Kennari í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands var á meðal þeirra stuðningsmanna Sóleyjar Tómasdóttur, sem tóku þátt í að ganga með atkvæðaseðla í forvali Vinstri grænna í heimahús. Fréttablaðið telur sig hafa staðfestar heimildir fyrir því að umræddur kennari sé Silja Bára Ómarsdóttir og að hún hafi með þeim hætti fengið nemendur sína til að taka þátt í forvalinu.
Einsog Eyjan sagði frá í gær, þá kærði Þorleifur Gunnlaugsson kosninguna í síðustu viku á þeim forsendum að stuðningsmenn Sóleyjar hefðu farið með utankjörfundarseðla frá kjörstað og fengið fólk úti í bæ til að kjósa með þeim hætti.
Stefán Pálsson, formaður kjörstjórnar, segir að það sé vissulega óleyfilegt að fylla út atkvæði fyrir aðra, en engin dæmi séu um að slíkt hafi verið gert. Hann viðurkennir að hafa sagt í hugsunarleysi að óleyfilegt væri að fara heim til kjósenda og skila atkvæðaseðlinum fyrir þá.
“Ég verð þá að biðjast innilegrar afsökunar á því ef ég hef valdið einhverjum misskilningi,” segir Stefán við Fréttablaðið. Þetta hafi verið netspjall að nóttu til og hann hafi ekki talið sig vera að svara formlegu erindi sem formaður kjörstjórnar: “Þetta er ekki brot. Reglurnar eru mjög opnar, það er vandinn.”
Í kæru Þorleifs býðst hann til að nafngreina brotlegan stuðningsmann Sóleyjar. Einnig talar hann um kennara við Háskóla Íslands, sem hafi farið heim til nemanda með atkvæðaseðil. Blaðið hefur fengið staðfest að umræddur kennari er Silja Bára Ómarsdóttir, en hún vildi ekki tjá sig um málið í gær, eða um hvort þetta samrýmist reglum Háskólans.
Þorleifur Gunnlaugsson segir það skaðlegt fyrir flokkinn, ef litið er framhjá kosningasvindli. Málið snúist um heiðarleika í stjórnmálum. Í samtali við Eyjuna sagði hann að þótt reglurnar væru nokkuð opnar þá gengi það ekki upp að álíta að allt, sem væri ekki bannað, væri sjálfkrafa leyfilegt. Þá hefði hann sérstaklega spurt í liðinni viku hvort leyfilegt væri að fara með atkvæðaseðla úr húsi og fengið þau svör að það væri óleyfilegt. Komið hafi á daginn að mótframbjóðandi hans hafi komist upp með það.
Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.
75 ummæli
Rita ummæli09.02 2010 kl.08:53
Slóð
Kennari í stjórnmálafræði sér bara ekkert athugavert við það að skutlast með kjörseðla heim til fólks, og skila þeim svo til baka í kassann.
Skólinn sér sjálfsagt ekkert athugavert við það heldur, ekkert frekar en ritþjófinn sem hann er með sem prófessor þar.
Frábærar fyrirmyndir þarna.
09.02 2010 kl.08:54
Slóð
Ég er með nokkra seðla á mér
09.02 2010 kl.08:56
Slóð
Siggi #1, “ritþjófurinn” sem þú kallar svo, er nú akkúrat ekkert vandamál miðað við margt svínaríið í HÍ
09.02 2010 kl.08:58
Slóð
Hva eru femínistar bara að svindla?
En engar áhyggjur Sóley hefur mikla sómakennd og afþakkar að sjálfsögðu fyrsta sætið. Ekki satt?
09.02 2010 kl.09:00
Slóð
Svona verður nýja Ísland engin breiting hjá þessum aumingja stjórnmálamönnum, þeir kunna ekki av vinna heiðarlega
09.02 2010 kl.09:01
Slóð
Silja Bára, eeeeh........, er hún ekki Eyjubloggari? Ha?
09.02 2010 kl.09:03
Slóð
Fólk fyrir Nýja-Ísland.
09.02 2010 kl.09:07
Slóð
Mikið þykir mér leitt að heyra þetta um Silju Báru, hún sem virkar svo traust , trú og pottþétt.
Hvað ætli nemendum hennar fynnist um þetta ? Geta þeir treyst því sem hún er að kenna þeim ?
09.02 2010 kl.09:09
Slóð
HAHAHAHA
Kennari í stjórnmálafræði í því sem á að kallast lýðræðisríki!
Ótrúlegt.
Nei það er best fyrir VG að halda sig við stofnfjárbréfin.
Það er brask sem flokksmenn kunna.
09.02 2010 kl.09:11
Slóð
Er þetta ekki stelpan sem sendi út fréttatilkynningu í nafni nefndar, sem ekki var til (eða hafði aldrei fundað eða hvernig þa var), um að amerískur fjárfestir mætti ekki koma með fjármagn inn í atvinnulífið á Suðurnesjum? Dæmigerð VG fyrirsát á atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum, og frábært fyrir HÍ að státa af svona miklum “fræðingum”.
09.02 2010 kl.09:13
Slóð
Þetta er enn ein staðfesting þess að hugsjónir skipta engu í íslenskum stjórnmálum og að einungis er vísað til þeirra í því skyni að blekkja og hreinlega ljúga.
Hugsjónafólkið í VG er óvart bara eins og annað það fólk sem sækist eftir pólitískum frama hér á landi til að svala metnaði sínum.
Þetta fólk er að hugsa aðeins um það eitt. Sjálft sig, völd sín og frama.
Það er ágætt að þetta hefur nú fengist staðfest opinberlega með nokkuð eftirminnilegum hætti.
Tímabært er fyrir íslendinga að horfast í augu við staðreyndir í stað þess að halda sig í pólitískum skotgröfum ónýtra stjórnmálaflokka og óhæfra stjórnmálamanna.
Vonandi hjálpa þessar upplýsingar úr herbúðum VG þjóðinni til að hrista af sér óværu spillingar og lyga.
09.02 2010 kl.09:14
Slóð
Vinstraliðið verður ekki lengi að hvítþvo og réttlæta þetta.
Vinstraliðið hefur nefnilega alltaf einkarétt á sannleikanum og getur því búið til leikreglurnar sér í hag.
09.02 2010 kl.09:14
Slóð
Ég trúi þessu ekki upp á Silju Báru.
09.02 2010 kl.09:16
Slóð
Tekið af bloggi Silju Báru
“Sóley vinkona mín leiðir lista VG í Reykjavík”
09.02 2010 kl.09:20
Slóð
svindlar til að ná völdum - selur samviskuna til að halda þeim - selur stofnbréfin sín sem það krækti sér í á spottprís sem fulltrúar almennings á besta tíma til að græða!
Hver segir að fólkið í VG sé eitthvað betra?
Sama sk.... pakkið!
Eitt er víst - ég ´tek ekki mark á þessari Silju næst þegar hún er spurð álits frekar en Hannesi H, Svani eða hinum samfylkingarálitsgjöfum ruv
09.02 2010 kl.09:20
Slóð
Sóley er greinilega framtíðar pólitíkus, og kominn með aðstoðarmann sem kann alla klækina.
Var Sóley ekki með vandlætingar lon og don hér á eyjunni yfir spillingu í sjórnmálum? Feiknalega efnileg.
09.02 2010 kl.09:22
Slóð
Hversu oft áður ætli það hafi gerst að farið sé með atkvæðaseðla úr húsi, eins og hér um ræðir , eða aðferðir notaðar sem eru á gráu svæði, þó þær séu kannski ekki bannaðar ?
Á maður að trúa því að þetta sé í fyrsta sinn sem álíka gerist í prófkjöri ?
09.02 2010 kl.09:23
Slóð
Jú, satt er það Vindurinn. Sóley fór fremst í flokki og fordæmdi það sem hún kallaði spillingu.
En byltingin étur börnin sín. Nú notar hún femínista-vinkonu sína, hana Silju Báru, til að svindla fyrir sig til að ná völdum.
Trúverðugleiki Sóleyjar, Silju Báru, svo að maður tali nú ekki um VG, er hér með fokinn.
09.02 2010 kl.09:23
Slóð
Merkilegt að flokkurinn sem í orði berst fyrir auknu lýðræði og það jafnvel með hlutleysi sínu gagnvart ofbeldi sem í orði berjist fyrir sama málstað. Skuli svo ekki hafa yfir að ráða lágmarks lýðræðisreglum innanhúss.
Maður veltir því fyrir sér hvort hrifningin af standi kannski helst af átökum en ekki virðingu fyrir vilja fólksins.
09.02 2010 kl.09:24
Slóð
Silja Bára fór í smölunartúr
- æ, það komst upp um frúna!
Sigurinn hjá Sóleyju orðinn súr
- víkur hún núna?
09.02 2010 kl.09:28
Slóð
Það vantar ekki frekjuna og yfirganginn í þessar öfgasinnuðu feminista, sem vaða yfir allt og alla á skítugum skónum.
09.02 2010 kl.09:35
Slóð
Nú ætti Sóley að sjá sóma sinn í að fara út af listanum... Ég er henni sammála um að það þurfi félagslega stjórn í Reykjavík en hún verður að víkja eftir þetta.
09.02 2010 kl.09:36
Slóð
Þurfti þetta svindl til ?
skrítið að það nægi ekki stuðningsmönnum flokks að forysta hans vinni gegn stefnuskrá flokksins til að halda völdum.
09.02 2010 kl.09:38
Slóð
Valdafíknarlaust Ísland 2011
Segjum nei við valdarfíknar djöfulinn.
09.02 2010 kl.09:39
Slóð
JAFNRÉTTI FYRIR ALLA,
nei ég meina konur,
nei mig.
Shit
09.02 2010 kl.09:39
Slóð
Sóley er algjör kjáni.
09.02 2010 kl.09:40
Slóð
Ætla fjölmiðlar áfram að ræða við Silju Báru sem óháðan sérfræðing í stjórnmálafræðum?
Er ekki skylda þeirra að kynna hana til sögunnar sem stjórnmálafræðing og stuðningsmann VG?
Þetta er ekki fyrsti pólitíski skandallinn sem hún tekur þátt í!
09.02 2010 kl.09:41
Slóð
Þetta er ekkert svindl. Þetta er femínismi.
09.02 2010 kl.09:46
Slóð
Það sem Sóley gerði sem sagt: Löglegt - en siðlaust.
Til hamingju nýja Ísland. Þetta er konan sem erfa mun landið.
09.02 2010 kl.09:50
Slóð
Það kemur fram í fréttum að utankjörfundaratkvæði hafi verið 87 af 1062 greiddum atkvæðum og ekki ráðið úrslitum um niðurstöðu forvalsins. Utankjörfundur er hugsaður fyrir fólk sem á ekki heimangengt af einhverjum orsökum. 87 atkvæði sem ekki eru nærri því öll Sóleyjar. Það er nú allt svindlið.
09.02 2010 kl.09:51
Slóð
Tékkið á þessu.!
09.02 2010 kl.09:53
Slóð
HM, ég tek undir spurningu þína.
Það væri kostulegt ef fjölmiðlar ætla að halda áfram að leita álits hjá Silju Báru Ómarsdóttur á málefnum samfélagsins.
Hvað ætli sé verið að kenna þarna í svokallaðri stjórnmálafræði í fílabeinsturninum. Þvílíkt mannaval!!-- og þvílík fræði!!
09.02 2010 kl.09:54
Slóð
Ég sem móðir þriggja drengja óttast mjög að öfgafeminastar komist til frekari áhrifa í samfélaginu. Þessi kona berst ekki fyrir jafnrétti kynjanna heldur alræði kvenna.
Í þeirri baráttu eru greinilega öll meðul leyfileg, þar á meðal kosningasvindl því þetta er ekkert annað.
Við höldum þjóðfund og viljum heiðarleika, fínt orð á pappír og sjáum svo svindlið, eiginhagsmunapotið, óheiðarleikann og svínaríið um allt hjá þessu fólki sem er að bjóða sig fram til þjónustu við almenning.
Mikið er þetta sorglegt.
09.02 2010 kl.09:54
Slóð
Þetta er þá bara allt í beeeesta lagi Þórunn?????????
09.02 2010 kl.09:55
Slóð
Alveg stórmerkilegt hversu auðvelt það er að skemmta skrattanum. Lýðræðisþenkjandi Íslendingum á ég við.
09.02 2010 kl.09:56
Slóð
Voru þetta nú örugglega allt saman öryrkjar og gamalmenni sem komust ekki á kjörstað?
Hvernig væri að rannsóknarblaðamenn á Íslandi könnuðu það?
09.02 2010 kl.09:57
Slóð
Hef sagt það áður VG er ekkert betri kostur en Sjálfstæðisflokkurinn. Leiðir vanhæfa ríkisstjórn sem gerir ekkert fyrir heimilin en blessar á sama tíma niðurfellingu skulda á auðjöfra og tryggir þeim áfram völd.
Burt með Steingrím og Jóhönnu strax. Með þessari kosingaframkvæmd hefur VG dæmd sig úr leik sem trúanlegur kostur. Mér líst best á að kjósa Framsókn í vor. Einar Skúlason er nýr maður á lista þar.
09.02 2010 kl.10:00
Slóð
Sóley er yndisleg. Helsti klámhatari landsins. Svo dettur hún í’ða í einhverju partý-i og strippar niður á nærfötin ein saman blindfull. Mér fannst mjög fyndið að lesa um það á vísi.is þegar umfjöllunin var á sínum tíma. Hisnvegar virðist hún hafa gleymt að auglýsa þessa frægðarför hjá sér þegar hún var í kosningabaráttunni.
09.02 2010 kl.10:03
Slóð
Í Vinstri-græna virðist greypt
og vel má teljast sannað
að allt það sem að ekki er leyft
sé örugglega bannað
09.02 2010 kl.10:15
Slóð
Það hefur alla tíð verið vitað að VG stendur ekki fyrir heiðarleika.
Vinstrimenn hafa hingað til þurft að ljúga að sjálfum sér um ágæti eigin hugmyndafræði því hún gengur einfaldlega ekki upp.
Verst er að þeir trúa svo á lygina að þeir taka hana fram yfir allt annað.
Hvernig er það annars hversu marga hringi er Steingrímur nokkur Sigfússon ekki búinn að fara með svokölluð baráttumál sín.
Er hann sjálfur ekki næstur á biðstofunni í Brussel tileygður með skottið á milli lappanna.
Stefnumálin ja þau voru nú bara fallegt skraut á eigin hégóma.
Svo bullar þetta fólk um að það sé boðberar nýrra tíma.
Lygin og undirferlið er alltaf söm við sig.
En auðvitað er sjálfsagt að nýta sér að kasta steinum úr glerhúsi Háskóla Íslands.
Hlaut og ekki stærstur hluti þeirra sem bera ábyrgð á hruninu siðlega innrætingu sína þar.
Þarf þá ekki líka að rannsaka eina helstu útungunarstöð siðrofs að því er virðist.
Það verður að loka brunninum áður en fleiri börn detta í hann ekki satt.
09.02 2010 kl.10:17
Slóð
Voru það ekki flokkssystkin Silju Báru sem gerðu allt vitlaust þegar Hannes Hólmsteinn ljósritaði einhverja mynd upp úr tímariti og sýndi samkennurum sínum? Þá vildu vinstri menn afsögn Hannesar. Nú er hins vegar seilst til nemenda, þeir beðnir að kjósa. Þarna er mikill munur á. Af hverju heyrist ekkert frá þessu sama fólki núna?
09.02 2010 kl.10:18
Slóð
Góður punktur jói
09.02 2010 kl.10:31
Slóð
Græðgisvæðing VG er engu betri en annara . Hvar er hinn samviskusami sófakommi Ögmundur Jónasson, sem hefur skoðanir á öllu sem viðkemur spillingu og græðgi nema þegar elíta VG á í hlut. Nú grjótheldur Ömmi kjafti og ekki heyrist píp hjá hinu sjálfskipuðum vannlætingasinnum innan VG.
Kjósendum VG er vorkun.
09.02 2010 kl.10:48
Slóð
Sóley og Þorleifur eiga bæði að segja af sér - hinn kosturinn er að leggja niður Vg.
09.02 2010 kl.10:48
Slóð
Æj í guðana bænum. Þessi þjónusta við fólk sem á erfitt með að komast til að kjósa er úrskurðað leyfileg af kjörstjórn sem er augljóst þegar reglur forvalsins eru skoðaðar. Feðraveldinu er greinilega ógnað og ætlar ekki að taka tapinu með sæmd.
Silja Bára er því að engu leyti að fara út fyrir rammann sem félagsmenn samþykktu. Ekkert mál er að gagnrýna kosningareglurnar en að holdgera galla þeirra í manneskju sem fór eftir þeim er einum of. Silja Bára hefur aldrei reynt að leyna því að hún er flokksbundin. Er fólk almennt á því að háskólakennarar megi ekki taka þátt í stjórnmálum.
09.02 2010 kl.10:49
Slóð
Staðreyndir: kjörstjórn úrskurðar að ekkert ólöglegt hafi átt sér stað, heldur hafi settum reglum verið fylgt. Þar af leiðandi hafa fylgismenn Sóleyjar sem og annarra spilað eftir reglunum (sem að enginn gerði athugasemdir við 2007 og 2009) og þar af leiðandi hefur svindl ekki átt sér stað.
Auðvitað kemur ekki á óvart að þeir sem hafa horn í síðu Sóleyjar Tómasdóttur séu í sæluvímu og noti tækifærið til að ausa yfir hana alls konar skít sem kemur forvalsframkvæmd nákvæmlega ekkert við, eins og sést berlega í kommentum hér að ofan. En það er spurning sem fólk ætti að velta fyrir sér, hagsmunum hverra slík ófrægingarherferð þjónar.
09.02 2010 kl.10:51
Slóð
Þvílík heimska að sjá ekki svindlið og spillinguna í þessu.....
09.02 2010 kl.10:51
Slóð
Steinunn og Auður taka 2007 víkinginn á þetta.
Þetta er löglegt.
Annað skiptir ekki máli, og tilgangurinn helgar meðalið.
Einhvern veginn er ég samt alveg sannfærður að þær myndu reita af sér hár á öllum hæðum ef þetta væri frambjóðandi í öðrum flokki.
Tala nú ekki um ef hann væri karlkyns.
09.02 2010 kl.11:00
Slóð
Steinun kl.10:49
Ófrægingarherferðin sem þú talar um er hver ?
Er það svo að ef siðleysi VG sé betra en annað.
Helgar tilgangurinn meðalið ?
09.02 2010 kl.11:00
Slóð
“Sjálfstæðiskonur ósáttar með slæmt gengi - Sérstök karlremba í Garðabæ, segir Silja Bára”
http://www.pressan.is/Frettir/Lesafrett/sjalfstaediskonur-osattar-med-slaemt-gengi---serstok-karlremba-i-gardabae-segir-silja-bara
lol?
09.02 2010 kl.11:04
Slóð
Alveg gæti ég trúað að það verði Þorleifur sem verði settur út í kuldann hjá VG fyrir að vilja leiða sannleikann í ljós. Sóley mun sitja fast í sínu sæti og VG mun hjálpa til við það.
Sannleikur og heiðarleiki? Hvað er það í augum VG? Verður Þorleifi virkilega fórnað á höggstokki VG fyrir að vilja fá upp á borðið heiðarleikann og sannleikann?
Er þetta lýðræðisboðskapur VG?
09.02 2010 kl.11:18
Slóð
Var hún að láta nemendur sína kjósa? Hvað fá þeir í staðinn? Góða einkunn? Og svo þegja allir þarna - líka þeir nýju. Menn taka afstöðu með því að þegja.
09.02 2010 kl.11:19
Slóð
Hvað segir Háskólinn - sú hlægilega stofnun - um þetta?
09.02 2010 kl.11:23
Slóð
Steinunn:
Það sem sumum leyfist leyfist öðrum ekki. Það sem formaður kjörstjórnar segir óformlega gengur eftir formlega. Formaður kjörstjórnar segir niðurstöðuna hafa orðið þá sömu án utankjörfundaratkvæðanna. Hann kýs að líta fram hjá þeirri staðreynd að ef allir frambjóðendur hefðu fylgt sömu reglum þá er óvíst að niðurstaðan hefði orðið sú sama.
09.02 2010 kl.11:35
Slóð
Ég hef misst allt álit á VG. Þeir eru sama hyskið og allir aðrir, gera allt til að komast í völd. Vandi VG er að þeir telja sig vera betri en hinir, réttlátari og víðsýnir lýðræðis elskendur. Þetta er til skammar og mun ég aldrei horfa á þetta lið sömu augum.
09.02 2010 kl.11:53
Slóð
Að kennari við HÍ fari heim til nemenda sinna með óútfyllta kjörseðla er ekkert
annað en handrukkun um að greiða atkvæði á réttan hátt.
09.02 2010 kl.11:57
Slóð
Þetta er nákvæmlega það sem þeir segja allir þegar þeir voru búnir að ljúga og stela, sem sagt sorrý STÍNA.
Stefán Pálsson !!!! það dugir ekki lengur að segja bara sorrý á þessu nýja Islandi sem er að verða til(eða hvað ?) heldur segja menn af sér og skammast sín.
09.02 2010 kl.12:00
Slóð
Niðurlæging VG er orðin algjör bæði á þingi og í borg.
09.02 2010 kl.12:02
Slóð
Það skiptir ekki máli hvort þetta hafði áhrif á úrslitin eða ekki. Þetta er alveg jafn siðlaust fyrir því. Sóley lét því miður keppnisskapið hlaupa með sig í gönur og missti dómgreindina í hita leiksins. Mannorð hennar er verulega flekkað - Þetta er ófyrirgefanlegt og við viljum ekki svona framapotara í borgina.
09.02 2010 kl.12:13
Slóð
Stormur í vatnsglasi er hugtak sem fundið var upp til að lýsa svona uppákomum.
09.02 2010 kl.12:40
Slóð
Það dregur hratt saman með stefnumálum og vinnubrögðum í Valhöll og VG.
Í meginatriðum enginn munur orðinn á flokkunum.
09.02 2010 kl.13:29
Slóð
er þetta ekki alt líkt með vg
09.02 2010 kl.14:03
Slóð
Umræddur stjórnmálafræðikennari fór ekki í eitt einasta hús með atkvæðaseðil, hvorki til nemenda sinna né annarra.
09.02 2010 kl.14:37
Slóð
það þarf ekki að vera að hún hafi farið í hús með atkvæðaseðil til e-h eða nemenda sinna, það er nóg að vera sú sem hringir í fólk hvort sem það eru nemendur hennar eða annað fólk og hvetur það til að kjósa vinkonu sína og býðst í framhaldi til að koma þeirra atkvæðum til skila til kjörstjórnar svo fólk geti sleppt að mæta á kjörstað.....
09.02 2010 kl.15:27
Slóð
Vilji háskólinn standa í lappirnar sem stofnun þá á að reka þessa konu úr starfi án frekari málalenginga.
09.02 2010 kl.16:27
Slóð
Hvar er slagorðið “Spillinguna burt”. Silja Bára situr í innsta hring VG og ætti að þekkja reglurnar. En nú hentar VG að vera með bolabrögð og þykir sjálfsagt.
09.02 2010 kl.16:34
Slóð
Kristján: Hvað með Hannes Hólmstein? Á ekki að reka hann þá?
09.02 2010 kl.17:17
Slóð
Til hamingju Sóley og Silja Bára ykkur hefur tekist að koma óorði á VG með þessu fullkomlega siðlausa athæfi.
09.02 2010 kl.17:22
Slóð
Það er eitt sem ég fatta ekki. Stefán Páls talar um að það sé skýrt að það megi ekki fylla út kjörseðil fyrir annan en hvernig er hægt að vera 100% viss á því og sanna það þegar kjörseðlar eru bornir í heimahús?
09.02 2010 kl.17:22
Slóð
Ef um misskýra reglu er að ræða þá er sá skilningur sem formaður kjörstjórnar leggur í regluna misskilningur.
09.02 2010 kl.17:31
Slóð
Af hverju þarf svona umræða alltaf að detta niður á svona plan?
Hvaða strippsögur af Sóleyju er PP að tala um?
09.02 2010 kl.17:50
Slóð
Svavar Bjarnason
Afhverju hefur þú meiri áhuga af strippsögu af þessari manneskju en framferði hennar í kosningum?
09.02 2010 kl.18:23
Slóð
Lárus 16:34
Að sjálfsögðu átti að reka Hannes, enda hefur skólinn sett mikið niður við að gera það ekki.
09.02 2010 kl.21:52
Slóð
http://www.joiragnars.blog.is/blog/joiragnars/entry/1016525/
09.02 2010 kl.23:41
Slóð
Þetta er nú með því hallærislegra sem ég hef heyrt. Silja Bára að fikta við kosningasvindl og það fyrir VG. Nú er fokið í flest skjól ef ekki öll.
Ég er orðlaus yfir þessu máli. Konan hún Sóley á að afþakka fyrsta sætið og biðjast afsökunar.