Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fékk ríflega 16 milljónir króna frá Askar Capital meðan hann gegndi störfum sem efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar árið 2008. Að auki var hann á bíl frá Askar og þáði fleiri hlunnindi.
Þetta er fullyrt á vefmiðlinum Pressunni sem segist hafa fyrir þessu öruggar heimildir.
Fram kemur að Tryggvi var bankastjóri Askar Capital frá stofnun árið 2007 en sumarið 2008 tilkynnti hann að hann færi í hálfs árs leyfi frá bankanum eftir að Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, óskaði eftir því að hann kæmi til starfa í forsætisráðuneytinu sem efnahagsráðgjafi. Í samtali við fjölmiðla sagði Tryggvi Þór þá að hann yrði ekki á launum hjá Askar Capital meðan hann sinnti starfi sínu og því yrðu engir hagsmunaárekstrar.
Öruggar heimildir Pressunnar herma hins vegar að hann hafi fengið áfram mánaðarlegar greiðslur frá Askar Capital eftir að hann fór í leyfi og meðan hann gegndi stöðu efnahagsráðgjafa ríkisstjórnarinnar. Greiðslurnar voru skilgreindar sem bónus fyrir fyrri helming ársins 2008. Rekstur Askar Capital var hins vegar mjög erfiður á árinu 2008 og nam tap af starfseminni samkvæmt tilkynningu til Kauphallar 12,4 milljörðum eftir skatta.
Pressan segir að Tryggvi hafi auk þess verið á bifreið sem Askar Capital greiddi fyrir og jafnframt hafi hann þegið ýmis önnur hlunnindi frá bankanum.
Þá kemur fram að Tryggvi þáði laun frá forsætisráðuneytinu sem voru ígildi launa aðstoðarmanna en þau voru á þeim tíma milli 7 og 800.000 krónur. Hann lét svo af störfum sem efnahagsráðgjafi í október 2008.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
79 ummæli
Rita ummæli08.02 2010 kl.08:43
Slóð
Upp komast svik um síðir.
08.02 2010 kl.08:52
Slóð
Kannski að Geir Haarde hafi rekið hann þegar hann komst að þessu ?
Tryggvi Þór sagði á Alþingi í haust, að dauðasyndunum 7 væri um að kenna hvernig komið var fyrir fjármálum heimsins, en ekki kapitalisku hagkerfi.
Hann hefur evt sagt þetta af eigin reynslu, verandi svo gráðugur sjálfur.
08.02 2010 kl.08:52
Slóð
Tryggvi Þór Herbertsson er Sjálfstæðisflokknum og Alþingi til háborinnar skammar !
08.02 2010 kl.08:53
Slóð
Audvita tharf thessi fátaeklingur ad fá laun, svona gaur faer aldrei nóg,
08.02 2010 kl.08:56
Slóð
taka pokan sinn....
08.02 2010 kl.08:59
Slóð
Ég hefði gjarnan viljað sjá einhverja heildarúttekt á því hversu miklu yfirmönnum bankanna tóksta af tappa af kerfinu og ofan í eigin vasa.
Vill einhver giska á hversu há heildarupphæðin er?
08.02 2010 kl.09:00
Slóð
Ekki getur verið aðTryggvi gerði það fyrir Askar Kapital að gegna störfum sem efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar árið 2008.
Ekki getur verið að Tryggvi hafi ráðfært ríkisstjórn að láta Seðlabanka moka hundruðum miljarða í fjármálafyrirtækinn 5 mín. fyrir hrun og gengisfall íslensku krónunar ?
Getur verið að fjárfestingabankinn hafi verið í djúpum skít haust 2008 og Tryggvi troðið sér í starf til að gera misheppnaða tilraun til að bjarga eigin fyrirtæki ? Og Geir nógu örvæntingafullur til að hleypa honum að ?
Hverjir eiga og reka ;
http://www.askar.is/index.php?option=com_content&view=article&id=51&Itemid=58&lang=is
Hefur Askar Capital sætt rannsókn í kjölfarið á bankahruninu ?
08.02 2010 kl.09:03
Slóð
Enn bætist í hóp AUÐRÓNANNA.
08.02 2010 kl.09:03
Slóð
Ætlar þessu ekki að linna. Alltaf fjölgar spillingarmálnum hjá Sjálfstæðisflokknum og alltaf eykst fylgið hjá þeim. Ég bara botna ekkert í samlöndum mínum.
08.02 2010 kl.09:07
Slóð
Sjálfstæðisfólk hlýtur nú að fara að rísa upp og krefjast heiðarleika frá sínum flokki. Annað væri bara sjúkt
08.02 2010 kl.09:08
Slóð
Nú verður Tryggvi Þór að taka af öll tvímæli. Bæði um þetta mál og lánið.
Það er engin stemming fyrir neinni launung eða undanslætti.
08.02 2010 kl.09:11
Slóð
Sumir eru svo fjölhæfir miðað við aðra og árangurinn vonandi eftir því.
08.02 2010 kl.09:12
Slóð
Það var tíska að segja að Gei H hummaði fram af sér allar ákvarðanir - þó var honum ofboðið og rak Tryggva Þór. Það hefur aldrei komið fram hvað gerðist í forsætisráðuneitnu þegar Geir tók þarna á sig rögg.....
08.02 2010 kl.09:14
Slóð
Seiken
08.02 2010 kl.08:59
Mjög miklu............Ná í skottið á þessu fólki og láta það skila til baka og taka upp nýtt hátterni byggt á borgaravitund.
Voru menn ekki með troll?
08.02 2010 kl.09:15
Slóð
Spanni
08.02 2010 kl.09:03
Það væri flott ef hinir væru eitthvað skárri
08.02 2010 kl.09:19
Slóð
Jahérna hér.
08.02 2010 kl.09:21
Slóð
Já nú er ég hissa!!!
Eða... nei...
08.02 2010 kl.09:24
Slóð
Ef Tryggvi Þór hefði verið að störfum í siðmenntuðu landi hefði hann ekki farið “í leyfi” til að taka strax við starfinu sem efnahagsráðgjafi forsætisráðherra. Í siðmenntuðum löndum þurfa menn að fara í allavega 6 mánaða “cooling-off period” áður en farið er í önnur viðlíka störf, til að tryggja að ekki sé um hagsmunaárekstra að ræða.
08.02 2010 kl.09:28
Slóð
Enn einn gráðugi spillingar bróðirinn Kannski var þetta bara óvart hjá honum
08.02 2010 kl.09:31
Slóð
Karlgreyið æddi inn á þíng til að fela hitt og þetta
enda sannur sjalli,
svo varð tölvugutti honum að fótakefli
Því miður er sjallaflokkurinn gegnsýrður af svona vafningum og kúlulkerlíngum ,,,,,,meðan svo er má hann ekki komast til nokkura valda,,
enn ef hann væri settur í klór í svona 15 ár mætti skoða málið
08.02 2010 kl.09:32
Slóð
Bjarni Vafningur Ben, Þorgerður Kúla, Ásbjörn Bonus, Tryggvi Þór Askar, Illugi Níundi, Árni Þjófur, Guðlaugur Mútur, Pétur Hirðir.
Það er að verða ljóst hvaða hæfileika og sérgáfur fólk verður að hafa til að komast til valds og virðinga hjá Flokknum, stærsta stjórnmálaafli landsins.
Guð blessi Ísland.
08.02 2010 kl.09:34
Slóð
Heiðarleikinn skín úr hverju andlitinu á fætur öðru í Sjálfstæðisflokknum, flokkurinn tók aldrei til hjá sér og þetta er árangurinn, ætli Tryggvi fái syndaaflausn frá BB um hæl eins og útgerðarþingmaðurinn sem “óvart” braut lögin?.
Man núna af hverju ég hætti að kjósa þennan flokk!
08.02 2010 kl.09:34
Slóð
Skrautfjöður í þingmannalið Sjálfsstæðisflokksins :)
08.02 2010 kl.09:37
Slóð
HAHAHAHAHAHAHA..
Svo þurfti hann lán frá sjálfum sér...ehehehhehe..
ûa... láglaunamaðurinn...
08.02 2010 kl.09:39
Slóð
Við auglýsum hér með eftir varkáru en þrautseigu fólki til að gegna störfum fyrir almenning. Viðkomandi þarf að sýna fram á feril um ábyrga fjármálastjórn í einkalífi og á starfsvettvangi. Og síðast en ekki síst að láta það ógert að vinna fyrir almenning ef viðkomandi hefur verið í lykilstöðu í fjármállífinu fyrir hrun.
Viðkomandi umsækjandi verður að gefa upp ef einhver á inni hjá honum greiða er gæti tengst starfinu og unnið gegn hagsmunum almennings. Slík tengsl eyðileggja fyrir möguleikum á starfi á opinberum vettvangi.
08.02 2010 kl.09:40
Slóð
Fyrir ári síðan leit út fyrir að Kúlulánaflokkurinn ætlaði að taka sig saman í andlitinu og endurreisast. Þá náði gamla klíkan völdum aftur og sló allar endurbætur af með tilþrifum.
Ekkert uppgjör hefur farið fram og enn er flokkurinn í sama farinu. Og meðan það dugir til þriðjungsfylgis þá er varla ástæða til nokkurra hreingerninga.
08.02 2010 kl.09:41
Slóð
Þeir hefðu betur ráðið almenning sem sýnt hefði fram á ábyrga fjármálastjórn fyrir eigið heimili.
08.02 2010 kl.09:41
Slóð
Horfið á þennan mann! Sjá menn glitta í einhvern heiðarleika eða heilbrigt siðferði í fari hans? Svar mitt er NEI!! Hér er á ferðinni enn einn spillingargosinn í boði xD. Þegar hann opnar munninn bullar út ruglið og þvílíkur hroki.
08.02 2010 kl.09:44
Slóð
Tryggvi Þór Herbertsson ætti að segja af sér núna ef hann hefur snefil af sómatilfinningu, sem hann hefur auðvitað ekki og þess vegna sitjum við uppi með hann og D spillingarliðið áfram.
08.02 2010 kl.09:45
Slóð
Það kemur manni ekkert á óvart í dag.
Þetta eru sömu fréttirnar daglega, bara mismunandi hvaða persónur eiga í hlut.
Hér var bókstaflega ALLT LAUSAFÉ landsins ryksugað í vasa maukspilltra útrásarvíkinga og stjórnmálamanna.
Tryggvi Þór er bara einn í viðbót.
Það er varla heiðarlegann mann að finna á þingi í dag.
Enda snýst allt björgunarstarf í landinu um það að endurfjármagna þessa menn svo þeir geti byrjað upp á nýtt.
Og almenningur borgar.
08.02 2010 kl.09:45
Slóð
Einu sinni var farið með vísu á árshátíð í banka sem endaði svona:
.......
skott að framan
skilyrði fyrir því að hækka í stöðu.
En núna virðist það aðeins hafa breyst í:
.....
græðgi og skukk með almannaauð
Skilyrði fyrir því að hækka i stöðu.
08.02 2010 kl.09:45
Slóð
nú er bara spurningin hvað getulaus almenningurinn verður lengi að fyrirgefa þessum þingmanni,verður það einn eða tveir dagar? nöldrum aðeins svo er allt orðið einsog þaða var (og verður)
08.02 2010 kl.09:48
Slóð
Ekki ætla ég að halda því fram að allir alþingismenn séu spilltir.
Einn sem ég þekki var að kanna stöðu þingmanna m.v. það sem þeir gefa upp og hann er einmitt nokkuð ánægður því spillingin virðist vera að minnka inni á þingi.
Þarna eymir auðvitað eftir af fólki sem hefur ekki hreint mjöl í pokahorninu en vonandi er það hverfandi.
Hvar eru lagasetningarnar til að fyrirbyggja að spillingin verði á undan landslögum?
Brettið upp ermar Alþingismenn.
08.02 2010 kl.09:49
Slóð
........svo réttlætir maðurinn þetta með því að þetta hafi verið bónus, en ekki laun.
Bankinn tapaði miljörðum á árinu, en það virðist engu máli skipta þessa menn hvort hagnaður sé af rekstrinum, eða yfirleitt nokkuð eigð fé í rekstrinum.
Það truflar þá ekkert í arð og bónusgreiðslum hvort fyrirtækið hafi efni á því.
08.02 2010 kl.09:51
Slóð
Ása.
Þú ert nú bara hlægileg ef þú heldur að spillingin á Alþingi fari minnkandi.
08.02 2010 kl.09:51
Slóð
Tryggvi segir að um bónus sé að ræða fyrir vel unnin störf á fyrri hluta árs 2008. Það verður að segjast eins og er að hann var mjög duglegur við að redda sveitarfélögum erlendum lánum á þeim tíma.
http://www.timarit.is/view_page_init.jsp?issId=278099&pageId=3993435&lang=is&q=Askar%20Capital
08.02 2010 kl.09:55
Slóð
Skil ekki hvers vegna flokkurinn púkkar upp á hann! Gat ómögulega gefið honum atkvæði mitt síðast og ekki hefur löngunin til þess vaxið
08.02 2010 kl.09:56
Slóð
Maðurinn er í dag einn helsti hugmyndafræðingur Sjálfstæðisflokksins í efnahagsmálum. Hann lýsti því yfir, þegar hann tók við störfum sem bankastjóri í Askar Capital, að hann ætlaði sér að helga bankann flóknum fjármálagjörningum, þ.e. braski með afleiður. Á þeim tíma voru afleiðurnar óvenjuslæmur fjárfestingarkostur, enda flestar sem í boði voru byggðar á bandarískum undirmálslánum. T.d. er talið að þýskar fjármálastofnanir (aðallega bankar) hafi fjárfest fyrir 1000 milljarða dollara í slíkum afleiðum, á síðustu 2 árum fyrir hrun. Þess vegna fundu Þjóðverjar varla fyrir því, þótt þeir hafi þurft að bera stærstan hluta þeirra 80 milljarða dollara sem íslensku útrásarfíflin ýmist stálu eða glutruðu niður í heimsku sinni. En Tryggva Þór fannst afleiðubrask “vanræktur kimi í íslensku fjármálakerfi” (bein tilvitnun í sama viðtal við hann í RÚV, þegar hann var að hefja störf fyrir Askar Capital. Er ekki í lagi hjá Sjálfgræðisflokknum? Flokkur sem á slíka vini, þarf enga óvini. Þess má geta, að Tryggvi varð í öðru sæti á eftir Kristjáni Þór í opnu prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í NA kjördæmi fyrir kosningarnar fyrir tæpu ári síðan.
08.02 2010 kl.10:01
Slóð
Við getum hreinsað til ! Með samstöðu losum við okkur við þessa vesalinga hvar í flokki sem þeir eru.
08.02 2010 kl.10:03
Slóð
Í ljóðabók Þórarins Eldjárns sem ber heitið - Fjöllin verða að duga -
og kom út 2007 er eftirfarandi ljóð:
“Sameining hefur verið tilkynnt
Litlisannleikur hf.
og Hálfsannleikur ehf.
hafa nú sameinast undir nafninu
Stórisannleikur ohf.”
Hann hittir oft naglann á höfuðið hann Þórarinn.
08.02 2010 kl.10:05
Slóð
snilldarmúf hjá geir harde að fá hann í vinnu eða hitt þá heldur.
08.02 2010 kl.10:07
Slóð
Held að það sé nú bullandi spilling í hinum flokkunum líka, þessir menn eru allir svo gjörsamlega siðblindir og spilltir að já us og svei, manni verður orðavant eins og oft áður, þvílíkur viðbjóður sem er í gangi á Íslandi,
08.02 2010 kl.10:11
Slóð
Mæli með myndinni Maybe I should have. Góð viðleitni til að nálgast sannleikann.
08.02 2010 kl.10:12
Slóð
Birna: Er auðveldara að sætta sig við spillinguna hjá Sjálfstæðisflokknum og teljast samt í hópi þeirra 33% þjóðarinnar, sem þrátt fyrir nýliðna fortíðina ætla að kjósa Valdaflokkinn, ef maður telur sér trú um, að hinir flokkarnir séu jafnspilltir?
08.02 2010 kl.10:12
Slóð
Ég er að hugsa um að setja mig bara á hausinn og hætta að borga af öllu mínu, það er gjörsamlega til einskins að borga og borga svo að þessir menn hvort sem það eru útrásarvíkingar eða pólítíkusar moki peningum í sjálfa sig eða afskrifa skuldirnar sínar, held að ég fari úr landi og komi aldrei aftur, þetta er viðbjóður. Það væri gaman að vita hvernig ég gæti með heimilisbókhaldinu minu sem er í mínus borgað mér bónusa og sagt svo að það var ekki í mínus fyrstu mánuði ársins,,, bullshitttttt ??? hvaðan koma þessir peningar ef þeir eru ekki til ??
08.02 2010 kl.10:13
Slóð
S.Á
Ég myndi vilja þjóðstjórn, ég hef engan áhuga á að kjósa nokkurn af þeim flokkum sem er í boði núna
08.02 2010 kl.10:33
Slóð
Bankakerfið framleiddi kreppu með óhóflegri framleiðslu skulda - segir m.a. á síðunni vald.org. Mæli með síðunni.
Flóknir fjármálagjörningar eins og framvirkir samningar, afleiðusamningar og vafningar hvers konar eru til þess gerðir að skapa ógagnsæi og eru uppspretta alls ills á heildina litið.
Niður með fókna gerninga. Málin eru einföld í raun. Hitt er falið sukk gert til þess að fá fjárfesta til að halda að ráðgjafarnir séu snillingar en þeir of heimskir til að skilja hinn ógagnsæa gerning.
Hef m.a. heyrt Viðskiptafræðinga í framhaldsnámi tala um að ef þeir þyrftu að gera slíka samninga þá fengju þeir til verksins sérfræinga á því sviði.
Þetta fólk veður í villu því ef eitthvað er svo flókið að það skilur það ekki þá er eins víst og 4 + 4 = 8 að maðkur er í mysunni.
Vinsamleg ráðlegging
Samþykkið aldrei neitt sem þið ekki skiljið í sambandi við fármál ykkar og annarra.
08.02 2010 kl.10:43
Slóð
Halló, er allt þetta lið í HRUN-flokknum á kafi í sukkinu. Þetta fólk verður að fara frá svo einfallt er það.
08.02 2010 kl.11:00
Slóð
Jóhanna og Steingrímur snúið ykkur svo ekki seinna en í þessari viku að innanríkismálum. Setjið Icesave í salt á þorranum.
Það er að fara að sjóða upp úr og aldrei að vita nema fólk láti ykkur bera ábyrgðina sem getur ekki talist sanngjarnt fyrir VG sem alrei komst að kjötkötlunum meðan eitthvað bitastætt var þar að hafa.
08.02 2010 kl.11:01
Slóð
er hann bara ekki fjársvika- rádgjafi, svo vilja their oppna spilavíti lol.
Voru ekki bankarnir einskonar spilavíti. LOL
08.02 2010 kl.11:08
Slóð
Var Tryggvi Þór að gæta hagsmuna bankamannanna sem ráðgjafi forsætisráðherra?
Það virðist vera.
Rannsóknarnefndin hlýtur að taka þetta fyrir.
08.02 2010 kl.11:08
Slóð
Fá Tryggva í Kastljósið.
08.02 2010 kl.11:10
Slóð
Hvað segirðu Tryggvi ætlarðu að tóra í óþökk?
08.02 2010 kl.11:23
Slóð
Það hlýtur að vera komið að afsögnum!
08.02 2010 kl.11:31
Slóð
ENDIR...
08.02 2010 kl.11:38
Slóð
Manninum tóskt að “láta bókvitið í Askana”, og þá verður bara allt vitlaust...
08.02 2010 kl.11:44
Slóð
Maður varð nú ekki ríkur af launavinnu einni saman
08.02 2010 kl.11:52
Slóð
Hann hefur Kristján Þrefalda Júlíusson sér við hlið.
Sá þáði laun frá kjósendum sem þingmaður, bæjarfulltrúi og bæjarstjóri.
Og hyglaði vinum sínum, þar að auki. Þjóðfélagið sitjur uppi með tapið.
Hundruðir milljóna töpuðust á Vaxtarræktarhúsinu fyrir norðan.
08.02 2010 kl.11:55
Slóð
Er þetta einhver frétt.Þetta hafa allir vitað að svona er þetta hjá FLokknum.
en 33% kjósa þetta spillingapakk og 70% fylgja þeirra málum í Icesave. halda menn virkilega í Icesave að það sé með þjóðarhagsmuni í húfi.
1.Ég og Mínir
2.FLokkuriNN
99.þjóðin
08.02 2010 kl.12:25
Slóð
Askar voru náttúrulega bara að borga manninum fyrir að gefa forsætisráðherra “góð” ráð. Þetta eru hreinar og klárar mútur og ekkert annað. Hann á að segja af sér STRAX!
08.02 2010 kl.12:35
Slóð
Er þetta ekki sama reglan og er í stjórnkerfinu?
Ráðamenn stjórnsýslunnar eru á launum en fá greitt aukalega ef þeir vinna s.s. í ráðum og nefndum.
Almennir starfsmenn samfélagsins fá ekki greitt aukalega fyrir að vinna eða fyrir aukið vinnuálag.
Hafa ráðamenn nokkuð tekið saman hve mikið samfélagið gæti sparað ef enginn mætti vera á margföldum launum?
Smá dæmi:
Ef 1000 mans fá að jafnaði 100 þúsund á mánuði vegna nefndastarfa er það á ársgrundvelli 1,2 miljarðar króna.
Hvenær verða launamál samfélagsins gagnsæ?
08.02 2010 kl.12:43
Slóð
Það er ekki hægt að bera þetta saman við laun vegna nefndarstarfa hjá hinu opinbera. Það er náttúrulega siðferðilega galið að maður sem á að veita efnasráðgjöf til þjóðar á örlagatímum, rétt eftir hrun, að hann sé að taka við háum fjárhæðum frá fjármálafyrirtæki sem er með allt niðrum sig og á líf sitt undir því hvernig úr spilast. Tryggvi var örugglega ekki að hugsa um kjósendur þegar hann var að gefa sín “ráð”. Að sjálfsögðu vildi hann fyrst og fremst bjarga eigin skinni. Þetta eru algjör svik og maðurinn á að skammst sín!
08.02 2010 kl.12:58
Slóð
Það er svo með allmarga þingmenn að þeir hugsa ekki um kjósendur nema á fjögurra ára fresti.
Í Noregi er bannað að vera launþegi hjá mörgum samtímis.
Það er svo með Tryggva í þessu tilfelli. Þar hefði ríkið orðið að borga launaveitandandu fyrir ráðgjöfina frá starfsmanninum - í þessu tilfelli Askar Capital.
08.02 2010 kl.13:04
Slóð
ESSASúúú þessi frétt verður gleymd á morgun og Tryggvi brosir breitt í laugunum eins og ekkert hafi í skorist ... alveg eins og hitt hrunaliðið.
Íslendingar eða 99,9 % eru þolinmæðasta þjóð í heimi ... og sú gleymnasta ...
Tekur því ekki að ergja sig ,, dómstólar sjá til þess að hlífa Tryggva og rannsóknarskýrsla eða hreinsunarskýrsla mun einnig vernda hann.. svo ekki komist upp um dómgreindaleysi Geir Harde.
08.02 2010 kl.13:17
Slóð
Rán
08.02 2010 kl.13:57
Slóð
Menn eru ekki saklausir þó að sektir og glæpir fyrnist eða eru rangdæmdir og niðurfeldir af spilltum dómstólum og varðir af glæpavinum. Fólkið mun dæma og kann að gera skil á réttu og röngu
08.02 2010 kl.13:59
Slóð
ÍHALDIÐ ER ISLANDI DÝRT.EF ÞÚ GETUR BENT Á HEIÐARLEGAN ÍHALDSMANN( EKKI KONU ÞVÍ AÐ ÞÆR ERU EKKI MEÐ HUGSJON)ERT AÐ LJÚGA.........
08.02 2010 kl.14:36
Slóð
Mjög gott hjá Tryggva. Svindla og ljúga sem mest!
Græða á daginn og grilla á kvöldin.
Way to go!
08.02 2010 kl.14:56
Slóð
HA? afhverju var hann ekki að vinna kauplaust!
08.02 2010 kl.15:18
Slóð
Maðurinn verður náttúrlega að segja af sér þingmennsku, nú er spillingin komin á það stig, að ekki verður lengur við unað.
08.02 2010 kl.15:48
Slóð
Tryggvi er siðleysingi - en hann sýnir þó vel innræti margra þeirra roðhænsna sem nú sitja á alþingi. Það er skondið að sjá af og til upphrópanir í fjölmiðlum um að hér þurfi að koma á þjóðstjórn. Þjóðstjórn er ekki það sem Ísland þarf núna heldur utanþingsstjórn. Burt með þetta einskisnýta lið!
08.02 2010 kl.17:23
Slóð
Var ekki ráðstefna um siðblindu um daginn, hér er lifandi dæmi, jafnvel tennurnar eru í sama stíl.
08.02 2010 kl.18:10
Slóð
þessi auma þjóð er með teflon minni og er ekki viðbjargandi.
08.02 2010 kl.19:55
Slóð
Þessi maður er eiginlega holdgervingur þeirra eiginleika sem að Alþingismenn eiga alls ekki að hafa til brunns að bera.
Hvernig væri að Bjarni Ben hefði manndóminn til að segja Tryggva að hypja sig?
Æi nei, Bjarni er nákvæmlega eins í siðferðinu...
08.02 2010 kl.19:56
Slóð
Hver er þessi Tryggvi Þór Herbertsson? Dr. Evil?
http://blogs.ajc.com/iceman-thrashers-blog/files/2009/02/dr-evil.jpg
Þetta tekur engan endi.
08.02 2010 kl.22:44
Slóð
Nú er bara spurt: Hvað þurfa margir .þingmenn að segja af sér, --- áður en spillingarskýrslan verður birt? Sumir hafa greinilega ekki bara grætt á daginn og grillað á kvöldin , heldur grætt allan sólarhringinn og samtímis grillað þjóðina, - eða þannig.
08.02 2010 kl.23:01
Slóð
Drullusokkarnir raðast inná þing ég segi ekki annað:!!!!
08.02 2010 kl.23:17
Slóð
Þeir sem kusu Tryggva hljóta að vera ánægðir með sinn mann
09.02 2010 kl.02:13
Slóð
Hrikalegt daburlegt sorglegt Island , sos hvar er þroskuðu kjörkuðu sterku góðu ósérhlifnu sálirnar á Islandi ? er TYGVI ÞÁ BARA SEMSAGT EINN Í VIÐBÓT ÓMERKILEGUR Ó SKAMFEILIN KJAFTASKUR ? hvar erum við stödd ?