Arion banki hefur stefnt Björgólfi Thor Björgólfssyni vegna vanefnda á greiðslu á láni sem Björgólfsfeðgar tóku hjá gamla Búnaðarbankanum til að greiða stóran hluta af kaupverði gamla Landsbankans. Bankinn stefnir Björgólfi Thors einum, þar sem faðir hans er þegar gjaldþrota.
Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2.
Lánið var veitt árið 2003 til eignarhaldsfélags þeirra feðga, Samson ehf, og nam það upphaflega um 3,4 milljörðum króna. Björgólfsfeðgar hafa ekkert greitt af láninu og stendur skuldin í um sex milljörðum króna í dag.
Tilvist lánsins var ekki gerð opinber fyrr en eftir bankahrun, en fram að því var almennt talið að Björgólfsfeðgar hefðu greitt kaupverð Landsbankans út í hönd með meintum hagnaði þeirra í viðskiptum í Rússlandi. Þrátt fyrir verulegan hagnað af rekstri bankans og milljarða arðgreiðslur til Björgólfsfeðga á árunum 2003 til 2008 greiddu þeir ekkert af láninu.
Í apríl í fyrra sagði Björgólfur Thor að þeir feðgar ætluðu ekki að hlaupast burt frá skuldinni, eins og Eyjan greindi frá.
Talsmaður Björgólfs Thors sagði við fréttastofu Stöðvar 2 að Björgólfi væri ekki kunnugt um málshöfðunina og að hann vissi ekki betur en að hann væri enn í samningaviðræðum um skuldina.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
45 ummæli
Rita ummæli08.02 2010 kl.18:56
Slóð
við hjótum að mótmæla var það ekki stefnan að bara að níðast á heimilum landsins og láta almening borga. það gengur ekki að hann fái ekki niðurfellingu eins og aðrir útrássarnýðingar og haldi fyrirtækjum sínum.
08.02 2010 kl.19:01
Slóð
BT stefnt vegna 6 miljarda, en á sama tíma fá bónus kókið og bónus pabbi fellt niður 50 miljarda
08.02 2010 kl.19:01
Slóð
Draslfrétt?
Ef eignarhaldsfélagið var lántakinn, þýðir lítið að stefna BTB persónulega. Ekkert segir um það í þessari frétt að persónuleg ábyrgð hafi verið fyrir hendi. Þvert á móti segir “Lánið var veitt árið 2003 til eignarhaldsfélags þeirra feðga, Samson ehf”.
Furðulegt ef satt er að ekkert hafi verið greitt af láninu. Hvenær var fyrsti gjalddaginn? Var þetta kannski kúlulán með fyrsta gjalddaga 2009 eða 2010? Illa unnin frétt.
08.02 2010 kl.19:01
Slóð
vaeri ekki löngu búid ad gera venjulegann borgara gjaldthrota fyrir margfalt minni upphaed, jú alveg öruglega. Thetta eyland er nú bara ótrúlegt lol...
08.02 2010 kl.19:04
Slóð
Þarf hann ekki bara að fá hærri skattaívilnanir?
Ég er ekki viss um að það sé neitt sérstakt tilefni til þess að fagna því að hann sé að stækka verksmiðju Actavis í dag.
50ný störf, en hver borgar?
Hann sér enga ástæðu til að borga bankann sem er valdur að stærstu milliríkjadeilu í sögu þjóðarinnar.
Ég vona að það sé hvorki ríkisbankinn, eða lífeyrissjóður sem er að lána þessum manni fyrir stækkun Actavis í dag.
Ég get bara ekki borgað meir fyrir þennan mann.
08.02 2010 kl.19:18
Slóð
Ahmmm þar er komin skýringin á fréttinni um nýju störfin hjá Actavis... eins konar nýju fötin keisarans frétt.
08.02 2010 kl.19:23
Slóð
þettta er allt svo mikið djók. Finnur að reyna að leiða athyglina frá Haga hneykslinu (50 milljarðar afskrifaðir) að BTB (6 milljarðar). Grín, grín, grín. Hvernig vogar þetta lið sér að koma svona fram við almenning?
Svo skal böl bæta að benda á eitthvað annað... NOT!
08.02 2010 kl.19:25
Slóð
Skrípaleikur
Í skilanefndum er skrítið skilningslítið fólk.
Getur ekki sett sig í spor almennings,bara glæpamanna,
08.02 2010 kl.19:28
Slóð
Er Arionbanki komin í andlitslyftingu?
Er ekki sjálfsagt að almenningur borgi þessar skuldir fyrir hann eins og Icesave skuldirnar?
Getur ríkisstjórnin ekki reddað þessu fyrir hann líka?
Hann verður að fá að halda sínu þýfi og við lánum honum svo auðvitað til að stækka Actavis, hvað annað?
08.02 2010 kl.19:30
Slóð
Er hann ekki vina og skuldaniðurfellinga hópnum ?
08.02 2010 kl.19:32
Slóð
Smjörklípa...
Til að þagga niður Haga og Samskip málið.
Voru allan daginn að redda þessu.
08.02 2010 kl.19:55
Slóð
Það var þá komin tími til. Þarf þá ekki Bjöggi litli Þór að svara einhverju. Eins og fram kemur þá man hann ekki og veit bara ekkert um hvað þetta mál snýst. Veit ekkert og man þaðan af síður nokkuð.
Allir eiga að taka mark á þessu þvaðri, enda hefur hann fengið að gambla og þvaðra í 5 ár.
Stjórnmálamenn hafa staðið við hlið hans eins og plek í prentara. Stjórnmálamenn hafa látið hann í friði. Hann hefur slík hreðjartök á ráðamönnum að þeir kjósa að þegja þunnu hljóði yfir þessum auðróna.
Hvað er það sem hann veit og hvaða hreðjatök hefur þessi auðróni yfir og allt um kring á ráðamönnum okkar?
Kemur vonandi í ljós í byrjun mars.
Hann greiðir ekkert af lánum, man ekkert og kemst upp með slík svik við þjóðina að hann
kemst í sögubækurnar sem svikahrappur númer eitt, tvö og þrjú.
Hann Björgólfur Þór er slíkur siðleysingi að honum finnst í lagi að næstu kynslóðir borgi fyrir hann, hans einkaneyslu og prívatsukk.
Hann heldur áfram með stuðningi ráðleysingja þessa lands, sem vita upp á sig skömmina.
Áfram heldur þessi risarotta í leyt að æti.
08.02 2010 kl.19:57
Slóð
Bara útspil hjá Kauþingi til að bjarga sínu eiginn rassgati því almannaálit á bankanum er að hrinja niður í ekki neitt og viðskiptavinir á flotta vegna þess.
08.02 2010 kl.19:59
Slóð
Gaman væri að vita hvaða bankastjórar Búnaðarbankans samþykktu þessa
lánveitingu, því á þessum tíma lá ekki fyrir hverjar eigur Björgúlfsfeðga voru.
08.02 2010 kl.20:01
Slóð
Er Arion að gera þetta til að fá frið til að gefa uppáhldsklíkuvinunum enn meiri peninga; afsaka, ,,endurskipulagningu skulda” ?
Erum við svona heimsk að við látum þetta viðgangast, eða heldur bankinn, síðast þekktur sem Arion, að við séum svona heimsk og því látið viðgangast ?
Hvort er réttara ?
Einhver er ástæðan fyrir því að Arion býður nú uppá þessa frétt um Björgólf Thor, greinlega er hann dottinn af listanum hjá þeim, þar sem þeir ætla sér vikilega að rukka hann. Starfsfólk Arion þarf að vita að allt tapað fé er farið til Peningahimnaríkis og því útilokað að endurheimta það.
08.02 2010 kl.20:07
Slóð
Lánið var veitt án vitneskju stjórnar BB sem síðan var seldur til Tortóla og félaga? Ekki mikið mál að tengja þetta samann. Fá Eyjuna í að ritskoða verkefnið!!!
08.02 2010 kl.20:08
Slóð
Ekki það að ég telji að það eigi að sýna Björgúlfi einhverja miskun, en þetta sýnir okkur eina ferðina enn, hvað Jón Ásgeir er heppinn að eiga Samfylkinguna.
08.02 2010 kl.20:11
Slóð
iss, 6 milljarðar?
það eru bara 2 mánaða vaxtagreiðslur af icesave.
60 dagar Í VEXTI.
08.02 2010 kl.20:23
Slóð
Súrrealsismanum í þessu landi er engin takmörk sett.
08.02 2010 kl.20:29
Slóð
Nú er Arion banki í eigu erlendra aðila fyrst og fremst og það á að hámarka virði þessar eignar sem hann er. Ég skil ekki alveg hvernig hann hámarkar eignir sínar með því að vera “vinur” Jóns Ásgeirs. Finnst það frekar langsótt samsæri. Það er vitað mál að Bjöggi á 6 milljarða. Það er vitað mál að JÁJ á ekki 50 milljarða (allavega ekki uppi á borðunum).
Þetta er ekkert sérstaklega flókið dæmi varðandi fjárhagslegu hliðina.
Siðferðislega hliðin er annað mál. Lög eiga að sjá um að halda siðleysinu í lágmarki. Ekki kæri ég mig um að Finnur, Birna eða Ásmundur séu að setja siðareglur samfélagsins og ákveða hverjir eru góðu gæjarnir og hverjir ekki. Fólk sem skrifar hérna og ber fyrir sig glæpi JÁJ er að fara fram á að Finnur setji sig á æðri stól og dæmi kúnna sína þaðan eftir sinni eigin siðferðisvitund... það veit ekki á gott. Þetta fólk á bara að reka sinn banka og hugsa um fjármál en ekki siðferði. Lög og reglur eiga að sjá um slíkt. Þ.e. Alþingi og dómstólar.
08.02 2010 kl.20:36
Slóð
Þessi viðskipti bera öll einkenni samsæris valdastéttarinnar á Íslandi sem með þessum hætti rændi bönkunum úr eigu þjóðarinnar. Það er ekki bara BTB sem ber ábyrgð í þessu máli, það er öll stjórnmálastéttin sem bar ábyrgð á einkavæðingunni og skipaði í bankaráðin á meðan bankarnir voru í eigu ríkisins. Það eru bankaráðsmennirnir sem tóku þátt í því með umboði frá stjórnmálaflokkunum og Alþingi að ræna bönkunum frá þjóðinni og koma þeim í hendur fjárhættuspilara. Allir þeir sem tóku þátt í þessum leik hafa notið þess í fjárhagslegum forréttindum og svo virðist sem hinir nýeinkavæddu bankar séu nú einmitt að setja varnarmúr um þetta spillta lið, sem þjóðin virðist vilja kjósa yfir sig aftur og aftur.
08.02 2010 kl.20:40
Slóð
Hvernig eru þessar svokölluðu starfsreglur hjá Kaupþingi. Finnur þarf að svara því af hverju hann stefnir einum vegna 6 milljarða skuldar með sjálfsábyrgð en semur við annan um tugmilljarða afskriftir og forkaupsrétt á fyrirtæki sem selur hálfri þjóðinni nauðsynjar.
08.02 2010 kl.21:25
Slóð
Í fréttinni segir:
“Tilvist lánsins var ekki gerð opinber fyrr en eftir bankahrun, en fram að því var almennt talið að Björgólfsfeðgar hefðu greitt kaupverð Landsbankans út í hönd með meintum hagnaði þeirra í viðskiptum í Rússlandi.”
Þessu hefur nokkuð verið haldið fram eftir bankahrunið og reyndar ýmsu fleiru sem virðist vera að “koma á óvart” um íslenskt stjórnmála- og viðskiptalíf.
Ég trúi því ekki að landinn sé almennt búinn að gleyma þeim hörðu deilum sem voru um einkavæðingu bankanna. Meðal annars kom fram að S-hópurinn svokallaði fékk lán (Egla) hjá Landsbankanum til að kaupa Búnaðarbankann og í staðinn fengu Samson (björgólfsfíflin) lán hjá Búnaðarbankanum til að kaupa Landsbankann. Það kom líka fram að bankasalan var tekin úr farvegi einkavæðingarnefndar (þar sem einhver sagði af sér með látum) og sölunni var handráðstafað af þeim Halldóri Ásgrímssyni og Davíð Oddsyni. Salan á bönkunum smellpassar inn í helmingaskiptamódelið, bæði pólitískt og viðskiptalega séð og því einstaklega vel við hæfi að bankarnir lánuðu í kross fyrir kaupnum á sjálfum sér til þessara góðu manna sem voru í frábæru talsambandi við stjórnarflokkana.
Hér má sjá að málverjar vöru með það á hreinu að bankarnir lánuðu í kross til nýrra eigenda og þessi umræða á sér stað árið 2005!
http://www.malefnin.com/ib/index.php?showtopic=62862
Það furðulegasta við hrunið er að öll ósköpin sem við blasa eftir það - voru þrátt fyrir allt nokkuð vel þekkt. Skrýtið.
08.02 2010 kl.21:35
Slóð
Nú er Finnur ekki samkvæmur sjálfum sér. Ég er sammála því að stefna Björgúlfi og Co. En afhverju er verið að færa Samskip og Haga til fyrri stjórnenda aftur sem eru stórskuldugir við bankann og annar þeirra er með réttarstöðu grunaðs manns, hjá ágætum sérstökum saksóknara.
Nú mega Finnur og Frikki að fara að taka poka sinn. Ég krefst þess að ríkisstjórnin taki af skarið í þessu máli og láti fara rannsókn á þessu manni, hann er óhæfur.
“Þá sjá það allir sem vilja sjá”, svo maður vitni í föður hrunsins.
08.02 2010 kl.21:41
Slóð
Ég skil ekki afhverju það er ekki búið að ganga að Björgólfi fyrir löngu ef hann er í persónulegum ábyrgðum fyrir skuldinni.
Ég skil ekki heldur afhverju Ólafur fær að kaupa Samskip ef hann er í persónulegum ábyrgðum fyirir tugum miljarða, og hefur stöðu grunaðs manns.
Og að lokum skil ég ekki hversvegna bankinn er að greiða götu Jóhannesar því bankinn fengi mikklu meira út úr Högum ef hann seldi Útilíf, tískuvöruverslanir , Bónus, 10:11, Hagkaup osfr í sin hvoru lagi.
Ef Arion banki útskýrir þetta ekki fljótlega, þá verður flótti úr bankanum.
08.02 2010 kl.21:54
Slóð
Þær fréttir berast nú úr gjaldeirisdeildum bankanna að Tortola krónurnar sem fór til Lux og fleiri staða, þegar dollarinn stóð í 65 kr. séu nú byrjaðar að streyma
heim, þó í litlum mæli sé, nú sé dollarinn í 128 kr, þannig að það verði ekki svo
kostnaðarsamt fyrir bónusfeðga og aðra viðskiptafélaga þeirra, að komast yfir Haga aftur.
08.02 2010 kl.22:18
Slóð
Hver á Arion banka?
Ríkið á smáhlut, en hverjir eru hinir eigendurnir? Hvað heita þeir, hvar eiga þeir heima? Hverra manna eru þeir? Hvernig eiga þeir samskipti við fulltrúa sína í stjórn bankans?
08.02 2010 kl.22:24
Slóð
Mér finnst nú alverlegra þegar þessi glæpabanki er að senda almenningi nafnlaus hótunarbréf, vegna ólöglegu myntkörfulánanna. En það gerir svo kölluð milliinnheimtudeild bankans. Ætlar almenningur ekki að taka sig saman og höfða mál gegn Arionbanka og öðrum fjármálastofnunum vegna þessara ólöglegu lána? Ég hef minni áhyggjur að Björgólfi en almenningi í landinu.
08.02 2010 kl.22:30
Slóð
Ja var ekki Björgólfur gamli gjaldþrota út af þessum 6 miljörðum ?
Ekki er Jón Ásgeir eða Jóhannes gjaldþrota út af þessum 50 miljörðum ?
Ekki skulda lítið,, bara skulda mikið.. vá hvað maður var vitlaus að skuldsetja ekki íbúðina, bílinn og allt draslið upp í rjáfur og setja aurana í banka í Lux !
08.02 2010 kl.23:03
Slóð
En hvað eigum við að gera við þessa skuldara??
http://www.dv.is/frettir/2010/2/8/thriggja-barna-fadir-ser-fram-ad-missa-allt/
Ekki fá þeir meðferð eins og “fjárhagslegar endurskipulagningar” og 90% af eigum sínum til baka... skuldlausar...
08.02 2010 kl.23:14
Slóð
Ég held því miður að á Íslandi hafi verið mafía á ferð miklu stærra og öflugri en á Ítalíu. Á Íslandi þarft þú bara að þekkja rétta fólkið og vera réttum megin í pólitík svio allt gangi upp. Eru ekki þeir sem kusu Tryggva Þór sælir með sinn flokk núna rétt eins og þegar Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn skiptu niður á sig gömlu bönkunum me’ð afleiðingum sem enn eiga eftir að koma í ljós.
08.02 2010 kl.23:18
Slóð
Mikið var!
08.02 2010 kl.23:19
Slóð
Og klukkan hvað verður byltingin.
08.02 2010 kl.23:23
Slóð
hvar á að skrá sig ?
08.02 2010 kl.23:26
Slóð
á tortóli/stjórnar arion banka?
08.02 2010 kl.23:29
Slóð
Gamli Bjöggi er örugglega ekki á hausnum, þetta er ekki í fyrsta skiptið sem hann leikur þann leik að þykjast vera komin á hausinn , en það vildi ég að satt væri og sonur hans líka þessir bölvaðir glæponar.
Arion-banki sem betur fer hef ég aldrei verið í viðskiptum þar, en Landsbankinn er ekki neitt betri...
09.02 2010 kl.00:32
Slóð
“Ég á allt. Ég má allt” getur Jón Ásgeir sungið með Bjartmari næst þegar
hann á afmæli. Hann hlýtur að eiga meirihluta í Arionbanka. Hann er þess
vegna að fella skuldir sínar, sem hann keypti fyrir lítið, niður. Björólfur Þór
notar peninga sína í annað og á lítið í Arionbanka. Þess vegna
verður hann að greiða skuld sína í Arionbanka. En svona snjall viðskipta-
maður hlýtur að fá lánaða peninga í Landsbankanum og greiða skuldina
með láninu. Seinna mun hann kaupa Landsbankann og geta fellt skuldina
niður.
09.02 2010 kl.00:55
Slóð
Finnur Sveinbjörnsson einhverja leið til að bjarga eigin skinni?
09.02 2010 kl.00:58
Slóð
Mér finnst allt benda til þess að “nýju” “gömlu” eigendurnir séu að stjórna þessum banka og Glitni líka. Tort-Óli Óla hlýtur að eiga stóran hluta, þar sem hann bæði fékk lúsahreinsun og fyrirtækið Samskip að nánast fullu.
Grásleppu-Bakkabræðurnir hljóta einnig að eiga dágóðan hlut í bankanum, þeim er að takast sami leikur og Tort-Óla. Ekki getur Jón Ásgeir átt minna, því hann fær sitt allt fyrir ekkert, en í kaupbæti ca 30 milljarða frá Lífeyrissjóðunum. Finnur Ingólfs er náttúrlega með Tort-Óla í skipafélaginu og bankanum.
Björgálfur er kominn með krumlurnar á kaf og núna beint í ríkiskassan, en einnig í Arion. Það hlítur að vera Arion sem fjármagnar stækkunina í Hafnarfirði.
Það eru spennandi tímar framundan eins og Kúlu-Gerður sagði.
Hvað er sem sé hægt að halda lífinu lengi í þeim sem bankinn sýgur peninga af? Eitt - tvö eða þrjú ár? Ef þrú, þá gæti gróðinn orðið drjúgur, kanske 1000 milljarðar.
Kæru landar, stillið ykkur upp í mjólkurbásana svo auðveldara verði fyrir “strákana okkar” að komast að með mjaltavélarnar.
09.02 2010 kl.03:14
Slóð
Á hverju er þetta lið sem kommentar hérna?
Er fólk virkilega reitt yfir því að Arion banki reyni að innheimta þessa skuld af Björgólfi, sem hann er í persónulegri ábyrgð fyrir? Hefðuð þið fagnað ef bankinn hefði lýst því yfir að skuldin félli niður? Það er eins og allir hér séu með einhvers konar afbrigði af Tourette-heilkenni og hreyti út úr sér formælingum, alveg sama hvað gert er.
Og varðandi Haga: Hver er glæpurinn við það að setja 85% hlutafjárins á almennan markað? Er það virkilega krafan að fyrirtækið sé fært einhverjum huldufélögum eins og Þjóðarhag upp í hendurnar? Veit einhver hér hverjir standa þar á bak við?
Hvernig væri nú að draga andann djúpt og reyna að hugsa skýrt?
09.02 2010 kl.07:27
Slóð
Tími til kominn að lýsa kröfu á útrasarglæpamannagengið hverjir eru næstir??
09.02 2010 kl.08:31
Slóð
Í öllum siðuðum ríkjum heims sæti Björgólfur Thor inni og reyndar líka Jón Ásgeir, Ólafur Ólafsson, Sigurjón digri, Kjartan Gunnarsson og Hannes Smárason. Þetta eru fjárglæframenn á heimsmælikvarða. Og margir þeirra eru undir verndarvæng hættulegasta manns´Íslands í dag, sem klárlega er : Finnur Sveinbjörnsson.
09.02 2010 kl.08:40
Slóð
@Gísli
09.02 2010 kl.03:14
Ég held að fæstir hérna kunni að hugsa skýrt.
09.02 2010 kl.08:45
Slóð
http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=3814209
09.02 2010 kl.10:22
Slóð
hvernig stendur á því að stjórnvöld létu sig engu skipta, hvort greitt var fyrir bankann eður ei ? bara ástæðulaust að fylgjast með því ?