Orðið á götunni hefur fengið senda eftirfarandi framhaldssögu með bréfaskiptum á Fréttastofu Stöðvar 2 um uppsögn Þóru Kristínar Ásgeirsdóttur. Kristinn Hrafnsson gagnrýnir Steingrím Ólafsson fréttastjóra en Steingrímur svarar fullum hálsi, segir Kristin ekki fara rétt með staðreyndir, og segir líka að ákvörðun um að segja Þóru Kristínu upp hafi legið fyrir þegar hann tók við starfinu. Hann hafi einungis frestað uppsögninni um tíma.
“Kristinn Hrafnsson/Norðurljós/IS
08/31/2007 04:37 PM
To
Fréttastofa Stöðvar 2
cc
bcc
Subject
“Þá ber að nefna...”
“Þá ber að nefna að gengið hefur verið frá starfslokum við Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur…”
Þetta er niðurlagið í tilkynningu um mannabreytingar frá fréttastjóra. Það “smáatriði” er nefnt í framhjáhlaupi að hann hafi rekið Þóru Kristínu, einn besta blaðamann landsins. Þóra segir mér að hún hafi ekki fengið haldbæra skýringu á uppsögninni. Einungis að það sé verið að “gera breytingar”.
Mér finnst þetta ótrúlega lúalegt og lítilmannlegt. Það er ekki í lagi að menn séu reknir úr starfi án þess að haldbærar ástæður séu gefnar. Ég hef ekki orðið vitni að öðru en að Þóra Kristín hafi sinnt starfi sínu vel. Ég hef ekki annað séð en að það hafi verið mikill fengur í því að hafa hana í pólitískum fréttum.
Þar er þörf á reynsluboltum – fólki með bein í nefinu sem geta fylgt málum eftir af festu. Það er lýðræðinu nauðsynlegt og ein frumforseta þess að menn geti talað um að fjölmiðlar séu einn af hornsteinum lýðræðisins. Þóra sinnti sínu hlutverki vel - þeir fundu fyrir því á stjórnarheimilinu á liðnu kjörtímabili.
Lengst af var núverandi fréttastjóri talsmaður á höfuðbóli þess stjórnarheimilis. Þegar hann skiptir um föt og gerist oddamaður í aðhaldi almennings gagnvart valdhöfum grípur hann til þess ráðs við fyrsta hentugleika að reka aðalfréttamanninn í pólitískum fréttum. Smekklegt!
Ég hef ýmsa fjöruna sopið í gegnum tíðina en ég hef ekki skap í mér til að þegja þegar mér misbýður. Þetta er óboðleg framkoma – ekki bara gagnvart Þóru Kristínu heldur öllum blaðamönnum hjá þessu fyrirtæki.
Hvaða skilaboð er verið að senda þeim? Svari nú hver fyrir sig.
Kristinn Hrafnsson
----------
Síðan kom þessi sem svar við því sem Kristinn sendi:
Steingrímur Sævarr Ólafsson/365
08/31/2007 05:02 PM
To
Kristinn Hrafnsson/Norðurljós/IS@Nordurljos
cc
Fréttastofa Stöðvar 2
bcc
Subject
Re: “Þá ber að nefna...”
Um leið og við þökkum Kristni stjórnmálaskýringarnar er rétt að rifja upp að flestir fréttamann reyna að hafa staðreyndir á hreinu og leita sjónarmiða beggja aðila áður en þeir gefa sér niðurstöður.
Þessi sending Kristins er því miður full af staðreyndavillum og vitleysu og er auðveldara að telja það sem rétt telst en það sem rangt er talið upp.
Ég fann þrjár réttar staðreyndir. Að Þóra Kristín sé hætt, að þau hafi talað saman og að Kristinn hafi sopið fjörur. Annað er rangt.
Það er kannski rétt að geta þess, þó það sé ekki aðalatriði, að búið var að ákveða að segja Þóru Kristínu upp áður en ég tók við störfum. Ég frestaði þeirri uppsögn þegar ég tók við og skoðaði málið út frá eigin forsendum og komst að sömu niðurstöðu og forveri minn. Það er öll “pólitíkin” og “óboðlega framkoman”.
Annars óska ég mönnum friðar og vona að menn andi með nefinu áður en þeir senda svona vitleysu frá sér sem er þeim sjálfum til minnkunar.
hilsen
Steingrímur Sævarr Ólafsson
Fréttastjóri Stöðvar 2 / Editor in Chief Channel 2 News
------
Kristinn svarar um hæl:
Kristinn Hrafnsson/Norðurljós/IS
08/31/2007 10:11 PM
To
Steingrímur Sævarr Ólafsson/365@Nordurljos
cc
Fréttastofa Stöðvar 2
bcc
Subject
Re: “Þá ber að nefna...”
Það vakti sérstaka athygli mína að Steingrímur skuli hafa erft þá ákvörðun að reka Þóru Kristínu. Ég hafði samband við Sigmund Erni og bar þetta uppá hann.
Sigmundur sagði þetta vera alrangt.. Þarna stendur því orð gegn orði. Nema ákvörðun um að segja Þóru Kristínu upp störfum hafi verið tekin af einhverjum öðrum en Sigmundi. Forvitnilegt væri þá að vita hver hefði tekið þá ákvörðun.
Hitt er svo aukaatriði að fréttastjórinn hafi aðeins fundið þrjár réttar staðreyndir í minni sendingu. Það er þá væntanlega staðreyndavilla að Þóra Kristín hafi sinnt sínu starfi vel og að fengur hafi verið í því að hafa hana í pólitískum fréttum. Varla er það staðreyndavilla að Þóra hafi fengið þá skýringu eina að gera ætti breytingar. A.m.k. var þetta haft eftir fréttastjóranum á Mbl: “Steingrímur sagðist hafa tekið við hópi fréttamanna og þann hóp vildi hann móta eftir sínu höfði og að það hafi verið ákveðið að gera breytingu á hópnum.”
Meginmálið nú er hins vegar þetta: Hvað er hæft í því að búið hafi verið að ákveða að segja Þóru Kristínu upp störfum áður en nýr fréttastjóri tók við.
Þarf að minna menn á að við eigum víst að hafa það hlutverk að leita sannleikans í umboði almennings. Betra að hann sé að hreinu innanhúss.
Kristinn
---------
Síðan kom þetta frá fréttastjóranum:
Steingrímur Sævarr Ólafsson/365
09/02/2007 10:03 PM
To
cc
Fréttastofa Stöðvar 2
bcc
Subject
Re: “Þá ber að nefna...”
Við Sigmundur Ernir erum sammála um að það sé engum til hagsbóta, allra síst fréttastofu Stöðvar 2, að halda áfram umræðu um þetta mál með þessum hætti.
Málefni einstakra starfsmanna eru trúnaðarmál og því ætti ekki að ræða þau á opinberum eða svona vettvangi ef hægt er að komast hjá því.
Eftir stendur einfaldlega að uppsagnir fara ekki fram á pólitískum eða “óboðlegum” nótum á fréttastofunni punktur.
hilsen
Steingrímur Sævarr Ólafsson”