Sendu Orðinu línu á
ordid@eyjan.is
23. apríl, 2008

Handteknir og reknir?

Orðið á götunni er að hluti þeirra bílstjóra sem handteknir voru af lögreglunni í morgun megi búast við því að missa vinnuna. Þetta voru menn í vinnu hjá verktakafyrirtækjum sem voru búin að banna sínum starfsmönnum þátttöku í aðgerðunum en vissu ekki fyrr til en þau sáu bílana sína í sjónvarpinu lokandi Suðurlandsveginum og starfsmennina í bardaga við lögregluna.
Lögregla hefur nú haldlagt bílana og má búast við að einhverjir dagar líði áður en þeim verður skilað. “Þeir mega hafa bílstjórann eins lengi og þeir vilja en ég vil fá bílinn,” sagði eigandi eins bílsins þegar hann hringdi í lögfræðinginn sinn í dag.

Senda á Facebook
Til baka

9 ummæli

Rita ummæli

Kona
23. apríl, 2008 kl.18:11

Bílstjórarnir eru að mótmæla fyrir okkur öll, sem upplifum að verið sé að taka okkur í R-gatið, aftur og aftur.... lágu launin, langa vinnuvikan, verðtryggingin, vaxtaokrið, matvælaverð. Ég er á fjölmennum vinnustað og heyri ekki betur en þorri fólksins dáist að bílstjórunum. Við hin þorum ekki að labba út og gefa fingurinn þó okkur langi til þess.

Sigurjón
23. apríl, 2008 kl.19:00

Ekki alveg fyrir okkur öll, ég þarf enga til að mótmæla fyrir mig og finnst þessir menn algerir kjánar.

FMM
23. apríl, 2008 kl.20:12

Ég hef ekki mikinn áhuga á að niðurgreiða olíu á flutningabíla með hærri sköttum á annarri vöru þannig að olíugjaldið má hækka mín vegna. Ég keyri bíl sem eyðir 14 lítrum á hundraðið og greiði mína skatta með gleði.
Neysluskattar eru EINI réttláti skatturinn, þeir sem nota mest borga mest.

Mótmælin eru ekki í mínu nafni.

joi
23. apríl, 2008 kl.20:36

Held að þessir trukkar ættu að gera það sem þeir kunna best, að keyra bíla og hætta þessum látum. Ef allir myndu haga sér eins og þeir eru að gera, þá er nokkuð hætt við að allt væri hér í rúst. Hvað ef sjómenn myndu taka sig til og loka sundahöfn fyrir gámaskipum til að mótmæla kvótaskerðingu, þannig að ekki væri hægt að skipa upp vörum? Það væri ljóta helvítið. Hvað ef löggur landsins myndu mótmæla niðurskurði með því að slökkva á öllum götuljosum. Þá held ég að yrði kaos.

Fólk verður að sína ábyrgð og fara eftir lögum. Þessir bílstjórar eru ekki að því. Þeir kyntu til þessara óláta í dag hvað sem þeir segja. Það sáu allir.

Ég skil annars ekki af hverju þeir eru að mótmæla við ríksstjórnina út af þessu olíuverði. Eru þessir skattar á olíuna föst krónutala? Vaskinn fá trukkarnir svo endurgreiddir. Væri ekki nær fyrir trukkana að mótmæla við Saudana eða Nígeríumenn eða jafnvel Norðmenn. Einhverja sem eru að hækka verðið á olíu?

Hvar voru trukkarnir þegar upp komst um samráð olíufélaganna? Þá höfðu þeir sig hæga.

Manni finnst svona framkoma vera ansi hæpin. Þessir trukkar eru örugglega harðduglegir menn og eru að reka sína bíla af ítrustu hagkvæmni. Þessi mótmæli eru ekki rétta leiðin hjá þeim. Almenningsálitið er ekki með svona aðgerðum.

Sigurður Viktor Úlfarsson
23. apríl, 2008 kl.22:23

Kannski þeir ættu bara að loka götunni upp að Scania verksmiðjunni og fara fram á að þeir framleiði fyrir þá hybrid-trukka. Það eru aðilar sem raunverulega geta haft áhrif á þeirra stöðu.

Það er svo sannarlega búið að hlusta á þá; ráðamenn, fjölmiðlar og fleiri. Fólk er hins vegar ekki á sömu skoðun og þeir og það þola þeir ekki. Þetta eru nefnilega bara ósköp venjulegir frekjuhundar og mótmælin eru svo sannarlega ekki í mínu nafni.

Leifur
23. apríl, 2008 kl.23:07

ÞETTA ER AKKÚRAT SEM VALDHAFAR VILJA, SAMSTÖÐULEYSI, ÞETTA ERU KANNSKI RAKKAR BJÖRNS BJARNASONAR ?

Guðmundur S.
23. apríl, 2008 kl.23:48

voff!

Lögreglan sýnir klærnar « Forever, stronger than all
24. apríl, 2008 kl.01:02

[...] komnu máli þar sem þeir eru flestir ekki að flýta sér neitt, það er nefnilega búið að reka [...]

Jói
24. apríl, 2008 kl.13:44

Ætli það sé tilviljun að mótmæli vörubílstjóra komi einmitt þegar þenslan fer hratt minnkandi og þannig miklu minna af verkefnum fyrir þá? Olían og bensínið hefur hækkað í verði oft áður, ekkert frekar nú en áður, án þess að ég sé með það fyrir framan mig.

Best væri að reyna að gera þessa bíla upptæka og svipta þessa menn meiraprófinu.

Mótmæli eru eitt, en núna er verið að kúga þjóðina.

Þín skoðun

Athugið: Eyjan hvetur lesendur til að segja skoðun sína á fréttum og bloggfærslum á vefnum. Við biðjum um að notað sé rétt nafn og að athugasemdir séu málefnalegar og skrifaðar af háttvísi. Nauðsynlegt er að gefa upp rétt netfang sem er virkt. Meiðandi ummæli verða ekki liðin. Ritstjórn áskilur sér rétt til að fjarlægja ummæli sem hún telur ekki birtingarhæf.

 


Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar