Ríkisstjórn og stjórnarandstaða eru sammála um að fá Lee Buchheit, bandarískan sérfræðing í þjóðaskuldum, til ráðgjafar við lausn Icesave-deilunnar og í væntanlegum viðræðum við Breta og Hollendinga.
Þetta var ákveðið á fundi í fjármálaráðuneytinu fyrir hádegi.
Lee Buchheit kom hingað til lands í fyrrasumar og ræddi þá við fjárlaganefnd Alþingis. Hann lýsti þá þeirri skoðun að áður en gengið yrði frá Icesave-samningunum yrði að liggja fyrir hvað þrotabú Landsbankans skilaði háum fjárhæðum upp í skuldina.

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
45 ummæli
Rita ummæli08.02 2010 kl.12:27
Slóð
Góðar fréttir ef þetta þýðir að málið leysist sem fyrst.
Byrðin af því að hafa þetta mál óleyst er að verða atvinnulífinu of mikil.
08.02 2010 kl.12:32
Slóð
Það er loks að fenginn er til Icesave saminganna maður sem hefur reynslu af að semja um þjóðarskuldir.
En af hverju var ekki strax leitað til hans eða annara fagmanna á þessu sviði?
Hversu lengi á íslenskur almenningur að þola það að forystumenn í íslenskum stjórnmálum láti ófagleg vinnubrögð og einkahagsmuni ráða í stórmálum þjóðarinnar?
Davíð Oddsson lét óreiðumanninn Björgólf Guðmundsson fá ráðandi hluta í Landsbanka á undirverði.
Og Steingrímur Sigfússon fékk óreiðumanninn Svavar Gestsson til að semja um bakreikninginn af sukki Björgólfs.
Hvenær verða Davíð og Steingrímur dregnir til ábyrgðar?
08.02 2010 kl.12:33
Slóð
Þetta er allt í einu hægt þegar senda á málið í þjóðaratkvæði..... Það sem sagt á að gera allt til að koma í veg fyrir að þjóðinn fái að segja sitt...
Mikið vona ég að það verði hraustleg bylting hérna...
08.02 2010 kl.12:46
Slóð
Það er hægt að kjósa (utankjörstaða) í Laugardalshöll frá og með 10 feb. þ.e. á morgun!!
08.02 2010 kl.12:46
Slóð
Svo er eitt... hvort eigum við að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave frá í desember..
Eða geyma atkvæðagreiðsluna fram yfir nýja samninga??
08.02 2010 kl.12:55
Slóð
Gott mál en þjóðaratkvæðagreiðslan verður að fara fram svo við höfum eitthverja samningsaðstöðu.
08.02 2010 kl.12:57
Slóð
NNneeeeeeiiii, á að skoða hvað kemur út úr eignasafni Landsbankans? Hvað er að gerast? Sagði ekki forsætisráðherrans að við þyrftum engar áhyggjur að hafa, eignasafnið dygði fyrir skuldum? Hvað er þá þessi náungi að koma með svona “þvert á það sem Jóhanna sagði”?
Þetta Icesave mál verður vandræðalegra fyrir stjórnarflokkana með hverjum deginum sem líður.
Nú er byrjað að kjósa og ekki hægt að stoppa það. Þessi tillaga stjórnarflokkanna verður felld. Þá er lítið annað að gera fyrir stjórnina en að skila lyklunum. Stofna til utanþingsstjórnar sem tekur á þessum málum af festu.
08.02 2010 kl.13:03
Slóð
Hvað eru glæpir FLokksins og Framsóknar búið að kosta þjóðina?
08.02 2010 kl.13:05
Slóð
Ivesave málið upplýsir hversu tilgangslaust og gagnlaust embættismannakerfið er.
Og lýðurinn borgar leikaraskapinn.
08.02 2010 kl.13:06
Slóð
Hvað er heimska VG og Samfylkingar búin að kosta þjóðina?
08.02 2010 kl.13:07
Slóð
Það er ljóst að nú er vonandi að takast að forða þjóðarbúinu frá tug ef ekki hundruð milljarða aukaskuldum sem VG FLokkurinn ætlaði að koma á Íslendinga.
08.02 2010 kl.13:21
Slóð
Á nú að fara í enn eina rússíbanaferðina með tilheyrandi rugli og baktjaldamakki þar sem vilji þjóðarinnar er virtur að vettugi? Eða er þeim í þetta skiptið alvara með því að gera eitthvað vitrænt í málinu? Við skulum sjá hvað setur í þessu máli. Eitthvað segir mér að ekki séu öll kurl komin til grafar.
08.02 2010 kl.13:22
Slóð
Hvað? Er Svavar allt í einu ekki nógu góður?
Skilaði hann kannski ekki glæsilegum árangri sem stjórnarliðið vildi samþykkja ólesið?
08.02 2010 kl.13:40
Slóð
Aldrei í sögu íslands hefur komið fram annað eins stjórnmálalegt viðrini og nú situr í embætti fjármálaráðherra. Hann viðurkenndi að þegar hann hotaði byltingu ef Icesave yrði samþykkt hafði hann ekki kynnt sér málið, Nú er staðan þannig að hann hefur verið að berjast fyrir því að þjóðin samþykkti þetta þrælafrumvarp og þá kemur í ljós að hann hefur ekki ennþá kynnt sér málið !! Og síðan elta samflokksmenn hans hann eins og læmingjar og eru reiðubúnir að vaða fram af hengiflugi til að þóknast þessum óhæfa foringja. Er hægt að bjarga svona þjóð sem velur eingöngu óhæft rusl til forustu ???
08.02 2010 kl.13:41
Slóð
Þessi maður veit örugglega ekkert hvað hann er að tala um, best að fá Svavar Gests aftur, þá erum við örugg um “góða” niðurstöðu
08.02 2010 kl.13:41
Slóð
Í ljósi skrifa Kristrúnar Heimisdóttur um hin týndu “Brüssel viðmið” vil ég lýsa þeirri von minni, að ESB verði ekki sáttasemjari í deilunni. Í N-Ameríku eða Noregi ætti að mega finna hæfan sáttasemjara. Ég myndi alltaf vantreysta sáttasemjara frá Brüssel. Norskur sáttasemjari mætti að vísu ekki vera jafn blindur ESB trúmaður, eins og sá ágæti maður, sem nú er formaður norsku “Evrópusamtakanna” og Egill dubbaði upp í Silfursviðtal, til að koma trúboðinu á framfæri við íslensku þjóðina. Sá virðist jafnhlutlaus og Eiríkur Bergmann Einarsson um allt sem snertir ESB. Því vara ég við norskum sáttasemjara úr hópi yfirlýstra stuðningsmanna norska Verkamannaflokksins eða systurflokks hans, Höyre.
08.02 2010 kl.14:08
Slóð
Hvernig ætlar Steingrímur að sitja þetta af sér. Búinn að leggja allt sitt pólitíska kapital á eitt spil - sem er svo jóker eftir allt saman.
Fyrst átti nú að verða hér borgarastyrjöld - ef Icesave yrði samþykkt. Svo komst hann til valda - eftir götueirðir, bálkesti og grjótkast.
Þá setti hann nýja nefnd í málið með félaga Svavar og Indriða aðstoðarmann - sem komu í framhaldinu með “glæsilega niðurstöðu..!”
Svo varð hún kannski ekki alveg glæsileg - en mjög ásættanleg og þjóðin yrði að samþykkja hana - óséð og fyrir kaffi - því annars hryndi heimurinn ofan á íslensku þjóðina - enda þjóðin ábyrg og sek eins og syndin.
Svo gaf hann allt eftir í Icesave II samningnum sem kom frá alþingi. Hann bara varð - enda “barnaskapur” að halda að alþingi geti sett fjármálaráðherra skilyrði fyrir ríkisábyrgð.
Auðvitað gat þjóðin ekki greitt atkvæði um Icesave II - eins og þingmennirnir - því málið væri bara þannig einhvern veginn vaxið inn í sig - að það væri bara ekki hægt að kjósa um það annars staðar en á Austurvelli.
Svo kom Bessastaðabóndinn og skemmdi málið fyrir honum - já og þjóðinni. Steingrímur var með böggum hildar, bæði með skeifu og skúffu - og las forsetanum og þjóðinni pistilinn. Nú hefðu Hollendingar og Bretar okkur alfarið í hendi sér...!! Nú fyrst væri málið tapað og framtíðin svört..!
Svo hefur hann brýnt þjóðina kvölds og morgna til að samþykkja Icesave II í þjóðaratkvæðagreiðslunni - annars hryndi allt ofan á okkur - enda þjóðin ábyrg og sek eins og syndin. Svo hefði svo margt farið úrskeiðis að Hollendingar gætu bara farið í mál...
Svo, skyndilega og allt í einu, þegar þjóðin á loksins að fá að segja sína skoðun, kemur.... ALLT Í PLATI....!
Þarf ekki kjósa. Hægt að semja aftur. Fáum hjálp frá sérfræðingum. Samningurinn er ómögulegur...
Og - það sem er toppurinn.
Hann ætlar að sitja áfram, blessaður, eins og ekkert hafi í skorist. Búinn að klúðra öllu sem hægt hefur verið að klúðra - ásamt öllu því sem ekki átti að vera hægt að klúðra - í þessu stærsta máli samtímans.
Og mætir örugglega galvaskur og upplitsdjarfari en nokkru sinni, með óstöðvandi orðaflauminn í næsta viðtal...!
Íslensk pólitík - engri lík.
08.02 2010 kl.14:09
Slóð
Já við erum orðin ansi mörg sem viljum útekt á því hvað glæpir FLokksins og Framsóknar eru búnir að kosta þjóðina ?
Og við erum orðin ansi mörg sem viljum að stjórnvöld síðustu ára, þessi sem hættu að gera vinnuna sína alveg, hættu að láta lög og reglur gilda innan stjórnsýslunnar og létu taumlausa græði nýfrjálshyggjunnar fara um allt með eyðileggingarkrafti sínum gagnvart velferðarkerfinu - ég vil láta þá taka ábyrgð, segja öllu af sér, læra að skammast sín og hundskast úr pólítík. Auk þess eiga þeir óvinir íslenskrar alþýðu sem stunduðu sjálftöku, misnotuðu aðstöðu sína til að ræna af almenning, skilyrðislaust að sæta refsingu og sitja í fangelsi.
Ekki fyrr en þá ríkir réttarkerfi á landinu. Hér skal eitt yfir alla ganga - og sömu lög gilda fyrir alla. Það eru líka glæponar í lögfræðingastétt.
Ný stjórnvöld verða að vinna hörðum höndum fyrir trausti.
08.02 2010 kl.14:26
Slóð
S.Á.
Þeir sem vilja þjóðaratkvæðisgreiðslu um Icesave og finnst hræðilegt ef ekki verður af henni.
Og eru samtímis að hvetja til þess að ESB umsóknin verði dregin til baka svo þjóðin megi ekki kjósa um þann samning... það fólk eru hræsnarar.
08.02 2010 kl.14:27
Slóð
Ég vona að það sé búið að spyrja manninn hvort hann vilji taka þetta að sér ?
Er hann búinn að segja já?
08.02 2010 kl.14:28
Slóð
Er ekki bara málið að finna þeesi blessuðu “brussel-viðmið” - sem líklega eru undir stól útí Bussel - og láta ESB sjá um þetta ? Málið dautt.
Allir sáttir ?
08.02 2010 kl.14:29
Slóð
hehehehe „ Hann lýsti þá þeirri skoðun að áður en gengið yrði frá Icesave-samningunum yrði að liggja fyrir hvað þrotabú Landsbankans skilaði háum fjárhæðum upp í skuldina.”
og hver á að meta það?
08.02 2010 kl.14:31
Slóð
Ég heiti Hannes Hrunsins og mér lýst ekki vel á þetta.
Bjarni Ben. og Sigmundur Davíð eiga að bregða fæti fyrir ríkisstjórnina.
Það má ekki láta þessa Icesave samninga ganga upp.
Verkefnið er að koma ríkisstjórninni frá völdum, þó þjóðinni blæði.
08.02 2010 kl.14:37
Slóð
Ég vona að ráðgjöf hans muni reynast okkur vel.
Tel þó brýnt að þjóðin fái að kjósa, annars óttast ég að það muni aldrei nást sátt meðal þings og þjóðar í þessu máli.
Eftir að kosning hefur átt sér stað, þarf að ganga frá nýjum samningi, og þessi maður hefur án efa þann metnað sem þarf til að standa með okkar hlið; þeas þjóðarinnar, í þessu máli.
08.02 2010 kl.14:49
Slóð
Nákvæmlega Comon.
08.02 2010 kl.14:55
Slóð
Comon, þetta er mjög fín samantekt hjá þér og grátlegt að þetta eru staðreyndir.
Ég vil þjóðaratkvæðagreiðslu og að þjóðin kolfelli þessi skelfilega lélegu samninga. Þar eftir verður þessi vanhæfa ríkisstjórn að víkja því að hún ber ábyrgð á þessu klúðri að öllu leyti.
08.02 2010 kl.15:00
Slóð
Afhverju Ameríkana? Eru þeir eithvað gáfaðri og heilsteyptari en aðrar þjóðir. Hvað hefur þessi gaukur komið mörgum bönmum og fjárfestingafélögum á hausinn?
Það á að vera þjóðaratkvæðagreiðsla um icesave. Enginn getur breytt því nema forsetinn.
08.02 2010 kl.15:05
Slóð
Rétt hjá Common.
Ríkisstjórnin er búin að kosta öllu til og er í raun ekki stætt að sitja ef Icesave samkomulaginu verður hafnað sem án efa verður. Þau hafa sagt að grundvallarforsenda aðstoðar IMF og norrænu ríkjanna er að okkur takist að leysa þetta.
Það er óskandi að einhverjum takist að finna hér nýja fleti og að leysa okkur frá þessari bölvun og í raun höfum við verið læst í þessu máli í meira en ár. Án þess að reyna að gera lítið úr þessu er þetta bara lítill hluti (10-13%) af þeim skuldum sem þjóðin er í raun búin að skuldbinda sig til að borga.
Hrunsskýrslan kemur og ég get ekki séð aðra útleið en að boða til nýrra kosninga og rjúfa þing.
Er einhver stjórntækur meirihluti annar? Borgarahreyfingin með Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki ásamt Ögmundararmi VG hljómar ekki trúverðugt. Hin er að Sigmundur “Doom” leggist í bólið hjá Jóhönnu og Steingrími J og varla sættir hann sig við að liggja til fóta. “Politics make strange bedfellows.” er orðatiltæki sem oft er vitnað til en mér finnst það undarlegt eftir það sem undan er gengið en klárlega er þessi ríkisstjórn of veik.
Nýjar kosningar er kanski það líklegasta en það þýðir áframhaldandi óvissa, frestun bráðnauðsynlegra aðgerða og áframhaldandi veruleikaflótti fyrir íslenska þjóð. Klárlega er tiltrúin á okkur gjörsamlega í núlli.
08.02 2010 kl.15:14
Slóð
Ég get í raun ekki séð neitt ljós í myrkrinu. Þessi ríkisstjórn fór af stað með fögrum loforðum sem enginn mun geta staðið við nema þá að litlu leiti. Klárlega bíður gríðarlega sársaukafullur niðurskurður á opinbera kerfinu bæði hjá ríki og sveitarfélaga. Ég hef í raun ekki heyrt neitt vitrænt frá neinum flokki hvorki Sjálfstæðisflokki eða Framsóknarflokki annað en að þeir væru á móti skattahækkunum og hver er ekki það? En það hafa í raun engar tillögur komið hvernig spara á 150miljarða og hvaða opinbera þjónustu á að skera niður því þessi niðurskurður verður ekkert tímabundið fyrirbæri en varanleg.
Óljós loforð um hjálp, “skjaldborg”, stuðning við skuldug heimili verða í raun að mestu innihaldslaus loforð sem allir munu koma með en í raun enginn getur staðið við enda verður slíkt þá fjármagnað af íslenskum skattborgurum á einn eða annan hátt. Nýendendurreistu bankarnir eru vanfjármagnaðir og “overhead”ið er allt of stórt þannig að þeir þurfa gríðarlegan vaxtamun og ef innistæðuvextir fara undir 4-5% vill fólk heldur hafa peninginn undir koddanum en í ótraustum bankastofnunum.
Það er í raun ekki hægt að sjá séstaklega auðvelda leið út úr þessum ógöngum sem við erum komin í.
08.02 2010 kl.15:30
Slóð
Er þetta ekki góð frétt? Ég mundi halda það. Sama hvaðan gott kemur. Sérfræðingur með reynslu af alþjóðasamningum sem talar ensku. Það er ágætis byrjun. Nú er bara að gefa honum tækifæri.
Eitt er ljóst: málið verður ekki verra því það er sennilega ekki hægt að koma því í meiri hnút og óvissu en orðið er. 8. febrúar er góður dagur að því gefnu að flokkarnir verði allir samtaka í málinu frá byrjun. Það er í raun mesta klúðrið í þessu máli að Sjálfstæðismönnum og Framsókn var gefin kostur á því að spila frítt í heilt ár. Það klúður verður því miður að setja á VG og Samfylkingu.(Borgara)hreyfingin skiptir nákvæmlega engu máli og hefur aldrei gert. Því miður fyrir þá sem studdu það fyrirbæri.
Staðan í dag er því sú að þessir fjórir flokkar bera ábyrgð á Icesave klúðrinu á einhverjum stigum málsins. Það er engin saklaus af Icesave og vonandi að einhver fái að sitja inni fyrir það. Þó ekki væri nema Sigurjón Tær-snild. Þeir sem bera mestu ábyrgðina munu því miður aldrei þurfa að axla þá ábyrgð. Þ.e. Davíð, Björgin G, Árni M, Bjöggar, H. Ásgrímsson, FME og etc.
08.02 2010 kl.15:34
Slóð
Það er kanski ekki svo galið að kalla hér til mann sem hefur m.a. sérhæft sig í því að fjalla um skuldir sem glæpamenn og einræðisherrar hafa dregið yfir þjóðir sínar (the dilemma of odious debts). Kanski við getum sem þjóð fengið afslátt á skuldinni með hliðsjón af því hvernig til hennar var stofnað. Ef það á að vera útgönguleiðin þá verðum við líklega að óska eftir því að tilurð icesave og háttsemi íslenskra stjórnvalda í aðdraganda hrunsins verði skoðuð með sömu gleraugum og athafnir illræmdra einræðisherra á borð við Idi Amin og Saddam Hussein. Hvers vegna við ættum í sama mund að setja af sitjandi ríkisstjórn og jafnvel skipta sjálfum Hrunflokknum inná aftur skil ég hins vegar alls ekki.
08.02 2010 kl.15:34
Slóð
Það sem sést greinilega á máli commons sjalla er, að tilgangur fíflsgangsins hjá þeim sjöllum er allan tíman að reyna að koma ríkisstjórninni frá, vega að henni úr launsátri. Og gott að fá þetta staðfest beint ofan úr Valhöll.
Í þeim tilgangi hika þeir ekki við að stórskaða blessaða ættjörðina. Reka sjallarýtinginn í hold hennar miskunarlaust. Valda sem mestum skaða. Það er markmið sjalla.
Núbúnir að rústa hérna landinu og nú valda þeir skaðakostnaði sem mælist 75 milljarðar á mánuði efnahagslega auk þess að stórskaða atgerfi og ásjónu landsins
Af sjallanum skulu þér þekkja þá.
08.02 2010 kl.15:35
Slóð
Það á að kjósa um þetta og svo á að fara útí önnur samningarferli.
Lee Buchheit á að leita réttar okkar í þessum lögum með því að lesa sig til um reglur EEA/EFTA svæðis utan við EU með útibú Landsbanka innan EU.
Þetta þarf að fara löglega leið svo ekki um villist að við eigum að borga nema helminginn eða þá nokkuð yfir höfuð.
Það stendur skýrt í ákvæðum laga um að tryggingasjóðir landanna innan EU eigi að borga þetta ef um útibú banka utan EU er að ræða.
Lee Buchheit þarf að kafa í þetta enn ekki láta reka á eftir sér til að ganga frá málinu sem fyrst og skuldbynda heila þjóðina fyrir það eitt eingöngu.
Við erum hluti af efnahags svæðinu enn ekki EU.
08.02 2010 kl.15:46
Slóð
Kosningar í kjölfar eftirfarandi atburða:
Óumflýjanlegu og niðurlægjandi (fyrir þessa ríkisstjórn) höfnun á Icesave II í þjóðarakvæðagreiðslunni og því miður óvíst hvenær og hvort mótaðilinn vill semja aftur við okkur í bráð og við vart talin samningstæk. Aðstoð IMF/norrænu þjóðanna á ís og greiðsluþrot þjóðarinnar 2011/2012 er álítið óumflýjanlegt enda náum við ekki án aðstoðar að endurfjármagna. Þetta mun dýpka, auka og lengja í þessu hræðilga ástandi sem mun bara versna.
- Hrunsskýrslan sem liggur bráðlega fyrir og klárlega hefur landinu verið afleitlega stjórnað þennan áratuginn og í raun ættu ráðamenn síðustu ára að koma grátklökkir og knékrjúpandi biðja þjóðina afsökunar og biðjast fyrirgefningar en slíku er ekki að mæta hér. Allt er öðrum að kenna nema þeim sjálfum nema menn verði nánast dæmdir sekir í rétti og varla þá.
-Áframhald á kvótakerfinu þar sem kvótinn er orðinn eign innlendra og erlendra bankastofnanna og gríðarlegar skuldir útgerðarfyrirtækja sem að mestu voru ekki í neinum tengslum við útgerðarstarfsemi, afleiðusamningar og annað fjármálabrask. Á að afskrifa skuldirnar og gefa þetta í annað sinn? Á að hafa þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta mál, mörgum finnst það?
- Fjármögnun ríkisins og gríðarlegur niðurskurður 150-200 miljarðar og það varanlega. Þeir sem vilja minni skatta verða að skera niður og sýna hvar þeir ætla að gera það. Þetta held ég verði erfitt fyrir alla flokka og því miður bráðnauðsynlegt enda er þetta meira en 1 1/2 Icesave skuldbinding á ári.
- Aðstoð við skuldug heimili, hvað, hvenær, hverjum á á hjálpa og ekki minnst hvernig á það að vera fjármagnað enda eru þessir bankar allir vanfjármagnaðir.
- Evrópumálin. Marga dreymir vota drauma um EB aðild aðir álíta það helvíti á jörðu en hver er þá framtíðarsýn þeirra?
Einangruð, skuldumvafin og rýrð öllu alþjóðlegu trausti hokrum við á eyju sem stefnir á næstu áratugum í að verða eitt fátækasta land Evrópu sem allir pissa á. Þetta mun koma fram í deilum um fiskveiðar og aðrar auðlindir þar sem mun verða stigið á okkur. Bandaríkjamenn nenna ekkert að tala við okkur og ekki get ég séð að Kanadamenn hafi yfir höfuð nokkurn áhuga á okkur hvað þá aðrir.
08.02 2010 kl.15:56
Slóð
“Track record” er afleitt fyrir þessa ríkisstjórn og ekki minnast á ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar sem tórði í ár og síðan bætist ábyrgðarleysis stjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks þar sem eignir ríkissins voru færðar fjárglæframönnum, þar sem þingheimur var að mestu á spena þessara svokölluðu auðmanna og fyrirtækja þeirra. Eftirlitsleysið algjört og veislan var í hámarki. Heimskulegasta hagstjórn í heimi. Þar sem Crony capitalism var stundaður undir yfirskyni frjálshyggju meðan ríkisútgjöld voru aukin um 43% á 8 árum og ríkisstarfsmönnum fjölgað um meira en 1/4 og skattheimta á þorra fólks var aukin meðan búið til var bómullarumhverfi fyrir fjárglæframenn undir því vitfyrrta yfirskyni að gera Ísland að alþjóðlegri fjármálamiðstöð.
Er einhver búinn að biðja þjóðina afstökunar, ég hef ekki heyrt neitt en þið?
08.02 2010 kl.17:03
Slóð
Ómar og Gunnr eiga erfitt um þessar mundir - og skal engan undra.
Hafa barist fyrir þessum nauðungarsamningum daginn út og daginn inn í marga mánuði. Ef þeir yrðu ekki samþykktir - bara núna strax, þá færi hér allt lóðrétt til andskotans í fyrramáli.
Og nú er Ómar búinn að reikna að það kosti 75 milljarða á mánuði að taka EKKI á sig skuldir á bilinu 300 til 500 makr...!!!! Hvílíkur snillingur!
Hvað ætli það kosti að taka EKKI á sig skuldir að upphæð 1.000 eða 10.000 makr...?
Ómar - þú átt að skrifa undir nafninu Múnkhásen. Þið bræður búið í sama raunveruleikanum - þeim þar sem menn toga fast í hárið á sér til að losna úr festum..!
Við hin ætlum að vera í raunveruleikanum þar sem skuldir eru einfaldlega skuldir.
Og annarra manna skuldir - eru annarra manna skuldir.
08.02 2010 kl.17:21
Slóð
Ég vil fá að kjósa nei um Icesave þó ekki væri nema til að sýna fjármálakerfi heimsins að einhver þjóð hefur dug til að segja í kosningum.
Ekki meir, ekki meir.
08.02 2010 kl.17:23
Slóð
Ef þessi maður er svona klókur samningamaður - hvers vegna eru þá Bandaríkjamenn að drukkna í skuldum.
Eru það traustvekjandi meðmæli með manninum?
Það er alltaf verið að segja okkur að við séum dæmd eftir því hvernig þjóð okkar hegðar sér út á við - gildir eitthvað annað um fólk af öðru þjóðerni?
Í hafið með Icesave. Nei takk við þeirri kúgun.
08.02 2010 kl.17:39
Slóð
Svavar Gestson er mun hæfari en þessi gaur. Svavar er líka snöggur að semja og nennir ekkert að hanga yfir málunum. Mitt atkvæði er með Svavari enda er hann góður evrópusinni.
08.02 2010 kl.18:18
Slóð
“Hvað ekki Svavar...lol....???” Loksins GÓÐAR fréttir. Eigum við ekki að VONA að nú fari vinnubrögð í IceSLAVE ruglinu að batna og verða á faglegum nótum héðan í frá..!
kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)
08.02 2010 kl.18:31
Slóð
@Common
Ég er ekki með Icesave heilkennið. Þrátt fyrir að íslenskir skattborgarar borgi nú enn meiri fé í þetta mál með að fá erlenda sérfræðinga sem hefði auðvitað átt að koma hér um leið þá breytir það ekki okkar vonlausu samningsstöðu þar sem eina sem við getum vonast eftir er að lækka vextina á þessari skuldbindingu en á meðan nálgumst við greiðsluhrun.
Ljóst er að það verður enginn milligöngumaður í þessu ferli sem varla er hægt að kalla samninga. Mér virðist eins og Hollendingar og Bretar hafi sagt við íslensk stjórnvöld að þeir hafi ekkert við þá að segja nema stjórn og stjórnarandstaða komi með sameiginlegt gagntilboð undirritað af öllum og fyrr hafi þeir ekkert við þá að tala eða segja. Þar stendur málið núna.
Traustið á okkur er ekkert enda orð og undirskriftir ráðamanna einskis virði og síðan situr forsetinn eins og skrattinn á fjósbitanum.
Auk þess eiga þeir ekki að fá borgað neitt fyrr en að 6 árum liðnum og á meðan klúkkan gengur á okkur sem erum að falla á tíma þar sem greiðsluþrot vofir yfir.
Það að vaxtaálagið hækkar og hækkar, það að IMF og norrænu ríkin veiti enga lánaaðstoð fyrr en þetta er leyst og að traust á okkur sé lítið er í raun allt staðreyndir sem hafa komið fram.
Þótt ÓRG standi sig vel í 2 viðræðuþáttum og þrát fyrir að tylft greinarhöfunda styðji okkar mál er það ekki nóg því miður það held ég að flest hugsandi fólk gerir sér grein fyrir.
08.02 2010 kl.18:42
Slóð
Það verður að vega tvo kosti annar er að semja um einhver vaxtabrot af 10% af skuldum þjóðarinnar meðan við nálgumst greiðsluhrun og lendum í nauðarsamningum og þurfum að borga okurvexti af stærri og stærri hluta af öðrum skuldum þjóðarinnar.
Ísland er með yfir 1 1/2 Icesave skuldbindingu í yfirdrátt á hverju ári. Við erum með helmingi hærri halla á fjárlögum en Grikkland sem er í neyðaraðgerðum og 25% launalækkun opinberra starfsmanna og gríðarlegan niðurskurð (þeir eru með 13% halla meðan hallinn hér verður að óbreyttu tvöfalt hærri). Stór hluti þjóðarinnar virðist hreinlega hafa gleymt þessu. Þessi grátlega Icesave skuldbinding (sem allir flokkar viðurkenna enda búið að geirnegla okkur við þessi ósköp) er því miður langt langt frá að vera stærsta vandamálið okkar og vonandi er ekki fólk svo óupplýst að halda það.
Ef ekki kemur til lánaaðstoð enda eru fáir tilbúnir til að lána okkur þá kemur landið í greiðsluþrot í byrjun árs 2012 ef við þá merjum 2011 sem í raun er efast um. Þetta er staðan þegar við ætlum að fara í langt samningaferli til að ná Icessave vöxtunum úr 5,5 í 4,0 -4,5% og það gæti tekið mánuði kanski enn lengur.
08.02 2010 kl.18:47
Slóð
@Ása,
Það er ekki hægt að kenna honum um fjárlagahalla Bandaríkjanna sem er hlutfallslega míkróskopískur miðað við fjárlagahalla íslenska ríkisins sem er heimsmet í landi á friðartímum með vestrænt hagkerfi.
Annars getum við valið að standa utan við vestrænt hagkerfi. Albanía gerði þetta áður eins Afganistan undir stjórn Talíbana og núna er það Norður Kórea.
Þetta er í raun áskrift að fátækt og sjálfsþurftarbúskap.
09.02 2010 kl.01:49
Slóð
Það er ekki hægt annað en brosa að þessu. Búkkheit frá USA.
Hva - er búið að segja honum af EEA Agreement ?
Jú jú, eins og maðurinn sagði, fáum alla “snillinga” heimsins í þetta. Ekki málið. Engu skal til spara.
Skaðinn af völdum sjalla er orðinn það mikill hvort sem er (75 milljarðar á mánuði) að nokkrir miljarðar til eða frá er aðeins dropi í þá botnlausu sjallaspillingarhít.
14.02 2010 kl.00:15
Slóð
http://video.google.com/videoplay?docid=6076118677860424204#