Innlent - þriðjudagur - 9.2 2010 - 17:47

Sóley segist ekki hafa tekið þátt í kosningasvindli. Sendi 15 kjörseðla í heimahús, en það löglegt

soleytomas.jpgSóley Tómasdóttir, sem sigraði í forvali Vinstri grænna í Reykjavík um helgina, segist ekki hafa brotið forvalsreglur flokksins og að ávirðingar um slíkt séu alvarlegar sögusagnir. Hún viðurkennir þó að af hennar hálfu hafi verið sendir 15 kjörseðlar heim til flokksfélaga, sem áttu ekki heimangengt, en segir að slíkt samræmist reglum flokksins.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu borgarfulltrúanum í dag.

Einsog Eyjan hefur greint frá kærði Þorleifur Gunnlaugsson utankjörfundarkosninguna. Í samtali við Eyjuna í gær sagðist hann hafa spurt hvort heimilt væri að senda kjörgögn heim til flokksfélaga en fengið þau svör að slíkt væri óheimilt. Því hafi honum þótt skjóta skökku við að keppinautur hans hafi gert slíkt.

Alls voru 84 atkvæði greidd með þessum hætti. Um 40 atkvæði skildu borgarfulltrúana að og því er ljóst að ef Sóley og stuðningsfólk hennar sendu aðeins 15 seðla muni þau ekki hafa skipt sköpum. Afar mjótt er þó á munum, einsog sést af þessum tölum.

Sóley bendir á að kjörstjórn hafi þegar úrskurðað úrslitin gild og að hún hafi lítið við það að bæta. Öll tvímæli um kosningasvindl hafi verið tekin af.

“Þær ávirðingar sem bornar hafa verið á mig og stuðningsfólk mitt í fjölmiðlum eru alvarlegar, en að baki þeim eru eingöngu sögusagnir sem farið hafa manna á milli í tilfinningaþrungnu andrúmslofti á kjördegi. Á dögum sem þessum spretta upp alls kyns sögur, en ég sé enga ástæðu til að elta ólar við slíkt, enda ógerningur og ekki til þess fallið að styrkja stöðu framboðsins í heild sinni,” segir Sóley.

“Forvalsreglurnar eru alls ekki yfir gagnrýni hafnar – og sjálfsagt að þær verði endurskoðaðar fyrir næsta forval af þar til gerðum stofnunum innan flokksins.

Fyrst og fremst vonast ég til þess, nú þegar ljóst er að framkvæmd forvalsins var ekki hefur verið farið á svig við forvalsreglurnar og niðurstöðum forvalsins verður ekki breytt, að við frambjóðendur leggjum fortíðina að baki, stillum saman strengi og horfum fram á veginn,” segir í yfirlýsingu frá nýkjörnum oddvita VG fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor.

81 ummæli

Rita ummæli

Ásgeir Gunnarsson
09.02 2010 kl.18:06

hvar erum við stödd ?

Sigurður #1
09.02 2010 kl.18:06

Hvít lýgi að hætti íslenskra stjórnmálamanna og femínista.

Skandallinn í dag snérist ekkert um að hún hefði farið sjálf, heldur Silja Bára, stjórnmálafræðingur og kennari við HÍ.

Ómerkilegur útúrsnúningur sem eykur bara á skömm hennar og VG.

Nær hefði verið að sýna iðrun en að senda út fréttatilkynningu að hætti Björgólfs Thor að engin lög hafi verið brotin.

VG virðast engin takmörk sett þegar kemur að því að valda vonbrigðum, því ef það var einhver flokkur sem þóttist óspilltur þá var það þessi.

Skömm ykkar er mikil.

vilhjalmur
09.02 2010 kl.18:09

Það sama glott á henni og Katrínu menntamálaráðherra, uppgerðar bros sama hvað á gengur.

Kristján Kristjánsson
09.02 2010 kl.18:12

Hún er þá bara í réttum flokki hjá VG eftir allt, skoppar um og skilur ekkert í öllu saman.

Ísland þarf ekki meira af svona snillingum.

magnús
09.02 2010 kl.18:12

það er sama hvar á er litið í þeirri TÍK sem kallast pólitík það er allt leyfilegt ef það kemur mér að gagni.
Skömm sé ykkur VG að gera ekkert í svona svindli.

ES
09.02 2010 kl.18:14

Það skiptir ekki máli hve marga seðla frambjóðandi A sendi. Frambjóðanda B var sagt að slíkt mætti ekki. Er virkilega erfitt að skilja þetta?

Sigurjón Vigfússon
09.02 2010 kl.18:15

Sjá þessa færsli.
Ekki er öll vitleysan eins á Íslandi, eða kannski er hún það? Prófkjör VG ... Guð minn góður! Ef satt er, að Silja Bára Ómarsdóttir kennari í stjórnmálafræð við þá merku stofnun HÍ, Eyjubloggari og forfallinn upplýsingafíkill sé að bera kosningaseðla á nemendur sína, sem svo er skilað í kjörkassann hjá VG, þannig að Sóley Tómasdóttir vinkona Silju fær fyrsta sætið, þá er spillingin örugglega alíslenskt fyribæri.

Hvað gera nemendur Silju Báru, sem ekki vilja taka við kjörseðlum? Falla þeir á prófum? Eftir að hyllingar kommúnistaríkjanna féllu, virðast þeir sem heilluðust að veruleikafirringunni jafnvel hafa tekið upp þá spillingarsiði sem Austantjaldsríkin fyrrverandi eru orðin svo annáluð fyrir.

Silja Bára stjórnálafræðingur getur auðvitað ekki haldið stöðu sinni við HÍ eftir svona lagað. Hún getur ekki kennt ungmennum um lýðræði, eðlilegt kosningarferli eða góða stjórnsýslu. Þetta er svo ósiðlegt hjá henni, ef satt er, að það nálgast eðli útrásasvínanna. Bókina á myndinni efst gæti hún kennt þangað til hún hættir.
http://postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/1016320/?fb=1

Stefanía Stefánsdóttir
09.02 2010 kl.18:15

Sammál Kristjáni Kristjánssyni það er komið nóg af ssssvvvvoooonnnaaaa fólki á Íslandi, hvað er eiginlega að hér er það bara óheiðarlegt fólk sem vill fara í framboð??????”””’

Einar E
09.02 2010 kl.18:19

“Forvalsreglurnar eru alls ekki yfir gagnrýni hafnar – og sjálfsagt að þær verði endurskoðaðar fyrir næsta forval af þar til gerðum stofnunum innan flokksins.”

Væri ekki nær að endurtaka kosninguna endurskoðuðum reglum? Það er verið að kjósa fólk til fjögurra ára.

Einar E
09.02 2010 kl.18:21

BTW, leiðinlegt að sjá fólk uppnefnt. Eyjan ætti að filtera út ljótar athugasemdir.

Sigurjón Vigfússon
09.02 2010 kl.18:21

Sóley segir Þorleif Gunnlaugsson fara með rangt mál á blogg- síðu sinni.

Krösus
09.02 2010 kl.18:22

Silja Bára segir í bloggfærslunni að róttækur feministi hafi sigrað miðaldra kall. Já nú skil ég þetta betur. Það eru öll meðöl leyfileg þegar ógó gamlir kallar eiga í hlut. Að þetta gamla fólk leyfi sér að tala. Af hverju getur það ekki bara dáið?

Sigurður #1
09.02 2010 kl.18:23

Silja Bára bloggar um málið, og þar er ekki minnstu iðrun að finna.

Þvert á móti, hún endar svona:

“Þessi umræða er að mínu mati lítið annað en moldviðri til að draga úr því að ung kona, Sóley Tómasdóttir, alkunnur róttækur femínisti, hafi lagt miðaldra mann að velli í keppni um oddvitasætið í forvali ríkisstjórnarflokks. Slíkt á auðvitað ekki að líðast.”

Þetta er semsagt réttlætt með því að Sóley sé ungur femínisti, en andstæðingurinn miðaldra maður.

Engin lög voru brotin, svo sjálfur stjórnmálafræðingurinn sér EKKERT RANGT VIÐ ÞESSA HEGÐUN.

Sigurður #1
09.02 2010 kl.18:24

Siðleysi VG hefur náð alveg nýjum hæðum í dag.

Langbestur
09.02 2010 kl.18:30

Þetta slær að manni óhug að sjá hversu þessi kona og Vg eru siðblindur flokkur. Eitt er að vera með ruglaðar skoðanir eins og VG en svo bætist þessi siðblinda við. Sóley verður að segja af sér og það strax.

Des
09.02 2010 kl.18:31

Sigurjón Vigfússon.
Ef Hannes Hólmsteinn Laxnes getur haldið stöðu sinni í HÍ þá geta það allir.

Kristján Kristjánsson
09.02 2010 kl.18:37

Hver eru gæði náms í HÍ.
Ef þau eru ekki meiri en siðferðismat Silju Báru gefur tilefni til að álykta þá er skólinn í verulega vondum málum.

Greifinn
09.02 2010 kl.18:42

Það á að brenna allir nornir!!

Ómar Kristjánsson
09.02 2010 kl.18:45

Fyndið að sjá æsing öfga-karlremna hérna sem annarsstaðar.

Að missa sig yfir að umræddur afbragðsstjórnmálamaður nái árangri.

Kallrembur: Hættið þessu bulli !

Þið eruð ykkur til minkunnar og stórskammar !

ES
09.02 2010 kl.18:48

Snýst þetta orðið um konur og karla Ómar? Máttu konur í prófkjörinu senda út seðla en ekki karlar?

Hilmar
09.02 2010 kl.18:51

Þvílík siðblinda!

Mikið hræðilega eigum við bágt, Íslendingar, ef ÞETTA lið er það sem á að siðbæta landið.

ÉG bara trúi ekki að óreyndu að forysta VG vilji leggja út í kosningar með þetta svindl á bakinu.
Ef svo er, hve eru þá helstu baráttumálin?
Baráttan gegn spillingu????

Þvílíkur sirkus sem þessi flokkur er.

gvald
09.02 2010 kl.18:54

Staðfestir þetta ekki að VG er ekki lýðræðisflokkur. Jón Bjarnason hafði einn aðgang að kjörskránni í prófkjöri í NV-kjördæmi á síðasta ári. Þetta er ekki ósvipað því sem tíðkast í Hvíta-Rússlandi þessa dagana og reyndar sömu aðferðir og Sjálfstæðisflokkurinn gerði brottrækar eftir svindl Sturlu í NV kjördæmi hér um érið.

Feministi
09.02 2010 kl.18:54

Ómar Kristjánsson: Það eru ekki bara karlrembur sem eru hissa og hneykslaðir. Það eru líka 28 ára kvenkyns feministar eins og ég. Ég er vonsvikin og döpur og sé ekki að ég geti kosið VG.

þór
09.02 2010 kl.18:57

Sturla Tómasdóttir

Ómar Kristjánsson
09.02 2010 kl.18:59

“Það eru líka 28 ára kvenkyns feministar eins og ég”

Hjúkket, gott að það voru ekki 29 ! Það segi eg alveg eins og er.

Guðrún
09.02 2010 kl.19:01

þvílíkt moldviðri í vatnsglasi.

Des
09.02 2010 kl.19:03

Ómar. Ég sé bara stuðningsmenn Sóleyjar tala um kyn og aldur. Hvaða máli skiptir þetta? Eru þetta eina rykið sem þið eigið?
Silja notaði þetta á bloggi sínu, sá þetta fyrst þar og síðan hefur þetta þyrlast.

Jón Búi
09.02 2010 kl.19:10

Hún Silja er sniðug að stússa
með kjörseðla er hún að blússa
hún keyri þá út
eins og mýkja á graut
finnur svo frið, fyrir því er hún að blessa.

Sigurður #1
09.02 2010 kl.19:15

Ómar Kristjánsson er nú ekki sá skarpasti í skúffunni.

Vara fólk við því að gera minnstu tilraun til að eiga við hann málefnanlegar eða vitrænar viðræður.

Það er bara ekki hægt.

Það er alveg í stíl við annað frá honum að réttlæta kosningasvondl, því svindlið hafi hvergi verið bannað.

Hilmar
09.02 2010 kl.19:18

Má búast við einhverjum frekari stefnubreytingum í VG, nú þegar allt í lagi er að svindla í prófkjörum, ef fórnarlömbin eru miðaldra karlar?

Er fyrirhugað að meina miðaldra körlum að bjóða sig fram?
Eða mega þeir bara ekki fá fyrsta sætið?

Ég er með tillögu. Í stað þess að svindla og svíkja lýðræðislegar hefðir, má bara ekki breyta lögum til að viðurkenna að Sóley Tómasdóttir og hennar líkar eiga að njóta forgangs í þjóðfélaginu?

Nú er lag, nákvæmlega þetta fólk er í ríkisstjórn.

Svei mér þá, ég er farinn að óttast að maður komi til með að sakna útrásarglæpamannanna.

D. Adams
09.02 2010 kl.19:24

Hvað er þetta gott fólk? - þetta er fullkomlega í anda femínískra gilda og siða. Femínisminn gengur út á að það eigi að gilda tvenn lög í landinu, önnur fyrir karla og hin fyrir konur. þegar síðan jafnrétti er náð (lesist: femínistar komnir til valda) þá má breyta lögunum aftur.
eða tvennar reglur gilda um frambjóðendur, en það er í lagi af því femínistinn kemst til valda en síðan er hægt að breyta því.

Anna Kristín Pétursdóttir, áður Móvinda
09.02 2010 kl.19:25

Kjörin uppákoma til að efla traust þjóðarinnar á flokknum... jamm og já...

Gummi
09.02 2010 kl.19:40

Til viðbótar við þetta má benda á að Jafnréttisstofa var notuð til að hafa áhrif á forvalið á Akureyri á dögunum. Kerlingarnar skulu komast að, no matter what!

Jakob Þór Haraldsson
09.02 2010 kl.19:44

“.....TÆKNILEG mistök segir Árni frændi...lol....!” Íslenskir stjórnmálaFLokkar fá mann ávalt til að brosa...:).

kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)

Rut
09.02 2010 kl.20:05

Það liggur fyrir að enginn svindlaði í þessu forvali. Kjörstjórn gaf grænt ljós á þær aðferðir frambjóðendur notuðu við utankjörfundarkosninguna og hefur nú ítrekað lögmæti þeirra með yfirlýsingu frá því í dag: http://www.vg.is/frettir/eldri-frettir/nr/4484

Umræðan aftur á móti hefur færst niður á það plan sem við mátti búast á þessum vettvangi. Í þessu tilfelli er sigur ungrar, feminískrar stjórnmálakonu eini “glæpurinn” sem framinn hefur verið.

Áður er en þið svo hamrið inn frekari tilefnislausar ærumeiðingar hvet ég ykkur til að lesa yfirlýsingu Silju Báru http://siljabara.eyjan.is/2010/02/syndajatning-i-moldviri.html

Njálgur
09.02 2010 kl.20:07

Mikið svakalega er stjórn VG vitlaus. Sóley er svo umdeild að ekki nokkur maður nema vinir hennar geta haft það í sér að kjósa hana. Ef Sóley verður í 1. sæti þá er andstæðingunum færður sigurinn.
Svo hefði maður haldið að Sóley væri heiðarlegri en þetta.

Greifinn
09.02 2010 kl.20:10

Feministar hugsa bara um sjálfa sig!!

Sigurður #1
09.02 2010 kl.20:17

Rut telur þetta í lagi, af því engin lög voru brotin.

Tekur útrásarvíkinginnáþetta.

Siðferði er einhver alveg óþekkt stærð í þessum hópi.

Hilmar
09.02 2010 kl.20:26

Það er einkenni á siðblindu fólki, að það gerir aldrei neitt rangt.

Og þegar það kemst ekki lengur upp með að ljúga sakleysinu, þá eru búnar til hentiskýringar.
Í þessu tilviki er hentiskýringin að, Sóley, þessi róttæki feministi lagði ógeðslegan miðaldra mann.

Það er allavega uppleggið hjá Silju Báru, stjónmálafræðingsins í Háskólanum, vinkonu svindlarans.

Hugsið ykkur allar blóðsugurnar sem hafa lagst á brjóst okkar skattgreiðenda.

ES
09.02 2010 kl.20:32

Ég velti því fyrir mér hvort þú myndir tala svona Rut ef kjörstjórn hefði bannað róttæka femínistanum að senda út seðla en leyft miðaldra karlinum að gera það.

Blámann
09.02 2010 kl.20:40

Jesús Kristur.. Þurfum við fleiri konur eins og hana Kolbrúnu Halldórsdóttir!!!

Bleikt... Blátt ..... Bleikt.... Blátt.... Bleikt.... Blátt......

Mér hryllir við orðið ” Róttækur Feministi ” jaðar við að vera svipað og félagslegt hryðjuverk. Til hvers þurfum við Róttæka Feminista?? Hvað ætlar þessi kona að gera? Hvað lofaði hún systrum sínum? Hvað felst eiginlega í þessum Vinstri Grænum? Þessi flokkur er orðin 2 comlicated!! VG verður ekki til í núverandi mynd í næstu kostningum.. Ekki glæta.

Bjarki
09.02 2010 kl.20:41

Þeir sem tapa mest á þessu eru vinstri grænir. Að fá þetta fyrirbæri á listann væri auðvitað áfall fyrir hvern sem er.

Hér er ég
09.02 2010 kl.21:28

Silja Bára
Hefði kennarinn minn komið og beðið mig að kjósa andskotann þá hef’ði það verið sjálfsagt mál því annars hefðu einkunnir lækkað

KVERÚLANTINN
09.02 2010 kl.21:28

Hvað er þessi kona að gera í VG?
Af hverju stofnar hún ekki sinn eigin flokk.......Feministaflokkinn??

Siggi
09.02 2010 kl.21:29

Svona er Ísland í dag..

Ari
09.02 2010 kl.21:34

HA, ha ,ha, ha, ha ,ha

HA

Til hamingju Sóley með að þú fæddist hér
eigðu rólega nótt og ég held með þér
Vinstri Fem eða hvað sem þú ert

Endilega reynið að botna þetta

Elsa Ólafsdóttir
09.02 2010 kl.21:42

Er ekki kominn tími á persónukjör,,

Ungt fólk sem aldrei hefur unnið að ráði, fetar sig upp úr ungliðahreyfingum stjórnmálaflokkana og komast inn í bæjar og borgarstjórn á örfáum atkvæðum klúbbfélagana. Með klækjum og brögðum þá er hægt að ná lankt. Atkvæðafjöldi á bak við efstu menn eru jafnvel undir 1000.

Ef fólk nær að fanga athygli fjölmiðla, þá er gatan greið á alþingi.
Hvað eru margir þingmenn sprotnir upp úr þessu módeli?

Hvar er lýðræðið í þessu fyrir þann fjölda sem ekki er flokksbundinn?

Vandamálið er að þessu verður ekki breytt, þar sem þeir sem sitja í bæjarstjórnum og borgarstjórn standa í vegi fyrir breytingum.

Ég sting upp á því að þrátt fyrir að pólitískir klúbbar þessa lands séu búinir að raða upp sínum listum, þá verði persónukjör í vor!!

PP
09.02 2010 kl.22:02

Ímyndið ykkur fjölmiðlaFÁRIÐ hefði þetta farið öfugt. Ef hann hefði sigrað og öll þessi svindlumræða væri um hann. Femmurnar myndir gjörsamlega TRYLLAST!!

Njálgur
09.02 2010 kl.22:25

Er VG klofinn flokkur?
Ég er farinn að halda það, Silja Bára og Sóley eiga enga samleið með hinum þjáða verkalýð. Þær eru öfga femínistar sem eru gjörsamlega búnar að týna sér í sínum sjálfhverfa menntasnobb heimi.

Spy
09.02 2010 kl.22:25

VG er fallinn flokkur - þeir hafa sýnt, séð og tapað.

Sorglegt að líka VG sé spillingaflokkur -
sem á 1 skilið og það er að víkja fljótt og skammast sín stórlega !

Jósí
09.02 2010 kl.22:34

Burt með Silju Báru úr Háskólanum!
Hugsið ykkur þessi kona er að réttlæta kosningasvindl af því andstæðingurinn er miðaldra maður!
Burt með Sóleyju Tómasdóttur!
Hyski!

Hvar er Hörður á þessum tímum?

tryggvi
09.02 2010 kl.22:36

Þetta er mesti skandallinn eftir hrun ef undanskilið er skipun Steingríms Joð á Svavari Gests í samninganefnd í Icesave

Addi Jónasar
09.02 2010 kl.22:48

Takk fyrir að eyðileggja góðar vonir okkar um 3 til 4 fulltrúa VG í borgarstjórn Sóley. Nú kemst þú í mesta lagi 1 inn.

haukur kristinsson yngri
09.02 2010 kl.22:56

þau virðast gera allt til að sjallar komi vel út, hvað er þetta lið að pæla? Sóley ´Tómas í fyrsta sæti, hvað næst?

vilhjalmur
09.02 2010 kl.22:57

Vandamálið liggur í formanni VG lygamerðinum honum Steingrími J, Hann er búinn að gefa tónninn í allan vetur. Allt er leyfilegt í þágu valdagræðgisvæðingu
hvort heldur sé með lygum eða leynimakki. Beljurnar fylgja svo því sem fyrir þeim er haft.

haukur kristinsson yngri
09.02 2010 kl.23:00

en svona til gamans, þá virðist hún vera með 2 brjóst í andlitinu

Addi Jónasar
09.02 2010 kl.23:05

Vilhjálmur leitaðu þér geðhjálpar. Óþarfi að ata Steingrím auri, manninum sem einn hefur staðið í lappirnar frá því allt hrundi, þó Sóley sé ömurlegt tilfelli.

hh
09.02 2010 kl.23:21

Þetta varð að fara svona enda flaug Svavar heim til smyrja svindlið með sinni skítalykt. Þessi kona á ekkert erindi til forustustarfa í pólitík , mesta lagi gæti hún verið á kantinum og starfað í þágu sinna mjög svo furðulegra viðhorfa.

Arnar
09.02 2010 kl.23:32

Það er náttúrulega bara fyndið að láta þessa kellingu æsa ykkur svona.

Miðaldra maður
09.02 2010 kl.23:35

Eru það ekki svona dömur sem voru hér í den kallaðar “Píkur” ?

Íhaldið
10.02 2010 kl.00:03

Mér finnst að Eyjan eigi að hafa link sem heitir íslenska skítaskálin eða jafnvel haughúsið ... í hana færu flest kommentin á við þessa frétt ...

Ómar Kristjánsson
10.02 2010 kl.00:13

Þetta sínir bara í hvernig ástandi margir eru sem eru að kommenta hérna á eyjunni. þ.e. franklí spíkíng: Það er bara greinilega ekki í lagi !

Guðmundur Jónsson
10.02 2010 kl.01:05

Einhversstaðar las ég á blogginu að Sóley væri fulltrúi Svavars Gestssonar, er ekki nóg að hann semji okkur til andskotans í Icesave. Heldur beitir hann svindli til að koma sínum fulltrúa inn.

Ég veit nú ekki mikið um þennan Þorleif Guðmundsson en hann kemur fyrir sjónir sem heiðarlegur og hreinskilinn maður. Mér finnst hinsvegar augljóst að Sóley Tómasdóttir eigi að víkja til hliðar eftir þetta og sýni þannig fordæmi að því hvernig Ísland VG vill byggja upp. Það gerði þessi Þorleifur í það minnsta með því að koma með þetta fram á sjónarsviðið...

Haraldur Ingi Þorleifsson
10.02 2010 kl.01:36

Ég hef áður kommentað á færslur á eyjunni um þetta mál. Eins og þar kom fram er ég sonur Þorleifs Gunnlaugssonar.

Ég er ennfremur mjög hallur undir femínisma og kvenfrelsi. Ég sé ekki betur en að nánast allir ættu að geta skrifað undir þær stefnur að mestu eða öllu leyti ef þeir kynntu sér staðreyndir.

Eins og segir á vef Femínistafélags Íslands: “Femínisti er karl eða kona sem veit að jafnrétti kynjanna hefur ekki verið náð og vill gera eitthvað í því”. Mig langar ekki til að þekkja fólk sem getur ekki tekið undir þetta.

----

Ég vil bara ítreka að mér blöskrar hvernig sumir hér leyfa sér í nafnleysi að tala um konur og femínista. Ekki veit ég hvaðan ykkar reiði kemur en ég vona að hún eigi sér a.m.k. ekki aðrar birtingamyndir en þær að þið rausið hér út ykkar kvenfyrirlitningu.

Þetta mál kemur því bara ekkert við hvort Sóley sé femínisti eða ekki, ung eða gömul, kona eða karl. Hún er góðra gjalda verð og öflugur kandídat.

----

Ég vil líka taka það fram að Silja Bára segist ekki hafa keyrt út með kjörseðla. Ég tek þá skýringu sem sannri. Það sem hún hinsvegar gerði var að hringja í fólk og bjóðast til að senda til þeirra einhvern með atkvæðaseðil. Það er staðreynd sem hún virðist sátt við. Gott og vel. Ég er reyndar ekki sammála því en get lítið meira um það sagt.

Þau orð sem hún endar sinn pistil á dæma sig að ég held alveg sjálf. Ég ítreka bara það sem hér kemur fram að ofan. Þetta snýst ekki um femínisma eða kyn.

Upphaflega fréttin um að hún hafi farið með seðil heim til nemanda var röng þar sem um var að ræða fyrrverandi nemanda eins og hún rekur sjálf. Hún sat því mér vitandi alls ekki yfir neinum núverandi nemanda og horfði á hann fylla út seðil. Við skulum bara halda okkur við staðreyndir.

Þetta mál er orðið alveg nógu þvælt án þess að þar séu dregin fram ósannindi og níð.

nn
10.02 2010 kl.02:09

Sóley er fráleitt kandidat Svavars Gestssonar.

Hér er gott innlegg um manneskju sem fjallar um siðferði í stjórnmálum

http://postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/1016320/?fb=1

Raftur
10.02 2010 kl.03:26

Ómar, farðu nú að stíga skrefið til fulls og láttu klippa undan þér þannig að þú verðir gjaldgeng kerlingarskorpa í faðmi þinna ömurlegu feministavina. ST er og verður öfgaskorpa og á ekkert erindi nokkurstaðar í stjórnmálum.

Sætur Hundur
10.02 2010 kl.03:27

Já já ok Haraldur Ingi, Þú ert sonur Þorleifs og allt það og þú ert margbúinn að koma því til skila á netinu. Farðu nú ekki að reyna að troða þínum feminisma á mig eða þá sem vilja ekkert með þennan Sóleyjarfeminisma hafa.

Við erum kjósendur í þessu landi og viljum heiðarleika í framkvæmd allra kosninga hvort sem er innanbúðar hjá stjórnmálaflokkum eða aðrar almennar þing/sveitastjórnakosningar.

Greifinn
10.02 2010 kl.05:57

Ó mæ god.. Þú ert svo gay Ómar.. Ó mæ god
Þú greinilega vilt verða kerling!!

Sigún G.
10.02 2010 kl.08:05

Úr bloggi Silju Báru:
...........
“Þessi umræða er að mínu mati lítið annað en moldviðri til að draga úr því að ung kona, Sóley Tómasdóttir, alkunnur róttækur femínisti, hafi lagt miðaldra mann að velli í keppni um oddvitasætið í forvali ríkisstjórnarflokks. Slíkt á auðvitað ekki að líðast. ”

Þarna beit hún höfuðið af skömminni.

Manni liggur við að skammast sín fyrir að vera kona verandi vitni að þessu hrokafulla viðhorf til eðlilegra fyrirspurna um vafasamt ferli. Þetta er til skammar fyrir feminista og Vinstri græna.

Erna Hrund
10.02 2010 kl.09:54

Ég sé það að athugasemd sem ég setti hér inn í gærkvöldi þar sem ég einfaldlega benti á forvalsreglurnar sem eru öllum sem hafa aðgang að neti aðgengilegar og því ætla ég einfaldlega að setja mína athugasemd aftur hér inn.

“Kosningarétt í forvalinu hafa allir félagsmenn sem hafa kosningarétt til sveitastjórna í Reykjavík og skráðir eru í Vinstrihreyfinguna – grænt framboð 10 dögum fyrir forval eða 27. janúar 2010. Auk þess hafa ungliðar með lögheimili á svæðinu kosningarétt í forvali þó þeir hafi ekki náð kosningaaldri. Félagsmenn geta fengið kjörseðil sendan í tölvupósti ef þeir óska þess. Litið er á slík atkvæði sem utankjörfundaratkvæði. Þeir sem kjósa þannig bera ábyrgð á að koma utankjörfundaratkvæðaseðlinum í LÖTURPÓSTI til kjörstjórnar áður en talning atkvæða fer fram. Um slíka póstkosningu skal fara samkvæmt meðfylgjandi reglum.”

Þetta er tekið upp úr forvalsreglunum sem samþykktar voru 12. nóvember 2009 fyrir þá sem vilja kynna sér þér bendi ég á þennan link: http://www.vg.is/frettir/eldri-frettir/nr/4347

Samkvæmt þessu er aðferðin sem Sóley og hennar fólk stundaði ekki heimil og því greinilegt að þessi 15 atkvæði, sem ég vil þó meina að hafi verið mun fleiri, eru ógild. Þar sem engin leið er að sanna hvaða atkvæði þessi 15 eru af þeim 84 sem bárust hljóta þau öll í heild sinni að vera ÓGILD!

Orðrómur er um það að ákveðinn hópur hafi tekið sig saman og ætlað að ná efstu sætum með því a nýta sér þessa leið, því miður er ekki hægt að sanna það með vissu en það var ákveðið mynstur sem sást vel eftir að talningu á utankjörfundaratkvæðunum var lokið. Það er mín trú að þarna hafi verið hópur nokkurra sem starfaði en einnig nokkrir sem voru teknir inn í þennan hóp óspurðir. Svona hegðun blöskrar mér og mér þykir hún barnaleg og þetta er fólkið sem kemur til með að hafa áhrif á borgarmálin.

Ólafur
10.02 2010 kl.09:58

Það er ekkert mál fyrir kjósendur að dæma svona vinnubrögð, bara muna þetta þegar kemur að kosningum, annað hvort strika yfir nöfn eða kjósa annan flokk

Guðrún
10.02 2010 kl.10:32

Það voru 84 utankjörstaðaratkvæði greidd þennan dag þannig að það hafa nú greinilega fleiri gert þetta en Sóley Tómasdóttir. Kannski hefur Þorleifur verið sá eini sem hefur ekki gert þetta?

Af hverju beinist reiði ykkar ekki að öllum hinum sem gerðu þetta? Er hatur ykkar út í femínista að blinda ykkur?

Þar að auki voru 15 atkvæði sem voru greidd Sóleyju á þennan hátt en 40 atkvæði skildi þau Þorleif að þannig að hvort sem þessi atkvæði hefðu verið gerð ógild eða ekki, þá hefði Sóley sigrað. Þannig að ég sé ekki hverju það hefði átt að breyta að ógilda þau. Sóley er samt númer eitt á listanum.

Erna Hrund
10.02 2010 kl.10:35

Ég hata ekki femínista alls ekki en ég er jafnréttissinnuð mér finnst að karlar og konur ættu að vera jöfn en ekki eigi að upphefja konur bara af því þær eru konur.

Ég tel það vera kjaftæði að sóley hafi bara verið greidd 15 atkvæði á þennan hátt.

Kæra Guðrún ég hvet þig til að lesa þessa grein http://www.joiragnars.blog.is/blog/joiragnars/entry/1016525/

hann hittir naglann á höfuðið, þetta er það sem var í gangi.

Guðrún
10.02 2010 kl.10:42

Af hverju er það kjaftæði að 15 atkvæði hafi verið greidd henni á þennan hátt? Ert þú með einhver gögn til að sanna mál þitt eða er þetta bara gut fealing?

Erna Hrund
10.02 2010 kl.10:48

á sama hátt og þú getur sannað að þau hafi bara verið 15 og þá er ég ekki að biðja þig um að endurskrifa það sem sóley hefur sagt.

tumi
10.02 2010 kl.10:59

Þetta er bara skandall og tími VG er liðinn. Sóley mun bíða afhroð í vor.

PP
10.02 2010 kl.13:05

Djöfull er þetta ógeðsleg mynd af henni.

Greifinn
10.02 2010 kl.13:21

Ég hata feminista :)

Hvernig væri að hafa feminista tertu næstu áramót... :D

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar