Innlent - mánudagur - 8.2 2010 - 17:37

Þorleifur kærir utankjörfundar- atkvæðagreiðslu í forvali Vinstri grænna um helgina

thorleifursoley.jpgÞorleifur Gunnlaugsson, borgarfulltrú Vinstri grænna, sem lenti í öðru sæti í forvali flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík, hefur kært utankjörfundaratkvæðagreiðsluna.

Þorleifur skipaði þriðja sæti á lista VG í borgarstjórnarkosningunum 2006, en hefur undanfarið verið oddviti flokksins í borgarstjórn, þ.e. eftir að tveir efstu menn á listanum 2006, þau Svandís Svavarsdóttir og Árni Þór Sigurðsson, settust á Alþingi og drógu sig í hlé frá borgarstjórn. Sóley Tómasdóttir skipaði fjórða sætið í síðustu kosningum, en varð síðar borgarfulltrúi og hefur undanfarið skiptað annað sæti listans.

Uppröðun á lista verður óbreytt

Í forvalinu í fyrradag velti Sóley Þorleifi úr sessi og vann kosningu um efsta sætið. Hlaut hún til þess 439 atkvæði, en Þorleifur hlaut 493 atkvæði í 1.-2. sæti. Ekki var gefið upp hve mörg atkvæði Þorleifur fékk í fyrsta sætið eingöngu, en Eyjan hefur heimildir fyrir því að munurinn á þeim tveimur hafi aðeins verið um 40 atkvæði. Utankjörfundaratkvæði voru 84 og því má fljótt á litið ætla að niðurstaðan gæti breyst ef utankjörfundur verður dæmdur ógildur.

Hins vegar segir Stefán Pálsson, formaður kjörstjórnar í samtali við Eyjuna, að skipting utankjörfundaratkvæða á milli Sóleyjar og Þorleifs hafi verið nokkuð jöfn og því sé ljóst að endanleg niðurstaða muni aldrei breytast, hvort sem utankjörfundur verður dæmdur ógildur eða ekki. Þá segir hann að Þorleifur sé fyllilega upplýstur um þetta og geri sér grein fyrir að röð á lista verði óbreytt. Hann hafi þó viljað kæra kosninguna af prinsippástæðum, til að fá úr ákveðnum atriðum skorið, m.a. er varðar upplýsingagjöf og fleira.

Frambjóðendur í forvali VG hafa tveggja sólarhringa frest til að kæra kosninguna og rennur hann út klukkan tíu í kvöld.

Ekki hefur náðst í Þorleif í dag, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.

11 ummæli

Rita ummæli

Ólinn
08.02 2010 kl.17:39

Þetta er allt sami brandarinn... hvert sem á er ltið....

Allir gráta það að missa völd...fokk fólkið...

Hrákaldur
08.02 2010 kl.17:40

Hvað eru þessar kellingar alltaf að taka allt frá okkur. Eru þær ekki búnar að fá nóg. Munið, það er gráðug kelling á bak við sérhvern útrásarvíking.

Hannes Hólmbert
08.02 2010 kl.18:11

Þorleifur, sem var svo ægilega happy með kosningarnar í gær!

Tása
08.02 2010 kl.18:18

já þetta er fyndið.

Hansi
08.02 2010 kl.18:48

VG eða Sjallar, kúkur eða skítur....sami saur

KVERÚLANTINN
08.02 2010 kl.18:55

spái því að sóley fari sömu leið og kolbrún enda jafn vitlausar báðar

Rósa
08.02 2010 kl.19:42

VG ættu að halda sig við stofnfjárbréfin.

Það brask hentar flokknum best og þekkingin er til staðar eins og nú hefur sannast.

j.a.
08.02 2010 kl.23:28

Alltaf síga flokkarnir neðar og neðar í mannvirðingarstiganum. Er það ekki merkilegt ,hjá svona H’Amenntuðu fólki. (auður íslendinga)

Jón Jón Jónsson
08.02 2010 kl.23:38

Hvílík fegurð yfir ofríki Svavars-arms Steingríms, Álfheiðar og Árna Þórs.

Ásgeir Gunnarsson
08.02 2010 kl.23:55

er talið að það þuffi EKKI að þinglýsa kosningaloforðum og stefnuskrá flokkanna ? er talið að Islenska stjórnmálaelítan þurfi EKKERT aðhald ? hvar erum við stödd ?

Erna Hrund
09.02 2010 kl.10:54

“Hins vegar segir Stefán Pálsson, formaður kjörstjórnar í samtali við Eyjuna, að skipting utankjörfundaratkvæða á milli Sóleyjar og Þorleifs hafi verið nokkuð jöfn og því sé ljóst að endanleg niðurstaða muni aldrei breytast, hvort sem utankjörfundur verður dæmdur ógildur eða ekki.”

Greinlegt að hann er ekki búinn að skoða hvernig þessi atkvæði komu út en þau skiptust ekki jafnt, ekki nema hann vilji halda því fram að um 50 atkv á móti 10! sé jafnt.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar