Sendu Orðinu línu á
ordid@eyjan.is

Færslur fyrir júní, 2008

Landsbankarannsóknin

30. júní, 2008

Orðið á götunni er að Yngvi Örn Kristinsson framkvæmdastjóri verðbréfasviðs Landsbankans, áður yfirmaður peningamálasviðs Seðlabankans, hafi verið verið ríkisstjórninni mjög innan handar við undirbúning aðgerðanna á húsnæðismarkaði um daginn (ef ekki beinlínis höfundur þeirra). Rannsókn Kauphallar (og Seðlabankans) á hvort Landsbankinn nýtti sér innherjaupplýsingar í viðskiptum með húnæðisbréf áður en aðgerðirnar urðu opinberar hljóti því að koma við á borðinu hans.




Launahækkun bæjarstjórans og vísitölutrygging

27. júní, 2008

Orðið á götunni er að bæjarstjóraskiptin sem voru hluti af því að nýr meirihluti tók við í bæjarstjórninni í Bolungarvík muni kosta bæinn nokkrar milljónir króna. Ekki einasta þurfti að gera starfslokasamning við Grím Atlason og hafa tvo bæjarstjóra á launum um tíma heldur er nýi bæjarstjórinn Elías Jónatansson með 100.000 krónum hærri mánaðarlaun en Grímur fékk.

Orðið á götunni er að þetta sé staðhæft í bókun sem minnihlutinn gerði á bæjarstjórnarfundi í gær. Að auki eru laun Elíasar, sem eru 715.000 krónur, bundin launavísitölu en það voru laun Gríms ekki og fara því væntanlega yfir 800.000 kallinn fyrir næstu kosningar. Einnig staðhæfir minnihlutinn að Elías hafi fengið mun hærir bílastyrk en Grímur var með. Allt þykir þetta fara einkennilega saman við áform sem nýi meirihlutinn hefur um nýja um að draga saman í launakostnaði bæjarins fram að kosningum.




Án myndar

26. júní, 2008

Orðið á götunni er að það hafi vakið sérstaka athygli að myndartökur voru ekki leyfðar í iðnaðarráðuneytinu í dag þegar fjölmiðlamenn mættu þangað til þess að vera viðstaddir þegar viljayfirlýsing um byggingu álvers við Bakka var framlengd. Jafnvel gamalreyndir fréttaljósmyndarar eins og Gunnar V. Andrésson urðu frá að hverfa myndlausir - og hefur GVA þó meðal annars unnið undir ritstjórn Össurar Skarphéðinssonar, núverandi iðnaðarráðherra og fyrrverandi ritstjóra, og kallar ekki allt ömmu sína þegar fréttamyndir eru annars vegar.

Orðið á götunni er að fjölmiðlamenn hafi verið að undrast það að myndataka hafi ekki verið leyfð - var þetta ekki hið besta mál? Það var amk að heyra í  í hádegisfréttum RÚV. Þar sagðist Össur ekki vera að svíkja kosningaloforð með því að framlengja viljayfirlýsinguna. Bakki hafi lítið verndargildi og að á þingflokksfundi Samfylkingarinnar í fyrradag hafi hvorki umhverfisráðherra né aðrir lýst óánægju með það að hann styddi álver á Bakka. Þetta er sem sagt hið besta mál - en samt mátti ekki taka mynd.




Álver og ættfræði

26. júní, 2008

riotintoalcan2.JPGOrðið á götunni er að fyrirtækið risastóra og alþjóðlega RioTintoAlcan sé ekki bara í stóriðju og álvinnslu í Straumsvík og úti um allan heim. Það sé farið að hasla sér völl í ættfræðirannsóknum.

Þetta reka menn augun í þegar þeir lesa umsóknareyðublaðið sem væntanlegir starfsmenn í Straumsvík eiga að fylla út og hægt er að nálgast á vef fyrirtækisins.

Líklega er RioTintoAlcan eina fyrirtækið á Íslandi sem biður væntanlega, fullorðna starfsmenn sína um upplýsingar um nafn og stöðu föður og móður. Hvað ætli RioTintoAlcan sé að skoða? Er það að taka saman sína eigin útgáfu af Íslendingabók? Hvað segir Kári við því? Og hvað segir Persónuvernd?




Brotalína í borgarstjórn?

25. júní, 2008

Orðið á götunni er að ekki sé einhugur innan borgarstjórnarmeirihlutans um tillöguna um að fá einkaaðila til þess að reka hjúkrunarheimilið Droplaugastaði við Snorrabraut. Eins og kom fram á Orðið á götunni í gær verður sú tillaga rædd í velferðarráði borgarinnar í dag.

Í gærkvöldi spurðist út að Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri, væri á móti málinu, sem bar brátt að. Orðið á götunni er að Ólafur sé, fyrir hönd F-listans, að vinna að því að fá samstarfsmenn sína úr borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna til þess að draga hugmyndirnar til baka enda sé hann andvígur því að þetta rótgróna hjúkrunarheimili borgarinnar verði einkavætt.




Einkarekstur Droplaugastaða á dagskrá

24. júní, 2008

Orðið á götunni er að á morgun, miðvikudag, sé framundan sögulegur fundur í Velferðarráði Reykjavíkurborgar. Þetta er aukafundur og á dagskránni er að auglýsa eftir einkaaðila, sem vill taka að sér að reka hjúkrunarheimilið Droplaugastaði við Snorrabraut, fyrir eigin reikning en með samningi við borgina.

Hvort sem menn kalla þetta einkarekstur, einkavæðingu eða einkaframkvæmd er ljóst að um er að ræða sögulega breytingu.

Málið ber brátt að - svo brátt að fullyrt er að borgarstjórnarmeirihlutinn sé ekki búinn að koma sér saman um málið. Fullyrt er að Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri sé á móti þessu máli og að hann sé enn að vinna í því að fá fundinum frestað - eða amk að dagskránni verði breytt þannig að einkavæðing Droplaugastaða verði tekin af dagskránni.




Á leið í partí

23. júní, 2008

Orðið á götunni er að þótt útrásin sé ekki nema svipur hjá sjón og allar tölur séu nú rauðar í bókhaldinu kunni íslenskir athafnamenn enn að gera sér glaðan dag.

Þannig mun öllum starfsmönnum FL Group vera boðið í ferð til Bretlands í byrjun júlí sem er í senn vinnuferð og Formúlu 1 ferð Það hefur mikið mætt á starfsfólkinu undanfarið og fyrirtækið hefur gengið í gegum mikinn hreinsunareld vegna niðursveiflunnar á mörkuðunum og er nú að takast á við breytta tíma. FL hefur starfsstöðvar bæði í Bretlandi og á Íslandi og nú er komið að því að leiða alla starfsmenn FL Group saman á einn stað og þjappa hópnum saman um verkefnin framundan.

Að sjálfsögðu nota menn tækifærið til að gera sér glaðan dag, meðal annars með því að þiggja boð Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, fyrrverandi stjórnarformanns, um að fara á Formúluna. Jón Ásgeir er sem kunnugt er einn af styrktaraðilum Williams-liðsins. Áður en hann lét af starfi sem stjórnarformaður FL Group bauð hann öllum starfsmönnum fyrirtækisins að fylgjast með kappakstrinum á Silverstone úr bestu sætum.




Persónulegur gestur borgarstjóra skemmtir Reykvíkingum á menningarnótt

21. júní, 2008

Orðið á götunni er að opinber heimsókn Ólafs F Magnússonar, borgarstjóra, til Færeyja á dögunum hafi borið þann áþreifanlega árangur að færeyska söngkonan Sølva Ford mun skemmta á menningarnótt í Reykjavík í persónulegu boði borgarstjórans.

Um málið er fjallað á Dimmalætting, stærsta fréttavef Færeyja, og segir þar: “Sølva Ford fekk í hóskvøldið eina persónliga innbjóðing frá borgarstjóranum í Reykjavík um at luttaka á íslendsku mentanarnáttini, sum verður í august mánaði.”

Þau, sem voru með borgarstjóra í Færeyjum, segja engan vafa á að Sölva Ford heillaði borgarstjóra algjörlega með söng sínum á samkomu, sem haldin var íslensku gestunum til heiðurs. Borgarstjóri drakk í sig tónlistina og sýndi söngkonunnni sjálfri ákaflega vingjarlega athygli. Fundi þeirra lauk með því að Sølva Ford fékk og þáði boð um að koma fram á menningarnótt og verður hún þar með fyrsti listamaðurinn í sögu menningarnætur í Reykjavík sem kemur fram sem persónulegur gestur borgarstjórans í Reykjavík. Langminnugir sérfræðingar minnast þess ekki að borgin - samkvæmt ákvörðun borgarstjóra  sjálfs - taki bæði frumkvæðið með þessum hætti og ákveði að bera kostnaðinn af komu listamanns til að taka þátt í dagskrá menningarnætur.




Sérmenntun sem ekki var nýtt

20. júní, 2008

Orðið á götunni er að Hjörtur Magnason dýralæknir á Egilsstöðum sé eini maðurinn á Íslandi sem hefur til þess sérstakt leyfi að skjóta ísbirni með deyfilyfjum og annast þá. Uppi á vegg hjá honum hangir leyfisbréf því til staðfestingar.  Landhelgisgæslan leitaði eftir því við hann á dögunum að Hjörtur sendi henni deyfilif og þá sérstöku byssu sem þarf til þess að svæfa ísbjörn. Hann hafnaði því með þeim orðum að hann væri eini maðurinn á landinu sem hefði tilskilið leyfi til þess að nota lyfin og byssuna.

Og þar með virðast menn hafa hætt við að hugsa um að nýta sér þekkingu Hjartar. Í hans stað var hinn danski Carstein Gröndal frá dýragarðinum í Kaupmannahöfn fenginn til þess að fljúga til Íslands með ungan son sinn. Orðið á götunni er að Carsten hafi orðið fyrir valinu af því að hann er tengdur umhverfisráðherra í gegnum sameiginlega vini í Danmörku.




Meiri samdráttur á leiðinni

19. júní, 2008

Orðið á götunni er að mörg fyrirtæki séu að undirbúa uppsagnir og hagræðingaraðgerðir sem kynntar verða nú fyrir mánaðamótin, við lok annars ársfjórðungs.

Meðal þeirra fyrirtækja sem fréttir munu berast frá fyrir mánaðamót eru Icelandair. Orðið á götunni er að þar sé mikill samdráttur í undirbúningi hjá fjölmörgum einingum innan samstæðunnar.




Setið sem fastast

18. júní, 2008

Orðið á götunni er að Jón Ásgeir Jóhannesson ætli sér ekki að hafa frumkvæði að því að víkja úr stjórnum hlutafélaga í framhaldi af dómi Hæstarétar í Baugsmálinu eins og hinum er skylt samkvæmt því sem segir í 66. grein hlutafélagalaga. Þar er lagt bann við því að framkvæmdastjórar og stjórnarmenn megi hafa hlotið dóma fyrir ýmis lögbrot, m.a. þau sem Jón Ásgeir var dæmdur fyrir af Hæstarétti.

En orðið á götunni er að Jón Ásgeir og Baugsmenn telji að það væri brot á mannréttindum Jóns Ásgeirs að banna honum að sýsla um eignir sínar með því að sitja í stjórnum eigin félaga. Þeir eru því tilbúnir að taka til varna reyni ríkið að framfylgja þessu ákvæði laganna og bera fyrir sig ákvæði stjórnarskrár og jafnvel mannréttindasáttmála. Auk þess er víst með öllu óljóst hvernig íslensk stjórnvöld geta framfylgt þesssu ákvæði hlutafélagalaganna. Hlutafélagaskrá er ekki vön að stunda virkt eftirlit og skráir aðeins þær tilkynningar sem henni berast frá aðilum í atvinnurekstri.  Skilaboðin frá Baugi til stjórnvalda eru því: komið þið bara.




Herðubreið veitist að Þórunni

16. júní, 2008

Orðið á götunni er að það skipti Þórunni Sveinbjarnardóttur, umhverfisráðherra, pólitískt miklu máli hvernig til tekst með björgun ísbjarnarins sem kom á land í Skagafirði í morgun. Samt er Þórunn ekki á vaktinni - hún er í fríi og Björgvin G. Sigurðsson gegnir í hennar stað og er búinn að ákveða að sækja sérfræðinga til Danmerkur að bjarga málinu. Ef aðgerðin gengur upp undir stjórn Björgvins verður það enn meira áberandi en áður hve óhönduglega tókst til undir stjórn Þórunnar fyrir fáeinum dögum.

Staða Þórunnar er nú þegar orðin býsna veik - ekki síst innan Samfylkingarinnar. Til marks um það er forsíðugrein nýjasta tölublaðs Herðubreiðar - tímaritsins sem er vettvangur pólitískrar og hugmyndafræðilegrar umræðu innan Samfylkingarinnar. Þetta er greinin Magra Ísland, skrifuð af Kristínu Helgu Gunnarsdóttur, rithöfundi. Greinin sú er eiginlega samfelld árás á Þórunni.

Orðið á götunni er að greinin sé til marks um það að staða Þórunnar er langveikust af öllum ráðherrum Samfylkingarinnar. Að óbreyttu er líklegast að hún víki úr ríkisstjórn fyrir Gunnari Svavarssyni þegar að því kemur að einhver Samfylkingarmaður taki við starfi forseta Alþingis af Sturlu Böðvarssyni á næsta ári.




Bjarni á leið til Bessastaða?

15. júní, 2008

Orðið á götunni er að allt þar til fyrir nokkrum dögum hafi flest bent til þess að Bjarni Benediktsson, ungstjarnan í Sjálfstæðisflokknum, væri á útleið úr pólitík.

Bjarni er umsvifamikill í viðskiptum og hefur haft nóg að gera á því sviði við að byggja upp N1 og fleiri fyrirtæki, þar sem hann er meðal helstu eigenda og stjórnenda.  Hins vegar hefur ekki verið nógu spennandi fyrir Bjarna að vera óbreyttur þingmaður í liði Geirs H. Haarde.

En Orðið á götunni er að þessi staða hafi skyndilega breyst nýlega. Það sem olli því að Bjarni Ben er ekki lengur á leið út úr pólitík er einkafundur sem hann átti nýlega með forsætisráðherranum.

Orðið á götunni er að miðað við hljóðið sem var í Bjarna geti skýringin fyrir fundinn geti skýringin aðeins verið ein á því að hljóðið var orðið allt annað eftir fund: Skýringin er þessi: Bjarni Bendediktsson hefur fengið loforð frá forsætisráðherra um að breytingar verði gerðar á ríkisstjórninni fljótlega og að þá verði Bjarni gerður að ráðherra.




Engar línur í jörðu?

13. júní, 2008

Eins og Orðið á götunni sagði frá um daginn þá er unnið hörðum höndum að því að stækka álverið í Straumsvík - þetta sama og Hafnfirðingar felldu í atkvæðagreiðslu fyrir rúmu ári að fengi að stækka. En það rúmast víst framkvæmdir upp á 45.000 MW tonna stækkun innan deiliskipulagsins sem gilti fyrir og þess vegna er hægt að fara í þær æfingar sem nú er í gangi.

En það er annað mál hvernig á að koma raforkunni í álverið. Í tengslum við baráttuna fyrir atkvæðagreiðsluna góðu fyrir ári síðan lofaði Alcan, sem nú heitir Rio Tinto Alcan að bera kostnað af því að grafa línur að álverinu í gegnum byggð í jörðu. En það loforð var háð því að stækkunin yrði samþykkt, sem hún var ekki.

Nú á eftir að finna út úr því hvernig raforkunni, sem þarf að kaupa til viðbótar út af stækkuninni, verður komið inn í hús í álverinu. Það verður þá væntanlega gert með loftlínum - eða þá með línum í jörð á kostnað bæjarsjóðs Hafnarfjarðar. Það mundi víst kosta Hafnfirðinga einar 600 milljónir að splæsa línunum ofan í jörðu.




Súlustaðabúningur fyrir 4-5 ára?

12. júní, 2008

Blúndunærbuxur og brjóstahaldari með púða inni í stærð 116-128cm - fyrir 4-5 ára gamla telpu. Orðið á götunni er að þessi nærföt séu seld í Hagkaup - “þar sem Íslendingum finnst skemmtilegast að versla”.

Konur og karlar víða um borgina ræddu þetta mikið í gær tengslum við klámvæðingu og hvert þetta blessaða þjóðfélag væri eiginlega komið þegar það væri farið að selja hálfgerða klámbúninga sem nærföt á smátelpur.

Orðið á götunni er að það hafi ekki bara verið harðir femínistar sem slógu sér á lær og hneyksluðust á vöruvalinu - það er allt að því þverpólitísk fordæming í gangi í netheimum og kjötheimum en mest var konum niðri fyrir á Barnalandi, þar sem þær hvöttu hver aðra til þess að hringja í Sóleyju Tómasdóttur og fá hana til að beita sér í málinu.

Sjá mynd.




Kortanúmerum Íslendinga stolið í tölvuárás

11. júní, 2008

Orðið á götunni er að eitthvað sé um að Íslendingar hafi í morgun fengið símhringingar frá bankanum sínum til þess að tilkynna að búið væri að stela kortanúmerunum þeirra í tölvuárás á erlenda gagnabanka erlendis og þess vegna þurfi nú að loka kortunum.  Fáeinir viðskiptavinir í útibúi Glitnis í Háaleiti eru meðal þeirra sem fengu svona hringingu í morgun - frá starfsmönnum, sem ekki þekktu umfang vandans til hlítar.




Álversstækkun á fullri ferð í Straumsvík

10. júní, 2008

Orðið á götunni er að hægt og hljótt sé verið að stækka álverið í Straumsvík um 60.000 tonn - þetta sama og Hafnfirðingar felldu í atkvæðagreiðslu fyrir rúmu ári að yrði stækkað.

Að þessu vinnur fyrirtækið, sem nú heitir Rio Tinto Alcan í góðu samstarfi við Hafnarfjarðarbæ og Landsvirkjun.

Í stað þess að stækka athafnasvæðið, færa Reykjanesbrautina og hvaðeina er verið að vinna að því innan lóðar fyrirtækisins að auka framleiðslugetuna og afköstin með framkvæmdum og endurnýjun.

Þetta mun kalla á aukna orkunotkun - þá orku ætla Straumsvíkingar að sækja m.a. í Þjórsá




Nýr dans stiginn við Tjörnina

9. júní, 2008

Orðið á götunni er að það sé titringur í Ráðhúsinu við Tjörnina í kjölfar breytinganna hjá sjálfstæðismönnum þar sem Hanna Birna er tekin við oddvitastarfinu af Vilhjálmi.

Nýjum oddvita fylgja óhjákvæmilega einhverjar breytingar þótt ekki standi annað til en að halda áfram meirihlutasamstarfi sjálfstæðismanna og Ólafs F. Magnússonar.

Og þessar breytingar koma beint ofan í nýlega bloggfærslu hjá Össuri Skarphéðinssyni um að það sé aðeins formsatriði að þau Dagur B. Eggertsson og Svandís Svavarsdóttir myndi nýjan meirihluta að loknum næstu kosningum.

Það er vitað mál að Hanna Birna og Svandís eru miklar vinkonur og ná vel saman.

Eins var tekið eftir því að einn nánasti samstarfsmaður Óskars Bergssonar, Hallur Magnússon, sendi Hönnu Birnu illa dulbúið bónorð um nýtt meirihlutasamstarf við Framsóknarflokkinn á blogginu sínu í morgun.

Þannig að Orðið á götunni er að það sé óvíst hve lengi Ólafur F. Magnússon heldur titlinum “Sætasta stelpan” á ballinu í Ráðhúsinu. Það eru amk fleiri um hituna.




Launamál hjá RÚV til sáttasemjara

8. júní, 2008

Orðið á götunni er að á þriðjudaginn verði haldinn fyrsti fundur Ríkissáttasemjara í kjaradeilu Ríkisútvarpsins ohf við Félag fréttamanna.

RÚV er ekki lengur venjulegt ríkisfyrirtæki heldur sér nú sjálft um að semja við starfsmenn sína. Kjaraviðræðurnar gengu víst þannig fyrir sig að fulltrúar fyrirtækisins lögðu hugmyndir á borðið og neituðu að semja um þær á nokkurn hátt eða taka hugmyndir fréttamanna til umræðu. Skilaboðin voru: þetta verður svona, lágmarkslaunin verða 260.000 krónur í byrjunarlaun og 290.000 eftir þrjú ár í starfi en 330.000 krónur fyrir stjórnendur.

Fréttamennirnir segja að launin hafi engan veginn haldið í við launaþróunina og þeim þykir kominn tími til þess að leiðrétta það. Þeirra hugmyndir voru 300.000 í byrjunarlaun og 400.000 eftir fjögur ár í starfi. Orðið á götunni er að starfsmenn horfi til launa útvarpsstjóra sem veitti sjálfum sér myndarlega hækkun þegar rekstrarformi RÚV var breytt. Svo er líka hermt að verið sé að ráða fólk inn á hálfa milljón og meira í byrjunarlaun á auglýsingadeildinni og Kastljósinu. Sagt er að fréttamennirnir séu ekki á móti því að gerðir séu einstaklingsbundnir samningar ofan á lágmarkslaunin - þeim finnast bara hugmyndir stjórnenda stofnunarinnar um lágmarkslaun svo fáránlega lágar að nauðsynlegt sé að fara með málið til sáttasemjara.




Fréttnæmt brúðkaup á morgun?

7. júní, 2008

Orðið á götunni er að í tengslum við brúðkaup Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar núna á sunnudaginn muni hann gefa borgarbúum þá brúðkaupsgjöf að hann verði ekki borgarstjóri að ári liðnu - heldur Hanna Birna Kristjánsdóttir.

Og Orðið á götunni er að það hafi greinilega verið athyglisverður fundur í stjórn fulltrúaráðsins hjá reykvískum sjálfstæðismönnum á miðvikudaginn. Svo athyglisverður að óskhyggjan hafi hlaupið með andstæðinga Villa í gönur. Þetta var reglubundinn fundur - en ekki sérstaklega boðaður vegna borgarmálanna, eins og sagði í færslunni hér á undan. Og það var engin tillaga borin upp um að fá Villa til að víkja. Hann var ekki boðaður á fundinn en kom hins vegar og gerði grein fyrir stöðunni.

Og Orðið á götunni er að staðan sé sú að Villi sé að fara að gifta sig á morgun, á afmælisdegi væntanlegrar eiginkonu sinnar.





Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar