Innlent - mánudagur - 8.2 2010 - 20:44

Kæra Þorleifs í forvali VG: Stuðningsmenn Sóleyjar fóru með kjörseðla heim til flokksfélaga

soleytomas.jpgDæmi voru um að stuðningsmenn Sóleyjar Tómasdóttur í forvali Vinstri grænna í síðustu viku fóru með kjörseðla heim til flokksfélaga og tóku þannig við utankjörfundaratkvæðum viðkomandi.

Þetta er ástæða þess að Þorleifur Gunnlaugsson, keppinautur Sóleyjar um fyrsta sæti listans, kærði utankjörfundaratkvæðagreiðsluna, einsog Eyjan sagði frá í dag.

Almenn regla er í prófkjörum stjórnmálaflokkanna að kjörfundur skuli fara fram á tilteknum stöðum og á það jafnframt við um utankjörfund, enda er ógerlegt að sannreyna með hvaða hætti viðkomandi kjósendur greiddu atkvæði ef gengið var frá því fjarri kjörstöðum.

“Sætti mig við niðurstöðuna en þetta snýst um heiðarleika”

Í samtali við Eyjuna vildi Þorleifur taka það skýrt fram að hann hefði gert þessa athugasemd um miðjan laugardag, eða áður en kjörfundi lauk. Hann væri því ekki að kæra atkvæðagreiðsluna eftir á, í ljósi þess að hafa beðið lægri hlut.

“Ég er ekki að falast eftir breytingu á úrslitum í forvalinu. En hér er um svo veigamikið atriði að ræða í leikreglum lýðræðisins, að ég varð gera þessa athugasemd. Í mínum huga snýst þetta um lýðræði og heiðarleika í stjórnmálum og þar er heiður flokksins að veði. Vinstri grænir geta ekki unað við vinnubrögð af þessu tagi. Af þeim sökum verður að taka á þessu máli, þannig að það muni ekki endurtaka sig, en ekki endilega til að breyta úrslitunum,” segir Þorleifur.

Kjörstjórn VG hefur enn ekki afgreitt kæru Þorleifs, en kærufrestur rennur út klukkan 10 í kvöld. Mjög mjótt var á munum í kosningu um fyrsta sætið, en í samtali við Eyjuna fyrr í dag taldi Stefán Pálsson, formaður kjörstjórnar, að úrslitin yrðu engu að síður hin sömu þótt utankjörfundaratkvæði yrðu lýst ógild. Hann sagði þó að hlutfall utankjörfundaratkvæða hefði verið talsvert frábrugðið almennri kosningu á kjörstað og að bilið milli Sóleyjar og Þorleifs myndi minnka talsvert ef utankjörfundur verður ekki talinn með.

76 ummæli

Rita ummæli

Jónas
08.02 2010 kl.20:48

Er þetta heiðarleikinn í íslenskum stjórnmálum. Ef lýðræðið á að virka hér á landi þarf að hafa alþjóðlegar reglur um val á lista stjórnmálaflokkana og eftirlitsmenn frá alþjóðstofnunum til að fylgjast með þeim.

Hringur
08.02 2010 kl.20:51

Fáum Evu Joly til að rannsaka þetta.

has
08.02 2010 kl.20:53

Skildi hún hafa lært þetta af formanninum eða í stjórnmálskóla VG.


08.02 2010 kl.20:54

Já, já...sæll! fín þjónusta hjá femínistum í VG - ætli það hafi fylgt frítt gos með?

Inga Rún
08.02 2010 kl.20:56

Hringur.
Það þyrfti að rannsaka val á lista hjá öllum flokkum ekki bara VG.

Nói
08.02 2010 kl.21:01

Hallærislega spældur karlmaður
sem tapaði fyrir kerlu

Vælukjóar allra landa sameinist

Urður
08.02 2010 kl.21:06

Nú flissa sjálfstæðismenn um gjörvallt land.

Jóhannes Laxdal
08.02 2010 kl.21:12

Ég er sammála Þorleifi og þetta snýst um prinsipp mál en ekki einhver leiðindi yfir að mótframbjóðandi hafi rangt við og fái vinkonur í lið með sér.
Ég mun ekki kjósa þennan lista með Sóleyju í 1. sæti og smástelpuna Líf í þriðja!! Hvaða reynslu eða menntun er verið að bjóða upp á?

Helgi
08.02 2010 kl.21:13

Og þetta er flokkurinn sem stjórnar landinu.

Róbert Trausti Árnason
08.02 2010 kl.21:14

Hóseana!
Nú flissa sannir femínískir vinstr-vinstri íslendingar nær og fjær.
Í Þingaseli flissar þó ekki Steingrímur.
Nú er að grafa upp sannfærandi V-g orðhengils-afneitun svona rétt eins og þá sem Árni Þór fór með rétt í þessu í sjónvarpi ríkisins.

Jenný Anna
08.02 2010 kl.21:18

Ég kaus bæði Sóleyju og Þorleif. Nú sé ég nærri eftir því að hafa merki við þann síðarnefnda.
Iss.

Hilmar
08.02 2010 kl.21:23

Þess má geta til gamans að “smástelpan Líf í þriðja” er fjórum árum yngri en formaður Sjálfstæðisflokksins, tveimur árum yngri en oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, jafnaldri iðnaðarráðherra og tveimur árum eldri en menntamálaráðherra.

Vestri
08.02 2010 kl.21:25

Öllum brögðum greinilega beitt af femínustunum til að klekkja á kallapúnginum!

Hamarinn
08.02 2010 kl.21:26

og svo vogar fólk sér að gera grín að kostningum í vanþróðum ríkjum heimsins.

Jón Frímann
08.02 2010 kl.21:30

Það kemur mér ekkert á óvart að Sóley skuli hafa stundað smá óheiðarleika. Hegðun hennar í umræðunni bendir ekki til mikins heiðarleika allavegana.

Sjáum samt til hvað kemur uppúr rannsókn á þessu máli.

Jón Garðar
08.02 2010 kl.21:34

Mikill andskotans ræfill er Þorleifur - vælir um (ó)heiðarleika en ætlar samt að sætta sig við þetta - m.ö.o. Þorleifur er ekki maður til að standa á sínu. Þar með er hann væntanlega að sýna það að hann á hvort eð er ekkert erindi inn í bæjarmálapólitíkina. Það væri miklu nær fyrir Þorleif að stefna á sæti á alþingi enda lítið lagt upp úr persónulegri sannfæringu þar á bæ og því myndi hann fitta vel inn í þá sóðahjörð.

Anti feminist league
08.02 2010 kl.21:40

Þetta er bara ekta dæmi um feminista,þetta pakk er eins og krabbamein.

grautfúll
08.02 2010 kl.21:42

Hver stjórnaði eiginlega þessari kosningu. Maður hefði nú haldið að verðandi stjórnmálamenn ættu að vita það að það er ákvðeðið grundvallaratriði að kjörkassinn sé á sínum stað þegar kosið er. Svona til að menn vissu alla vega hvar ætti að stinga atkvæðinu.

Sigurjón Vigfússon
08.02 2010 kl.21:44

Er Sóley svolítill svindlari
í flokknum bara sem dinglari
með kjör kassann heim
eg ljá ekki þeim
er þá VG bara ein svindlari.

Finnbogi Vikar
08.02 2010 kl.21:52

Ef fólk verður uppvíst að óheiðarlegum vinnubrögðum við að vinna prófkjör, þá hlýtur það að vera lýðræðisleg krafa að það fólk afsali sér sæti á framboðslista. Annað væri óásættanlegt.

Einar
08.02 2010 kl.22:01

Af hverju kemur þetta mér ekki á óvart? Væntanleg hefur Sóley bara farið heim til kvenna.

J
08.02 2010 kl.22:11

Já, Stefán formaður kjörnefndar segir þetta breyti engu !

Það er þá allt í lagi að fara með kjörseðla með sér heim !

Oft hefur maður heyrt eitthvað þessu líkt, en er það ekki merkilegt að VG segir þetta bara vera allt í lagi ?

Nábítur
08.02 2010 kl.22:21

Er þetta ekki bara svindl....?
Það þarf að fara ofan í saumana á þessu, að er óþolandi þegar fólk vinnur með svindli.

Sigrun
08.02 2010 kl.22:30

Já, nú flissa ég - heldur betur :)

Hilmar
08.02 2010 kl.22:32

Skritið að það skuli finnast fólk sem réttlætir svona vinnubrögð.

Fáránlegt að verja það að einn frambjóðandi skuli ferðast um með kjörkassann og sitji yfir kjósandanum á meðan hann kýs.

Og þetta er í því sem VG liðar kölluðu óspillta fólkið. Spillingin var bara í hinum flokkunum.

Og sá frambjóðandi sem reynir að benda á þetta er úthrópaður af feminasistaskrílnum.

Þvílíkur viðbjóður og þvílík siðblinda

Tómas J. Knútsson
08.02 2010 kl.22:38

Oft hefur verið kastað grjóti úr glerhúsum en þarna var kastað grjóti út úr sjálfri gluggaverksmiðjunni, svona gerir ekki fólk sama í hvaða flokki.Annað hvort hefur þú það til brunns að bera sem þarf eða ekki, þetta á ekki að vera flókið mál.Heiðarleiki er það eina sem vantar í samfélagið og ekki er því fyrir að fara þarna

Ari
08.02 2010 kl.22:41

Grenjuskjóða

Glaumur
08.02 2010 kl.22:42

Algjör dómgreindarskortur þarna á ferðinni. Ég hef aldrei heyrt um svona heimsendingarþjónustu með atkvæði áður. Voru þau með kjörbíl en ekki kjörstað? Ekki einu sinni í kosningum í Afghanistan. Fólk þar þurfti að þræða fjallvegi til að kjósa.

Og svo er hnýtt í Þorleif fyrir að gera athugasemdir við hið augljósa!

Er þetta Nýtt Ísland í Reykjavík?

has
08.02 2010 kl.22:44

Hafi verið svindlað í þessu forvali, þarf þá ekki að velja aftur ?.

Sætur Hundur
08.02 2010 kl.22:44

Sammála Finnbogi. Það á hiklaust að víkja henni af lista ef hún verður uppvís að óheiðarlegum vinnubrögðum í framkvæmd kosninganna hjá VG.

Ég trúi ekki að VG skrifi upp á svona vinnubrögð sé það raunin.

Þetta er orðið frekar aumt hjá þessu VG fólki. Hef grun um að spillingin og vinapotið sé mun meira hjá vinstri mönnum en hægri mönnum yfirhöfuð. Þetta er orðið svo rosalega Sovéskt eitthvað hjá íslenskum vinstri mönnum.

Sóða-Gandur
08.02 2010 kl.22:47

Þetta er alvarlegt mál og á alls ekki að lýðast

Krösus
08.02 2010 kl.22:52

Það er best að leggja niður þessi prófkjör. Hvernig dettur ykkur í hug að þessum stjórnmálamönnum sé treystandi?

Arnþór Jónsson
08.02 2010 kl.22:54

Sá sem fer með kjörkassa heim til fólks er vanhæfur. Og stjórnmálaflokkur sem samþykkir svona vinnubrögð er einnig vanhæfur.

Sannleikur
08.02 2010 kl.22:54

Sóley er karlakerling mikil, femínisti af Guði gerð og hefur flokksdindla eins og Davíð Stefánsson til að snúast fyrir sig og Skallagrím. Davíð hafði greinilega nóg að gera, hann var duglegur að hringja í alla og segja fólki hvað það ætti að kjósa Sóleyju því að Steingrímur vill það, síðan að hlaupa með kjörseðlana heim til þeirra sem nenntu ekki fyrir sitt litla líf að mæta,enda leggst ekkert eins vel í latanann landann en frí heimsendingarþjónustan. Ætli hann hafi bakað súkkulaðiköku handa henni Sóleyju foringja sínum í lok dagsins? Segið svo að konur geti ekki haft stjórn á körlum?

Og svo er þetta fólkið sem lofaði “Lýðræðisumbótum” í ofanálag ???????

KVERÚLANTINN
08.02 2010 kl.22:57

halda menn að feministakellurnar séu eitthvað betri.........!

þetta eru úlfynjur í dulargervi......

sveiattan........

Anna Kristín Pétursdóttir, áður Móvinda
08.02 2010 kl.23:07

Jamm.. og við kjósendur erum í “góðum höndum” ... þrátt fyrir allt..

JSH
08.02 2010 kl.23:09

Er þetta ekki svipað og stuðningsmenn Sturla Böðvarssonar
gerðu á vesturlandi?

joi
08.02 2010 kl.23:12

Jú, þetta er “lúkars-syndromið” svo kallaða. Þá fóru einhverjir með kjörseðla niður á bryggju til sjómanna sem voru að draga björg í bú og höfðu engan tíma til að fara á kjörstað.

Nýja Ísland ríkisstjórnarflokkanna er altlaf að taka á sig nýja mynd.

Örlygur Ormarr
08.02 2010 kl.23:14

Á ég Samfylkingarmaðurinn að gleðjast yfir þessu vali VG manna í Rvík.
VARLA
En er ekki rétt, fyrir þá sem eru í vafa, að spyrja hver sé valkosturinn ?
Flokkar hrunverjana, sem hafa farið í gegnum extreme make over program, eru vissulega valkostur.
En trúverðugir ??
VARLA.
Eftir allt það sem gengið hefur á í samfélaginu.
Er þá rökrétt niðurstaða við þessar aðstæður að skoða ekki stöðuna hjá Samfylkingunni og jafnvel hafna henni sem pólitísku afli ?
VARLA
Ég sé fram á spennandi vor og skemmtilega kosningabaráttu.
Gangi ykkur öllum vel í að komast að niðurstöðu.
Gott fyrir mig að þurfa ekki að vera í vafa.
Ekkert VARLA þar.

Asgeir Gunnarsson
08.02 2010 kl.23:18

Politiskur þroski

kjartan H
08.02 2010 kl.23:20

Að sjálfsögðu á hún að axla ábyrgð og hundskast af lista, VG á ekki að bjóða okkur kjósendum uppá að fara leiðir gömlu flokkanna og hún á að vera fordæmisgefandi, þannig náum við í atkvæði.. út með konuna.

Finnbogi Vikar
08.02 2010 kl.23:28

Sóley og hennar stuðningsmenn eiga að stíga fram og óska eftir rannsókn og upplýsa allt um það sem þau vita um málið.

Það er heiðarleg og lýðræisleg vinnubrögð.

Nothing but the Truth
08.02 2010 kl.23:30

Mikið er þetta fallegt hjá Stalíns-armi VG.
Vinnubrögðin í hnotskurn...á línuna...skv. uppskrift Steingríms?

Nothing but the Truth
08.02 2010 kl.23:32

Leiðrétting, en kemur út á það sama:

Mikið er þetta fallegt hjá Svavars-armi VG.
Vinnubrögðin í hnotskurn...á línuna...skv. uppskrift Steingríms?

Vignir
08.02 2010 kl.23:36

Sóley á að segja af sér strax fyrir þessi vinnubrögð.

Ari
08.02 2010 kl.23:40

Engum flokki er treystandi. Það fer enginn eftir reglum, sjáið bara Sjallana þeir brjóta sínar eigin reglur um upphæðir í prófkjörum.

Einn upplýstur
08.02 2010 kl.23:43

Stuðningsmenn Sturlu Böðvarssonar stunduðu álíka iðju á Akranesi hér um árið. Vinstra liðið meig á sig af æsingi yfir því og áttu ekki nógu sterk lýsingarorð til að lýsa vanþóknun sinni á Sturlu og hans stuðningsmönnum.

Nú finnst kannski sumum þessum sömu aðilum þetta hið besta mál hjá Sóleyju. Og finnst Þorleifur lélegur fyrir að væla yfir þessu.

Ég í það minnsta er ánægður að Þorleifur láti vita af svona Sturlungatöktum. VG er ekki undanskilið spillingu, greinilega, smölun og bolabrögðum. En stuðningsmenn VG ætla núna kannski að verja þetta hjá Sóleyju?

Gunni gamli
08.02 2010 kl.23:45

Sóley á engra annarra kosta völ en að óska eftir endurteknu prófkjöri. Kosningarrétturinn eru grunnur lýðræðisins. Hann er helgur réttur í augum flestra bæði þeirra sem hafa og þeirra sem ekki hafa.
Þegar svo veigamiklir annmarkar eru á kosningu skal hún dæmd ómerk. Það breytir engu að sagt sé að þessi brot hafi ekki breytt úrslitum. Grundvallaratriðið er að þarna virðist framkvæmd kosninganna hafa brugðist. Að fólk sé að dandalast með kjörseðla utan kjörstaðar og láta kjósa er ekki boðlegt.

Jón Óskarsson
08.02 2010 kl.23:47

Fólk sem telur sig eigendur réttlætisumræðunnar og lýðræðisástarinnar eru mestu úlfarnir undir sauðagærunni.

Silja Bára Ómarsdóttir var sendill Sóleyjar og fór með atkvæðaseðla í hús og lét fólk kjósa allt nema Þorleif.

Niðurstaða þessa forvals eru svindl og Sóley á að stíga til hliðar því hún og ennar líkar valda bara skemmdarverkum og leiðindum hvar sem þær koma.

Þórgunnur
08.02 2010 kl.23:51

Hélt fyrst að þetta væri djók en því miður virðist þetta vera rétt. Dómsmálaráðherra á að láta fara fram rannsókn á öllum forvölum hjá flokkunum.

Herbert Árna
09.02 2010 kl.00:00

Haha, og svo er fólk að reyna halda því fram að VG sé flokkur heiðarleikans. Árni Þór Sigurðsson er rammspilltur það sást í Kastljósi kvöldsins.

Þetta sem við lesum hér að ofan er svo svívirðilegt brot á öllu því sem heitir lýðræði að Sóley tómasdóttir ætti að gefa frá sér sætið sitt á stundinni - henni er ekki stætt.

Svo er það orðið deginum ljósara að það á að dæma Steingrím J. Sigfússon fyrir afglöp í starfi - eru menn búnir að gleyma að það var hann, ræfilstuskan, sem sendi vin sinn, ræputuskuna Svavar Gestsson, til að fara og skrifa undir ICESAVE samningana.

Magga maur
09.02 2010 kl.00:13

Þetta minnir ónotanlega mikið á Sturla Böðvrasson sem hljóp með atkvæaðaseðla um öll elliheimilin á Akranesi á sínum tíma og komst upp með það”"”"”!!!!!!

kjósandi
09.02 2010 kl.00:18

OMG... -1 atkvæði

Þórgunnur
09.02 2010 kl.00:24

Sóley hefur orðið konum til mikillar skammar með þessu öllu saman og ætti að fara af listanum strax áður en hún eyðileggur meira fyrir VG.

has
09.02 2010 kl.00:25

jæja það er búið að finna það út að þetta er allt löglegt og góðar og gildar venjur hjá VG.

Maður spyr sig til hvers að vera æða á kjörstað ef maður hringir bara í flokkinn og hann sendir mann heim og maður klárar dæmið yfir kaffibolla í eldhúsinu heima t.d í þjóðaratkvæðagreisðslunni er eitthvað athugavert við það, eða er það þannig að flokkar geti haft sína reglu hver óháð lögum um kosningar, getur maður þá kanski ákveðið að stofna félag um bílinn sinn og segja svo bara þetta félag hefur ákveið að hámarkshraði á þessum bíl sé 150 km á klst innanbæjar. ?

Björg F.
09.02 2010 kl.00:29

Það gerðu þetta allir frambjóðendur meira og minna og þessi aðferð var samþykkt á landsfundi. Það voru bara sendir atkvæðaseðlar til þeirra sem sérstaklega báðu um það og voru þeir þá merktir kennitölu og farið með þá af einstaklingi innan kjörnendar.

Mér finnst svona ásakanir frá Þorleifi hallærislegar og hann er bara að skjóta sjálfan sig í fótinn með þessu.. því hann veit betur.

þorður Sævar Jonsson
09.02 2010 kl.00:45

Svona framganga nær engu tali......Það er ekki hægt, að réttlæta þvíllíkt og annað eins.......Hafið bara skömm fyrir.!!!

Haraldur Ingi Þorleifsson
09.02 2010 kl.00:56

Vildi bara leggja nokkur orð í belg sem má alveg skoða í því ljósi að ég er sonur umrædds Þorleifs og þ.a.l. ekki hlutlaus.

En hér eru fjórar staðreyndir sem ég legg fram sem andsvar við það sem Björg F segir hér að ofan.

1. Það stunduðu þetta alls ekki allir frambjóðendur. Þorleifur t.a.m. stundaði þetta ekki.

2. Mér var tjáð það af formanni kjörstjórnar fyrir prófkjör að þessi aðferð væri ekki leyfileg. Það hefur hann staðfest á sínu bloggi.

3. Það var alls ekki bara farið með kjörseðla heim til þeirra sem óskuðu þess sérstaklega. Þessu var haldið að kjósendum sem möguleika af stuðningsmönnum framjóðenda.

4. það er ekki rétt að einstaklingar innan kjörnefndar hafi farið heim til fólks með kjörseðla. Þvert á móti var það mjög þröngur hópur sem þetta stundaði og var hann ekki á vegum kjörnefndar.

Þetta eru staðreyndir í málinu. Síðan getur hver og einn deilt um það hvort þetta sé eðlileg framganga. Það má hafa sínar skoðanir á því en við skulum ekki byggja okkar málflutning á ósannindum.

Kveðja
Haraldur

HA
09.02 2010 kl.01:44

Ha ha ha. Ég held að þetta fólk hafi eitthvað misskilið hugtakið “leynileg kosning”. Það jaðrar við að vera sprenghlægilegt að einhverjum hafi dottið í hug að koma heim til fólks. Sök sér að bjóða því að sækja það og aka því á kjörstað og heim aftur en að koma með atkvæðaseðilinn til þeirra! Ja hérna! Eru þetta börn?

Sigurður #1
09.02 2010 kl.01:46

Sýnir bara að siðferðið er ekki sjálfgefið hjá femínistum.

.....eða kvennfólki yfir höfuð.

Jón
09.02 2010 kl.02:08

Er þetta Votta Jehova ?

Haraldur Ingi Þorleifsson
09.02 2010 kl.03:52

Eins og kemur fram hér að ofan þá er ég sonur Þorleifs Gunnlaugssonar.

Mig langar til að koma því á framfæri að ég er alls ekki sammála mörgum þeim sem hér tala. Reyndar blöskrar mér hvað fólk leyfir sér að segja í nafnleysi.

Í fyrsta lagi þá vil ég alls ekki hvetja fólk til þess að kjósa ekki þennan flokk í komandi kosningum. Þetta er góður listi með öflugu fólki og ég hika ekki við að setja Sóley þar á blað. Hún er öflugur kandídat og hörkudugleg.

Í öðru lagi er Hilmar hér að ofan að níða góða vinkonu mína hana Líf. Hann kallar hana smástelpu. Ég veit reyndar ekki hvað hann hefur á móti smástelpum en það vill svo til að Líf er alls engin smástelpa. Hún er að mig minnir 35 ára og jafnvel þótt hún væri yngri þá sé ég ekki að það sé einhver mælikvarði á fólk hversu gamalt það er. Ég fullyrði það að hún er mjög öflug kona með hjartað á réttum stað og ég er sannfærður um að hún á eftir að sanna sig sem öflugur frambjóðandi á komandi mánuðum.

Í þriðja lagi vill Anti feminist league og fleiri bendla þetta mál við femínisma og femínista. Ekki sé ég að sú tenging standist neina skoðun. Ég er sjálfur femínisti og stoltur af því. Ég þekki þar að auki fjölmarga femínista og ég get bara sagt að þar er mikið af því besta fólki sem ég hef kynnst. Aðrir ganga svo langt að tala um að kvennfólki sé ekki treystandi. Ég held að slík ummæli dæmi sig sjálf.

Í fjórða lagi. Það hefur aldrei verið krafa Þorleifs í þessu máli að Sóley afsali sér sínu sæti eða það verði kosið upp á nýtt. Það eina sem hann fer fram á er að þau atkvæði sem hann telur að hafi verið komið í kjörkassa á vafasömum forsendum verði dæmd ógild.

Í fimmta lagi. Ég er algjörlega viss um að Sóley hafi með þessu ekki verið vísvitandi að svindla. Ég veit til þess að hún auglýsti það opinberlega að þessi leið væri fær. Það er ekki leið svindlara. Hinsvegar tel ég að við nánari skoðun þá hljóti fólk að gera sér grein fyrir því að þetta er ekki aðferð sem við viljum beita.

Í sjötta lagi. Það fór enginn með kjörkassa heim til fólks. Það er einfaldlega ekki satt.

Við skulum ekki afvegaleiða þessa umræðu eða fara með hana niður í svaðið. Og alls ekki fara í persónulegt leðjukast, það gerir engum gott. Ég trúi því að Sóley muni átta sig á því að hennar stuðningsfólk hafi þarna gert ákveðin mistök. Það hafi ekki verið illur vilji sem réð því hvernig þetta fór. Þar með mun málið leysast á farsælan hátt.

Haraldur Ingi

gestur þorláksson
09.02 2010 kl.04:14

það er ekki á það bætandi v g er kanski orðinn flokkur hinna siðblindu ha . þeim ferst að vera stöðugt að rífa kjaft svikarar skamist ykkar og úr stjórn strax.óvinir hinnar íslensku alþýðu.

Finnbogi Vikar
09.02 2010 kl.06:34

Kjörstjórn reynir að grafa málið án þess að rannsaka það. Mér finnst það stórfurðulegt að Sóley og hennar stuðningsfólk ætli að reyna þegja þetta af sér. Stinga bara höfðinu í sandinn.

Einar
09.02 2010 kl.07:30

Svona er VG, það er aldrei svindl þegar þeir brjóta reglurnar, þá er það bara gert í þágu lýðræðis.

Það sem er það ómerkilegasta í fari VG er þessi innbyggða trú þeirra sjálfra að þeir séu yfir alla aðra hafnir.

Vilhjalmur
09.02 2010 kl.07:44

Lygamörðurinn Steingrímur J hefur verið að gefa tóninn undanfarið ár með lygum,lævísi,laumuspili,vinavæðingu og endalausum sinnaskiptum um menn og málefni. Vinstriskríllinn í VG fylgir formanninum í gjörðum og hugsun, og skildi engum undra. Að undrast siðblindu VG elíturnar ætti engum að koma að óvart meðan forystusveitin hagar sé eins og gamlir kommisarar frá Sovét. Eina sem þetta lið skilur er að láta þetta lið ekki komast að kjötkötlunum.

ES
09.02 2010 kl.08:05

Vandinn í hnotskurn: Það sem sumum leyfist leyfist öðrum ekki. Það sem formaður kjörstjórnar segir óformlega gengur eftir formlega. Formaður kjörstjórnar segir niðurstöðuna hafa orðið þá sömu án utankjörfundaratkvæðanna. Hann kýs að líta fram hjá þeirri staðreynd að ef allir frambjóðendur hefðu fylgt sömu reglum þá er óvíst að niðurstaðan hefði orðið sú sama.

Finnbogi Vikar
09.02 2010 kl.08:12

Nemendafélagið á Bifröst er með kosningar í dag. Það er merkilegt nokk að það eru skýrari og strangari reglur í þeim kosningum en forvali VG. T.d. get ég ekki látið fylla út fyrir mig kjörseðil af stuðningsmanni frambjóðanda eða látið koma með kjörseðil heim til mín. VG ætti horfa að til nemendafélagakosninga í skólum landsins og reyna að læra af þeim.

Olli F
09.02 2010 kl.08:32

Rottugangur í Vinstri Grænum........

Karl
09.02 2010 kl.08:33

VG ættu að halda sig við stofnfjárbréfin.

Þeim tekst betur upp við braskið.

ES
09.02 2010 kl.08:33

Það kemur mér ekki á óvart að frambjóðendur VG séu sáttir við niðurstöðuna. Þeir eru almennt sáttir við að sumir séu jafnari en aðrir.

Guðrún Hlín
09.02 2010 kl.08:34

Siðblinda.

Þrándur
09.02 2010 kl.08:46

Á sama hátt og mig grunar að demokratar njóti góðs af því að Palin er helsti andstæðingur þeirra, þá gæti sama staða verið að koma upp hér. Sóley Tómasdóttir er sumsé besta vopn sjálfstæðismanna í kosningabaráttunni.

Kannski rangt hjá mér en samt(svona 50%-50%, fer eftir því hvernig ST hegðar sér héðan í frá). Líkingin er ‘fun enough’ til að láta hana flakka.

Óskar Þ.
09.02 2010 kl.09:18

Hernaðar og “réttsýnarsinninn” Stefán Pálsson reynir örugglega að réttlæta þetta.

Skíturinn og óheiðarleikinn hjá vinstraliðinu er ekkert betri en hjá hinum.

Iss, rispur í lakkið hjá VG sem erfitt getur orðið að lagfæra. Trúverðugleikinn hjá þessu liði er hér með farinn.

Floki
09.02 2010 kl.10:08

Sóley á að segja af sér og og Þorleifur líka - hinn kosturinn er að leggja Vg niður.

Veffar
09.02 2010 kl.16:05

VG liðar öskruðu “Spillinguna burt” en hvert fór hún?

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar