Nefndakóngur og -drottning borgarinnar
29. febrúar, 2008Orðið á götunni er að Kjartan Magnússon sé langlaunahæsti borgarfulltrúinn í Reykjavík og uppskeri þannig ríkulega fyrir að hafa verið maðurinn á bak við meirihlutasamstarf sjálfstæðismanna og Ólafs F. Magnússonar.
Kjartan er með álag á laun borgarfulltrúa fyrir að vera í borgarráði. Svo er hann bæði formaður OR og REI sem gerir væntanlega um 5-600 þúsund í viðbót og situr í stjórn ÍTR og stjórnkerfisnefnd borgarinnar. Því er líka fleygt að Júlíus Vífill, félagi Kjartans í borgarstjórnarflokknum, hafi orðið sár þegar Kjartan gerði sjálfan sig að stjórnarformanni REI. Júlíus taldi sig hafa fengið vilyrði um að fá formennskuna.
Og varaformaður OR, Ásta Þorleifsdóttir, má líka una vel við sitt. Hún var í 4. sæti á F-lista og því ekki einu sinni varaborgarfulltrúi en er samt orðin varaformaður menntaráðs með Júlíusi Vífil sem formann, varaformaður Umhverfisráðs, með Gísla Marteini, varaformaður Orkuveitu Reykjavikur og REI með Kjartani og varaformaður Faxaflóahafna hjá Júlíusi Vífli. Orðið á götunni er að Ásta sé komin með laun sem eru mun hærri en ýmsir kjörnir fulltrúar fá fyrir að sitja í borgarstjórn.
Orðið á götunni