Kristrún Heimisdóttir, sem var aðstoðarkona Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í stóli utanríkisráðherra, telur að bæði hin fyrri og síðari Icesave-lög séu í raun fallin úr gildi og að samningarnir sem “Svavarsnefndin” gerði séu sjálfkrafa fallnir niður. Þetta telur Kristrún góðar fréttir, því eftir standi ályktun Alþingis frá 5. desember 2008 og samhljóða samkomulag sem allir deiluaðilar milliríkjadeilunnar stóðu að ásamt Evrópusambandinu og voru jafn bundnir af. Því telur Kristrún að viðræður stjórnar og stjórnarandstöðu um sameinaða afstöðu út á við séu ekki í lausu lofti heldur á skýrum grunni. Skapast hafi tækifæri til að laga stöðuna.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í langri grein Kristrúnar um Icesave málið í Fréttablaðinu í dag. Í greininni gagnrýnir hún vinnubrögð Svavarsnefndarinnar harðlega, sem og þann farveg sem Steingrímur J. Sigfússon kaus að færa málið í eftir að hann varð fjármálaráðherra í febrúar 2009. “Útgangspunktur þeirrar samningagerðar var rangur frá upphafi,” skrifar aðstoðarkonan fyrrverandi.
Stærstu mistökin, að mati Kristrúnar, felast í því að ekki hafi verið unnið eftir fyrrnefndri samþykkt Alþingis frá 5. desember 2008, þ.e. svonefndum Brussel-viðmiðum. Nefnir hún að enn sé óútskýrt hvers vegna ný samninganefnd hafi látið efni þeirra niður falla frá febrúar 2009, en það hafi haft afar neikvæðar afleiðingar fyrir Íslendinga.
Kristrún segir að það breyti engu þótt Bretar og Hollendingar séu stóryrtir um stöðu mála á Íslandi. Þótt þeir tali um upplausn á Íslandi, þá hafi komið á daginn að þeir hafi ekki gert aðför að eignum Íslands, einsog sumir óttuðust, enda hafi “þessi ríki ekki raunhæf önnur tæki til innheimtu meintrar skuldar Íslands en pólitískar þvingunaraðgerðir sem þeir þess vegna hafa beitt af mikilli hörku frá því málið kom upp. (...) Sú harka sem Bretland sýndi Íslandi og bæði ríkin gengust fyrir innan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins braut niður lýðræðislegt umboð og stofnanir í landi sem háði glímu á sama tíma við bankakreppu og gjaldmiðilshrun.Framganga þeirra í garð Íslands í október og nóvember 2008, þegar afgreiðsla efnahagsáætlunar var látin bíða í á fimmtu viku, braut gegn grundvallarreglum og tilgangi AGS og var atlaga að öryggi og velferð íslensks samfélags á viðkvæmustu stundu,” skrifar Kristrún.
Ísland má ekki selja sig í þessa stöðu
Hún telur að báðar niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-lögin hin síðari séu afleitar. Þó sé já-ið sýnu verra, “vegna þess að samþykki í þjóðaratkvæði myndi enn styrkja lögmæti samninga þannig að ógerlegt yrði að breyta síðar.”
Þetta telur Kristrún þó ekki vera neikvæða stöðu, heldur þvert á móti góðar fréttir, því það sé einfaldlega þjóðarhagur að samningarnir frá því í júní falli niður. “Aðstæður þýða að samningarnir eru nú þegar lifandi dauðir, afar fáir telja þá góða og þeir eru beinlínis háskalegir ofskuldsettu smærra ríki langt fram í 21. öldina vegna varnarleysis Íslands innan þeirra og óviðunandi veikrar réttarstöðu. Nægir að nefna algjörlega haldlaus endurskoðunarákvæði því til staðfestingar. Þetta er staða sem Ísland má ekki með nokkru móti selja sig í. Ríkisstjórnin á að opna málið í heild. Því fyrr því betra,” skrifar hún.
Bretar voru ósáttir við Brussel-viðmiðin og vildu þau burt
Kristrún rekur í þaula hvað lagt var til grundvallar í Brussel-viðmiðunum og telur það hafa verið “stærsta einstaka hagsmunamál þjóðarinnar af öllum á þeim tíma, að fylgja Brussel-viðmiðunum eftir samkvæmt orðalagi sínu.”
Athyglisvert er að hún segir Ísland hafa vitað af því að breska fjármálaráðuneytið taldi Bretland hafa samið af sér með viðmiðunum. “Með þeim voru Bretar enda búnir að samþykkja marghliða ferli, þar sem taka skyldi tillit til sérstakra og fordæmislausra aðstæðna á Íslandi og nauðsynjar þess að endurreisa efnahagslíf landsins. Þeir voru búnir að samþykkja texta sem fól ekki í sér neitt afsal réttarstöðu fyrir Ísland, ekki viðurkenningu á greiðsluskyldu samkvæmt lögum heldur einungis að EES-réttur gilti eins á Íslandi og hann gerir alls staðar á innri markaðnum. Og þeir voru búnir að samþykkja aðild ESB að málinu. Til að klóra í bakkann beittu þeir sér til að breyta AGS-yfirlýsingu Íslands en tókst ekki að breyta henni þannig að það skuldbindi Ísland umfram Brussel-viðmiðin - í yfirlýsingunni vísar Ísland til þess samningaferlis sem hafið sé þá, þ.e. Brussel-viðmiðanna,” segir Kristrún.
Hún segir enn óútskýrt og í raun óskiljanlegt hvers vegna horfið var frá þessu hagstæða samkomulagi og ráðist í einfaldan lánasamning við Breta og Hollendinga. Þá fullyrðir hún að Huginn Freyr Þorsteinsson, aðstoðarmaður formanns samninganefndar, og Indriði H. Þorláksson, þáverandi ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, hafi ekki tekið Brussel-viðmiðin alvarlega og varla þekkt innihald þeirra né skilið mikilvægi þess samningaferlis - pólitísku samningaleiðar - sem Alþingi ákvað að veita framkvæmdavaldinu umboð til með þingsályktun 5. desember 2008.
Ranglega haldið fram að Ísland hafi tekið lán fyrir Icesave
Til að átta sig á breyttum markmiðum íslensku samninganefndarinnar vísar Kristrún til erindisbréfs nefndarinnar, sem finna má á vefnum island.is undir heitinu „Ný nálgun - erindisbréf samninganefndar um gjaldeyrislán.” Með því hafi Icesave-málið verið tekið úr marghliða pólitísku samningaferli og umbreytt í tvíhliða lánasamning eingöngu. Á því beri fjármálaráðuneytið ábyrgð fremur en sendiherrann Svavar Gestsson, sem aðeins hafi fylgt stefnu sem fyrir hann var lögð.
“Í erindisbréfinu, sem varð ekki opinbert fyrr en í júní 2009, er sú óskiljanlega forsenda lögð til grundvallar að Ísland sé þá þegar búið að taka lán enda þótt opinbert og augljóst hafi verið að Bretar og Hollendingar ákváðu einhliða að greiða innistæðueigendum svo sem skjalfest er í viðaukasamningum frá júní. Indriði Þorláksson hefur svarað því til í fjölmiðlum að Ísland hafi „í raun tekið lán í október”. Sú túlkun er svo algjörlega einstæð að ég hef hvergi fundið hana rökstudda í gögnum málsins. Í henni felst bæði ótrúlegt afsal réttarstöðu og sjálfsákvörðunarréttar Íslands og illbærileg viðurkenning á réttmæti kúgunaraðferða Breta og Hollendinga. Munum að samningarnir leggja allan kostnað á Ísland meðan Bretar og Hollendingar hafa fjárhagslegan hagnað af þeim. Höfum í huga að á þessum grunni greiða Íslendingar vexti til ríkjanna tveggja frá 1. janúar 2009 að telja sem nema ríflega 20 milljörðum íslenskra króna og var þó enginn samningur um lán undirritaður fyrr en í byrjun júní (og er ekki enn kominn á),” skrifar Kristrún um þennan þátt málsins.
“Ef samráð við Alþingi hefði eitthvert verið hefði hvorki þetta ákvæði samninganna né mörg önnur nokkurn tíma komist til íslensks samþykkis enda margir þingmenn vel að sér í málinu eftir þingumræður og ályktun Alþingis. Fjárskuldbindingar höfðu verið með öllu ófrágengnar alveg eins og lánsvilyrði Norðurlandanna, Póllands og Rússlands voru ófrágengin og enduðu misjafnlega.
Í erindisbréfi Svavarsnefndarinnar, sem varð ekki opinbert fyrr en í júní 2009, er hins vegar hvergi minnst á Brussel-viðmiðin og efni þeirra virt að vettugi. Útgangspunktur samninga af nefndarinnar hálfu var þannig óhjákvæmilega Íslandi meira í óhag en efni stóðu til. Að auki var aðild ESB að samningaferlinu látin niður falla sem og tengingin við framgang efnahagsáætlunarinnar innan AGS.”
Ósátt við fjármálaráðherra - klúðraði góðum samskiptum við ESB-ríki
Kristrún telur það mikinn skaða að aðkoma Evrópusambandsins hafi horfið að málinu. Rekur hún fjölmarga jákvæða fundi sem Ingibjörg Sólrún átti sem utanríkisráðherra í desember 2008, m.a. við utanríkisráðherra Frakklands, Spánar, Þýskalands, Tékklands, Hollands og Bretlands auk félaga sinna frá Norðurlöndum, þar sem rætt var fyrirkomulag aðkomu ESB, skuldaþol Íslands, hugsanlegar breytingar á Evrusamstarfi, fjármögnunarmöguleika, skilmála og kjör vegna innistæðutrygginga.
Fullyrðir hún að á þessum fundum hafi verið “samdóma álit allra sem að komu að velvilji innan ESB væri meiri en við höfðum vænst og andrúmsloftið hefði breyst til batnaðar. Íslendingar vildu fylgja formlegu marghliða ferli fast eftir en um leið töldu allir að tíminn myndi vinna með Íslandi, ógnin af allsherjarhruni bankakerfa í Evrópu og víðar, sem hafði haft gríðarleg áhrif á hörkuna sem Íslandi var sýnd, var í rénun. Þetta var einnig ábending sumra af evrópsku ráðherrunum.”
“Af hverju kom ESB ekki neitt að samningunum frá júní 2009?” spyr Kristrún. “Staðreyndin er að fjármálaráðherra hafði aldrei samband til Brussel. Því var ekki fylgt eftir sem þó stóð svart á hvítu í Brussel-viðmiðunum og ályktun Alþingis. Ef samráð við þingflokka hefði eitthvert verið hefði ráðherra verið bent á efni umboðs síns frá Alþingi.”
Í greininni lýsir Kristrún yfir óánægju með stefnu Vinstri grænna í málinu og segir að andstaða VG við pólitíska samningaleið og Brussel-viðmið hafi verið “alþekkt meðal annarra ríkja þegar flokkurinn tók málið í sínar hendur í febrúar 2008. (...) Í stað þess að skipta opið og heiðarlega um skoðun og kynna nýjan samningsvilja sinn fyrir ríkisstjórnum á Norðurlöndum, framkvæmdastjórn AGS og Evrópusambandinu fór allt fram í leyni hér heima og erlendum samskiptum var haldið á lægri stigum embættismanna. Ekki er vitað til þess að fjármálaráðherra hafi átt fundi með erlendum ráðherrum um Icesave fyrr en í september 2009. Þá voru liðnir sjö mánuðir frá því hann tók við málinu og Alþingi búið að vinna að fyrirvörum í þrjá mánuði samfleytt,” minnir hún á.
Ísland má ekki axla byrðarnar hljóðalaust
Kristrún lýkur grein sinni á því að segja að Icesave-málið sé nú loks komið aftur á rétta braut.
“Ísland má ekki gera sjálfu sér að axla byrðarnar hljóðalaust. Eva Joly hefur réttilega bent Íslendingum á að þeir séu ekki einstök glæpaþjóð heldur hafi íslenskir bankar og viðskiptajöfrar verið hluti af alþjóðlegu fjármálakerfi sem brokkar áfram óbreytt þrátt fyrir hamfarir haustsins 2008. Formaður samninganefndar sagði hins vegar í blaðaviðtali um samningsniðurstöðuna í júní 2009 að Ísland væri „lamb Guðs sem bæri burt heimsins syndir”. Sú trú er, þegar að er gáð, fullkomlega ábyrgðarlaus gagnvart bæði alþjóðasamfélaginu og Íslandi - að það sé Íslands að taka að sér að grafa syndina hjá sér eins og hvern annan kjarnorkuúrgang svo að voldugri ríki a.m.k. jafn bersyndug taki enga ábyrgð er auðvitað trygging þess að enginn læri neitt,” skrifar hún.
“Þeir fjölmörgu málsmetandi aðilar í öðrum löndum sem á síðustu vikum hafa tekið undir málstað Íslands skilja allir þetta samhengi og eru mikilvægir bandamenn. Það er ekkert í boði nema samstaða Alþingis út á við um marghliða samningaviðræður helst með aðkomu þriðja aðila með heildarmyndina á samningaborðinu. Sömu grundvallaratriði Brussel-viðmiðanna eiga enn við þótt staða efnahagsmála sé verri en vænst var. Fjórtán mánuðum eftir að Alþingi samþykkti þingsályktun um pólitíska samningaleið erum við komin aftur á þá réttu braut, sem betur fer. Fundur forsætisráðherra með Barroso í Brussel gaf góð fyrirheit. Norðmenn eru komnir í sama lið og Færeyingar. Það eru góðar fréttir. Ísland verður að sanna sig fyrir sjálfu sér og öðrum á réttum forsendum.”
Kristrún tekur sérstaklega fram að hún skrifi greinina á eigin spýtur og beri alfarið ábyrgð á efni hennar. Hún var aðstoðarkona Ingibjargar Sólrúnar 2007 til 2009 og ráðgjafi Árna Páls Árnasonar, félagsmálaráðherra 2009 til 2010. Þó er ekki ólíklegt að Ingibjörg Sólrún sé að einhverju leyti sammála efni greinarinnar, enda hefur hún margsinnis furðað sig á því að Brussel-viðmiðin hafi ekki verið höfð til grundvallar í samningaviðræðum vorið 2009, eftir að hún dró sig í hlé frá stjórnmálum.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
192 ummæli
Rita ummæli06.02 2010 kl.16:02
Slóð
Sé þetta rétt er ríkisstjórnin fallin.
Sem skiptir í sjálfu sér engu máli.
En það er ekki þar með sagt að Samfylkingin sé stikkfrí.
Og það er heldur ekki gefið að Framsókn og Sjálfstæðismenn eigi að komast að völdum. Þar er all morandi í ótilteknum málum.
06.02 2010 kl.16:04
Slóð
Þessi manneskja hefur engan trúverðugleika, ætti að hafa vit á því að þegja.
06.02 2010 kl.16:05
Slóð
Samfylkingarskútunni snúið við? Allir þingmenn Samfylkingarinnar ætluðu að samþykkja upphaflega “hrikalega” samninginn án þess að lesa hann yfir!
En ekki mun ég kvarta, það mikilvægasta er að forða okkur frá Svavarssáttmálanum og sama er “hvaðan gott kemur” eins og einhver sagði.
06.02 2010 kl.16:06
Slóð
Alveg stórmerkileg grein hjá Kristrúnu. Hvað vakti fyrir Steingrími og Svavari og félögum??? Mér sýnist að við eigum Forsta vorum mikið að þakka að hafa verið á tánum í þessu stórmáli.
06.02 2010 kl.16:07
Slóð
Maður spyr sig óhjákvæmilega hverju Samfylkingin var eiginlega að greiða atkvæði þegar Icesave rúllaði þar í gegn um jólaleitið.
06.02 2010 kl.16:07
Slóð
Júní 2009:
“Indriði Þorláksson og Kristrún Heimisdóttir: við verðum að semja”
http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/indridi-thorlaksson-og-kristrun-heimisdottir-vid-verdum-ad-semja
06.02 2010 kl.16:08
Slóð
Nú er spurning í hvorn fótinn Samfylkingin stígur.
Sé þetta tilfellið að ofan, er greinilega verið að senda VG tóninn svo um munar.
En á sama tíma er flokkurinn að játa á sig....................óðagot.
06.02 2010 kl.16:10
Slóð
langar ISG snúa aftur í pólítík?
06.02 2010 kl.16:10
Slóð
samfylkingarfólk er byrjað að yfirgefa sökkvandi Icesave dallin. Samning sem samfó vildi samþykkja STRAX! á sínum tíma.
06.02 2010 kl.16:10
Slóð
Tja, Kalli.
Áhugavert.
06.02 2010 kl.16:16
Slóð
Kristrún er ekki að tjá sig fyrir samfylkinguna, hún er bara desperat að komast að í fjölmiðlum þar sem hún er einskis metin þar lengur
06.02 2010 kl.16:18
Slóð
Þetta er vanstraustsyfirlýsing á Jóhönnu af konu sem getur ekki beðið eftir því að Samfylkingin leiti til hægri.
06.02 2010 kl.16:23
Slóð
Nú en hvers vegna var Samfó svona æst í að samþykkja þetta?
06.02 2010 kl.16:26
Slóð
Þessi ríkisstjórn getur alveg haldið áfram en Steingrímur á að axla ábyrgð og segja af sér. Hefur gengið um ýmist hótandi samflokksmönnum sínum eða í því að hræða þjóðina.
Jóhanna er bara hugsuð til skammstíma hvort sem er.
Það þarf að fá bestu þingmennina Lilju Mósesdóttir og Ögmund inní ríkisstjórnina í staðinn.
Þetta er góð grein hjá Kristrúnu. Flestir hafa sveiflast til og frá í þessu Icesave máli ekki bara hún og bara virðingarvert hvernig hún lýtur yfir sviðið núna.
Hún er skynsöm.
06.02 2010 kl.16:31
Slóð
Loksins að eitthvað heyrist að viti úr ranni samfylkingar þar sem þögnin hefur einkum rikt. Þetta er afar athyglisverð grein og gagnrýnin í garð fjármálaráðherra - svo mjög að það hlýtur að hafa afleiðingar.
06.02 2010 kl.16:39
Slóð
Sama sagan með samspillinguna ..... við erum altaf saklaus
06.02 2010 kl.16:39
Slóð
Ég hef alltaf haft mikla trú á áð Kristrún viti hvað hún syngur.
Af hverju eru alltaf valdir e-r aular til alls?
Við eigum fullt af velmenntuðu og greindu fólki,
hversvegna er það ekki fengið til að leysa erfið mál?????’
06.02 2010 kl.16:39
Slóð
Þetta er áhugaverð grein sem setur málið í gott samhengi, gott innlegg í komandi kosningabaráttu.
Augljóst er að stjórnin er komin að fótum fram og fer frá fljótlega.
06.02 2010 kl.16:40
Slóð
Lengri útgáfan af ummælum iSG á dögunum.
Ekkert nýtt eða merkilegt.
Ef hún ætlar að segja eitthvað merkilegt - þá verður hún að segja nákvæmlega hvenær og hvernig “Brussel-Viðmiðin” eru uppfyllt viðvíkjandi umræddum lánasamningi - að henar mati.
Þýðir ekkertað koma með langloku, brussel-viðmið, brussel-viðmið - og segja þá ekki nákvælega hvaða nákvæmlega fokking niðurstöðu þau eiga að leiða til.
Brussel viðmiðin;
“1. Ríkisstjórn Íslands hefur átt viðræðufundi með stofnunum Evrópusambandsins og hlutaðeigandi aðildarríkjum þess um skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið að því er tekur til tilskipunar um innstæðutryggingar 94/19/EB. Aðilar komu sér saman um að tilskipunin um innstæðutryggingar hafi verið felld inn í löggjöfina um Evrópska efnahagssvæðið í samræmi við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og gildi því á Íslandi með sama hætti og hún gildir í aðildarríkjum Evrópusambandsins.
2. Viðurkenning allra aðila á þessari lagalegu stöðu greiðir fyrir skjótri niðurstöðu samningaviðræðna þeirra sem nú standa yfir um fjárhagsaðstoð við Ísland, þ.m.t. við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þessar samningaviðræður skulu fara fram með samhæfðum og samræmdum hætti og skal þar tekið tillit til hinna erfiðu og fordæmislausu aðstæðna sem Ísland er í og knýjandi nauðsynjar þess að ákveða ráðstafanir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármála- og efnahagskerfi sitt.
3. Stofnanir Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins munu taka áframhaldandi þátt í þessu ferli sem fer fram í samráði við þær.”
Og náttúrulegaorðhengilsháttur af versta tagi að segja að ísland viðurkenni ekki greisluskildu með Brussel-viðiðunum.
Og jú, lánin voru tekin beisilí 2008.
Það er margyfirlýst af þáverandi sjórnvöldum lánafyrirkomulagið gagnvart B&H.
06.02 2010 kl.16:41
Slóð
Enn og aftur berjast Evrópuandstæðingar gegn hagsmunum Íslendinga.
06.02 2010 kl.16:42
Slóð
Þetta er almenningur búinn að vita í 10 mánuði, þetta er vanhæf ríkisstjórn og hefði betur verið svo að ISG hefði verið fyrir Samfylkingunni (hélt að ég myndi aldrei segja þetta upphátt) en svona er þetta.
Þessi ríkisstjórn á að fara sem fyrst vegna vanhæfis! Hér brennur allt enn og virðist sem ráðamenn séu of margir með eldspýtur.
06.02 2010 kl.16:43
Slóð
Er skipulagt undanhald hafið?
06.02 2010 kl.16:44
Slóð
@ Ómar Kristjánsson
leggja sig....ZZZZzzzzzz þetta bull í þér er verra en hjá Össuri Reykás
06.02 2010 kl.16:47
Slóð
Hvað voru þessir Samspillingar HOTTIN TOTTA á Alþingi að hugsa
Alt fyrir ESB bull.... núna að draga þetta umsóknar-ferli til baka
06.02 2010 kl.16:47
Slóð
Þetta er góð grein og þörf.
En .etta eru hrikalegar upplýsingar fyrir ræikisstjórnina.
Hvaðfær Samfylkinguna til að kyngja gallinu?
Hversu langt ætlar þjóðin að leyfa VG að ganga í öfgum sínum og ofsa?
Mér finnst þessi grein dauðadómur yfir ríkisstjórninni.
Í henni segir beinlínis að hagsmunir þjóðarinnar hafi meðvitað verið fyrir borð bornir vegna pólitísks ofsa.
Hrikalegur dómur yfir þessum stjórnmálamönnum.
06.02 2010 kl.16:51
Slóð
Stjórnin er fallin og kosningabaráttan er að byrja. Næstu vikurnar munu margir sverja af sér alla undirgefni í icesave málinu.
06.02 2010 kl.16:51
Slóð
Enn og aftur kemur í ljós hversu hrikaleg nausynlegt er að þessi ríkisstjórn þjóðníðnga fari frá og leyfi fólki sem er annt um þjóð sína að komast að.
06.02 2010 kl.16:54
Slóð
Kristrún Heimisdóttir reynir að hvítþvo sjálfa sig og Ingibjörgu Sólrúnu vegna mistaka sem gerð voru haustið 2008. Sagan mun á endanum leiða sannleikann í ljós eins og alltaf. Kristrún Heimisdóttir flýr hvorki söguna né sannleikann.
06.02 2010 kl.16:55
Slóð
Kristrún harmar að ESB hafi ekki komið meir að málinu og átelur VG fyrir það.
Staðreyndir er sú að ESB er í krísu út vegna Grikklands, Spánar, Ítlaíu,Portugals og Írlands.
Ísland er ekki ofarlega á þeirra lista í dag.
06.02 2010 kl.16:56
Slóð
Takk fyrir góða grein!
06.02 2010 kl.16:56
Slóð
Hrundraugar upprisnir !
06.02 2010 kl.16:57
Slóð
Hvar er fólk sem er annt um þjóð sína, við sjáum gömlu öflin ,sem fæddust af fyrrverandi ríkisstjórnum , studd á fætur af núverandi ríkisstjórn, hvar er gott fólk að finna...
06.02 2010 kl.16:59
Slóð
Svona skildi Alþingi Brussel-viðmiðin í des. 2008. Samþykkt af yrfirgnæfandi meirihluta alþingis:
“3. Niðurstaða íslenskra stjórnvalda.
Með allt framangreint í huga er það mat ríkisstjórnarinnar að hagsmunum Íslands til lengri tíma litið sé best borgið með því að stjórnvöld styðji við Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta þannig að hann geti staðið straum af þeim kostnaði sem hlýst af því að ábyrgjast lágmarkstryggingu þá sem EES-reglur mæla fyrir um að því marki sem eignir viðkomandi banka standa ekki undir henni. Gert er ráð fyrir því að þau ríki sem hlut eiga að máli muni aðstoða sjóðinn við að standa undir þessu verkefni og það verði í formi lánveitinga viðkomandi ríkja til sjóðsins með ábyrgð íslenska ríkisins. Þær viðræður sem fram undan eru munu skera úr um nánari útfærslu þessara lánveitinga, auk þess sem hin endanlega niðurstaða mun ráðast af því að hve miklu leyti andvirði eigna viðkomandi banka mun renna til sjóðsins við uppgjör á búum þeirra.”
http://www.althingi.is/altext/136/s/0219.html
“þannig að hann geti staðið straum af þeim kostnaði sem hlýst af því að
ábyrgjast lágmarkstryggingu þá sem EES-reglur mæla fyrir um að því marki sem eignir viðkomandi banka standa ekki undir henni.
Gert er ráð fyrir því að þau ríki sem hlut eiga að máli muni aðstoða sjóðinn við að standa undir þessu verkefni
og það verði í formi lánveitinga viðkomandi ríkja til sjóðsins
með ábyrgð íslenska ríkisins.”
Eigum við að ræða þetta eitthvað eða ?!
Geisp.
06.02 2010 kl.17:01
Slóð
Ingibjörg Sólrún og nágrenni að sverja af sér sakir með árás á Steingrím J. -- sem í raun lýsir sárindum í garð Jóhönnu og Össurar. Brussel-viðmiðin frægu voru nýtt til hins ýtrasta í samningagerðinni upphaflegu. Nú þykir Kristrúnu henta að draga fram nokkur atriði samhengislaust í samningnum til að sanna sekt núverandi ríkisstjórnar.
Ekki nýtt -- ekki í alvöru.
06.02 2010 kl.17:02
Slóð
Frábær grein hjá Kristrúnu!
06.02 2010 kl.17:07
Slóð
þörf ábending hjá Kristrúnu. Er ekki kominn tími á þjóðstjórn, stjórn sem rúmar aðeins fólk með góða einkun úr skýrslunni miklu.
06.02 2010 kl.17:09
Slóð
Kristrún,
fín grein,
og loksins kemur einhver úr Samfylkingunni út úr skápnum.
Það var kominn tími til.
06.02 2010 kl.17:17
Slóð
Náhirð Ingibjargar Sólrúnar að reyna að koma sér í stöðu fyrir rannsóknarskýrsluna.Þetta er stærsti vandi samfylkingarinnar þetta fólk
06.02 2010 kl.17:18
Slóð
“utanríkisráðherra (Ingibjörg Sólrún Gísladóttir) (Sf) (andsvar):
Virðulegur forseti. Ég hef nauman tíma til að svara þeim spurningum sem hér komu fram hjá hv. þm. Jóni Bjarnasyni en ég skal reyna eins og ég get að ná því.
Í fyrsta lagi um lánsupphæðirnar þá eru heildarskuldbindingarnar í Bretlandi og Hollandi vegna þessara innlánstrygginga um 625 milljarðar ísl. kr. og heildarskuldbindingar vegna Kaupþings Edge í Þýskalandi eru um 40 milljarðar kr.
Það kom fram á fundi efnahags- og viðskiptanefndar í morgun hjá fulltrúum skilanefndar Landsbankans að heildareignir Landsbankans væru á bilinu 800–1.200 milljarðar kr. og ef við gerum ráð fyrir að það séu um þúsund milljarðar sem Landsbankinn eigi þarna upp í þetta má gera ráð fyrir að það sem falli á ríkið vegna Icesave sé á bilinu 140–160 milljarðar kr. að þessum forsendum gefnum. Það er talið ólíklegt að nokkur skuldbinding falli á ríkissjóð vegna Kaupþings Edge í Þýskalandi vegna þess að talið er að þar geti Kaupþing staðið undir þeim kröfum úr búinu.
Miðað við þessar forsendur, að það séu um þúsund milljarðar sem komi út úr búi Landsbankans upp í þessar kröfur, geta þetta verið á bilinu 140–160 milljarðar. Um lán, kjör, vexti og afborganir er ekki hægt að segja neitt núna. Nú förum við og semjum um þessa hluti, hverjir eru vextirnir og kjörin og afborganirnar, og síðan verður það kynnt með viðeigandi hætti fyrir þinginu þegar niðurstaðan er komin úr því.
Hvað varðar að taka sérstakt tillit til Íslands vegna þeirra aðstæðna sem hér eru uppi þá geri ég ráð fyrir að það sé einmitt í þeim þáttum sem það endurspeglist, hvenær við byrjum að borga af láninu, hverjir verði vextirnir, hver verði kjörin, hvaða endurskoðunarákvæði verði í þessu og annað slíkt, að það sé það sem átt er við”
(alþingi des 2008)
Geisp.
06.02 2010 kl.17:19
Slóð
Stjórnin er sprungin það vita allir. Stefnir í margfallt betri niðurstöðu en ógnarstjórn steina og jóhönnu gömlu bauð uppá. Vantaði ekkert upp á hótanirnar og ólætin og maður bara spyr sig hvað hafi eiginlega verið þeirra agenda í því. Ekki var það hagur íslendinga sem var hugsað um.. ó nei það’ er á hreinu. Burt með landráðsflokkana!!!
06.02 2010 kl.17:21
Slóð
Alltaf finnst mér gaman þegar Sjálfstæðismenn gjamma.
Hversu lengi þeir gjamma og hversu löng og flóking þeirra ræða er
niðurstaðan er alltaf sú sama (við bárum ekk ábyrgð á neitt á neinu, við neitum að viðurkenna okkar “mistök” og við erum best flottust og fáum alltaf kúlulán. Og skítt með almenninginn. Og þetta eru heiðvirtir sjallar í hnotskurn.
Eitt orð Twats.
06.02 2010 kl.17:23
Slóð
Ég sem almennur borgar semi KREFST réttlætis
Ekki á morgun heldur NÚNA
Landráðamenn BEWARE
06.02 2010 kl.17:24
Slóð
Ómar....geisp!
06.02 2010 kl.17:25
Slóð
Mér finnst þetta svo undarlegt innlegg hjá Kristrúnu og á augljóslega á skjön við veruleikann - að manni dettur óneitanlega í hug að sumir og sumir komi ekkert vel út í væntanlegri Hrunskýrslu og helst beri að líta á langloku þessa hjá henni í því samhengi (eins og bent er á hér framar)
En sjáum til.
06.02 2010 kl.17:27
Slóð
Takk fyrir góða grein! Mjög upplýsandi og komin tími á Samfylkingin komi í lið með þjóðinni
06.02 2010 kl.17:33
Slóð
Hver væri niðurstða og greiðslufyrirkomulag umrædds lánasamnings - þ.e. ef “Brussel-Viðmiðunum” væri beitt (já þessum sem gleymdist að taka með í rekninginn eða að SJS stakk “viljandi undir stól)
Hvernig væri samningrinn þá ?
Svar óskast - sent einkamál.
(Þetta er með vitlausustu greinum sem maður hefur séð - og fannst manni nóg af vitleysu fyrir viðíkjandi lánasamningnum)
06.02 2010 kl.17:35
Slóð
Flott grein hjá Kristrúnu.
Að öðru, er ÓK eitthvað sjálfvirkt forrit sem fer í gang hvenær sem einhver skrifar Icesafe eða ætli þetta sé einhver lifandi einstaklingur?
Hehe djöfull er maðurinn leiðinlegur.
En svo er alltaf mögulegt að náunginn sé svona stórsnjall andstæðingur Icesafe.
Ég meina hvað ætli margir sem voru óákveðnir séu núna ákveðnir í að segja nei bara vegna skrifa Ómars.
Ef svo er þá tek ég hatt minn ofan.
06.02 2010 kl.17:38
Slóð
Kristrún Heimisdóttir, það er ástæða til að þakka þér fyrir þessa grein
sem þú birtir. Ég trúi því að ef öllum stjórnmálaflokkunum tekst að
sameinast til að taka sameiginlega til varna, fyrir Íslands hönd þá sé miklu áorkað, ekki bara í þessu Icesave - máli, heldur í viðreisn þjóðarinnar.
HAFÐU ÞÖKK FYRIR HREINSKILNINA.
06.02 2010 kl.17:39
Slóð
Góður Jósi :)
06.02 2010 kl.17:43
Slóð
Jósi,
Snjall ertu, þú hefur “fattað” okkar leynivopn! Ómar hefur verið okkur Icesave andstæðingum afar hjálplegur. Megi hann tjá sig sem oft og mikið.
06.02 2010 kl.17:45
Slóð
Það verður kosið í byrjun mars. Forsetinn neitaði að staðfesta lögin sem alþingi samþykkti. Hvernig getur samfylkingarálftin Kristrún Heimsdóttir sagt að einhver lög sem flokkurinn hennar átti stærstan þátt í að samþykkja á alþingi séu fallin úr gildi? Það eina sem getur fellt þau úr gildi er ef þjíðin segir NEI í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Alþingi getur ekki samþykkt einhver lög, en komið svo nokkrum dögum síðar með eitthvað hókus pókus og sagt að lögin sem er nýbúið að samþykkja séu ekki í gildi lengur.
Er þá hægt að gera slíkt hið sama með t.d. fjárlögin? segja bara að þau lög séu ekki lengur í gildi þegar menn eru komnir framyfir?
Kristrún er jafn rugluð og maður hélt hana vera.
06.02 2010 kl.17:47
Slóð
Vendamálið með margt fólk sem er að srifa hérna er að það er ófært um að kynna sér grunnstaðreyndir máls - líklega vegna heimsku.
Og þessvegna fer það auðvitað í mega fýlu þegar eg, almúgamaðurinn, held hérna stareyndum varðandi efni máls til haga.
Hér að ofan sýni eg framá, á afar nettann og hnitmiðiðan hátt, hve arfavitlaus grein Kristrúnar er og ennfremur hve laus langlokan er úr tengslum við raunveruleikann - meir að segja alveg laus úr tengslum við orð og skilning fv. Utanríkisráðherra á svokölluðum Brusselviðmiðu, sem Kristrún var nú aðstoðamaður hjá !
Þýðir ekkert að fara í fýlu við mig.
Eg geri ekkert annað en að benda á staðreyndir og halda þeim til haga. Allt og sumt.
06.02 2010 kl.17:52
Slóð
Það sem legið hefur undir pilsfaldi ISG er ekki sérlega trúverðugt.
06.02 2010 kl.17:55
Slóð
Ég hlæ þegar fólk talar um að þessi ríkisstjórn sé fallin...
Hún er búin að vera á botninum allan tímann... hvert ætti hún að falla?
06.02 2010 kl.17:56
Slóð
@Ómar
Þegar fíflunum fjölgar í kringum þig...
... þá er kominn tími til að líta í eigin barm.
06.02 2010 kl.17:57
Slóð
Hver voru annars Brussel viðmiðin Ómar?
Þú sem heldur öllum staðreindum til haga...
06.02 2010 kl.18:01
Slóð
Íslensk stjórnmál eru samansafn að hrokafullum amatörum sem telja flokkskírteinin sín allt sem þurfa þarf leitt að þessi manneskja hafi ekki sett fram þessa hlið á umræðunni sem virðast skynsamleg.En gætum okkar á fólki sem vill umskrifa söguna
06.02 2010 kl.18:03
Slóð
Varðandi atkvæðagreiðslu sérstaklega (sem mér hefur nú alltaf fundist frekar ólíklegt að fari fram) þá gæti mér ekki verið meira sama hvort fólk samþykkir eður ei. Get reyna ekki ímyndað mér að margir geri sér ferð til að fara að kjósa um mál sem það getur engu ráðið um - en það er svo sem annað mál og ótrúlegt hverju fólki dettur í hug.
Umrædd skuld gufar ekkert upp þó fólk felli einhver lög í atkvæðagreiðslu. Skuldin verður þarna eftir sem áður.
Og skaðinn sem sjallar, framarar, indefens og almennir öfgarugludallar hafa þegar valdið, skaði sem reiknast 75 milljarðar á mánuði, er svo mikill að má segja að skipti ekki máli um 2-3 mán. til eða frá eða að fólk ákveði að klára ekki málið í dag eða á morgun Skiptir ekki öllu.
Það sem skiptir máli er að skaðinn er nú þegar orðinn stærri en icesaveskuldin og þegar upp er staðið líklega nokkrar icesaveskuldir.
06.02 2010 kl.18:03
Slóð
Rréttlæti
Það er það sem máið snýst um
Réttlætið mun SIGRA að lokum
06.02 2010 kl.18:08
Slóð
Ertu að tala við sjálfan þig Ómar?
06.02 2010 kl.18:09
Slóð
Lífið kemur manni alltaf á óvart. Þetta er óvænt en vissulega ánægjulegt útspil frá Samfylkingunni. Hvar hefur þetta ágæta fólk verið undanfarna mánuði meðan Svavarsmenn unnu landi og þjóð ógagn? Eða er þetta pólitísk leikflétta annars stjórnarflokksins þegar öll sund eru að lokast? Dýrmætur tími hefur glatast og það skrifast á ábyrgð ríkisstjórnarinnar. Hefði ekki verið ráð að stoppa þessa vitleysu fyrr hjá Svavari og Steingrími J.?
Spyr sá sem ekki veit.
06.02 2010 kl.18:12
Slóð
Bullari “Ómar Kristjánsson” skammastu þín
Hafðu þig nú í það að lesa lögin 98/1999 um tryggingasjóðinn ofl., þar segir t.d. í 3ju grein hverjir eru aðilar sjóðsins. - Ríkissjóður ber ekki ábyrgð á einkabönkum.
Það er óþolandi að svona “bullukollur” eins og þú látir “ljós” sitt skína án þess hafa nokkra hugmynd um löglegan grunn máls.
06.02 2010 kl.18:13
Slóð
Ef fólk heldur að Samfylkingin sem flokkur sé komin í lið með þjóðinni, þá er það misskilningur.
Það eru einungis Ingibjörg Sólrún sem á heiður af því og Kristín vinkona hennar styður hana og á ISG heiður skilinn fyrir það, ekki þrjóska sem stýrir henni lengur.
Ráðamenn Samfylkingarinnar hafa ekki séð sannleikann í málinu sbr. Árni Páll, Jóhanna, Össur, Katrín....
06.02 2010 kl.18:15
Slóð
Enn einu sinni er Samf. orðin hrein mey
06.02 2010 kl.18:16
Slóð
@Barrtster.
Lestu bara það sem Ómar skrifaði, þá sérðu hver Brusselviðmiðin eru.
Hann hefur sett inn ræður þeirra sem hafa tjáð sig um þau viðmið á þingi.
Grein Kristrúnar er hörmungn ein.
06.02 2010 kl.18:19
Slóð
Fréttablaðið er annt um atvinnulausa yfirburðamenn í dag. Fyrst birtist grein Kristrúnar sem ber merki um lögfræðing í leit að verkefnum eða nýju starfi. Fátt eitt nýtt þar annað en eftirvænting um ESB. Síðan kemur forvitnilegt viðtal við Þóru Tómasdóttur úr Kastljósinu. Með sína fallegu norsku var hún ekki lengi að finna draumastarfið í Ósló. Mikill missir af henni.
Gunnar Sigurðsson leikstjóri prýðir næstu síðu. Maðurinn sem kann að rífa kjaft að eigin sögn hefði betur farið í framboð fyrir Borgarahreyfinguna. Þráinn og Gunnar hefðu sómt sér vel saman, tveir með alskegg. Sitjandi í sölum Alþingis að deyja úr leiðindum? Margir listamenn hafa farið í kvikmyndagerð af hugsjón en komast síðan að því að það er dýrt ævintýri. Þingmannsstarfið í auðmýkt líklega áhættuminna?
Nú vantar bara að Fréttablaðið birti viðtal við Ingibjörgu Sólrúnu og upplýsi hvernig henni hafi gengið að fá vinnu í Mið-Evrópu. Auðsjáanlegt er að litla Ísland hefur ekki störf fyrir allt þetta hæfileikafólk þegar harðnar á dalnum. Kraftmikið fólk sem við höfum varla efni á að missa.
06.02 2010 kl.18:26
Slóð
Samfylking
Sjálfstæðisflokkur
Framsókn
Hreifingin
Borgarahreyfingin
Þetta eru öflin sem hafa stjórnað lífi okkar
Ég krefst þess að verða laus undan áhrifavaldi þessara
flokka
Íslendingar erum við menn eða mýs???????????????????????????????
06.02 2010 kl.18:28
Slóð
Afar góð grein hjá Kristrúnu.
Samlíking Ingibjargar Sólrúnar var líka nokkuð góð. Þegar kviknaði í hús nágranna Breta - þá mættu þeir keikir þegar bardaginn var hvað tvísýnsastur við bálið - og helltu bensíni á bálið.
Annað.
Ofboðslega getur einn maður bullað mikið um eitt mál á mörgum þráðum. Þessi Ómar Kristjánsson er ótrúlegur. Bullar og bullar og bullar...
Nú kostar 75 milljarða (!!) á mánuði að taka ekki á sig nokkur hundruð milljarða skuld..!
Geisp.
06.02 2010 kl.18:31
Slóð
hann Ómar á bágt....zzzzzz
06.02 2010 kl.18:38
Slóð
gbald: sammala. burtu med alla thessa flokka sem allir med tolu hafa med andvaraleysi, heimsku og/eda serhagsmunapolitik fyrir sig og sina hafa att storan thatt i nuverandi stodu. Eyjamenn eiga ad syna samstodu um ad hreinsa raekilega til a islandi thvi ef thessi flokkar sem nu mynda rikisstjornina fara fra, hvad tekur tha vid? Bjarni bofi og framsoknarmenn aftur? Thad er enginn valkostur annar en hreint bord, flokkar og einstaklingar sem hafa ekki verid i thessu rugli og bera hagsmuna islendinga fyrir brjosti. Afram ISLAND.
06.02 2010 kl.18:45
Slóð
Mikið væri það nú fínt að þessi grein væri fyrirboði um stjórnarslit.
Þá á Ísland von úr volæðinu og vitleysunni.
Það að aðilar Samfylkingarinnar viðurkenni hræðilegheitin ekki fyrr en nú, er þó ekki merki um hugrekki eða heilindi. En miklu hefur herra Ólafur bjargað með því að vísa ósköpunum til þjóðarkosningar.
Vonandi fer Ómar K í frí eins og Jóhanna. Og það lengi.
06.02 2010 kl.18:47
Slóð
Já hann er grunnhygginn hann Ómar Kristjánsson og ekki bara á flæðiskeri staddur, heldur er vilji hans sá sami og samfylkingarinnar að selja sál þjóðarinnar fyrir skuld sem er ekki okkar að borga samkvæmt ákvæði Directive 94/19/EC.
Ásettningur hans Óskars er engu síðri enn kommanna gagnvart þjóðinni.
06.02 2010 kl.18:57
Slóð
@Ómar
Hver voru annars Brussel viðmiðin Ómar?
Þú sem heldur öllum staðreindum til haga...
Skaðinn af töf er miðaður við vextina í þeim samningi, sem hvort sem er miðar að því að ekkert verði rgreitt fyrr en hvað... 2012 lengra inn í framtíðina.
Betri samningur = lægri vextir = minni kostnaður.
Enginn aukreitis kostnaður hefur hlotist af þessari töf, annar en sá að Ómar hefur komið fleiri orðum á netið, mér verður alltaf jafn illt í augunum þegar ég les þetta bull hans.
+ Ef ég hitti fólk á förnum vegi sem heitir Ómar þá stend ég mig að því að vera kominn með fordóma...
Skelfilegt hvernig einn Ómar getur skemmt fyrir þeim öllum...
06.02 2010 kl.18:58
Slóð
Ómar “Hrannar” Kristjánsson er nákvæmlega eins og Dúdda Bei. Nær varla að slá in eina lína án þess að allt er sett á hvolfi. Öfugmælaskrif eins og þau gerast spauglegust. Frábært efni í uppistandara. Dúddi er grínari af guðs náð og snéri út úr öllum málum sem meintur “Sjálfstæðismaður” og nuddaði salti í sár flokksins. Nákvæmlega eins og Ómar “Hrannar” Kristjánsson gerir til að velta Samfylkingunni upp úr beittasta og sérlega óvænu háði vegna þeirra ótrúlega lánleysis í stjórnunartilburðum og pólitík yfirleitt. Hafi hann hinar mestu og bestu þakkir fyrir að gera svona frábært grín að stjórnarflokkunum og sér í lagi ríkisstjórninni? Þeir og hún eiga það svo sannarlega skilið.
Greinin er frábær hjá Kristrúnu. hafi hún líka bestu þakkir fyrir.
06.02 2010 kl.19:00
Slóð
Það eru komni alvarlegir brestir í samstöðu samfó. Þessi grein er einn ánginn af því. Nú vilja sumir þar inni firra sig frá stefnu samfó í Icesave.
ESB málið er einnig í erfiðri stöðu og raunsætt mat segir að útilokað er að fara þangað inn á næstu áratugum.
06.02 2010 kl.19:01
Slóð
Ein spurning til allra þeirra sem skilja eftir comments á Eyjan.is
Hvernig stendur á því að við getum ekki staðið saman sem þjóð
þegar vá steðjar að
Ef við getum ekki sýnt samstöðu undir þessum krintgumstæðum eigum við þá skilið að vera ÞJÓÐ
06.02 2010 kl.19:04
Slóð
Það er enginn flokkur á Íslandi sem kann eins vel og samfylkingin að haga seglum eftir vindi. Þeir kalla þetta samræðustjórnmál. Aðrir kalla það spuna og flokkinn kalla sumir fyrir spunakonurnar. Þetta eru hagsýnar húmæður sem helst eiga viðskipti við Bonus.
Það hættulega við flokkin er að þeir minna óþægilega mikið á gömlu nasistana í aðdáun sinni á reglum, regluverkum, tilskipunum, “faglegum vinnubrögðum” og draumum um sameinaða evrópu. Það er til hugahægðar að þeir hafa enga hugsjón og þess vegna hættulausir.
Spurning sem vaknar eftir lestur greinarinnar að ofan er hvort þetta séu ekki upplýsingar sem liggja hefðu átt fyrir í sumar er leið. Það hefði verið gott fyrir þingheim að leggja þessa grein til grundvallar samstarfi sem hefði getað endað 63-0. Það voru hæg heimatökin þar eð forsætisráðherra er úr samfylkingunni. Samfylkingin er oft gleyminn á það þegar hun er í stjórn. Brengluð sjálfsmyndin lætur altaf í það skína að hún sé í stjórnarandstöðu.
06.02 2010 kl.19:10
Slóð
Okkar trygingasjóðir eiga ekki að borga þettu heldur tryggingasjóðr Bretanna.
Bankarnir voru útibú (branch)Landsbankans innan EU landanna og því alfarið á ábyrgð Bretanna og Hollendinga samkvæmt lögum landa sem eru innan svæðis EEA/EFTA.
Ef um höfuðbanka (head office) Landsbankans innan EU landanna hefði verið að ræða þá hefðu tryggingasjóðir okkar þurft að borga þetta enn ekki ríkið.
Það þarf að berja þetta inn í þessa kommunista og sjá til þess að þau komist aldrei til valda aftur þessir þjóðfélags nýðingar.
06.02 2010 kl.19:13
Slóð
Ath. bankarnir á Íslandi féllu fyrstir í Evrópu í kjölfar falls Lehmans og þá var ekki mikill skilningur á vanda Íslands, nú hefur vandinn aukist í mörgum nágrannalöndum og þá er okkur sýndur meiri skilningur á þessum mikla vanda hjá örþjóð. Því er ástæðulaust af Sjálfstæðismönnum að vera að hreykja sér, þeirra flokkur kolféll á prófinu, þegar hrunið varð!
06.02 2010 kl.19:15
Slóð
Nú er Ómar á kafi í að finna einhver svakaleg spuna svör við öllum athugasemdunum gegn honum hérna og ef hann fer í strand, þá breitir hann um nafn og kemur inn sem Jón Fríman.
06.02 2010 kl.19:19
Slóð
Góð grein að mörgu leiti, en Samfylkingin getur ekki firrt sig allri ábyrgð þrátt fyrir að bæjarstjórnarkosningar séu á næsta leiti. Því verður ekki breytt að allir þingmenn Samfylkingarinnar greiddu atkvæði með ice-save nauðarsamkomulaginu. Þjóðin er farin að sjá í gegnum þessa póltitíska leiki.
06.02 2010 kl.19:23
Slóð
Farsinn verður alltaf meiri og meiri. Samspilling þvingar Steingrím og félaga til að samþykkja icesave, etur þeim á foraðið og afneitar þeim svo.
Hvað þarf eiginlega að vera mikið fífl til að standa með þessum flokki?
06.02 2010 kl.19:23
Slóð
Umsamin viðmið 14. nóvember 2008.
Þegar Íslendingar höfðu gefið gerðardómsleiðina upp á bátinn jókst til muna þrýstingur á að semja um lyktir Icesave-málsins. 14. nóvember 2008, að undirlagi Frakka, sem fóru með formennsku í ESB, var haldinn fundur með Bretum og Hollendingum þar sem aðilar sömdu um viðmið sem ganga ætti út frá við samningagerðina. Í þeim var m.a. skýrt kveðið á um að taka ætti tillit til hinna erfiðu og fordæmislausu aðstæðna sem Ísland væri í og knýjandi nauðsynjar þess að ákveða ráðstafanir sem gerðu Íslandi kleift að endurreisa fjármála- og efnahagskerfi sitt. Þessi umsömdu viðmið hafa m.a. verið kölluð Brussel-viðmiðin og eru svona í heild sinni:
1. Ríkisstjórn Íslands hefur átt viðræðufundi með stofnunum Evrópusambandsins og hlutaðeigandi aðildarríkjum þess um skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið að því er tekur til tilskipunar um innistæðutryggingar 94/14/EB. Aðilar komu sér saman um að tilskipunin um innistæðutryggingar hafi verið felld inn í löggjöfina um Evrópska efnahagssvæðið í samræmi við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og gildi því á Íslandi með sama hætti og hún gildir í aðildarríkjum Evrópusambandsins.
2. Viðurkenning allra aðila á þessari lagalegu stöðu greiðir fyrir skjótri niðurstöðu þeirra samningaviðræðna sem nú standa yfir um fjárhagsaðstoð við Ísland, þ.m.t. við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þessar samningaviðræður skulu fara fram með samhæfðum og samræmdum hætti og skal þar tekið tillit til hinna erfiðu og fordæmislausu aðstæðna sem Ísland er í og knýjandi nauðsynjar þess að ákveða ráðstafanir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármála- og efnahagskerfi sitt.
3. Stofnanir Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins munu taka áframhaldandi þátt í þessu ferli sem fer fram í samráði við þær.“
Að í orðunum „með samhæfðum og samræmdum hætti“ í 1. lið og í ákvæði 3. liðar felist ótvíræð skírskotun til þess að líta megi á viðfangsefni samningaviðræðnanna sem sameiginlegt vandamál er varði ekki aðeins ríkin þrjú heldur einnig stofnanir ESB og EES og önnur ríki innan vébanda þeirra, sbr. 3. tölul. hinna umsömdu viðmiða.
Öllum ætti að vera ljóst að liðir 2 og 3 hafa af einhverjum undarlegum ástæðum ekki verið virtir, og þá má ganga út frá því sem vísu að samninganefnd stjórnvalda hafi þá ekki viljað nýta sér þá. Hvers vegna verður að rannsaka af rannsóknarnefnd eins og alla Icesave göngu núverandi valdhafa. Það sem bendir til að íslens stjórnvöld hafi gert einhver dularfullan samning um að ekki yrði krafist fullnustu þessara liða kemur skýrt fram að í Icsave samningunum er tekið skýrt fram að Íslendingar viðurkenni að Brussel viðmiðin hafi verið virt að öllu, og að ekki verði möguleiki á að höfða mál síðar um að svo hafi ekki verið gert.
Getur hagsmunagæsla Steingríms J. og Jóhönnu fyrir Breta og Hollendinga og markviss vinna þeirra gegn hagsmunum sinnar eigin þjóðar verið skýrari? Og svo eru sumir að gráta það að talað er um að það þurfi að skoða stjórnarskrá vel um skyldur ráðherra og embættismanna og þá sérstaklega lagagreinar sem fjalla um landráð.
06.02 2010 kl.19:35
Slóð
Það var sniðugt að send gamla STASI-kommúnista, Svava og Indriða sem aðalsamningamenn okkar, yes!!
Svavar útúr mareneraður eftur koktelboð sl. 10 ára og Indriði útbrunnin og afdankaður embættis-besservisser.
Segðu.
06.02 2010 kl.19:38
Slóð
Eftir að hafa lesið yfir comments á þessari vefsíðu
fyllist ég vonleysi og bendi á þessa síðu
ER RJÚPNASTOFNIN Í RAUNVERULEGRI HÆTTTU???????
http://www.ellingsen.is/verslun/vorur/flokkur/8310/vara/42734
06.02 2010 kl.19:39
Slóð
Og hvað svo eftir öll stóryrðin? Ekki veit ég um hvað er kosið.Já eða nei við hverju?
06.02 2010 kl.19:41
Slóð
Æ... hafið ekki áhyggjur af Ómari. Hann breytir sinni skoðun um leið og stjórn Samspillingar.
Annars er Samspillingin komin út í horn í IceSlave málinu, og ég efa ekki að spunakarlarnir eru að leita að leið út.
Grein Kristrúnar gæti verið fyrsta skrefið. Að kenna Svavari alfarið um, og láta hann taka höggið. Auðvitað er farið varfærnislega út í þetta, til að styggja VG ekki of mikið.
Jóhanna hefur svo sem viðurkennt að Svavar (og VG) hafi gert mistök. Því er þess skammt að bíða að þetta verði viðtekin skoðun Samspillingar.
Hvernig Samspillingunni tekst að forðast umræður um offorsið og ofstækið í þeirri kröfu að landsmenn kyngdu IceSlave samningunum er svo annað mál.
Ég efast um að þeir séu margir Íslendingarnir sem kokgleypa þessi umskipti. Næstu mánuðir verða þvi flokknum erfiðir.
06.02 2010 kl.19:42
Slóð
Milli þingmanna gengur Indriði undir nafninu “ALFRÆÐINGURINN” vegna óvenjulegra hæfileika sína.
Sagan segir að hann er fyrirmyndin af Georgi Bjarnfreðarsyni.
06.02 2010 kl.19:42
Slóð
Tvær konur eru í afneitun og reyna fimm mínútur fyrir skýrslu að fría sig allri ábyrgð og kenna öðrum um. Þá stökkva allir á þennan nýja vagn og hafa fundið Messías. Úthrópa allir sem einn þann sem reynir að benda á staðreyndir málsins. Í Bláskjá er á sama tíma “fréttamaður” búinn að kasta öllu objektivítyi og setur sitt persónulega skítkast í Fjármálaráðherra inn í frétt.
Ekki vildi ég eiga viðskipti við menn sem ekki efna gefin loforð né borga sínar skuldir.
Hér blogga margir óreiðumenn þ.e. menn sem ekki vilja borga skuldir sínar. Kannski er það bara í takt við annað í þessu þjóðfélagi. Hér stunda bisnessmenn kennitöluflakk, og aðra slíka gjörninga sem ekki líðast í siðmenntuðum löndum. Nú svíður mikið að útlenskir vilja ekki bekenna slíkar aðfarir svo mjög að siðmenntaðir Íslendingar eru úthrópaðir svikarar þegar þeir predika ný og betri gildi í samskiptum milli landa.
Hvar eru þeir félagar Abott og Costello? Er það þeim sæmandi að beita fyrir sig saklausu fólki?
Afhverju lesið þið ekki leiðarann í Fréttablaðinu í dag og ræðið hann í ykkar hóp og reynið að skilja hann?
06.02 2010 kl.19:45
Slóð
Viltu borga helvítið þitt?Ofcours not.Og hvað svo?Var þetta allt saman Svavari að kenna.? Sennilega endar það allt með því.Hinir sem voru við stjórnvöldin telja sig sava núna.Það eru allir búnir að gleyma.Já góðir Íslendingar þetta var allt saman Svavari og Indraði að kenna.
06.02 2010 kl.19:52
Slóð
Íslendingar eru heillum horfnir í vitleysunni.þetta er allsaman Svafari og Indriða að kenna.Örbyrgð, fátækt.Hvað voru mennirnir að hugsa.Láta plata sig svona svakalega?Geir var búinn að ná svona rosalega góðum samning.Svo koma þessir menn.Og allt varð vitlaust.Athverju fór Geir? hugsiðu ykkur Ísland núna.Iceave væri ekki til.En svo komu þeir Svavar og Indriði og færðu okkur þessa böl
06.02 2010 kl.19:58
Slóð
Hafiði skömm fyrir Íslendingar fyrir að kenna sendiboðanum um ófarirnar.Hver er skömmin mest?
06.02 2010 kl.20:00
Slóð
@birgir
Hverjum er þetta að kenna??????
Hverjum það er að kenna skiptir ekki máli
Það sem skiptir máli er hvernig við
dealum with the realty
það eru engvir sökudólgar ef they remain true to ICELAND
06.02 2010 kl.20:04
Slóð
Loksins þorir einhver að stíga fram og segja sannleikann:
KEISARINN ER NAKINN!
06.02 2010 kl.20:05
Slóð
Rétt Gbald.En við erum allir Íslendingar.þetta kemur Stasí ekkert við.
06.02 2010 kl.20:06
Slóð
eyjan endurspeglar mjog brenglad, gamalt island thar sem eina sem skiptir mali er ad koma sinu spilltu flokkum ad, theim flokkum sem komu okkur i thessa stodu. sennilega sama folkid og kaupir enntha moggann. ef eyju kommentarar endurspegla thjodina tha a hun enga von.
06.02 2010 kl.20:11
Slóð
Eg er alvet viss um að Svavar og Indriði voru að gera sitt besta.Og ég er alveg viss líka að Geir reyndi sitt besta.Við eigum ekki að vera að ásaka endalaust.þetta er svakalegt vandræða mál.Og margir vilja ná sér niðri á andstæðingnum pólítiskt.En við verðum að halda haus og hugsa skynsamlega og vera allir sem einn Íslendingar.Það er engum að kenna og enginn á að græða á því ef lausnin verður Íslandi í hag
06.02 2010 kl.20:24
Slóð
Má vera að allir þessir sem komu að hafi verið að reyna gera sitt besta. En það er víðsfærri að vera nóg og hvað þá afsökun. En að vera svo úti á túni að láta sér detta það í hug að þeir ættu yfirleitt að taka að sér verkefnið að reyna, er full ástæða að til að lemja á þeim og öðrum sem að því komu. Flestir þekkja sín takmörk. Það gera þessir aðilar augljóslega ekki. Þess vegna eru þeir og svo margir fúskarar í efstu stigum stjórnkerfisins, þjóðfélaginu stórhættulegir. Því fór sem fór.
06.02 2010 kl.20:26
Slóð
Ég nenni ekki að lesa þessa langloku alla en ætla að geta mér til um að innihaldið sé ræða ættuð frá Ingibjörgu Sólrúnu til varnar umsókn í ESB. Skelfilegt að stjórnarliði skuli vera að henda framan í þjóðina einhverju sem hún telur sig hafa vitað allan tímann sem liðinn er frá haustdögum 2008. Er ekki komkinn tími til að hluti af þessu liði taki upp veskið og borgi laun allra þessara samninganefnda sem haldið hefur verið úti að þarflausu ef marka má orð pistlishöfundar.
06.02 2010 kl.20:37
Slóð
@birgir
You are totally missing the point
Þetta mál snýst um miklu meira en Geir loosing face over his preformance
í þessu sestaka máli
Þetta snýst um Island
Hvenær hætta menn að hugsa fyrst um flokkin
síðan um sig
OG SíÐAN UM ICELAND
06.02 2010 kl.20:41
Slóð
Aldrei inn í E.S.B.
06.02 2010 kl.21:03
Slóð
Icesave er ekki Svavari að kenna. Og ekki Indriða. Fjarri því.
Svavar tók að sér erfitt verkefni og leysti það á þann hátt sem hann gat best miðað við þau fyrirmæli sem hann fékk frá íslenskum stjórnvöldum.
Hann var langt frá því að vera rétti maðurinn í verkið - en það voru mistök þess sem réð hann til starfans.
Það er rétt að Sjálfstæðisflokkurinn hefur lítið til að monta sig yfir þegar kemur að Icesave.
En framganga Steingríms J með Icesave er með hreinum ólíkindum. Henni hefði ekki verið trúað að óreyndu.
Sjálfsmynd Íslendinga beið hnekki í bankahruninu. Steingrímur fékk þá sjálfsmynd í arf frá fyrri ríkisstjórn - og verður ekki um hana kennt.
En sjálfsmyndinin er í algjörum molum eftir eitt ár af Steingrími. Að fylgjast með nágrönnum sínum handrukka sig - með því að neita um aðstoð alþjóðlegra stofnanna og úrskurð dómsstóla á einhverjum ótrúlegasta nauðungarsamningi allra tíma - er meira en nokkur sjálfsmynd nokkurrar þjóðar þolir.
Og Steingrímur, í stað þess að vera sverð og skjöldur þeirrar þjóðar sem hann er í vinnu hjá, hefur kosið að tala máli handrukkaranna - daginn út og daginn inn.
Íslendingar eigi þetta bara skilið..., þeir bera ábyrgðina..., samningurinn sé mjög góður... og forsetinn og þjóðin á villigötum..
Nú er hans pólitíska staða þannig að betri Icesave samningur þýðir að hann er út úr pólitík. Atvinnulaus!
Skelfileg staða fyrir íslenska þjóð að hafa fjármálaráðherra sem þolir ekki betri kjör en afarkjörin sem hann er búinn að blessa með öllu sínu pólitíska kapitali.
Catch 22
06.02 2010 kl.21:05
Slóð
Afhverju tala sumir ófróðir um að það sé að tala um að vilja ekki borga?
Það er mjög líklegt að það sé ekki lagaleg stoð um að við eigum að borga neitt af þessum samkvæmt reglum EEA/EFTA.
06.02 2010 kl.21:08
Slóð
Hvernig getur stjórnin réttlætt að samþykkja lög um greiðslur á þessari skuldbindiningu, en koma svo nokkrum dögum síðar og segjast geta komið með mun betri samning en stjórnin var að samþykkja? Er ekki fullkomið ósamræmi í þessu?
Þeir sem hafa alltaf talið að íslenska þjóðin eigi ekki að borga skuldir annara, og senda eigi þetta mál fyrir dómstóla og fá úr þessu skorið hljóta að verða ofan á.
Fyrst verður þess vegna að fella þessi lög í þjóðaratkvæðagreiðslu, helst með miklum mun. Þá mun stjórnin þurfa að segja sig þessu máli, segja af sér.
Í framhaldinu verður svo mynduð utanþingstjórn.
Þetta myndi gefa stjórnmálaflokkunum kærkomið tækifæri til að losa sig við alla þessa kjána sem enn eru inni á þingi og hafa talað út og suður.
06.02 2010 kl.21:15
Slóð
Comon....alltaf góður :)
06.02 2010 kl.21:28
Slóð
Áhugaverð grein.
Ekki oft sem manni finnst nýr flötur koma upp í þessu máli.
En væri gott að fá betri skilgreiningu á þessum Brussel-markmiðum.
06.02 2010 kl.21:34
Slóð
Í innleggi kl. 19. 23 eru Brussel viðmiðin birt.
06.02 2010 kl.21:38
Slóð
Skv. mörgum þá getur enginn sem er í samfylkingunni skrifað eða sagt neitt, nema að það sé komið frá SAMFYLKINGUNNI. Fólk í þeim flokki getur samkvæmt þessu ekki haft eigin skoðanir. Ótrúlegt að leggja málin svona upp. Hvað með það, þá er þetta fín grein hjá Kristrúnu, og hún virðist vera mjög vandlega unnin, ólíkt skoðunum sem margir hér kasta fram.
06.02 2010 kl.21:42
Slóð
Samfylkingin hékk í sjálfdauðri ríkisstjórn Geirs Haarde í von um að væntanlegur landsfundur Sjálfstæðismanna myndi snúast á evrópsku hliðina, þá rennblautu hlið Samfylkingarinnar. Þeim varð ekki kápan úr því klæðinu þá og rifin eru klæði þeirra nú.
Nú ætlar Ingibjargar-armurinn að reyna að snúa Icesave-hneykslinu sér í hag, þegar einsýnt er orðið að dagar þessarar ríkisstjórnar eru taldir vegna getuleysis í málefnum heimilanna og vanefnda á öllum lýðræðisumbótum sem þau lofuðu í aðdraganda kosninganna.
Kristrúnu er rökföst og mælist í sjálfu sér ágætlega, EN hvar var hún og félagar hennar úr Samfylkingunni þegar maður gekk undir manns hönd að svíkja þjóðina í hendur kúgurum sínum? Hvar voru samflokksmenn hennar við umræðurnar á Alþingi og í atkvæðagreiðslunni 30 desember 2009? http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item319047/
Látum ekki blekkjast af fölskum fagurgala og segjum NEI í þjóðaratkvæðagreiðslunni, þ.e. ef Samfylkingin og Vinstri grænir verða ekki búin að svíkja það af þjóðinni líka!
06.02 2010 kl.21:44
Slóð
Mikið leiðist mér illmælgi sumra í garð manna og kvenna sem gera sem best þau vita. Allir gera mistök og skiptir þá litlu máli hvar í flokki þeir standa. Þótt ég hafi ekki mikið dálæti á Svavari og Steingrími eða vinstri mönnum yfirleitt færi betur á því að temja sér smá kurteisi. Verkefnin eru ærin og við gerðum betur að reyna að takmarka skaða íslands heldur en að rífast um hvort fulltrúar okkar hafi einhver annarleg sjónarmið við vinnu sína.
06.02 2010 kl.21:54
Slóð
Takk kærlega, Gunnar.
Varð nú soldið skúffuð samt, hélt að meira kjöt væri á þessum markmiðum.
Sé ekki alveg ap þetta skipti sköpum.
En sossum ljóst að fyrri ríkisstjórn hefur unnið talsvert nánar með ESB en núverandi gerir. Þar kemur ábyggilega til að Steingrímur og VG eru auðvitað ekki sérlega ástfangnir af því liði.
06.02 2010 kl.21:58
Slóð
Þrymur það er málið.Það á ekki að ráðast á Svavar og Indriða.það er bara bull.Og tengja það Stasí.Við verðum að vera flokkslaus og leysa málið.
06.02 2010 kl.22:16
Slóð
Er ekki einhver maðkur í þessari mysu? Hvað gengur henni til? Eftir að hafa googlað Brussel viðmið etc. sýnist mér þetta snúast mest um hvað ef?? Worst case scenario, hvað þá? Er einhver hægri armur Samfylkingar að undirbúa stjórnarslit? Eru Ingibjörg, Össur og Kristrún að keyra á Steingrím ? Jóhanna í fríi erlendis. Hm. Svo kemur Bjarni og þá getur sagnfræðingurinn Ingibjörg lagað sína sögu, Össur þarf eitthvað moldviðri til að fenni yfir stofnbréfin fljótt.
Bjarni kemst í tætarana.
Hvað gengur Kristrúnu til? Ekki er hún bara að reyna að búa til einhverjar málsbætur þeim Ingibjörgu til handa? Einhver sektarkennd yfir því að þær dvöldu löngum í New York í vellystingum meðan landið sökk? Öryggisráðið var náttúrulega þvílíkur farsi inn í allt hitt og eftirá afar neyðarlegt...
06.02 2010 kl.22:19
Slóð
Að hverjumj berst reiðin núna?-Mönnunum sem settu okkur í þessar skuldir eða Steingrími sem hefur staðið eins og kletttur?Hver er sekur ? Eru fjrárglæframennirnir stykkfí?
06.02 2010 kl.22:19
Slóð
Villi - úr hvað afturenda ert þú kreistur ... “dvöldu löngum í New York í vellystingum ...”!
06.02 2010 kl.22:24
Slóð
“Hver voru annars Brussel viðmiðin Ómar?”
Samkv. skilningi Alþingis sem samþ. var des. 2008 með miklum meirihluta pg þv. Utanríkisráðherra flutti, þýddu þau að unnið yrði á eftirfarandi hátt:
1. Ábyrgjast lágmarkstryggingu þá sem EES-reglur mæla fyrir um að því marki sem eignir viðkomandi banka standa ekki undir henni.
2. Gert er ráð fyrir því að þau ríki sem hlut eiga að máli muni aðstoða sjóðinn við að standa undir þessu verkefni og það verði í formi lánveitinga viðkomandi ríkja til sjóðsins með ábyrgð íslenska ríkisins.
En samkv. nútímaskilningi Rúnu, þá þýddu þau eftirfarandi vinnuplan:
1. Ábyrgjast EKKI lágmarkstryggingu þá sem EES-reglur mæla fyrir um að því marki sem eignir viðkomandi banka standa ekki undir henni.
2. EKKI gert er ráð fyrir því að þau ríki sem hlut eiga að máli muni aðstoða sjóðinn við að standa undir þessu verkefni og það verði í formi lánveitinga viðkomandi ríkja til sjóðsins með ábyrgð íslenska ríkisins.
Niðurstaða: Súrealísk vitleysa.
06.02 2010 kl.22:29
Slóð
Það er svo satt að þetta er mál sem ekki á að hafa neitt með flokka að gera. Og það hafa meira að segja margir stjórnarandstæðingar sagt!
En það getur verið erfitt, þegar haft er í huga hvernig þetta mál var leyst með því að senda pólitískan leiðtoga Steingríms í leiðangurinn.
Pólitískur maður sem er réttilega marineraður í kokkteilboðum fína fólksins er sendur til að semja um ofboðslegar greiðslur, sem lög og reglur segja meira að segja til um að eigi ekki að geta lagst á almenning.
Þetta er bara hneyksli. Landráð er ekki of stórt orð yfir þetta fólk.
06.02 2010 kl.22:31
Slóð
Hvað hefur þettað Samfylkingar fólk á þingi verið að hugsa að hafa smþykkt þessa Icesave vitleysu
06.02 2010 kl.22:37
Slóð
anna, hvað kostaði öryggisráðsvitleysan okkur? Fyrir utan aðhlátur annara þjóða; í beinhörðum gjaldeyri nálægt milljarði króna. Alltaf talað um 600 milljónir en á Íslandi má bæta við ca.25%. Það þurfti náttúrulega að “tala okkar máli við hinar ýmsu þjóðir (til að ljá okkur atkvæði)” varla hefur það verið gert yfir kók og pulsu?
Er ekki svolítið fyndið; Tvær konur á framabraut í útlöndum með mikil plön um að sigra heiminn og koma á friði í boði Íslendinga. Á sama tíma sekkur þeirra eigið land í skuldafen, rúið öllu trausti.
06.02 2010 kl.22:51
Slóð
Sæl Kristrún. Athyglisverð og heiðarleg grein og það þarf mikinn kjark til að skrifa svona. Þú minnir mig svo sannarlega á afa þinn og ömmu núna.
Sorglega lítið fer fyrir málefnaumræðu hjá þeim sem hér skrifa athugasemdir. Þar er það skítkastið sem ræður.
06.02 2010 kl.22:58
Slóð
Ég er sammála Ómari Kristjánssyni. Grein Kristrúnar er óþörf með öllu.
Hún reynir að þvæla málið, æra óstöðuga og skapa sundrung.
Þess vegna er greinin löng. Til þess notar hún Brüssel-Viðmiðin, sem allir hljóta núna að hafa kynnt sér. En eins og Ómar skrifar; ef hún ætlar að segja eitthvað merkilegt - þá verður hún að segja nákvæmlega hvenær og hvernig Brüssel-Viðmiðin eru uppfyllt viðvíkjandi umræddum lánasamningi - að henar mati.
Ómar er einn af þeim fáu sem hafa kynnt sér málið vel og vandlega.
Og fyrir það uppsker hann ótrúlegt skítkast.
06.02 2010 kl.23:04
Slóð
þessi ríkisstjórn er eins og Pulsu eða Pylsu sali sem engin vill laupa Pulsu eða Pylsu hjá vegna lélegra vöru
þetta lið er að sanna hæfileika-leysi sem aldrei áður hefur sést í vestræni pólitík..... framleiðir matareitrun .... og siðleysi á kostnað skattgreiðenda
Að fólk er tilbúið að kaupa þessa vöru sem þetta .... rusl sem framleiði rusl
og ætlast til að fá borgað fyrir..... er ekki í lagi með vöru gæði á Íslandi
06.02 2010 kl.23:12
Slóð
það er afspyrnu vont þegar fólk eins og Villi bulla um það sem þeir virðast ekkert vita um. ISG sótti ekki um aðild að öryggisráðinu, það var kaleikur frá fyrri stjórnvöldum sem hún þurfti að takast á við
06.02 2010 kl.23:12
Slóð
Sæl Kristrún
Er búin að lesa greinina þína og hef nú meiri innsýn í þetta flókna mál en áður. Hef heyrt og lesið margar flóknar útskýringar sem hefa skilið mis lítið eftir, þú hefur góðan stíl og útskýrir málið á einfaldann en þó markvissann hátt. Hef skynjað þennan frásagnaranda áður og líkar hann vel.
06.02 2010 kl.23:17
Slóð
Enginn vill kannast neitt við Icesave núna. Sammála að Svavar hafi ekki verið bsti samningamaðurinn EN að Samfó skuli reyna að þvo hendur sínar af þessu drasli.
Stjórnin er sprurgnin það er ljóst´.
06.02 2010 kl.23:26
Slóð
Jón frá skeri,
Sammála. Icesave er ekki flokkspólitískt mál.
Ekki frekar en ef Katla færi að gjósa - eða Svarta dauði kæmi aftur til landsins.
Icesave gæti eins verið fólgið í því að Bretar heimtuðu að eignast austurland vegna gjaldþrots Big Foot í London...!
Hvernig gæti slík krafa orðið að flokkspólitísku máli á Íslandi?
Mundi Sjálfstæðisflokkurinn samþykkja að Bretar fengju Neskaupsstað og kannski Breiðdalinn - en VG væri til í að bæta Eskifirði í púkkið...!
Og svo mundu flokkarnir rífast um hvort Eskifjörður væri réttu megin hjá Bretum eða Íslendingum. Rifust um það á daginn, kvöldin og á nóttunni!
Forsetinn tók, sem betur fer, völdin af stjórnmálamönnunum og færði þjóðinni. Og það er fagnaðarefni að forsetinn og þjóðin virðast fullfær um að reka Breta og Hollendinga af höndum sér.
Auðvitað kemur austurland gjaldþroti Big Foot ekkert við! Rétt eins og gjaldþrot Landsbankans hans Björgólfs kemur framtíð íslensks almennings ekkert við.
Hitt er, að það er gríðarlegt áhyggjuefni hvað stjórnmálaspírur þjóðarinnar eru skelfilegar visnar. Þar sér tæpast í grænan stilk.
Aldrei hefðu Lúðvík Jósefsson, Magnús Kjartansson, Ólafur Thors, Bjarni Ben., Gylfi Þ. Gíslason - eða einhver af þeirra kynslóð stjórnmálamanna - látið snýta Íslendingum úr báðum nösum með jafn hrottalegum hætti og þessi ríkisstjórn styður heilshugar og af alefli.
Aldrei.
06.02 2010 kl.23:31
Slóð
Ég mótmæli því að nafnið Samspilling, sé notað um Samfylkinguna. Þetta er samheiti yfir Sjálfstæðis- og Framsóknarflokk og á ekki að notast í öðru samhengi. Samspilling þessara flokka varð til þess að bankakerfið komst í hendur óábyrgra og óhæfra manna, sem voru flokkunum þóknanlegir. Fyrir þau verk erum við að gjalda í dag. Grein Kristrúnar er mjög góð og afhjúpar í raun afdalamennsku okkar í alþjóðlegum samskiptum.
06.02 2010 kl.23:41
Slóð
@ ET
he,he ...... mótmæla er einkvað sem .... samspillingar Baugs-Dindla vilja fá réttindi til í dag... ESB-DRUSLUR
06.02 2010 kl.23:43
Slóð
Hatten af for Kristrún - fer úr buxunum síðar. Hvað kemur til að særð samfylkingarkona gerist svona alþýðleg? Er hún hætt að drekka latte og farin að sjá hvernig málunum er háttað hjá kóþambsþjóðinni? Ég bara spyr eins og allir hinir asnarnir.
06.02 2010 kl.23:55
Slóð
Sammála síðasta. Eftir að VG voru innlimaðir í flokkinn heitir hún Baugsfylkinginn í höfuðið á eiganda hennar.
06.02 2010 kl.23:56
Slóð
Nú bíður maður bara eftir að Samspillingin tilkynnir að það sé VG sem
hafi set ESB-Umsóknina sem skilyrði fyrir stjórar samstafi
það er ekki í lagi með þessa Baugs-dindla í Samspillingunni
06.02 2010 kl.23:58
Slóð
Kristrún er nú dálítið sæt þrátt fyrir allt, finnst ykkur ekki? Megababe
07.02 2010 kl.00:07
Slóð
Típísk smjörklípa íhaldsdindla um Baug. Eftir sem því sem best er vitað hafa þeir feðgar verið flokksbundnir Sjálfstæðismenn. Að vísu ekki innvígðir og innmúraðir, enda einungis náhirð Davíðs, sem uppfyllir þau skilyrði sem til þarf. Sama má segja um aðra útrásarvíkinga. Þeim var hampað af flokknum þegar allt lék í lyndi, veittu vel í flokkssjóðinn og þóttu sanna yfirburði hins frjálsa markaðar. Í dag hentar flokknum ekki að hampa þeim.
07.02 2010 kl.00:07
Slóð
Greinilegt að hægri armur SF er lagður á flótta frá þessu ríkisstjórnarsamstarfi og ætlar að láta VG snillinginn SJS, slökkviliðs og rústabjörgunarmann, sitja eftir með heitu kartöfluna (Icesave) sem brann við í meðförum Svavars og Indriða.
Svona fyrir hagsmunagæslumenn B&H sem rita hérna á eyjan.is og nefna Icesave sem SKULD þá er rétt að draga eftirfarandi fram sem formaður fjárlaganefndar sagði í ræðu og staðfestir að Íslensk stjórnvöldu töldu að þeim bæri ekki samkvæmt lögum að borga Icesave en hafi fallist á að semja við 28 þjóðir EES sem höfnuðu hlutlausum dómstól og kröfðust þess að Ísland borgaði án lagar og réttar og þá fyrst allt í einu var orðið skuld Íslands við B&H til sem Ísland viðurkennir ekki og var áréttað síðast í bréfi til Brúna frá Jóhönnu í Desember 2009 eftir að Brúni hafði fagnað því að Ísland viðurkenndi SKULD sína með samþykkt lagana Nr 1/2010. því er rétt að álykta að þeir sem tala um SKULD Íslands séu hagsmunagæslumenn B&H.
“Eins og áður sagði bar íslenska tryggingarsjóðnum samkvæmt lögum að greiða öllum innstæðueigendum á Icesave-reikningunum í Bretlandi og Hollandi lágmarksupphæð, þ.e. að því marki sem eignir hans hrykkju til. Auk þess hafði Landsbankinn fengið aukaaðild að breska tryggingarsjóðnum þannig að hann bætti við íslensku lágmarkstrygginguna frá 20.887 evrum upp í 50.000 pund. ”
“Við bankahrunið reyndust eignir íslenska sjóðsins ekki duga fyrir lágmarksverndinni og ákváðu bresk og hollensk stjórnvöld einhliða að auka verndina þannig að í Bretlandi voru innstæður tryggðar til fulls, um 50.000 pund, en í Hollandi upp að 100.000 evrum.”
“Eignir íslenska tryggingarsjóðsins voru aðeins brot af þeim skuldbindingum sem hann stóð frammi fyrir þrátt fyrir að hann hafi uppfyllt reglur um innstæður í samræmi við gildandi lög og ákvæði innstæðutilskipunarinnar við fall íslensku bankanna.”
“Samkvæmt 10. gr. laga um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta er stjórn sjóðsins heimilt að taka lán svo sjóðnum sé fært að standa við skuldbindingar sínar. Í þessu tilviki lá ljóst fyrir að um umtalsvert lán yrði að ræða, þ.e. sem nemur um helmingi af áætlaðri vergri landsframleiðslu 2009, en eigið fé innstæðudeildar sjóðsins nam einungis 16,1 milljarði kr. í árslok 2008. Ljóst var að íslenski tryggingarsjóðurinn stóð ekki sjálfur undir skuldbindingu af þessari stærðargráðu. Icesave-skuldbindingin varð að milliríkjadeilu. Bresk og hollensk stjórnvöld kröfðust uppgjörs en voru reiðubúin að lána sjóðnum, en þó aðeins gegn því að veitt yrði ríkisábyrgð.”
“Það er hér sem fyrst rís álitamál og lagaleg óvissa varðandi Icesave-samningana.”
“Íslensk stjórnvöld telja að óvissa ríki um að þeim beri lagaleg skylda til að ábyrgjast innstæður í útibúum erlendis umfram þær eignir sem fyrir hendi eru í tryggingarsjóðnum, enda hafi hann verið settur á fót í samræmi við skuldbindingar landsins og staðist allar kröfur sem gerðar eru til slíkra sjóða og að fullu fjármagnaður í samræmi við kröfur Evrópusambandsins”
“Til að leysa þessa deilu gengu íslensk stjórnvöld til samninga við bresk og hollensk stjórnvöld en töldu að þeim bæri engin lagaleg skylda til að veita ríkisábyrgð.
Icesave-samningarnir byggjast á þeirri meginforsendu að íslensk stjórnvöld höfðu ítrekað nokkrum sinnum í aðdraganda bankahrunsins að þau mundu standa við skuldbindingar samkvæmt tilskipunum Evrópusambandsins og að yfirvöld styddu Tryggingarsjóð innstæðueigenda og fjárfesta til þess ef þörf krefði. Í því sambandi má nefna bréf viðskiptaráðuneytisins til breska fjármálaráðuneytisins, dagsett 20. ágúst og síðan 5. október 2008. Mikilvægt er þó að hafa í huga að yfirlýsingarnar voru gefnar áður en fyrir lá að allir stóru íslensku bankarnir lentu í greiðsluerfiðleikum.”
“Þegar bankarnir féllu allir nokkurn veginn samtímis vöknuðu því spurningar um hvort og þá hvernig evrópskum tryggingakerfum innstæðna væri ætlað að taka á slíkri stöðu.”
“Íslensk stjórnvöld töldu ljóst að forsendur tilskipunarinnar væru hrun einstakra banka en ekki almennt kerfishrun. Því væri vafi á því hvort tilskipunin ætti við með sama hætti í slíkum tilvikum og nauðsynlegt væri að fá úr því skorið með lögformlegum hætti fyrir dómstóli eða gerðardómi hvort íslenska ríkinu bæri að ábyrgjast greiðslur til innlánseigenda ef þær færu fram úr því sem Tryggingarsjóður innstæðueigenda og fjárfesta gæti staðið undir.”
“Þessari afstöðu hefur verið haldið skýrt til haga í öllum viðræðum við stjórnvöld viðkomandi ríkja eftir að bankarnir féllu. Þessari túlkun tilskipunarinnar var alfarið hafnað, ekki einungis af þeim ríkjum sem hlut eiga að máli heldur öllum ESB-ríkjunum og Noregi að auki, eins og fram kemur jafnt í áliti meiri og minni hluta utanríkismálanefndar Alþingis, sem fjárlaganefnd leitaði til vegna umfjöllunar sinnar um málið. Hugmyndir um að úr þessu ágreiningsefni yrði skorið af hlutlausum úrskurðaraðila eða dómstóli náðu því ekki fram að ganga.”
“Þegar ljóst var að engar undirtektir hlytust við að leggja málið fyrir dómstól eða annars konar úrskurðaraðila sem íslensk stjórnvöld gátu sætt sig við og ágreiningurinn var farinn að hafa áhrif á stuðning við efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar ákváðu íslensk stjórnvöld að leita pólitískrar lausnar á málinu. Niðurstaða um umsamin viðmið, svokölluð Brussel-viðmið, náðist milli deiluaðila 14. nóvember 2008 en þau eru grunnurinn að Icesave-samningunum.”
“Þau þýddu í fyrsta lagi að íslensk stjórnvöld viðurkenndu að tilskipun Evrópusambandsins frá 1994 gilti á Íslandi með sama hætti og í aðildarríkjum ESB, en jafnframt og í öðru lagi var lögð áhersla á að samningsaðilar mundu taka tillit til „hinna erfiðu og fordæmislausu aðstæðna“ sem Ísland var komið í „og knýjandi nauðsynjar þess að ákveða ráðstafanir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármála- og efnahagskerfi sitt“. Þá var þess getið að samkomulagið greiddi fyrir skjótri niðurstöðu samningaviðræðna Íslands við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Til að tryggja að þetta gengi eftir var í þriðja lagi lögð sérstök áhersla á að stofnanir ESB og EES tækju áfram þátt í samningaferlinu sem færi fram í samráði við þær.”
“Samningurinn um Brussel-viðmiðin dugði ekki til að ná samningum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, sem krafðist frekari yfirlýsingar íslenskra stjórnvalda um að Ísland stæði við skuldbindingar sínar á grundvelli innstæðutryggingakerfisins.”
“Þáverandi fjármálaráðherra og seðlabankastjóri undirrituðu viðbót við viljayfirlýsinguna þar sem Ísland heitir því að virða skuldbindingar á grundvelli innstæðutryggingakerfisins gagnvart öllum tryggðum innlánshöfum.”
virða skuldbindingar á grundvelli innstæðutryggingakerfisins
virða skuldbindingar á grundvelli innstæðutryggingakerfisins
virða skuldbindingar á grundvelli innstæðutryggingakerfisins
http://www.tryggingarsjodur.is/modules/files/file_group_26/log/log-98-1999-isl.pdf
07.02 2010 kl.00:09
Slóð
Hver valdi eiginlega þenna Svavar kokkteilpinna, það hefði alveg eins verið hægt að velja einhvern úr símaskránni.
07.02 2010 kl.00:09
Slóð
ET! Samspilling á við allan 4flokkinn! VG hefur með undirlægjuhætti sínum við Samspillinguna og ESB og Iceslave kröfur hennar, SJS í fararbroddi, endanlega svarið sig í hann. Með hinum flokkonum.
07.02 2010 kl.00:19
Slóð
Hvaða bull er þetta í konunni annars ?
Er alt reynt til að fá þjóðina ofan af því að neyta Íceslave í þjóðaratkvæðagreiðslu?
Burt með alla þessa snillinga á varamannabekknum , þar til þjóðin hefur fengið sinn lagalega rétt fram, um að neyta þessu bulli.
Þá fyrst, erum við með hreint borð og ekki bundin af okkar spiltu pólitíkusum sem reyndu að semja fyrir okkur í skúmaskotum.
Þá fyrst eru öll Íceslave lög úr gildi.
Utanþings fagstjórn strax. til að ganga síðan með hreint borð til samninga. Eða að krefjast dómstólaleiðarinnar fyrir okkar hönd ef Br. og Holl eru með múður.
07.02 2010 kl.00:20
Slóð
Kaupi ekki þetta raus um fjórflokkinn. Þjóðin vill hafa þetta svona. Gerði tilraun með Borgarahreyfingun, sem ekki entist einu sinni í hálft ár, vegna innbyrðis ágreinings.
07.02 2010 kl.00:29
Slóð
Varast ber fagurgala Norðmanna um að taka til yfirtaka Icesave skuldina með mun lægri vöxtum og semja svo sjálfir við B&H , við þetta mundi Ísland glata rétti sínum um að viðurkenna ekki lagalega skyldu sína til að borga Icesave, það eru ekki til nein lög um að Íslandi beri að greiða Icesave, einu “lögin” sem okkur er ætlað að greiða eftir eru “lög götunnar” þar sem sá sterki ræður, þetta eru lög sem sumir (ó)þjóðhollir eyjuskrifarar gera að sínum.
07.02 2010 kl.00:32
Slóð
ET. Það er ekki raus að 4flokkurinn hefur tryggt sig og sína með 5% reglunni á alþingi.
Það er ekki raus að 4flokkurinn berst með öllum ráðum að fresta stjórnlagaþingi fólksins hér.
Það er ekki raus að 4flokkurinn tók sig saman um það að skýrsla ransóknarnefndar Alþingis, skyldi vera áfram í umfjöllun þingsins, án utanaðkomandi, hlutlausts mats.
Það er ekki raus að 4flokkurinn allur. Berst á móti lögum um þjóðaratkvæðagreiðslur. Meira að segja Heilög jóhanna. Sem hefur átt 10 málamynda frumvörp á Alþingi um slíkt. En ekki sá hún sér fært að keyra þau í gegn nú fyrir Ícslave atkvæðagreiðsluna. Jafnvel þótt að ESB,Kvótamálið og fleiri góð mál krefjist Þjóðaratkvæðagreiðslna á næstunni.
07.02 2010 kl.00:53
Slóð
Varðandi það sem minnst er á að ísi. hafa allar götur og komu meir að segja inní lánasamninginn þar sem segir eitthvað á þá leið að þau viðurkendu ekki “lagalega skildu” etc - þá hef ég aldrei skilið það upplegg. Ekki til neins. Lagaleg skilda er borðleggjandi og öll EES ríkin sammála um það. Enda ekki annað hægt svo borleggjandi er skuldbindingin þar að lútandi.
Helst að þetta sé þarna inni aðallega fyrir æsingamenn sem engum rökum taka og snúa öllu á haus og lesa afturábak ef icesave ber a góma.
“það eru ekki til nein lög um að Íslandi beri að greiða Icesave”
Jú.
http://www.utanrikisraduneyti.is/samningar/ees/
07.02 2010 kl.00:57
Slóð
Arnór.
Það eru ekki 4flokkarnir, sem eru ástæða þess að ný framboð ná ekki 5% markinu. Það eru kjósendur sem ráða því, en áður en þetta mark var sett, var einungis eitt framboð sem náði þessu marki, ef litið er áratugi aftur í tímann. Þetta gerðist núna þrátt fyrir þessi mörk. Stjórnlagaþingið og þjóðaratkvæðagreiðslan eru í eðlilegum farvegi og sem betur fer er Alþingi að koma á fót rannsóknarnefnd, sem er vonandi komin til að vera.
07.02 2010 kl.00:58
Slóð
Ég skemmti mér alltaf jafn mikið við lestur þessarar sögu
Um upphafið á 120.000 kr stofn-bréfum í SPRON sem Össur seldi fyrir
Kr 30.000.000,00- (þrjátíu-millur) og seldi á hár-réttum tíma (ávöxtun)
En saga Össurar og fiskeldi-er-Gjaldþrota-saga
hann sett Þjóðviljann á hausinn, Hann setti Fiskeldið á hausinn
og núna ætlar hann að setja Íslensku-þjóðina á hausinn
Saga um Samspillinguna 28. september, 1989
Tryggingar Nýr aðstoðarforstjóri Reykvískrar endurtryggingar Dr. Össur Skarphéðinsson hefur nýverið tekið við starfi aðstoðarforstjóra Reykvískrar endurtryggingar hf. Mun Össur fyrst og fremst annast um fiskeldis tryggingar á vegum félagsins en það hefur undanfarið lagt sérstaka áherslu á þann trygginga flokk, bæði hér heima og erlendis. Reykvísk endurtrygging var sem kunnugt er að meirihluta í eigu Tryggingarmiðstöðvarinnar þar til nú nýlega að hluthafar í minnihluta keyptu Tryggingar miðstöðina út. Eru stærstu hluthafar nú Gísli Lárusson, forstjóri Reykvískrar endurtryggingar, Heildverslun Björns Ólafssonar, sem er dótturfyrirtæki Vífilfells hf, lyfjafyrirtækið Pharmaco o.fl.
Dr. Össur er líffræðingur frá Háskóla Íslands en stundaði síðan framhaldsnám í fiskeldisfræðum við Austur-Anglíu háskólann þaðansem hann lauk prófi. Síðan starfaði Össur við rannsóknarstörf í Bretlandi á sérstökum styrk frá breskum stjórnvöldum.
Við heimkomuna gerðist Össur blaðamaður við Þjóðviljann og eftir hálfs árs starf þar varð hann ritstjóri Þjóðviljans á árunum 1984-87. Síðan hefur hann starfrækt ráðgjafarfyrirtæki á sviði fiskeldis, semm.a. hefur haft með höndum margvíslega þjónustu á því sviði fyrir tryggingarfélög og banka, bæði hér heima og erlendis. Þar fyrir utan á Össur ásamt fleirum og rekur litla tilraunastöð á sviði fiskeldis í Gufunesi og á hlut í íslensk-portúgölsku fiskeldisfyrirtæki sem nú er verið að setja á laggirnar í Portúgal.
07.02 2010 kl.01:00
Slóð
“Kristrún tekur sérstaklega fram að hún skrifi greinina á eigin spýtur og beri alfarið ábyrgð á efni hennar. Hún var aðstoðarkona Ingibjargar Sólrúnar 2007 til 2009 og ráðgjafi Árna Páls Árnasonar, félagsmálaráðherra 2009 til 2010.”
Er Kristrún ekki bara að vekja athygli á sér pólitískt? Hún er ekki lengur ráðgjafi félagsmálaráðherra og hefur í raun ekki neina pólitíska stöðu?
Vissulega hefði Steingrímur getað sagt sér sjálfur að valið á Svavari yrði alltaf umdeilt og ekki það skynsamlegasta. En hvort að einhver annar hefði getað náð betri samningum á þessum tímapunkti er engin leið að segja til um.
07.02 2010 kl.01:04
Slóð
” virða skuldbindingar á grundvelli innstæðutryggingakerfisins
http://www.tryggingarsjodur.is/modules/files/file_group_26/log/log-98-1999-isl.pdf”
Þusari, tilskipun 94/19 drengur !
“1. Ríkisstjórn Íslands hefur átt viðræðufundi með stofnunum Evrópusambandsins og hlutaðeigandi aðildarríkjum þess um skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið að því er tekur til tilskipunar um innstæðutryggingar 94/19/EB.”
Sjáðu til, það er engin vafi á hver skuldbindingin er þarna. Við erum að tala um alþjóðlegar skuldbindingar maður !
Ótrúlegt hvað fólki getur dottið í hug þessu viðvíkjandi.
07.02 2010 kl.01:24
Slóð
Þessi grein er góð og gild.
En þessi hér er ansi athyglisverð.
Hlutverk Svíþjóðar í Icesave og gjaldeyrisbraski.
http://icelandtalks.net/?p=898
07.02 2010 kl.01:52
Slóð
Kristrún er fyrirmyndar varðhundur fjármagseigenda. Hún hefur með kjafti og klóm stutt heilögu Jóhönnu til að koma skjaldborginni um fjármagnseigendur og tekist vel upp!
07.02 2010 kl.02:05
Slóð
Ekki er ég viss um að undarlegar lagaskýringar ómars Kristjánssonar duga mikið lengra en á athugasemdarkerfi Eyjunnar. Hugsanlega er hann sprenglærður lögmaður í sínum kolvilltustu draumum, en löngu ljóst að það há sér enga stoð í raunveruleikanum. Enda hefur engin lögmaður tekið undir þessi orð, nema þeir sem eru á launaskrá Breta og Hollendinga. Ekki einn, sem einu sinni minnir á að hafa neitt í sínum málflutningi sem minnir á lagalega loftfimleika Ómars, lagaprófessor athugasemdakerfisins.
Engin af öllum þessum virtu erlendu eða innlendu lagaprófessorum, sérfræðingum í Evrópurétti og alþjóðalögum hafa tekið undir kenningar Ómars og þá umbjóðendum hans Breta og Hollendinga. Og jafnvel þeir reyna það ekki lengur, heldur byggja varnir sínar á einhverjum óljósum og ósönnuðum meiningum un siðferðislegar skyldur, án þess að getað gert grein fyrir þeim svo eitthvert gagn er af. Og mas. hefur nákvæmlega ekki einn óháður lögmaður tekið undir málstað þeirra, heldur allir virtustu sérfræðingarnir fullyrt að réttur Íslendinga er óumdeilanlegur.
Hef ekki mikla trú á að áhugamenn sem gefa sér niðurstöðuna fyrst og reyna svo að þvæla, steypa og spartla i öll götin eins og Ómar stundar lögfræðina, eru þess verðir að á þeim er nokkuð mark er á takandi. Það eru ansi margir þungavigtamenn í fræðunum sem getað hent skýrteinunum sínum ef blogghundar með þráhyggju á lokastigi slá þeim við í snillinni.
Í báðum Icesave frumvörpunum er skýrt tekið fram (þó svo stjórnarliðar hafa aldrei viljað viðurkenna opinberlega að svo sé fyrr en fyrir stuttu), “að í Icesave samkomulaginu fallist Íslendingar ekki á þau rök að þeim sé lagalega skylt að greiða Icesave reikninginn”. Svo eru þau orð mörg, og engin vafi á hvað þau þýða.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra svarar bréfi Gordons Brown 17. nóvember síðasliðinn, eða tæpri viku seinna eftir að henni barst bréf frá honum, þar sem hann fullyrðir og þakkar fyrir að Ísland viðurkenni meinta ábyrgð á icesave, án þess að á það hafi nokkru sinnum verið minnst og hvað þá viðurkennt.
Í bréfi sínu leggur Jóhanna áherslu að í hinu nýja Icesave samkomulagi fallist Íslendingar ekki á þau rök að þeim sé lagalegt skylt að greiða Icesave reikninginn. Segist hún búast fastlega við því að málið verði tekið upp að nýju í vináttu og drengskap komist dómstólar að sömu niðurstöðu og Íslendingar. - Svo mörg voru þau orð, og enginn vafi á hvað þau þýða.
Núna eftir að forsetinn (sem betur fór) hafnaði að samþykkja Icesave 2, þá er Steingrímur J. Sigfússon farinn að tjá sig opinberlega um að Íslendingar fallist ekki á þau rök Breta og Hollendinga um lagalegar skyldur okkar, á nákvæmlega sama hátt og forsætisráðherrann.
Batnandi fólki er best að lifa. En auðvita á lagasérfræðingurinn skemmtilegi eftir koma með djúpar kenningar sem eru ekki einu sinni boðlegar til heimabrúks heima hjá honum sjálfum.
07.02 2010 kl.02:57
Slóð
Hann Ómar dregur “réttar” ályktanir af röngum forsendum og þegar það hefur gerst nokkrum sinnum hjá stráknum er hann komin með “nýjan” sannleika sem þjónar hagsmunum þeirra röklausu.
EES þjóðirnar 28, sem “ákváðu” í snarhasti að Ísland ætti að borga, gerðu það til að tryggja sína hagsmuni þ.e.a.s hagsmuni auðvaldsins þar sem tap banka er ALLTAF skattgreiðendavætt, lög og reglur hafa enga meiningu hjá þessum þjóðum þegar kemur að því að skattgreidendavæða tap.
Fólk veit nákvæmlega hvað er í gangi og það lætur ekki sérþróaðan “sannleik” Ómars og co villa sér sýn.
07.02 2010 kl.09:12
Slóð
Þessi viðsnúningur Samfylkingarfólks er af hinu góða, en á sama tíma er þingflokkurinn athlægi.
Á hvaða grundvelli kusu þingmenn annars þegar Icesavefrumvarpið var samþykkt í þingi (og svo hafnað af forseta)?
07.02 2010 kl.10:08
Slóð
Ótrúleg auglýsingamennska hjá kvennrembu sem engin nennir að hlusta á lengur, hún reynir að nota þetta ömurlega mál til þess að upphefja sjálfa sig .
07.02 2010 kl.10:21
Slóð
Gamalt samfylkingar trikk.
Munið ekki eftir hvernig haninn (ISG) galaði 3 sinnum áður en hún sparkaði í ástsjúkan Geir Haarde, stakk hann í bakið og sagði að allt hefði verið honum að kenna....
og ríkisstjórnin sprakk !!!!!!!
07.02 2010 kl.10:24
Slóð
Það er alvitað að Árni Páll og Kristrún hafa fengið loforð um þingsæti á Evrópuþinginu.
Árni fyrir að gera almenning gjaldþrota og selja ofan af þeim eigurnar, Kristrún fyrir að reyna hreinsa til skítinn eftir þetta lið. Fórnarkostnaðurinn er vel þess virði fyrir þetta hyski.
Svo flytja þau til Brussel þegar að ESB verður keyrt í gegnum þingið.
07.02 2010 kl.10:26
Slóð
Nú fer hver að bjarga sjálfum sér út úr Samspillingarpyttnum ................................
07.02 2010 kl.10:51
Slóð
Var þetta ekki aðstoðarkona fyrrum formanns samfylkingingarinnar og utanríkisráðherra í HRUN-stjórninni. Forvígiskonu annars stjórnarflokksins sem eyddi tíma sínum við í kokkteilboðum við að koma Íslandi í öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna á sama tíma og henni var kunnugt um að fjármálakerfi þjóðarinnar var að hrynja. Frá því snemma árs 2008.
Merkilegt að þetta vanhæfa fólk skuli vera enn að.
Þetta hafði þessi ágæta kona m.a.a.s á fundi hjá ungum jafnaðarmönnum sumarið 2009
PRESSAN 18 júní 2009
“Indriði Þorláksson og Kristrún Heimisdóttir: við verðum að semja
Indriði talaði um ringulreið, stefnuleysi og lausatök í samskiptum við AGS
Indriði Þorláksson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra og fulltrúi í samninganefnd Icesave og Kristrún Heimisdóttir, fyrrverandi aðstoðarkona utanríkisráðherra eru sammála um að Íslendingar geti með engu móti hlaupist undan skyldum Icesave-samkomulagsins. Þetta kom fram á opnum fundi um málið sem Ungir jafnaðarmenn stóðu fyrir í kvöld.
Kristrún sagði að ef við borgum ekki þýðir það að íslensk fyrirtæki fái ekki lán í framtíðinni. Þau geti á engan hátt endurfjármagnað sig nema með eðlilegum lánafyrirgreiðslum erlendis frá. Indriði sagði að ef Alþingi samþykki ekki samninginn sé mjög ólíklegt að ríkin setjist aftur að samningaborði. Þá myndu annars konar samningsviðræður taka við, sem hann kærði sig ekki um að taka þátt í.
Indriði sagði að lausatök, ringulreið og stefnuleysi hafi verið í því hvernig ætti að semja við Alþjóðagjaldeyrissjóðinni, þegar hann hóf afskipti af málinu. Erlendis ríkti vantrú á vilja Íslands til þess að taka á því. Jafnframt segir hann samninganefndina hafa í sífellu reynt að sýna fram á sérstaklega slæmar aðstæður á Íslandi sem ætti að kalla á betri samningsstöðu, en það hafi tekist illa.
Indriði sagði nokkur atriði samningsins vafasöm. Hann tiltók 7. kafla sem segir að innistæður 20.000 Evra og undir verði tryggðar af íslenska ríkinu. Ef hins vegar einhver kröfuhafi fer fyrir dóm og fær þannig greidda hærri upphæð en samið er um, muni það ganga yfir hvern og einn kröfuhafa sem átti inni meira en trygging samningsins kveður á um. Indriði minntist í framhaldinu á þann fjölda Hollendinga sem er með málsókn gegn íslenska ríkinu í bígerð.
Kristrún Heimisdóttir var harðorð í garð Ögmundar Jónassonar, heilbrigðisráðherra og sagði mjög óábyrgt af honum að tala í sífellu um Alþjóðagjaldeyrissjóðinn sem óvin. Jafnframt ítrekaði hún að þingmenn Vinstri græna styðji samstarfið við AGS en þeir væru oft á tíðum ógætilegir í tali um sjóðinn og samstarf ríkisstjórnarinnar við hann.
Hún greindi jafnframt frá símtali Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur við Joseph Stiglitz, nóbelsverðlaunahafa í hagfræði og fyrrum aðalhagfræðing AGS áður en hann tók að gagnrýna sjóðinn harðlega. Stiglitz ráðlagði Ingibjörgu Sólrúnu, fyrir hönd Íslendinga, að fara í samstarf við AGS, en gæta þess að vera hörð við sjóðinn.
Á fundinum kom einnig fram að birting samningsins hafi tafist svo vegna þess að íslensk stjórnvöld vildu leyfi Hollendinga og Breta til birtingairnnar. Steindór Grétar Jónsson, framkvæmdastjóri Ungra jafnaðarmanna, segir að fundurinn hafi tekist með ágætum og fullt hafi verið út úr dyrum.”
Þarf að segja meira.
07.02 2010 kl.11:44
Slóð
Samfylkingin er fúl vegna þess að VG. er orðinn jafn stór flokkur í skoðanakönnunum. Samf. hefur einfaldlega minna traust hjá kjósendum vegna þeirra spilltu einstaklinga sem þar eru.
07.02 2010 kl.12:18
Slóð
þusari, eg hef sagt að sú hugmynd svokallaðra Njálu-Lögspekinga sem gengur útá það að evrópsk innlánstryggingin - sé beisiklí engin innlánstrygging ! Og þeir ætli að leggja mál þannig upp fyrir dómi o.s.frv. og nefna jafnvel Evrópudómstólinn í því samhengi - það er einhver sú vitlausasta hgmynd sem maður hefur heyrt. Verð að segja það.
Sjáðu til, eg er nú bara einn íslenskur almúgamaður og fyrir einn slíkann þarf ekkert langa athugun og rannsóknarvinnu til að átta sig á hve arfavitlaus hugmyndin er.
Eg hef ennfremur sagt að Ísl. hefur eitt sér til málsbóa: Megaklúður sjalla og rústalagningu á heimsmælikvarða svo fáheyrt er.
En það afnemur þó ekki skuldina.
Gefur tilefni til tilhliðrunar etc. - en afnemur eigi skuldina. Er bara þannig.
Auk þessa kemur Jafnræðisregla EES þarna inní og Bretar hafa hana alltaf uppí erminni og geta þar með yfirtrompað allt.
Ekki mjög flókið.
Það eina sem raunveruleg er hægt að tala um er greiðslufyrirkomulag og vaxtakjör.
Umrætt skuldamál er þannig vaxið að hægt er að tala lengi um greiðslufyrirkomulag og vaxtakjör. Mjög lengi.
Sá böggull fylgir þó því skammrifi að slíkt tal kostar 75 milljarða á mánuði. Höfum við efni á slíku tali ? Eg segi nei !
Skaðinn af sjöllum og almennum rugludöllum er nú þegar orðinn meiri en skuldin sem lánasamningsmálið snýst um.
Jafnvel þó fyrir eitthvert kraftaverk einhver stigi af himni ofan og segði: Ísland þarf ekki að borga etc - þá er skaðinn af fíflagangi sjalla orðinn stærri en skuldinn og tjónið óbætanlegt.
Svo er nú það.
07.02 2010 kl.12:23
Slóð
Bara burt með VG og helst að banna kommúnistaflokka hér á landi eins og VG. Það má líka banna Svavar, Svandísi, Svavar og Indriða þvílíkt gereyðingarafl.
07.02 2010 kl.12:24
Slóð
Þar með hafa Samfylkingamenn á Íslandi og systurflokkur þeirra í Noregi sameinast um að koma í veg fyrir að Noregur hjálpi Íslendingum. Það getur ekki verið nein önnur skýring á þeirri staðreynd að íslensk stjórnvöld hafa ekki ennþá farið fram á aðstoð Norðmanna með formlegum hætti. Margir Norðmenn bíða eftir þeirri ósk.
http://skulablogg.blog.is/blog/skulablogg/entry/1015448/?fb=1
07.02 2010 kl.12:24
Slóð
Þar með hafa Samfylkingamenn á Íslandi og systurflokkur þeirra í Noregi sameinast um að koma í veg fyrir að Noregur hjálpi Íslendingum.
Það getur ekki verið nein önnur skýring á þeirri staðreynd að íslensk stjórnvöld hafa ekki ennþá farið fram á aðstoð Norðmanna með formlegum hætti. Margir Norðmenn bíða eftir þeirri ósk.
http://skulablogg.blog.is/blog/skulablogg/entry/1015448/?fb=1
07.02 2010 kl.12:33
Slóð
Common segir hér að ofan: “Svavar tók að sér erfitt verkefni og leysti það á þann hátt sem hann gat best miðað við þau fyrirmæli sem hann fékk frá íslenskum stjórnvöldum.” Hann fylgdi því miður blint skipunum sem hann fékk frá Jóhönnu & SteinFREÐ, þ.e.a.s. “að klára málið sem allra fryst, koma því í burtu og semja um góð lánakjör. Þannig að sökin liggur í raun hjá Forsetisráðherranum Jóhönnu & Steingrím fjármálaráðherra Eins og grein Kristrúnar kemur inn á þá var Svavari aldrei falið af þessari heimsku ríkisstjórn að VERJA hagsmuni og MÁLSTAÐ Íslands, heldur átti hann bara að samþykkja allt og koma málinu frá. Common heldur áfram og segir m.a: “Hann var langt frá því að vera rétti maðurinn í verkið - en það voru mistök þess sem réð hann til starfans.”
Spunameistari Samspillingarinnar Össur sá sér leik á borði og stakk líklega upp á Svavari sem samningarmanni við Steingrím til að tryggja það að Icesave málið yrði klárað hratt & illa. Með Svavar sem formann tryggði Össur sér að Steingrímur myndi geta barið þingflokk VG til samþykkis útfrá aðkomu Svavars að samningnum!! Var Össur, Jóhanna & Steingrímur að hugsa um ÞJÓÐARHAG þegar þau völdu félaga Svavar sem formann nefndarinnar??? Nei, auðvitað ekki. Alltaf augljóst að valið á Svavari var tóm steypa, enda Svavar þekktastur fyrir að semja afsér sem fyrrum fjármálaráðherra. Betri hluti þjóðarinnar hefur ekki enn gleymt því að Svavar ber ábyrgð á því að hafa samþykkt hér á árum áður einn versta lánasamning sem íslensk ríkisstjórn hefur gert. Hér er ég að vísa til “barnalánsins svokallaða sem hann tók með 12% FÖSTUM vöxtum sem nú eru að koma til greiðslu í ár..!” Svavar hefur þannig náð þeim einstaka árangri að vera tengdur tveim HEIMSKUSTU lánasamningu sem sést hafa hérlendis og eflaust í heiminum, fyrst “barnalánið hans fræga” & svo nú “IceSLAVE dæmið hans”.
Common bætir við: “Aldrei hefðu Lúðvík Jósefsson, Magnús Kjartansson, Ólafur Thors, Bjarni Ben., Gylfi Þ. Gíslason - eða einhver af þeirra kynslóð stjórnmálamanna - látið snýta Íslendingum úr báðum nösum með jafn hrottalegum hætti og þessi ríkisstjórn styður heilshugar og af alefli. ALDREI..!” Nei segir: “Samfylkingin hékk í sjálfdauðri ríkisstjórn Geirs Haarde í von um að væntanlegur landsfundur Sjálfstæðismanna myndi snúast á evrópsku hliðina, þá rennblautu hlið Samfylkingarinnar. Þeim varð ekki kápan úr því klæðinu þá og rifin eru klæði þeirra nú. Nú ætlar Ingibjargar-armurinn að reyna að snúa Icesave-hneykslinu sér í hag, þegar einsýnt er orðið að dagar þessarar ríkisstjórnar eru taldir vegna getuleysis í málefnum heimilanna og vanefnda á öllum lýðræðisumbótum sem þau lofuðu í aðdraganda kosninganna. Kristrúnu er rökföst og mælist í sjálfu sér ágætlega, EN hvar var hún og félagar hennar úr Samfylkingunni þegar maður gekk undir manns hönd að svíkja þjóðina í hendur kúgurum sínum? Hvar voru samflokksmenn hennar við umræðurnar á Alþingi og í atkvæðagreiðslunni 30 desember 2009?”
Kalli: “Samfylkingarskútunni snúið við? Allir þingmenn Samfylkingarinnar ætluðu að samþykkja upphaflega “hrikalega” samninginn án þess að lesa hann yfir!” Annar aðili setur þetta inn: “Maður spyr sig óhjákvæmilega hverju Samfylkingin var eiginlega að greiða atkvæði þegar Icesave rúllaði þar í gegn um jólaleitið. Nú er spurning í hvorn fótinn Samfylkingin stígur. Sé þetta tilfellið að ofan, er greinilega verið að senda VG tóninn svo um munar.” Orðlaus: “Samfylkingarfólk er byrjað að yfirgefa sökkvandi Icesave dallin. Samning sem samfó vildi samþykkja STRAX! á sínum tíma.” Bubbi: “Sama sagan með samspillinguna ..... við erum altaf saklaus!” Corleone: “Enn einu sinni er Samf. orðin hrein mey.” Orðlaus segir: “ Það eru komni alvarlegir brestir í samstöðu samfó. Þessi grein er einn ánginn af því. Nú vilja sumir þar inni firra sig frá stefnu samfó í Icesave.”
Þursari: “Greinilegt að hægri armur SF er lagður á flótta frá þessu ríkisstjórnar-samstarfi og ætlar að láta VG snillinginn SJS, slökkviliðs og rústabjörgunarmann, sitja eftir með heitu kartöfluna (Icesave) sem brann við í meðförum Svavars og Indriða.” Ekkert Icesave segir: “Nú fer hver að bjarga sjálfum sér út úr Samspillingarpyttnum .........!” Toni:” Er skipulagt undanhald hafið?” Hárrétt spurning Toni – spunameistar Samspillingarinnar komnir á fullt til að fegra aðgerðaleysi & heimsku þeirra þingmanna. Sem betur fer sjá allir NÚ sem ekki eru blindir EB aðdáaendur að Samspillingarinnar að þessi drasl FLokkur er stórhættulegur land & þjóð. Eða með orðum Bubba: “ESB-DRUSLUR...!” Samfylkingin er búin að vera í “RuslFlokki” í langan tíma og hefur náð að koma þjóðarskútunni niður í ruslflokk með fábjánaverkstjórn Jóhönnu & SteinFREÐS. Frá byrjun hef ég ítrekað bent á að þau skötuhjú valda ekki verkefninu, þau bara “kvarta & væla” hvað allt sé erfitt. Þau lesa ekki yfir samninga, ljuga & blekkja þjóð & þing eins og að drekka vatn. “Stórglæsilegur samningur....lol...!” Samfylkingar þingmenn (ótrúlegt samansafn af drasli) var strax til í að samþykkja samninginn ÓLESINN af því að FORINGINN hafði sent út þá skipun!
Í raun mjög táknrænt þegar þessi AUMA ríkisstjórn fór “Norður & svo beint með samfélagið niður...!” Birgir Örn: “Því verður ekki breytt að allir þingmenn Samfylkingarinnar greiddu atkvæði með ice-save nauðarsamkomulaginu. Þjóðin er farin að sjá í gegnum þessa póltitíska leiki.” Árni: “Farsinn verður alltaf meiri og meiri. Samspilling þvingar Steingrím og félaga til að samþykkja icesave, etur þeim á foraðið og afneitar þeim svo.Hvað þarf eiginlega að vera mikið fífl til að standa með þessum flokki?”
Guðbjörn: “Loksins þorir einhver að stíga fram og segja sannleikann: KEISARINN ER NAKINN!” Hrolli: “Íslensk stjórnmál eru samansafn að hrokafullum amatörum…!” SH: “Ef fólk heldur að Samfylkingin sem flokkur sé komin í lið með þjóðinni, þá er það misskilningur.” Hugsið ykkur hversu gróf svik Samspillingarinnar eru við þjóðina, ÖLLU máti fórna, samninganna átti að samþykkja strax, því annars óttaðist X-S að lokað yrði á EB aðild Íslands. Þessi viðbjóðslegi FLokkur og þingmenn hans tóku þannig frá byrjun hagsmuni EB, fram yfir þjóðarhagsmuni. Ef slíkt er ekki landráð, þá veit ég ekki hvað er landráð??? Ég hef frá byrjun sagt að þessari ríkisstjórn verður að koma frá, hún er stórhættuleg “land & þjóð”. Lesandinn Guð hjálpi Íslandi segir: “Mikið væri það nú fínt að þessi grein væri fyrirboði um stjórnarslit. Þá á Ísland von úr volæðinu og vitleysunni.” Gunnar: “Flestir þekkja sín takmörk. Það gera þessir aðilar augljóslega ekki. Þess vegna eru þeir og svo margir fúskarar í efstu stigum stjórnkerfisins, þjóðfélaginu stórhættulegir. Því fór sem fór.”
Bubbi: “Hvað voru þessir Samspillingar HOTTIN TOTTA á Alþingi að hugsa? (Kæri Bubbi það er frekar augljóst að þeir hugsa því miður ekki heldur fylgja foringjanum & FLokknum í blindi – sem sagt drasl, fæðingahálfvitar, innskot mitt). Allt fyrir ESB bull.... núna á að draga þetta umsóknar-ferli til baka!” Rósa: “Hvaðfær Samfylkinguna til að kyngja gallinu? Hversu langt ætlar þjóðin að leyfa VG að ganga í öfgum sínum og ofsa? Mér finnst þessi grein dauðadómur yfir ríkisstjórninni. Í henni segir beinlínis að hagsmunir þjóðarinnar hafi meðvitað verið fyrir borð bornir vegna pólitísks ofsa. Hrikalegur dómur yfir þessum stjórnmálamönnum.” Has: “Enn og aftur kemur í ljós hversu hrikaleg nausynlegt er að þessi ríkisstjórn þjóðníðingar fari frá og leyfi fólki sem er annt um þjóð sína að komast að.” Því miður rétt hjá Has, þessi auma ríkisstjórn hefur svo sannarlega níðst á þeim sem vörðu hagsmuni landsins, sbr. að Ögmundi ráðherra var bolað út úr ríkisstjórn fyrir að tala máli Íslands í ríkisstjórninni – ótrúlegt lið!
Smiður: “Augljóst er að stjórnin er komin að fótum fram og fer frá fljótlega.” SH: “Þetta er almenningur búinn að vita í 10 mánuði, þetta er vanhæf ríkisstjórn. Þessi ríkisstjórn á að fara sem fyrst vegna vanhæfis! (Stjórin er ekki vanhæf, hún náði nefnilega aldrei að vera hæf – innskot mitt). Hér brennur allt enn og virðist sem ráðamenn séu of margir með eldspýtur.” Bubbi: “....þetta lið er að sanna hæfileika-leysi sem aldrei áður hefur sést í vestræni pólitík.....! Síðan bætir Bubbi við: “það er ekki í lagi með þessa Baugs-dindla í Samspillingunni.” Nú er Bubbi kominn í ham og heldur áfram gagnrýni á Samspillinguna og félaga Össur: “En saga Össurar og fiskeldi-er-Gjaldþrota-saga! Hann sett Þjóðviljann á hausinn, Hann setti Fiskeldið á hausinn og núna ætlar hann að setja Íslensku-þjóðina á hausinn!” Félagi Össur, hvað er eiginlega að gerast hjá þér?
PP: “Stjórnin er sprungin það vita allir. Stefnir í margfallt betri niðurstöðu en ógnarstjórn steina og jóhönnu gömlu bauð uppá. Vantaði ekkert upp á hótanirnar og ólætin og maður bara spyr sig hvað hafi eiginlega verið þeirra agenda í því. Ekki var það hagur íslendinga sem var hugsað um.. ó nei það’ er á hreinu. Burt með landráðsflokkana!!!” Jón frá Skeri segir: “Þetta er bara hneyksli. Landráð er ekki of stórt orð yfir þetta fólk.” Páll Skúlason heimspeki prófessor við HÍ talar um landráð af gáleysi hjá okkar siðblindu stjórnmála- & viðskiptamönnum. Vonandi verður Ingibjörg Sólrún, Geir Haarde & Björgvin Sig, dreginn fyrir Landsdóm og látin axla ábyrð. Síðan á að draga alla stjórn & bankastjóra Landsbankans, auk stærstu eigenda fyrir dómstóla og láta á það reyna hvort ekki sé hægt að dæma þau öll fyrir landráð! Rannsóknaskýrslan mun staðfesta að Landsbanka liðið (siðblint skítapakk) valdi viljandi að FELA skýrslur & gögn um sem útskýrðu að bankinn væri fallinn! Slíkur gjörningur felur undir landráðslögin!!! Fyrir það ber auðvitað að dæma þau!
Ég hef ítrekað í skrifum mínum (www.fun.blog.is) bent á trúverðugleiki Steingríms (SteinFREÐUR – frosinn heili) er horfinn, hann hefur því miður rústað eiginn ímynd og þeim mun fyrr sem hann stígur niður sem formaður VG, þeim mun betra. Það verður að takmarka það tjón sem hann er að valda flokknum strax! Common segir: “Og Steingrímur, í stað þess að vera sverð og skjöldur þeirrar þjóðar sem hann er í vinnu hjá, hefur kosið að tala máli handrukkaranna - daginn út og daginn inn. Íslendingar eigi þetta bara skilið..., þeir bera ábyrgðina..., samningurinn sé mjög góður... og forsetinn og þjóðin á villigötum..! Nú er hans pólitíska staða þannig að betri Icesave samningur þýðir að hann er út úr pólitík. Atvinnulaus! Skelfileg staða fyrir íslenska þjóð að hafa fjármálaráðherra sem þolir ekki betri kjör en afarkjörin sem hann er búinn að blessa með öllu sínu pólitíska kapitali!” Ég tek heilshugar undir gagnrýni Common.
Ég hef frá byrjun staðið vaktina í þessu ömurlega IceSLAVE máli, enda ekki réttlætanlegt að leggja á þjóðina “drápsklyfjar tengt Icesave ruglinu”. Ég skrifaði Forseta Íslands bréf í desember 2009 og færði rök fyrir mikilvægi þess að hann hafnaði samningnum. Ég sendi honum svo netpóst í lok desember 2009 þar sem ég sagði m.a.: “Þú ert okkar LAST DEFENSE..!” en Defense hópurinn á svo sannarlega skilið mikið hrós fyrir frábært starf! Stöndum áfram vaktina látum ekki þessa aumu & stórhættulegu ríkisstjórn klúðra Icesave málinu. Eða með orðum Sollu stirðu: “Nú er mál að linni...lol...lol...lol....!” Samspillingin er fyndinn FLokkur í neikvæðri merkingu þess orðs, þegar Ingibjörg Sólrún, Kristrún og aðrir tala gegn Icesave þá ákveður Jóhanna & Össur að hlusta ekki á fyrrum formann FLokksins, eins og hennar álit skipti bara engu máli...lol....lol...!
kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)
07.02 2010 kl.12:38
Slóð
Fyrst og fremst vil ég þakka Kristrúnu Heimisdóttur fyrir MJÖG góða grein sem greinir kjarnann frá hisminu. Gott væri að heyra frá henni oftar om málefni sem þessi.
Í stað þess að skrifa langar athugasemdir varðandi skoðanir manna hér á Eyjunni bendi ég á eftirfarandi:
1. Ríkisstjórnir á Íslandi hafa oftast verið tveggjaflokka stjórnir sem VERÐA að vinna saman. Samvinna þýðir að menn þurfa að koma sér saman um stjórnarstarf. Enginn getur vænst þess að báðir flokkar geri svo öllum líkar í landinu. Gagnrýni til að upplýsa eins og Kristrún skrifar er mikilvæg, einnig gagnrýni fólks um málefni innan flokka, og ekki síst gagnrýni kjósenda á flokka er liður í lýðræðisþróun. Íslendingar þurfa að temja sér gagnrýni sem er málefnaleg og sett fram á lýðræðislegan máta.
2. Að geta greint á milli orsaka og afleiðinga er algjör forsenda þess að menn skrifi af viti.
3. Hér á síðunni stendur: Tilkynna um óviðeigandi ummæli. Ég nota því þetta tækifæri til lýsa yfir vanþóknun minni á uppnefningum á fólki, flokksheitum, og skrifuðu efni sem lesa má hér að ofan. Þetta er Eyjunni til skammar og ritstjórn ætti að taka til í eigin ranni HIÐ FYRSTA !!!
4. Skítkast eins og hér má lesa og víðar á bloggi Eyjunnar s.l. tvö ár er einnig til skammar og ætti ritstjórnin sjálf en ekki bloggarar að tilkynna bloggurum um óviðeigandi ummæli. Aumingjahátturinn er algjör þegar menn geta ekki stafsett rétt eða skrifað óbrenglaðar setningar og ættu menn að grenja heim hjá en ekki hér. Ég bý erlendis og les Eyjuna mest, en ef engin breyting verður á þessum dónaskap og ómálefnalegu þvaðri þá hætti ég að skoða síðurnar.
07.02 2010 kl.12:57
Slóð
Í guðanna bænum Nelly .... hættu að lesa Eyjuna . . ..
Í mínum huga verður að umbera alla ... líka þá sem hafa ekki meira vit en svo að grenja heima hjá sér og skrifa þá gemju niður á rangan Íslenskan hátt á athugasemda kerfi Eyjunnar.... Þetta fólk á sinn rétt eins og aðrir...
Ekki séns að þú getur predikað yfir öðrum, hafandi það þröngsýna hugarfar sem þú lýsir í þínu bréfi hér að ofan . . . .
Helvítis mannheimska og vindhana hugarfar tröllríður Íslenskum almenningi...
Enda kristallast það í stjórnmálastéttinni hinni Íslensku....
Sem er fyrir löngu . . . meira gjaldþrota en Íslensku bankarnir voru á sínum tíma . . . og ef þú vilt heyra meira í ungfrú Kristrúnu... í annan guðanna bænum sendu henni persónulega tölvupóst ... svo þú æsir ekki í henni hungrið um að láta meira heyra í sér á opinberum vettvangi... hún vildi borga þetta fyrir löngu síðan og er núna fyrst að átta sig á málinu.... Helvítis vindhana samfylkingarfólk....
Afsakið Íslenskuna.
Kveðja.
07.02 2010 kl.13:15
Slóð
Ómar Kristjánsson,
Comon hefur ákveðið, eftir umhugsun og yfirlegu, að standa við og virða að fullu allar þjóðlegar og alþjóðlegar skuldbindingar sínar gagnvart þér sjálfum.
Í þeim mun Comon fara eftir öllum útistandandi tilskipunum ESB og EES og virða í hvívetna allar skyldur sem lagðar eru á ríki og einstaklinga á því svæði öllu.
Ítrekað:
Comon mun standa við allar alþjóðlegar skuldbindingar sínar gagnvart þér. Og líka gagnvart breskum og hollenskum stjórnvöldum - og reyndar allt og öllum.
07.02 2010 kl.13:23
Slóð
Loksins er fólk farið að sjá ljósið... hvað er ég ekki búin að vera að tuða um síðan þessi umræða hófst...
Kjarni málsins er einfaldlega þessi eins og kom fram hjá Kristrúnu og Kristrún Heimisdóttir er meiri manneskja við það að stíga fram og viðurkenna að við erum beitt ofbeldi og höfum ALDREI tekið neitt lán.
Það voru Hollendingar og Bretar sem gerðu það og slettu svo í okkur afleiðingunum ..
Átti ekki að hafa samráð við Ísland um ´lánakjör ÁÐUR en Bretar tóku þetta einhliða lán..
Ekki skrýtið þó þeir vilji ekki láta málið fara fyrir dóm..
07.02 2010 kl.14:03
Slóð
Þetta var ótrúlegt viðtal í Silfrinu.
1. Samfylkingin sendi Svabba út. Búin að viðurkenna það núna að það hafi verið stórkostlegt klúður.
2. Samfylkingin ætlaði að koma þessum Icesave1 samning óskoðuðum í gegnum þingið. Hún staðfestir að það hafi verið AFGLÖP.
3. Þeim mun ekki takast að koma þessu klúðri yfir á VG þar voru menn innanborðs sem stóðu í lappirnar, annað en öll Samfylkingarhjörðin sem sagði JA JA JA
Er þessum flókki yfir höfðu stætt áfram í Ríkisstjórn?????
07.02 2010 kl.14:11
Slóð
“Comon mun standa við allar alþjóðlegar skuldbindingar sínar gagnvart þér. Og líka gagnvart breskum og hollenskum stjórnvöldum - og reyndar allt og öllum.”
Batnandi manni er best að lifa.
Annað, það er ótrúlegt hjá Kristrúna að ætlað Njálu-Lögspeliorðhenglast í kringum “forfkármögnun” og að ísl. hafi aldrei samþykkt lántökuna áður en síðasta stig viðræðna hófust um greiðslufyrirkomulag. Það er bara ótrúlegt.
“Hollenska ríkisstjórnin ætlar að veita Íslandi lán til að hægt verði að ábyrgjast innistæður á hollenskum IceSave reikningum Landsbankans. Þá náðist verulegur árangur á fundi með breskri sendinefnd í dag. Árni Mathiesen fjármálaráðherra ræddi við hollenskan stafsbróður sinni í Washington í dag og tilkynntu þeir þetta nú síðdegis.
Hollenska ríkisstjórnin hyggst veita Íslandi lán til að standa undir þessum greiðslum og hollenski seðlabankinn ætlar að annast afgreiðslu á kröfum innistæðueigenda.” (RUV 11.10.2008)
(Það eru fleiri fleiri slíkar samþykktir í pppír og í orði frá ísl. ráðamönnum - nenni bara ekki að leita allt uppi núna. Nenni því ekki. Eg er aðallega alveg gapandi yfir fáfræðinni sem sumir láta frá sér.)
Sko, hve angt á vitleysistal í kringum þetta Lánasamningsmál að ganga ?
Er bara allt leyfilegt - þ.e. að því gefnu að það sé nógu helv. vitlaust ?
Íslensk stjórnvöld og stofnanir ísl. Ríkisins er um slík mál höndla - höfðu margsamþykkt lántökuna og að staðið yrði við umræddaskuldbindingu. Margsamþykkt. Einhver svona Njálu-Lögspeki að það hafi bara verð allt í plati, ljúga og pretta etc. - nær ekki nokkurri átt !
Yfirlýsingar ísl. ráðamanna í þessu máli teljast lagalega bindandi að þjóðarrétti.
07.02 2010 kl.14:14
Slóð
Það eru til 1000 fréttir um það að Bretar og Hollendingar hafi sjálfir lagt út fyrir Icesave-tjóni - en Íslendingar skuldbundu sig til þess að gangast við greiðsluábyrgð.
Það sem Kristrún er að tala um eru Brussel-viðmið - Brussel-viðmið eru ekki neinir samningar - Brussel-viðmið er samkomulag þessara þjóða um að ná pólitískri sátt.
Hvort Kristrún fyrrum aðstoðarmaður Ingibjargar Sólrúnar, þrátt fyrir að vera sjálfstæð persóna, telur pólitískar áherslur samninganefndar Svavars Gestssonar hafa samrýmst aherslum Ingibjargar Sólrúnar - veit ég ekki.
En það er verið að tala um ákvörðun þriggja þjóða um að hafa pólitísk viðmið að leiðarljósi.
Jóhanna Sigurðardóttir var trúlega í þeim leiðangri í síðustu viku.
07.02 2010 kl.14:24
Slóð
Ómar Kristjánsson,
Hvenær eru lán - sem ríkið tekur ekki - orðin þjóðréttarlega skuldbindandi..? Ja - hérna!
Síðan hvenær þarf ekki að skrifa undir lánaskjöl - þegar lán eru tekin..?
Síðan hvenær þarf sá sem tekur lán ekki að hafa heimild til þess fyrir hönd þess sem á að greiða..?
Alltaf sama þvælan!
Og þegar einhver segist ætla að standa við skuldbindingar sínar - þá að sjálfsögðu hefur hann þau mannréttindi að fá úr því skorið fyrir dómstólum hverjar þær eru.
Þess vegna, minn kæri, mun Comon ekki borga þér neitt - þó svo hann ætli að standa við allar sínar skuldbindingar skv. öllum tilskipunum og EES samningum - gagnvart þér.
Og ef þú reynir að innheimta eitthvað - þá skalt þú fara með það fyrir dómstól og fá dóm um það að krafan sé löglög, rétt og innheimtanleg.
Þú getur sagt fyrir dómnum að Comon hafi lofað að standa við allar sínar skuldbindingar.
Og sjáðu hvað það hefur mikil áhrif..!
Og - farðu svo að hætta þessu bulli.
07.02 2010 kl.14:37
Slóð
Kristrún hraunaði yfir VG í Silfri Egils núna áðan.
Sagði að VG hafi einir tekið yfir ICESAVE samningaferlið og klúðrað því algerlega.
Það verður gaman að sjá hvernig VG svara.
Undirlægjuháttur VG er þekktur, en það hljóta að vera einhver takmörk.
07.02 2010 kl.14:46
Slóð
Gunnlaugur,
Ekki sanngjarnt að tala um VG - sem heild.
Ögmundur og margir fleiri reyndu að standa í lappirnar.
Þetta var Steingrímsarmur VG.
07.02 2010 kl.14:46
Slóð
Í umræddu tilfelli er alveg ljóst hver skuldbindingin er og á hvaða forsendum.
Þar er EES samningurinn undir ! Eigi flóknara en það.
Það sem eftir á að hyggja eg finn aðallega a framsetningu Kristrúnar er, að hún gefur undir fótinn þessu “borgum ekki” tali.
Segir td. að ekki hafi borið á neinum aðgerðum af álfu Breta þó enn sé ekki búið að ganga frá málinu og neitun forseta etc.
Excuse me ! Eh hefur það farið framhjá henni að allir, rípít, ALLIR, þ.e. stjón, stjórnarandstaða, indefens, forseti o.s.frv. - hafa gengið hönd í hönd útum allan fokking heiminn og sagt: Við borgum, við borgum ! Bara spurning um greiðslufyrirkomulag og vexti.
Nei, eg skal segja ykkur það, að það að segja borgum ekki - þð þýðir EES samningurinn í uppnám, allt í handaskol, fljótlega gjaldþrot landins o.s.frv. os.frv.
þessvegna heilt yfir skil eg ekki uppleg kristrúnar. Skil það bara ekki - og svo var einna helst að skilja á henni í silfrinu að það sem hún gerði aðallega athugasemd við í samningum væri að vextir reiknuðust frá jan 2009. Allt og sumt.
07.02 2010 kl.14:50
Slóð
Hvar hefur Kristrún og Samfylkingin verið þessa síðustu átta mániði eða svo. Nú drífur hún sig í meyjarhaftsaðgerð og ætlast til að við trúum á hreinleika hennar og visku.
Samfylkingin var tilbúin að greiða atkvæði með Svavars-samningnum óséðum og líka þegar þeir lágu fyrir og Samfylkingin hafnaði meiri upplýsingum um klúður samningsmanna þegar þær buðust.
Trúir einhver á afturbatap***r í dag.
07.02 2010 kl.15:21
Slóð
Núna er framundan hjá þessari þjóð að gera upp við sig hvernig hún sækir bætur á hendur Hollendingum og Bretum fyrir yfirganginn..
Skaðinn sem þeir hafa valdið þjóðarbúinu er ómældur - trúlega margfaldar endurgreiðslur á Icesave...
Hryðjuverkalögin og þessi einhliða lántaka Breta og Hollendinga eru þau tvö atriði sem eftir er að leggja kostnaðarmat á ...
Viljum við ekki fá skaðann bættann ?
07.02 2010 kl.15:33
Slóð
“Hryðjuverkalögin og þessi einhliða lántaka Breta og Hollendinga eru þau tvö atriði sem eftir er að leggja kostnaðarmat á ...”
Eigi relevant og margbúið að fara yfir.
Í fyrsta agi var ekki um hryðjuverkalög að ræða. Það voru Frystingarlög. Og í annan stað margsamþykktu ísl. stjórnvöld og stofnanir er um slík mál helst sýsla lántökrnar. Margsamþykktu. Bæði í orði og á papír og mælist þyngd slíkra yfirlýsinga ekki í kílóum. Nei í tonnum !
Slíkar yfirlýsingar ráðamanna eru lagalega bindandi að þjóðarrétti.
Sem dæmi um hve lánasamningurinn er í raun hagstæður er, að hann fer framúr viðmiðum Parísarklúbbsins í tilfellum þjóða í skuldavandamálum !
07.02 2010 kl.15:59
Slóð
Ómar Kristjánsson,
EES samningurinn..! Stendur í honum að Íslendingar ætli eða eigi að borga Icesave...?
Hættu nú alveg..! Eru engin takmörk fyrir vitleysunni í þér?
Þú þvælist úr eini víginu í annað, úr einni skotgröfinni í aðra...!
Staðreyndin er að lagaleg skylda á Íslendingum er ekki til staðar.
Annars er líklegra að fá víðsýni í rökræðum um Múhameð við Osamin Bin Laden - en ræða Icesave við þig.
07.02 2010 kl.16:00
Slóð
Hvernig nennir þú þessu bulli Ómar?
07.02 2010 kl.16:00
Slóð
@ Ómar - ég einfaldlega finn hvergi heimildir fyrir hvaðan þú hefur þessa “lögspeki” þína - og er ég ítrekað búin að eyða miklum tíma í að elta uppi hvaðan í ósköpunum þú hefur þessar fullyrðingar sem þú setur fram...
07.02 2010 kl.16:15
Slóð
Samfylkingin kenndi Sjálfsæðisflokknum um hrunið.
Samfylkingin kenndi Sjáfstæðisflokknum um Icesave.
Samfylkingin ber enga ábyrgð á gerspilltum Bjögga Bankamálastjóra.
Samfylkingin kennir Davíð um að Steinunn Valdís þáði mútur.
Samfylkingin kennir Davíð um að ISG fór um allan heim og mærði bankana
Samfylkining kennir Davíð um styrkina/múturnar sem hún þáði.
Samfylkingin kennir Svavari og VG um Icesaveklúðrið.
Samfylkingin mun kenna Steingrími J. S um að ríkisstjórnin springur
Samfylkingin mun segja að VG hafi verið sundurtættur flokkur
07.02 2010 kl.17:24
Slóð
Eg get bara ekki hætt að undrast furðulegan málfltning Kristrúnar - td. með að bretar hafi ákv. að bæta innstæðueigendum einhliða etc - hva átti þá ekkert að bæta B&H innstæðueigendum tapið ? Áttu þeir bara að eta að sem úti frýs enn þann dag í dag ? Og áttu bretar bara að segja: Já já íslendingar svíkja og pretta eins og venjulega - verðum ara að taka því hundsbiti o.s.frv Og Darling í frh. að segja: Sorrý, þið verðið að fara upp til Reykjavíkur og spurja Kristrúnu hvort hún eigi einhvern aur !
Veit ekki, mér finnst þessi málflutningur hennar ekki boðlegur og ekkert á leveli sem kalla er. Og maður er farinn að dauðskammas sín fyrir að vera íslendingur.
Sumir íslendingar hafa svo einkennilegann hugsunarhátt að fáheyrt er. Maður skammast sín fyrir suma samlanda sína.
07.02 2010 kl.17:43
Slóð
Heilbrigð skynsemi óskast 16.15
Þú hittir naglan á höfuðið. Þetta er einmitt málið.
07.02 2010 kl.17:50
Slóð
Ómar... þú ert svo mikið tröll!!
07.02 2010 kl.18:04
Slóð
Vonandi gera allir sér grein fyrir því nú að SAMSPILLINGIN er ekki STJÓRNTÆKUR stjórnmálaFLOkkur - stórhættulegur FLokkur. En spunameistar þeirra kenna auðvitað öllum öðrum um, síðast var þetta allt “ekki meir Geir að kenna” - nú er þetta allt VG að kenna. Þingmenn X-S mega svo sannarlega skammast sýn, samþykkja IceSLAVE án þess að lesa yfir samninginn og verja hann síðan endarlaust á alþingi og tala ávalt um að “aðrir þingmenn séu að þvælast fyrir á björgunarstað...lol..!” Nei, staðreyndin er að þjóðin & vissir þingmenn eru að reyna að koma í veg fyrir áframhaldi brennuverk Samspillingarinnar. Nú er mál að linni, þið sem kjósið þennan AUMA FLokk, hvernig getið þið réttlæt slíkt? Ég skil þá sem kjósa Ránfuglinn (Bófaflokkinn) því sá FLokkur er í því að verja “auðRÓNA & bófa”, ég skil þá sem kjósa Framsókn (50-50 skipti), en mér er alveg fyrirmunað að skilja fólk sem kýs X-S bara út á það eitt að EB muni bjarga hér öllu.
Ekki gleyma lesendur góðir að frá byrjun hafa núverandi stjórnvöld beit ítrekað “lygum & grófum blekkingum” í umfjöllun um IceSLAVE. Hér átti allt að hrynja EF ekki yrði skrifað strax undir, og endarlaust setur fram villandi HRÆÐSLUÁRÓÐUR til að hræða fólk til að taka á sig “drápsklyfjar”. Já SteinFREÐUR & Jóhanna tóku að sér að ganga í lið með handrukkurum AGS, EB, UK & Hollands. Frá byrjun hafa þau “varið og talað mál UK - Hollands gegn þjóðinni” og ávalt var sagt að ekki væri hægt að ná betri samningum. Nú eru spunameistar Samspillingarinnar að upplýsa að hægt sé að ná betri samningi....lol....! Farið frá sem fyrst, þið valdið ekki því að stýra þjóðarskútunni. Annað eins DRASL hefur ekki setið í ríkisstjórn síðan á steinöld. Nú er mál að linni, þið eruð bara að þvælsta fyrir.
kv. Heilbriðg skynsemi (fun.blog.is)
07.02 2010 kl.19:42
Slóð
Ingibjörg Sólrún klauf Kvennalistann á nákvæmlega sama hátt og hún gerir núna, teflir fram lepp til að skrifa grein sem er henni sjáfri í hag eftir að hafa komið smjörklípunni um Spron hneyksli Össurar út í miðlana til að fela eigin slóð. Ingibjörg Sólrún þolir ekki Össur, það vita allir.
07.02 2010 kl.20:51
Slóð
Þetta er frábær grein Kristrúnar. Hún upplýsir gerræði og heimsku Steingríms. Hann bullar út í eitt - mælskur eins og ég veit ekki hvað. En, hefur ekki hundsvit á alvöru málsins og skynjar ekki einin vanhæfni. Þess vegna eru við í þessari stöðu - tómu tjóni. Það er ekki við að búast að hann viðurkenni mistök og heimsku sína en það erum við, þjóðin , sem getum staðið saman og stöðvað ósómann í þjóðaratkvæðargreiðslunni.
07.02 2010 kl.23:07
Slóð
Nú fjarar hratt undan Samfylkingunni. Samfylkingin er eins og Titanic, sökkvandi skip sem er á leið til glötunar.
07.02 2010 kl.23:10
Slóð
Já já. Þetta er nú málið.
Það vantar Brussel viðmiðin inní lánasamningin.
Ef þau væru þarna - Allt í gúddí.
Hvað þarna hefur gerst - tveir möguleikar.
1. Svavar hefur gleymt brussel viðmiðunum á flugvelli - líklega í kaupmannahöfn.
2. Svavar hefur stungið þeim undir stól einhversstaðar - líklega útí Brussel.
Þetta verður að leysa náttúrlega og verðu þegar í staða að láta auglýsa í kallkerfinu á Kastrup eftir Brussel viðmiðunum og í annan stað setja á stofn leitarflokk og leita undir öllum stólum í brussel.
Þetta tekur stuttan tíma og koma Brussel viðmiðin fljótlega í leitirnar.
Þá er bara að skella þeim inní samninginn. Uuuu sem lítur þá út - Hvernig ??
(Einhver vitlausasta umræða sem ég hef heyrt nýlega - ja fyrir utan kannski hugmynd Njálu-lögspekinga um að evrópuinnlánstrygging sé beisiklí engin trygging. “Vantar Brussel-viðmiðin í samningin” Hahaha hillaríus)
07.02 2010 kl.23:18
Slóð
Er Kristrún að uppgötva þetta núna?????? Þessu hefur verið haldið fram af ALMENNINGI og fleirum í langan tíma.
08.02 2010 kl.00:02
Slóð
Ómar,
Geisp. Zzzzz
08.02 2010 kl.10:20
Slóð
áhugamaður um fjölmiðla
06.02 2010 kl.16:31
“Loksins að eitthvað heyrist að viti úr ranni samfylkingar þar sem þögnin hefur einkum ríkt “.
Mér kom málflutningur Kristrúnar Heimisdóttur þannig fyrir sjónir, að hún væri annars vegar að beina sjónum okkar, sem erum reið ESB vegna Icesave málsins, að því, að mistökin hafi einmitt verið þau, að gera ESB ekki að sáttasemjara í Icesavemálinu. Ég hafna þessu mati hennar. Hins vegar tek ég undir með henni, að Steingrímur hefur haldið illa á þessu máli. En að ætla að varpa allri sök á VG, eins og Kristrún reynir að gera, með lúmsku höggi undir beltisstað, er einum of augljóslega pólitískur spuni, enda hér á ferð spunakerling ISG. Það er himinhrópandi sannleikur, að Samfylkingin, ein íslenskra stjórnmálaflokka, studdi Icesave samninginn einhuga á Alþingi. Innan VG var mikil óánægja, þótt SJS tækist að hræða nógu marga þingmenn úr eigin flokki til að samþykkja málið til að það næði fram að ganga. Engu að síður greiddu nokkrir þingmenn VG atkvæði gegn Icesave samningnum. Hin pólitíska ábyrgð á samningnum hvílir því þyngra á Samfylkingunni en VG. Kristrún: Við sjáum í gegn um þig, þrátt fyrir að þú sért lævís og lipur!
08.02 2010 kl.10:24
Slóð
Þetta tal Kristrúnar um ëinhver að “Brüssel viðmið” hafi gleymst, er augljóslega leið hennar til að reyna að hvítþvo ESB af sökinni á því, hvernig ESB bakkaði upp ýtrustu kröfur Breta og Hollendinga. Sorry Kristrún, þetta er ekki að virka! Sannleikurinn er of augljós: ESB var sameinað í andstöðu sinni við málstað íslensku þjóðarinnar og vildi gera hana að blóraböggli, til að ekki þyrfti að reyna á haldleysi reglugerðaruglsins frá Brüssel.
08.02 2010 kl.11:44
Slóð
Það ætti ekki að þurfa að vara kjarneðlisfræðingur að átta sig á að ekki stendur steinn við steini í því sem heitir Brussel viðmiðinn. Þegar þjóðirnar 3 koma sér saman um að þau eiga að vera afgerandi þáttur og leiðarljós í áframhaldandi samningaviðræðum og með ví var ákveðið að minnisblað (MoU) Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks er fallið úr gildi við Hollendinga, ma. vegna þess að Bretar bættust inn sem samningsaðili, og að ný ríkisstjórn hafði tekið við á Íslandi og samninganefnd Svavars Gestssonar.
Skoðum Brussel viðmiðin aðeins nánar. Tek út úr með sviga þá liði sem sannanlega voru virtir að vettugi, og einstakalega lélegt að reyna að halda því fram að engu máli skiptu. Ef tilfellið var að réttur Íslendinga var ekki virtur að þessum samþykktu liðum, hvers vegna hefði það átt að vera gert þar sem engar fyrirfram gerðar samþykktir voru til um?
1. Ríkisstjórn Íslands hefur átt viðræðufundi með stofnunum Evrópusambandsins og hlutaðeigandi aðildarríkjum þess um skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið að því er tekur til tilskipunar um innistæðutryggingar 94/14/EB. Aðilar komu sér saman um að tilskipunin um innistæðutryggingar hafi verið felld inn í löggjöfina um Evrópska efnahagssvæðið í samræmi við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og gildi því á Íslandi með sama hætti og hún gildir í aðildarríkjum Evrópusambandsins.
[[ 2. Viðurkenning allra aðila á þessari lagalegu stöðu greiðir fyrir skjótri niðurstöðu þeirra samningaviðræðna sem nú standa yfir um fjárhagsaðstoð við Ísland, þ.m.t. við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þessar samningaviðræður skulu fara fram með samhæfðum og samræmdum hætti og skal þar tekið tillit til hinna erfiðu og fordæmislausu aðstæðna sem Ísland er í og knýjandi nauðsynjar þess að ákveða ráðstafanir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármála- og efnahagskerfi sitt.]]
[[[ 3. Stofnanir Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins munu taka áframhaldandi þátt í þessu ferli sem fer fram í samráði við þær.“]]]
Að í orðunum „með samhæfðum og samræmdum hætti“ í 1. lið og í ákvæði 3. liðar felist ótvíræð skírskotun til þess að líta megi á viðfangsefni samningaviðræðnanna sem sameiginlegt vandamál er varði ekki aðeins ríkin þrjú heldur einnig stofnanir ESB og EES og önnur ríki innan vébanda þeirra, sbr. 3. tölul. hinna umsömdu viðmiða.
Öllum ætti að vera ljóst að liðir 2 og 3 hafa af einhverjum undarlegum ástæðum ekki verið virtir, og þá má ganga út frá því sem vísu að samninganefnd stjórnvalda hafi þá ekki viljað nýta sér þá. Hvers vegna verður að rannsaka af rannsóknarnefnd eins og alla Icesave göngu núverandi valdhafa.
Það sem bendir til að íslens stjórnvöld hafi gert einhvern dularfullan leynisamning um að ekki yrði krafist fullnustu þessara liða með ofbeldi mótaðila eður ei, því það kemur skýrt fram í Icsave2 samningunum að Íslendingar viðurkenni að Brussel viðmiðin hafi verið virt að öllu, og að ekki verði möguleiki á að höfða mál síðar um að svo hafi ekki verið gert, eða nýta í neinskonar málsóknum sem síðar gætu farið á stað vegna samningsins.
HVERS VEGNA Í ÓSÖPUNUM ÞARF AÐ TAKA SLÍKT OG ÞVÍLÍKT SÉRSTAKLEGA FRAM EF AÐ VIÐ SAMKOMULAGIÐ VAR STAÐIÐ?
ER EKKI LÖNGU MOMIN TÍMI TIL AÐ FÓLK VAKNI?