Sendu Orðinu línu á
ordid@eyjan.is

Færslur fyrir desember, 2007

Skjöl ársins - Jón Gerald sendir málsgögnin á fjölmiðla

31. desember, 2007

Jón Gerald Sullenberger lét senda fjölmiðlum í tölvupósti hluta af gögnum Baugsmálsins um jólin og kemur fram í tölvupóstum sem koma frá netfanginu jon.s.jonsson@lycos.com að þá ákvörðun hafi hann tekið eftir að Jón Ásgeir Jóhannesson var valinn maður ársins í viðskiptalífinu af Markaði Fréttablaðsins og lýsti því yfir að Baugsmálið væri að renna út í sandinn eins og sæist best af því að hann hefði fengið 50 milljónir endurgreiddar frá skattinum.

Jón Gerald er harður á því að Baugsmenn séu að komast upp með svindl og þess vegna kom sendingin, fleiri hundruð megabæt af pdf skjölum á fleiri hundruð blaðsíðum þar sem eru ljósrit af nótum, færsluyfirlitum, tölvupóstum og fleiru, þar á meðal tölvupóstarnir sem fóru á milli hans sjálfs, Tryggva Jónssonar og Jóns Ásgeirs Jóhannessonar vegna bátsins fræga, Thee Viking. Líka ársreikningar og fundargerðir Baugs. “Safaríkustu skjölin eru eftir hinsvegar og bíða betri tíma,” segir í einni sendingunni.

Öll þessi gögn eru í höndum ákæruvaldsins, það lagði hald á þau við húsleitir og fékk sérfræðinga til að vinna úr þeim. Bréfaskipti lögreglu og endurskoðenda eru meðal gagnanna, sem Jón Gerald fékk afhent sem sakborningur í Baugsmálinu. Saksóknarar hafa lagt þau fyrir dóm og reifað fram og aftur, verjendur hafa mótmælt og dómarar lagt það mat á þau að þau sanni ekki sekt. Sigurður Tómas Magnússon saksóknari í Baugsmálinu segir í Fréttablaðinu í dag að sakborningum sé í sjálfsvald sett að birta gögnin opinberlega.

Og Orðið á götunni er að hér og aðeins hér geti hver sem er komist yfir þessi gögn, á vefhóteli þar sem þau eru hýst. Þeir, sem vilja, geta gruflað í þeim dómskjölum sem Jón Gerald vill að komi fyrir sjónir almennings með því að afrita tenglana hér að neðan og hlaða skjölunum niður í eigin tölvur.

http://www.yousendit.com/download/www/OFZLb3BLV3JTSURIRGc9PQ

http://www.yousendit.com/download/www/OFZLb3BMTERveFBIRGc9PQ

http://www.yousendit.com/download/www/OFZLNU1ONEhubVhIRGc9PQ

http://www.yousendit.com/download/www/OFZMS3doZ1BlcExIRGc9PQ




Spádómur án föðurlands

30. desember, 2007

Eins og Orðið á götunni sagði frá hitti Völva Vikunnar naglann á höfuðið þegar hún spáði því í fyrra að Þorsteinn Davíðsson yrði skipaður héraðsdómari á þessu ári. Það kom á daginn.

En nú er komin skýring á því hvers vegna síðasta tölublað Vikunnar minntist ekki einu orði á þetta afrek í spámennsku Völvunnar þegar árið var gert upp í síðasta tölublaði. Skýringin er einfaldlega sú að síðasta tölublað ársins með Völvuspánni var “komið í prentsmiðju” þegar Þorsteinn var skipaður fimmtudaginn fyrir jól.

Þetta upplýsir Gurrí Haraldsdóttir, blaðamaður á Vikunni, í athugasemd hér á Orðinu og líka á blogginu sínu þar sem hún segir að Orðið á götunni sé einfaldlega ekki með á nótunum að hafa lesið þetta á blogginu hennar. En Orðið á götunni er samt sem áður það að eitt sé að vera kominn í prentsmiðju og annað að vera búinn að prenta. Ritstjórnin hlýtur að naga sig í handabökin fyrir að hafa ekki kallað blaðið inn í umbrot upp á nýtt og þess vegna látið prenta nýtt upplag enda er vafasamt að Vikan og spádómsgáfa Völvunnar hafi áður fengið jafnverðmæta auglýsingu og með þessu skúbbi sem Vikan lét fram hjá sjálfri sér fara.




Spádómurinn sem rættist

29. desember, 2007

Það er gamalt sport í þjóðfélaginu að sökkva sér í þær kellingabækur sem birtast í völvuspám blaða og tímarita um áramótin. Lengst hefur völva Vikunnar verið að störfum og hefur stundum ratast satt orð á munn um óorðna hluti.

Orðið á götunni er að sjaldan hafi Völvu Vikunnar tekist betur upp en fyrir áramótin í fyrra þegar hún spáði þessu: “Ég sé læti í kringum Davíð Oddsson og tengi það tilraun Björns Bjarnasonar til að koma manni Davíðs inn í héraðsdóm, jafnvel syni Davíðs.”

Þarna hitti Völvan naglann beint á höfuðið, því einmitt þetta gerðist í lok ársins. Þeim mun undarlegra er að í síðasta tölublaði Vikunnar þar sem birt er spáin vegna þessara áramóta og rifjað upp það sem rættist úr þeirri síðustu minnist Völvan ekki á þetta mikla afrek sitt í því að sjá framtíðina fyrir. Þessi mikli spádómur uppgötvaðist ekki fyrr en Valgerður Sverrisdóttir sat norður á Lómatjörn og blaðaði gamalli viku, rak augun í þetta og bloggaði um það á heimasíðu sinni.




Völvan lítur í kringum sig

28. desember, 2007

Orðið á götunni er að Völvuspá DV sé með ýmsa forvitnilega spádóma úr sínu nánasta umhverfi að þessu sinni. Hún segist til dæmis sjá það í kristalkúlu sinni að danska blaðið Nyhedsavisen hætti að koma út á næsta ári, jafnvel strax um áramótin. Það er athyglisvert í ljósi þess að Nyhedsavisen er hálfgert “systurblað DV” því að eigendur blaðanna eru hinir sömu.

Og Völvan sér fyrir sér að “þekktir bræðir” muni stofna nýjan Helgarpóst - og blasir við að þar sé vísað til þeirra Gunnars Smára og -sme. Þeir bræður eru gamlir og nýir samstarfsmenn Völvunnar, sem spáir því að þessi útgáfa verði sneypuför.

En mesta athygli vekur meðferð Völvunnar á Hannesi Smárasyni því að hún spáir því að Hannes verði gjaldþrota og flytjist burt frá landinu. Þar er ekkert verið að tala um “þekktan kaupsýslumann” eða reyna að fara í kringum hlutina heldur er Hannes nafngreindur og er það fremur óvenjulegt í spám af þessu tagi. En Orðið á götunni er að margir staldri við þessa spádóma í ljósi þess að vitað er að Völvan er í góðum tengslum við helstu viðskiptafélaga Hannesar.

Loks má staldra við það að Völva DV spáir því að útgáfa DV taki breytingum á nýju ári og útgáfudögum verði fækkað.




Aðgerð í undirbúningi

23. desember, 2007

Orðið á götunni er að gríðarleg óánægja sé innan Samfylkingarinnar í framhaldi af skipan Árna M. Mathiesen á Þorsteini Davíðssyni í embætti héraðsdómara.

Hópur fólks úr röðum yngri félaga í Samfylkingunni er að undirbúa aðgerðir til þess að láta óánægju sína í ljós. Þetta eiga að verða opinberar aðgerðir þar sem þess verður krafist að forsvarsmenn Samfylkingarinnar setji sjálfstæðismönnum stólinn fyrir dyrnar.

Samfylkingarfólkið hefur m.a verið að rifja upp frumvarp sem Lúðvík Bergvinsson og fleiri þingmenn flokksins lögðu fram um skipan hæstaréttardómara en þar leggur Lúðvík til að tveir þriðju hlutar alþingis þurfi að staðfesta tilnefningu hæstaréttardómara til að hún öðlist gildi. Margir eru á því að enginn eðlismunur sé á hæstaréttardómurum og héraðsdómurum að þessu leyti.




Spádómurinn sem rættist

21. desember, 2007

Orðið á götunni er það að sjálfstæðismönnum Suðurkjördæmi þyki nú vera að rætast sá spádómur sem margir höfðu uppi fyrir alþingkosningarnar að Árni ætti eftir að verða flokknum pólitískt erfiður.

Spádómurinn rættist - með smá tilbrigðum. Þannig er að það var Árni Johnsen sem sjálfstæðismenn höfðu áhyggjur af en eins og mál hafa þróast er það nafni hans Mathiesen sem er í erfiðum pólitískum málum. Grímseyjarferjan, hörð gagnrýni á fjárlögin og efnahagsstjórnina, mál Þróunarfélagsins á Keflavíkurflugvelli og nú síðast skipun hans sem setts dómsmálaráðherra á syni Davíðs Oddssonar í embætti héraðsdómara, fram yfir þrjá hæfari umsækjendur.  Árni Johnsen hefur hins vegar látið lítið fyrir sér fara og einbeitt sér að því að tala um samgöngubætur í Vestmannaeyjum.




Under cover

20. desember, 2007

Það bar til tíðinda að Björn Bjarnason dómsmálaráðherra, birtist í öllum sjónvarpsfréttatímunm í gærkvöldi. Annars vegar var rætt um áhyggjur lögreglumanna af stöðu og kjörum og svo um farbann og eftirlit með sakamönnum.

Orðið á götunni er að það þyki ávallt sæta nokkrum tíðindum sæta í sjónvarpsheiminum þegar Björn birtist á skjánum í viðtali við fréttamenn. Ef hann sést í sjónvarpsfréttum er oftar en ekki verið að spila ummæli sem hann lét falla í ræðustól Alþingis. Að öðru leyti fara flestöll samskipti Björns við  fréttamenn fram í gegnum tölvupóst. Fréttamenn segja að hann hafni fleiri beiðnum um sjónvarpsviðtöl en nokkur annar ráðherra. Helst að færi gefist þegar ráðuneytið heldur blaðamannafundi, t.d. þegar verið er að taka í notkun nýjar þyrlur eða eitthvað slíkt. Eins er afar fátítt að Björn sé meðal gesta í spjallþáttum á borð við Kastljósið, Ísland í dag og Silfur Egils. Það er ekki vegna þess að Birni standi það ekki til boða heldur er sagt að hann þiggi sjaldnast boð sem berast um að mæta í þá þætti.

Orðið á götunni er mestu líkurnar á að heyra viðtal við Björn eigi þeir sem hlusta á þáttinn Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Kristófer Helgason og Þorgeir Ástvaldsson í miklum metum hjá Birni og veitir hann þeim viðtöl með reglulegu millibili.




Fölsuð bankaábyrgð Amitelo

17. desember, 2007

amitelo_sb.gifÞann 16. október s.l. reyndist svissneska fyrirtækið Amitelo AG með lægsta tilboðið í síðari áfanga GSM-farsímaþjónustu á landinu og til stóð að Ríkiskaup gengi frá samningi við þá í samræmi við það um mánaðarmótin október / nóvember.

Ein af forsendum svona samninga er að tilboðsgjafar geti lagt fram tryggingar fyrir fjárhagslegri getu.

Orðið á götunni er að Amitelo hafi skilað inn falsaðri bankaábyrgð og að það sé ástæða þess að fallið var frá samningum við fyrirtækið, og þess í stað samið við þann næst lægsta - eða Vodafone.

Í apríl s.l. var fjallað um þetta vafasama fyrirtæki í þýskum sjónvarpsþætti (Frontal21) og visir.is gerði málinu einnig skil þá. Fyrirtækið er til rannsóknar ytra m.a. vegna gruns um að gefa villandi upplýsingar til að hækka hlutabréfaverð og einnig hefur það verið kært fyrir að blekkja hluthafa sína. Erfiðlega hefur gengið að finna starfsmenn félagsins og í fyrrnefnda þýska sjónvarpsþættinum kom fram að enginn hafði sést í höfuðstöðvum þess í hálft ár.

Þrátt fyrir þetta stóðust þeir próf Ríkiskaupa sem taldi þá hæfa til þátttöku í útboðinu. Og í sumar veitti Póst- og fjarskiptastofnun Amitelo einnig tíðniheimild fyrir uppbyggingu og rekstri farsímanets til 10 ára – þar sem þeir skuldbinda sig til að ná innan 3ja ára 95% útbreiðslutíðni, sem er meira en stóru símafélögin ná.

logo.gifÞað er eðlilegt að Póst- og fjarskiptastofnun stuðli með tíðniheimildum sínum að aukinni samkeppni á þessum markaði – en er þetta leiðin? Orðið á götunni er að Amitelo sé ekki búið að setja upp einn einasta sendi ennþá – þrátt fyrir að eiga bara eftir um 1 ár til þess að ná 80% útbreiðslunnar.

Orðið á götunni er að Amitelo sé hugsanlega að nota íslensku tíðniheimildina sem opnun inn á aðra GSM markaði í heiminum – enda er borin virðing fyrir þessum þróaða íslenska fjarskiptamarkaði.

Þarf Póst- og fjarskiptastofnun ekki að endurskoða tíðniheimild þessa fyrirtækis?




Auður stóll Steingríms

16. desember, 2007

Eins og kunnugt er lauk þingstörfum fyrir jólin með heitum og löngum umræðum um þingsköp Alþingis, þar sem Vinstri græn voru ein á móti öllum í andófi gegn nýjum lögum sem takmarka m.a. ræðutíma þingmanna og þrengja möguleika stjórnarandstæðinga til þess að tefja framgang mála með því að setja á langar ræður.

Eins og jafnan var þinginu svo frestað fram í janúar með formlegum fundi þar sem Sturla Böðvarsson, þingforseti óskaði þingmönnum gleðilegra jóla, góðrar heimferðar og svo framvegis. Kristinn H. Gunnarsson ávarpaði forsta fyrir hönd þingmanna með jólaóskum og fögrum orðum. Allt er þetta ósköp hefðbundið og jafnfastur liður í prótókolli þingsins og þingsetningin, umræður um stefnuræðu forsætisráðherra og nokkrar aðrar samkomur þar sem ætlast er til þess að allir þingmenn séu viðstaddir og kveðji svo hver annan með frómum óskum.

En að þessu sinni var einn stóll auður í þingsalnum - það var sæti Steingríms J. Sigfússonar, formanns VG. Hann lét sig hverfa úr húsi um það bil sem þessi síðasti fundur haustþingsins hófst.  Orðið á götunni er að það verið hans síðasta mótmælaaðgerð gegn lagasetningunni um þingsköpin.”




SME hættir á DV og tekur við Mannlífi

14. desember, 2007

Nú sér fyrir endann á þeim breytingum sem gerðar verða hjá Birtíngi um áramót. Eins og fram er komið verður tímaritið Ísafold lagt niður en nú liggur fyrir að ritstjóri Ísafoldar, Jón Trausti Reynisson Traustasonar, flyst yfir á DV og verður þar ritstjóri við hlið föður síns.

Um leið hættir Sigurjón M. Egilsson, sem ritstjóri DV og verður ritstjóri Mannlífs. Aðstoðarritstjóri SME á Mannlífi verður dóttir hans, Hjördís Rut, sem nú er blaðamaður á DV.

Þórarinn Þórarinsson, sem nú ritstýrir Mannlífi, verður ritstjóri dv.is en Guðmundur Magnússon lét af því starfi fyrir nokkrum dögum.

Merkilegt þetta fjölskylduveldi sem virðist orðið til hjá Birtíngi - auk feðganna Reynis og Jóns Trausta er Róbert Reynisson Traustasonar, yfirmaður ljósmyndadeildar fyrirtækisins. Og auk feðginanna Sigurjóns og Hjördísar er Janus Sigurjónsson Egilssonar yfirmaður umbrotsdeildar.

Og Elín G. Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Birtings, og Ásmundur Helgason markaðsstjóri eru hjón.




Rússnesk kosning

13. desember, 2007

Fimmtíu og fimm sinnum las Sturla Böðvarsson upp nafn Tryggva Gunnarssonar þegar talin voru atkvæði þingmanna í kjöri Umboðsmanns Alþingis næstu fjögur árin. Tryggvi var því einróma endurkjörinn til starfsins sem hann hefur gegnt síðustu átta ár og voru engum öðrum greidd atkvæði og enginn seðill auður. Þannig að það liggur fyrir að Tryggvi nýtur fyllsta trausts.

Umboðsmaður hefur líka gengið fram af skörungsskap í að framfylgja því starfi sínu að veita aðhald í nafni alþingis með meðferð framkvæmdavaldsins, - hvort sem er hjá ríki eða sveitarfélögum. Þannig brást Tryggvi skörulega við og tók upp REI-málið að eigin frumkvæði og margir eiga von á því að hann taki málefni Þróunarfélagsins á Keflavíkurflugvelli upp með sama hætti.




Mikil starfsmannavelta

11. desember, 2007

Fréttin um brotthvarf Guðmundar Magnússonar af dv.is kemur ekki á óvart - orðið á götunni er að það hafi mátt sjá að þetta væri á næsta leyti því bæði Jóhann Hauksson og Sigríður Dögg Auðunsdóttir hafa látið af störfum á þessum nýjasta fréttavef landsmanna undanfarna daga og greinilegt að mikið rót var á staðnum. Í upphafi voru fjórir blaðamenn á dv.is og þótti vel í lagt - en nú er aðeins einn þeirra eftir, sá heitir Róbert Hlynur.

Það að dv.is hefur haldist illa á fólki undanfarið er meðal annars tengt því að skammt er síðan Reynir Traustason var ráðinn einhvers konar sviðsstjóri eða yfirritstjóri allrar útgáfustarfsemi á vegum DV og Birtings fyrr í vetur. Þá munaði litlu að upp úr syði en mönnum tókst að lægja öldur og gefin var yfirlýsing um að breytingarnar yrðu ekki til að skerða neitt sjálfstæði annarra ritstjóra, þar sem voru fremstir meðal jafningja Sigurjón M. Egilsson á DV og Guðmundur á dv.is.

En breytingarnar reyndust meiri en menn ætluðu og fljótt kom í ljós að Reynir ætlaði ekki að sitja auðum höndum í nýja starfinu heldur láta til sín taka - meðal annars með því að gera kröfur um að dv.is yrði tengdur betur við aðra útgáfu sömu eigenda.

Nú er Guðmundur hættur - en hann var hugmyndafræðingurinn á bak við vefinn - og hefur náðst um þá niðurstöðu sátt við yfirmenn sína -með Hrein Loftsson, stjórnarformann, fremstan í flokki.

Orðið á götunni er svo að aðrar breytingar séu í farvatninu hjá Birtingi og DV, þar á meðal sé ljóst að útgáfusaga tímaritsins Ísafoldar sé að renna sitt skeið á enda.




Sindri í stað Ólafs Teits

10. desember, 2007

Sindri Freysson, rithöfundur og margreyndur blaðamaður er kominn til starfa á ritstjóran Viðskiptablaðsins og sestur í sætið hans Ólafs Teits Guðnasonar, sem er orðinn starfsmaður Straums-Burðaráss. Á næstunni mun svo Arnór Gísli Ólafsson, viðskiptablaðamaður á Mogganum, flytja sig um sel og hefja störf á Viðskiptablaðinu.

Af öðrum atvinnumálum blaðamanna er það helst að frétta að Jóhann Hauksson, hinn gamalkunni haukur, er hættur störfum á dv.is.




Hafliði og Þórhildur fá heiðurslaun

6. desember, 2007

Orðið á götunni er að fyrir jól muni tve nýir listamenn bætast í hóp þeirra sem njóta svokallaðra heiðurslauna frá Alþingi. Þetta eru Hafliði Hallgrímsson, sellóleikari og tónskáld, sem búið hefur áratugum saman í Skotlandi, en kemur til landsins á nokkurra ára fresti og heldur tónleika. Hinn listamaðurinn, sem nú verður væntanlega heiðraður, er Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri og fyrrverandi þingkona Kvennalistans, - náin vinkona Ingibjargar Sólrúnar utanríkisráðherra.

Jafnan er mikill póker í gangi í þinghúsinu fyrir jólin til þess að velja nýja í heiðurslaunaflokkinn. Rithöfundasambandið hefur  sótt fast - í ár og undanfarin ár - að Sigurður A. Magnússon, komist á listann. Á því er enginn möguleiki meðan sjálfstæðismenn fá nokkru ráðið - því að þegar allt kemur til alls koma þeir listamenn einir til greina sem báðir stjórnarflokkarnir koma sér saman um.

Heiðurslaunin þykja mikill heiður - en markmið þeirra er væntanlega annars vegar að verðlauna vel unnið starf og hins vegar að tryggja að í þjóðfélaginu sé til hópur listamanna sem er fjárhagslega sjálfstæður og getur sinnt list sinni óháð “markaðslögmálum” og öðrum öflum en eigin sannfæringu.

Heiðurslaunaþegarnir fá heilar 125.000 krónur á mánuði frá þinginu og hefur sú upphæð ekkert breyst árum saman. Orðið á götunni er að mikið hafi verið rætt um að hækka launin, til samræmis við verðlag, en það er ekki vinsæl hugmynd á þinginu og hefur nú algjörlega slegin af. Það réði víst úrslitum að menntamálaráðherrann, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, vill ekki vera sökuð um að hygla föður sínum, en Gunnar Eyjólfsson, sem er í hópi hinna útvöldu og mundi því njóta góðs af hækkuninni.




Betri boðleið?

6. desember, 2007

Vinstri grænir gagnrýndu harkalega stefnumörkun ríkisstjórnarinnar vegna loftslagsráðstefnunnar á Balí og töldu að enn einu sinni ætluðu Íslendingar að fá sérmeðferð og sérstakt ákvæði á sama tíma og aðrar þjóðir þyrftu að ráðast í miklar aðhaldsaðgerðir til að draga úr eigin losun.

Það vakti hins vegar athygli að samdægurs sendu Náttúruverndarsamtök Íslands frá sér yfirlýsingu þar sem stefnumótun ríkisstjórnarinnar var fagnað sérstaklega.

Orðið á götunni er að það hafi ekki spillt fyrir sambandi Náttúruverndarsamtakanna og ríkisstjórnarinnar að nýlega var ráðinn nýr lögfræðingur í umhverfisráðuneytið. Það er Glóey Finnsdóttir, systir Árna, formanns Náttúruverndarsamtaka Íslands.




Klink í vasann

5. desember, 2007

Orðið á götunni er að menn eigi erfitt með að átta sig á því af hverju Hannes Smárason fékk 60 milljóna starfslokasamning ef það er eins og hann segir sjálfur að hann hafi sagt upp af fúsum og frjálsum vilja og að eigin frumkvæði eftir að hafa rekið félagið á tímabili sem það varð fyrir mesta tapi sem eitt íslenskt hlutafélag hefur orðið fyrir.

Líklega eiga tugþúsundir Íslendinga beinna hagsmuna að gæta í FL Group í gegnum eignaraðild lífeyrissjóðanna. Ætli lífeyrissjóðirnir hafi gert athugasemdir við rekstrarkostnað félagsins í forstjóratíð Hannesar? Sá kostnaður var 2.770 milljónir króna á síðasta ári, sem jafngildir 65 milljónum króna á hvern starfsmann félagsins.

Orðið á götunni er að það sé líka Íslandsmet í rekstrarkostnaði og að það verði spennandi að fylgjast með því hvort Jón Sigurðsson, aðstoðarforstjóri, feti áfram sömu braut og Hannes gerði.

Í heimi útrásarvíkinganna þykja reyndar 60 milljónirnar hans Hannesar hálfgert klink, - menn minna á að Ragnhildur Geirsdóttir, sem var forstjóri FL í nokkra mánuði, fékk 130 milljónir í starfslokasamning þegar hún gekk út um svipað leyti og mestur hluti stjórnar félagsins hætti. Sá samningur var mjög umtalaður á sínum tíma, þótti reginhneyksli enda voru kringumstæðurnar undarlegar og væri fróðlegt að Ragnhildur, Inga Jóna Þórðardóttir og aðrir stjórnarmenn sem fóru úr stjórninni um þetta leyti tjái sig núna um mál FL Group.

Og af því að hlutur Baugs er rétt undir þeim 40% mörkum þar sem yfirtökuskylda stofnast í félagi og af því að aðrir hluthafar, eins og Pálmi Haraldsson, Þorsteinn M. Jónsson og Magnús Ármann, eru svo nátengdir Baugi í ýmsum viðskiptum bíða menn spenntir eftir því hvað yfirtökunefnd segi um niðurstöðuna sem eigendur FL Group tilkynnti í gær.




Af hverju ertu ekki eins og Hannes Smárason?

3. desember, 2007

“Af hverju ert þú ekki eins og Hannes Smárason?” Þetta var spurningin sem gekk eins og rauður þráður í gegnum áramótaskaupið í fyrra.

Þá fóru Hannes og FL Group með himinskautum í viðskiptalífinu. Nú er öldin önnur, Orðið á götunni er að verið sé að þvinga Hannes til að láta af forstjórastarfi hjá FL Group og fyrirtækið hefur tapað tugum milljarða á árinu.

Og kaldhæðnin er stundum svakaleg. Á föstudagsmorgun seldi FL Group meginhlutann af eign sinni í AMR, móðurfélagi American Airlines. Seld voru 20 milljón hlutabréf - flest þeirra á 20,9 dollara á hlut. Klukkan eitt að New York tíma tilkynnti svo AMR að stjórn félagsins hefði ákveðið að koma til móts við gagnrýni frá Hannesi og fleirum og skilja rekstur American Eagle frá flugfélaginu sjálfu. Markaðurinn tók strax við sér og gengi AMR tók kipp upp á við og lokagengi dagsins var 21,98 dollarar. Þannig að FL Group fékk 21 milljón dollara minna fyrir hlut sinn í AMR en félagið hefði fengið ef það hefði selt þegar gengið stóð sem hæst.




Hvenær rekur maður mann?

1. desember, 2007

Orðið á götunni er að það hafi hitnað í kolunum á skrifstofu Vinnumálastofnunar á Ísafirði í gær þegar pistill eftir Magnús Ólaf Hansson, starfsmann skrifstofunnar, birtist á vef bb.is. Þar tekur Magnús upp breiða spjótið og gagnrýnir harðlega bæjarstjórnarmeirihlutann í Bolungarvík fyrir ýmsar sakir og segir meðal annars að það sé látið óátalið að mikið rusl hlaðist upp á lóð heima hjá einum bæjarfulltrúanum. Þar er Magnús víst að vísa til Jóhanns Hannibalssonar, bæjarfulltrúa sem er einmitt eiginmaður Guðrúnar Stellu Gissurardóttir, yfirmanns Magnúsar hjá Vinnumálastofnun á Ísafirði.

Magnús er svo mjög harðorður í garð meirihlutans og talar um óráðsíu í sambandi við framkvæmdir sem hann talar óvirðulegt um sem atvinnubótavinnu. Þar er um að ræða verkefni sem Vinnumálastofnun sjálf - stofnunin sem Magnús starfar hjá - hefur átt þátt í að gera að veruleika.

Orðið á götunni er að ýmislegt hafi gengið á í samskiptum manna hjá Vinnumálastofnun á Ísafirði undanfarið og það fór sem eldur í sinu um Vestfjarðakjálkann í gær að Magnús hefði verið rekinn úr starfi eftir að hann birti pistilinn á bb.is. Þótti mörgum það ómaklegt að reka mann fyrir pólitíska gagnrýni þótt harðorð væri og jafnvel rætin á köflum. En þar hefur víst fjöður orðið að hænum. Rétt mun vera að Magnús var búinn að segja upp og ætlaði að hætta störfum 15. desember og er að flytjast til Patreksfjarðar. Eftir pistilinn kom Guðrún Stella hins vegar inn á skrifstofuna hans og sagði honum að nærveru hans væri ekki óskað lengur á staðnum og að hann þyrfti ekki að mæta í vinnu það sem eftir er af uppsagnarfrestinum.





Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar