Innlent - þriðjudagur - 9.2 2010 - 09:48

Arnar og Bjarki vilja fá spilavíti. „Höfum Gullfoss og Geysi en ekkert mikið meira“

arnarogbjarki.jpgBræðurnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir beita sér þessa dagana fyrir því að landslögum verði breytt og heimilað verði að stofna og reka spilavíti hér á landi. Viskiptavinirnir yrðu einkum útlendingar, en þeir bræður telja litla afþreyingu í boði á Íslandi fyrir erlenda ferðamenn. „Við höfum Gullfoss og Geysi, en það er í raun ekkert mikið meira,“ segir Bjarki í viðtali við Fréttablaðið í dag.

Fréttablaðið leggst á sveif með hugmyndinni í leiðara í dag sem ritstjórinn, Jón Kaldal, skrifar. Hann hefur áhyggjur af „ímyndavanda“ sem stuðningsmenn fjárhættuspila eigi við að etja. Hann segir að alþjóðlega orðið yfir húsakynni þar sem fólk spilar upp á peninga, „casino“, hafi upphaflega merkt hús ánægju og leika. Íslenska orðið „spilavíti“ feli aftur á móti í sér að dvöl á slíkum að sé ávísun á eilífa kvöl og pínu. Hann leggur til að frekar sé notað orðið „spilastofa“, sem sé „minna truflandi“.

Hugmynd bræðranna gengur út á að reka spilavítið á Hotel Nordica í Reykjavík. Þeir benda á að fjárhættuspil séu leyfð víðast hvar á evrópska efnahagssvæðinu. Ísland og Noregur séu einu löndin sem banni slíka starfsemi.

Fram kemur í viðtali við annan bræðranna, Bjarka Gunnlaugsson, í Fréttablaðinu í dag að þeir sjá fyrir sér strangt eftirlit með spilavítinu. Þeir gera ráð fyrir hundruð milljóna króna í skatttekjur fyrir ríkið. Þá yrði hægt að bjóða samtökum eins og SÁÁ að hafa bæklinga um spilafíkn og meðferðir við henni í anddyri spilavítisins.

Bjarki bendir á að nú þegar séu starfræktir ýmsir klúbbar hér á landi þar sem fjarhættuspil sé stundað með leynd. Annað hvort eigi að leyfa spilavíti eða fylgja banni við fjárhættuspili fram af fullri ákveðni.

Margir hafa orðið til að gagnrýna hugmyndina, þar á meðal forráðamenn SÁÁ sem benda á hættuna á aukinni spilafíkn, sem nú þegar er alvarlegt vandamál í þjóðfélaginu.

85 ummæli

Rita ummæli

KVERÚLANTINN
09.02 2010 kl.09:51

Er þetta framtíðar Björgúlfa-sett þjóðarinnar?

Ath. spennið beltin!

PP
09.02 2010 kl.09:54

Ég bara spyr. Fyrst núverandi ríkisstjórn, sem fylgir norrænum áherslun, af hverju er þetta þá svona mikið issue? Þetta er leyfilegt í öllum norðurlöndunum nema Noregi.

Eru norræn markmið ríkisstjórnarinnar að eingöngu fara eftir því leiðinilega og ógeðfellda í þessum norrænu gildum (sem eru þá skattahækkanir og forræðishyggja) en ekki gera það sem actually bætir þjónustu og eykur fjölbreytileika landsins??

VG vill ekki virkja, ekki byggja álver, ekki styðja við nýsköpun, ekki bora eftir olíu og ekki stofna spilavíti. Er það furða að það gerist lítið í atvinnumálum hér á landi og hámenntað lið ráfi um göturnar með enga vinnu? Nei það er akkurat ekkert furðulegt við það þegar VG er við líði.

KVERÚLANTINN
09.02 2010 kl.09:54

Menn sem halda að Ísland hafi ekki upp á annað að bjóða en Gullfoss og Geysi eru hættulegir menn.

Það eru menn sem myndu ekki hika við að breyta því sem eftir er af landinu (fyrir utan Gullna þríhyrninginn væntanlega) í fótboltavöll fyrir sjálfa sig; lesist Las Vegas.

Sigurður #1
09.02 2010 kl.09:58

“Þeir benda á að fjárhættuspil séu leyfð víðast hvar á evrópska efnahagssvæðinu. Ísland og Noregur séu einu löndin sem banni slíka starfsemi.”

Er það ekki örugglega rétt munað hjá mér að það séu aðeins þrjú lönd eftir á Evrópska Efnahagssvæðinu........?

Ísland, Noregur og Lichtenstein.......?

Þannig að “víðast hvar á evrópska efnahagssvæðinu” sé þá bara Lichtenstein.....?

Það er eins og mig minni það.

Sigurður #1
09.02 2010 kl.09:59

Annars líst mér vel á spilavíti, bara ekki einkarekið.

Baldur
09.02 2010 kl.09:59

Tek undir með Kverúlant. Þessir menn hafa ekki víðan sjóndeildarhring. Ætli hann nái langt út fyrir fótbolta, fjárhættuspil og fatabúðir.

Galinn
09.02 2010 kl.10:01

„Höfum Gullfoss og Geysi en ekkert mikið meira“

Þegar reynt er að spila inn á minnimáttarkenndina, þá segi ég nei takk !!!

Gunnar
09.02 2010 kl.10:03

Er allur munur á áfengisverslunum og spilastofu ?

Kalli
09.02 2010 kl.10:04

Sigurður #1,

Ég held með Evrópska Efnahagssvæðinu sé verið að tala um EFTA + EB.

ÆÆ
09.02 2010 kl.10:04

Vandi Jóns er ærinn. Hættuparturinn í orðinu fjárhætta er svolítið stuðandi. Hvernig ætlar hann að poppa það orð upp?

Galinn
09.02 2010 kl.10:04

Ætlar Fréttablaðið að breyta orðinu lán í ólán ?

joi
09.02 2010 kl.10:05

Er ekkert að sjá á Íslandi nema Gullfoss og Geysir? Skrýtið ef ferðaþjónustuaðilar gera ekki athugasemd við þetta.

Ómar Ragnarsson
09.02 2010 kl.10:06

Það er ein mesta meinloka Íslendinga að Gullfoss og Geysir séu það eina sem landið hefur upp á að bjóða. Þetta hentar þeim sem vilja rústa náttúruundrum sem eru mun merkilegri en Gullfoss og halda þeim óaðgengilegum og óþekktum.

Til hvers ættu spilafíklar að koma til Íslands til að þjóna fíkn sinni þegar þeim bjóðast möguleikar til þess í heimalöndum sínum?

Það að auki er það varasöm hugsun að allt í lagi sé að taka inn peninga á einu sviði þjóðlífsins þótt það kosti þjóðfélagið mun meiri peninga annars staðar.

Tjónið af aukinni spilafíkn sem fylgir því að búa til meiri freistingu fyrir hana verður mun meiri en ágóði af spilavítinu.

Hugsunin á bak við spilavíti hér á landi felst ekki í því að útlendingar, sem geta þjónað fíkn sinni í heimalandinu fari í Íslandsferð til þess að spila þar heldur til þess að lokka þá erlendu ferðamenn, sem komnir eru hingað til þess að eyða fé sínu í annað en að nota aðra þjónustu.

Hjördís Vilhjálms
09.02 2010 kl.10:10

Af hverju opna þeir þetta ekki frekar í landi þar sem þetta er löglegt nú þegar ?

Icelandair gæti svo selt sér pakkaferðir þangað ; Casínóferðir.

En verði þetta að veruleika þá er ég ekki í minnsta vafa um að eigendurnir muni mala gull á þessu og mest frá Íslendingum.

Að lofa ríkinu 60% skatt af öllum hagnaði er ekki trúverðugt að mínu mati, því það má næstum bóka að fifað verður með tölurnar svo þetta skiil pottþétt tapi og hagnaðurinn sendur beint á Tortola.

Sigurður Helgason
09.02 2010 kl.10:11

Froðusnakkarar. Lögleiðum líka fíkniefni í leiðinni, svo að ríkið geti fengið meiri tekjur af fíkn en það hefur i dag.

Ef þetta gengur eftir hjá þessum tveimur egghausum, þá eiga þeir, Icelandair og ríkið eftir að moka inn seðlum frá sjúku fólki. Fleiri börn gætu þá þakkað þeim fyrir skilnað foreldra sinna.

Þór
09.02 2010 kl.10:13

Íslendingar eru þess eðlis að spilavíti er eitthvað sem þeir myndu ekki þola. Ekki opna þessar dyr alveg eins og gerðist með stripbúllurnar.

PP
09.02 2010 kl.10:17

Hvort sem ykkur líka betur eða verr eru mörg spilavíti starfrækt á Íslandi í dag. Þau eru hinsvegar öll undir borðinu með tilheyrandi handrukkunum, fíkniefnasölu og vafasömum einstaklingum.

Fíklar hafa og munu alltaf leita leiða til að svala fíkninni. Það tekur þig ekki nema um 5 mínútur að stofna og fjármagna spilavítisreikning á netinu.

Er ekki betra að stofna RÍKISREKIÐ spilavíti þar sem hagnaður að starfseminni rennur til ríkisins en að óprúttnir aðilar séu að græða milljónatugi á mánuði með svartri og ólöglegri starfsemi?

Ég segi, upp á borðið með spilavítin og lögleiðum þau strax.

Kasper
09.02 2010 kl.10:19

Miðað við viðtalið við þessa gutta átti að leggja áherslu á að fylgjast með spilurum sem myndu sækja spilavítið svo hægt væri veita þeim hjálp þegar þeir væru búnir að tapa fjölskyldunni og öllum veraldlegum eigum +skuldir við ættingja sem oftast er partur af dásemdinni sem fylgir svona starfsemi..
Góðmenskan og umhyggjan virtist vera nr 1
Lá við að verið væri að gera fólki greiða enn ekki hafa af því fé sem er þó þaðeina sem gerist í svona starfsemi...

Nei setjum harðari lög sem eru skýr svo löggæslan hafi vopn í höndunum gegn þessu

Við höfum nóg af fíklum og þurfum ekki fleiri !

Londonbúi
09.02 2010 kl.10:25

Þetta eru meiri lúðarnir!!

Haukur Kristinsson
09.02 2010 kl.10:26

Fáfróður ég spyr;

hverjir eru þessir bræður Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir?

Kristján Kristjánsson
09.02 2010 kl.10:28

Hvernig er með þessa bolatadrengi.
Hefur Eyður Smári ekki þurft að glíma við spilafíkn, og lent í skuldum vegna þess. Var ekki einn boltadrengur tekinn nýlega fyrir að ráðast grímulaust að hagsmunum þjóðarinnar í galdeyrisbraskmáli.
Er ekki nóg af ruglinu nú þegar ef þá langar að gambla þá eiga þeir að ráða sig í vinnu hjá þeim spilavítum sem fyrir eru í landinu.

Landsbanka, Arion, Íslandsbanka o.fl. þar gamblar fólk enn þrátt fyrir að það hafi sett þjóðina á hausinn einu sinni.
En sjálfsagt hefur stefna stjórnendanna verið sett á að gjöreyðileggja leyfarnar af því samfélagi sem hér var.
Silafíkn er ekkert gamanmál.

Arnar
09.02 2010 kl.10:28

@Sigurður #1
09.02 2010 kl.09:58

Þú spyrð:

“Er það ekki örugglega rétt munað hjá mér að það séu aðeins þrjú lönd eftir á Evrópska Efnahagssvæðinu........?
Ísland, Noregur og Lichtenstein.......?”

Svar:

Nei, þetta er rangt munað hjá þér. Evrópska efnaghssvæðið er sameiginlegt markaðssvæði allra aðildarríkja Evrópusambandsins annars vegar og þriggja af fjórum EFTA ríkjum hins vegar (Sviss er ekki aðili að EES samningnum).

Hluti af misskilningnum um stöðu Íslands gagnvart tilskipununum á borð við þá um innstæðutryggingarnar stafar af sama misminni, þ.e. að Ísland teljist ekki aðildarríki í skilningi EES samningsins.

Arnar M
09.02 2010 kl.10:29

“og ekkert mikið meira”

Svona gúbbar, sem þetta lítið vita eða þekkja eigið land... er þeim treystandi til einhvers reksturs?

Laplace
09.02 2010 kl.10:32

Er spilavíti virkilega það mikilvægasta sem við þurfum núna? Svo held ég að aðeins þeir sem hafi aldrei komið út fyrir borgarmörkin haldi að við höfum einungis Gullfoss og Geysi

Kristinn
09.02 2010 kl.10:32

Ég hef ætíð verið þeirrar skoðunar að lestir (eins og t.d. fjárhættuspil) eigi að leyfa en hafa með þeim náið eftirlit og skýran lagaramma. Ellegar verða lestirnir einungis vatn á myllu glæpagengja.

Skatttekjur ættu að meira en duga til að greiða fyrir efirlitið og jafnvel einnig til að taka á ólöglegri spilamennsku sem kynni að vera áfram til staðar. Í dag er þetta bara útgjaldaliður.

Ef, með því að leyfa “kasínó”, við getum einnig styrkt ferðaþjónustuna, þá er það bara bónus. Eins og bent hefur verið á, þá leyfa nú þegar 3 norðurlönd svona starfsemi (og ótal Evrópulönd) þannig að þetta er orðin samkeppnisatriði í ferðaþjónustu.

Séu menn alfarið á móti fjárhættuspilum, þá væri eðlilegt að loka hinum ýmsu “gullnámum” og happadráttum sem í gangi eru. Þetta eru líka fjárhættuspil. Ef menn ætla að leggja þetta á altar einhvers hærra siðgæðis þá verða menn að hugsa þá hugsun til enda og heimta að öllu fjárhættuspili sé hætt. Líka Lottó.

Arnar
09.02 2010 kl.10:33

Er ekki þegar rekin hér mjög aðgengileg og umfangsmikil spilavítastarfsemi?

Spurningin sem svara þarf vegna þessarar hugmyndir Icelandair og aðila úr ferðaþjónstunni er hvort raunverulegt “casino” með öllu því eftirliti og aðgangstakmörkunum sem fylgja sé líklegra til að valda skaða en sú starfsemi sem þegar fer fram, bæði í opinberum spilasölum og á netinu.

Að loknu slíku mati treysti ég mér til að taka afstöðu til hugmyndarinnar út frá öðrum þáttum á borð við tekjumöguleikum og auknu aðdráttarafli fyrir erlenda ferðamenn.

eyjolfur
09.02 2010 kl.10:34

Engin spilavíti takk. Bræðurnir geta spilað erlendis.

Jonas
09.02 2010 kl.10:36

Hélt ég hefði ruglast á Eyjunni og Baggalút þegar ég las fyrirsögnina...

spekingur
09.02 2010 kl.10:39

Húsið vinnur alltaf og það er það sem þeir ætla að gera að sjálfsögðu.

Það er kanski bara spurning um að lögleiða og skattleggja helstu vaxtasprota Íslands, og hafa svo strangt eftirlit með þeim:

1. Fjárhættuspil

2. Dóp

3. Vændi

Fá þetta allt upp á borðið á nýju gagnsæu Íslandi, slá þar með vopnin úr höndum glæpalýðsins og auka ferðamannastrauminn til Íslands.

Anna Kristín Pétursdóttir, áður Móvinda
09.02 2010 kl.10:46

Ég myndi deyja úr leiðindum ef ég væri útlendingur og myndi þurfa að treysta á fararstjórn þeirra bræðra...

Ímyndunaraflið er tæpast til hjá þeim - það hefur gleymst að smíða það í þá...

Eigum við endalaust að púkka upp á eitthvað lið sem er sífellt að segja okkur hvað er skemmtilegt og ekki.. ?

Hlaupadrengur
09.02 2010 kl.10:48

Þessir bræður eru að þeirra viti miklir hugsjóna menn, landi og þjóð til heilla. Hvað er Icelandair eiginlega að hugsa. Á þetta fyrirtæki ekki að vera einskonar „stolt þjóðarinnar“. Fyrir mitt leyti er ekki hægt að komast neðar í lágkúrunni. Vonandi verður þetta aldrei leyft.

HG
09.02 2010 kl.10:51

Fyrirsögnin ætti frekar að hljóma svona;

“við meikuðum það ekki í boltanum, reynum spilavíti, við getum ekki meira”

Einmitt ! Ísland, rétt land og réttur atvinnuvegur á RÉTTU augnabliki !

Ofsi
09.02 2010 kl.10:52

Þetta eru meiru jólasveinarnir, hafa greinilega ekki farið upp fyrir Ártúnsbrekku.

Gunna
09.02 2010 kl.10:54

Burt með þessa bræður af landinu, þeir eru stórhættulegir. Við höfum ekkert með svona fólk að gera. Ef þeim finnst Ísland ekki hafa neitt annað fram að færa en Gullfoss og Geysi þá ættu þeir bara að flytja eitthvert annað.

Áslaug
09.02 2010 kl.10:57

Ég er sammála þeim sjónarmiðum sem áður hafa komið fram t.d. Arnar.
Hér hefur verið rekið spilavíti í þessu blessuðu þjóðfélagi um árabil og ákveðið
fyrirfram hverjir eiga að vinna.

PP
09.02 2010 kl.11:02

Til gamans má geta að þau fjárhættuspil sem eru lögleg á Íslandi í dag eru þau fjárhættuspil sem hafa MINNSTU vinningslíkur fyrir spilarann af öllum fjárhættuspilum sem eru í boði.

Verði spilavíti starfrækt hér með alvöru leikjum eins og póker, blackjack, craps og fleiri leikjum getur neytandinn stjórnað sínum vinningslíkum upp að vissu marki. Þær eru amk alltaf betri en vinningslíkurnar í spilakössunum. Því get ég ekki séð neikvæðu hlutann við þetta.

Halldór Á
09.02 2010 kl.11:04

Ég skildi ummæli Bjarka sem svo að hann væri að benda á alla afþreyinguna sem felst í náttúruskoðun á Íslandi - Gullfoss og Geysir eru táknmyndir fyrir það. En fyrir utan náttúruskoðun, sem er vinsælasta afþreyingin á Íslandi, þá er lítið annað í boði fyrir ferðamenn.

Jú, þeir geta skellt sér á pöbb til að vera með fullum Íslendingum, eða kíkt í bókabúð á Laugaveginum. Svo má fara á söfn og sýningar, en á kvöldin er ekki mikið úrval af afþreyingu. Nema að við bendum þeim bara á spilakassana?

Það er óþarfi að dæma þess hugmynd um kasínó út frá því hvaða skoðun menn hafa á fótboltaafrekum Arnars og Bjarka. Horfum frekar á hvað þetta er jákvætt fyrir ferðaþjónustuna. Málið er nefnilega að kasínó eru yfirleitt full af erlendum ferðamönnum - hvar sem er í heiminum.

Og síðan hvenær höfum við haft á móti því að fá tekjur af ferðamönnum? Enginn ætlar að pína þá í kasínóið. Þeir velja þetta sjálfir.

Tökum nú aðeins ólundina úr þessari umræðu.

Sanngjarn
09.02 2010 kl.11:05

Opna hóruhús líka?

Valþór
09.02 2010 kl.11:15

Íslendingar gætu auðveldlega farið sömu leið og Mónakó, en íbúum þess lands er bannað að spila í Monte Carlo.
Þessu er framfylgt með því að fólk þarf að reiða fram vegabréf vilji það spila. Ekki er eymdinni fyrir að fara í Mónakó, síður en svo.

Er ekki hægt að ræða þessi mál án upphrópana og gífuryrða ?

Halldór Á
09.02 2010 kl.11:22

Hvers vegna að nefna vændi um leið og talað er um fjárhættuspil?

Hvar er vændi stundað? Hvar er það auglýst? Er það ekki auglýst í dagblöðum og á netinu og stundað nánast hvar sem er?

Ætti þá líka að nefna vændi um leið og talað er um dagblöðin eða netið?

joi
09.02 2010 kl.11:24

Þetta myndi óneitanlega auka fjölbreytninga í catering flórunni. Þá væri hægt að gifta sig “Vegas - Style”.

Roll-on bræðurnir gætu þá verið í smókingunum með spilastokkinn í rassvasanum öðru megin við glerið, skellt sér svo í hempuna og gift fólkið eins og í Vegas?

Þeir gætu meira segja fengið lánaða gulltönn hjá Björgólfi, farið í loðfeld og sett eitthvað bling bling um hálsinn, farið í kúrekastígvél og vindil í munnvik, stutt stúlkurnar sem vinna þarna með ráðum og dáð. Heitir það ekki að vera Pimp á fagmáli?

Arnar
09.02 2010 kl.11:25

@Sanngjarn
09.02 2010 kl.11:05

Þú spyrð:

“Opna hóruhús líka?”

Svar:

Nei því vændi gengur út að kaupa sér afnotarétt af líkama annarrar manneskju og út frá hugmyndum samfélagsins um mannvirðingu og hvað getur talist atvinna og hvað ekki þá er slíkt ekki viðurkennt.

Um slíkt er ekki að ræða í tilfelli fjárhættuspila þótt vissulega sé ákveðin hætta tengd fíkn eða stjórnleysi neytandans líkt og nú gildir með aðra löglega starfsemi á borð við rekstur spilavíta Háskóla Íslands og fleiri aðila og sölu bæði áfengis og tóbaks. Þess vegna þarf að vega og meta.

Njálgur
09.02 2010 kl.11:26

Auðvitað eigum við að lögleiða Casino. Það eru nú þegar mjög margir að spila á netinu og lönd eins og USA, UK og Svíþjóð eru að græða á þeirri spilamennsku. Er ekki nær að skatt tekjur renni til Íslands.

Það er alltaf til fólk sem fer sér að voða, sama hvað er í boði. Það voru notuð sömu rök við áfengisbanni, og bann við sölu á bjór. Það er komið nóg af því að reynt sé að hafa vit fyrir fólki endalaust.

Stundum held ég að íslendingar séu svo fullkomnir og réttsýnir að þeir teljist til dýrlinga.

Anna Kristín Pétursdóttir, áður Móvinda
09.02 2010 kl.11:32

Ja... kannski erum við að hugsa þetta vitlaust.. fyrst EKKERT er að sjá hérna og eina lausnin er að draga túristana að peningaspilaborðinu..

Gætum við ekki haft forvarnaraðilana á endanum á ferlinu .. þeir gætu sannfært “gestina” um að koma í meðferð.. /margir möguleikar í boði), svona áður en við hleypum þeim úr landi ...

Gætum sennilega fjármagnað flestar ef ekki allar meðferðarstofnanirnar sem við erum að fjársvelta í dag...

Halldór Á
09.02 2010 kl.11:32

Er ekki svolítið skrítið að SÁÁ er á móti því að hér verði opnað kasínó, en hefur sjálft tekjur af spilakössum, sem eru jú bara ein tegund fjárhættuspils?

Hvers vegna er ekki tekið fram í fréttum, þegar SÁÁ tjáir sig um kasínó, að samtökin eigi bullandi hagsmuni í þessu?

Svo má líka spyrja sig hvers vegna fjölmiðlar geta ekki leitað annað til að fá álit.

SP
09.02 2010 kl.11:38

Græðgin verður Íslandi að falli enn og aftur!

Nóg eru Spila-VÍTIN til staðar,
nefnilega í bönkunum, sem spila með aleigu fólks!

Elli kelling
09.02 2010 kl.11:41

@Arnar þetta með hóruhúsið er alveg valid spurning.
Það er ekki bannað að selja sig á Íslandi en hórmang er bannað eins og fjárhættuspil.
“Gullfoss og Geysir og ekkert mikið meira” er náttúrulega alveg brilliant og er kannski til marks um þær mannvitsbrekkur sem þarna eru á ferð.
Eða ætli þessi skoðun sé komin frá Icelandair ?

BB
09.02 2010 kl.11:44

Það er ekki að ástæðulausu að þetta er kallað spilaVÍTI

Einar H.
09.02 2010 kl.11:45

Senda þessi fífl út í hafsauga.
Eða segja þeim að finna sér eitthvað betra að gera.

RS
09.02 2010 kl.11:49

Vill fólk skatttekjur upp á 450 - 750 milljónir á ári? Gæti það ekki nýst vel, t.d. í heilbrigðisþjónustunni?

Kommon, það er nú ekki eins og við séum að tala um aðra Kárahnjúka. Eitt lítið casino mun ekki hafa slæm áhrif á ímynd Íslands.

naut
09.02 2010 kl.11:51

Mér finnst bara allt í lagi að þessi umræða fái að eiga sér stað. Eins og búið er að benda á þá er fjárhættuspil nú þegar í boði fyrir þá sem það vilja stunda hér á Íslandi. Bæði á netinu og í spilakössum og “neðanjarðar klúbbum” út um allan bæ. Ríkið er hins vegar ekki að fá miklar tekjur af því.
Ef hægt er að auka eftirlit með fjárhættuspili með því að ríkið komi að þessu finnst mér það eitthvað sem vert er að skoða. Ég tala nú ekki um ef þetta eykur áhuga ferðamann til að koma til landsins og þá líka utan hins hefðbundna ferðamannatíma.

Skondin samt þessi umræða sem er að skapast í kringum þetta. Minnir að mörgu leyti um dómsdags áróðurinn sem kom upp þegar lögleiðing bjórsins var rædd á sínum tíma. En þá voru margir sem vildu meina að bjórinn myndi steypa þjóðinni í glötun og landið leggðist í eyði....

Marinó G. Njálsson
09.02 2010 kl.11:56

Ef rök þeirra bræðra fyrir spilavítinu ganga út á að gera lítið úr öðru sem landið hefur upp á að bjóða, þá opna þeir ekki spilavíti.

Annars býðst ég til að að taka þá félaga í hringferð um landið. Ég er menntaður leiðsögumaður og er til í að taka þá í tveggja vikna hringferð til að sýna þeim hvað Ísland hefur annað upp á að bjóða en Gullfoss og Geysi. Ég tek að sjálfsögðu eðlilega þóknun fyrir slíka leiðsögn, auk greiðslu kostnaðar.

Ég tek annars alveg undir með þeim félögum að tvískinnungshátturinn í kringum fjárhættuspil er mikill hér á landi. Hver er munurinn á spilakössum háskólans, SÁÁ og fleiri aðila og því að spila í spilavíti? Er það fjölbreytnin? Nei, kassarnir bjóða upp á óteljandi möguleika (þó ég þekki það ekki af eigin raun). Eru það upphæðirnar? Vissulega geta menn ekki spilað fyrir háar upphæðir í einu, en auðvelt er að tapa þúsundum, tugum þúsunda eða hundruðum þúsunda á einum degi í spilakössunum. Þó svo að fyrrverandi landlæknir hafi gloprað því út úr sér að menn verði varla spilafílkar á því að spila fyrir 100 kall í einu, þá er það nú samt reyndin. Fyrir utan spilakassana, þá er lítið mál að finna vefi með fjárhættuspilum. Þannig að því leiti er þetta allt í gangi hér á landi. Í þessu liggja rökin fyrir því að opna spilavíti, ekki að Ísland hafi ekki upp á neitt annað að bjóða en Gullfoss og Geysi. T.d. væri góð byrjun að fara í Suðurstrandarferð sem flestum erlendum ferðamönnum finnst mun tilkomumeiri ferð en Gullhringurinn.

Arnar
09.02 2010 kl.12:02

@Marinó G. Njálsson
Hér hefur áður verið bent á að með því að segja “Gullfoss og Geysir” hafi bræðurnir verið að beita stílbragðinu “hluti fyrir heild” eða “pars pro toto”, þ.e. að benda á þá þekktu staðreynd að Ísland hefur aðallega byggt ferðaþjónustuna á náttúruupplifunum en minna á skipulagðri menningar- eða afþreyingarstarfsemi. Á þetta hafa fjölmargir frumkvöðlar í ferðaþjónstu bent og þess vegna er framtak á borð við Landnámssetur, jarðböð, tónlistarhátíðir og margt fleira svo mikilvægt.

joi
09.02 2010 kl.12:06

Icelandair nær þá loksins að prómóta “dirty weekends”.

hoffmann
09.02 2010 kl.12:06

aldrei aldrei aldrei má það verða.......

höldum vítisenglum og þessháttar fólki frá Íslandi og líka spilavítum....
er þeim bræðrum finnst svona lítið til Íslands koma, því fara þeir þá ekki annað ?

valgarður
09.02 2010 kl.12:07

Hvað gengur eiginlega bræðrunum til. Er allt að fara í sömu mótin aftur? Ganga menn ekki orðið heilir til skógar. Ef þeir gera það ekki þá geta þeir greinilega villst. Þetta er orðin hringavitleysa og verður flautað útaf stax, rautt spjald á bræðurna stax. Næsta mál?

Áfram Eyjan
09.02 2010 kl.12:08

„Við höfum Gullfoss og Geysi, en það er í raun ekkert mikið meira,“ segir Bjarki í viðtali við Fréttablaðið í dag.

Það er náttúrulega bara klárt að maðurinn hefur sagt ef sem hann ætlaði ekki að segja....

En engu að síður þá birtist þessi spilavítishugmynd mér ekki vel. Þetta er ekki tímabært og ekki heldur neitt nýtt.

Eigum við ekki bara að fara að einbeita okkur að einhverju sem mögulega skiptir einhverju máli?

T.D. Langar mig mikið að sjá frekari umfjöllun um skýrslu rannsóknarnefndarinnar....
http://eyjan.is/blog/2009/12/01/allt-ad-80-ara-leynd-yfir-vidkvaemustu-upplysingunum-i-skyrslu-rannsoknarnefndar/

hress
09.02 2010 kl.12:11

Að sjálfsögðu á að opna fyrir að reka spilaríkisrekstur á íslandi þarna eru haugur af peningum sem er hægt að hafa skatttekjur af. Um leið og það eru leifð spilavíti er hægt að fara gefa út leyfi fyrir fyrirtæki eins og Betson ofl og láta þau borga skatttekjur af íslenskum ip tölum. Þetta er frábær leið fyrir ríkið til að ná sér í peninga til að lækka aðra skatta (in my dreams hehehe).

Það á ekki að banna hluti vegna þess að einhver er veikur fyrir því það er heimskulegt, þeir sem eru veikir fyrir þessu verða bara að finna út úr því.

Óþolandi þessi forræðishyggja alltaf hreint að hafa allt bannað af því að einhver er svo veikur að hann ræður ekki við sig, meðvirkni og ekkert annað.

Svo væri líka fínt að fá áfengi í búðir og hóruhús það er líka góð tekjuleið fyrir ríkissjóð það er búið að lögleiða vændi hvort eð er.

Brosi
09.02 2010 kl.12:29

Í viðtalinu í sjónvarpinu í gær sögðust þeir ná betur til spilafíkla og gætu nálgast þá betur með hjálp handa þeim ef það væri opnað löglegt spilavíti. Þetta voru léleg rök eða hvað voru þeir að meina ?? . Þessir menn eru bara bullarar
Ég held að það sé alveg nægilega margir ávana sjúklingar á landinu, þetta væri ekki á það bætandi

Hegning
09.02 2010 kl.12:29

Þá skal nú kannabisið lögleitt áður. Það gæfi enn meiri skatttekjur ef vel yrði að staðið.

Þetta sprettur hvort sem er í öðru hverju húsi um allt land

sjá samhengið please

XXX
09.02 2010 kl.12:38

Það er sérstakt að þetta málefni þoli ekki að heita það sem það er í raun og veru; VÍTIS-SPIL.

Ég tel mig engan sérstakan púrítana en reglan þegar spilað er við Djöfulinn er að hann vinnur alltaf.

Það hefur bæði að gera með svokallað vinningshlutfall sem sjaldan er útskýrt fyrir fólki (líkt og bankakerfið) og líka með það að rökhugsun mannsheilans á það til að brenglast vegna allrar spennunnar og sigurvímunnar sem fylgir því að fá vinninga.

Jafnvel þó að menn spili af skynsemi og yfirvegun þá sér vinningshlutfallið til þess að höfuðstóll spilara lækkar alltaf. Í black jack er hlutfallið um 90% sem þýðir að fyrir hvern 100 kall sem er spilað fyrir eru allar tölfræðilíkur á því að aðeins 90 kall fari aftur í vinninga. Húsið er alltaf nokkurn vegin öruggt með að eiga eftir 10 kall.

Síðan spila einfaldlega mjög margir óskynsamlega og tapa því öllum 100 kallinum auk þess sem flest spil eru með mun minna en 90% vinningshlutfall.

Til að halda blekkingarleiknum gangandi er einn og einn sem fær að vinna stóran pott og er hampað í hvívetna.

Djöfullinn vinnur alltaf þó auðvitað sé helvíti gaman að dansa við hann einstaka snúning. .

Guðmundur Guðmundsson
09.02 2010 kl.12:47

Þessir bræður hafa aldrei farið út fyrir höfuðborgarsvæðið. -
Það er svona með nefin þeirra, að þau lengjast er þeir tala.

Marinó G. Njálsson
09.02 2010 kl.13:10

Arnar 12:02,

Ég get alveg lofað þér því að Ísland er margt annað en náttúran og Gullhringurinn snýst (a.m.k. í mínum ferðum) um margt fleira en náttúruna. Raunar er náttúran minnsti parturinn af leiðsagnarlýsingunni hjá mér þó vissulega verði ekki komist hjá því að tala um jarðsöguna, flekakenningu, eldgos og jarðskjálfta. Ísland er fyrst og fremst saga og menning sem borin er á borð í fallegu umhverfi. Það skiptir ekki minna máli að hitta menn eins og Þórð á Skógum, Valgeir á Hofsósi eða Inga Hans á Grundarfirði. Skella sér í náttúrulega laug á Vestfjörðum, skjótast upp á Grábrók eða að fyljgast með öndunum í Laxá. Skilningur á landslaginu hefur vissulega mikið að segja i bland við að bregða sér á snjósleða, á fjórhjól, í útsýnisflug eða siglinga innan um ísjaka á Jökulárlóni eða eyjarnar á Breiðafirði. Ísland snýst um upplifun, svo sem að snerta jökul, halda á rækju eða hörpuskel, leika sér með steina af Djúpalónssandi eða úr Reynisfjöru, halla sér upp að kjölum bóka Þórbergs að Hala og skynja kraftinn í landinu. Markmið hvers einasta leiðsögumanns er að hjálpa gestinum að upplifa land og þjóð frá örófi til dagsins í dag. Þess vegna er Ísland margt annað en Gullfoss og Geysir og við þurfum öfluga fjárfesta til að gera landið betur til þess búið að taka við öllum þeim sem hingað vilja koma.

Tekið skal fram, að afþreying á borð við það sem þeir bræður vilja bjóða upp gæti verið góð viðbót, en hún verður að vera það á réttum forsendum.

Jónsi
09.02 2010 kl.13:13

. Ef ég sem spilafíkill ætla mér að spila fjárhættuspil þarf ég ekkert nema browser og internet.
Þar fyrir utan veit ég sjálfur um 3 klúbba sem eru starfræktir ólöglega , þar sem þú getur jafnvel tekið lán hjá staðnum með vöxtum , til að kaupa þig inn. Síðan ertu rukkaður eftir eins harkalegum aðferðum og þú getur ímyndað þér.
Væri ekki betra að þetta væri uppá yfirborðinu og undir eftirliti ?

Til ykkar sem teljið ykkur alltaf þurfa að hafa vit fyrir náunganum , þá legg ég til að þið berjist fyrir banni á internetinu , sölu á áfengi og tóbaki , klæðaburð sem þykir vafasamur í ykkar augum og harðbanna dans því jú það þykir stuðla að kynlífi fyrir giftingu sem að sjálfsögðu engum ykkar datt einu sinni í hug að gera.
Hefta síðan algjörlega ritfrelsi svo enginn mótmælt , ef það gengur ekki eftir þá getum við nátturulega bara bannað kennslu á lestri og skrift í skólum . því það er alveg nóg að einn maður okkar alvaldi stjórnandi kunni að lesa á íslandi.
Hann getur bara sagt okkur hvað sé að gerast í heiminum.

Þegar þessu er lokið getum við öll lífað saman í sátt og samlyndi í okkar útópiska heimi í hreinni fáfræði. Ég meina heimska er blessun.

Síðan mæli ég með þvínga orð drottins á alla , því allir vita að gamla testamentið er ekkert nema fallegur sannleikur, guð er góður og elskar þig....... alveg þangað til þú gerir eitthvað af þér , þá líður þú vítiskvalir í logum helvítis um ókommna tíð.

Ef þetta gengur ekki eftir hjá ykkur getið þið sótt um landvistarleyfi í Kína , þar sem mörg af þessum bönnum eru í virk. Nema að sjálfsögðu þetta með orð Drottins , en þeir munu ekki valda ykkur vonbrigðum og eru klárlega með einhvert annað tól kúgunar en trú.

Hansi
09.02 2010 kl.13:23

Þetta verður aldrei leyft. Það verður aldrei samþykkt að einkaaðilar reki svona starfsemi. Þar sem það hefur verið leyft erlendis hafa leyfi verið boðin út til hæstbjóðanda, enda um takmörkuð gæði að ræða (eins og kvótinn) - haldiði að fleiri myndu ekki vilja opna spilavíti? Af hverju ættu tvíbarnir bara að fá það? Það þarf enginn að óttast eða gera sér vonir um að þetta fari af stað, a.m.k. ekki næstu árin. Svo gleymist það að þetta er ekki ný hugmynd, hefur komið upp með reglulegu millibili í mörg ár, ekkert nýtt á ferðinni.

jóhann
09.02 2010 kl.13:28

þetta eru lúðar, kunna ekki einu sinni að sparka í bolta,þeyigiði bar

Halli
09.02 2010 kl.13:35

Í DK og flestum öðrum spilavítum þurfa allir að sýna skilríki, tekið er aftrit af því og tekin mynd af þér. Því eru miklar öryggisráðstafanir á ferðinni. Það er hámark á því hvað þú getur tekið út og það kostar inn. Ef þú ert vel fullur þá er þér hent út/kemst ekki inn. Ekki er möguleiki á að svindla sér inn ef þú ert of ungur.
Þannig hafa þeir allar skráingar um heimsóknir.

Yfir helmingur viðskiptavina eru útlendingar og ríkið græðir feitt á þessum stöðum.

En 1000 fm er svona voða íslensk stærð og er allt of stórt (soldið 2007), ætli Casíno copenhagen sé ekki c.a. 400-500 fm. + efri hæð fyrir stór pókermót.
Endilega skella ´sér á þetta

tryggvi
09.02 2010 kl.13:41

Frábær hugmynd og lífsnauðsynlegt fyrir Ísland að leyfa spilavíti. Mun strykja ferðamannaiðnaðinn yfir veturinn gríðarlega og skapa miklar tekjur. Ríkið fær auknar skattekjur. En Vinstri Grænir verða pottþétt á móti þessu eins og öllu öðru.

Fjári
09.02 2010 kl.14:18

Nokkrir hér hafa haldið þeim rökum á lofti fyrir því að leyfa spilavíti að nú þegar séu rekin ólögleg spilavíti.

@Jónsi
” Þar fyrir utan veit ég sjálfur um 3 klúbba sem eru starfræktir ólöglega , þar sem þú getur jafnvel tekið lán hjá staðnum með vöxtum , til að kaupa þig inn. Síðan ertu rukkaður eftir eins harkalegum aðferðum og þú getur ímyndað þér.
Væri ekki betra að þetta væri uppá yfirborðinu og undir eftirliti ?”

Þó svo að spilavíti yrðu leyfð hér á landi þá myndu þessir klúbbar ekki hætta heldur eru miklar líkur á að þeim myndi fjölga vegna þess að fóðrið (spilafíklar sem ekki fá aðgang að löglegum spilavítum lengur) sem þeir þrífast á yrði mun fjölmennara.
almenn spilun mundi fjölga þeim einstaklingum sem yrðu fíkn að bráð.

Spilavíti verður seint talið til menningarviðburða og að gambla með peninga ætti ekki að teljast til afþreyingar.

Hvernig væri að Iceland Air snéri sér alfarið að því að styðja við jákvæða upplifun á Íslandi t.d. væri hægt að styðja eða stofna siglingaklúbba víðsvegar um landið eða alvöru skotsvæði, alþjóðlegan köfunarskóla, torfærukeppnirnar, það er fjölmargt hægt að gera annað en skríða að spilaborðinu og tapa peningum.

Halldór Á
09.02 2010 kl.14:41

Það er löglegt að stunda allar tegundir af fjárhættuspili á Íslandi nema að sitja við borð og spila við annað fólk upp á peninga.

Það er sjálfsagt að ganga alla leið og gera allt fjárhættuspil löglegt. Svona spilavíti eða kasínó, eru líklegasta huggulegasta aðferðin til að leggja undir. Eða hafið þið einhvern tímann séð James Bond sitja við tölvuna og spila við Betsson?

En alltaf skulum við Íslendingar rísa upp á afturlappirnar ef á að breyta einhverju og erum þar af leiðandi alltaf langt á eftir öðrum. Samt drullumst við á endanum til að samþykkja sjálfsagða og eðlilega hluti eins og bjór, frjálst útvarp, box og litasjónvarp.

Eiginlega er undarlegt hvað við vorum skamman tíma að setja landið á hausinn undir forystu útrásarvíkinga. En skýringin er kannski sú að þeir þurftu engin lög að brjóta til að fá sitt fram.

Ásgeir Gunnarsson
09.02 2010 kl.16:40

eru þá ekki vítisenglar best fallnir til að stjórna spilaV’ITI ?

Arnar Gunnlaugsson
09.02 2010 kl.16:49

Margar skemmtilegar skoðanir og mismunandi hafa komið hér fram. Mannvonskan og heiftin í sumum eru reyndar ekki til fyrirmyndar en nóg um það...Margir eru að misskilja rekstur Casino og gera þetta af of miklu tilfinningamáli sem er hættulegt. Þess vegna er gott að benda á staðreyndir sem fólk verður að sætta sig við.

Spilamennska lögleg og ólögleg var , er og mun alltaf verða til. Það er mannlegt eðli.Biblian minnist á spilamennsku. Ef menn sættast á þessa staðreynd nú þá er bara um tvennt að velja.

vilja menn banna alla spilamennsku , þ.e loka ólöglegum klúbbúm, búa til netögreglu sem fylgist með spilum á netinu ..Er þetta raunhæft?? Myndi ekki bara annar klubbur opna daginn eftir osfrv. hvað gerðist á bannárunum í USA með áfengið..fólk finnur sér alltaf leiðir.að banna spilamennsku leysir engan vanda, bara eykur ...

hin leiðin er sú leið sem nánast öll vestræn lönd hafa tekið upp. Nefnilega að leyfa rekstur Casino með ströngu eftirliti..Af hverju skyldi það nú vera..? hmm skyldi þó ekki vera vegna þess að þessi lönd hafa gengið í gegnum það sama og hér er við lýði og telja þann kost mun betri..

Er ekki allt í lagi að kanna hvernig staðið var að málum td í Danmörku ?? Sakar það?

Lögleiðing CAsino er ekki viðbót á spilamarkaðinum...Það er mikill misskilningur heldur bætir hann markaðinn . Reynsla Dana sýna fram á að starfsemi ólöglegrar klubba lognaðist ut af og heilbrigðara umhverfi varð til á spilamarkaðinum

Hinir kostirnir sem ótrulega litið er talað um eru

skattekjur, störf, ferðaþjónusta , eftirlit.

Og já eitt litið atriði enn...nefnilega frelsi einstaklings til að spila uppá peninga þegar hann vill...minni enn og aftur ,,ekki likja því saman við að taka kókain í nefið eins og sumum finnst . Þá er umræðan komin á villigötur ...

Ísland hefur alltaf verið dugleg að skapa sér fáranlegar sérstöðu sem aðrar þjóðir skilja ekki..sbr bjórinn, boxið, verðtryggð lán osfrv...Leitum núna í reynslubanka annara þjóða og spyrjum ..af hverju er Casino leyft hjá ykkur...

Elías
09.02 2010 kl.16:57

Nei takk. Ekkert spilavíti.

Arnar Gunnlaugsson
09.02 2010 kl.17:03

Kemst ekki upp með svona svar Elías minn..Hvað viltu þá gera varðandi ástandið í dag...Muna að rökstyðja vel

KJ
09.02 2010 kl.18:15

Hef spilað Casino af og til í gegnum árin, í borgum eins og Amsterdam, Köben, London og Las Vegas, sem sagt á ferðalögum. Ég tel mig því þekkja “kúltúrinn” sem myndast í kringum slíka staði þokkalega vel. “Local” fólkið á staðnum skar sig úr, það var niðurdregið, brosti ekki og var ansi dapurlegt að horfa á það. Maður sá sem sagt mun á fastakúnnum og þeim túristum sem komu öllu ferskari inn, einlægari, spenntari og stoppa stutt við þar sem þeim bregður mörgum við það þegar þeir uppgötva hversu mikið þeir hafa tapað á stuttum tíma. Það er bara þessi sorglega stemmning sem hreyfir við manni. Þarna birtist ein af höfuðsyndum mannsins í sinni verstu mynd, þ.e. freistingin. Mér finnst þetta “low” class hugmynd og ég verð eins og margir hér að ofan gáttuð á því að einhverjum finnist Ísland ekki hafa upp á neitt annað að bjóða neme G&G, þvílíkt vanþakklæti. Þessi spurning þín Arnar um hvað fólk vilji þá “gera við ástandið í dag” finnst mér sýna svo mikinn barnaskap að það mætti halda að 5 ára sonur minn væri að spyrja. Ég vona að þjóðin detti ekki niður í þetta svað og láti svona bullurokka eins og þessa tvíbura ekki selja sér hugmynd sem er byggð á svo röngum hugsjónum.

Oben
09.02 2010 kl.18:37

Þvílík grunnhyggni í bræðrunum

Regína Stefnisdóttir
09.02 2010 kl.20:08

Þessir fræknu íþróttatvíburar taka væntanlega við rekstri SÁÁ í leiðinni!

Guðrún J.
09.02 2010 kl.22:05

Ég er farin að halda að fólk sé aðeins á mót i til að vera á móti! Ég er ein af þeim sem hef enga ánægju af því að skoða nátturuna aftur og aftur með útlendingum sem koma í heimsókn, svo er farið í 101 Reykjvík og séð blindfulla Íslendinga. Tel bara ekkert að þvi að koma með casino inn í flóruna á Íslandi! Gott hjá bræðrunum!

Guðrún Bjarna
09.02 2010 kl.22:06

Ég er farin að halda að fólk sé aðeins á mót i til að vera á móti! Ég er ein af þeim sem hef enga ánægju af því að skoða nátturuna aftur og aftur með útlendingum sem koma í heimsókn, svo er farið í 101 Reykjvík og séð blindfulla Íslendinga. Tel bara ekkert að þvi að koma með casino inn í flóruna á Íslandi! Gott hjá bræðrunum!

viktor
09.02 2010 kl.22:51

Mínvegna má setja upp spilavíti hérna.
En að við höfum lítið annað en gullfoss og geysir að bjóða túristu en nú tóm þvæla.
þikjast þessir bræður vera orðnir einhverjir markaðsmenn?
Efast um að þeir hafi einusinni farið hringinn í kring um landið.
held þeir ættu bara að halda sig í boltanum þó árangurinn þar sé nú heldur ekki beisinn.en það eiga þeir nú samt að kunna.

BGG
09.02 2010 kl.23:19

Auðvitað eru allir sem hafa hagsmuni af spilakössum á móti því að leyfa spilavíti. Þarna er heilmikið lið sem missir stóran hluta af tekjum. Steinaldarhugsunargangurinn er ekki í hvarfi hjá mörgum manninum. Það á nefnilega að passa alla aðra en sjálfan mig. Í löndum þar sem gleðikonur eru undir eftirliti er mikið minna um eyðni heldur er þar sem þetta er á fullu á götunum. Það sama gildir um eiturlyfin, Í USA þar sem bæði eitur og gleðikonur eru á götunni er löggan í síðastaleik við allt liðið alla daga. Í þeim löndum þar sem hvorutveggja er leyft er þetta ekkert vandamál. Í USA er mera að segja komin sterk hreyfing að leyfa kannabis þvi þar hefur komið í ljós að þetta verður ekki stöðvað. Í Vestmannaeyjum voru það sprúttsalarnir sem börðust harðast .a nóti áfengisútsölu þar á staðnum á sínum tíma..

S.H
09.02 2010 kl.23:39

Ekki gleyma !!!!!

Við eigum okkar líka Eigin GÖG og GOKKE ........( Ü )

Anna Kristín Pétursdóttir, áður Móvinda
10.02 2010 kl.00:41

@ Arnar Gunnlaugsson 09.02 2010 kl.16:49

Ég var aðallega að grínast yfir hvernig málið er kynnt. Það á ekki að prómóta svona hluti með því að skjóta í kaf það sem fyrir er..

Að sjálfsögðu væri hægt að græða á þessu - kannski ekki strax, en í framtíðinni, mikil ósköp. Meir að segja er stór hluti þessa markhóps meir og minna óháður allskonar fjármálahruni allt um kring.

En það eru meiri líkur en minni að sá markhópur sem myndi sækja spilaviti hér, hafi engann áhuga á að skoða landið og miðin. Þeir alhörðustu í þessum bransa, sérstaklega þeir sem geta flogið á milli landa til að eyða fjármunum í spilavítum, eru í miklum meirihluta með áhuga eingöngu á peningavoninni.

Það var óþarfi að móðga þjóðina með svona yfirlýsingum .. ekkert að sjá “nema” Gullfoss og Geysir... - það var þá...

Helgi
10.02 2010 kl.13:41

Flestir aðilanna sem hafa kommentað eru fyrst og fremst með perónulegar úthýðingar! Einhverra hluta vegna virðist fólk ekki geta unað við það að náunganum gangi vel.
Hvernig væri svo að fullorðið fólk fari að taka ábyrgð á sínu eigin lífi. Á öllu þjóðin að “líða” fyrir þau 2% þjóðarinnar sem geta ekki hamið sig??
E-h kommentaði : Já endilega að lögleiða casino-þeir mega bara ekki opna það! Verður “skaðinn” sem talað er um, minni ef þetta veður ríkisrekið?
Reynið nú að vera málefnaleg og hættið þessu skítkasti út í þá bræður-það mættu fleiri taka þá sér til fyrirmyndar enda flottir karakterar þar á ferð.

Þorsteinn Vignisson
10.02 2010 kl.16:57

Heyr heyr Helgi!

ótrúleg lákúra að leyfa sér að “rakka” niður náungan með nafnlausum “commentum”.
Er ekki hægt að láta skoðun sína í ljós án þess að “drulla” yfir fólk?

Eftir að hafa lesið yfir ummælin hér að ofan er ég á þeirri skoðun að það eigi að banna fólki að skrifa “comment” án þess að gera undir fullu nafni.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar