Sólon Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri Búnaðarbankans, kveðst ekki hafa viljað lána Björgólfsfeðgum til að kaupa í Landsbankanum árið 2003. Þáverandi bankastjóri Landsbankans, Halldór J. Kristjánsson hafi lagt þunga áherslu á að lánið yrði veitt.
Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins í kvöld.
Greint var frá því í fréttum Stöðvar 2 í gær að Arion banki hefði höfðað mál á hendur Björgólfi Thor Björgólfssyni vegna persónulegra ábyrgða sem hann og faðir hans, Björgólfur Guðmundsson, gengust í fyrir 3,4 milljarða króna láni til að kaupa hlut í Landsbankanum árið 2003. Fram kom að Sólon Sigurðsson, þáverandi bankastjóri Búnaðarbankans, veitti þeim lánið - en krafðist sjálfskuldarábyrgðar.
Í frétt RÚV var haft eftir Sóloni að hann hefði fengið símtal frá Halldóri J. Kristjánssyni, þáverandi bankastjóra Landsbankans, sem hefði farið fram á að lánið yrði veitt feðgunum. Sólon segist hafa furðað sig á beiðninni þar sem hann vissi ekki betur en að feðgarnir hefðu fengið að kaupa Landsbankann á grundvelli þess að þeir væru að koma með svo mikið af dollurum til landsins.
Sólon kvað Halldór hafa lagt mikla áherslu á að lánið yrði veitt, sem Sólon hafi neitað að gera í fyrstu. Á endanum hafi Halldór sagt að Sólon yrði að lána Björgólfsfeðgunum rétt eins og hann hefði sjálfur veitt S-hópnum lán til þess að kaupa Búnaðarbankann.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
42 ummæli
Rita ummæli09.02 2010 kl.21:21
Slóð
Heyrði vitðalið við hann í útvarpinu. Heldur aumingjalegt. Vildi ekki lána en lánaði samt. Sér er nú hver viljinn segi ég nú bara og hann hitti ekki einu sinni lántakendurna. Aumingjalegt!
09.02 2010 kl.21:23
Slóð
Helmingaskiptareglan í praxís:
Viðskiptaarmur Framsóknarflokksins fékk Búnaðarbankann (með láni frá Landsbankanum)
Viðskiptaarmur Sjálfstæðisflokksins fékk Landsbankann (með láni frá Búnaðarbankanum).
Krúttlega einfalt en því miður afdrifaríkt fyrir þjóðina.
09.02 2010 kl.21:26
Slóð
Gleymdi að á 11. stundu varð að losa VÍS út úr Landsbankanum að viðlögðum stjórnarslitum svo fléttan gengi upp.
09.02 2010 kl.21:31
Slóð
Frekar barnaleg frásögn, bankastjóri annars banka - samkeppnisaðila - fjarstýrir risa-útláni bankans! Og hann fór ekki einu sinni með þetta mál fyrir neina aðra innan bankans! Maðurinn greinilega ekki í tengslum við umhverfi sitt né ábyrgð.
09.02 2010 kl.21:31
Slóð
Enn eitt fórnarlambið. Voðalega voru allir eitthvað áhrifalausir í þessu þjóðfélagi. Jafnvel fyrrverandi seðlabankastjóri var eins og lítill hvutti sem enginn hlustaði á.
09.02 2010 kl.21:43
Slóð
Sólon Sigurðsson sagði ekki hálfan sannleikann í viðtalinu í Ríkisútvarpinu, enginn bankastjóri ríkisbanka getur tekið svona ákvarðanir á eigin spítur.
Þarna komu auðvitað ráðherrar Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks að málunum.
09.02 2010 kl.21:46
Slóð
Þetta er svo magnað.
Bankaráðsformaður Halldórs Jóns var Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins.
Halldór Jón fór beint í bankastjórastólinn úr embætti ráðuneytisstjóra í ráðuneyti Finns Ingólfssonar sem fékk lánið frá Landsbankanum til að kaupa Búnaðarbankann.
http://www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?grein_id=395219
09.02 2010 kl.21:51
Slóð
Söluferli Landsbankans verður að rannsaka ofan í kjölinn, og ekkert kjaftæði með það !!!
09.02 2010 kl.21:55
Slóð
Ofsalega er ég hissa ef Kjartan Gunnarsson kemur nálægt þessu. Eða ekki.
09.02 2010 kl.21:55
Slóð
Þegar maður veit hvað gerðist er þetta ljóta bullið:
http://www.kaupthing.is/?PageId=874&NewsID=4854
Áhrif á íslensku krónuna
Hlutafé Landsbankans er skráð í íslenskum krónum. Verði af kaupum Samson á hlut ríkisins munu félagarnir þurfa að skipta töluverðu magni af gjaldeyri yfir í krónur. Eftirspurn eftir krónum mun því aukast og það er líklegt til að styrkja gengi hennar. Mikilvægt er að hafa í huga að hér er um erlent áhættufjármagn að ræða, ekki lánsfjármagn. Þetta er til þess fallið að auka bjartsýni og styðja þannig við gengi krónunnar. Greiningadeild telur ekki æskilegt að krónan styrkist mikið frá því sem nú er en telur afar eftirsóknarvert að fjárfestar fái aukna tiltrú á krónuna. Stöðug og sterk króna eykur þar að auki svigrúm Seðlabanka Íslands til að lækka vexti.
09.02 2010 kl.21:58
Slóð
Hefur einhver staðfest að þeir fengu 41 milljarð fyrir Bravo?
http://www.arionbanki.is/?PageId=874&NewsID=4600
Framkvæmdanefnd um einkavæðingu hefur nú til skoðunar bréf frá Björgólfi Thor Björgólfssyni, Magnúsi Þorsteinssyni og Björgólfi Guðmundssyni þar sem óskað er eftir viðræðum um kaup á umtalsverðum hlut í Landsbanka Íslands af ríkissjóði. Þremenningarnir voru stofnendur og eigendur bjórframleiðandans Bravo sem seldur var til Heineken fyrr á þessu ári en verðmæti sölunnar var um 41 ma.kr.
09.02 2010 kl.22:10
Slóð
GH.
Þetta var stór blekking sem tókst. Auðvitað voru engir peningar. Þeir keyptu sér bara jakkaföt, töluðu um milljarða, tóku svo lán og enginn fattaði neitt.
09.02 2010 kl.22:12
Slóð
BJÖGGI - BORGA BARA - HVAÐ ER MÁLIÐ
09.02 2010 kl.22:22
Slóð
Hvað meinar hann með þrýstingi? Duttu þrjú hundruð vínber oná þindina á honum?
09.02 2010 kl.22:36
Slóð
Helmingaskiptin eins og þau gerast best - endilega að styðja svo Bjarna Ben og Sigmund Davíð til góðra verka
09.02 2010 kl.22:40
Slóð
Hverjir voru stjórnarformenn bankanna? Þeir þegja þunnu hljóði. Þetta er gagnlaust yfirklór bankastjóra sem veit betur. Veit að hann hefur farið í einu og öllu eftir flokksvaldinu. Betra að viðurkenna að hann hafi verið hlýðinn vikapiltur. Sólon hefur þó meiri kjark en margur flokksafglapinn.
Samspilling og leikflétta sem varð afdrifaríkari en orð fá lýst. Hinar hörmulegu afleiðingar blasa allstaðar við og eiga eftir að koma enn betur í ljós. Sýnir að fjórflokkurinn ef ekki fimmflokkurinn hefur lokið sínu tímaskeiði. Úrelt, ógagnsætt og marklaust skrímsli á netöld. Aðeins krafan um stjórnlagaþing fólksins getur fært þetta í það horf að hér verði búandi.
Þingmenn bera ábyrgð á því að hér verði breytingar, en ekki er að sjá að nokkuð hafi breyst á Alþingi. Flokkurinn, foringinn og flokksklíkan gengur fyrir, en fólkið, hinn venjulegi launamaður, bóndinn og smáatvinnuveitendur verða að bjarga sér sjálfir, draga vagninn með meiri byrði án þess að fá leiðréttingu.
09.02 2010 kl.22:46
Slóð
Ég var að google Bravo Annual Report en að er eins og hann sé ekki til. Getur einhver sent mér slóð á hann.
Hins vegar fann ég ársreikning Heineken fyrir árið 2002 og sá ég að Heineken keypti Bravo á USD 400 million. Þar sem USD var um 100 á þessum tíma er hér komin 41 milljarðurinn.
En ég sá líka þar að vegna þess að salan brást að þá borgaði Heineken “aðeins” USD 350 million.
Þannig að 41 milljarður er ekki rétt tala!
09.02 2010 kl.22:47
Slóð
þetta er aðeins smá opnun á þessu máli.Viðbjóðurinn kraumar allur undir
09.02 2010 kl.22:50
Slóð
Er maðurinn ekki hreinlega að segja: “Plís, plís, ekki ég!”?? - eða þannig.
09.02 2010 kl.22:52
Slóð
Hver voru sjálfsskuldarábyrgðarveðin fyrir láninu? Er eitthvað sem þessi feðgamistök eiga sem ekki er alveg skuldsett upp í topp?
Af hverju eru feðgamistökin nú að “semja” um greiðslu lánins við Finn Sveinbjörnsson? Er hann ekki aðeins of svag fyrir afskriftum á skuldum óreiðumanna?
Nefnið mér eitt dæmi um það sem þessir menn hafa borgað með e-u öðru en lánsfé?
09.02 2010 kl.22:53
Slóð
Trúlegt að málið hafi aðeins verið rætt milli þeirra tveggja, Sólons og Halldórs J. 3.500 milljónir, bara sisona.
Það er auðvitað haugalygi. Þeir sem sáu um að bankarnir færu í réttar hendur voru að sjálfsögðu með í ráðum ásamt öllu hyskinu sem hirti bankana.
Hvítþvotturinn er að hefjast fyrir alvöru.
09.02 2010 kl.22:55
Slóð
Sólon gerði sér strax grein fyrir því að þetta var í raun ekkert lán heldur bara RÁN um hábjartan dag, skipunin kom frá RÁNfuglinum - sorry - BÓFAflokknum. Hafa menn virkilega gleymt þvi þegar ARI sagði sig úr “einkavæðingarnefndinni” þegar hann varð var við að um var bara að ræða “einkavinnavæðingu til fólks sem var innmúrað í réttu FL-okkanna...!” Er skammtímaminni íslenska sauðsins svona rosalega lélegt....! Ég er mjög hlyntur þvi að Ríkislögreglustjóri standi í vegi fyrir að “Hells Angels” nái starfsemi hérlendis, en því miður gengur BÓFAflokkur laus í stjórnkerfinu. Spurning hvort ekki löngu kominn tími á að banna starfsemi SjálfstæðisFLokksins hérlendis???. Í næstu kosningum mun SjálfstæðisFLokkurinn eflaust fara beint á Litla Hraun og sækja sýna frambjóðendur þar. Það liggur beinast við....!
kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)
kv. Heilbrigð skynsemi (fun.blog.is)
09.02 2010 kl.22:57
Slóð
Búnaðarbankinn var líka beittur þrýstingi til að lána Eyþóri Arnalds og Illuga Gunnars án tryggingar milj. í tugatali til að taka þátt á viðskiptum í Asíu. Það átti að vera þeirra hlutur á móti hlut þeirra Skjás Eins félaga, Árna og Kristjáns, sem fengu “lán” frá símanum. Um 2002 til 2003. Ef ekki hefði komist upp um “landsímalánið” hefði það gengið í gegn. Þar þarf engin að efast um Davíð Odds fékk ýmssa bankastjóra til að koma sínum mönnum vel fyrir í kerfinu. En ekki gengur allt upp. Þetta var altalað innan ákveðnar kreðsu hverjir það væri sem kæmu inn með fjármagn á móti þeim Skjás Eins mönnum. Það voru ríkissbankapeningar, auðvitað. Í þá daga þorði þó enginn að anda.
09.02 2010 kl.22:58
Slóð
Afhverju þetta einelti gegn Bjöggunum Baugsliðarnir sleppa.
http://www.pressan.is/pressupennar/Lesa_Hannes/thrjar-spurningar-um-baugsfedga
09.02 2010 kl.23:00
Slóð
Þetta er nú ekki sérlega trúverðugt hjá Sólon, að hann hafi einn tekið ákvörðun
um þessa lánveitingu, 3.4 miljarðar 2003 samsvara 5.3 miljörðum í dag, að reglur Búnaðarbankans þá hafi verið þær að hann einn gæti tekið þessa
ákvörðun er ekki trúverðug.Gaman væri að vita hvert eigið fé Búnaðarbankans
hafi verið á þessum tíma, þessu trúi ég ekki þó svo hann hafi látið Elínu fylgjast
með.
09.02 2010 kl.23:01
Slóð
Djöfulsins lygarar:
http://www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?grein_id=779121
Þeir félagar í Samson áttu í raun frumkvæðið að því að ríkið seldi hlut sinn í Landsbankanum í árslok 2002. Í júní það ár sendu þeir bréf til framkvæmdanefndar ríkisstjórnarinnar um einkavæðingu þar sem þeir lýstu áhuga á að gerast kjölfestufjárfestir í bankanum. Segja má að þetta bréf hafi orðið til að ýta við þeirri einkavæðingu ríkisstofnana sem ríkisstjórnin hafði lýst yfir að hún stefndi að, en hafði verið í láginni um nokkurt skeið. Í kjölfarið lýstu fleiri yfir áhuga á að gerast kjölfestufjárfestir í Landsbankanum en ráðherranefnd um einkavæðingu ákvað að ganga til viðræðna við Samson. Landsbankinn hafði verið til sölu í Lundúnum í u.þ.b. ár. Stjórnvöld vildu fá erlenda fjárfesta að bankanum en það hafði ekki tekist. Eitt af því sem réð úrslitum með val á Samson sem kjölfestufjárfesti í Landsbankanum var einmitt sagt vera það að hópurinn lýsti því yfir að hann myndi greiða kaupverðið í Bandaríkjadölum.
09.02 2010 kl.23:03
Slóð
Sólon viðurkenndi í raun að hann er fífl. Vildi fyrst ekki lána, en lét svo undan þeim rökum að S-hópurinn hefði fengið lán hjá Landsbankanum fyrir Búnaðarbankakaupunum. Sic!
Þetta er svo yfirgengileg vitleysa að maður hefur aldrei heyrt annað eins. En Sólon lufsaðist a.m.k. til þess að láta feðgana vera persónulega ábyrga. Hann má þó eiga það, kalltuskan.
Skrítið að þetta um persónulegu ábyrgðina skuli ekki hafa komið fram fyrr. T.d. i tengslum við eldri fréttir um að þeir Björgólfsfeðgar hefðu boðist til að greiða 50% skuldarinnar (eða kannski var það bara 50% höfuðstólsins án vaxta).
09.02 2010 kl.23:13
Slóð
Eru Hells Angels nokkuð verri en sú mafía sem hefur tröllriðið íslenskum almúga?
09.02 2010 kl.23:44
Slóð
Viljið þið ekki aðeins skoða Árna Tómasson í þessu máli, mjög áhugavert hvernig maðurinn hefur gersamlega verið viðriðinn drulluna frá upphafi og er ennþá að.
10.02 2010 kl.00:04
Slóð
Þetta er bara sýnishorn á því sem koma skal. Verum bara róleg. Í dag fengu margir bréf frá “sannleiksnefdinni” og sitja á settinu akkúrat núna.
Með símann í annari hendinni, froðufellandi af heift yfir óréttlæti heimsins.
Sjá ekki bjálkann í sínu eigin auga en mæna á flísina í auga vinarins sem brást. Kjaftaði frá.
Þessir auðrónar hafa allir hreðjartök hver á öðrum.
Það er ekki flókinn og langur listi sem hefur orðið mönnum að falli í gegnum aldirnar.
Listinn er nokkurnveginn svona:
Barátta um landssvæði.
Barátta um völd.
Barátta um peninga.
Kvennfólk.
10.02 2010 kl.00:22
Slóð
Varðandi kaup Heineken á Bravo þá hafa félagarnir líklega ekki átt nema 10-20% restin verið í eigu áhættusjóðs sem fjármagnaði þá. Síðan er mjög líklegt að inn í kaupverði Bravo sé yfirtaka skulda.
10.02 2010 kl.00:23
Slóð
“Á endanum hafi Halldór sagt að Sólon yrði að lána Björgólfsfeðgunum rétt eins og hann hefði sjálfur veitt S-hópnum lán til þess að kaupa Búnaðarbankann.” Svona var þetta Framsókn - Sjálfstæðisfl. ef þú þá ég. Er þetta svona ennþá? Hvað eða hvernig er með lánið frá Landsbankanum? Var það greitt upp með fyrstu arðgreiðslu? Hverjir voru í stjórn þessara banka? Tveir bankastjórar taka ekki svona ákvarðanirsím á milli - er það? Þessi frétt vekur upp endalausar spurningar
10.02 2010 kl.00:32
Slóð
Þetta viðtal sýnir bara að menn létu segja sér fyrir verkum! Höfðu ekki sjálfstæða hugsun eða siðferði á við maur. Melluðust á milli hagsmunaaðila eftir því sem þeim var sagt að gera.
Óhuggulegt og ömurlegt.
10.02 2010 kl.00:33
Slóð
@Arn:
“Búnaðarbankinn var líka beittur þrýstingi til að lána Eyþóri Arnalds og Illuga Gunnars án tryggingar milj. í tugatali til að taka þátt á viðskiptum í Asíu. Það átti að vera þeirra hlutur á móti hlut þeirra Skjás Eins félaga, Árna og Kristjáns, sem fengu “lán” frá símanum. Um 2002 til 2003. Ef ekki hefði komist upp um “landsímalánið” hefði það gengið í gegn. Þar þarf engin að efast um Davíð Odds fékk ýmssa bankastjóra til að koma sínum mönnum vel fyrir í kerfinu. En ekki gengur allt upp. Þetta var altalað innan ákveðnar kreðsu hverjir það væri sem kæmu inn með fjármagn á móti þeim Skjás Eins mönnum. Það voru ríkissbankapeningar, auðvitað. Í þá daga þorði þó enginn að anda”.
Þetta er áhugavert. Ertu að tala um Illuga Gunnarsson alþingismann? Og Eyþór Arnalds wannabe bæjarstjóra í Árborg, ölvunarakstursmann og ljósastaurabana sem er að fara framboð í vor?
10.02 2010 kl.01:56
Slóð
það átti að bera virðingu fyrir þessu fólki og dabba og dórfinni ? hvar höfum við verið ? hvar erum við stödd ? og hann Eyþór ? grunaði lengi Illuga um græsku , manneskjur ? orðin ná bara ekki yfir þetta lengur , hvað verður ? hvað er til ráða ? hvejir eru aðal óvinir þjóðfélagsins. þarf ekki að kortleggja það fólk í töluröð og tíma , koma svo upp myndum af þeim í hvert fjós og kamar á Islandi ? óvinir þjóðfélags nr 1. 2. 3 . og svo fram
10.02 2010 kl.02:03
Slóð
,,Hélt að þeir væru að koma með fullt af dollurum frá Rússlandi...!” hehehehe...heyrt þann betri! :)
10.02 2010 kl.08:22
Slóð
Þegjandi afskriftir Jóns í BYKO
10.02 2010 kl.09:13
Slóð
Halldór J Kristjánsson þykist ganga á Guðs vegum og vera frelsaður, en lætur Mammon ráða för, enda alinn upp við spillinguna á Kumbaravogi.
10.02 2010 kl.10:15
Slóð
Agnes stjörnublaðamaður á Mogganum fer vitaskuld í málið og Staksteinar og leiðarinn munu fordæma þessa spillingu...eða hvað?...
10.02 2010 kl.10:35
Slóð
Þetta er auðvitað ömurlegt. En Sólón er þó skárri en sumir aðrir því hann sá þó um að þeir væru i persónulegri ábyrgð. Ekki eru t.d. kúlulán sumra þingmanna með persónulega ábyrgð....er það nokkuð....
En hvernig dettur fólki i hug að auðróni eins og Björgúlfur ætli að koma með i peninga inn i landið???? Sbr. gagnaverið. Eru engin takmörk á hvað auðtrúa fólk er ..
10.02 2010 kl.11:45
Slóð
Þetta eru nú meiri aumingjarrnir allir saman.
10.02 2010 kl.16:23
Slóð
Það er augljóst að hin raunverulega pressa kom frá peningaöflum og framkvæmdastjóra ákveðins stjórnmálaflokks.