Sendu Orðinu línu á
ordid@eyjan.is

Færslur fyrir október, 2007

Nýr eigandi Skeljungs

31. október, 2007

Orðið á götunni er að Björgólfur Guðmundsson sé búinn að kaupa Olíufélagið Skeljung. Pálmi Haraldsson í Fons hefur verið helsti eigandi félagsins en lýsti því nýlega yfir að sá hlutur væri til sölu. Nú er kaupandi fundinn, það er Björgólfur Guðmundsson sem hefur bætt Skeljungi í safnið hjá sér.




Af hverju öll þessi töf?

29. október, 2007

Í dag verður greint frá því - sem Orðið á götunni sagði frá 18. október - að Ólafur Jóhannesson fyrrverandi þjálfari FH verður næstu landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu. Spurningin er af hverju það var beðið í 11 daga með að tilkynna ákvörðunina?




Bolli aðstoðar Actavis

26. október, 2007

Orðið á götunni er að Guðlaugur Þór Þórðarson, heilbrigðisráðherra, hafi mikinn metnað til þess að gera átak á íslenskum lyfjamarkaði.

Orðið á götunni er að forstjóri lyfjafyrirtækisins Actavis hafi ráðið sér nýjan aðstoðarmann.

Orðið á götunni er að nýi aðstoðarmaðurinn sé Bolli Thoroddsen, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, og helsti kosningasmali Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, heilbrigðisráðherra.




Tengdadóttir Geirs Haarde ráðin framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins

24. október, 2007

khhOrðið á götunni er að hinn 23 ára gamli stjórnmálafræðinemi Kristín Hrefna Halldórsdóttir hafi verið ráðin í stöðu framkvæmdastjóra borgarstjórnarflokks minnihlutans í Reykjavík.

Það vekur sérstaka athygli þar sem að Kristín Hrefna er tengdadóttir Geirs H. Haarde, formanns flokksins og forsætisráðherra en Kristín Hrefna er í sambúð með Borgari Þór Einarssyni, lögfræðingi í Landsbankanum og fyrrverandi formanni SUS. Geir hefur semghh kunnugt er verið með alla anga úti við að reyna að slökkva þá elda sem logað hafa í flokknum í Reykjavík undanfarið og hefur lagt áherslu á að menn forðist að sýna um of glundroðann og upplausnina í borgarstjórnarflokknum.

Menn telja það jafnframt til vitnis um veikari stöðu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, fyrrverandi borgarstjóra aðjks gengið hafi verið framhjá aðstoðarmanni hans og staðgengli, Jóni Kristni Snæhólm, alþjóðastjórnmálafræðingi, við ráðningu í framkvæmdastjórastöðuna.

Öll spjót hafa staðið á borgarfulltrúum Sjálfstæðismanna undanfarið. Allir eru þeir umtalsvert pólístískt veikari en áður. M.a.s. “félagshyggjukonuna” Jórunni Frímannsdóttir þykir hafa sett niður fyrir ýmis klaufaleg ummæli í hita leiksins.

Óhætt er að segja að uppgangur Kristínar Hrefnu hafi verið skjótur á þeim 20 mánuðum sem hún hefur starfað fyrir Sjálfstæðisflokkinn, en hún gekk í flokkinn í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna í fyrra. Hún tók þátt í prófkjöri sjálfstæðismanna í Árborg og skipaði 7. sætið á lista þeirra í kosningunum. Eftir aðEA Eyþór Arnalds ók á staurinn fékk Kristín Hrefna að taka meiri þátt í sveitarstjórnarstarfinu fyrir austan fjall. Kristín Hrefna er formaður ungra sjálfstæðismanna í Árborg og ritari í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna. Um tíma starfaði hún sem blaðamaður á Blaðinu og DV.

Kristín Hrefna er þannig ekki ókunnug meirihlutum sem springa en sem kunnugt er þá sprakk meirihluti Sjálfstæðismanna og framsóknarmanna í Árborg skömmu eftir kosningar. Hún ætti því að kunna að koma móralnum í lag í hóp sem fer skyndilega úr meirihluta í minnihluta.




Tvífarar?

24. október, 2007

jormur.JPG

Jón Ormur Halldórsson, stjórnmálafræðingur, er fjölhæfur maður, var aðstoðarmaður Gunnars Thoroddsen forsætisráðherra í eina tíð, kennir við Háskólann í Reykjavík og líka á Indónesíu eða á bæjunum þar í grennd. En miðað við þessa mynd á baksíðu Íþróttablaðs Morgunblaðsins í gær verður ekki betur séð en að hann sé líka orðinn forseti Eistlands. Myndin var tekin í samsæti sem haldin var til heiðurs eistneskum heimsmeistara í kringlukasti og Vésteini Hafsteinssyni þjálfara hans.




Þingmaður í vinnu hjá ráðherra

22. október, 2007

Orðið á götunni er að utanríkisráðuneytið sé í mikilli stefnumótun um þessar mundir og sendiherrar hér og þar taki þátt í símafundum og mikilli vinnu þess vegna.

Það hefur vakið sérstaka athygli að sérlegur ráðgjafi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur í þessari vinnu er Guðfinna Bjarnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem hefur mætt til símafunda með ráðuneytisfólki þar sem stefnan hefur verið mótuð. Er það mál manna að hún vinni að þessu sem aðkeyptur sérfræðingur. Er það afar óvenjulegt að þingmaður sé fenginn með þeim hætti til starfa í ráðuneyti.

En það má segja að ferlill Guðfinnu sem þingmanns sé óvenjulegur að öðru leyti. Frá því hún komst á þing hefur hún m.a. sótt um leyfi til að reka pylsuvagn í Reykjavík og svo herma fréttir að hún hafi fyrr í sumar lýst áhuga á forstjórastarfi hjá Icelandair.




Maður fyrir borð hjá RÚV

21. október, 2007

Enn einn fréttamaðurinn er að yfirgefa fréttastofu Ríkisútvarpsins. Ingimar Karl Helgason hefur sagt upp störfum.

Orðið á götunni er að hann byrji fljótlega í nýrri vinnu sem blaðamaður á Markaðnum, viðskiptablaði Fréttablaðsins.




Fréttir vikunnar

21. október, 2007

“Ég lýsi enn undrun minni á því að Helga Seljan sé falið að fjalla um fréttir vikunnar.” Svona endaði færslan í dagbók Björns Bjarnsonar á netinu á föstudagskvöldið.

Núna er hins vegar búið að taka þessa setningu út. Orðið á götunni er að líklegasta skýringin á því að Björn tók þetta út sé einfaldlega sú að hann telji sig hafa fengið tryggingu fyrir því að Helgi Seljan fái ekki aftur að sjá um yfirferð frétta vikunnar í Kastljósi á föstudagskvöldum.




Freudian slip?

19. október, 2007

ruv




Ólafur Jóhannsson - líklegasti eftirmaður Eyjólfs

18. október, 2007

Orðið á götunni er það að Ólafur Jóhannsson, sem er nýhættur að þjálfa FH eftir glæsilegan árangur undanfarin ár, sé búinn að fá SMS frá Geir Þorsteinssyni, formanni KSÍ. Í því stendur: Til í allt - án Jolla!  Eða þannig.

Það er sagt nánast öruggt að Ólafur verði ráðinn eftirmaður Eyjólfs Sverrissonar sem þjálfari karlalandsliðsins. Helsta spurningin er sú hvort hann tekur við fyrir eða eftir leikinn gegn Dönum 21. nóvember ...




Skýringin á andstöðu Bónus við kannanir ASÍ fundin

18. október, 2007

Raunverulega skýringin á illskiljanlegri deilu ASÍ og Haga um verðkannanir er líklega fundin. Bónus hefur bannað útsendurum ASÍ að koma inn fyrir sínar dyr í þeim erindum að gera verðkannanir. Margir hafa klórað sér í hausnum yfir þessu - deilan hefur ekki beint verið að lappa upp á ímynd fyrirtækisins sem ræður lögum og lofum á matvörumarkaði; hvers vegna í ósköpunum má verkalýðshreyfingin ekki kanna verðið í Bónus?

Orðið á götunni er að skýringin sé einföld: Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, sat árum saman í stjórn Kaupáss, allt frá síðustu öld og allt þar til fyrirtækið sameinaðist Norvik. Það eru ekki síst þessi tengsl Gylfa við helsta keppinaut Haga sem gera að verkum að fyrirtækið er fullt af tortryggni í garð þess að ASÍ geti staðið eðlilega að verðkönnunum.

En - sem sagt - framkvæmdastjóri ASÍ, sat árum saman í stjórn eins þeirra fyrirtækja sem hefur hvað flest starfsfólk á lágmarkslaunum í sinni þjónustu.




Viggo Mortensen býr í Grafarvogi

18. október, 2007

...og samkvæmt 118 virðist hann starfa sem rafvirki.

Viggo




Eini sýnilegi árangurinn af RÚV ohf. - tvöföld laun útvarpsstjóra

17. október, 2007

Orðið á götunni er að það hafi bara verið eitt umræðuefni manna á meðal í höfuðstöðvum Ríkisútvarpsins í dag: launamál útvarpsstjóra. Það kraumar og sýður á starfsfólkinu sem fékk í morgun þær fréttir að laun Páls Magnússonar hefðu tvöfaldast frá því að stofnunni var breytt í ohf. Páll er nú með eina og hálfa milljón króna í laun á mánuði.

“Þetta er það eina sem hefur breyst frá því að Ríkisútvarpið var ohf-að,” sagði öskureiður starfsmaður RÚV við orðið á götunni í dag. “Það hefur ekkert launaskrið verið hér í húsinu, - það er bara útvarpsstjóri sem hefur grætt á breytingunni.”
Forystumenn starfsmanna eru þegar komnir á fullt eftir fréttirnar og ætla að reyna að nýta þær til að bæta hag starfsfólksins. Baldvin Þór Bergsson, formaður Starfsmannasamtaka RÚV, er búinn að óska eftir fundi með útvarpsstjóra vegna málsins og sagði í dag að ef þetta væri vísbending um launahækkanirnar sem aðrir starfsmenn RÚV eiga í vændum sé það hið besta mál  að tvöfalda laun útvarpsstjóra. Baldvin er þrautreyndur félagsmálamaður sem býr að margra ára starfi innan  ungliðahreyfingar Sjálfstæðisflokksins.




Bandarískur sjónvarpsþáttur skoðar “undanhald” Íslands frá Írak

16. október, 2007

Ákvörðun Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra um að kalla Herdísi Sigurgrímsdóttur, friðargæsluliða heim frá Írak virðist ætla að draga dilk á eftir sér.jones

Orðið á götunni er að á Íslandi sé nú staddur Jason Jones, fréttaritari bandaríska sjónvarpsþáttarins Daily Show. Jones mun skv. heimildum hafa gert fjölmargar tilraunir til að ná tali af íslenskum ráðamönnum til að fá skýringar á þessu undanhaldi þjóðarinnar frá í Írak.

Talið er að Íslendingar verði teknir fyrir í þættinum einhvern næstu daga og kastljósi varpað á þessi “svik” við Bandaríkin, helsta bandamann Íslands í gegnum tíðina.

Jones og upptökuteymi hans mun vera ósátt við viðbrögð íslenskra stjórnvalda og hefur hann því boðað til blaðamannafundar á nýja íslenska Hilton hótelinu á morgun kl. 11:00 þar sem hann hyggst lesa yfirlýsingu frá Daily show um samskiptin við Ísland.

nordicaJafnvel er talið að von sé á kröfu um að Íslendingar sendi “herlið” sitt aftur til Íraks.

Bara verst að Davíð er hættur... hann kunni manna best að rækta samband okkar við vinaþjóðina í vestri.




Skjótt skipast veður í lofti...

16. október, 2007

c_ordid_jon_kristinn_snaeholm_3x.gifJón Kristinn Snæhólm, sem í dag lét af starfi aðstoðarmanns borgarstjóra í Reykjavík, hafði oft ástæðu til að gleðjast í prófkjörunum fyrir borgarstjórnarkosningar og alþingiskosningar.  Það var eins og hann gæti ekki tapað, - þeir sem hann studdi unnu hvern sigurinn á fætur öðrum.

Orðið á götunni fjallaði í fyrravetur um Jón Kristin sem hinn eiginlega sigurvegara prófkjöranna í Sjálfstæðisflokknum - hann var alls staðar eins og sést á myndunum hér til hliðar, þar sem rauður hringur er dreginn um hrokkinhærðan kollinn á manninum á bak við sigurvegarana.

Eyþór Arnalds, kom sá og sigraði í Árborg og Jón Kr. Snæhólm fagnaði dátt.   Gamli, góði Villi burstaði Gísla Martein og  Jón Kristinn steig út úr skugganum. Mest var gleðin þegar Jón Kristinn, Guðlaugur Þór og félagar unnu frækinn sigur á Birni Bjarnasyni.

Síðan hefur vatn runnið til sjávar - ferill Eyþórs Arnalds í stjórnmálum  stöðvaðist á ljósastaur á Kleppsvegi í Reykjavík og  gamli, góði Villi er horfinn á braut úr Ráðhúsinu eftir hatramma atlögu samherja.




Sveinn að kveðja Iceland Review

15. október, 2007

images.jpgOrðið á götunni er að Sveinn H. Guðmarsson sé á förum frá Iceland Review eftir tiltölulega stutt stopp en harla gott sem ritstjóri. Hann mun hafa sagt starfi sínu lausu til að halda til Brighton í Englandi, þar sem kona hans Þórhildur Ólafsdóttir fjölmiðlakona er við nám.




Fréttamynd ársins !?!

15. október, 2007

leikirlyndi-01.JPG

Orðið á götunni er það að þessi mynd - sem tekin var daginn sem miðborg Reykjavíkur brann í sumar - sé á einhvern hátt táknræn fyrir endalok samstarfs Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur. Það vantar hins vegar sárlega viðeigandi texta við myndina.

Orðið á götunni skorar á lesendur að fara nú í skáldlegar stellingar, smíða viðeigandi texta á myndina af Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, borgarstjóra, Jóni Kristni Snæhólm, aðstoðarmanni borgarstjóra, og Birni Inga Hrafnssyni og senda í pósti til Orðsins á götunni.

Tillaga Elínar:

“Jón Kristinn segir við borgarstjóra: ‘Gísli Marteinn hefur komist í eldspýturnar’”

Tillaga Arnar Úlfars:

Óðu reyk
Myndin sýnir hvernig meirihluti borgarstjórnar brást við brunanum. Ef myndin prentast vel má sjá samherja Vilhjálms í Sjálfstæðisflokknum bera saman bækur sínar handan girðingarinnar.




BDSM-listinn

13. október, 2007

Borgarfulltrúar nýja meirihlutans hittust í gleðskap í dag með fólki úr baklandi flokkanna fjögurra. Orðið á götunni er það að gleði og góð stemmning hafi verið í húsinu.

Þegar fólk var að bera saman bækur sínar um atburði undanfarinna daga og aðdragandann að myndun meirihlutans og kom í ljós að í fjölmörgum gsm-símum, fjölmargra borgarfulltrúa eru til sms-skeyti með tilboðum borgarfulltrúa sjálfstæðismanna um að þeir séu til í allt með og- án Villa ... elstu skeytin eru víst frá því um síðustu helgi.

Oddvitarnir fjórir stigu í pontu og sögðu fáein orð og er óhætt að segja að ávarp Margrétar Sverrisdóttur hafi vakið mesta athygli enda kom hún með nýtt nafn á samstarfið, sem hingað til hefur verið kallað REI-listinn.

Margrét stakk upp á því að menn nefndu samstarfið eftir upphafsstöfum oddvitanna fjögurra, Björns Inga, Dags, Svandísar og Margrétar. Þá kemur út skammstöfun, sem heyrðist talsvert þegar Byrgismálið var mest í umræðunni: BDSM-listinn.




Til í allt - án Villa

12. október, 2007

Orðið á götunni er það að Björn Ingi hafi ekki einn viljað slíta meirihlutasamstarfinu. Það er altalað í röðum Vinstri grænna að sjálfstæðismenn hafi stigið fast í vænginn við Svandísi Svararsdóttur, svo fast að þeir stigu á tærnar hennar og fældu frá.

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir reyndi  mikið að fá Svandísi til liðs við sig, og Svandís segir samstarfsmönnum sínum að í gærmorgun hafi hún fengið tvö sms frá Þorbjörgu þar sem hún vildi hitta hana til að ræða nýjan meirihluta. Í öðru stóð: Til í allt - án Villa.




Nýr meirihluti - Dagur borgarstjóri

11. október, 2007

Orðið á götunni er það að búið sé að mynda nýjan borgarstjórnarmeirihluta, Dagur B. Eggertsson verði borgarstjóri, og að sjálfstæðismenn verði einir í minnihluta.

Eins og fram kom á Eyjunni mætti Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi framsóknar, ekki til fundar í Höfða í hádeginu þar sem ræða átti fjárhagsáætlun borgarinnar og sjálfstæðismenn ætluðu að ræða ágreining flokkanna um REI í leiðinni.

Björn Ingi mætti ekki, á meðan var hann að leggja lokahönd á myndun nýs meirihluta með öllum öðrum flokkum í borgarstjórn en sjálfstæðismönnum. Orðið á götunni er það að Dagur B. Eggertsson taki við sem borgarstjóri.





Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar