Actavis hefur ákveðið að stækka lyfjaverksmiðju sína í Hafnarfirði. Í kjölfarið verða til meira en 50 ný störf hjá fyrirtækinu og framleiðslugetan á Íslandi eykst um 50%. Framkvæmdir hefjast fljótlega og er áætlað að framleiðsla í nýja hlutanum fari af stað um næstu áramót.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
Í tilkynningunni segir að framleiðslan á Íslandi gegni mjög mikilvægu hlutverki við markaðssetningu á nýjum lyfjum Actavis samstæðunnar. Afkastageta verksmiðjunnar aukist við stækkunina úr u.þ.b. einum milljarði taflna á ári, í um einn og hálfan, eftir samsetningu framleiðslunnar hverju sinni. Verksmiðjan hafi verið keyrð á hámarksafköstum frá miðju síðasta ári. Með stækkuninni verði rekstur verksmiðjunnar enn hagkvæmari en hann sé í dag og samkeppnishæfni hennar aukist, en um 95% af framleiðslunni séu seld erlendis.
Fram kemur að gert sé ráð fyrir um 50 nýjum störfum eftir stækkunina í árslok 2010. Um 75% þeirra séu í framleiðslu, en einnig ýmis tengd störf. Auk þessa sé nú þegar verið að fjölga starfsfólki til að anna þeirri eftirspurn sem sé framundan á árinu, en Actavis auglýsti eftir fólki til starfa um helgina.
.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
19 ummæli
Rita ummæli08.02 2010 kl.09:59
Slóð
Þótt auðróninn Björgúlfur Thor eigi fyrirtækið (ennþá) hlýtur maður að fagna svona fréttum í annars ömurlegu ástandi. Já, það er illa komið fyrir okkur, að þurfa að fagna frjárfestingum manns, sem hefur stolið af þjóðinni hundruðum milljarða króna.
08.02 2010 kl.10:02
Slóð
þetta hefur ekkert með BTB að gera þetta er dautche bank sem þarna er að verki.
08.02 2010 kl.10:03
Slóð
S.Á.
Björgólfur Thor leggur aldrei til krónu sjálfur.
Þessi stækkun er tekin að láni, spurningn er bara hver lánaði, og þarf svo að afskrifa.
Og hverjir verða það sem borga lánið þegar upp er staðið.
Ætli hluti þess lendi hjá mér?
08.02 2010 kl.10:05
Slóð
Sammála #1 hver situr uppi með reikninginn á endanum ??
08.02 2010 kl.10:21
Slóð
Spilaborg?
08.02 2010 kl.10:24
Slóð
Actavis er glæsilegt fyrirtæki og eitt af örfáum í eigu “útrásarvíkinga” sem þjóðin græddi á þegar Björgúlfur keypti það. Hvort að Björgúlfur getur síðan staðið í skilum við erlenda lánadrottna er hans mál, en vonandi getur hann það.
08.02 2010 kl.10:35
Slóð
Actavis virðist að mestu undir stjórn Deutche Bank í dag.
Það sem er athyglisvert við fréttina er staðfesting bankans á að íslenska krónan hafi gert Ísland að láglaunasvæði um nokkra framtíð og gert landið mjög samkeppnishæft við önnur láglaunasvæði í Evrópu. Þetta er kölluð “róttæk kjararýrnun án blóðsúthellinga ” og þykir afar snjallt.
08.02 2010 kl.10:41
Slóð
Þökk sé lágu gengi.
08.02 2010 kl.10:56
Slóð
vantar enn meri lyf svo lýdurinn geti gleimt ástandinu :-)
08.02 2010 kl.11:59
Slóð
Kannski ekki svo skrítið þar sem ekki virðist vera útskrifuð “lyf” á landinu nema þau séu frá Actavis
08.02 2010 kl.12:28
Slóð
Á ekki að kjósa um þetta?
08.02 2010 kl.13:01
Slóð
Eins og er þá er þetta bara tilkynning. Spái því að þetta verði aldrei meira en tilkynning og að engin fjölgun verði á störfum þarna. Þetta er bara gert til að slá ryki í augu almennings.
08.02 2010 kl.13:57
Slóð
Rosalegur biturleikir er í gangi hjá landanum og rosalega er fólk almennt illa upplýst. Actavis er algjörlega fjármagnað af Deutsche Bank og ef félagið fer á hausinn þá tapa hlutahafar í Deutsche bank eingöngu.
Actavis á Íslandi veitir atvinnu fyrir um 600 manns sem borga skatta til hins opinbera, sem síðan dreifir sköttunum út til samfélagsins.
Maður skildi ætla að svona fréttir þar sem talað er um ný störf myndu vekja ánægju almennings en það er greinilegt að fólk sem ekki nennir að vinna eða kynna sér málin hefur nægan tíma til að koma með heimskulegar athugasemdir á blogginu.
kveðja frá Køben!!
08.02 2010 kl.14:22
Slóð
Krónprinsinn
08.02 2010 kl.13:57
Að sjálfsögðu er biturleiki í fólki í dag, mér finnst það gott mál að það komi upp efasemdir þegar svona “fyrirtækið mun græða meira” fréttir.
Við sem erum að borga fyrir ævintýri síðustu ára, eigum fullann rétt á því að vera á varðbergi gagnvart svona fréttum. ég nefni nú ekki að Björgúlfur er enn tengdur þessu fyrirtæki....og það hefur hingað til ekki leitt til góðs..
08.02 2010 kl.14:39
Slóð
Landsbankinn og Kaupþing lánuðu 100miljónir evra hvor þegar Björgólfur tók yfir Actavis.
http://www.vb.is/frett/1/57261/
Þannig að þýski bankinn var nú ekki einn í þessu, og það liggur fyrir að afskrifa stórar upphæðir af skuldum Actavis. Bara óhjákvæmilegt.
Er þá óeðlilegt að spyrja hver fjármagnar stækkun?
Eru það nýju bankarnir?
Eða lífeyrissjóðir?
Icesave sjóður á Tortóla?
Hver borgar þá þegar upp er staðið?
Ekki er það Björgólfur, það er á hreinu.
Hann hefur aldrei lagt út krónu í neinar “fjárfestingar” úr eigin vasa.
08.02 2010 kl.16:50
Slóð
Voðalegir aumingjar sitja hér og commenta.
A. Acatvis er í eigu Novators eignarhaldsfélags sem er í eigu BTB
ekki heyrir maður svona bull um Símann ! en er hann þó skv sömu skilgreiningum misgáfaðra sjálfskipaðra sérfræðinga í eigu Lýðs og Ágúst þar sem þeir “eiga” exista (eða áttu) sem á Skipti sem á svo símann.
Vissulega á Björgúlfur þegar upp er staðið Actavis en í raun er það DB sem segir já eða nei.
Hefði haldið að það væri jákvætt að fá 50 ný störf hingað þegar ekkert nema fækkun starfa hefur verið hingað til
eða eruð þið svona sáttir á atvinnuleysisbótunum að þið nennið ekki að vinna er það málið ?
08.02 2010 kl.17:17
Slóð
Jóhann Helgason.
Hrunið hefur ekki kennt þér neitt.
Það að þér sé sama hvernig Björgólfur fjármagnar stækkun á Actavis er beinlínís sorglegt.
Hann skapaði líka mörg störf í Landsbankanum.
Hvað hafa þau störf kostað okkur þegar upp er staðið?
Fyrir utan alvarlegustu milliríkjadeilu frá þorskastríði.
Þetta er bara spurning að hugsa aðeins lengra fram í tímann en síðast.
Hjá mér kvikna allar aðvörunarbjöllur og rauð ljós loga úr öllum áttum þegar þessi maður fer að “fjárfesta” fyrir fé annarra.
08.02 2010 kl.17:19
Slóð
björgólfur hefur alltaf fjárfest í láglaunalöndum og þarna er eingin breitting á . það er ódýrara vinnuafl á íslandi núna en viðasthvar í austurevrópu við nefnum ekki evrópu í þessu samheingi. t.d er liháenskt fyirtæki að reisa 2 skóla núna fyrir reykjavíkurborg og þeir nota eingögnu íslenskt vinnuafl því þar er ódýrara
09.02 2010 kl.02:32
Slóð
Er Svandís nokkuð búin að leyfa þetta? Stækkunin þarf að fara í skipulags- og umhverfismat og það er eins gott að Svandís stöðvi þetta líka!