Ef Icesave-skuldbindingarnar verða of háar er hætta á að skuldir Íslands verði of háar og leiði til þjóðargjaldþrots. Af þeim sökum er það hagur Breta og Hollendinga að sætta sig við hófsamar kröfur í garð Íslendinga, án þess að tefla íslensku efnahagslífi í tvísýnu. Það væri því sanngjörn leið í Icesave-deilunni að bíða með skuldbindingar á hendur Íslendingum þar til að gamli Landsbankinn hefur endanlega verið gerður upp.
Þetta segir Jón Daníelsson, hagfræðingur hjá London School of Economics, í grein sinni í Financial Times í dag.
Jón rekur Icesave-deiluna stuttlega og bendir á að þótt forseti Íslands hafi vísað síðustu lögum um Icesave til þjóðarinar þýði það ekki að Íslendingar hafi neitað að standa við skuldbindingar sínar. Þvert á móti hafi það þegar verið ákveðið, en skilmálarnir þyki einfaldlega alltof harðir í garð Íslendinga.
Jón segir að upphaflegir Icesave-samningar hafi verið Bretum og Hollendingum sérstaklega hagstæðir. Þar hafi þrautþjálfaðir samningamenn stóru ríkjanna náð fram öllum sínum markmiðum gegn pólitískri og óreyndri samninganefnd Íslands. Niðurstaðan hafi verið svipuð og ef fótboltalið á Íslandi myndi keppa við Manchester United.
ESB- og AGS-vopnin bíta ekki lengur
Jón spáir því að íslenska þjóðin muni hafna nýjasta samkomulaginu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Við svo búið muni líf ríkisstjórnar Íslands vera teflt í tvísýnu og í framhaldinu verði kosningar í Hollandi og Bretlandi, sem leiði til mikillar óvissu um hvort hægt verði að komast að nýju samkomulagi.
Þá nefnir Jón að helstu vopn Breta og Hollendinga til þessa kunni að verða að engu á næstunni. Þannig hafi þeir bæði hótað að beita áhrifum sínum gegn ESB-aðild Íslands og hafi markvisst unnið gegn lánafyrirgreiðslu úr Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Hvorugt atriðið skiptir máli lengur, að mati Jóns, því nú þegar sé mikil andstaða við aðild að Evrópusambandinu og þá sé óvíst hvort þörf sé á frekari lánum frá AGS.
Jón rekur að Icesave skuldbinding sé ekki stór í alþjóðlegu samhengi, en fyrir Íslendinga sé um verulega fjármuni að ræða, eða um fjórar milljónir á hverja fjölskyldu. Jafngildi það Hann efast um að Bretar og Hollendingar hefðu tekið í mál að greiða aðra eins fjárhæð.
Þá segir hann vaxtagreiðslurnar óverjarndi. Reikna megi með Ísland þurfi að greiða jafngildi 500 milljarða króna vegna Icesave, þar af verði vextir nálægt 400 milljörðum.
Jón segir svo í niðustöðu sinni að Ísland sé nú þegar eitt skuldugasta ríki heims. Ekki sé verjandi að leggja of miklar byrðar á landið við núverandi aðstæður, það geti leitt af sér þjóðargjaldþrot með þeim afleiðingum að allir tapi - líka Bretar og Hollendingar.
Bretland og Holland verði því að láta af kröfum sínum. Eðlilegast sé að bíða með uppgjörið þar til að Landsbankinn hefur endanlega gerður upp.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
33 ummæli
Rita ummæli09.02 2010 kl.15:28
Slóð
Þessu hundur er ekkert annað en lýðskrumandi FRAMSÓKNARHUNDUR sem ætti að skammast sín.
09.02 2010 kl.15:31
Slóð
Gott framtak hjá Jóni - Það að þetta sé birt í Financial Times sýnir verðleikann á þessum skoðunum
09.02 2010 kl.15:32
Slóð
Þakkaðu fyrir að það séu menn eins og Jón Daníelsson sem bera hagsmuni landsins fyrir brjósti. Hann er ekki að verja ráðherrastólinn sinn eða umsóknina til EB.
09.02 2010 kl.15:35
Slóð
Gott að fá þetta í erlenda miðla. Það er ekki nóg að ræða hlutina í kaffitímanum.
09.02 2010 kl.15:43
Slóð
Er hann með Gin flösku þarna fyrir framan sig ??
09.02 2010 kl.15:45
Slóð
Barátta Indefence og synjun forsetans í kjölfarið er að skila miklum árangri. Talsmenn ríkisstjórnarinnar hér hafa nánast verið í hinu liðinu og það kann ekki góðri lukku að stýra í alþjóðadeilu. óskilnlegt raunar., Þjóðstjórn þurfum við og svo erlenda sérfræðinga í nýja samninganefnd. - Góð grein hjá Jóni.
09.02 2010 kl.15:49
Slóð
400 miljarða í vexti? afhverju reiknar hann alltaf með því að það verði aldrei borgað neitt inn á höfuðstólinn og vextir verði eins háir og mögulegt er..
sama þótt þetta væri rétt hjá honum, þá hef ég ekkert heyrt um land sem fór á hausinn útaf skuld upp á 30% af GDP.. þetta heldur ekki vatni hjá honum, hann ætti kannski frekar að útskýra fyrir okkur afhvejru hann sér um að rukka fyrir þessar 25 miljónir sem þarf að borga útaf því að stjórnarandstaðan vildi fá einhverja miðlungs lögfræðistöfuálit í Icesave málinu.
09.02 2010 kl.15:50
Slóð
Etv óþarfi að segja frá því að ESB útilokun er enginn “hótunn”. Það er svo þægilget að láta hóta sér með einhverju sem ekki skiptir máli. Við vitum öll að Ísland er alls ekki líklegt til að fara þangað inn næstu áratugina.
Bændur voru nú rétt í þessu að benda á þá staðreynd að “styrkjakerfi” ESB er ekki upp á marga fiska.
Enda væri ótrúlegt að þeir hefðu mikinn pening afgangs í styrki til ríkja eins og Íslands þar sem sukk og svindl með landbúnaðarstyrkina í suður-evrópu er gríðarlegur.
Ísland yrði látinn greiða sinn skerf í þeirri vitleysu ef ESB læsir klónum í okkur.
09.02 2010 kl.15:51
Slóð
Bretar geta ekki tekið dóm og lög í sínar eigin hendur og bara kastað þessu í okkur.
Ásetningur þeirra er ekki góður og lögin eru ekki heldur þeim í vil hvað sem aðrir vilja segja um það.
Ríkið tekur ekki valdið af þjóðinni um kostningaréttinn það er búið að setja valdið til þjóðarinnar.
Burt með IMF, þeir munu sýna sitt rétta andlit þótt síðar verði ef við skuldbindum okkur þeirri stofnun sem er þeirra verkfæri.
Þeir skapa þetta heimsástand og nota IMF og Worldbankan til að sópa auðinum úr heimslöndunum í kring, sem sitja skuldugari sem aldrei fyrr.
Þetta er ekkert annað enn hriðjuverk í allt annari mynd enn við þekkjum það.
Nú er tími til að vera upplýstur og læra að þekkja óvininn í okkar eiginn alþjóðarsamfélagi.
09.02 2010 kl.15:53
Slóð
Þetta er ekki skuld skattgreiðenda á Íslandi, þeir eiga að snúa sér að
gamla Landsbankanum bankastjórum og öðrum stjórnarmönnum gamla
Landsbankans.
09.02 2010 kl.15:56
Slóð
Þetta er að ég held... besta málamiðlun sem komið hefur fram...
Að bíða með kröfur þar til að Landsbankinn hefur verið gerður upp...
klapp klapp
09.02 2010 kl.16:01
Slóð
Við tökum þá - eins og kerlingin sagði
09.02 2010 kl.16:02
Slóð
Ósköp er þetta orðið þreytt umræða hér í Athugasemdunum. Minni á að síðasta “afrek” Jóns var að hafa milligöngu um að rukka inn fyrir lögfræðistofu sem er að rukka Alþingi um skuld sem leggur sig á tímakaup upp á 100. þúsund.
Svo minni ég menn á að það eru nýja samningaviðræður að fara af stað! Svo menn geta hætt að rífast um eitthvað sem var!
Og svo væri gaman að einhver sem er í hagfræðinámi eða viðskitafræðinámmi tæki sig til og gerði lokaverkefni sem áætlaði hvað Icesave deilan er búin að kosta okkur. M.t.t. seinkana á allri endurreisn, skertra kjara okkar næstu árin. Bæði fyrir ríkið og almenna markaðinn
09.02 2010 kl.16:07
Slóð
er ekki hægt að sækja þetta til heimahúsana á forsendum hryðjuverkalaga , eru þetta eithvað annað en hriðjuverk á heillri þjóð ásamnt öðru ?
09.02 2010 kl.16:09
Slóð
Gleymum því aldrei hverjir bera ábyrgð á hvernig komið er fyrir Íslandi í dag. XD og XB og XS
Og gleymum því ekki áður en þetta ár er liðið að hreinsa út spillinguna á alþingi. Við höfum gert það einu sinni og við getum alveg gert það aftur.
Þorgerður Katrín, Bjarni Ben, Tryggvi Þór, Ásbjörn (ég vissi ekki gaurinn) og fleiri þeirra líkir.
Þetta fólk er tengt milljarða afskriftum og vafasömum viðskiptum og eiga að segja af sér.
Stjórnmála fólk á ekki að hafa rétt til að stunda milljarða viðskipti og setja lög um það sjálft þannig að það þjóni vinum sínum og vandamönnum.
Spillingin á alþingi íslendinga er alltof mikil og þetta þarf að laga.
Upp með skiltin og niður á austurvöll á Laugardag.
LIFI BYLTINGIN
09.02 2010 kl.16:21
Slóð
@Addi Jónasar
VOFF, VOFF á ykkur flýjandi rollurnar.
09.02 2010 kl.16:26
Slóð
Jón Daníelsson - handrukkari fyrir siðlausasta lögfræðifirma Englands Michon DeReya.
Segir allt sem segja þarf - auðvaldshundur og hluti af gamla hugsunarhættinum.
09.02 2010 kl.16:33
Slóð
Nú nú. Rukkari indefens og sjall-framara að babbla.
Þessi maður ætti að skammast sín fyrir að vera aðili að 75 milljarða skaðakostnaði á mánuði fyrir lanbdið - og einfaldlega hafa vit á þegja !
09.02 2010 kl.16:46
Slóð
“The Icelandic government, which has staked its survivalal on passing Icesave, is unable to get the deal accepted, and any negotiations would need to include the opposition parties and the support of InDefence, an influential lobby group for a fair resolution of Icesave, as well as President Grímsson” ?????
Treysti mér svo ekki í talnaruglið en vísa í fylgiskjalið með greiðslu línuritinu.
“Even if we recover 100% from LI, we still have to pay ISK 732 billion” !!!
09.02 2010 kl.16:56
Slóð
Getur Jón Daníelsson ekki hætt að skipta sér af málefnum Íslands? Það eru flestir búnir að sjá í gegn um hann.
09.02 2010 kl.16:57
Slóð
Að við skulum vera að afhenda þeim sem settu okkur í þessa stöðu forræði yfir efnahgslífinu á nýjan leik er þyngra en tárum taki . Meðan það viðgengst er okkur ekki viðbjargandi. Brennt barn sækir í eldinn söng Megas og hafði rétt fyrir sér.
09.02 2010 kl.17:10
Slóð
Er Samspillingin á prósentum af væntanlegum IceSave greiðslum?
Maður gæti haldið það m.v. taugaveiklunina, hrokann og frussuganginn.
Bíð spenntur eftir því hvernig málpípurnar munu bulla sig út úr forinni eftir umpólun forystusauðanna í málinu um síðustu helgi.
09.02 2010 kl.17:32
Slóð
Þetta eru staðreyndir, sem sumir vilja ekki horfast í augu við.
09.02 2010 kl.18:07
Slóð
Addi Jónasar! Skömm að þér og vanþakklæti þínu. Ætli Jón sé ekki duglegri í reikningi en þú.
Jón Daníelsson á þakkir skilið fyrir að standa með okkur og berjast.
Ég er orðin svo þreytt á þessu liði sem vill hætta á að stofna þjóðinni í þrot - bara af því að jarðfræðingurinn segir það - maðurinn sem vildi að samningurinn við Breta og Hollendinga yrði samþykktur án þess að alþingismenn fengju að sjá hann. Puff, skítavinnubrögð.
09.02 2010 kl.18:38
Slóð
Alveg merkilegt að lesa athugasemdakerfið hér og hvað margir eru tilbúnir til þess að ráðast á Persónuna Jón sem skrifar grein í blað og heldur uppi vörnum fyrir landið..
Málefni ekki rædd en persónan er rædd og hædd..
Af hverju??
Tilgangurinn??
Það er greinilegt að mörgum er farið að líða illa í sálinni..
09.02 2010 kl.19:20
Slóð
Jón hefur frá byrjun staðið vaktina vel í IceSLAVE málinu. Hann segir m.a.: ” ...er það hagur Breta og Hollendinga að sætta sig við hófsamar kröfur í garð Íslendinga.” Það er einnig eðlileg krafa Íslendinga að farið sé að “lögum & reglum”, við frábiðjum okkur “kúgun, þvinganir & svindl” frá þessum fyrrum nýlendisveldum. Bretar og hollendingar munu ekki frá krónu í vexti frá okkur, þeim mun fyrr sem þeim skilaboðum er komið til skila þeim mun betra fyrir allt & alla. Ef þeir sætast ekki á slíkt, þá sækja þeir bara mál sitt fyrir dómstólum, eitthvað sem þeir gera ekki, því þeir vita að lögin eru okkar megin.
kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)
09.02 2010 kl.20:07
Slóð
Af hverju eruð þið að skamma Jón garminn...
Hann er sennilega búinn að vinna fyrir hverri krónu af þessum millum sem upphæðin hljóðaði upp á.
Ég dauðsé eftir laununum sem fóru í þessar vesælu samninganefndir sem klúðruðu fyrir okkur... hvað ættli það hafi kostað þjóðarbúið..
Takk Jón D. fyrir hvað þú hefur verið óþreytandi duglegur að pota málstað okkar á framfæri...
09.02 2010 kl.20:19
Slóð
- Jónas Tryggvi segir að ofan: - “400 miljarða í vexti? afhverju reiknar hann alltaf með því að það verði aldrei borgað neitt inn á höfuðstólinn og vextir verði eins háir og mögulegt er..sama þótt þetta væri rétt hjá honum, þá hef ég ekkert heyrt um land sem fór á hausinn útaf skuld upp á 30% af GDP.. ” - - Þú ættir að fylgjast aðeins betur með. Í lögunum svokölluðu frá des. 09 er gert ráð fyrir 5,55% vöxtum og engum afborgunum í sjö ár. Ef þú reiknar sjálfur, þá átt þú að fá svipað út. Auðvitað er heildargreiðslan miklu hærri en 30% af GDP. Þessi útreikningur er kominn frá Bretum vegna þess, að þeir greiddu út reikningahöfum og svo vilja þeir þá vexti, sem þeir sjálfir þykjast borga og svo einhvert álag. Jón Daníelsson gerði nýlega grein fyrir þessu.
Orð Jóns Daníelssonar um að Icesave leiði til gjaldþrots sýnir bara hversu blind ríkisstjórnin er. Hún hélt því fram, að Icesave 1 og svo Icesave 2 væru einu kostirnir í stöðunni. Ekkert hafði verið farið í réttarstöðugrunninn. Nei, það var ekki hægt. Steingrímur sagði í sambandi við Icesave 2 að þeir hefðu reynt, en það gekk ekki, sagði hann. - Sjálfur grunnurinn fékkst ekki ræddur. Og Svavar Gestsson nennti ekki að hanga lengur yfir Icesave 1.
Annars eru vextirnir og vaxtagreiðslurnar það versta í dæminu og við hefðum heldur átt að greiða út, kontant, og fá lán hjá Norðmönnum til að greiða lánið. Þá hefði líka að sjálfsögðu aðrar Norðurlandaþjóðir átt að geta lánað líka.
09.02 2010 kl.20:34
Slóð
Sorglegur misskilningur hjá efnahagsráðgjafa Framsóknarflokksins að telja það þjóða hagsmunum íslenskra fyrirtækja og heimila að keppast við að telja heiminum trú um að Ísland sé rétt að verða gjaldþrota. Haldið þið að þetta sé að hjálpa Landsvirkjun, OR, HS Orku, sveitarfélögunum og öðrum sem semja verða um endurfjármögnun skulda erlendis?
Stór hluti af þeirri “samúðarbylgju” sem einhverjir eru nú að orna sér við stafar af alvarlegum rangfærslum um allar stærðir.
Þegar samtök á borð við Jubilee sem eru að berjast fyrir skuldaniðurfellingu til þjóða sem hvorki hafa efni á að kenna börnum að lesa né bólusetja þau gegn banvænum faröldrum eru farin að boða herferðir fyrir Íslendinga er það bókstaflega skammarlegt. Við eigum að vera á sveifinni með Jubilee og leggja fjármuni til uppbyggingar þeirra samfélaga sem samtökin eru að styðja.
09.02 2010 kl.20:39
Slóð
@Jónas Bjarnason efnaverkfræðingur
09.02 2010 kl.20:19
Þú skrifar:
“... við hefðum heldur átt að greiða út, kontant, og fá lán hjá Norðmönnum til að greiða lánið. Þá hefði líka að sjálfsögðu aðrar Norðurlandaþjóðir átt að geta lánað líka.”
Hvaða vexti og afborgunarskilmála finnst þér að íslensk stjórnvöld hefðu átt að tilkynna Norðmönnum um eftir að hafa ákveðið fyrir þeirra hönd að þeim bæri skilyrðislaust að lána okkur?
10.02 2010 kl.00:00
Slóð
Jón á þakkir skiliið fyrir öll skrifin og útskýringarnar. Ég er öllu fróðari eftir hverja grein sem hann skrifar. Hann hefur farið hér á milli landa og mætt í hvert viðtalið á fætur öðru og verið mjög upplýsandi. Gæti vel hugsað mér að fá hann til að stýra hér efnahagsmálunum til að koma okkur á réttan kjöl. Takk fyrir Jón Daníelsson að vera til á þessum tímum og vilja og hafa áhuga á að aðstoða okkur í baráttunni.
Það er með ólíkindum hvernig þessir hallæris stjórnmálamenn hafa farið með okkur og allur þessi tími sem liðinn er og kostnaður....
10.02 2010 kl.02:25
Slóð
Sammála Jóni að þessu sinni og hef lengi verið á þeirri einföldu skoðun að krafa á okkur um greiðslu áður en eignir Landsbanka eru gerða upp sé óraunhæf og úr lausu lofti gripin, hafi ekki lagastoð og verði ekki varin lögfræðilega á neinn hátt hvorki með evrópulögum. íslenskum lögum breskum eða hollenskum.
Þetta er bara eins og maður sem lendir í árekstri við konu hún veldur miklu tjóni á bíl hanns og maðurinn heimtar veskið hennar á staðnum. Hún er með matarpeningana og leigupeningana í veskinu. En maðurinn hlustar ekki hann hrifsar veskið af henni í krafti stærðar sinnar og segir að hún hafi keyrt of hratt. Hún fór kannski of hratt og leit ekki til hægri en það er ekkert sem réttlætir það að hann taki veskið strax eða heimti vexti af þeirri upphæð sem hann er ekki búinn að fá frá konunni.
http://this.is/villi/?page_id=451
10.02 2010 kl.09:26
Slóð
Hvernig væri að safna saman þessum hálvitum sem beinlínis heimta að fá að borga skuldir annarra-Icesave og leyfa þeim að borga þetta og láta okkur hin í friði.
Það mætti safna þeim saman útí Grímsey eða Kolbeinsey og láta þá þræla og borga....