Samtök atvinnulífsins segja að ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra að staðfesta ekki breytingu á aðalskipulagi tveggja sveitarfélaga sem liggja að Þjórsá sé “ómálefnaleg og í andstöðu við margra ára venju og góða stjórnsýsluhætti,” eins og það er orðað.
“Það er til samræmis við önnur vinnubrögð ráðherra að tefja mál,” segir ennfremur í harðorðum pistli á heimasíðu Samtaka atvinnulífsins í dag. Synjunin sé einungis til þess fallin að geðjast þröngum flokkshagsmunum Vinstri grænna sem ályktuðu í ágúst sl. um virkjanir við Þjórsá og fólu „þingflokki og ráðherra VG að sjá til þess að ekki verði í þær ráðist”. Um leið tryggi ráðherra minni hagvöxt en ella, meira atvinnuleysi, minni kaupmátt almennings og takmarki getu ríkissjóðs og sveitarfélaga til að verja velferðarkerfið í landinu.
Greinina á vef SA má lesa í heild hér.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
47 ummæli
Rita ummæli09.02 2010 kl.12:14
Slóð
Stattu keik Svandís - það er fullt af fólki sem er verulega ánægt með þín störf og stendur svo sannarlega með þér í þinni baráttu !!!
09.02 2010 kl.12:16
Slóð
^ ^ ^ ^ ^ ^ ^^ | |____
|..... HÉR KEMUR ...| | |’”"|”"\_ ,_
| __ VÆLUBÍLLINN _ l ||__|__|__|)
| (@)(@)* * *(@)(@) * ** | ( @)...
09.02 2010 kl.12:20
Slóð
Ok. Þá vitum við að Svandís er að standa sig.
09.02 2010 kl.12:23
Slóð
Æi, þessi kona á að vinna við eitthvað annað, hún er á móti þessu máli og á bara að segja það. Meðan hún er í þessu djobbi gerist ekkert, því miður.
09.02 2010 kl.12:24
Slóð
Hvenær fær skynsamt fólk í Samfylkingunni nóg?
Hvar eru mörkin?
09.02 2010 kl.12:26
Slóð
Sorglegheitin ein virðist vera í kringum VG þessa dagana. Sérfræðingar í þeim málefnum sem snúa að Svandísi standa agndofa yfir heimskum og illa upplýstum ákvörðunum hennar. Þvi miður virðist starfið vera númeri of stórt fyrir svandísi og lítur út fyrir það að það lengsta sem hún átti að ná með frekju- og yfirgangi sínum átti að vera í bæjarpólitíkina.
09.02 2010 kl.12:29
Slóð
VG verður að fara frá og vonandi vaknar skynsamt fólk í Samfylkingunni og yfirgefur þessi öfgaöfl til vinstri.
09.02 2010 kl.12:31
Slóð
Hvernig væri að fólk spyrji um verðið á rafmagninu sem þetta lið vill framleiða fyrir erlend stórfyrirtæki.
Hvenær fær fólk nóg af þessu bulli?? Nei, pælum ekki í því.. byggjum fleiri álver og eyðileggjum landið.
Er það ekki bara Gullfoss næst?
09.02 2010 kl.12:34
Slóð
Umhverfisráðherra var sökuð um að tefja allar stóriðjuframkvæmdir á Suðurnesjum þegar ráherrann setti suðvesturraflíu í lögformlegt mat.
Mikill hávaði frá SA og öðrum stóriðjuaðilum.
Nú er komið í ljós að þrátt fyrir að línulögnin hafi farið í þetta mat og því lokið með samþykkt línulagnar- þá er ekki hægt að fara í framkvæmdir- af öðrum ástæðum
Væntanlega fjárhagsástæðum. Þarna var vindbelgingur SA á ferð - uppblástur gegn ráðherra.
Sama er nú varðandi Þjórsá .
Ráherra er að fara að lögu enda vísa SA menn á venjur um áraraðir (ósiði-lögleysur)
Ekki er langt síðan samskonar hávaði var vegna heildarumhverfismats vegna Bakka við Húsavík. Ráherra fór þar aðeins að lögum.
Lögleysuliðið er samt við sig. Þá á að vaða yfir allt og alla
Hvað setti þessa þjóð á hausinn- var það virðing fyrir lögum og reglum ???
09.02 2010 kl.12:38
Slóð
Áfram Svandís! Við þurfum meira af heiðarlegu og heilsteyptu fólki sem vinnur vinnua sína með hagsmu fjöldans í huga og lætur ekki kaupa sig.
09.02 2010 kl.12:42
Slóð
@Tása
Og þess vegna þurfum við að hvetja Svandísi Svarsicesavedóttir til að segja af sér!
09.02 2010 kl.12:44
Slóð
Þetta lið vill samkonar lög og voru á dögum útrásarvíkinga. Nema nú vill það eyðileggja landið okkar fyrir stundargróða sem hlýst af byggingu álvera Þetta frjálshyggjulið er ekki að hugsa um hvernig landi það skilar afkomendum sínum ‘afram Svanhvít! ekki láta frjálshyggjuliðið stjórna! Sú hugmyndafræði hefur beðið algert skipbrot hér.
09.02 2010 kl.12:47
Slóð
Ef það væri heil brú í þessu hjá Svandísi þá bæri að afturkalla öll þau umhverfismöt sem fyrirtæki hafa styrkt með peningum eða annarri aðstoð
09.02 2010 kl.13:00
Slóð
“ómálefnaleg og í andstöðu við margra ára venju og góða stjórnsýsluhætti,”
Miðað við áratugalanga spillingu í kerfinu eru SA greinilega orðin ansi góðu vön.
09.02 2010 kl.13:03
Slóð
Þessi kona er óhæf eins og Pabbi hennar var !!!
Hún er bara að verða hryðjuverkamaður og ætti að segja af sér strax í dag
09.02 2010 kl.13:09
Slóð
Fyndið að fólk er að grenja og væla þegar ráðherra fer eftir lögum.
Segir ýmislegt um hvernig hlutirnir ganga fyrir sér.
09.02 2010 kl.13:14
Slóð
Rétt hjá þér Rex.
Gagnslaust fólk.
09.02 2010 kl.13:20
Slóð
Svandís eins og faðir hennar Svavar stór samningamaður ættu bæði að skammast sín fyrir fram komu við land og þjóð.......... komma hyski...
09.02 2010 kl.13:32
Slóð
Hér safnast saman skoðanasystkini Svandísar og hrósa henni fyrir að fórna miklum hagsmunum fyrir mun minni hagsmuni byggða á hugsjónum og tilfinningum umhverfissinna.
Oft eru hugsjónir skynseminni yfirsterkari. Er betra að framleiða rafmagn með kolum og olíu, eða jafnvel því sem er enn “betra”; kjarnorku, eins og Íranir segjast ætla að gera?
Svarið er ótvírætt já, ef hægt er að koma í veg fyrir jarðraskanir, vilja umhverfissinnar meina.
En öll mannanna verk hafa umhverfisáhrif, sama hver þau eru. Ef við eigum að fara eftir ströngustu umhverfissjónarmiðum og vilja umhverfisverndarsinnar, þá getum við bara lagt siðmenninguna eins og við þekkjum hana í dag, niður.
Svona öfgaumhverfiskjaftæði fælir ALLAR erlendar fjárfestingar frá landinu.
09.02 2010 kl.13:35
Slóð
Það er alger misskilningur ef fólk heldur að Svandís Svavarsdóttir sé bara að framfylgja lögum. Í fróðlegu viðtali við Aðalheiði Jóhannsdóttur prófessor í umhverfisrétti við lagadeild HÍ, (Spegillinn, Ruv, líklega 4 eða 5 feb) kom skýrt fram að túlkun Svandísar byggði einungis á einni af þremur mögulegum túlkunum skipulags- og byggingalaga og að hennar túlkun væri þröng og hefði engan veginn skýra lagastoð. Aðalheiður sagði að einnig mætti túlka lögin svo að framkvæmdaraðila (hér Landsvirkjun) væri beinlínis heimilt að taka þátt í kostnaði þar sem það væri ekki bannað í lögunum. Niðurstaða Aðalheiðar var sú helst að lögin væru mjög óskýr um þetta atriði sem löggjafinn þyrfti að taka á.
Ákvörðun Svandísar er hreinræktað pólitískt innlegg VG, og þar með ríkisstjórnarinnar allrar, til atvinnuuppbyggingar á Íslandi á þessum erfiðu tímum!
Hversu lengi ætlar Samfylkingin eiginlega að kyngja allri vitleysunni í VG?
09.02 2010 kl.13:36
Slóð
Bergljót, það er ekkert verið að eyðileggja landið þó verið sé að fara í framkvæmdir eins og að virkja.
Er þá ekki verið að eyðileggja landið með tónlistarhúsinu Hörpu niður við höfn?
Pældu í öllu jarðraskinu sem þetta tónlistarhús hefur haft í för með sér.
Og hvað með öll nýju og flottu? íbúðahverfin í útjöðrum Höfuðborgarsvæðisins. Er ekki verið að eyðileggja landið okkar með slíkum hverfum?
09.02 2010 kl.13:37
Slóð
“ómálefnaleg og í andstöðu við margra ára venju og góða stjórnsýsluhætti,”
hehe, þeir vilja að sjálfsögðu fá aftur gamla góða tíma spillingar og ógeðs frá valdatíma framsóknar og sjálfstæðisflokks.
09.02 2010 kl.13:42
Slóð
Við getum lifað á því að bíta gras, við þurfum ekki atvinnu, við þurfum ekki skóla, við þurfum ekki spítala og við þurfum ekki peninga enda kunnum við ekki að fara með þá.
Áfram Svandís ef þú heldur svona áfram get ég farið að búa í tjaldi þegar bankar VG og Samfylkingarinnar eru búnir að hirða af mér húsið.
09.02 2010 kl.13:51
Slóð
búhúhúúú...
09.02 2010 kl.13:57
Slóð
Gleymið bara álverunum og þessari pólitík. Þetta er allt að fara til andskotans anyhow. Bráðum kemur annað hrun og þá fattiði vonandi að þessi flokkapólitík er vegur sem leiðir aðeins til að þið sitjið í skítnum. Ef engin hefur tekið eftir því er alvarleg stjórnarkreppa í gangi en þið sitjið bara og vælið um eitthvað skítaálver og rafmagn sem við seljum á slikk.
09.02 2010 kl.14:00
Slóð
Öfgamenn og pólitísk gamalmenni stjórna Íslandi.
Þetta er það sem þjóðin vill.
09.02 2010 kl.14:12
Slóð
Það kom fram í máli forsvarskonu BHM að það væri allt vitlaust að gera í opinbera geiranum og enginn ástæða til uppsagna á þeim vetvangi en aftur á móti væri ekkert að gera í framleiðslugeiranum og því væri hið besta mál að 9 af hverjum 10 sem misst hafa vinnuna sé þaðan. ????? Þetta er sósíalismi andsk..ans held ég. ;-)
Það væri ákveðin áskorun í því að þeir sem eru að spjalla um þetta hér láti einnig fylgja með hverslags framfærslu þeir stunda og þá hjá ríki eða einkageira, það mætti kannski glöggva sig á umræðunni í framhaldinu.
09.02 2010 kl.14:52
Slóð
Þakka þér Svandís fyrir að standa með framtíð barnana og barnabarnana minna.
þvð verður kanski eithvað eftir af Íslandi þegar röðin kemur að þeim.
09.02 2010 kl.14:54
Slóð
Heyrði að einhver pirringur væri kominn út í Katrínu Júlíusdóttur, þ.e. að hún sem iðnaðarráðherra sé með alls konar yfirlýsingar um uppbyggingu en láti svo vaða svona yfir sig aftur og aftur - og aftur.
Þokkalegt samstarf - eða hitt þó heldur!
09.02 2010 kl.15:00
Slóð
Þið sem eruð meðmælt ákvörðun Svandísar, komið endilega með hugmyndir að lausnum í atvinnumálum sem geta orðið til þess að þessi ca. 17.000 manns sem eru atvinnulausir á Íslandi fái vinnu?
Þið hljótið að luma á einhverjum snilldarlausnum til að redda þessu? (Atvinnuleysisbæturnar kosta þjóðarbúið “bara” 2 mia.kr. á mánuði).
Annars held ég að þeir sem styðja ákvörðun Svandísar séu upp til hópa fólk sem skilur ekki hugtakið atvinnulíf, eða þá fólk sem hefur aldrei verið í reglulegri vinnu, heldur í einhverjum óskilgreindum verkefnum í verktöku hjá hinum opinbera.
09.02 2010 kl.15:02
Slóð
Sérhagsmunaklíkan SA er einn af stærstu aðilunum sem orsökuðu hrunið á íslandi.
Best af öllu er að taka ekki mark á neinu sem kemur úr þeirra munni.
09.02 2010 kl.15:22
Slóð
Konan er náttúrulega bara efnahagslegur hryðjuverkamaður sem er að vinna alvarlega gegn hagsmunum þjóðar sinnar.
Einhvertíma hefði slíkt nægt til afsagnar.
09.02 2010 kl.15:24
Slóð
snd.12.31
Það er búið að sýna framm á það með rökum að almenningur greiðir
um 30 % lægra raforkuverð heldur en almennt gerist í heiminum, einmitt vegna þessara stórnotenda sem álverin eru.
Ef Íslendingar ætla að búa við góð lífskjör í landinu, verða þeir að
nýta sér orkulindir sínar.
Svandís Svavarsdóttir er óhæfur umhverfisráðherra, er búin að stórskaða
lífskjör þjóðarinnar, ekki síður en Þórunn Sveinbjarnardóttir.
Að halda því fram að Gullfoss verði einhverntíma virkjaður, er bara heimska,
Það er svo margir kostir aðrir,sem eu tiltækir án verulegra umhverfispjalla
09.02 2010 kl.15:41
Slóð
Skrypill.14.52
Orkuverin munu halda áfram að mala gull fyrir barnabörnin og barnabarnabörnin þín um árhundruð, löngu eftir að álverum hefur ,
ef til verið lokað. Ef ekki verður virkjað, eiga afkomendur þínir ekki
mögleika á að búa á Íslandi. Eins og er getur Ísland ekkii framfleytt
300 þúsund manna þjóð. Það er ekki hægt að lifa á lánum, það verður
að framleiða vörur til útflutnings. Það lifir enginn á draumóra kjaftæði
úr Andra Snæ.
09.02 2010 kl.15:45
Slóð
Með því að hengja sig á smáatriði í Skipulags- og byggingalögum hefur umhverfisráðherra tekist að stöðva um óákveðin tíma allar framkvæmdir við virkjanir í neðri hluta Þjórsár.
Einhver hluti kjósenda VG fagnar í dag og horfir til Svanhvítar Svavarsdóttur sem frelsishetju. Frelsishetju sem er að takast að stöðva hin illu öfl sem vinna leynt og ljóst að því að eyðileggja náttúru Íslands.
Hinn hluti þjóðarinnar lítur á Svanhvíti Svavarsdóttur sem hryðjuverkamann sem með framgöngu sinni er að valda þjóðinni miklu tjóni.
Ég tilheyri síðari hópnum.
•Mér er algjörlega fyrirmunað að skilja að ráðherra í ríkistjórn Íslands skuli með öllum ráðum reyna að leggja stein í götu atvinnuuppbyggingar á Íslandi.
•Mér er algjörlega fyrirmunað að skilja þessa pólitík að sum starfsemi sem skapar hér störf og tekjur, þau störf eru velkomin en önnur störf, jafn vel ef ekki betur borguð, þau eigi að forðast eins og pestina.
•Mér er algjörlega fyrirmunað að skilja það fólk sem reynir með öllum ráðum að koma í veg fyrir það að þjóðin nýti náttúruauðlindir sínar.
Íslands óhamingju verður allt að vopni þessi misserin.
09.02 2010 kl.15:50
Slóð
Vinsti-grænir eiga heiður skilinn fyrir að standa í lappirnar í umhverfismálum EN það er ekki sama hver aðferðin er. Það væri heiðarlegra að blása af virkjun vegna þess að menn séu bara á móti virkjunum eða að ekki sé til fjármagn til framkvæmda frekar en að beita útúrsnúningum og jafnvel dylgjum gangvart sveitarstjórnarmönnum. Á sama hátt má segja að stjórnarandstaðan eigi heiður skilinn fyrir að standa í lappirnar í Icesave málinu EN málþófið var þeim samt til skammar.
Veröldin er ekki annað hvort svört eða hvít.
Höfum við fjármagn til að virkja? Er Landsvirkjun að beita landeigendur ofríki? Er efnahagskerfið ekki enn helsjúkt og því stórvarasamt að taka erlend lán í hvers nafni sem nú er? Eru virkjanir lausn vandans eða jafnvel að hluta orsök hanns? (sbr. ofþenslu vegna Kárahjnúka)
Ég held að Svandís Svavars sé margs góðs makleg en ég vona að VG séu ekki að herðast í þeirri einu hugsun að allt sé bannað sem ekki er leyft.
09.02 2010 kl.15:56
Slóð
Öglir
Samkvæmt þessari skoðun þinni er framtíðin hjá þér í neysluyggu sem skeytir lítið um afleiðingarnar sem eru oftast óhuggulegar til langs tíma litið.
Og líka óafturkræfar.
Skoðum vel hvað er gæfulegt og skynsamlegt.
09.02 2010 kl.16:20
Slóð
Þetta er SKANDALL
Burt með þessa konu og VG ef þau eru sífellt að koma í veg fyrir að fólk fái vinnu. Þið sem eruð á móti uppbyggingu þjóðfélagsins eru greinilega öll með vinnu og getið borgað af reikningum sínum. Það er ekki spurning um græðgisvæðingu heldur að geta komið með mat á borð fólks í landinu. Gerið þið ykkur grein fyrir því að það eru 16.000 manns atvinnulaust já 16.000 manns. Vaknið!!!! Ég er með eina hugmynd, segið upp ykkar vinnu fyrir þá sem vantar vinnu ef þið eruð ekki til í að byggja upp atvinnu fyrir aðra. Þið eigið að skammast ykkar
09.02 2010 kl.17:59
Slóð
Getur Svandís ekki stöðvað stækkun Actavis næst? Eru ekki einhver umhverfisspillandi efni notuð þar?
09.02 2010 kl.19:03
Slóð
http://gummiste.blogcentral.is/blog/
09.02 2010 kl.19:51
Slóð
@ Skítlegt eðli (skrýtið nafn)
Þetta blogg Guðmundar er mjög áhugaverður flötur. Það væri fengur að því að fá sjónarmið sveitarstjórnarmanna skýrt fram við embættisfærslu Svandísar. Skv lögum mun Svandís ríkja næstu 3 árin !!!!
10.02 2010 kl.01:28
Slóð
Svandí stöðvar virkjun neðri hluta Þjórsár
Ekki er að finna á Íslandi, og sennilega varla í heiminum, virkjanakost sem veldur minni umhverfisspjöllum.
Rökin eru haldlaus og greinilega fyrirsláttur.
Svo eina ályktunin er: Það eru engin mörk, það að leyfa náttúrunni að njóta vafans er alls ekki málið, það á bara ekki að leyfa neitt!
Kreppan heldur áfram að dýpka og engin viðspyrna finnst fyrr en SS og VG fara frá völdum, því miður.
10.02 2010 kl.06:23
Slóð
Haha, það sagði einhver hérna fyrir ofan að Svandís væri búin að minnka lífskjör Íslendinga. Sá froðuhaus heldur örugglega að um leið og það sé tekin ákvörðun um að byggja nýtt álver, þá komi vorið og Íslendingar verði dregnir upp úr kreppunni með þessu hálfa prósenti í viðbót af landsframleiðslu. Hverjir eru í raun búnir að minnka lífskjör Íslendinga? Hugsaðu aðeins út í það. Villtu þá aftur í stjórn?
Sannleikurinn er sá að hrunið á Íslandi á að hluta til rætur að rekja til álversuppbyggingar og virkjanaframkvæmda og þá er stærsti faktórinn náttúrulega Kárahnjúkavirkjun. Þetta er mat Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á hruni íslenska efnahagskerfisins.
Að líkja vatsaflsvirkjun sem drekkir tugum ferkílómetra af óspjölluðu landi við óperuhús í miðbænum er svo heimskulegt að ég ætla ekki að eyða fleiri orðum í að svara því.
10.02 2010 kl.08:55
Slóð
Vinna í álveri er dýrasta vinna sem ríkið getur skapað. Ríkið þarf að leggja til marga milljarða í bæði álversuppbyggingu og virkjanaframkvæmdir. Mér finnst ekkert skrítið að í þessu árferði sé sagt stopp við álver.
10.02 2010 kl.09:43
Slóð
Óskar Steinn, ríkið er ekki að fara í þessar framkvæmdir.
Það að halda því fram að ríkið sé að skapa störf í álverum með skattpeningum okkar sýnir bara hvað þú ert illa að þér í atvinnu- og efnahagsmálum eins og flestir sem eru í VG.
Eigendur álversins leggja til fé í það. Landsvirkjun byggir orkuverin og borgar byggingarkostnaðinn niður með tekjum af orkusölunni.
Kárahnjúkavirkjun og álverið á Reyðarfirði kostaði ekki krónu af skattfé landsmanna.
Þú ert greinilega svo mikil miðbæjarrotta að þú veist ekkert hvað þú ert að tala um.
Að byggja tónlistarhús við höfnina eyðileggur fallegt sjávarútsýni og veldur þar með sjónmengun og verulegum umhverfisspjöllum sem eru óafturkræf. T.d. mun bílaumferð aukast verulega og þar með loftmengun. Skolp og úrgangur frá tónlistarhúsinu er verður einnig gífurlegur. Ekki má heldur gleyma að þegar tónlistarhúsið er risið upp, veður mun sviptivindasamara í miðborg Reykjavíkur.
Og afhverju minnist þú svo ekki að öll umhverfisspjöllin í útjöðrum höfuðborgarsvæðisins þar sem náttúruperlur eru lagðar undir malbik og blokkaríbúðir. Getur þú útskýrt það fyrir mér?
Óskar Steinn, þú hefur ekki hundsvit á því hvað þú ert að segja maður. Þú hefur t.d. alveg örugglega aldrei komið til Austfjarða og hefur sennilega aldrei langað til þess. Austfirðir eru líka svo langt frá miðbæjarrottuholunni þinni að framkvæmdir þar hafa engin áhrif á daglegt líf þitt.
Svo segir þú að sannleikurinn sé sá að hrunið sé Kárahnjúkavirkuninni að kenna. En sannleikurinn er sá að tekin var ákvörðun um uppbyggingu þar þegar það var efnahagsleg lægð á Íslandi.
Álverið á Reyðarfirði skapar atvinnu og útflutningstekjur.
Bankarnir komu svo tveimur árum seinna og fokkuðu öllu upp með því að dæla inn peningum í alls kyns vitleysu eins og hlutabréfasukk og byggingu mio. villa og Range Rovera . All voru þetta peningar sem fengnir voru að láni.
10.02 2010 kl.11:48
Slóð
þetta er bara ein kerling er ekki hægt að láta hana hverfa ?
11.02 2010 kl.18:36
Slóð
Samtök atvinnulífsins eru fyrst og fremst áróðursdeild innan LÍ Ú mafíunnar eins og Morgunblaðið.
Af stjórnmálamönnum er Svandísi best treystandi til að vinna þetta mál faglega, kalla til fólk sem hefur menntun og þekkingu á þessu sviði.