Innlent - mánudagur - 8.2 2010 - 07:57

Formaður viðskiptanefndar gagnrýnir Arion banka fyrir endurskipulagningu Haga

liljamosesd.jpgLilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna og formaður viðskiptanefndar Alþingis, er ósátt við það hvernig Arion banki hyggst endurfjármagna Haga með aðkomu fyrri eigenda.

Í morgunþætti Bylgjunnar gagnrýndi hún bankann og undraðist hvers vegna fyrirtæki á borð við Hagkaup, Bónus,  10/11 og fleiri þurfi öll að vera í sömu samsteypunni. Taldi hún réttara að skipta fyrirtækinu upp. Þá taldi hún réttara að starfsfólk fyrirtækjanna hefðu aðkomu að nýju eignarhaldi frekar en fyrri eigendur.

“Eigendur koma oft ekki með neitt raunverulegt hlutafé inn í reksturinn. Í mörgum fyrirtækjum er starfsfólk mikilvægara en eigendurnir,” sagði Lilja. “Ráðstafanir Arion banka í þessu máli er ekki til þess fallið að efla almenning til dáða.”

Aðspurð um aðgerðir fyrir skuldara, fyrirtæki og heimili, sagði hún að stjórnvöld hefðu til þessa verið of lituð af sömu hugmyndafræði og fyrir hrun, að setja aðeins lágmarksreglur.

“Aðgerðir fyrir heilmili og fyrirtæki eru aðeins lágmarksaðgerðir og síðan eiga bankar að keppa um frekari úrræði. Þannig ráða bankarnir hvernig farið er með skuldir fyrirtækja og heimila. Ég vil sjá samræður við lánastofnanir um það hvernig þeir haga sínum afskriftum, þannig að réllæti verði haft að leiðarljósi.”

32 ummæli

Rita ummæli

Magnús Jónsson
08.02 2010 kl.08:03

Ósátt og hvað ??

Er ekki Lilja formaður viðskiptanefndar ? Er þetta einhver stjónun... ég er ósátt, svo ekkert meir.
Hver djöfullinn er í matnum þarna á þinginu það er alveg sama hver gengur inn um þessar dyr, fólk breytist í einskisnýtar bleyður.

Ég styð Sturluleiðina heilshugar.

Tása
08.02 2010 kl.08:09

hvers vegna taka stjórnvöld ekki í taumana með einhverjum ráðum? Hvað á að ganga langt fram að þegnum þessa lands? Hver setti Finn sem hæðsráðanda í KB- Kaupþing- Arion banka? Hvaðan fær Finnur þessi launin sín?

Bubbi
08.02 2010 kl.08:10

Lilja er eini þingmaðurinn með viti á Alþingi í dag

Karl
08.02 2010 kl.08:11

Gott hjá Lilju.

Vaxandi stjórnmálamaður.

Einn af mjög, mjög fáum.

Hrólfur
08.02 2010 kl.08:26

Lilja - nú þarf að losna við Steingrím!

Hann er ábyrgur fyrir helstefnunni í Icesave og ekki trúverðugur í þriðju umferð.

Hjördís Vilhjálms
08.02 2010 kl.08:27

Hver er munurinn á afskriftum og fjárhagslegri endurskipulaggningu ?

Ef þetta er það sama, er þá bara verið að nota ,, fjárhagsleg endurskipulaggning” vegna þess að vitað er að almenningur er kominn með ofnæmi fyrir afskriftum útvalinna og vonast til að fólk fatti þetta ekki þegar notað er annað hugtak ?

Stefán
08.02 2010 kl.08:29

Finnur Sveinbjörnsson er klárlega hættulegasti maður Íslands í dag og ég veit um starfsmenn Arion-banka sem dauðskammast sín fyrir hann.

Ása
08.02 2010 kl.08:34

Setja lög yfir fjármálastarfsemi.
Almenningur er miður sín.

Seiken
08.02 2010 kl.08:39

Það er örlítið of seint núna að vera ósátt Lilja.

Þið endurreistuð sama bankakerfi og við höfðum fyrir hrun og vilduð alls ekki marka því neina stefnu. Það þarf enginn að vera hissa á því að persónur og leikendur innan kerfisins hagi sér eins eftir hrun og þeir gerðu fyrir hrun.

Hjörtur Hjartarson
08.02 2010 kl.08:43

Í viðtali við Kastljós í síðustu viku sagðist Jóhanna standa agndofa, eins og aðrir landsmenn, yfir því að ríkisstjórn hennar hygðist greiða fyrir frekari umsvifum Björgólfs Thors Björgólfssonar í íslensku viðskiptalífi. Líka yfir því að verið væri að færa Ólafi Ólafssyni Samskip í hendur að nýju.

Ása
08.02 2010 kl.08:48

Ramma þetta inn strax í fyrra.

REX
08.02 2010 kl.08:50

Lilja er eini þingmaðurinn með viti á Alþingi í dag og hún ætti að fá að vera viðskiptaráðherra !!!
Vona að hún fái stuðning við sín frumvörp á þingi !!!

GK
08.02 2010 kl.09:10

Viðskiptaráðherra er með einhver lög í undirbúiningi
en einsog venjulega of lítið og of seint

Dísa
08.02 2010 kl.09:12

Æi hvað ég er að verða pirruð á þessari umræðu. Það virðist alltaf gleymast að það eru skuldara líka í Íbúðalánasjóði sem urðu fyrir sömu áföllum og skuldara viðskiptabankanna.

Leiðréttingar fyrir heimilin virðast alltaf snúa að viðskiptabönkunum og svo ekkert rætt að Íbúðalánasjóður fylgi í kjölfarið. Það þurfa að eiga sér stað sömu leiðréttingar fyrir heimilin þar og hjá viðskiptabönkunum.

Ingimar
08.02 2010 kl.09:12

óbreyttir þingmenn fá engin frumvörp til laga samþykkt - skiptir ekki máli hvort það séu þingmenn meirihluta eða minnihluta. sjs vildi ekki lyklafrumvarp lilju í þinglega meðferð. segir það ekki allt sem segja þarf!?

ora
08.02 2010 kl.09:14

Formaður viðskiptanefndar ósátt og Jóhanna S. sagðist vera hneyksluð á þessum gjörningi. Ég spyr hvað er í gangi hverjir stjórna þessu landi getur verið að það sé Jói í Bónus eða Finnur falski........

ÞE
08.02 2010 kl.09:16

Vantar Samfylkingu Framsókn til að ná í gegn virkjunum?

abri
08.02 2010 kl.09:22

Lilja ég treysti´þér til að gera eitthvað í málinu og það strax burtu með Finn og hans lið úr bankanum ef feðgarnir fá þennan banka verður meiri fólksflótti frá þessu spillta liði sem hér´hefur tekið yfir búsetuna

Bubbi
08.02 2010 kl.09:31

@ GK

Viðskiptaráðherra hver er það ..... hef ég mist af... einhverju

Vindurinn
08.02 2010 kl.09:36

Ef Lilja er ósátt þá er einboðið að hún leggi fram þingsályktun um að fela ríkisstjórninni að breyta skipan mála og gera bragarbót. Við þurfum að sjá hverjir aðrir á þingi myndu styðja slíka ályktun. Ef ekkert gerist er þetta bara handa fjölmiðlum.
Brettu upp ermarnar Lilja!

S.Á.
08.02 2010 kl.09:46

Dísa
08.02 2010 kl.09:12
Sammála þér og reyndar Lilju líka um þetta. Það er ekki boðlegt, að bankarnir eigi að meta í hverju réttlæti í skuldaleiðréttingu sé fólgið. En Samfylkinging er stóra systir VG í ríkisstjórninni og innan hennar ræður frjálshyggjan ríkjum. Árni Páll og Magnús Orri Schram vilja eins og Jóhanna ekkert gera annað fyrir skuldara en að bjóða þeim hinn kalda faðm félagsmálageirans, þegar fólkið kemst á vonarvöl. Reyndar vill Magnús Orri Schram núna færa Álftanesi 4 milljarða í skuldaniðurfellingu, til að hindra fólksflótta úr sveitarfélaginu. Er ekki í lagi með þetta lið? Á Álftanesi búa 2.000 manns. Á höfuðborgarsvæðinu eru fullbúnar íbúðir tilbúnar en auðar fyrir miklu fleira fólk. Af hverju má húsnæði ekki tæmast á Áftanesi? Er það af því að þar á Magnús Orri Schram ítök? Ef ríkisstjórnin beitir sér fyrir svo mikilli “skuldaleiðréttingu” fyrir Álftanes, munu sveitarstjórnarmenn um allt land hugsa með sér: Allt í lagi að sukka, ríkið borgar! Þess má geta, að Magnús Orri Schram er uppalinn á Álftanesinu og gæti átt fjárhagslegra hagsmuna að gæta, varðandi það að verð á fasteignum þar falli ekki umfram annars staðar.
Ég held við verðum að persónugera vanda okkar. Útrásarfíflin eru ca. fimmtíu og strengjabrúður þeirra í bankakerfinu eru ennþá þar við stjórnvölinn, sbr. Finn Sveinbjörnsson. Þarf ekki aðra búsáhaldabyltingu og svo jafnvel ennþá aðra, áður en ráðamönnum þjóðarinnar verður ljóst, að við sættum okkur ekki við að sami hráskinnaleikur verði endurtekinn? Mikið vildi ég líka óska þess, að Ögmundur væri frekar formaður VG heldur en SJS. Steingrímur gerir vitleysu, það er mannlegt að skjátlast. En að hanga á vitleysunni (af því að hún er mín vitleysa) eins og hundur á roði, eins og hann gerir í Icesave málinu er ekki boðlegt. Maðurinn hefur greinilega eðliseinkunnir, sem gera hann vanhæfan sem forystumann í stjórnmálum. Hið sama á reyndar við um Jóhönnu.

Seiken
08.02 2010 kl.09:47

Það er spurning hvort það sé ekki of seint Vindur? Norræna velferðin er búin að “endurreisa” bankakerfið og einkavæða það að nýju mínus Landsbankann. Nú er lok lok og læs og lítið hægt að gera í sambandi við skuldir heimilanna og endurúthlutun verðmæta til auðrónanna.

Ása
08.02 2010 kl.09:53

Ég krefst uppstokkunar í eingarhaldi á matvörumarkaði.
Fækka búðunum og skipta upp einingunum í þrennt án aðkomu feðganna.
Þeir geta bara lagt af stað í að reyna að opna nýjar búðir ef þeir fara í fýlu.
Byrgjar verða þá að sleppa því að selja til þeirra.

Krösus
08.02 2010 kl.09:57

Ég er líka ósáttur og agndofa en ekki yfir þjófunum því þeir eru hættir að koma mér á óvart. Ég er agndofa yfir ríkisstjórn sem segist ætla að standa vörð um almennng í landinu og gerir einmitt hið gagnstæða. Færir þjófunum á silfurfati allar eigur sínar með afskrift en kaghýðir almenning fyrir flatskjátrippið.

arni
08.02 2010 kl.09:59

hvað er verðið að bruðla með almannfé við að halda úti góðgerðastofnunum á borð við alþingi,þegar glæpamafíurnar eru sjálfar að skipta upp eignum landsmanna?

Sóða-Gandur
08.02 2010 kl.10:07

ÁFRAM lILJA

Ása
08.02 2010 kl.10:09

Vertu vís þegar þú velur þér ráðgjafa.

Aðstoðarmenn ráðherra eru margir með mjög skrautlegan feril.
Það veit ekki á gott að hafa flugumenn inni í stofu.

Kristján Kristjánsson
08.02 2010 kl.10:11

Ótrúlegt að stjórnarliðar skuli gagnrýna bankann sáu sjálfir um að koma bönkunum á lappirnar aftur á kostnað almennings.
þykjast síðan geta gagnrýnt eigin athafnir og hvítþvegið sig af allri ábyrgð.
Hræsnin við Austurvöll á sér engin takmörk frekar en fyrri daginn.

Friðrik
08.02 2010 kl.10:18

Erum við í dag ekki ennþá að tala um hið nýja Ísland, eða erum við að setja stefnuna aftur í gömlu hjólförin? Besta kjarabótin sem hægt væri að bjóða neytendum í dag, væri að splitta upp samsteypunni Hagar. Þá fyrst værum við að sjá raunhæfa samkeppni í verðum, ekki eins og þetta er í dag sýndarmennska á yfirborðinu, þar sem við neytendur sjáum starfsmenn samkeppnisaðila vera að skrá niður verð á annartíma í verslunum. Þar sem aðeins eru tveir aðilar sem stýra þessum markaði í dag, þá þurfa þeir aðeins að hittast öðru hverju í „reykmettuðu herbergi“ til að stilla upp sannfærandi samkeppnisverðum fyrir neytendur.
Hingað kom til landsins Breti fyrir nokkrum árum síðan að gera úttekt á íslenskum matvörumarkaði. Honum blöskraði að sjá að einn og sami aðilinn væri með ráðandi markaðshlutdeild upp á 60-70%. Þar í landi blikka rauð ljós ef einn aðili er kominn með yfir 25-30% ráðandi hlutdeild á markaðinum.
Hvernig er hægt að láta sér detta í hug að láta sömu mennina sem eru búnir að kalla þessa hörmung yfir þjóðina fá einn helsta gullkálf þjóðarinnar sem gengur jafnvel í góðæri sem kreppu og fá félagið á silfurfati. Þessir sömu menn ættu ekki að fá að koma nálægt neinum rekstri í dag á sama tíma og það er að koma upp á yfirborðið hver fjármála óþverinn á fætur öðrum.

Hreggviður
08.02 2010 kl.10:39

Agndofa, hissa, ósátt en ekkert gerist.
Innantómt blaður framan við myndavélar og hljóðnema.
Nú eru ekki margir dagarnir þar til þúsundum einstaklinga verður gert að yfirgefa heimili sín, sýslumenn bíða spenntir eftir að geta rutt húsnæðin.
Bankarnir samþykkja allt að 95 % afskriftir á skuldum hrunvaldanna, já og í sumum tilfellum 100 %. Við hin óbreyttu eigum að borga allt uppí topp, að öðrum kosti förum við á götuna.
Þjófum samfélagsins er hjálpað á lappirnar með ráðum og dáð, svo þeir með fulltingi allra stonana landsins, geti haldið á að taka almenningi blóð.

Það kemur ekkert á óvart lengur í órétlætissúpunni, ekkert.

Öglir
08.02 2010 kl.10:39

Hlutlausir ráðgjafar, í hvaða hreiðri finnast þeir?.

Sammála Bubba Lilja er með hjartað á réttum stað.

Jónas Bjarnason efnaverkfræðingur
08.02 2010 kl.11:43

Lilja Mósesdóttir. Þessi hugmynd þín er góð. En má ég hefja máls á öðru. Fyrir nefnd þína komu menn, fv. formaður og forstjórii FE og þú og þið spurðuð um ásakanir seðlabankastjóra Hollands. Hann talaði um að logið hefði verið að sér. Nú. Og bæði Jón Sigurðsson og Jónas F. Jónsson töluðu eins og saklausir englar, var það ekki? - Ef maður les auglýsingapésa Landsbankans, þar sem m.a. Jón Sigurðsson ritaði ýtarlega grein, þá finnst manni að allt hljóti að vera í lagi. Ég las pésan enn einu sinni. Hann gefur bara ranga mynd. Lausafjárstaða í góðu lagi, aukinn hluti lausafjár kominn með innlánum, starfsemin erlendis enn háð erlendum lánum, það vanmat á áhættu, sem var, og hélt vöxtum lágum, er ekki lengur fyrir hendi og við vonumst til að upplifa betri tíma.........................! - Hvernig er það? Stundið þið babytalk í nefndinni? Hvers vegna spurðuð þið ekki beint hver væri skuldastaða Landsbankans? Lánabók, takk fyrir. Á þeim tíma heyrðum við erlendis frá, að Ísland skuldaði tífalda ársframleiðslu í erlendri mynt. Vænn hluti af þeim skuldum hlaut að vera hjá bönkunum. Hvað skuldaði Landsbankinn mikið? - Skip the crap! - Hver var endurskoðandi bankans? Var lánabókin örugg eða fenguð þið hana ekki? Glitnir gleymdi að skrá erlenda skuld upp á tugi milljarða. Hvað með Landsbankann? Hvað var gert við hinar stóru upphæðir sem Bjöggarnir yfirfærðu frá Bretlandi skömmu fyrir hrun? Sú mynd sem er gefin í umræddum pésa stenst bara ekki og það var skylda ykkar að kafa í það mál.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar