Kreppan kom til Hollywood líkt og allstaðar annarsstaðar í heiminum og leikstjórar og framleiðendur þar á bæ hafa alls ekki úr eins miklu að moða og undanfarin ár -þrátt fyrir að tekjurnar hafi aldrei verið hærri í sögu iðnaðarins en einmitt árið 2009.

Ástæða þess að Hollywood liðið þarf að herða sultarólina, ef svo mætti kalla, er fyrst og fremst sú að innlendir og erlendir (þá sérstaklega erlendir) fjárfestar hafa ekki lengur tök á að setja fé sitt í framleiðslu kvikmynda en þetta verður þó aldrei til þess að skemmtiefni hætti að berast úr draumaborginni og sumir virðast algerlega tryggðir gegn öllu floppi.
Meðal þeirra er t.d. Daniel Radcliffe sem mun lifa góðu lífi á Harry Potter það sem eftir er ævinnar, en hann er með um milljón bandaríkjadala í árlegar tekjur af gömlum myndum um galdrastrákinn.
Þessi listi var tekinn saman af Bandaríska tímaritinu Vanity Fair og birtur á netinu í dag. Eftirfarandi eru ríkustu einstaklingarnir í Hollywood þar sem árstekur eru á bilinu 16-2 milljarðar.
1 Michael Bay
Áætlaðar tekjur 2009: 16 milljarðar, þar af níu og hálfur milljarður fyrir leikstjórn og meðframleiðslu á kvikmyndinni Transformer.
Stærstur hluti annara tekna tengist svo réttindum á sölu leikfanga tengdum myndinni og öðrum varningi.
2 Steven Spielberg
Áætlaðar tekjur 2009: 85 milljónir dollara eða rúmir 10 milljarðar íslenskra króna. Þar af fékk hann um 50 milljónir dala í tekjur frá Universal skemmtigarðinum en þetta er hluti af samningi sem Spielberg gerði árið 1987. 20 milljónir dala eða um tveir og hálfur milljarður koma í vasann fyrir að leikstýra ævintýrum Tinna og restin er m.a. ágóði af sölu á ýmsum varningi.
3 Roland Emmerich
Áætlaðar tekjur 2009: 70 milljónir dala eða um 9 milljarðar króna fyrir leikstjórn og framleiðslu myndarinnar 2012.
4 James Cameron
Áætlaðar tekjur 2009: 50 milljónir bandaríkjadala eða um 6.5 milljarðar íslenskra fyrir að leikstýra, skrifa og framleiða Avatar sem er tekjuhæsta mynd allra tíma.
5 Todd Phillips
Áætlaðar tekjur 2009: 44 milljónir bandaríkjadala eða fimm og hálfur milljarður ísk. 39 fyrir að leikstýra The Hangover og 5 milljónir dala fyrir að framleiða og leikstýra Due Date með Robert Downey Jr.
6. Daniel Radcliffe
Hinn kornungi leikari Daniel Radcliffe kemur svo í sjötta sæti með rúma fimm milljarða íslenskra króna í árstekjur ársins 2009.
Þar af eru tvisvar sinnum 20 milljónir bandaríkjadala fyrir að leika í tveimur Harry Potter myndum (tveir og hálfur milljarður íslenskra króna).
Myndirnar, sem munu vera lokaspretturinn á sögunni eru væntanlegar til sýninga á þessu og næsta ári.
Eina milljón dala, eða um 127 íslenskar milljónir, fékk Daniel á bankabókina sem þóknun fyrir leik sinn í eldri Harry Potter myndum.
Félagar hans úr Potter genginu, þau Rubert Grint og Emma Watson, eru í 14 og 15 sæti.

7. Ben Stiller
8. Tom Hanks
9. J. J. Abrams
10. Jerry Bruckheimer
11. Tyler Perry
12. Adam Sandler
13. Denzel Washington
14. Emma Watson
15. Rupert Grint
16. Owen Wilson
17. Nicolas Cage
18. Russell Crowe
19. Cameron Diaz
20. Brian Grazer og Ron Howard
21. Johnny Depp
22. Steve Carell
23. Robert De Niro
24. Sarah Jessica Parker
25. Katherine Heigl
26. Shawn Levy
27. Oren Peli og Jason Blum
28. Robert Downey
29. George Clooney
30. Matt Damon
31. Reese Witherspoon
32. Angelina Jolie
33. Jennifer Aniston
34. Sandra Bullock
35. Robert Pattinson
36 Clint Eastwood
37. Kristen Stewart
38. Mark Wahlberg
39. Shia LaBeouf
40. Brad Pitt
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
5 ummæli
Rita ummæli05.02 2010 kl.15:13
Slóð
Þetta fólk sem torrentar kvikmyndum niður af netinu ókeypis hlýtur að missa svefn af samviskubiti.
05.02 2010 kl.15:22
Slóð
fólk eins og snd sem reynir hvað sem það getur til að afsaka steliríið sitt svo það fái ekki samviskubit
05.02 2010 kl.15:55
Slóð
Merkilegt að lélegasti leikstjóri fyrr og síðar (by far) sé þarna efstur á lista
05.02 2010 kl.19:42
Slóð
Clint Eastwood bara í 36 sæti.Held samt að launin hans séu hærri en mín .megi uppfæra mismuninn í veldi.
06.02 2010 kl.21:36
Slóð
Skondið að Nicolas Cage skuli vera í fjárhgsvandræðum þessa dagana með yfir 2 milljaraða í tekjur, spurning hvort hann fái útborgað í íslenskum krónum, annars er kallinn ágætur líklega með kvenhormón því hann eyðir meira en góðu hófi gegnir