.2 2010 - 15:13

Lindsay Lohan skvetti drykk í andlitið á Sam Ronson: Reyndi allt til að gera hana afbrýðissama

Fá sambönd hafa fengið jafn mikla athygli slúðurpressunnar og ástarsamband þeirra Lindsay Lohan og plötusnúðarins Samönthu Ronson.

lindsay-lohan-sam-ronson-lesbian-adopt.jpgÞær hafa hætt og byrjað saman á víxl en eftir því sem á líður virðist andlegt ástand Lindsay Lohan fara versnandi.

Bandaríski slúðurvefurinn RadarOnline greinir nú frá því að Lindsay hafi mætt haugdrukkinn á skemmtistað þar sem Sam þeytti skífum. Lindsay drakk vodka af stút og bruddi pillur með.

Hún stillti sér upp fyrir framan “diskóbúrið” og reyndi allt til að fanga athygli fyrrum ástkonu sinnar og gera hana afbrýðisama. Dansaði m.a. eggjandi dans beint fyrir framan augu hennar við gullfallega þokkadís en allt kom fyrir ekki.

Lindsay “snappaði”

Sam fór þó að leiðast skrípaleikurinn eftir því sem á leið og á endanum sagði hún við Lindsay:

“Af hverju færðu þér ekki meira að drekka?” og bætti svo við “þú ert til háborinnar skammar.”

Við þetta reiddist Lindsay heiftarlega. Tók upp glas og skvetti drykknum beint í andlitið á Sam sem svaraði í sömu mynt og hendi tækjabúnaði úr diskóbúrinu í Lindsay.

Áður en allt fór á versta veg tókst vinkonu Lindsay að draga hana í burtu.

“Lindsay hefur enga stjórn á sér þegar Sam er annars vegar. Hún hefur klárlega mjög sterkar tilfinningar til hennar og er enganvegin komin yfir sambandið. Þetta er baneitrað ástand,” sagði heimildarmaður Radar.

10 ummæli

Rita ummæli

Sverrir
05.02 2010 kl.23:51

Mikið var þetta stórmerkileg frétt.

kristján
06.02 2010 kl.03:29

af hverju lastu hana og tókst tíma í að commenta ef hún er svona “ómerkileg”.... vá hvað þú ert ómerkilegur......

Kristinn
06.02 2010 kl.08:20

fu ck... lesbians mar þarf ekki bara að staura þær almennilega þá hætta þær þessu rugli !!

Guðrún G
06.02 2010 kl.12:48

Er þessi kenning þín ekki dálítið úr sér gengin Kristinn?

Björn I
06.02 2010 kl.14:52

Mér finnst ég alltaf vera að lesa um þessa konu en aldrei les ég um nein afrek af hennar hálfu.

Ef ég man rétt, þá hefur þessi Lindsey leikið í einhverri mynd sem sýnd var á RÚV hér um árið og fjallaði um bifreið sem gat ekið sjálfri sér.

Er hún svona fræg fyrir þá mynd eingöngu eða hefur þessi manneskja gert eitthvað annað?

OO
06.02 2010 kl.15:41

Ertu að meina að hún hafi ekki einu sinni þurft að keyra bílinn?

Ægir
07.02 2010 kl.22:06

Þetta er svakalegt..usss

Kolbeinn Hugi
08.02 2010 kl.13:38

Hvað er að sjá á þér andlitið?

http://imgur.com/fDAWU.jpg

Sigurður #1
08.02 2010 kl.16:50

Fyrir hvað er þessi kona fræg?

Það koma reglulega djamm fréttir af henni, en fyrir hvað er hún fræg?

Eða er þetta svona Fjölnir Þorgeirs dæmi, fræg fyrir að vera fræg......

User
09.02 2010 kl.08:42

Merkilegt

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar