Innlent - þriðjudagur - 9.2 2010 - 08:34

Áhrifamenn í Framsókn vilja breyta Högum í samvinnufélag. Stuðningshópur á Facebook

hagkaupsverslun.jpgTveir áhrifamenn í Framsóknarflokknum, Gestur Guðjónsson og Hallur Magnússon, vilja að verslunarkeðjunni Högum verði breytt í lýðræðislegt samvinnufélag neytenda. Hafa þeir stofnað um þetta samtök á samskiptavefnum Facebook.

Hugmynd þeirra Gests og Halls er að félagsmenn í hinu nýja samvinnufélagi, Högum svf, kæmu inn með stofnfé, að lágmarki t.d. 50.000 og mynduðu þannig sameiginlega eiginfjárstofn fyrirtækisins. Þeir sem vildu leggja meira inn, mættu það, en hver félagsmaður hefði sitt atkvæði.

Í morgun höfðu 82 gerst áhangendur hugmyndarinnar á Facebook, þar á meðal Birkir Jón Jónsson þingmaður flokksins, Magnús Stefánsson fyrrum ráðherra flokksins og Gísli Tryggvason talsmaður neytenda og frambjóðandi í oddvitasæti flokksins í Kópavogi.

Gestur Guðjónsson fjallaði um hugmyndina á bloggsíðu sinni í gær.  Hann lagði til að enginn einn þátttakandi fengi meira en eitt atkvæði á félagsfundi, óháð stofnfjárstærð, þannig að blokkamyndun væri nánast óhugsandi og beint lýðræði fengi að ráða, “öfugt á við gamla Sambandsveldið, sem byggðist upp á margföldu fulltrúalýðræði, þar sem hver silkihúfan kom upp af annarri,” eins og hann kemst að orði.

“Þannig færi stærsta smásöluverslunarfyrirtæki landsins í félagslega eigu, sem yrði öðrum aðilum á markaði, sem fyrir eru og væntanlega munu koma til, góð viðspyrna, enda yrði félagið ekki rekið með ofurhagnað í huga, heldur hagsmuni neytenda og félagsmanna í huga. Þessi leið fæli í sér betri tíð með blóm í haga,” skrifar Gestur Guðjónsson.

48 ummæli

Rita ummæli

Hjördís Vilhjálms
09.02 2010 kl.08:38

Og hvernig fór fyrir eign fólks í Samvinnutryggingum ?

Arnar
09.02 2010 kl.08:39

Rak ekki Samvinnuhreyfingin öll sín lykilfyrirtæki í hinum svokallaða “smokkfisk” sem hlutafélög, rétt eins og “kolkrabbinn” gerði? Hinn viðskiptapólitíski armur hennar er svo enn að í gegnum S-hópinn og tókst að bjarga verulegum eignum úr Exista/Kaupþings blokkinni sinni með “GIFT”usamlegum hætti að eigin mati.

ZATARRA
09.02 2010 kl.08:44

Nei Takk... Slíkt er bara ávísun á spillingu að hætti Framsóknarflokksins...

Sambandið,, Samvinnutryggingar,, S-Hópurinn Þarf að rifja það eitthvað frekar upp ?

“Definition of Insanity: doing the same thing over and over again and expecting different results.“

Albert Einstein

P. Bergmann
09.02 2010 kl.09:02

Á að endurvekja SÍS til að gefa það einhverjum Framsóknarmönnum. Óli Óla, Finnur og co tóku eignir SÍS og það sem samþykki HRUN-flokkanna (xD og xB) er það sem þessir framsóknarmenn vilja endurtaka, líklega.

BG
09.02 2010 kl.09:12

Með Jóhannes sem stjórnaformann þá skiptir formið ekki máli
því á einhvern undarlegan hátt þá verður JÁJ búin að eignast meirihluta í Högum mjög fljótlega

Halli ríkis
09.02 2010 kl.09:12

Íslenskir bændur voru mergsognir af SÍS. Nú eru samvinnumenn að reyna að finna nýjar leiðir til að mergsjúga íslenska alþýðu.
Menn verða ekki ríkir af launavinnu.

Hallur Magnússon
09.02 2010 kl.09:13

Hvernig væri að þið læsuð forsendur samvinnufélagsins áður en þið farið að gagnrýna á grunni ótrúlegra hleypidóma!

Framangreindar athugasemdir flestar byggja því miður á alvarlegri vanþekkingu.

Lýðræðislegur samvinnurekstur er eitt. Rekstur SÍS er annað.

Ekki gleyma að það var einkavæðing Samskipa sem byggði upp veldi Óla Óla - ekki lýðræðislegur samvinnurekstur.

Vinsamlega lesið forsendurnar fyrir lýðræðislegu samvinnufélagi neytenda um rekstur Haga - áður en þið haldið áfram gagnrýninni.

Við töku málefnalegri gagnrýni með ánægju!

Gestur Guðjónsson
09.02 2010 kl.09:16

Eins og segir í fréttinni, byggist hugmyndin á því að vera með beint lýðræði og flatan félagsskipan, þannig að allir félagsmenn kysu stjórn og tækju mikilvægar ákvarðanir, t.d. í gegnum heimabankann á netinu.
- sem er andstaðan við það sem SÍS var og þau félög sem nefnd hafa verið hér í athugasemdum og var meginástæða falls þeirra fyrirtækja. Þau gleymdu uppruna sínum.

Hallur Magnússon
09.02 2010 kl.09:16

Lífeyrissjóðirnir eiga að sjálfsögðu að fjárfesta fyrir hönd félagsmanna sinna í samvinnufélagi neytenda um rekstur Haga.

En að sjálfsögðu eiga félagsmenn í lífeyrissjóðunum að fá atkvæðisrétt hver og einn gegnum fjárfestingi lífeyrissjóðanna - en ekki fámenn stjórn sjóðanna.

Aukið lýðræði í lífeyrissjóðunum líka!

Takið þátt í nýrri, lýðræðislegri samvinnuhreyfingu neytenda!

www.facebook.com/group.php?gid=331837184528&ref=nf

GG
09.02 2010 kl.09:21

Nei takk !

Baldur T.
09.02 2010 kl.09:32

Samvinnufélag ha ha ha ha ha ha ha.......................

Frammarar eru yndislegir. Á ekki bara Finnur Ingólfs að verða bossinn? Mosavaxnir frammarar nei takk. Það þýðir ekkert fyrir framsóknarmenn að tala um beint lýðræði og bla bla bla. Bara það að hugmyndin sé komin frá þeim knýr alla í vörn. Þessari hugmynd fylgir engin Gift (a).

Vindurinn
09.02 2010 kl.09:39

Ætla Gestur og Hallur að bjóða sig fram í stjórn- til að koma í veg fyrir nánast óhugsandi blokkarmyndun?
Coop-ið mun síðan hafa góð samskipti við Mjólkursamsöluna og samtök afurðastöðva- og helst vera þátttakandi í búvörusamningum við bændur. Samskip munu sjá um flutningana og loks verður batteríið vandlega tryggt hjá VÍS.
Ef þeir verða Gifturíkir mun fyrirtækið vaxa og dafna og ná 80% hlutdeild á smásölumarkaði með matvæli og dagvörur. Einmitt það sem okkur vantar núna.
p.s. Hreinsið fyrst upp drulluna!!!

Des
09.02 2010 kl.09:41

Animal Farm.

SH
09.02 2010 kl.09:43

Jóhannes barðist fyrir því að Kaupfélögin yrðu lögð niður, fannst óþolandi að þarna væri fyrirtæki sem bændur hefðu stofnað og enginn ætti sem einstaklingar heldur heill hópur manna með eitt atkvæði hver um sig.

Það varð öllum dýrt að samvinnufélögin eða kaupfélögin yrðu pínd niður, og þá fáir einstaklingar fengu þetta s.s. Finnur Ingólfsson. Þarna var farið illa með stofnendur og hugsunina á bakvið samvinnufélög.

Fín hugmynd ef ekki einhver annar Finnur Ingólfsson stingur ekki upp kollinum eftir einhver ár eða áratugi.

Fé án hirðis þótti ekki gott mál.

sigríður
09.02 2010 kl.09:45

samvinnubanka fyrst!!!!!!!!!!

bjst
09.02 2010 kl.09:45

Samvinnuhreyfingin var góð stefna.
En Framsóknarflokkur dagsins í dag er alls ekki þess verður að tileinka sér hana.
Leggjum hann niður!

sigríður
09.02 2010 kl.09:47

munið Gift!!!!!!!!!!!!

Jón
09.02 2010 kl.10:00

Samvinnuhugsjónin er göfug og hefur virkað vel í stærri þjóðfélögum. Í Bretlandi er Co-operative hreyfingin sterk og öflug.

Hinsvegar höfum við sorglega reynslu af þessari hugsjón eins og öðrum sem misfarast hér vegna spillingar og græðgi. Ekki síst stendur það hugsjóninni fyrir þrifum að vera beintengd einum helsta spillingarstjórnmálaflokki landsins sem hefur skarað eld að eigin köku áratugum saman og breytti samvinnuhreyfingu framsýnna bænda í musteri spillingar og sérhagsmuna með fyrirgreiðslupólítík sem átti sér engan líka nema ef til vil hjá sjálfstæðisflokknum.

Eina leiðin til að nýrrar samvinnuhreyfingar bíði ekki sömu örlög eru sú að um raunverulegt lýðræði verði að ræða - einn maður eitt atkvæði og engir pótintátar hreyfingarinnar verði jafnari heldur en aðrir. Í okkar gjörspillta þjóðfélagi sem er gegnumsýrt af fyrirgreiðslupólitík og flokkshagsmunum er því miður ákaflega ólíklegt að slík hugsjón verði nokkurn tíma að veruleika. Hjá okkur bíða öllum göfugum hugsjónum sömu örlög og kommúnismi og bræðralag vinnandi stétta hlutu hjá Stalín og Maó.

Lómagnúpur
09.02 2010 kl.10:03

Sameignarfyrirtæki í neytendaþágu eru rekin víða með góðum árangri á norðurlöndunum. Sjá t.d. um S-Market á Finnlandi: http://en.wikipedia.org/wiki/S_Group

Ég sjálfur
09.02 2010 kl.10:14

Áfram Finnur!

B@ldvin
09.02 2010 kl.10:28

Stofna Hagar sf. stela svo hagnaðinum og stinga í eigin vasa stjórnenda og skilja skuldirnar eftir hjá þjóðinni eins og gert var með Sambandið og allt sem því fylgdi.
Helvítis framsóknar mafíu skítapakk! Þjófagengi frá helvíti.

Kristján Kristjánsson
09.02 2010 kl.10:33

Ætli Finnur verði ráðinn sem forstjóri nýja SÍS

V. Jóhannsson
09.02 2010 kl.10:37

Og hver verður formaður samvinnufélagsins? Ólafur ´Ólafsson, þið vitið. ? Nei, B@ldvin hefur fullkomlega rétt fyrir sér. Fólk hefur ekki gleymt gamla sambandinu.

Einar E
09.02 2010 kl.10:53

hljómar vel.

um að gera að skoða þessa hugmynd.

HG
09.02 2010 kl.10:54

NEI TAKK !

Aldrei samvinnuhreyfinginn aftur, ALDREI !

Hallur Magnússon
09.02 2010 kl.11:02

Enn og aftur!

Sorglegt að sjá hleypidómana hér að framan.
Greinilegt að fæstir hafa kynnt sér hugmyndina.

Lýðræðislegt samvinnufélag neytenda um rekstur Haga er bara alls ekki gamla Sambandið.

Þar fyrir utan er verið að gagnrýna aðila sem hafa verið að reka fyrirtæki sem ekkert hafa með samvinnurekstur að gera.

Þar fyrur utan. Hver er staða Baugs og Haga - og af hverju?

Ekki voru það samvinnufélög - en hafa safnað hundruð milljarða skuldum!

Er það slíkt sem fólk vill?

Joi J
09.02 2010 kl.11:03

bestu verslanirnar herna i noregu eru CO-op, kaupfelogin sem allir geta keypt sig inn i, ekki bara baendur.

Jonas
09.02 2010 kl.11:09

Líst vel á þetta; getur Finnur Ingólfsson ekki tekið við af nafna sínum Árnasyni?

Hallur hlýtur að geta fengið hann til starfans.

Sérhver
09.02 2010 kl.11:09

Nýtt kaupfélag?
Nei takk!

Einar E
09.02 2010 kl.11:10

Fólk sem hefur ekki trú á samvinnu og samvinnufélögum hefur ekki trú á lýðræðinu og treystir ekki náunganum.

Ég held reyndar að þeir sem eru 30 ára og yngri hafi ekki hugmynd um hvað sammvinnufélag er og hvernig þau virka, svona að jafnaði. Nema auðvitað þeir sem hafa búið á norðurlöndunum.

Kristján Kristjánsson
09.02 2010 kl.11:11

Þetta snýst um völd og peninga.
Hefur ekkert með útjaskað fyrirbæri eins og lýðræðistal að gera.

Því geta menn ekki sagt eins og er.
Fólki langar í pening og áhrif.
Það telur sig sjálft betur til þess fallið að höndla með ágóðann en þeir sem nú sitja á kistulokinu.

Sumpart er stutt í annað fyrirbæri sem er öfund.
En að lokum er allt þetta svo sem eftirsókn eftir hégóma og vindi.

Einar E
09.02 2010 kl.11:19

Kristján Kristjánsson, þú virðist ekki hafa kynnt þér hugmyndina vel.

Einn maður, eitt atkvæði.

Segjum að félagsmenn væru 10 þúsund, þá þarf 5001 atkvæði (menn) til þess að samþykkja hverja meirháttar ákvörðun sem fyrirtækið tekur. Það er raunverulegt lýðræði.

ala
09.02 2010 kl.11:36

Fyrst á skifta Högum upp ekki spurning

Siggi Þórarins
09.02 2010 kl.11:45

Að lífeyrissjóðirnir komi að þessu dæmi er náttúrlega glórulaust, og verður að
stoppa, hverjum dettur í hug í fullri alvöru að lífeyrissjóðir fari að reka tuskubúðir,
þetta fyrirtæki Hagar á náttúrlega að splitta upp sem allra fyrst, og vonandi sér
samkeppnisstofnun um að svo verði. En almenningi þessa lands vantar nauðsynlega bankastofnun sem þjónar almenningi, því það verður erfit fyrir
almenning á komandi árum að skipta við banka sem er í meirihluta eign
vogunarsjóða. Leifum efnafólkinu að skipta við þá banka.
En syðjum það að lífeyrissjóðir stofni banka fyrir hinn almenna Íslending.

Hallur Magnússon
09.02 2010 kl.11:49

Það er vel skoðandi að skipta Högum upp. Það kemur ekki í veg fyrir samvinnurekstur - þvert á móti.

Það væri unnt að selja 10-11 út úr Högum - eða mynda um þann hlutann sérstakt samvinnufélag.

Einnig að taka “tuskubúðirnar” sérstaklega út.

Elís
09.02 2010 kl.12:01

Þetta er versta hugmynd sem fram hefur komið frá hruni!
Ömurlegt rekstrarform sem aldrei hefur gefist vel.
Að sjálfsögðu kemur bullið frá “góðum” framsóknarmönnum, hvað sem það nú þýðir.
Frábært að froðusnakkar í kosningabaráttu láti í ljós hversu gríðarlega framsæknir þeir eru með því að ganga í Fésbókarhóp, duglegir drengir! fullir af samvinnuhugsjón og ungmennafélagsanda, a.m.k. rétt fyrir kosningar.
En auðvitað skilur maður sjónarmið sjálftöku- framsóknarmanna, slíkir mjólkuðu vel þegar hið skelfilega SÍS var og hét, og menn fóru Finnsku leiðina við að ná langt.
Ætli Finnur geti ekki tekið að sér að stjórna samvinnu-sullinu, holdgervingur framsóknarmennsku og samvinnublekkingar,

Viðar Ingvason
09.02 2010 kl.12:24

Hallur Magnússon er steinhissa á því að fólk treysti ekki framsóknarmönnum í þessu máli!
Framsóknarflokkurinn ber helmings ábyrgð á því hvernig komið er fyrir þjóðinni í dag.
Falleg fyrirheit þeirra og loforð eru einskis virði, því ekkert hefur breyst í Framsóknarflokknum.

Siggi T.
09.02 2010 kl.12:26

Að framtíðarsjóður lífeyrissjóðanna fari að reka tuskubúðir er góður brandari,
og þeir gerast ekki betri, það hefur reint mikið á sálarlíf þjóðarinnar á liðnum ´
mánuðum, en að fá svoma fréttir frá lífeyrissjóðunum bætir ekki sálarlíf þjóðarinnar og verður að stoppa með góðu eða illu.Auðvitað á að splitta Högum upp. En það sem vantar er nýr þjóðarbanki fyrir allan almenning í þessu landi
og ætti að breyta þessum framtíðarsjóð lífeyrissjóðanna í þjóðarbanka,
því bankar vogunarsjóðanna eru farnir að herða á allri innheimtu krafna,
á sama tíma sem fólk er að missa vinnuna og skrá sig atvinnulaust.
En sennilega verður að breyta lögum um lífeyrissjóði fyrst og færa völdin til
sjóðsfélaganna sjálfra. En ekki fleiri fréttir frá framtíðarsjóði lífeyrissjóða
því nóg er búið að reina þóðina á liðnu ári.

Hallur Magnússon
09.02 2010 kl.12:55

Viðar- og ýmsir aðrir.

Það væri tilbreyting á fá MÁLEFNALEG rök gegn lýðræðislegu samvinnufélagi neytenda um rekstur Haga.

Slíkur rekstur hefur ekkert með flokkspólitík að gera.

EN hvað varðar ábyrgð á núverandi ástandi þjóðarinnar - gleymir þú ekki lykilþætti Samfylkingar?

... og samningsklúðri VG?

Viðar Ingvason
09.02 2010 kl.13:24

Hallur, Ágbyrðin skiptist u.þ.b. : XD 45%, XB 40%, XS 12% og VG 3%.

Samfylkingin afhjúpaði sig sem mafíuflokkur þegar hún sló skjaldborg um fjármagnseigendur með Sjálfstæðisflokknum. Með því var almenningur gerður ábyrgur fyrir því að greiða allar innistæður auðmanna í topp.

jóhann
09.02 2010 kl.14:03

góð hugmynd ef auðvaldsróninn finnur ingólfsson væri ekki með, þyrfti að geyma hann í gappastok

Jóhannes Laxdal
09.02 2010 kl.14:06

Hallur, á meðan ég er ekki andsnúinn samvinnufélagsforminu á fyrirtækjum í almannaþágu, s.s. eins og veitufyrirtækjum og sorphreinsun og strætó þá held ég að hugmynd ykkar um að stofna samvinnufélag um Haga sé glórulaus og beinlínis á móti almannahagsmunum. Það eru hagsmunir neytenda að Hagar verði bútaðir niður og hver rekstrareining seld fyrir sig. Þá kannski myndast aftur einhver samkeppni. Ekkert annað er ásættanlegt fyrir almenning í landinu. Að setja þessa fyrirtækjafroðu á markað gengur ekki upp nema að bankinn afskrifi fyrst mest allar skuldir því það eru skilyrði fyrir eiginfjárstöðu fyrirtækja sem sækja um skráningu í Kauphöllinni. Er það það sem menn ætla að láta gerast átölulaust? Og hvert er verðmætið? Hagar á ekkert nema lager og innréttingar, engar fasteignir. Það er löngu búið að stela fasteignahlutanum, hinum raunverulegu verðmætum út úr Högum. Hinir erlendu kröfuhafar Arion banka sem eiga skuldir 1998 verða að taka á sig afskriftir þeirra í réttu hlutfalli við eign þeirra í bankanum, það má aldrei verða að almenningur verði plataður til að taka þær á sig í gegnum samsæri um að skra þetta tóma hylki á markað eða með því að selja spilafíklum hlut í Samvinnufélagi

jóhann
09.02 2010 kl.14:06

ef skíta pakkið finnur indólfsson er með gengur þetta ekki upp

Guðm.Sig.
09.02 2010 kl.17:37

Ég segi það satt. Samvinnuhreyfingin var eitthvert mesta eyðingarafl á Íslandi um árabil. Vonandi verður það aldrei lífgað við. Jói glæpur og Jón Ásgeir stórglæpur eru bara að ég held ill skárri.

J. Þ. A.
09.02 2010 kl.20:06

Á hvaða aldri eru þeir Gestur Guðjónsson og Hallur Magnússon. Þetta hljóta að vera “ungviði”. Vegna þess, að verið er að bendla þá við Framsóknarflokkinn. Ef það er rétt ? Þá eiga þeir að byrja á að lesa sögu flokksins, því Samband íslenskra Samvinnufélaga er þar samanfléttað flokkssögunni. Sú saga er ekki falleg, hvorki fyrir Framsóknarflokkinn eða S.Í.S.(sambandið) Spyrjið Borgnesinga K.B. Ólafur Ólafsson veit nú eitthvað um það eigandi Samskip. Pabbi hans er kaupfélagsstjóri í K.B. Þetta er bara eitt lítið dæmi hvernig hvítflibbagæjarnir og kaupfélagsstjórarnir gátu stolið, ég segi stolið af fátækum bændum. og sett þá í þrældóm til margra ára. Ég segi það enn og aftur að ég vona að þetta séu ungviði sem stinga upp á svona dj......grillum. Sem mín kynslóð hefur gengið í gegnum. Það er nóg að hafa ‘Olaf Ólafsson og fleiri framsóknarsyni/dætur.Þótt ekki verði farið að hlaða þar upp á nýjan leik. Aldrei.................aldrei aftur Framsóknarmaddömuna.

Anna Kristín Pétursdóttir, áður Móvinda
09.02 2010 kl.20:18

Greyin ... halda að þjóðin sé búin að gleyma gamla hryllingnum.. Samvinnuhreyfingunni...

Bjarki
09.02 2010 kl.20:41

Mér finnst gefa auga leid ad skipta Högum upp og selja hlutana til óskyldra adila. Adlaga sídan samkeppnislögjöfina tannig ad teir geti ekki safnast á eina hönd ad nýju.

“Mun meira faest fyrir ef Hagar eru seldir sem ein heild” -Audvitad eru menn tilbúnir ad borga meira ef einokun fylgir í kaupbaeti!

Jón G
10.02 2010 kl.01:48

Nei.Nei. Nei. aldrei aftur samvinnuhrilling.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar