Innlent - þriðjudagur - 9.2 2010 - 13:05

Ekki aftur snúið. Bréf rannsóknar- nefndar Alþingis farin af stað. Tíu daga andmælaréttur

rannsoknarnefndin.jpgStaðfest hefur verið að bréf rannsóknarnefndar Alþingis til einstaklinga sem taldir eru bera ábyrgð í bankahruninu haustið 2008 séu farin af stað. Þeir sem slík bréf fá hafa tíu daga frest til að andmæla því sem um þá er sagt í væntanlegri skýrslu rannsóknarnefndarinnar.

Ætla verður að þetta þýði að auknar líkur séu á því að rannsóknarskýrslan verði tilbúin til birtingar fyrir mánaðarlok.

Ekki fæst uppgefið hve margir fá bréf með andmælarétti frá rannsóknarnefndinni. Talið er að meðal þeirra sem slík bréf fái séu fyrrverandi ráðherrar, hugsanlega einnig einhverjir núverandi ráðherrar, og fyrrverandi stjórnendur í Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu.

47 ummæli

Rita ummæli

Bodda
09.02 2010 kl.13:11

Yabba dabba dooo

Gunnar Ársæll
09.02 2010 kl.13:12

Skýrslunni var frestað vegna þess að í upplýsingum frá
Lífeyrissjóðum landsins kom fram að sjóðirnir eru tómir.
TÓMIR.
Þetta eru gegnum streymissjóðir.

Seiken
09.02 2010 kl.13:14

Er þetta ágsikun Gunnar Ársæll eða býr vitneskja að baki?

ZATARRA
09.02 2010 kl.13:18

@ Gunnar Ársæll kl.13:12

Hvað hefurðu fyrir þér í þessari fullyrðingu... Ekki það að ég sé neitt að efast um sannleiksgildi fullyrðingarinnar,, en svona þarf að rökstyðja..

Jónas Bjarnason efnaverkfræðingur
09.02 2010 kl.13:25

Svo koma kannski læknisvottorð um að herra stórþjófur hafi verið veikur. Er unnt að birta skýrsluna án þess að sá maður fái að tjá sig? Er nefndin framleiðandi ákæruskjala? Þessi aðgerð er vond. Skýrslan er væntanlega búrin að vera til skoðunar hjá hinum og þessum og þá aðallega einhverjum í þinginu, því það var þingið sem bað um hana. Og þingið borgar fyrir hana og það getur gefið ranga mynd af þinginu sjálfu og hlutverki þess í hruninu.

ZATARRA
09.02 2010 kl.13:33

Jónas Bjarnason

Það er veittur “10 daga” andmælaréttur, það þíðir að menn hafa 10 daga.. Ef það dugir þeim ekki, eða þeir svaar ekki innan þess tíma. þá er það bara þeirra mál.. Og hver annar en þingið átti ða biðja um þessa skýrslu,, og greiða fyrir hana ?

Páll
09.02 2010 kl.13:35

Ég treysti Sigríði best af þessum nefndarmönnum sem sjá um skýrslugerðina, Páli og Tryggva treysti ég síður, ekki vegna rökstudds gruns, bara af tilfinningunni einni.

En hinsvegar má fólk ekki gleyma því að þarna er verið að vinna skýrslu sem gæti endað í 2.000 bls., og það er afar mikilvægt að vanda til þessa verks. Út frá því sjónarmiði skil ég vel að þetta hafi dregist. Þeir sem hafa einhverntímann skrifað þó ekki væri nema heimildaritgerð, eða annarskonar ritverk, vita að þetta er ekki hrist fram úr erminni, sérstaklega ekki ef það á að skila góðu verki.

Ekki viljum við að nefndin taki Hannes Hólmstein á þetta :)

Sigurður Th.
09.02 2010 kl.13:37

Ef þetta er rétt hjá Gunnari Ársæli, þá fer nú að fara um mann. Á sama tíma
eru þeir að stofna einhvern fratíðarsjóð lífeyrissjóða og setja í hann 30-40 miljarða, til að reka meðal annars “tuskubúðir Haga” Nú er ég hættur að skilja hlutina.

Þorsteinn Úlfar Björnsson
09.02 2010 kl.13:39

Nei, við viljum ekki taka HHG á þetta. En kannski „Maybe I should have?“

P. Bergmann
09.02 2010 kl.13:42

Nú er allt að gerast.

Hjördís Vilhjálms
09.02 2010 kl.13:47

Er einhver trygging fyrir því að þeir svari innan 10 daga, þeir sem vilja andmæla einhverju ?

Verða veittir frestir , frestir og frestir til þess ?

veffari
09.02 2010 kl.13:47

Titringur.

Kristinn
09.02 2010 kl.13:47

Það er þrálátur orðrómur um að rauneignir lífeyrissjóðana séu mjög litlar. Þær hirslur hafa verið tæmdar nánast eins og allt annað í þessu þjóðfélagi. En það er víst nóg af i owe ues there. Verðlausir papírssnepplar með tölum á sem engar eignir eru á bakvið heldur bara gjaldþrota fyrirtæki ..

SP
09.02 2010 kl.13:50

Dramatískt!!! EKKI AFTUR SNÚIÐ. Var það kannski ætlunin?

Örn
09.02 2010 kl.13:53

Allt það sem við kom einkavæðingu bankanna er fyrnt.
Brot sem voru framin fyrir 28. desember 2006 eru fyrnd.
Tilhvers er verið að gera þessa skýrslu?

Gunnar Ársæll
09.02 2010 kl.13:53

Kynnið ykkur eignir í séreignasparnaðarsjóðunum.
Þar eru gjaldþrota Group þetta og hitt.
Félög í Lúx sem engin veit neitt um og síðast og ekki síst Exista.
Allt fært enn til eigna.
Skora á fólk að skoða listana yfir sjóðina.
Ef fólki býðst að láta færa yfir í verðtryggt á þessu verðmati er verið að
gefa því pening svo maður fari nú ekki út í verðtrygginguna.

Öglir
09.02 2010 kl.13:56

Ekki hefði skaðað að Hannes Hólmsteinn Gissurarson hefði tekið þátt
í skýrslugerðinni. Hann er mjög ritfær og ekki skortir hann greindina.
Enda fer hann í taugarnar á sumum hérna. Og það held ég.

Guðfinna H. Kristinsdóttir
09.02 2010 kl.13:56

Það má ekki gerast að skýrslan koma ekki út um mánaðarmótin. Ég vona að menn átti sig á því.

Auðvitað lýkur þessu verkefni ekki aldrei. Nefndin verður bara að bera gæfu til að lista upp mál sem ekki náðist að skoða, en þurfa skoðun. Við verðum að sætta okkur við eitthvað slíkt, en nú er mál að linni.

Hvað gerist ef lífeyrissjóðirnir eru ónýtir, eins og gefið er í skyn hér á síðunni? Það verður ekki fallegt.

ÆÆ
09.02 2010 kl.13:58

Hvað segirðu Gunnar Ársæll. Nú fyrst trompast Jónas.

Árni Matt
09.02 2010 kl.14:10

Fokk, fokk, fokk, fokk, fokk, fokk, fokk, fokk, fokk, fokk, ...

Hjördís Vilhjálms
09.02 2010 kl.14:13

@Gunnar Ársæll
09.02 2010 kl.13:53

,,Ef fólki býðst að láta færa yfir í verðtryggt á þessu verðmati er verið að
gefa því pening svo maður fari nú ekki út í verðtrygginguna.”

Skil ekki ?

Ertu til í að útskýra ?

Annars tel ég að skýrlsunni verði frestað aftur, þókninst mönnum það. Yfirvöld eru ekki hrædd við fólk sem bloggar og tuðar sig til blóðs.

Mætingin á Austurvelli á Laugardögum segir manni það að flestir eru afar sáttir við stöðu mála, eða nenna ekki að hafa fyrir því að berjast fyrir breytingum, eða hafa gefist upp ?

Það eina sem fólk þarf að leggja á sig eru 30 mínútur á Austurvelli; 30 mínútur, en þorri landmanna kýs að verja þeim tíma í annað mikilvægara, því miður.

Þessi mæting skelfir ráðamenn ekki neitt og þeim er alveg sama um hverja nöldurtíðnina af annarri, þeir vita að þær ganga yfir, hver af annarri.

Þó að við höfum orðið vitni af ýmsu sem útvaldir í klíkunni hafa fengið og fá enn á silfurfati, þá mun almenningur aldrei fá neitt á sömu fötum, aldrei. Við þurfum að berjast fyrir hverjum einasta brauðmola sem hrynur af borðinu, hverjum einum og einasta.

Hannes frjálshyggjuprófessor
09.02 2010 kl.14:14

Það er víst kominn póstur til mín, segir húsvörðurinn.

Ég þori ekki að opna hann...

Ég var náttúrulega í miðri hringiðu frjálshyggjuveislunnar.

Seiken
09.02 2010 kl.14:16

Ég dreg svo sem ekki í efa að staða lífeyrissjóðanna sé verri en af er látið.

En það er spurning hversu mikið af þessu er komið fram nú þegar. Þeir viðurkenndu nýlega að þeir hafi tapað 300 milljörðum að nafnvirði. Það er þá væntanlega á sama tímabili og við höfum haft 20% verðbólgu. Verðtryggðir pappírar sjóðanna hafa þá hækkað mikið á því tímabili en sjóðirnir munu vera meðal stærstu eigenda veðtryggðra skuldbindinga í hagkerfinu. Á umræddu tímabili (frá hruni) hafa erlendar eignir sjóðanna tvöfaldast að því að manni hefur skilist.

Þegar þetta er haft í huga, þ.e.jákvæð áhrif af gengisfalli á erlendar eignir sjóðanna í krónum talið og jákvæð áhrif verðtryggingar í verðbólguskoti, þá verður það að teljast með ólíkindum að þeir hafi tapað 300 milljörðum að nafnvirði. Heildartap af öðrum fjárfestingum liggur þá einhvers staðar á bilinu 700-1000 milljarðar.

Sjáum hvað skýrslan segir. En það þarf kannski enginn að vera hissa á því að sjóðirnir leggist gegn því að iðgjöld verði skattlögð við inngreiðslu. Það liggur í augum uppi að þeir ætla að nota iðgjöld næstu ára til þess að vinna upp tapið.

Sanngjarn
09.02 2010 kl.14:16

Eignir lífeyrissjóðanna eru annars vegar verðlaus skuldabréf fyrirtækja og sveitarfélaga og hins vegar veðlán til gjaldþrota fasteignaeigenda. Allt í boði einkavæðingar Davíðs Oddsonar og Halldórs Ásgrímssonar. En sök þeirra er fyrnd, þ.a. ábyrgðin verður lögð á minni spámenn.

Sigurður Th.
09.02 2010 kl.14:41

Bréf til fyrrum seðlabankastjóra, og fyrrum forstjóra og stjórformanns Fjármáleftirlitsins, og fyrrum viðskiptamálaráðherra V.S: hlóta að hafa verið
efst í búnkanum.

M
09.02 2010 kl.15:01

Framhaldið verður fróðlegt.

Ég skora á fólk að kynna sér viðbótarlífeyrissparnaðinn sinn og við eigum að krefjast þess að fá að ráða hvernig við ávöxtum hann. Það er glapræði að spara í þessa hít - sérstaklega unga fólkið. Það greiðir í viðbótarlífeyrissjóð sem verður fyrir lifandis lifandis löngu úið að ræna og tæma áður en það kemur á eftirlaunaaldur.

Með því að setja peninga í viðbótarlífeyrisparnað er BARA verið að skaffa þessu fólki mánaðalega innlegg til að sóa og spila með.

Guðfinna H. Kristinsdóttir
09.02 2010 kl.15:03

Hjördís Vilhjálms
09.02 2010 kl.14:13

Ég er ekki alveg jafn svartsýn og þú. Ég er hrædd um að þegar þolinmæði almennings bresti í annað sinn, þá verði það miklu verra en í Búsáhaldabyltingunni. Margt segir mér að svo gæti orðið.

Hnefi
09.02 2010 kl.15:13

Mig hlakkar svo til.... öngva potta né pönnur í næstu mótmælaöldu, barefli keðjur og sitthvað smálegt sem helst vel í hendi.

Hjördís Vilhjálms
09.02 2010 kl.15:16

@Guðfinna

Finnst þér það virkilega vera svartsýni að tala um að fáir mæta á Austurvöll ?

Ég hef verið þar flesta alla laugardaga , eftir að fundirnir byrjuðu aftur og sé sjálf hversu fáir mæta, líka þegar veðrið er gott til að fá sér smá ferskt loft í lungun og sýna samstöðu og þakklæti um leið til þeirra sem nenna að standa að fundunum.

Það hafa verið svo óteljandi mörg mál , þar sem komment á borð við það að nú sé mælirinn fullur, hingað og ekki lengra , nú verður allt vitlaust, þetta mun fólk ekki sætta sig við, en það eina sem gerist er að fólk tuðar og bloggar hér á netinu, og líka ég.

Annars er einnig smá svartur húmor í þessu hjá mér, má til og vona að það ýti við fólki að drífa sig á útifundina, á eigin foresendum, sé fólk ekki alveg sammála því sem þar fer fram, en það skiptir ekki máli í sjálfu sér, það þarf fjöldann.

Svo mæli ég með því, til þeirra sem eru svo duglegir að mæta með skilti með sér, aðhafa þau bæði á íslensku og ensku, því oft eru þarna blaða-og fréttamenn frá útlöndum og það virðist vera að eina von okkar sé að ná athygli út fyrir landsteinana. Ef það birtast myndir héðan frá útifundum, þá er von um að almenningur í útlöndum fái að vita um meðferð yfirvalda á almenningi, í landi það sem tugþúsundmilljarðar hafa verið afskrifaðir en ekki er komið til móts við stökkbreytt lán almennings.

Um daginn kom fram tillaga um að krefjast ætti þess að hingað kæmu engin lán, fyrr en búið væri að leiðrétta lánin. Sú tillaga þykir mér vel þess verð að íhuga.

Sýnum samtöðu og mætum öll á alla útifundi !

Gunnr
09.02 2010 kl.15:18

Klárlega er beðið eftir þessari skýrslu og niðurstaða hennar mun verða umdeild á hvern vegin sem hún verður kynnt. Hún verður umfangsmikil og hugsanlega verður hún lesin með mism. gleraugum eins og ritningin sjálf og túlkun atburða verður samkvæmt því.
Annars er það í raun óframkvæmanlegt að búa til tæmandi upplýsingar og sannleik um þetta hörmungarmál allt.

Það er klárlega að staða endurreystu bankanna er slæm eins er staða lífeyrissjóðanna slæm og miklu verri en búið er að tilkynna enda er ekki búið að afskrifa mikið af lánum sem aldrei kemur til með að innheimtast og það mun lækka lífeyrisgreiðslur.
Hvernig eigum við að halda í ungt og vel menntað fólk á Íslandi þegar við blasir ótrúlegur niðurskurður/uppskurður á hinu opinbera og þar sleppur ekki heilbrigðis og skólakerfið, gríðarlegar skattbyrðar á komandi áratugum og mörg erfið ár og síðan bætist við að þetta fólk þarf að borga í lífeyrissjóðahítina og til viðbótar því fjárfesta í gríðarlega ofmetnu húsnæði á ofurlánum. Ef við getum ekki boðið sambærileg lífskjör og í öðrum löndum mun fólk fara og er að fara.

Gunnr
09.02 2010 kl.15:25

@Hjördís
Það er því miður ekki svo mikið sem ríkisstjórnin getur gert.
Fólk getur barið á búsáhöld og fengið nýjar kosningar en ástandið mun bara versna.
Ríkið rekið með halla sem tilsvarar meira en 1 1/2 Icesave skuldbindindingu bara á þessu ári og greiðsluþrot blasir við. Krónan er minna virði en gjaldmiðill Disneylands, hagkerfið er ennþá að dragast saman og verðmæti útflutnings dróst saman um meira en 1/5 og stærð hagkerfisis stefnir í að verða minna en 3% af stærð hagkerfis Noregs en var metið yfir 15% þegar best lét. Þetta klárlega bitnar á lífskjörum almennings svo um munar.
Glórulaus lánataka, eyðsla og bruðl. Íslensk viðskiptasnilld sem virkar bara á Íslandi. Innihaldslaus loforð og froðusnakk stjórnmálamanna sem margir vilja vel en í raun geta ekki hjálpað einum eða neinum nema kanski örfáum.

joi
09.02 2010 kl.15:30

Veit Össur eitthvað? Hann þurfti amk að selja stofnbréfin sín í SPROn til að eiga lífeyrissjóð að sögn. Veit hann eh um lífeyrissjóðina sem við hin vitum ekki? Kallinn er naskur. Hann virtist vita í hvað stefndi með SPRON og seldi á “hárréttum” tíma. Hann segist nota hagnað í lífeyrissjóð, er hann þá ekki að segja að þar sé ekkert að hafa?

Guðfinna H. Kristinsdóttir
09.02 2010 kl.15:47

Hjördís Vilhjálms
09.02 2010 kl.15:16

Ég tek ofan fyrir dugnaðinum hjá þér að mæta á hverjum laugardegi. Ég er ekki svona dugleg. Svo er ég sammála hverju einasta orðið sem þú skrifar.

Varðandi svartsýnina, þá fannst mér ég finna fyrir vott af henni í skrifum þínum. Kannski var það bara ekki rétt hjá mér. Það sem ég óttast er að það sé að safnast upp mjög neikvætt afl sem brjótist út þegar Nefndin skilar skýrslunni sinni. Á meðan beðið er eftir skýrslunni er Þjóðin bombarderuð eru að fá allt upp í hendurnar aftur eftir að hafa sólundað æru og verðumætum Þjóðarinnar. Allt þetta er gert með stuðningi frá ríkisstjórn og Alþingi. Svo fáum við reininginn.

Ef fer sem horfir, sem ég vona að ekki verði, þá breytist friðsamast fólk í eitthvað sem ráðamenna hafa ekki séð áður.

Guðfinna H. Kristinsdóttir
09.02 2010 kl.15:55

smá lagfæring ... ég var trufluð í miðjum skrifum :-)

Varðandi svartsýnina, þá fannst mér ég finna fyrir vott af henni í skrifum þínum. Kannski var það bara ekki rétt hjá mér. Það sem ég óttast er að það sé að safnast upp mjög neikvætt afl sem brjótist út þegar Nefndin skilar skýrslunni sinni. Á meðan beðið er eftir skýrslunni er Þjóðin bombarderuð af Hrunverjum sem eru að fá allt upp í hendurnar aftur eftir að hafa sólundað æru og verðumætum Þjóðarinnar. Allt þetta er gert með stuðningi frá ríkisstjórn og Alþingi. Svo fáum við reininginn.

Erla Halldórs
09.02 2010 kl.16:02

Hjördís Vilhjálms
09.02 2010 kl.14:13
Varðandi mætingu á Austurvöllinn: það þarf að finna aðra leið til að þjappa fólki saman. Þarna standa X-D og X-F, sem vilja bara fella ríkisstjórnina, við hliðina á raunverulegum andstæðingum spillingar.

eyjolfur
09.02 2010 kl.16:11

erlendar eignir lífeyrissjóðanna eru verðlausir pappírar

Málmundur
09.02 2010 kl.16:17

Gleymum því aldrei hverjir bera ábyrgð á hvernig komið er fyrir Íslandi í dag. XD og XB og XS

Og gleymum því ekki áður en þetta ár er liðið að hreinsa út spillinguna á alþingi. Við höfum gert það einu sinni og við getum alveg gert það aftur.

Þorgerður Katrín, Bjarni Ben, Tryggvi Þór, Ásbjörn (ég vissi ekki gaurinn) og fleiri þeirra líkir.
Þetta fólk er tengt milljarða afskriftum og vafasömum viðskiptum og eiga að segja af sér.

Stjórnmála fólk á ekki að hafa rétt til að stunda milljarða viðskipti og setja lög um það sjálft þannig að það þjóni hagsmunum þeirra og vinum og vandamönnum.

Spillingin á alþingi íslendinga er alltof mikil og þetta þarf að laga.

Upp með skiltin og niður á austurvöll á Laugardag.

LIFI BYLTINGIN

ingi
09.02 2010 kl.16:55

Klárt mál að ekki eru öll kurl komin til grafar með eignir lífeyrissjóðanna.

Hef ekki orðið heldur var við mikla uppstokkun hjá þeim. Eru ekki sömu aðilar að stýra sjóðum þeirra?

Guðrún
09.02 2010 kl.17:05

Erla Halldórs ! xD og xB eru farnir enda icesave á leið í nýjan samning.
Spái að þú hafir ekki mætt á Austurvöll í marga mánuði. Þessi gagnslausa ríkissstjórn sem við þó kusum þarf aðhald og það er ekki gert öðru vísi en að mótmæla. Ég mótmæli en vil ekki xD eða XB

Foreign depositor
09.02 2010 kl.17:10

Fá allir þeir sem fengu sér flatskjá nú bréf?

Gunnar Ársæll
09.02 2010 kl.17:13

Hvet fólk til að skoða eignasamsetningu séreignarsjóða.

Dæmi um sjóð Frjálsi 1 Kaupthing(gjaldþrota) nú Arion.

Erlend eign. Skoðum málið. Nokkur dæmi.
Kaupthing Scandinavian Fund Kaupthing er GALDÞROTA.
Kaupthing Fund Global Value Kaupthing er GALDÞROTA.
Kaupthing Manager Selection - BRIC Fund EUR Kaupthing er GALDÞROTA.

Innlent. Nokkur dæmi.
Hagar hf. Skulda 50 milljarða (Kannski hægt að færa það sem eign.)
Skuldabréf gefin út af Argentínska ríkinu
Byr sparisjóður HA HA
Síminn hf. (Exista)
Höfuðstólstryggð skuldabréf
Skuldabréf sveitafélaga (við vitum stöðu þeirra)
Veðlán til sjóðfélaga (Hve margir þeirra eru í greiðsluerfiðleikum?)

Annað. Haldið í vonina.
GIR Capital Management
* Sjóðurinn er skráður á Cayman eyjum (Skattaparadís)
* Vörlsluaðili er Kaupthing Bank, Luxemburg Kaupthing er GALDÞROTA.
Meira GRÍN (Kaupthing er GALDÞROTA.)
Kaupthing FX 0,3%
Fagfjárfestasjóður CDO 1 0,2%
Kaupthing Fixed Income - Series 1 0,2%
Kaupthing Fixed Income 0,2%
Kaupthing FX - Series 2 0,1%
Kaupthing Capital Partners II Fund 0,1%
Kaupthing IS5

Gjaldmiðlasamningar -1,2% Hvað tap á Gjaldmiðlaskiptasamningum
hver ráðlagði þann gjaldmiðlaskiptasamning.

http://frjalsilif.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=776

Látið ykkur dreyma um að það séu margar krónur til í séreignarsparnaðinum.

Sigurður #1
09.02 2010 kl.17:15

Eftir 10 daga koma andmælabréfin frá hrunverjum.

Verður þar látið sitja, eða gefa andmælin tilefni til frekari rannsókna?

Nefndin hefur þá 10 daga eftir að andmælin berast til að kanna nýjar upplýsingar, eða staðreyna andmæli.

Þetta eru ástæðurnar sem verða gefnar fyrir næstu frestun.

Það er verið að skoða andmælin, 10 dagar dugðu ekki til.

Sigurður #1
09.02 2010 kl.17:19

Lífeyrissjóðirnir hafa líst því yfir að þeir séu að nálgast sömu eignastöðu í íslenskum krónum og fyrir hrun.

Það þýðir á mannamáli að eignir hafi rýrnað um amk 70-80%.

Erlendar eignir hafa tvöfaldast í verði, sem skýrir að ca 50% af tapinu sést ekki þegar það er búið að umreikna það yfir í krónur.

Innlendar eignir í verðlausum skuldabréfum og hlutabréfum í gjaldþrota fyrirtækjum eins og Stoðum ofl eru svo faldar í nauðasamningum svo ekki komi til afskrifta strax.

Það er nokkuð öruggt að tap lífeyrissjóðanna er ekki undir 60-70% af eigin fé.

Seiken
09.02 2010 kl.18:49

Snilld Foreign depositor @17:10.

Stína
09.02 2010 kl.20:31

FJALLIÐ TÓK JÓÐSÓTT OG FÆDDI MÚS!!!!!!!

Hansi
09.02 2010 kl.23:06

Hér fer allt í bál og brand og Íslendingar koma skríðandi á hnjánum, með skít upp á bak, til Norðmanna og biðja um aðstoð við að skeina sig..
Held að ef að Norðmenn fengju að stjórna Íslandi, yrði fyrsta verk þeirra að urða Alþingishúsið og malbika yfir Valhöll.
Við það myndu 2 æxli af verstu sort hverfa af þjóðinni og hún yrði frjáls maður innan innan Noregs, í stað skuldaþræls i forarpytti spillinga og græðgi.

Vestri
10.02 2010 kl.00:43

ÉG held það sé best að koma sér úr landi og aldrei snúa aftur. Þetta er búið. Suður Ameríka (Chile) eða Noregur hljóma best.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar