“Ef 100 milljón króna skuld á mig er gjaldfelld og ég á ekki peninga til að borga hana þá eru mér allar bjargir bannaðar. Ég verð gjaldþrota. Augljóst mál. En maður sem skuldar 50 milljarða, hvernig má það þá vera að hann geti keypt eignir fyrir milljarða - rétt eins og skuldin skipti engu máli?”
Þannig spyr Ögmundur Jónasson alþingismaður í nýjum pistli á heimasíðu sinni í dag. Tilefnið eru fréttir af því hvernig Arion banki hefur stutt þekkta útrásarvíkinga og skuldakónga til viðreisnar í atvinnulífinu.
“Hvernig má það vera að Ólafur Ólafsson sem kenndur var við Samskip og lagðist síðan í milljarða brask og útrás er aftur kominn með eignarhald á Samskipum? Hefur hann gert upp sínar skuldir? Er hann laus allra mála gagnvart samfélaginu? Finnst honum sjálfum hann vera laus allra mála fyrr en hann er búinn að gera upp við íslenskt samfélag? Þannig mætti spyrja um fleiri. Marga fleiri. Reyndar flesta spilarana í fjárhættuspilinu um Ísland,” skrifar Ögmundur.
Ögmundur veltir því fyrir sér hvort Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka, sé að að fara að fyrirmælum eigenda bankans þegar hann segir að gamlir eigendur Haga eigi að fá 15% hlut í fyrirtækinu í forgjöf áður en það fer á markað. “Skyldi það vera þetta sem eigendurnir vilja? Hverjir eru annars eigendurnir? Getur verið að það séu sömu menn og nú er verið að ívilna? Spyr sá sem ekki veit. Kannski er eignarhald bankanna í óskyldum höndum og eigendunum slétt sama hver fær hvað ef það er talið borga sig,” skrifar Ögmundur.
“En þjóðinni er ekki sama,” skrifar Ögmundur. Hann segir það stríða gegn réttlætiskennd fólks að heimili fólks séu gerð upptæk “Hafa Finnur Sveinbjörnsson og félagar hafa íhugað þetta? Ef ekki, þá er komin ástæða til að þeir geri það. Það er nóg af pottum í skápunum,” segir hann.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
91 ummæli
Rita ummæli09.02 2010 kl.12:32
Slóð
Ég skil ekki alveg af hverju Ögmundur er svona hissa. Fylgdist hann ekki með forvali VG um helgina? Það gilda ekki sömu reglur fyrir alla. Af hverju ætti Finnur Sveinbjörnsson að spá og spekúlera? Hann horfir bara á VG og hlær.
09.02 2010 kl.12:36
Slóð
Mér þykir ekki duga að Alþingismenn séu jafn furðu lostnir og kjósendur / almenningur á þessu rugli, þeir eiga að sjá til þess að stöðva þetta.
09.02 2010 kl.12:37
Slóð
Þeim ferst í ríkisstjórn að gagnrýna endurfjármögnun útrásarvíkinganna.
09.02 2010 kl.12:38
Slóð
Ekki spurnig, sömu menn og áttu bankana fyrir hrun eiga þá núna. Það er eina hugsanlega skýringin á framferði bankana.
Ótrúleg hörmungarsaga, þessi Íslenska stjórnsýslusaga.
09.02 2010 kl.12:41
Slóð
Það er vegna þess, að hann er rotinn eins og þeir sem réðu hann til starfans.
það þarf að fela gjörðir og fá afskriftir ofl. ofl., og þess vegna þarf að hafa mann, sem er eins og maður sjálfur og gerir það sem gera þarf fyrir kúlulánþega, og millifærslulýðinn. - Þöggunin þarf siðspillt fólk.
Steingrímur Hringsnari var yfirmaður þessara manna og réði þá til starfans, hélt heim í vinnunni. Það á að setja rannsóknarnefnd á stofn til að rannsaka þetta, en það er venja þess fólks sem ekki vill rannsaka þjófnaðinn, að nota annað(smjörklípuaðferðin) til að fela öllu alvarlegra mál, þjófnaðinn.
.
09.02 2010 kl.12:44
Slóð
Það ég skrifa hér að ofan á við Finn Sveinbjörnsson, bankastjóra.
09.02 2010 kl.12:45
Slóð
Líka Ögmundur er agndofa:
http://dagskammtur.wordpress.com/2010/02/04/agndofa-rikisstjorn/
09.02 2010 kl.12:45
Slóð
Ömmi ! Og þið hin, þá er bara að setja NEYÐARLÖG um bankanna og
STOPPA ÞESSA VITLEYSU !!!
09.02 2010 kl.12:46
Slóð
Spurningin hlýtur að vera þessi; Hvað hyggst Ögmundur gera í málunum? Ögmundur er núna í þeirri aðstöðu að hann á að geta beitt sér. Það þarf ekki nema 3-4 stjórnarliða til að stilla stjórninni upp við vegg og knýja fram réttlæti.
Er þetta ekki bara sama gamla tuggan, berja sér á brjóst og auglýsa sig og góðmennsku sína. Svo verða menn ráðherra og þá fjúka öll gömlu gildin sbr. einkavæðingin á ræstingunni LSH Fossvogi. Nú er líka lag fyrir Ögmund að dusta rykið af hugmyndum um að banna spilavíti.. Nei einhvernveginn virkar þetta á mann eins og verið sé að friðþægja róttækari öflin í VG.
09.02 2010 kl.12:48
Slóð
Ég skora á Ögmund að boða til almennra mótmæla á götum úti og krefjast réttlætis. Ef það ekki gengur þá verða menn að fara í það að hreinsa út óþverran, með góðu eða illu.
09.02 2010 kl.12:51
Slóð
Ögmundur er hissa, Jóhanna er hissa, Steingrímur er hissa, ógeðslega hissa. Þetta fólk situr við stjónartaumana í dag og það eina sem það virðist afreka, er að vera hissa.
Bjarni Ben og Sigmundur eru hinsvegar ekki hissa, þeir vildu þetta og sáu þetta koma. Þeir hlæja bara að stjórnarliðinu. Ég líka.
09.02 2010 kl.12:51
Slóð
Hefur Ögmundur aldrei heyrt um hugtakið hf. og takmarkaða ábyrgð eigenda slíkra félaga? Ef hann vill breyta því kerfi, ætti hann kannski að muna að hann situr á Alþingi og á þar að auki sæti í þeim flokkum sem mynda meiruhlutann þar á bæ.
09.02 2010 kl.12:53
Slóð
hvers vegna er Finnur ekki stoppaður af. Gerningar hans misbjóða svo gersamlega almenningi að þjónin er meira og minn brjáluð!
09.02 2010 kl.12:55
Slóð
Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion banka var, er og verður óhæfur einsog sá sem réð hann til starfa.
09.02 2010 kl.12:57
Slóð
Ég er næstum aldrei sammála Davíð Oddssyni en nú liggur við að ég sakni hans í forsætisráðherrastól. Til að slá á putta og segja “svona gera menn ekki”.
Altént væri skárra en ekkert að sjá löggjafarvaldið, þar sem hver er öðrum gáttaðri og lætur þar við sitja, storma niður í Arion og taka út innistæður sínar.
09.02 2010 kl.13:00
Slóð
Ögmundur hefði átt að hugsa út í það þegar hann tók þátt í því að óla skudabaggana margfalda á bakið á almenningi. Hverjum var þá verið að hlífa. Hvert fóru umsamdar afskriftir bankanna og gróðinn af tvöföldum myntkörfulánum og útbólginni vísitölutryggingu? Fór það kanski til að afskrifa skuldir Ólafs og Baugs svo að þeir gætu byrjað aftur. Það held ég að öll þjóðin hafi skilið og upplifað á eign skinni. En þessi endemis ríkisstjórn fattaði það síðust allara eins og venjulega.
09.02 2010 kl.13:01
Slóð
gott hjá þér ögmundur, en þú hevðir getað spurt af þessu fyrir mörgum mánuðum síðan, eitt er víst finnur bankastjóri er ekki hæfur í þessari stöðu, hann talar til fólks eins og það séu hálfvitar
09.02 2010 kl.13:02
Slóð
Er ekki VG í stjórn?
Væri fínt ef VG færi að haga sér eins og vinstristjórn í staðinn fyrir blogga um það.
09.02 2010 kl.13:03
Slóð
Sigríður Lára, þarna er ég þér sammála, mikið vildi ég að við hefðum mann eins og Davíð til að stoppa þessa vitleysu.
Skora á alla að hringja í Lífeyrissjóðina sína og ræða þessi mál, ég vil ekki að minn sjóður fari að fjárfesta í Högum eins og þeir gerðu í Baug og allt tapaðist. Ætli Arion skilji það ekki sem best ef við færum viðskipti okkar í annan banka.
Hvernig væri að ríkistjórnin sýndi dug og þor og stoppaði þessa vitleysu
09.02 2010 kl.13:09
Slóð
Flott Ögmundur. Það er ágætt að minna bankamenn á að ennþá eru til pottar og pönnur í skápum landsmanna.
Aðrir stjórnmálamenn mættu taka sér Ögmund til fyrirmyndar. Þeir eru teljandi á fingrum annarar handar þeir stjórnmálamenn sem hafa eftir hrun valið að taka stöðu með almenningi í landinu.
Blekkingar og aftur blekkingar til þess eins að fá almenning til þess að trúa því að það besta sem geti komið fyrir fólk sé að það taki bara á sig nógu helvíti miklar skuldir. Það er komið nóg af slíkum málflutningi og tími til kominn að hleypa mönnum eins og Ögmundi að.
09.02 2010 kl.13:09
Slóð
Það eru allir voðalega hissa. Meira að segja Gulli Gullbrók.
09.02 2010 kl.13:10
Slóð
Steingrímur segir bara við ráðum ekki yfir Bönkunum Enn hver þá???????????
09.02 2010 kl.13:15
Slóð
Af hverju eru ráðamenn svona hissa??? Almenningur hefur verið að tala um þessa hættu mánuðum saman.
09.02 2010 kl.13:24
Slóð
Koma svo Ögmundur. Stoppa þessa endemis vitleysu. Það gengur ekki annað en að þessir útrásarvíkingar verði gerðir eignalausir ef á þarf að halda til að ná upp í skuldir þeirra við íslensku bankana/þjóðina.
09.02 2010 kl.13:25
Slóð
Ég held að það sé tími til kominn að koma þessum Finni bankastjóra frá hann er að mér sýnist nautheimskur, eða hann heldur að almenningur séu svona vitlausir.
09.02 2010 kl.13:31
Slóð
Ögmundur segir beint út það sem allir hinir eru að hugsa.
09.02 2010 kl.13:34
Slóð
Ögmundur hér er tækifæri fyrir þig að sína hversu megnugur þú ert og að þetta séu ekki bara orðin tóm. Ég hef mikla trú á þér.
Þú ert maður fólksins en ekki spillingarinnar einsog restin á Alþingi Íslendinga. Sýndu þjóðinni hversu megnugur þú ert.
09.02 2010 kl.13:34
Slóð
Ögmundur meinar ; útrásarvíkingarnir nái aftur fyrirtækjunum
Með aðstoð stjórnvalda , eigendur og efstu stjórnendur bankanna.
Ofurveðsett fyrirtæki færður skuldlaus á silifurfati til sömu eiganda og
skuldir fyrirtækjana er færður á silfurfati til þegna þjóðarinnar og skattgreiðendur.
Heimili landsins eru enn ekki að sjá 1 krónu afskrifaða á meðan miljarðaafskriftir eiga sér stað hjá fyrirtækjum landsins.
Ögmundur er ekki einn um að furða sig ?
09.02 2010 kl.13:38
Slóð
Ég furða mig á af hverju þú gerir ekkert í þessu...
Starfsmaður sem furðar sig bara á verkefnunum frekar en að vinna þau er sagt upp.
Kannski þarf maður bara að hætta að furða sig á svona furðufuglum.
09.02 2010 kl.13:46
Slóð
þannig hefur það bara alltaf verið í þessu þjóðfélagi, ef málið er nógu stórt, þá leyfist það, en smámálin skulu fá alla athygli og (saka-)meðferð.
09.02 2010 kl.13:51
Slóð
Kjósum : NÝTT ÍSLAND: , í flokknum mega ekki vera fyrrverandi eða núverandi , alþingismenn , ráðherrar né útrásarvíkingar. Öðrum er frjálst að ganga í flokkinn. Við látum ekki bjóða okkur þetta lengur
09.02 2010 kl.13:51
Slóð
Ögmundur hefur minn stuðning.
09.02 2010 kl.13:51
Slóð
Ögmundur hvað er svona undarlegt við að svindlararnir fái fyrirtðkin sín aftur?
Það hrundi kerfið sem þeir voru búnir að skapa.Og ekkert er gert af stjórnvöldum að stöðva bilunina.
Þeir sem sýsla í bönkunum eru þeir sömu og skópu hrunið.
Og þessir sömu menn eru að láta þá fá fyrirtækin til baka,allt verður eins og var fyrir hrun,ekkert breytist.
NEMA AÐ ÞIÐ ÞARNA Í RÍKISTJÓRNINNI SEGIÐ HINGAÐ OG EKKI LENGRA.
ANNARS VERÐUR HRUN AFTUR EFTIR 2-3 ÁR.
OG ANNAÐ ERT ÞÚ ÖGMUNDUR SÁTTUR VIÐ AÐ GREIÐA NIÐUR “ÓDÝRA” VERÐIÐ Í BÓNUS MEÐ MARGRA MILLJARÆA AFSKRIFTUM.
SVO SEM EINN MILLJARÐ Á ÁRI SÍÐAN, BÓNUS FEÐGAR STÖRTUÐU
BÓNUS.
TIL HVERS ERU STJÓRNVÖLD??
09.02 2010 kl.13:57
Slóð
Svarid er augljóst: Ísland er glæpamannasamfélag nr. 1
09.02 2010 kl.13:57
Slóð
Man einhver eftir því að VG kröfðust þess í stjórnarandstöðu að EIGNIR AUÐMANNA YRÐU FRYSTAR?
Um leið og VG komst í stjórn þögnuðu þessar raddir’
Hvers vegna?
Hvers vegna fékk flokkurinn frið fyrir þess háttar spurningum frá fjölmiðlum?
Svarið hlýtur að liggja hjá samstarfsflokknum í ríkisstjórninni.
VG keypti setu í ríkisstjórn með því að falla frá kröfum um að látið yrði til skarar skríða gegn glæpalýðnum sem lagði samfélagið í auðn.
09.02 2010 kl.14:00
Slóð
Af hverju er hann hissa ? þeta var augljóst og fyrirsjánlegt að svona færi , enda EKKERT gert nema baunkunum fært altt og annað í rúst eftir bankana , hvar erum við stödd ? auðvita eru þeir sömu með bankana, það er bara taka tvö , enda engin við stírið og engin fyrirstaða/aðhald er fyrir TortÓla og c/o slíka þvílíka aðila
09.02 2010 kl.14:02
Slóð
Það er ótrúlegt hvernig ríkisstjórnin nær að klúðra öllum málum sem hún kemur nálægt.
Sjaldborg um heimilin verður að skjaldborg um fjármagnseigendur og Icesave verður að Iceslave.
Og til að kóróna vitleysuna þá einkavæðir ríkisstjórnin bankana á spottprís til huldumanna.
Hvers vegna lét ríkistjórnin ekki ríkisbankana ganga frá “endurskipulagningu“ fyrirtækja íslensku bankaræningjana fyrir einkavæðingu?
Hvers vegna var og er ekki sett skilyrðislaus krafa um það verði upplyst hverjir eru raunverulegir eigendur bankana?
09.02 2010 kl.14:06
Slóð
eltið hagsmunina.
þýðir ekkert að vera röfla meðan við vitum ekki hver á bankana í raun.
eina skýringin á þessu er að tortóli og baugarnir eigi bankann bak við tjöldin. þá fara saman hagsmunur þeirra og bankanns, sem er sami aðili.
wake up and smell the coffee!
09.02 2010 kl.14:14
Slóð
Það er frábært að sjá hvað fjölmiðlar eru snöggir að upplýsa fólk um góðan boðskap Ögmundar. Hann talar einfaldlega máli fólksins og er sömu skoðunnar og það. Honum finnst furðulegt að hægt sé að bæta á sig skuldum þegar það er gjaldþrota og sömuleiðis höfum við venjulega fólkið spurt okkur sjálf og aðra að því sama.
Við verðum að breyta samfélaginu og ef uppreisn með eða án ofbeldis er nóg þá höfum við náð þeirri byltingu sem við þurfum. Við þurfum að hverfa frá þessu hugarfari sem er greinilega enn ríkjandi.
09.02 2010 kl.14:22
Slóð
Já, sláum skjaldborg um Ólaf Ólafsson. Það er vorkunnarverð staða að skulda mikla peninga í einhverju fyrirtæki með takmarkaða ábyrgð. Það er eins og menn hafi hvergi skjól þegar svo er komið. Kannski eitt félag eða svo sé í góðu horfi og þá er bara að byrja aftur þar. Það eru bara kommúnistars, sem vilja að menn beri ábyrgð í hlutafélögum. Al Thani málið kostaði Kaupþing einhverja tugi milljarða, en Ólafur kom þeim viðskiptum á. Al Thani er frændi emírsins af Katar, en þeir skipta hundruðum. Hann átti að kaupa hlutabréf í KB fyrir lánið, en það varð eitthvað lítið úr því, en hann tók víst bara peningana sjálfur. - Svo tók Ólafur þátt í að ávaxta fé bænda, sem þeir áttu í Samvinnutryggingum. Það voru rúmir 30 milljarðar og það er ekkert hægt að láta þá liggja á glámbekk. En Ólafur, já og Finnur, voru óheppnir. Þeir urðu að fjárfesta í hringekju, yfir í Exista og síðan Gift, en það félag skuldar nú einhverja milljarða. En home sweet home, Ólafur er á leiðinni yfir í Samskip og á þar 90%, þökk sé Finni Sveinbjörnssyni, en hann skilur þýðingu þess að traustir rekendur fyrirtækja komi að rekstri fyrirtækja.
09.02 2010 kl.14:27
Slóð
Hvað héldu menn að skilanefndirnar væru að gera?
09.02 2010 kl.14:32
Slóð
Keressona Hissa ? Essasú ?
Allirbarasonna obbosslega hissa kall !
09.02 2010 kl.14:35
Slóð
Bölvað böst en hér verður ekki réttlæti nema með ofbeldi.
Og ég hata ofbeldi , jafnvel meira en peninga.
Það er nefnilega þannig að þeir sem gera friðsamlega byltingu gangslausa gera ófriðsamlega byltingu óhjákvæmilega.
Bömmer , ég veit - og ég er obbosslega hissa en samt staðreynd.
09.02 2010 kl.14:41
Slóð
Ögmundur er sá eini sem hefur haldið haus í þessum slag sem Þjóðin er í. Ef hans staðfestu hefði ekki notið við, þá er hætti við að Steingrímur J og Indriði Þ væru búnir að hneppa Ísland í áratuga skuldafjötra. Ég er ekki viss um að fólk átti sig á þessu.
09.02 2010 kl.14:43
Slóð
Ögmundur: Hún er fullreynd þessi bið eftir því að Steingrímur Joð taki sönsum. Það er pínlegt að horfa upp á egóflippið í einum manni. Breytingarskeiðið virðist fara einstaklega illa í hann.
09.02 2010 kl.14:47
Slóð
aðhaldslausu skianefndirnar ? trúlega vita það allir nema VG og SAM,F , gósentíð , er Steingrímur hræddur við valdið , eða eru ómensku öfli þetta sterk á Islandi ? hvar erum við stödd (sos )
09.02 2010 kl.14:49
Slóð
Rétt hjá Ögmundi, en hann á ekkert að furðasig á þessu hann á að STOPPA þessa glæpi strax!!
09.02 2010 kl.14:55
Slóð
Krösus
09.02 2010 kl.14:43
Ég tek undir orð þín og bæti þessu við:
Meginskekkjan sem Steingrímur Joð gerði var að gera Icesave málið að sínu einkamáli sem okkur hinum kom ekki við. Icesave er ekkert prívat mál eins manns. Við sem fáum reikninginn líðum engum laumuspil með okkar gæfu.
Með framferði sínu er hætt við að Steingrímur hafi verið að skrifa lokakafla síns pólitíska lífs. Það hlýtur að vera eitraður kokteill að ganga erindi auðvaldsins með umboð frá alþýðunni.
Ef einhver snefill að rökhugsun er til í VG, þá ætti flokkurinn að losa sig við Steingrím. Hinn valkosturinn gæti verið að VG yrði að deild í Samfylkingunni, því þannig hefur Steingrímur leitt flokk sinn. Steingrímur gæti þá orðið formaður Samfylkingarinnar?
09.02 2010 kl.14:59
Slóð
Ögmund þarf að tvíefla magna karlin upp , en trúlega altt orðið um seinan, landið/stjórnin er ekki normal og er ófjölskylduvænt , (sos)
09.02 2010 kl.15:02
Slóð
AF HVERJU SPYR HANN Á HEIMASÍÐU SINNI????????????’
Held honum væri nær að spyrja ríkisstjórnina ????????!!!!!!!!!!!!!!!
Asnalegt
09.02 2010 kl.15:05
Slóð
Góða fólk haldið bara áfram að versla við Baugsfyrirtæki.
Glæsilegt hjá ykkur..
En hvenær vaknið þið??
09.02 2010 kl.15:05
Slóð
M: Fór það framhjá þér að manninum var hent öfugum út úr ríkisstjórn fyrir að kyngja ekki viðstöðulaust Icesave ruglinu í Steingrími og Jóhönnu. Jóhönnu sem þóttist vera með allt á tæru þá svo mikið á tæru að hún mætir síðan í kastljós og gubbar yfir Svavar Gestsson. Maður er farinn að fá nóg af þessu bíói.
09.02 2010 kl.15:06
Slóð
Sú reiði sem brotist hefur fram vegna framferðis Arion banka og lýsir sér í athugasemdunum hér að ofan verður að finna sér farveg.
Ef stjórnvöld geta ekki hamlað gegn þessari þróun verður almenningur að grípa til sinna ráða.
Fyrsta skrefið er að refsa bankanum á þann eina hátt sem bankastjórnin skilur, að almennir viðskiptamenn taki sig til og færi viðskipti sín annað. Ef þeir gera það ekki jafngildir það viðurkenningu á starfsháttum bankans.
Því er hér og nú skorað á alla almenna viðskiptamenn bankans að segja upp viðskiptum sínum við bankann. Með afli fjöldans og refsingu við hæfi er hægt að gera sér vonir um að stjórnendur Arion banka læri sína lexíu.
09.02 2010 kl.15:11
Slóð
Ja hérna. Og rannsóknarskýrsla Alþingis er ekki einu sinni komin út ?
Í hvaða umboði starfar Finnur ? Maðurinn virðist vera langt leiddur af sjálfsánægu. Af hverju ? Hann hlýtur að hafa stuðning stjórnvalda ?
Það er hreint og beint verið að færa útrásarvíkingum sem settu landið á hausinn fyrirtæki sín á silfurfati aftur.
Á meðan Jón og Gunna eru að missa eignir sínar.
ÞAÐ ERU TVÆR ÞJÓÐIR Í ÞESSU LANDI. Almenningur verður sjálfur að gæta hagsmuna heimilanna því VERKALÝÐSFORUSTAN ER ALGJÖRLEGA ÓNÝT. Bankarnir eru rotnir af spillingu.
þAÐ ÞARF EKKI AÐ FARA NEMA CA 15 ÁR AFTUR Í TÍMANN TIL AÐ SJÁ AÐ ALÞÝÐUSAMBANDIÐ OG VERKALÝÐSFORUSTAN BLÉS OFT TIL MÓTMÆLA. Nú sitja forystumenn verkalýðshreyfinga fólksins á RASSINUM OG ÞIGGJA OFURLAUN ! Borgum við ekki LÖGBUNDIN félagsgjöld. Hvernig væri nú að þessir menn færu að vinna vinnuna sína.
Hvers lags andsk - - - - - - BANANALÝÐVELDI er Ísland orðið.
09.02 2010 kl.15:17
Slóð
GERIÐ RÖNN Á BANKANN GOTT FÓLK. ÉG HVET YKKUR TIL ÞESS AÐ HÆTTA Í VIÐSKIPTUM VIÐ BANKANN EKKI SEINNA EN STRAX!!
09.02 2010 kl.15:23
Slóð
Þessi gaur ætti að skammast sín enda mesti lýðskrumari landsins,hann veit eins og alþjóð að ríkisstjórnin getur sett lög strax í dag sem banna glæpamönnunum að stunda viðskipti hér og gert eigur þeirra upptækar eða fryst þær. Á meðan það er ekki gert þá ættu þessir lýðskrumarar að hætta vera hissa og reyna að halda kjafti !
09.02 2010 kl.15:24
Slóð
Áhlaup á bankanna er það eina í stöðunni.
Það er verið að gera svipaða hluti í þeim öllum.
09.02 2010 kl.15:27
Slóð
ég bið þig ögmundur stoppaðu þessa vitleysu af þessi bankastjóra gerpi er ekki með fulla heilsu
09.02 2010 kl.15:32
Slóð
Hann ætti að beina undrun sinni að þeim sem stjórna landinu, þ.e. ríkisstjórn sem hann sjálfur hefur átt aðild að. Hvað er maðurinn eiginlega að hugsa? Er hann alger rola? Af hverju gerir hann ekkert? Jóhanna er steinhissa, Ögmundur er steinhissa. Þau skilja ekki neitt í neinu. ÞAU ERU FOLKIÐ SEM HEFUR VÖLDIN TIL AÐ GERA EITTHVAÐ. KOMA SVO.
09.02 2010 kl.15:33
Slóð
SKILANEFNDIR VALHALLAR AUÐVALDSINS sjá um útrásarvíkingana sína. Merkilegt að heyra heiladauða athugarsemdakjána hér á SJÁLFSTÆÐISFLOKKSeyjunni.is væla yfir því að þetta sé allt ríkisstjórninni að kenna. Held þeir ættu að líta sér nær og sjá af hverju ríkisstjórnin GETUR EKKERT GERT.
09.02 2010 kl.15:43
Slóð
Ögmundur er kjölfestumaður í stjórnmálum, samkvæmur sjálfum sér.
VG eru nú í samfloti með hægri krötum, sem áttu sinn þátt í mótun
spillingarsamfélags áður og pilsfaldakapítalisma nútíðarinnar.
Stjórnarsamstarfið er að verða dýrt spaug fyrir alla alþýðu, sem trúði
að brotthvarf íhaldsins frá völdum táknaði bjartari tíma.
Örlög einstakra pólitíkusa eða flokksgengja eru ekki stóra málið.
Stóra málið er máttleysi og varnarleysi almennings gegn samhæfðu
ægivaldi fjármagns og stjórnmálakerfis, sem því þjónar.
Ögmundur er í varnarliði fólksins. Þar ættu fleiri að skipa sér.
Baldur Andrésson
09.02 2010 kl.15:45
Slóð
Sammála Baldur.
09.02 2010 kl.15:47
Slóð
Jæja..
Hvar er best að geyma krónurnar sínar.
Îslandsbanka,Landsbanka,Sparisjóðum,MP... undir kodda.
Allavega ekki í Arion.
09.02 2010 kl.15:48
Slóð
Hvurn fjandann er hann að spyrja á blogginu sínu?? Afhverju spyr hann ekki viðskipta- og eða fjármálaráðherra??
Þetta er nú svolítið eins og að hrópa á athygli. Held honum væri nær að spyrja á alþingi og birta SVO svörin á bloggi sínu.+
Þetta er svolítið hjákátlegt - er hann ekki annars í ríkisstjórn???
09.02 2010 kl.15:50
Slóð
Baldur
09.02 2010 kl.15:43
Ég tek undir hvert einasta orð hjá þér og ég er ekki ein um það.
09.02 2010 kl.15:50
Slóð
Nei Bjarni. Hann er ekki í ríkisstjórn, vegna andstöðu sinnar við Icesave.
09.02 2010 kl.15:52
Slóð
Mikið til í þessu hjá þér Addi Jóns , en hvað getum við venjulegt sundrað fólk anað en ætlast til að ríkistjórnin fari að stjórna af þroska og siðferði ? okkur vantar hugrakkan ,þroskaðan, heiðarlegan, kjarkaðan, ósérhlífin , manneskjulegan byltingarforingja , bankarnir/elítan, vita vel og nýta sér að við erum sundruð , og við það situr , og gósen tíð búin að vera og er fyrir arðræningja og aðra banka óþverra
09.02 2010 kl.15:58
Slóð
Landið er algerlega stjórnlaust samanber ummæli Ömma og Jóhönnu síðustu daga, stjórnlaust fyrir utan glæpaklíkurnar í bönkunum sem skipta nú með sér slátrinu.
Held að almennir starfsmenn bankanna ættu að hugsa sig verulega vel um stöðu sína gagnvart þjóðinni, vilji þeir ekki hljóta miður æskilegan stimpil samborgaranna þá eiga þeir að ganga út.
09.02 2010 kl.16:07
Slóð
Hverjir eiga Arion banka?
Veit Gylfi nokkuð um það?
09.02 2010 kl.16:10
Slóð
Hvað sem manni þykir um Hannes Hólmstein þá veltir hann hér upp spurningum sem flestir eru að hugsa: http://www.pressan.is/pressupennar/Lesa_Hannes/thrjar-spurningar-um-baugsfedga
09.02 2010 kl.16:11
Slóð
Stjórnmálafræðingur hefur kveðið upp sinn dóm:
Forvalsreglur VG eru misskýrar.
Þegar eitt er sagt við A og annað við B - um eina og sömu regluna - þá er um misskýra reglu að ræða.
Endilega púnktið þetta niður þið sem eruð í stjórnmálafræði.
09.02 2010 kl.16:19
Slóð
Þegar bankakerfið hrundi sögðu útrásarmenn, að hunið væri ekki alslæmt
Það gæfi tækifæri, því nú væri hægt að góð kaup. Þetta sögðu menn eins og
Björgólfur Þór, og Jón Ásgeir Jóhannesson. Ýmsir stjórnmálamenn tóku
undir þetta, svo sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sem taldi kreppuna
tækifæri. Þessar spár hins framsýna fólks hafa ræzt.
Margir stjórnmálamenn vildu fara finnskuleiðina.. Þegar hún er farinn er
almenningur fyrst mjög reiður, en gefst síðan upp og verður vonlaus og
lætur allt yfir sig ganga. Borgar allar skuldir, sem yfirstéttin stofnaði til.
Sömu menn halda áfram að stjórna. Finnska leiðin var ekki farin, vegna
veikinda forystumanna og skrílsláta fámenns hóps. Og þó. Hún var farin
þó að vikið væri af varðarði leið. Að minnsta kosti er sama endastöð á
íslenzku krókaleiðinni og finnsku leiðinni.
09.02 2010 kl.16:20
Slóð
Rétt hjá Ögmundi,en þingið þarf að breyta þessu
09.02 2010 kl.16:24
Slóð
Ég furða mig mest á því að Ögmunur lætur FLokkiNN spila svona með sig.Hélt hann væri reyndari en það
09.02 2010 kl.16:27
Slóð
ÁHLAUP Á BANKANN
ÞAÐ SKILJA ÞEIR
09.02 2010 kl.16:48
Slóð
Ekkert skrítið að gömlu glæpamennirnir fá alt aftur í fangið því Ísland er
ekki LÝÐVELDI heldur er það GLÆPAVELDI að mínu áliti..
09.02 2010 kl.16:54
Slóð
Skuldir útrásarvíking saneraðar og þeir eignast fyrirtækin aftur og bjóða lífeyrissjóðum landsmanna að leggja eina reiðuféð inn í fyrirtækin að nýju svo þeir geti tekið enn einn snúninginn og tæm fyrirtækið aftur af eignafé.
Ég segi nei við Arion banka ( bíð eftir góðu tækifæri til að skipta um banka en ekkert er í boði á höfuðborgarsvæðinu. ) og ég segi NEI lífeyrssjóðir landsmanna eiga ekki að fara í samvinnu við þessa menn. Þvílík háðung sem fólki er boðin .
09.02 2010 kl.17:15
Slóð
Ögmundur ! Það þýðir ekkert að vera að blogga um þetta. Talaðu um þetta á þingflokksfundi VG, úr því að þú gast ekki talað um þetta þegar þú varst ráðherra. Að blogga um þetta er bara að slá ryki í augu kjósanda og skreyta sig með stolnum fjöðrum, sem sagt aumingjaskapur .
Það er annars einkennilegt hvað stjórnarþingmenn geta endalaust gagnrýnt allt og alla og verið rosalega hissa, og gera svo ekki rassgat í málunum.
Vanhæf ríkisstjórn.
hg
09.02 2010 kl.18:06
Slóð
Ókei þú veist..kom on
Gefiði Ögmundi smá kredit fyrir það eitt að hann þó segir eitthvað.Það er annað en hinir 60ogeitthvað aumingjarnir sem stand bara og bíða eftir að sjá í hvaða átt peningarnir fljóta og hvaða málefni er í tízku að tala um.
Ögmundur er einn af fáum í fjósinu á austurvelli sem er heiðarlegur og það sést á honum.
09.02 2010 kl.18:12
Slóð
Bankanna afskræmis örgum sið
ætlar seint að linna
því stjórarnir hafa stund og frið
til strákaverka sinna
09.02 2010 kl.20:28
Slóð
Hvernig væri að gera eitthvað í þessu, það ætti að vera hluti af verkefnum ríkisstjórnarinnar að stoppa þessa vitleysu, þeir eru að vera búnir að vera bráðum í eitt ár og ennþá er sama skítaliðið að stjórna bönkunum m.m.
09.02 2010 kl.21:03
Slóð
Ögmundur.... Flokkur þinn er ríkisstjórn. Gerðu eitthvað í þessu, andskotinn hafi það. Tíminn tikkar á ykkur vinina og ef eitthvað fer ekki að gerast þá munið þið þurrkast út í kosningum. Sem verða fyrr en þig grunar.
09.02 2010 kl.21:29
Slóð
http://www.pressan.is/pressupennar/Lesa_Hannes/thrjar-spurningar-um-baugsfedga
09.02 2010 kl.21:30
Slóð
hvernig má koma Ögmundi manneskju af stað ? hvernig má stiðja kallin til dáða , hvað er til ráða ?
09.02 2010 kl.21:45
Slóð
man eftir Steingrím á árum áður , mjög ólíkir menn Steingrímur og Albert Guðmindsson heidinn , ekki hægt í raun að tala um þá í sömu vikuni , enn ekki er ég að mæra frammsóknaríhaldið , hvar eru okkar stóru þroskuðu óeigingjörnu miklu sálir í pólitík á Islandi ? (sos)
09.02 2010 kl.22:32
Slóð
Allir að mótmæla bara á laugardagin, potta og pönnur og allt í botn.
Annars fara bankarnir og ríkistjórnin bara með fólkið eins og þeir vilja !!!
Ríkistjórnir eru hræddar við byltingargjarnan almúgan
09.02 2010 kl.22:38
Slóð
Afhverju er blásið svona svakalega út hvað Ögmundi finnst um þettað?
það sjá það allir hverskonar óréttlæti er í þessu þjóðfélagi.
09.02 2010 kl.23:34
Slóð
Áfram Ögmundur.
09.02 2010 kl.23:39
Slóð
já hvernig má það vera Ögmundur??????????
09.02 2010 kl.23:42
Slóð
Ögmundur!!! farðu að gera eitthvað í þessu áður en hér verður óbætanlegur MANN SKAÐI!!????.........VIÐ HÖFUM FENGIÐ NÓGGGG.!!
09.02 2010 kl.23:56
Slóð
Skuggastjórnendurnir það er ljóst hverjir það eru.
Hvað eiga þeir á Finn? Kannski myndbandsupptökur?