Jamie Lynn Spears er hætt með barnsföður sínum og unnusta til tveggja ára, Casey Aldridge, og hefur tekið af sér hringinn.

Jamie Lynn ber ei lengur trúlofunarhringinn sem Aldridge gaf henni, demant metin á rúma eina milljón -og nú ætlar hún að ala eins og hálfs árs gamla dóttur þeirra, Maddie, upp án barnsföðurins.
Slúðurblöðin vestra hafa reyndar bendlað hana við mann sem er 10 árum eldri en hún en það er viðskiptasérfræðingur nokkur sem ku vera ansi loðin um lófana.
Jamie Lynn og Casey trúlofuðu sig í mars árið 2008, skömmu eftir að þau sögðu frá því að nú væri von á barni. Þá var Jamie Lynn aðeins 16 ára og Maddie fæddist í júní það ár.
Samband krakkanna hefur hinsvegar ekki verið eintóm sæla og heldur stormasamt.
Þau hafa margoft hætt og byrjað saman en Jamie hefur ekki tekið hringinn af sér áður. Það mun til merkis um að nú sé henni alvara og að sambandi hennar við barnsföður sinn sé lokið.
Þín skoðun
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.