Innlent - mánudagur - 8.2 2010 - 15:50

Steingrímur J. starfandi forsætisráðherra. Jóhanna tekur aftur við á föstudag

johannaogsteingrimur.jpgSteingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, er starfandi forsætisráðherra þessa vikuna í fjarveru Jóhönnu Sigurðardóttur, sem fór í frí til útlanda í fyrradag.

Einar Karl Haraldsson, upplýsingafulltrúi í forsætisráðuneytinu, segir í samtali við Eyjuna að þetta hafi alla tíð verið afar skýrt, um það hafi verið samið í stjórnarsáttmála að formaður VG yrði starfandi forsætisráðherra komi til fjarveru Jóhönnu.

Í samkomulagi flokkanna er jafnframt kveðið á um að verði báðir flokksformenn fjarverandi samtímis skuli Össur Skarphéðinsson taka við stýrinu. Ein undantekning hefur þó orðið á því, þegar þau þrjú voru á þingi Norðurlandaráðs og Kristján Möller var starfandi forsætisráðherra í tvo daga.

Enginn ríkisstjórnarfundur felldur niður

Þá segir Einar Karl að því hafi verið ranglega haldið fram í ýmsum fjölmiðlum um helgina að ríkisstjórnarfundur hafi verið felldur niður vegna fjarveru Jóhönnu. Nú standi yfir kjördæmavika Alþingis og hafi af þeim sökum verið löngu ákveðið að fella niður hefðbundinn þriðjudagsfund ríkisstjórnar á morgun.

Þetta staðfesti einnig Hrannar B. Arnarsson, aðstoðarmaður Jóhönnu, við Eyjuna. Hann segir að Jóhanna hafi sérstaklega valið þessa daga til að bregða sér í stutt frí, því þannig missti hún hvorki af ríkisstjórnarfundi né degi í þinginu. Hann segir að Jóhanna hafi ekki  tekið frí í rúm tvö ár og hafi unnið nótt sem nýtan dag, virka sem óvirka daga allt síðasta ár. Auk þess telur hann að úlfaldi sé gerður úr mýflugu, þar sem Jóhanna sé í stöðugu símasambandi vegna stöðunnar í Icesave-málinu þó hún hafi brugðið sér í nokkurra daga frí.

25 ummæli

Rita ummæli

Jói
08.02 2010 kl.15:52

er ekki best að hann taki við og huldukonan fær frí það sem eftir er .

Des
08.02 2010 kl.15:57

Skil ekki af hverju einhver þarf að taka við af henni. Að nafninu til kannski en ekki meira en það.

Björn Gunnarsson
08.02 2010 kl.16:01

Það er staðreynd að Jóhanna Sigurðardóttir vinnur langan vinnudag. Lengri en flest ykkar bitra fólk getur státað af.

e
08.02 2010 kl.16:03

Ekki fara gráta Bjössi

Sigurður #1
08.02 2010 kl.16:03

Jóhanna er ekki, og hefur aldrei verið Forsætisráðherra nema að nafninu til.

Hún er leppur.

Leppur fengin til að fronta hrunverjana í samfó í síðustu kosningum.

Það skiptir nákvæmlega engu máli hvar í veröldinni hún er stödd.

franskur bóndi
08.02 2010 kl.16:13

Það sem mér finnst mest sjokkerandi við þessa frétt er að vita að Kristján Möller hafi verið starfandi forsætisráðherra í 2 daga, haha :-)

vestfirðingurinn
08.02 2010 kl.16:23

best að hafa hana bara í fríi áfram

xcv
08.02 2010 kl.16:25

bíddu bíddu er ekki jarðaför á morgun á vegum fosetisráðuneitisinns og FORSETISRÁÐSTÍRA mætir ekki .Vanvirðing við við hinn fallna foringja framsóknar

baldvin Inga
08.02 2010 kl.16:31

Ótrúlegt einelti sem hefur viðgengist í fjölmiðlum í garð Jóhönnu. Ég man ekki eftir öðru eins vegna kallanna sem hafa gengt þessari stöðu. Stöðugt ýjað að því að hún sé ekki við stjórn, vinni ekki vinnuna sína eða sé leppur eða viljalaust verkfæri í höndum einhverra karla. Ég rétt vona að hún standi þetta af sér og klári verkefnið sem hún tók að sér. Enginn annar hefði náð sama árangri að mínu viti. Enginn hefði notið til þess trausts. Sagan mun vonandi dæma hana á grundvelli verkanna en ekki eineltisumræðunnar sem nú er skipulögð í Valhöll og bæli framasóknarflokksins við Hverfisgötu.
Baldvin I

Elfa Jóns
08.02 2010 kl.16:38

Jóhanna er vissulega ekki mesta fjölmiðlakonan eða mesti froðusnakkurinn.

En mikið rosalega er ósanngjarn að skammast út í hana fyrir að taka sér frí. Sér í lagi eftir það ár sem á undan er gengið. Hún hefur orð á sér fyrir að vera duglegasti vinnuþjarkurinn af öllum ráðherrunum og unnir sér sjaldan hvíldar.

Margt má gagnrýna hana fyrir ... en leti er svo sannarlega ekki eitt af því.

Ása
08.02 2010 kl.16:38

Ég hef verið og verð alltaf á þeirri skoðun að frí geri fólki gott og sé ekki átæðu til annars en að óska Jóhönnu til hamingju með þetta frí.

Icesave hefur tekið allt of mikinn toll af íslenskum ráðamönnum sama hvar í flokki þeir standa.

Nei við Icesave.
Nei við óréttlæti.
Nei við Hagafeðga.
Nei við Landsbankafeðga.

Já við suma aðra sem eru með vel starfandi fyrirtæki þó í þrengingum séu.
Fyrr má nú aldeilis vera ef það á alltaf að hengja bakara fyrir smið og þá smáu og sleppa þeim risastóru.

Ása
08.02 2010 kl.16:39

Guð blessi Jóhönnu í fríinu og opni augu hennar fyrir þeim kúgunaranda sem verið hefur yfir málinu. Í Jesú nafni.

HTH
08.02 2010 kl.16:40

Sammála Baldvini Inga. Hnútukastið í garð Jóhönnu Sigurðardóttur er með hreinum ólíkindum. Það sannast ef til vill enn eina ferðina að ef maður er ekki hvítur karl þá er ekki nóg að gera vel og jafnvel mjög vel, nei ekkert nema yfirburðir yfir allt og alla duga til að fá viðurkenningu.

Tek fram að ég er ekki alltaf sammála JS en hún er svo sannarlega að vinna vinnuna sína.

Arnar
08.02 2010 kl.16:54

Merkilega ómögulegt að gera gagnrýnendum til hæfis.

Stór hluti stjórnmálamanna er gagnrýndur fyrir að vera yfirborðslegur og láta stjórnast af PR stöntum, spuna og þorsta í sviðsljósið.

Núna höfum við forsætisráðherra sem er helst gagnrýndur fyrir að hlýða ekki PR ráðgjöf og láta þess í stað stjórnast af sömu gömlu réttlætiskenndinni, vinnuseminni og skapfestunni og hún hefur alltaf notið virðingar fyrir. Þetta eru þeir kostir sem réðu því að fólk treysti Jóhönnu Sigurðardóttur best fyrir þessu erfiða verkefni á þessum tímum.

Sigurður #1
08.02 2010 kl.16:55

Skil ekki hvað Baldvin Inga og HTH eru að blanda kynferði inn í þetta.

Ég held að Geir Haarde hafi nú ekki verið kerling, (ekki líkamlega allavega) en ekki voru gagnrýnendur hans úthrópaðir fyrir að vera karlahatarar.

Gagnrýnin á Geir hafði ekkert með það að gera að hann hafi ekki veirð lesbísk flugfreyja.

Bara vanhæfur.

Rétt eins og Jóhanna.

Hefur bara ekkert með kynið að gera.

Spy
08.02 2010 kl.17:01

Ef staðreynd er að Jóhanna sé að koma sér úr embæti í nokkra daga til að komast hjá því að fara í jarðaför Steingríms er Jóhönnu mikil vorkun - Ef ástandið á stjórnarheimilinu er orðið svo rafmagnað er ástandið slæmt !
Guð Blessi Ísland !

Gunnlaugur
08.02 2010 kl.17:08

Skattagrímur starfandi forsætisráðherra ÞESSA VIKUNA ???????

Hann hefur sinnt þessu frá upphafi...

Hilmar Ólafsson
08.02 2010 kl.17:10

OK - reynum að hafa þetta málefnalegt. Þið góða fólk sem eruð hér að verja Jóhönnu: það viðgengst ekki lengur að hrósa starfsmönnum fyrir mikla viðveru einvörungu, heldur er í æ ríkara mæli litið til afkasta viðkomandi og hvað ávinnst af störfunum.

Lítum framhjá því að forsætisráðherra vinni (að ykkar sögn) baki brotnu myrkranna á milli. Skoðum aðeins hvað hefur áunnist.

Getið þið bent mér á einn góðan hlut sem forsætisráðherra - og þessi ríkisstjórn öll - hefur komið í framkvæmd í þágu þjóðarinnar í landinu? Einn hlut til að rétta af stöðu hins almenna launaþræls?

Bara einn hlut ... ?

joi
08.02 2010 kl.17:11

Er einhver farinn í frí?

bjst
08.02 2010 kl.17:18

Jóhanna hefur staðið sig með ágætum og þagmælska hennar er til fyrirmyndar.
Og væri betur að fyrirrennarar hennar hefðu haft vit á að halda kjafti og væru þá vandræðin hér kannski minni.

HIH
08.02 2010 kl.17:28

Hvaða dagar eru óvirkir ? Svar óskast!

Sigurður #1
08.02 2010 kl.18:23

Hilmar.

Skjaldborg um útrásarvíkinga og afskriftir skulda þeirra.

Umsókn í ESB.

Punktur.

Hilmar Ólafsson
08.02 2010 kl.18:28

Hmm ... merkileg þögn skellur á hjá þeim sem gjamma hvað hæst um “dugnað” forsætisráðherra þegar þeir eru beðnir að benda á árangurinn af allri þessari vinnu.

Þá slær þögn á mannskapinn.

Hér er ég
08.02 2010 kl.18:41


Jóhanna hefur staðið sig vel í að koma öllu í sama farið
Hvað væri fólk að gera núna ef Sjálfstæðisflokur og Framsókn færu með stjórnartaumana?
Sömu einstaklingarnir að eignast allt aftur

Hugó
08.02 2010 kl.22:30

Ég þekki til hennar, ég held að hún norn í ALVÖRU. Fáránlegt að svona manneskja sé forsetisráðherra.

Þið þekkið hana ekki persónulega.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar