Sendu Orðinu línu á
ordid@eyjan.is

Færslur fyrir ágúst, 2007

Helgi togaði ekki í bindið, segir RÚV

28. ágúst, 2007

helgiseljan.jpgForstjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar kvartaði undan því að Helgi Seljan, fréttamaður á RÚV, hefði rifið í bindi sitt þegar þeir voru að ræða saman í flugstöðinni í síðustu viku. Þórhallur Gunnarsson, ritstjóri Kastljóssins, segir að myndband af samskiptum þeirra sýni að lýsing Höskuldar Ásgeirssonar, forstjóra, á samskiptunum sé ekki rétt. Hann vill ekki veita Eyjunni aðgang að myndbandinu eða birta það opinberlega nema forstjórinn óski sérstaklega eftir því.

Helgi hafði með leyfi starfsfólks en án vitundar forstjórans verið við dagskrárgerð í flugstöðinni vegna umfjöllunar Kastljóssins um að reykingabannið sem tók gildi hér á landi 1. júní væri ekki virt í Leifsstöð heldur leyfðu stjórnendur reykingar þar þrátt fyrir áréttingar stjórnvalda um að þeim beri að fylgja banninu eftir. Orðið á götunni hér á Eyjunni sagði frá því í gær að í kjölfar samskipta þeirra hefði Höskuldur gert athugasemdir við yfirmenn RÚV og talað um að Helgi hefði áreitt sig en að hann ætlaði ekki að fylgja málinu frekar eftir.

airport2.gifÞórhallur Gunnarsson, staðfesti í samtali við Eyjuna, að Höskuldur hefði gert athugasemdir við sig og talað um að Helgi hefði rifið í hálsbindi sitt og sýnt dónalega framkomu. Þórhallur sagðist hafa tekið kvörtunina mjög alvarlega en þar sem myndatökumaður Sjónvarpsins hefði verið með í för væri til mynd- og hljóðupptaka af öllum samskiptum fréttamannsins og forstjórans.

Þórhallur sagði að eftir að hafa horft á upptöku af því sem Helga og Höskuldi fór á milli geti hann ekki með neinu móti séð að frásögn forstjórans kæmi heim og saman við það sem sæist og heyrðist á myndunum. Þar væru tveir menn í eðlilegu samtali, þeir væru ósammála og báðir hefðu ýmislegt til síns máls en Helgi hefði alls ekki rifið í bindi Höskuldar þótt hann hefði að því er virtist snert bindið hefði framkoma hans ekki verið óeðlileg eða ógnandi á neinn hátt.

Eyjan óskaði eftir að fá myndbandið til birtingar en Þórhallur sagðist enga ástæðu sjá til þess að birta myndbandið og en hann mundi ef til vill endurskoða þá afstöðu ef fram kæmi sérstök ósk frá Höskuldi um að myndin yrði birt. Í Eyjunni í gær var haft eftir Höskuldi eftir staðfestum heimildum að hann ætlaði ekki að hafast neitt frekar að í málinu.

Ágreiningur fréttamannsins og forstjórans var um það hvort sjónvarpinu væri heimilt að taka myndir í Flugstöðinni og einnig hafði Helgi Seljan óskað eftir viðtali sem Höskuldur vildi ekki veita. Sjónvarpsmenn segja að starfsfólk flugstöðvarinnar hafi veitt sjónvarpsmönnum aðgang að húsinu en að því er virðist án vitneskju forstjórans.




Anna Pála í framboð

28. ágúst, 2007

apsLykilmenn í Ungum jafnaðarmönnum, ungliðahreyfingu Samfylkingarinnar, vinna nú að því að fá Önnu Pálu Sverrisdóttur, laganema og fyrrverandi blaðamann á Morgunblaðinu í framboð til formanns ungliðahreyfingarinnar.

Núverandi formaður Magnús Már Guðmundsson hyggst láta af embætti á landsþingi í haust og er hann talinn styðja Önnu Pálu sem næsta formann.

Anna Pála hefur þrátt fyrir ungan aldur látið all nokkuð að sér kveða á opinberum vettvangi. Margir muna eftir henni úr Gettu Betur spurningakeppninni þar sem hún lét ljós sitt skína í liði MH og skyggði m.a.s. stundum á þáttastjórnandann Loga Bergmann Eiðsson með skemmtilegum frammíköllum sínum (auk gáfnafars auðvitað).

Sem laganemi hefur hún tekið virkan þátt í stúdentapólitík og sat m.a. í háskólaráði fyrir Röskvu, samtök jafnaðarmanna í röðum stúdenta, auk þess sem hún gegndi starfi oddvita samtakanna eitt tímabil.

Anna Pála þykir frekar vinstrisinnuð og daðraði hún í skamma stund við Vinstri Græna áður en að hún lenti í faðmi breiðfylkingar jafnaðarmanna. Hún sótti sér hins vegar kærasta til hægri í Bjarna Má Magnússyni, hafréttarsérfræðingi, þungarokkara og “neo-con”, menntuðum í Florída.

Stuðningurinn við Önnu er talinn mikill meðal þeirra ungliða í Samfylkingunni sem starfað hefur í UJ undanfarin ár og talið er líklegt að hún myndi sigra léttilega hvern þann sem kynni að etja kappi við hana.

Spennandi verður að sjá hvernig Önnu Pálu sem er 23 ára gengur að etja kappi við væntanlega kollega sína hjá ungum framsóknarmönnum og ungum sjálfstæðismönnum sem eru annars vegar 30 ára og hins vegar 31 árs gamlir.




Ríkisforstjóri kvartaði undan áreiti Kastljósstjörnu

23. ágúst, 2007

helgiseljan.jpgKastljósstöffarinn Helgi Seljan lét hendur standa fram úr ermum þegar hann fór á Leifsstöð á dögunum til þess að fjalla um reykingar þar í húsinu. Eins og kunnugt er tóku lög um reykingabann gildi 1. júní en samt er enn verið að reykja í Leifsstöðinni.

Kastljósið hafði upplýsingar um að stórnvöld hefðu margsinnis beðið um að reykingabanninu yrði framfylgt þar í Leifsstöð en að stjórnendur flugstöðvarinnar létu þær athugasemdir sem vind um eyrun þjóta. Helgi var settur í málið enda öflugur fréttamaður og reykingamaður.

svith001.jpgÞað kastaðist hins vegar eitthvað í kekki milli Kastljósstjörnunnar og Höskuldar Ásgeirssonar, forstjóra Leifsstöðvar, á staðnum og Höskuldur taldi að Helgi hefði gengið illilega yfir strikið og talar um áreiti í því sambandi.

Orðið á götunni hefur fengið staðfest að Höskuldur hefur haft samband við yfirmenn á RÚV til þess að gera athugasemdir við framgöngu Helga - vangaveltur voru um að hann ætlaði að fylgja málinu eftir með formlegum hætti en Höskuldur mun hins vegar hafa ákveðið að gera ekki meira í málinu og láta yfirmönnum RÚV eftir að meðhöndla athugasemdirnar eins og þeir kjósa sjálfir.

Uppfært, 30.08.07: Í eftirfarandi frétt Eyjunnar frá 24. ágúst kemur fram hlið Helga og RÚV á málinu. Til er upptaka af samskiptum þeirra og staðfestir hún ekki lýsingu forstjórans á framkomu Helga, að mati Þórhalls Gunnarssonar, ritstjóra Kastljóssins. Lesa fréttina hér.




Bomburnar falla hjá StebbaFr

22. ágúst, 2007

hinn eini  sanni StebbiÓkrýndur konungur Moggabloggsins StebbiFr er augsýnilega að reyna að svara gagnrýninni sem hann hefur fengið undanfarið og lætur nú hverja bombuna á fætur annarri falla á bloggsíðu sinni.

Nýjasta færslan heitir: “Eru Stuðmenn búnir að vera?”

Nú ættu menn að geta hætt að ásaka unga sjálfstæðismanninn Stefán Friðrik um að vera ekki nógu beittur í skrifum.




Þórlindur Kjartansson næsti formaður SUS

17. ágúst, 2007

thorlindurSamkvæmt öruggum heimildum Orðsins á götunni er unnið að því að semja við hægriarm SUS um stuðning við Þórlind Kjartansson, einn helsta forsprakka Deigluhópsins (er raunar núverandi ritstjóri Deiglan.com) sem næsta formann Sambands ungra sjálfstæðismanna.

Þórlindur er yfirmaður alþjóðamarkaðssviðs Landsbankans, fyrrum inspector scholae í MR og stofnfjáreigandi í SPRON.




365 búið að þagga niður í Syn2.is manninum?

16. ágúst, 2007

syn 2Í Fréttablaðinu á þriðjudaginn var rætt við áhugamann um enska boltann sem hafði sett upp sérstaka síðu á léninu www.syn2.is til að mótmæla háu verði á áskrift að fótboltanum hjá 365. Síðuna kallaði hann dýrasta sætið.

Nú virðist 365 búið að kæfa þessi mótmæli því lénið er komið í eigu 365 skv. skráningu Isnic og síðan vísar nú yfir á Vísi.is.

Það væri áhugavert að vita hvað áhugamaðurinn hafi fengið frá fjölmiðlarisanum fyrir að láta af andófinu og sleppa léninu lausu?

Kannski ókeypis áskrift að enska boltanum?

isnic




Stjórnendur Glitnis í Lúxemborg hættu til að stofna fasteignafélag

16. ágúst, 2007

Í gær var á Orðinu á götunni sagt frá orðrómi sem gekk um viðskiptalífið varðandi skyndilegt brotthvarfglitnir bankastjóra Glitnis og tveggja annarra stjórnenda bankans í Lúxemborg. Sérstaklega vakti athygli að ekki kæmi nein tilkynning um þetta frá bankanum.

Samkvæmt upplýsingum sem Orðinu hefur borist í dag þá er hér ekki um að ræða brot á upplýsingaskyldu skráðra félaga í Kauphöllinni þar sem að bankastjórinn, Allan Strand Olesen, á ekki sæti í framkvæmdastjórn Glitnis.

Hverjir eru lykilstjórnendur banka?
Reyndar er um að ræða túlkunaratriði skv. þar sem að í lögunum er talað um “lykilstjórnendur” en ekki minnst á framkvæmdastjórnir, sem geta verið fámennar eða fjölmennar eftir fyrirtækjum. Ef aðeins væri miðað við framkvæmdastjórnir í lögunum þá væri félögum í lófa lagið að hafa þær fámennar og takmarka þannig upplýsingaskyldu sína.

Fyrir banka í útrásarham eins og Glitni mætti e.t.v. einnig færa rök fyrir því að bankastjórinn í Lúxemborg ætti að teljast á meðal lykilstjórnenda þar sem að bankinn hefur starfað lengur í Lúxemborg en í nokkru öðru landi.

Kauphöllin sátt við túlkun Glitnis
Í tilviki Glitnis er framkvæmdastjórnin hins vegar tiltölulega stór (11 manns) og því kannski síður hægt að liggja þeim á hálsi fyrir að þessa lagatúlkun.

Samkvæmt heimildum Orðsins á götunni er enn allt í góðu milli Glitnis og þessara þriggja fyrrum stjórnenda bankans í Lúxemborg. Bankinn hyggst m.a.s. leggja pening í nýtt fasteignafélag sem þeir eru að vinna í að stofna.

Tveir starfsmenn bankans munu vera við stjórnvölinn í Lúxemborg meðan unnið er að ráðningu nýs bankastjóra.




Krísa í Glitni: Skyndilegt brotthvarf bankastjóra í Lúxemborg

15. ágúst, 2007

glitnir luxÍ viðskiptalífinu ganga nú fréttir á milli manna um að bankastjóri Glitnis í Lúxemborg, Allan Strand Olesen, hafi látið skyndilega af störfum hjá bankanum.

Allan mun hafa gengið út úr bankanum í gær og tekið tvo lykilstjórnendur hans með sér , Jakob nokkurn sem stýrt hefur fyrirtækjasviði bankans og annan mann að nafni Claus.

Vanræksla Glitnis gagnvart upplýsingagjöf?
Það sem vekur furðu er sú staðreynd að ekki hefur heyrst múkk í Glitni opinberlega vegna þessa máls en það er skýrt í lögum um Kauphöll Íslands (sjá grein 2.2.1.) að ávallt ber að skýra frá því strax þegar að breytingar verða í hópi lykilstjórnenda bankans. Nú er liðinn heill dagur í Kauphöllinni og ekkert hefur enn birst frá Glitni. Það er skýrt brot á lögum og væntanlega óheppilegt fyrir orðspor bankans ef rétt reynist.

Ekki er vitað hvaða ástæður eru á bakvið skyndilega uppsögn bankastjórans og hinna tveggja og ekki heldur afhverju bankinn situr á tilkynning um málið. Helst telja menn að Glitnir sé nú að slökkva elda innanhús og ætli að vera búinn að finna réttu arftakana áður en tilkynningin um uppsagnirnar er send út. Þannig geti þeir sett jákvæðan snúning á leiðinlega frétt.




Sjóðheitt pitsuskúbb: 7 nýjar Eldsmiðjur

14. ágúst, 2007

smidjanEldbakaðar Eldsmiðju-pítsur þykja langbestu pítsur bæjarins og í yfir tuttugu ár hafa þær verið eldbakaðar í lítilli kjallaraholu á horni Bragagötu og Freyjugötu.

Nú verður breyting á, því samkvæmt heimildum Orðsins á götunni stendur til að opna sjö nýja Eldsmiðju staði á Íslandi á næstu misserum. Það eru nýir eigendur að Eldsmiðjunni sem standa fyrir þessum plönum og hafa meðal annars pantað sjö sérhannaða eldofna frá Bandaríkjunum, sem nú eru í smíði.

“Engin helvítis tilboð”
Eigandi Eldsmiðjunnar, Þorleifur Jónsson, byrjaði sem óbreyttur pitsabakari á Bragagötunni árið 1986, en keypti staðinn af stofnandanum Ella nokkrum árum síðar og bjó til úr honum þennan vinsæla stað á einum 13 árum. Hann lagði ávallt mikla áherslu á vandað hráefni og alúðleg vinnubrögð og uppskar vinsældir eftir því. Hann var einnig mjög lítið fyrir að auglýsa og var aldrei með tilboð ólíkt öðrum stöðum í þessari grein. Eini afslátturinnn var veittur hörðustu fastakúnnum.

Seldi ungum veitingamönnum staðina tvo fyrir hundruðir milljóna
Þorleifur eða Tolli eins og hann er kallaður átti líka nýlegan pitsastað á Laugavegi sem heitir Reykjavik Pizza Company þar sem byggt var bronxá formúlu Eldsmiðjunnar. En fyrr í vor ákvað Þorleifur að söðla um og seldi báða staði til ungra athafnamanna á milli tvítugs og þrítugs sem kenndir eru við Staldrið í Breiðholti og veitingafyrirtækið Foodco. Sömu menn hafa sölsað undir sig bæði Aktu-Taktu og American Style keðjurnar. Það eru þeir sem nú undirbúa útbreiðslu Eldsmiðjunnar um borg og bý.dabbi

Loksins getur Breiðholtið pantað á Eldsmiðjunni
Spennandi verður að sjá hvernig viðskiptavinum Smiðjunnar líst á þessar breytingar. Fastakúnnahópur Eldsmiðjunnar inniheldur meðal annars Davíð Oddsson, Eyþór Arnalds, Marikó Margréti Ragnarsdóttur og Geir Ólafsson.

eysiHingað til hafa Eldsmiðjumenn aldrei viljað senda pitsur í heimsendingu nema í næsta nágrenni við Bragagötuna eða í 101, 104, 105 og 108.

Þetta gæti breyst með tilkomu nýju staðana og pöpullinn í úthverfunum mun loksins eiga jafnan séns á við elítuna í hundrað og einum í eina sjóðheita eldbakaða Pepperoni Special með rjómaosti.




Fyrrv. Seðlabankastjóri og ráðherra til Háskólans í Reykjavík?

10. ágúst, 2007

johnny boyJón Sigurðsson hefur langa og merka ferilskrá upp á vasann. Hann er fyrrverandi formaður Framsóknarflokksins, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, framkvæmdastjóri Vinnumálasambandsins og rektor Samvinnuháskólans á Bifröst. Hann náði ekki kjöri til Alþingis í vor í kjölfar ósigurs Framsóknarflokksins í kosningunum.

Til Jóns sást hins vegar fyrr í dag þar sem hann kom á fund hjá Svöfu Grönfeldt, hins unga kvenskörungs og rektors Háskólans í Reykjavík. Jón staldraði dágóða stund við hjá Svöfu í Ofanleitinu áður en hann hvarf á braut klyfjaður bæklingum og pappírum um starfsemi háskólans.HR

Jón hefur ekkert gefið upp um að hverju hann hyggst snúa sér nú þegar stjórnmálaþátttökunni er lokið í bili. Það er því spurning hvort Háskólinn í Reykjavík sé að reyna að lokka þennan reynda skólamann yfir í kennarahóp skólans fyrir komandi önn eða hvort Jón sé einfaldlega að íhuga að setjast aftur á skólabekk?




Fyrrv.ritstjóri Séð og Heyrt kærir framkvæmdastjóra Birtíngs fyrir meiðyrði

9. ágúst, 2007

elinÞað vakti athygli á sínum tíma þegar að Elín G. Ragnarsdóttir sem þá var nýtekin við starfi framkvæmdastjóra tímaritaútgáfunnar Fróða (nú Birtíngur) ásakaði ritstjóra Séð og Heyrt, Bjarna Brynjólfsson, um stuld á 5,5 milljónum og fyrir margvísleg brot í starfi. Bjarni hrökklaðist úr starfi ritstjóra í kjölfarið og Elín kvaðst mundu leggja fram kærur á hendur honum með sönnunum á þessum ásökunum. Ekkert hefur þó bólað á sönnunargögnunum

Nú virðist Bjarni ætla að ganga alla leið í að endurheimta mannorð sitt því hann hefur dregið Elínu fyrir dóm fyrir meiðyrði. Málið verður dómtekið nú í byrjun september í Héraðsdómi Reykjavíkur. Áhugavert væri að vita hvort Elín lýsi sig seka eða saklausa af því að hafa ranglega ásakað Bjarna í ljósi þess að ekkert varð úr kærum á hendur honum?

7. sep. 09:15-09:25 Salur 301 Ingimundur Einarsson héraðsdómari
Mál nr. E-7583/2006 Fyrirtaka Meiðyrðamál
Stefnandi: Bjarni Brynjólfsson (Karl Ólafur Karlsson hdl.)
Stefnda: Elín Guðrún Ragnarsdóttir (Kristinn Bjarnason hrl.)



Liverpool-bloggari: 365 þaggar niður gagnrýni á viðskiptahætti sína

7. ágúst, 2007

Kristján Atli Guðmundsson, einn forsprakka bloggsíðu íslenskra Liverpool aðdáenda, sparar ekki stóru orðin í bloggfærslu sem hann birtir í dag.

Kristján Atli vill meina að gagnrýni á verðlagningu á enska boltanum hjá sjónvarpsstöðinni Sýn hafi verið þögguð niður og telur það til merkis um að ástand fjölmiðla sé ansi bágborið á Íslandi.

Frétta- og dagskrárgerðarmenn 365 fá á sig nokkrar pillur í pistlinum:

Hafið það bara í huga, lesendur góðir, þegar þið lesið næsta rannsóknarpistil blaðamanna hjá Fréttablaðinu, eða horfið næst á fréttamenn Stöðvar 2 hakka í sig einhvern misgjörðarmanninn í beinni útsendingu, að það er ekki sama hvort menn heita Jón eða Séra Jón.

Íþróttastjóri Fréttablaðsins, ofurbloggarinn Henry Birgir Gunnarsson fær líka á baukinn hjá Kristjáni Atla:

Skortur á “Íþróttaljósi” hins annars gallharða fréttamanns Henry Birgis á Fréttablaðinu var hjákátleg og maður komst ekki hjá því að spyrja sjálfan sig hvers vegna einn grimmasti blaðamaður landsins, maður sem hefur fengið á sig orð fyrir að ganga jafnvel of langt frekar en eitthvað í gagnrýni sinni á ýmis mál innan íþróttahreyfingarinnar á Íslandi, skuli ekki hafa séð ástæðu til að taka á þessu máli.

Það verður spennandi að sjá hvort 365-menn svara Kristjáni en bloggsíða Liverpool-aðdáendanna fær að sögn yfir 10.000 heimsóknir á dag og nú þegar hafa 31 ummæli verið skrifuð við bloggfærsluna.





Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar