Xiaoqing, tuttugu og eins árs gamall Shanghai búi, vill leggjast undir hnífana til að líkjast bandarísku leikkonunni Jessica Alba.
Unga konan segist gera þetta í þeim tilgangi að ná 28 ára gömlum kærasta sínum aftur.
Parið hafði verið saman í um eitt og hálft ár þegar hún sleit sambandinu við hann vegna Alba þráhyggjunnar.
Kærastinn hafði þá skreytt íbúð þeirra með myndum af leikkonunni og gengið svo langt að biðja Xiaoqing að ganga um með ljósa hárkollu svo að hún líktist Alba meira.
Hann talaði jafnframt látlaust um leikkonuna.
Nú sér Xiaoqing eftir því að hafa slitið sambandinu og langar að fá kærastann til baka. Til að auka líkurnar á að sambandið gangi betur í þetta sinn ætlar hún að láta “breyta” sér í Jessicu Alba. Læknar á Shanghai Time, sem er sérstakur fegrunaraðgerðaspítali, ætla meira að segja að gera þetta frítt til að sýna hvað í þeim býr.
Hér er vitanlega verið að tala um konu af asískum uppruna sem vil breytast í hvíta konu.
Xiaoqing segir vini sína hafa lagt til að hún færi í aðgerð eftir að ekkert gekk að hugga hana af ástarsorginni.
Þá ráðfærði hún sig við bloggara sem réðu henni flest frá því að fara undir hnífinn en Xiaoqing virðist þó ekki láta það stoppa sig.
“Ég tilheyri ungu kynslóð þessa lands. Ég hef rétt á að velja hvað ég vil fá út úr lífinu,” segir hún. “Mér hefur ekki tekst að sleppa tökunum á honum og ef sambandið gengur ekki upp eftir þessa aðgerð ætla ég að gefast upp og búa ein.”
Á spítalanum þar sem Xiaoqing mun gangast undir aðgerðirnar eru reglulega framkvæmdar aðgerðir á ungum konum sem vilja líkjast fræga fólkinu í Hollywood.
Árlega er milljörðum eytt í slíkar aðgerðir í Kína en þar lítur fólk svo á að aðgerðir af þessu tæi geti aukið líkurnar á góðri vinnu eða hjónabandi.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
7 ummæli
Rita ummæli05.02 2010 kl.17:41
Slóð
lousy vinir
05.02 2010 kl.20:15
Slóð
tæi? Hvað þýðir það nú eiginlega?
06.02 2010 kl.01:31
Slóð
ég var einmitt að velta því fyrir mér hvað það þýðir. Kannski er þetta dulbúnir kynþáttafordómar hjá blaðamanni. Samt er sagt að hún sé frá Kína en ekki Tælandi.
06.02 2010 kl.06:35
Slóð
af þessu tæi = af þessari tegund ;)
(aðeins í þgf., einnig ritað tæi, tægi ). tegund, gerð. af þessu tagi. af sama tagi. sitt af hverju tagi.
06.02 2010 kl.10:53
Slóð
Ég vil benda Óskari á að í þessu samhengi er þetta orð ritað ‘tagi’ ekki ‘tæi’
Kv,
08.02 2010 kl.11:03
Slóð
Þarf maður ekki að vera með a.m.k. grunnskólapróf í stafsetningu til að geta unnið sem blaðamaður...?
09.02 2010 kl.12:14
Slóð
hvað er að ykkur ein stafsettningarvilla drepur engann!