Innlent - mánudagur - 8.2 2010 - 15:12

Fjárráðin tekin af Álftanesi og sérstök fjárhaldsstjórn skipuð

alftanes.jpgFjárráð verða tekin af bæjarstjórn Álftaness og sérstök fjárhaldsstjórn skipuð yfir sveitarfélaginu.

Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins kl. 15 í dag.

Kristján Möller, ráðherra sveitarstjórnarmála, situr nú á fundi með bæjarstjórn Álftaness, þar sem þessi ákvörðun er rædd. Sveitarfélagið Álftanes stendur afar illa, einsog fram hefur komið í fréttum undanfarnar vikur. Skuldir sveitarfélagsins nema um sjö og hálfum milljarði króna, en tekjur á þessu ári eru aðeins áætlaðar röskur milljarður.

Aðeins einu sinni áður hefur sveitarfélag verið svift fjárráðum, en það var þegar fjárhaldsstjórn var sett yfir Hofsóshrepp árið 1988.

13 ummæli

Rita ummæli

Björn I
08.02 2010 kl.15:22

Hver er síðan ábyrgð þeirra sem komu sveitarfélaginu á hausinn?

Skilar þetta fólk laununum sem það fékk fyrir að bera svona mikla ábyrgð, fær það sekt, fer það í steininn, eða er raunveruleg ábyrgð þess engin?

Sigurður #1
08.02 2010 kl.15:34

Hvar hefur Sjálfstæðisflokkurinn ekki skilið eftir sig sviðna jörð.......

bogga
08.02 2010 kl.15:35

fjármálin tekin af en sama fólk situr áfram hvernig væri að skifta um í brúnni

ss
08.02 2010 kl.15:54

Þetta gerðist nú þegar vinstri menn komust til valda á Álftanesi, þó marga langi mikið að kenna Sjálfstæðismönnum um þá gengur það ekki í þetta skipti....;)

Gunnr
08.02 2010 kl.16:06

Sultartangi, Hrunfjörður, Skattnesbær, þetta er stærra format af skuldugum heimilum og stærsta formatið er þegar landið allt er komið á vanskilaskrá.
Já við eigum örugglega eftir að sjá að Fjallkonan sjálf fer að lyfta upp um sig pilsin og falbjóða sig.

stone
08.02 2010 kl.16:21

Þetta er víst eins og von var þegar Vinstri stjórn hefur ekki opinn tékka á skattahækkanir þá hlýtur það að enda með gjaldþroti.

Sigurður #1
08.02 2010 kl.16:25

ss.

Eru Á og D listi “vinstristjórn”?

http://www.alftanes.is/stjornsysla/fundargerdir/baejarstjorn/nr/8988/

Vestri
08.02 2010 kl.16:51

Hvenær kemur röðin að öðrum sveitarfélögum eins og Reykjanesbæ, Árborg, Akranesi, Borgarbyggð, Ísafirði, Vestmannaeyjum......????

Suðri
08.02 2010 kl.17:05

Gott að sjá að gömlu Nýsismenninir raða sér í stöður að kenna öðrum um aðhald í fjármálum.

Ása
08.02 2010 kl.17:14

Hverjir áttu í Nýsi sem fór á hausinn?
Suðri uppfræddu okkur.

Haukur Kristinsson
08.02 2010 kl.17:48

Gunnr... snjall sem fyrr.

Leifur Löve
08.02 2010 kl.17:51

@Sigurður #1
>Á listinn var við völd þegar ákvarðanir sem hafa leitt til þessarar niðurstöðu voru teknar. D listinn kom inn þegar meirihluti Á lista varð óstarfhæfur sökum innri átaka.

BGG
08.02 2010 kl.23:39

Hvernig í ósköpunum getur það skeð að einhver stjórn í smákrummaskuði eins og Álftanesi skuli geta drekkt bæjarfélaginu með um rúmlega 3 miljónir á hvert mannsbarn á staðnum. Svona vitleysa ætti að minnsta kosti að orsaka það að þeir sem vinna svona verði settir á svartann lista og ættu aldrei að fá að koma nálægt neinni fjármálastjórn neinstaða í landinu eftir þetta.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar