Sendu Orðinu línu á
ordid@eyjan.is
25. september, 2007

“Frumlegar auglýsingar”: Hægri eða vinstri umferð?

Orðið á götunni er að það sé síður en svo einsdæmi að íslenskir auglýsingamenn sæki í hugmyndir erlendra kollega.

Í gær greindi Orðið frá auglýsingum Landsbankans um aukakrónurnar og benti á eiginlega nákvæmlega eins auglýsingu fyrir mexókóskan banka.

En hér á eftir bjóðum við upp á stælingu á erlendri auglýsingu þar sem ekkert þarf að villast hvert fyrirmyndin er sótt enda hluti af alþjójðlegri herferð, upphaflega frá Noregi. Þetta er velþekkt auglýsing sem Hvíta húsið gerði fyrir Umferðarstofu. Hana sjá má hér.

En hér að neðan er önnur bresk auglýsing þar sem rekinn er áróður fyrir bílbeltanotkun.

Þeir sem horfa á hana geta ekki verið í vafa um hvaðan hugmyndin að auglýsingu Umferðarstofu er komin.

Uppfært kl. 20.19: Orðinu hefur borist eftirfarandi athugasemd frá kvikmyndagerðarmanni, sem þekkir vel til og segir: “Þó að íslenskar auglýsingar steli grimmt frá erlendum auglýsingum þá er ekki um það að ræða hér. Umrædd umferðarstofuauglýsing er hluti af alþjóðlegri herferð sem var keypt sérstaklega til að gera íslenska útgáfu. Þetta er svipað því að sjónvarpsþátturinn “Idolstjarna Íslands” er aðkeypt útgáfa af “American Idol” - eða þá kannski frekar bresku frummyndinni, “Pop Idol”.”

Þar höfum við það, þetta var semsagt alþjóðleg herferð ...

Uppfært kl. 21.02:  Birgir Hákonarson, framkvæmdastjóri Umferðarstofu hefur lagt orð í belg um málið með eftirfarandi athugasemd: “Mér var bent á það að á vefnum ykkar væri umfjöllun um meintan “þjófnað” Umferðarstofu á auglýsingu frá Bretlandi. .... Þegar Umferðarstofa kynnti þessa auglýsingu sumarið 2006 var strax tekið fram að auglýsingin væri eftir erlendri fyrirmynd, reyndar norskri, enda höfum við fengið leyti til þess frá þeim aðila sem átti höfundarréttinn. Okkur þótti nauðsynlegt að aðlaga hana að íslenskum aðstæðum og var Hvíta húsið fengið til þess verks. Það er allt tekið fram um þetta á heimasíðu Umferðarstofu og ekki verið að leyna uppruna herferðarinnar, sjá http://www.us.is/id/4443. Þetta er frekar gömul “frétt” á ykkar vef og ekki mikil rannsóknarblaðamennska á bak við hana.”

Senda á Facebook
Til baka


Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar