Sendu Orðinu línu á
ordid@eyjan.is

Færslur fyrir janúar, 2008

Pólitísk ráðning á Keflavíkurflugvelli

31. janúar, 2008

Orðið á götunni er að Kristján L. Möller sé búinn að ráða mann í nýja stöðu flugvallarstjóra á Keflavíkurflugvelli sem sameinar í einu starfi eldri störf flugvallarstjóra, flugstöðvarstjóra, að viðbættum hluta þeirra verkefna sem heyrt hafa undir sýslumann.

Starfið var ekki auglýst heldur var í það ráðinn tímabundið Stefán Thordersen, gamalreyndur krati af Suðurnesjum, og bróðir Ólafs Thordersen, bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ, sem situr í stjórn Fríhafnarinnar og stóð þétt við bakið á Róbert Marshall, aðstoðarmanni samgönguráðherra, í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fyrir síðustu þingkosningar.

Stefán hefur starfað sem deildarstjóri öryggissviðs hjá Flugvallarstjóra og er flugvirki að mennt og starfaði áður lengi í lögreglunni.

Orðið á götunni er að Stefán hafi ekki mikla stjórnunarmenntun og ekki teljandi reynslu í breytingastjórnun eins og þeirri sem framundan er í nýju og gjörbreyttu embætti.  Sem deildarstjóri öryggissviðs var Stefán undirmaður Björns Inga Knútssonar, fráfarandi flugvallarstjóra, sem sagði upp eftir níu ára starf af því að hann fékk ekki að gegna stöðunni eftir breytingarnar. Það er einmitt kveðjupartí í Flugstöðinni í dag fyrir Björn Inga Knútsson.




Allt í hnút um orkumálin

31. janúar, 2008

Orðið á götunni er að orkulagafrumvarp Össurar Skarphéðinssonar standi enn sem fyrr í þingflokki sjálfstæðismanna. Maraþonþingflokksfundir í þessari viku hafa ekki megnað að höggva á þann hnút sem uppi er í stjórnarsamstarfinu vegna málsins. Það er ákvæði frumvarpsins um orkuréttindi í opinberri eigu sem valda ágreiningi. Frumvarpið gerir ráð fyrir að auðlindirnar eigi að vera áfram í meirihlutaeigu almennings og einungis megi veita einstaklingum tímabundin afnot af þeim.

Orðið á götunni er að hluti þingflokks sjálfstæðismanna hafi risið gegn þessu ákvæði og meðal annars látið vinna fyrir sig lögfræðiálit til þess að fá frumvarpinu breytt. Þingmennirnir Sigurður Kári Kristjánsson, Birgir Ármannsson og Ólöf Nordal eru meðal þeirra sem beita sér helst í málinu.




Hannes á batavegi

30. janúar, 2008

1007604.jpgOrðið á götunni er að Hannes Smárason sé á góðum batavegi eftir mjög alvarlegt slys sem hann varð fyrir í kringum áramótin. Hannes féll þá illa í stiga í samkvæmi hjá vini sínum og brotnuðu sjö bein í andliti og höfði,- kinnbein, kjálki, nef og fleira. Hann var stórslasaður og gekkst undir aðgerðir og var lengi á sjúkrahúsi. Það sem af er ári hefur það verið langstærsta verkefni Hannesar að ná heilsu á ný eftir slysið.

Önnur verkefni, eins og þau að útvega sér sex milljarða króna til þess að kaupa23% hlut í Geysi Green Energy hafa því setið á hakanum og hefur Hannes nú fengið lokafrest til morguns til þess að klára það verkefni, að því er DV segir frá í dag.

En neyndar er talið að Hannes hefði ekki aðeins þurft að vera við góða heilsu og hafa fullt vinnuþrek til þess að púsla saman fjármögnuninni því að heilladísirnar þurfa líka að ganga í lið með honum eftir þróun mála hjá FL-Group og stöðuna á fjármálamarkaði í upphafi ársins. Þau mál gengu mjög nærri eignastöðu Hannesar og er lánstraust hans á mörkuðum ekki svipur hjá sjón.




Fjármálaeftirlitið stoppar samrunann

29. janúar, 2008

Orðið á götunni er að það liggi nú fyrir að ekkert verði af samruna Kaupþings og hollenska bankans NIBC. Samið var um samrunann í sumar en hann er háður samþykki íslenska Fjármálaeftirlitsins.

Orðið á götunni er að Fjármálaeftirlitið hafi ákveðið á föstudag að heimila samrunann ekki.

Kaupþing birtir uppgjör síðasta árs á fimmtudag og er búist við að Fjármálaeftirlitið greini í síðasta lagi frá þessari niðurstöðu sinni á morgun. Skömmu eftir samning Kaupþings og NIBC skall á óveður á alþjóðlegum fjármálamörkuðum, það hefur gjörbreytt möguleikum Kaupþings á að fjármagna kaupin og hefur sú óvissa haft mjög skaðleg áhrif á fjármálalífið hér á landi. Þau áhrif hafa einkum birst í ört vaxandi skuldatryggingaálagi íslensku bankanna. Talið er að ákvörðun Fjármálaeftirlitsins geti orðið til þess að það álag fari að lækka á ný.




Heitir dagar í pólitíkinni

29. janúar, 2008

Orðið á götunni er að langt sé síðan jafnmikill hiti hafi verið í stjórnmálabaráttunni hér á landi og síðustu daga og mánuði. Allir eru á nálum; enginn treystir neinum og allt getur gerst.

Það er ekki síst innan Samfylkingarinnar sem stemmningin er súr og reiðin beinist að samstarfsflokknum í ríkisstjórn. Orðið á götunni er að Samfylkingarfólki finnist það hafa verið teymt á asnaeyrunum meðan helstu forkólfar Sjálfstæðisflokksins unnu að því að rjúfa skörð í raðir Tjarnarkvartettsins og mynda nýjan meirihluta.

Forsætisráðherra hefur t.d. ekki unnið sér inn prik hjá Samfylkingunni undanfarna daga. Hann sat fund með Degi B. Eggertssyni borgarstjóra um orkumál á mánudaginn á sama tíma og félagar hans voru búnir með samtölin og þreifingarnar og komnir í samningaviðræður um nýjan meirihluta. Geir vissi þá vel hvað var á seiði og Orðið á götunni er að hann hafi verið innmúraður í plottið og vitað að Ólafur F. og Vilhjálmur hittust á laugardeginum og sunnudeginum og voru á lokasprettinum meðan hann sat á fundi með borgarstjóranum.

Orðið á götunni er að Samfylkingin gruni fleiri ráðherra um að hafa setið á svikráðum og er þá átt við Guðlaug Þór og Þorgerði Katrínu. Þau munu bæði hafa þrýst mikið á Margréti Sverrisdóttur um að styðja nýja meirihlutann. Samfylkingarfólk segir hins vegar að ráðherrar sínir hafi lagt sig alla fram um að skilja á milli átaka flokkanna tveggja í borginni og samstarfsins í ríkisstjórn. Það eru litlar líkur á að hlutirnir séu að róast í pólitíkinni.




Afsakið hlé hjá RÚV ohf.

28. janúar, 2008

Orðið á götunni er að aðalfundur Ríkisútvarpsins ohf. sé í vændum. Reyndar er undarlegt að hann hafi ekki verið boðaður nú þegar því að samkvæmt samþykktum fyrirtækisins á að halda hann fyrir janúarlok ár hvert og boða með hálfsmánaðar fyrirvara. Það hefur ekki verið gert og tíminn er runninn út á að halda fundinn á réttum tíma. Samt er ekki eins og þetta séu fornar samþykkir sem ekki eru lengur í takt við tímann. Þær voru settar í mars á sl. ári og breytt í nóvember síðastliðnum, fyrir rétt rúmum tveimur mánuðum.

Þetta verður fyrsti aðalfundur RÚV ohf. og þar á meðal annars að fjalla um starfskjarastefnu stofnunarinnar, kjör útvarpsstjóra og stjórnarmanna og að sjálfsögðu ársreikninginn. Síðast en ekki síst á að kjósa stofnuninni stjórn og endurskoðanda - eða öllu heldur staðfesta kjör þeirra sem Alþingi hefur ákveðið að taki sæti í stjórninni.

Það er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sem heldur þennan aðalfund sem eini hluthafinn í félaginu. Samþykktirnar segja að skylt sé að boða fjölmiðla á fundinn og þangað mega þingmenn líka koma og leggja fram skriflegar fyrirspurnir.




Loks getur Margrét gengið í Samfylkinguna

26. janúar, 2008

Orðið á götunni er að nú sé það bara tímaspursmál hvenær Margrét Sverrisdóttir gengur til liðs við Samfylkinguna og líklega Guðrún Ásmundsdóttir líka. Báðar voru þær kjörnar í nefndir borgarinnar á vegum nýja minnihlutans á fimmtudag þrátt fyrir að vera varaborgarfulltrúar Ólafs F. Magnússonar. Það hefur lengi verið talið að Margréti langaði mikið að taka stökkið yfir í Samfylkinguna en eitthvað tafði af því gæti orðið.

Orðið á götunni að nú hafi loksins öllum hindrunum verið rutt úr vegi fyrir því að Margrét geti tekið þetta skref formlega. Það sem hún var að bíða eftir að gerðist gerðist í síðustu viku. Þá fékk Íslandshreyfingin greiddar þær 12,5 milljónir króna sem hún á rétt á samkvæmt lögum um starfsemi stjórnmálaflokka. Hreyfingin hefur ekki beinlínis verið iðandi af lífi eftir kosningarnar og meðlimir hennar og forkólfar eru nú sundraðir um pólitísku lendur Reykjavíkur. Ásta Þorleifsdóttir og Jakob Frímann Magnússon eru með Ólafi F. en varaformaðurinn Margrét Sverrisdóttir í minnihlutanum en formaðurinn, Ómar Ragnarsson hefur ekkert um málið að segja og bloggar bara um EM í handbolta og eldgosið í Heimaey af miklum móð. En nú ætti amk að vera til fyrir kosningaskuldum hreyfingarinnar.




Heitt frumvarp

24. janúar, 2008

Orðið á götunni er að pólitísk spenna í landinu sé að nálgast suðumark í kjölfar atburða undanfarinna vikna þar sem hver uppákoman hefur rekið aðra, síðast með valdaskiptum í Ráðhúsinu. Svona ástand reynir á samstarf ríkisstjórnarflokkanna.

Það eykur enn þrýstinginn að uppi er deila í stjórnarliðinu, sem gæti verið erfið í meðförum við venjulegar aðstæður, en felur jafnvel í sér sprengihættu í því andrúmslofti sem núna ríkir. Þetta eru frumvörp Össurar Skarphéðinssonar iðnaðarráðherra til nýrra orkulaga.

Samfylkingin er löngu búin að afgreiða frumvarpið en það stendur í þingflokki sjálfstæðismanna. Það verður athyglisvert að fylgjast með því hvort frumvarpið bíður afgreiðslu þar mikið lengur.




Er þögn sama og samþykki?

22. janúar, 2008

Orðið á götunni er að Kristján L. Möller sé maðurinn sem hefur nú í hendi sér málið sem Vilhjálmur Þ. Vilhálmsson lagði svo mikla áherslu á í Kastljósi að væri stóra málið hjá nýja meirihlutanum. Þar var hann að tala um mislæg gatnamót á gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar.

Það vakti athygli eftir ríkisstjórnarfundinn í dag að allir ráðherrar Samfylkingarinnar - sem á annað borð voru á landinu - voru tilbúnir að tjá sig um nýja meirihlutann og höfðu þeir fátt gott um hann að segja. Nema Kristján L. Möller. Hann sagði ekki neitt. Spurningin er þessi: Skyldi Kristján verða þessum meirihluta sami Haukur í horni Þrándur í Götu og Halldór Blöndal og Sturla Böðvarsson voru R-listanum þegar þeir sátu í samgönguráðuneytinu? Á 12 ára valdatíð þeirra félaga aldrei til peningar til samgöngumála í Reykjavík - enda sátu þá “andstæðingar Sjálfstæðisflokksins” í Ráðhúsinu.

Orðið á götunni er að eftir daginn í dag sé amk ekki hætta á að Kristján L. Möller þurfi að úrskurða sig vanhæfan þegar mál nýja meirihlutans koma til meðferðar í samgönguráðuneytinu. Þannig að kannski var þögnin þrungin merkingu að þessu sinni.




Til í allt með Villa?

22. janúar, 2008

Orðið á götunni er að það sé talsverð ringulreið innan Sjálfstæðisflokksins með þróun mála í Ráðhúsinu og alveg ljóst hvernig umboði Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar í viðræðum við Ólaf F. Magnússon var háttað. Stendur borgarstjórnarflokkurinn einhuga að baki honum?

Það vekur athygli hvernig aðilar  nátengdir Geir H. Haarde tala um nýja meirihlutann á Deiglunni, þar sem talað er afar óvirðulega um þróun mála og sagt að hefndin sé ekki gott veganesti. Og glöggir sjálfstæðismenn sem horfðu á blaðamannafundinn í gær sagði að Þorbjörg Helga, Hanna Birna og Gísli Marteinn hefðu virst allt annað en sæl á svip. Það er útskýrt þannig að málefnaskráin valtar algjörlega yfir þá vinnu sem Gísli og Hanna hafa beitt sér fyrir í borginni. Hanna Birna hefur borið hitann og þungann af vinnunni við skipulagið á Laugaveginum sem nú er slegið striki yfir. Gísli Marteinn hefur hins vegar talað af þunga um mikilvægi þess að flytja flugvöllinn úr Vatnsmýrinni en nú er búið um að semja um að hann fari hvergi.




Davíð sjarmeraði Ólaf F.

21. janúar, 2008

Orðið á götunni er að Davíð Oddsson geti eignað sér stóran þátt í því að mynda nýja meirihlutann í borgarstjórn Reykjavíkur. Þegar Davíð ávarpaði gesti í sextugsafmælinu sínu í Ráðhúsinu í síðustu viku þakkaði hann tvívegis Ólafi F. Magnússyni fyrir að hafa lánað sér Ráðhúsið undir afmælið og fór um hann fögrum orðum. “Það er gott að eiga góða að, eins og Ólaf F. Magnússon,” sagði Davíð. Ekki að það hafi eitt og sér ráðið úrslitum því að fleira varð til þess að hjálpa þessari atburðarás, ekki síst fatamálin sem komu upp í framsókn um helgina.

En í afmæli Davíðs voru sjálfstæðismenn byrjaðir að stíga í vænginn við Ólaf og það er talið hafa hjálpað mikið upp á sakirnar að Davíð sýndi Ólafi mikinn sóma í afmælinu. Ólafur var á sínum tíma borgarfulltrúi sjálfstæðismanna en veru hans í þeim flokki lauk með heldur óskemmtilegum hætti. Hann gekk úr flokknum á Landsfundi eftir að hafa flutt ræðu um umhverfismál og fundið að sjónarmið hans áttu engan hljómgrunn í salnum. Ekki nóg með það heldur yfirgaf hann samkomuna með hlátur fundarmanna á bakinu því að Davíð sagði eitthvað hnyttið þegar Ólafur yfirgaf salinn. Davíð gerði þessa yfirbót gagnvart Ólafi F. í afmælisveislunni sinni og nú nokkrum dögum síðar snýr hann aftur í faðm flokksins - orðinn borgarstjóri.




Árni fær aðstoð

20. janúar, 2008

Orðið á götunni er að Árni Mathiesen fjármálaráðherra láti engan bilbug á sér finna þrátt fyrir talsvert mótlæti í pólitíkinni undanfarna mánuði.  Vangaveltur hafa verið um að Árni sé á útleið úr pólitík og hugsi sér jafnvel að taka við forstjórastöðunni í Landsvirkjun af Friðrik Sophussyni, sem senn er að komast á aldur.

En nýjustu fréttir af Árna benda í allt aðra átt. Hann er búinn að ráða nýjan mann til liðs við sig, Sigmund Sigurgeirsson, fyrrverandi yfirmann RÚV á Suðurlandi, sem er farinn að sinna einhvers konar ráðgjafaverkefnum fyrir Árna - á sviði ímyndarmála að talið er. Sigmundur er margreyndur úr störfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Suðurlandi og þykir víst að verið sé að þjálfa hann upp í að verða kosningastjóri þar í næstu þingkosningum.




Geðhjálp úr ÖBÍ?

18. janúar, 2008

Orðið á götunni er að það sé heitt í kolunum í Öryrkjabandalaginu í kjölfar þess að Sigursteinn Másson sagði af sér formennsku eftir að hafa tapað kosningu um stjórn hússjóðs bandalagsins.

Það er sérstaklega í Geðhjálp, einu stærsta aðildarfélagi ÖBÍ, sem eldurinn brennur og óánægjan er mikil með þá stöðu sem komin er upp. Geðhjálp er það aðildarfélag sem er bakland Sigursteins í bandalaginu og Sveinn Magnússon, framkvæmdastjóri þess er einn sem talað hefur af mikilli óánægju um stöðuna í félaginu.

Orðið á götunni er að Geðhjálparmenn séu farnir að undirbúa úrsögn úr Öryrkjabandalaginu vegna málsins.




Samhugur í Tómasarnefndinni

15. janúar, 2008

Þorsteinn Davíðsson, nýskipaður héraðsdómari, fékk hlýlegan og afdráttarlausan stuðning í 24Stundum í morgun. Þar skrifaði Kolbrún Bergþórsdóttir greinarkorn honum til stuðnings en Kolbrún situr einmitt með Þorsteini í dómnefnd Bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar. Kolbrún er formaður nefndarinnar. Þriðji nefndarmaðurinn, Sveinn Yngvi Egilsson hefur enn ekki tjáð sig um málið, svo vitað sé.

En nú þarf borgarstjórn Reykjavíkur að skipa nýjan mann í Tómasarnefndina þegar Þorsteinn Davíðsson er fluttur norður yfir heiðar og farinn að starfa við Héraðsdóm Norðurlands nema þegar hann er að starfa við Héraðsdóm Austurlands. Hver ætli nýi nefndarmaðurinn verði?

Orðið á götunni er að einn þeirra sem mundi íhuga alvarlega boð um að taka sæti í nefndinni sé Eiríkur Tómasson, lagaprófessor. Eiríkur hefur mikla reynslu sem fyrrverandi aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og forsætisráðherra, og er almennt talinn meðal fremstu lögspekinga. Samt hefur hann ekki hlotið náð fyrir augum dómsmálaráðherra í þau skipti sem hann hefur sótt um hæstaréttardómaraembætti. En Orðið á götunni er að með sæti í Tómasarnefndinni ættu að vænkast verulega líkur Eiríks á að komast í Hæstarétt næst.




Landsbankastjórar á kvöldfundi með Geir

14. janúar, 2008

Orðið á götunni er að það sé krísa í ríkisstjórninni vegna neitunar Seðlabankans við því að leyfa Kaupþingi að gera upp bækur sínar og skrá hlutafé í evrum.

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, er búinn að vera í Flórída í fríi undanfarna daga en kom til landsins í morgun. Geir var varla búinn að pakka upp úr töskunum þegar hann fór að vinna í málunum og nú undir kvöld fékk hann á fund til sín í Stjórnarráðshúsið þá Sigurjón Árnason og Halldór Kristjánsson, bankastjóra Landsbankans.

Orðið á götunni er að fleiri ráðherrar hafi setið þann fundi, sjálfsagt Árni Mathiesen og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Þess er einmitt beðið að Árni taki afstöðu til kæru Kaupþings í málinu. Kannski dregur til tíðinda eftir ríkisstjórnarfundinn í fyrramálið - nú eða við upphaf þingfundar klukkan 13.30.




Garðar vann Sigurstein

11. janúar, 2008

Orðið á götunni er að Garðar Sverrisson, fyrrverandi formaður Öryrkjabandalags Íslands, Steinunn Þóra Árnadóttir, varaþingmaður VG, og Emil Thoroddsen, varaformaður ÖBÍ, séu þau þrjú sem helst hafa verið að takast á við Sigurstein Másson, sem í dag sagði af sér formennsku í ÖBÍ.

Þau þrjú eru öll í þeirri stjórn hússjóðs ÖBÍ sem Emil gerði tillögu um og náði kjöri á fundi aðalstjórnarinnar. Sigursteinn vildi ná valdi á hússtjórninni sem Helgi Hjörvar, alþingismaður hefur stýrt undanfarin ár, en Helgi var sjálfur ekki í kjöri enda orðinn þingmaður ríkisstjórnarinnar sem hússjóðurinn þarf mikið að eiga samskipti við.

Spenna var í kjörinu og réði aðeins eitt atkvæði úrslitum. Eins og fram hefur komið í fréttum í dag sagði Sigursteinn af sér ásamt Hafdísi Gísladóttur, framkvæmdastjóra ÖBÍ, eftir að þau urðu undir á fundinum.




Vinir og andstæðingar

11. janúar, 2008

Það eru mörg dæmi í stjórnmálasögunni um að mikil og náin vinátta hafi tekist með stjórnmálamönnum þvert á flokkslínur. Orðið á götunni er að það hvíli ávallt ákveðinn skuggi yfir sambandi manna í sama flokki af því að þeir eru keppinautar um trúnaðarstörf og vegtyllur og sú barátta á það til að verða persónuleg. Öðru máli gegnir um sambandið við fólk í öðrum flokkum - þar tekst oft mikil vinátta milli manna.

Orðið á götunni er að nýjasta dæmið um sterkt, persónulegt samband stjórnmálamanna úr ólíkum flokkum sé samband Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, og Svandísar Svavarsdóttur, borgarfulltrúa VG. Þær eru sitthvoru megin við borðið, en greinilega mjög miklir og góðir vinir.




Góðar fréttir af gömlu húsi

10. janúar, 2008

b2.JPG

Orðið á götunni er að áhugamenn um friðun húsa í miðborg Reykjavíkur hafi nú ástæðu til að gleðjast. Einn ljótasti hjallurinn í miðborginni hefur fengið nýja eigendur með metnaðarfull áform um endurreisn og uppbyggingu.

Þetta er húsið á myndinni, stendur á horni Þingholtsstrætis og Bankastrætis og heitir líklega Þingholtsstræti 2-4. Það er engin starfsemi skráð þar til húsa í símaskránni og allt er húsið hið ömurlegasta á að líta þessa dagana. Var ekki Álafoss með verslun þarna í gamla daga? Þarna hefur ekki verið (nætur)líf síðan veitingastaðurinn Nelly’s geispaði golunni fyrir nokkrum misserum. Einn besti verslunargluggi miðborgarinnar gapir eins og dimmur og drungalegur hellir framan í þá sem ganga niður Bankastrætið.

En það er skammt í að þessi hryggðarmynd breytist. Eigendur Sævars Karls og Subway hafa tekið höndum saman, eru búnir að kaupa húsið, ætla að gera það upp og opna innan nokkurra vikna verslun með kvenmannsföt.

Orðið á götunni er að þeir séu líka með áform um að byggja ofan á húsið og séu búnir að afla sér ýmissa leyfa fyrir þeim framkvæmdum og að í raun strandi aðeins á einu. Það vantar samþykki frá Kára Stefánssyni, sem er eigandi glæsilegrar risíbúðar í Þingholtsstræti 6, næsta húsi við hryggðarmyndina. Kári hefur ekki enn fallist á grenndarkynningu vegna framkvæmdanna. Hvað sem því líður styttist í borgarlífið á horni Bankastrætis og Þingholtsstrætis taki við sér á ný.




Reykjavík - Kairó - Flórída

10. janúar, 2008

Rokið ætlar engan enda að taka, kjarasamningar eru í uppnámi, verkalýðshreyfingin er búin að aflýsa samráði í kjaraviðræðum og hvert sérsambandið fer með sín mál á fund Ríkissáttasemjara. Markaðurinn er í frjálsu falli.

Orðið á götunni er að margir samgleðjist oddvitum ríkisstjórnarinnar að vera ekki á landinu meðan þetta stendur allt sem hæst. Ingibjörg Sólrún er í Egyptalandi að gera alþjóðasamning en Geir Haarde er í fríi á Flórída.




Segir Seðlabankinn nei við Kaupþing?

7. janúar, 2008

Eins og menn muna tilkynnti Kaupþing í október um þau áform sín að nota evrur en ekki krónur sem starfrækslumynt bankans. Stjórn bankans ákvað að skipta í evrur og skrá hlutafé félagsins í þeirri mynt. Þetta hefur lengi verið í bígerð hjá Kaupþingi en eftir kaupin á NIBC bankanum var ekki lengur eftir neinu að bíða enda fer yfirgnæfandi hluti starfseminnar fram í evrum.

Breytingin átti að gerast um áramót en ekkert hefur af henni frést.

Formaður bankastjórnar Seðlabankans, Davíð Oddsson, hefur sem kunnugt er verið lítið hrifinn af evruvæðingu bankanna og lagðist eindregið gegn slíkum áformum þegar þau komu fyrst upp á yfirborðið og hélt því m.a. fram fyrir rúmu ári að heimild í lögum til handa fyrirtækjum til að gera upp í evrum hefði ekki verið hugsuð fyrir fjármálafyrirtæki og sagði óheppilegt að slík fyrirtæki fetuðu slíka leið. Í framhaldi af þessu setti fjármálaráðuneytið svo reglugerð þar sem kveðið var á um að vilji fjármálafyrirtæki gera upp í annarri mynt en íslenskri krónu þurfi þau að leita umsagnar Seðlabankans.

Og orðið á götunni er að nú liggi umsögn Seðlabankans fyrir vegna áforma Kaupþings. Umsögnin er neikvæð, Seðlabankinn leggst gegn breytingunni.





Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar