Orðið á götunni er að óánægja sé á markaðnum með það hvernig staðið var að því að skrá Skipti - móðurfyrirtæki Símans - á markað. Margar spurningar vakni um framgangsmátann - bæði hvernig eigendurnir stóðu að verki og ekki síður það að fjármálaráðherra hefur gefið til kynna að hann geri engar athugasemdir við verklagið og fallist á að eigendurnir hafi uppfyllt samning sinn við ríkið.
Þegar Skipti keypti Símann fylgdi sú kvöð að skrá félagið á markað í síðasta lagi í lok árs 2007 og bjóða um leið almenningi að kaupa þriðjung hlutafjárins. Í síðasta lagi sagði í samningnum en rétt áður en fresturinn rann út báðu Skipti um frest og fengu hann greiðlega hjá Árna M. Mathiesen fjármálaráðherra. Á þessum tíma voru aðstæður á markaði orðnar erfiðar þótt þær hafi ekki verið neitt í líkingu við það sem síðar varð og svo voru Skipti á þeim tíma þátttakendur í tilraunum til að einkavæða slóvenskt símafyrirtæki. Því var veittur frestur til loka mars á þessu ári.
Orðið á götunni er að eftirvænting hafi verið fyrir útboðinu - þótt markaðsaðstæður hafi ekki verið þær bestu. Það réði eftirvæntingunni að þegar Síminn kæmi á markað yrði loks til hér eiginlegur hlutabréfamarkaður með fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtæki. Fyrir voru Teymi og 365 en Skipti mundu gefa þessum geira markaðarins aukna breidd og dýpt, sem þótti mikilvægt.
Það var svo í byrjun mars sem Skipti voru tilbúin að uppfylla samninginn og bjóða almenningi að kaupa hlutaféð, sem Skipti höfðu fengið að ávaxta í þrjú ár. Strax var gagnrýnt að útboðsgengið væri - 6,64 - sem greiningaraðilum þótti of hátt og var mælt gegn kaupum á því verði. Raunverð var talið allt að 20% lægra en þetta gengi gaf til kynna. Það fór líka svo að þátttaka í útboðinu var lítil og einungis fjórðungur seldist af því sem var til sölu.
En þegar félagið var svo skráð á markað í lok síðustu viku tók við óvænt flétta því að korteri eftir að markaðir opnuðu með Skipti skráð í fyrsta skipti kom fram yfirtökutilboð frá Exista - langstærsta eigandanum, sem vildi innleysa og afskrá félagið.
Fjármálaráðherra hafði engar athugasemdir en Orðið á götunni er að menn spyrji sig hvort eigendur Skipta hafi sloppið létt frá skyldum sínum með því að ákveða einhliða of hátt sölugengi - þannig hafi samningurinn við ríkið verið uppfylltur til málamynda - síðan hafi félagið verið tekið á markaði. Annað hvort hafi ríkið samið af sér með því að sjá ekki við þessum möguleika eða þá að hagsmuna ríkisins hafi ekki verið gætt sem skyldi.