Áhugi hins 41 árs gamla Marek Daniluk á hinni 24 ára gömlu bresku leikkonu Keiru Knightley fór svo illa úr böndunum að Marek var handtekinn á dögunum.
Marek þessi mun vera sjötti í röð eltihrella þeirra er hafa herjað á Keiru um dagana en hann sat fyrir henni fyrir utan West End’s Comedy Theatre í London í gær.
Þar leikur Keira í uppsetningu á Mannhataranum eftir Moliere (The Misanthrope).
Hinn illa haldni Marek þarf að mæta fyrir rétti þann 4.júní nk en þangað til mun hann að sitja í gæsluvarðhaldi.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
Ein ummæli
Rita ummæli09.02 2010 kl.13:37
Slóð
Pólskur eltihrellir - ha ha ha