Innlent - þriðjudagur - 9.2 2010 - 06:54

Stjórnmálaflokkarnir hafa fengið 130 milljónir í styrki frá borginni á kjörtímabilinu

radhus1.jpgReykjavíkurborg deildi um 33 milljóna króna styrk milli stjórnmálaflokkanna undanfarin þrjú ár en lækkaði fjárhæðina í 29,5 milljónir á þessu ári. Samtals hafa flokkarnir því fengið um 130 milljónir frá árinu 2007. Styrkirnir jafngilda því að flokkarnir hafi á kjörtímabilinu fengið greiddar 2.000 krónur fyrir hvert atkvæði sem þeir hlutu í sveitarstjórnarkosningunum árið 2006.

Fréttablaðið segir frá þessu í dag.

Þessir styrkir eru veittir á grundvelli laga frá 2006 um fjármál stjórnmálasamtaka. Samkvæmt 5. grein þeirra er sveitarstjórnum með fleiri en 500 íbúa skylt að styrkja stjórnmálasamtök, sem hafa fengið að minnsta kosti einn mann kjörinn í sveitarstjórnina eða hlotið 5 prósent atkvæða eða meira í síðustu sveitarstjórnarkosningum.

Hverri sveitarstjórn er í sjálfsvald sett hve háar fjárhæðir eru veittar í þessa styrki. Hins vegar er skylt að deila heildarfjárhæðinni niður á flokkana í hlutfalli við atkvæðamagn þeirra.

Samkvæmt svari við fyrirspurn, sem Fréttablaðinu hefur borist frá skrifstofu borgarstjóra, hafa 33,6 milljónir króna verið settar í styrki til flokka borgarfulltrúanna hvorttveggja árið 2008 og 2009. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2010 var hins vegar ákveðið að lækka styrkina um 12 prósent og greiða 29,5 milljónir króna til flokkanna í ár. Árið 2007 var fjárhæðin 32,7 milljónir. Það ár tóku gildi lögin um fjármál stjórnmálaflokka og jukust framlögin verulega í framhaldi af því en voru á bilinu 11,5-13,9 milljónir á ári frá 2003-2006.

Upphæðin skiptist eftir kjörfylgi

Í samræmi við kjörfylgi hefur Sjálfstæðisflokkurinn fengið hæstu styrkina, 42,87 prósent af heildarfjárhæðinni, samtals 55,5 milljónir króna á tímabilinu 2008-2010. Hlutur Samfylkingarinnar er 27,35 prósent, sem jafngildir 35,4 milljónum, í hlut VG koma 13,47 prósent, eða 17,4 milljónir, F-listinn 10,06 prósent, eða 13 milljónir, en Framsóknarflokkurinn 6,25 prósent eða alls 8 milljónir króna.

10 ummæli

Rita ummæli

magnús
09.02 2010 kl.07:11

Ef þetta kallast ekki sjálftaka þá veit ég ekki hvað fellst í því orði.
Borgarbúar hafa ekki samþykt þetta.
Siðblindir og veruleikaskertir.

Pétur Kristjánsson
09.02 2010 kl.07:39

Einmitt rétta orðið, sjálftaka. Gaman væri að vita hversu mikið önnur sveitarfélög í landinu hafa greitt til þessara klúbba.

Joi
09.02 2010 kl.07:57

Flott, á medan er fólk sem á ekki fyrir mat og neydist til ad bettla hjá hjálparsamtökum. Vaeri naer ad nota thessa peninga fyrir fólk sem er hjálparthurfi en thessa spiltu pólitíkusa sem fá aldrei nóg.

Andri
09.02 2010 kl.08:04

þessu hefði betur verið varið í beint lýðræði

Hannes frjálshyggjuprófessor
09.02 2010 kl.08:22

Þetta er allt of lítið fé frá borginni.

Það er mjög dýrt að reka stórspillta stjórnmálaflokka, eins og Sjálfstæðisflokkurinn minn er.

Hilmar
09.02 2010 kl.08:27

Við getum fellt niður þessa styrki.

Sóley Tómasdóttir rúntar bara á milli kjósenda og sækir atkvæðin þeirra.

Helst að hún eigi rétt á bílastyrk, enda ófært að hún verði ein látin gjalda fyrir lýðræðislegan prósess.

KG
09.02 2010 kl.08:51

Þessi styrkir gera ekkert annað en viðhalda spilltu stjórnmálakerfi
Hreyfði norræna velferðastjórnin nokkuð við þessum styrkjum í fjárlögunum?

Friðrik Hansen Guðmundsson
09.02 2010 kl.09:05

Smá saman er það að afhjúpast að Íslenski fjórflokkurinn hagar sér eins og vel skipulögð mafía. Mafía sem mergsýgur ríkið og sveitarfélögin með lögum sem hann hefur sjálfur sett og samþykkt í þeim tilgangi að hann fái einn haldið öllum völdum á Íslandi.

Þessa botnlausu sjálftöku fjórflokksins á almanna fé verður að stöðva.

Eins er hún ranglát þessi skipan mála að greitt skuli úr opinberum sjóðum til flokkana eftir stærð. Slík mismunun er andlýðræðisleg.

Ef nota á opinbert fé til að styrkja flokkana þá hlýtur það að vera gert á grundvelli þess að verið er að stuðla að lýðræði og að flokkarnir geti staðið fyrir þeirri lámarks starfsemi sem þarf að vera í gangi til að þeir geti boðið fram, að ákveðin lámarks starfsemi sé í gangi, hægt að auglýsa og halda fundi o.s.frv.

Slík notkun á opinberu fé hlýtur að þurfa að fara fram á jafnréttisgrundvelli, allir flokkar hljóta að eiga rétt að að fá sömu krónutölu hinum opinberu aðilum. Þetta fjárframlag getur ekki verið háð fjölda atkvæða á hverjum tíma.

Ekkert getur réttlætt það að flokkur sem fær fleiri sveitarstjórarfulltrúa kjörna þetta árið fái meira fé frá sveitarfélaginu til að setja í starfið hjá sér en einhver annar flokkur sem lagði jafn mikið í kosningarnar og í sitt innra starf en fékk færri fulltrúa kjörna. Slíkt fyrirkomulag brýtur öll sanngirnissjónarmið. Slíkt stuðlar að því að þeir stóru halda áfram að vera stórir. Lýðræðið felst ekki í því. Slíkt eyðileggur lýðræðið.

Ranglætið, siðblindan og brengluð sýn á hvað er rétt, sanngjarnt og eðlilegt hefur riðið hér húsum of lengi í boði fjórflokksins.

Vindurinn
09.02 2010 kl.09:46

Satt og rétt hjá þér Friðrik Hansen Guðmundsson!
Þessu verður að breyta.
Vilmundur Gylfason talaði um varðhunda valdsins fyrir 25 árum. Þeir eru samir við sig.

Siggi T.
10.02 2010 kl.17:48

Þetta er ekki hægt að réttlæta á nokkurn hátt, á sama tíma sem matargjafir
til fátækra fjölskyldna í borginni hafa aldrei verið meiri. Félagsmálaráðherra
hlýtur að hafa vald til að stoppa svona viðbjóð, annars þarf að koma til stofnunar
nýs flokks, sem berst gegn svona og annari spyllingu í Borginni.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

Kæfuvörn (óbreytt gildi):

 



Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar