Orðið á götunni er að sjálfstæðismenn á norðanverðum Vestfjörðum telji að þeir hafi náð gríðarlega góðum samningum við A-listann í Bolungarvík - og það er enginn meira hissa á því en sjálfstæðismennirnir sjálfir.
A-listinn var klofningsbrot út úr Sjálfstæðisflokknum og varð til í illindum eftir prófkjör fyrir kosningarnar 2006 þar sem Anna G. Edvardsdóttir varð undir í baráttu við Elías Jónatansson, lauk ættar Einars Guðfinnssonar, hins mikla frumherja þar í bæ. Anna klauf sig út úr Sjálfstæðisflokknum og náði kjöri og gekk til samstarfs við K-lista Bæjarmálafélags Bolungarvíkur, að loknum kosningum.
Mikil heift var milli A og D lista á kjörtímabilinu og er hermt að flestir bæjarfulltrúar D-lista hafi reynt að finna einhverja ástæðu til að starfa ekki með A lista. Á samningafundinum nú um helgina komu þeir með allar sínar kröfur, slógu hvergi af og reyndu að finna einhvern ásteytingarstein.
“Vandamálið var bara að Anna Guðrún sagði já við öllu, hreinlega öllu,” sagði sjálfstæðismaður, “við bara gátum ekki annað en samið við hana.”
En það fékkst svo auðvitað aukavinningur í þessum meirihlutaskiptum frá sjónarhóli sjálfstæðismanna. Grímur Atlason fráfarandi bæjarstjóri virðist úr myndinni en það var farið að líta út fyrir að hann gæti orðið þeim skeinuhættur í þingkosningum. Sjálfstæðismenn vantar illa sterka leiðtoga á Vestfjörðum um þessar mundir - en Grímur var hins vegar farinn að bera sig svo mannalega að menn voru farnir að horfa til hans sem leiðtoga Samfylkingarfólks í héraðinu. Með meirihlutaskiptunum virðist hins vegar sem sjálfstæðismönnum hafi tekist að steypa undan þessum væntanlega keppninaut meðan hann var enn í flugtaki.