Hin íðilfagra eiginkona Idol dómarans Ellen DeGeneres, Portia De Rossi, ætlar að opna sig um ástir og anorexíu í bók sem kemur út síðar á þessu ári.
Þar mun hún greina frá baráttu sinni við átröskunarsjúkdóminn anorexíu, en hún segir að enginn geti skilið hugsanagang anorexíusjúklings betur en annar anorexíusjúklingur.
“Ég mun segja frá og fjalla um öll leyndarmálin sem nánast gengu af mér dauðri,” segir Rossi sem heitir réttu nafni Mandy Rogers.
“Ég misbauð líkama mínum. Var með búlimíu og notaði megrunarlyf af ýmsum gerðum. Mig langar að fjalla um þetta allt og auðvitað kemst ég ekki hjá því án þess að koma inn á kynhneigðina.”
Í viðtali við (tímarit samkynhneigðra) The Advocate greinir hún líka frá ástinni sem hún fann í sambandinu við DeGeneres en þær giftu sig í hittifyrra.
“Hamingjan er valkostur,” segir De Rossi. “Þú getur valið að þakka stöðugt fyrir það sem þú hefur í lífinu og laga það sem gerir þig óhamingjusama.”
“Mér finnst mikilvægt að sýna heilindi gagnvart því sem maður er og ef þú ert í góðu hjónabandi og gengur vel í lífinu þá skiptir máli að segja fólki frá þessu og hvernig þú ferð að. Ég segi konunni minni frá öllu, öllu óöryggi mínu og áhyggjum og eftir smá tíma þá líður mér alltaf betur. Við hjálpum líka hver annari. Ég held athygli hennar á því sem skiptir máli og heildarmyndinni. Ég held að þetta geri góð pör fyrir hvort annað,” segir þessi fagra samkynhneigða leikkona.
Þín skoðun
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.