Sendu Orðinu línu á
ordid@eyjan.is

Færslur fyrir júlí, 2008

Peningar úr landi

30. júlí, 2008

Mikið er talað um erfiða stöðu bankanna og mat erlendra greiningaraðila einkennist af vantrú á þeim.

Orðið á götunni er að fjármagnseigendur fylgist vel með og þeir sem eiga einhverja fjármuni að ráði í bönkunum séu í auknum mæli farnir að hugleiða áhættuna af því að geyma peninga sína þar – enda fáist takmarkaðar bætur fari banki í þrot (2 mkr).

Orðið á götunni er að einhverjir þeirra varkárustu hafi þegar flutt peninga sína úr íslenskum banka yfir í erlendan og að fjármálageirinn óttist að takist ekki fljótlega að bæta stöðuna og lægja endalausar vangaveltur um vandræðin, þá geti fleiri farið að gera alvöru úr því að flytja sína fjármuni út – og þá fyrst verði ástandið slæmt.




Hengja eða Lengja

29. júlí, 2008

Orðið á götunni er að mörg af framsæknustu og öflugustu fyrirtækjum landsins árin 2003 til 2005 finna nú sífellt meira fyrir þrengingunum í efnahagslífinu. Að þrátt fyrir ágætan rekstur hafi stórhækkaður fjármagnskostnaður, hækkun á erlendum aðföngum og minnkun á einkaneyslu sett mörg þessara félaga upp að vegg – og það aðeins á fáum mánuðum.

Orðið á götunni er einnig að fundir lánanefnda bankanna lengist stöðugt þar sem rætt er um stöðu helstu viðskiptavina þeirra - enda séu verstu málin ekki síst vegna erfiðrar stöðu þeirra bestu – og um leið stærstu viðskiptavina. Umræðan í nefndunum sé um hvort eigi að ganga að þeim og þeirra eignum eða hjálpa þeim áfram með breytingum á lánakjörum.

Orðið á götunni er að á meðal bankamanna gangi þessi vinna lánanefndanna undir heitinu „Hengja eða Lengja“.




Tryggvi Þór í Seðlabankann ?

25. júlí, 2008

Orðið á götunni virðist almennt jákvætt vegna ráðningar Tryggva Þórs Herbertssonar forstjóra Askar Capital í starf efnahagsráðgjafa forsætisráðherra – nú eigi loksins að taka almennilega á efnahagsmálum þjóðarinnar.

En orðið á götunni er einnig að einkennilegt sé að fá starfandi bankastjóra til verkefnisins og að enn einkennilegra sé að hann stökkvi frá 18 mánaða gömlu fyrirtæki í mikilli uppbyggingu. Forstjórar taki sér einfaldlega ekki orlof til að sinna ráðgjafastörfum – allra síst á þessum tímum, sem er ekki síst erfiður fjármálafyrirtækjum.

Orðið á götunni er að ráðgjöfin geti verið liður í stærra plani og að Tryggvi fari ekki til baka sem forstjóri Askar Capital. Hann sé hins vegar á leið í Seðlabankann til að framfylgja nýrri efnahagsstefnu, sem hann smíðar nú sem ráðgjafi – en verði svo fenginn til að framfylgja síðar sem seðlabankastjóri.

Orðið er að þá yrði gamall draumur Tryggva að veruleika.




Þjóðfélagsrýnin dýpkuð

21. júlí, 2008

Orðið á götunni  er að í þjóðmálaumræðunni ekki síður en í efnahagsmálunum verði komandi kreppumánuðir tímar endurmats, uppgjörs og vakningar.

Lokauppgjör Hafskipsmála hefur þegar verið boðað en tvær aðrar bækur eru á leiðinni sem eflaust eiga líka eftir að hleypa lífi í þjóðmálaumræðuna og dýpka hana.

Þetta eru bækur sagnfræðinganna Guðjóns Friðrikssonar og Guðmundar Magnússonar (blaðamanns og bloggara).

Guðjón eltir uppi samtímann í bók sinni um forsetatíð Ólafs Ragnars Grímssonar en sjónarhorn Guðmundar er víðara. Hann rýnir í þjóðfélagsbyltingu síðustu ára sem gert hefur okkur að ríkustu þjóð í heimi.

“Gamla Ísland”, þjóðfélagið á fyrstu áratugum eftir lýðveldisstofnun, þar sem allir voru jafnir, enginn of ríkur og enginn of fátækur, þar sem stéttaskipting þekktist vart, virðist liðið undir lok. Guðmundur veltir fyrir sér hvernig hið nýja Ísland varð til: Hvað gerðist, hvers vegna og hvernig? Eru þessar breytingar til góðs eða ills? Hvað áhrif hafa þær á þjóðina og samfélagið?

Orðið á götunni  er að spennandi verði líka að fá opinskáa umfjöllun Guðjóns Friðrikssonar um samskipti forsetans og Davíðs Oddssonar þar sem skýrt er frá atriðum sem ekki hafa áður komið fram.




Comeback Hannesar?

20. júlí, 2008

Orðið á götunni er að hugsanlega fari að heyrast meira af Hannesi Smárasyni, sem eiginlega ekkert hefur spurst til síðan hann hvarf úr flugstjórasætinu hjá FL Group í desember sl.

Orðið á götunni er að hann hafi undanfarið búið á Metropolitan Hotel á Park Lane í Mayfair hverfinu í Lundúnum og hafi í síðustu viku heyrst þar ræða um yfirvofandi endurkomu sína í íslenskt viðskiptalíf...




Ísland varla nefnt á nafn í Brussel

19. júlí, 2008

Orðið á götunni fékk bréf frá Brussel:

Brussel 18.7.2008.

Hér á bæ er Ísland  varla nefnt á nafn.
Er það slæmt eða er það gott?
Það fer nú eftir því hvernig að á það er litið.
Eins og strigakjafturinn Palivec gestgjafi á kaffihúsinu Bikarnum í Prag myndi segja:“Ég skipti mér ekki af því, þér getið kysst mig á rassinn upp á það.“
Hvaðan koma þá þessar hræðilegu samsærissögur, sem að „Orðið á Götunni“ fullyrðir að gangi hér á bæ?
Mest frá örfáum íslenskum heimildarmönnum get ég fullyrt.
Hér á bæ vottar ekki fyrir ESB  „þreytu“ í garð Íslands eða Íslendinga.
Hér vottar heldur ekki fyrir ESB  „þreytu“  á EES samningnum.
Hér vottar sannarlega heldur ekki fyrir ESB „þreytu“ á sérkröfum ESB ríkjanna 27 eða þingmannana 785 á Evrópuþinginu eða hagsmunavarðanna tuttugu og átta þúsund, sem standa vörð um aðskiljanlega sérhagsmuni innan ESB og EES.
Ísland er varla nefnt á nafn.
Af því að Ísland er hvorki til trafala í EES samtarfinu né til vandræða af nokkru tagi.

Með góðri kveðju til “Orðsins á Götunni,”
Róbert Trausti Árnason

---

Róbert Trausti er erindreki SA í Brussel




Innmúraður ei meir?

17. júlí, 2008

Orðið á götunni er að þó Jónína Ben sé alltaf Jónína Ben sé samt erfitt að horfa framhjá því, að í viðtali Sverris Stromskers við hana á Útvarpi Sögu í gær, hafi hún látið uppi nafn í tengslum við aðdraganda Baugsmálsins, sem hingað til hafi alltaf hálfpartinn legið í þagnargildi í umfjölluninni um upphaf Baugsmálsins: nefnilega nafn sjálfs Davíðs Oddsonar(!).

Og það þótt allir hafi alltaf talið sig vita við hvern var átt þegar rætt var um einhvern Davíð í hinum ýmsu tölvupóstum Jónínu til Styrmis Gunnarssonar o.fl. á sínum tíma. Og eins þegar Styrmir ræddi um tryggð Jóns Steinars við ónefndan mann sem væri innmúruð og ófrávíkjanleg...

Því nú lætur Jónína sterkt að því liggja, ef marka má þessa lýsingu á uppljóstrunum hennar í þættinum á vef Úvarps Sögu, að þáttur Davíðs í aðdraganda málsins hafi verið stærri en hingað til hefur verið upplýst.

Þátturinn verður næst endurfluttur laugardaginn 19.júlí n.k. kl. 16.oo-18.oo.




ESB þreytt á sérkröfum Íslendinga

16. júlí, 2008

Orðið á götunni er að innan Framkvæmdastjórnar ESB gæti vaxandi óþols og pirrings í garð Íslands vegna sífelldra krafna um sérákvæði og sérmeðferð. Til að mynda er talið vonlaust fyrir Ísland að fá undanþágur frá tilskipun ESB um gjald á flugsamgöngur því ESB sjálft keppist nú við að ná samkomulagi um sameiginlegar loftslagsaðgerðir fyrir fund Loftslagssamningsins í desember og ná trúverðugri stöðu í samningum við önnur ríki. Trúverðugleikinn byggir ekki síst á því að ESB hafi unnið heimavinnuna sína og geti þar með sett fram kröfur á önnur ríki og tekið forustuna í samningaviðræðum, líkt og verið hefur undanfarin ár. Í þessu samhengi eru sérkröfur og sérákvæði Íslandi til handa ekki líkleg til að hjálpa til við að sannfæra ríki ESB um að þau verði að leggja hart að sér.

Innan stjórnarráðsins eru viðbrögðin jafnan þau að fara fram á undanþágu eða sérákvæði ef um íþyngjandi aðgerðir er að ræða, sérstaklega í umhverfismálunum án þess að geta sýnt fram á trúverðuga innlenda loftslagsstefnu á móti.

Orðið á götunni er að harkaleg viðbrögð Percy Westerlund, yfirmanns fastanefndar Evrópu sambandsins gagnvart Íslandi, við hugmyndum Björns Bjarnasonar gefi til kynna hversu menn þar á bæ eru orðnir þreyttir á hugmyndum hérlendra ráðamanna um sérmeðferð. Þetta raunar ekki í fyrsta sinn sem Westerlund bregst við hugmyndum af þessu tagi. Fyrir tveimur árum reyndu stjórnvöld að komast hjá því að innleiða vatnstilskipun ESB. Á endanum var fulltrúum Íslands í Brussel sagt að Ísland gæti vel látið eiga sig að innleiða þessa tilskipun en þá gætu Íslendingar líka gleymt EES.

Framkvæmdastjórnin gerði íslenskum stjórnvöldum óformlegt boð um að Ísland geti fengið afar hraða meðferð ef lögð verði inn aðildarumsókn – 6 mánuðir eða svo. Þetta er kostaboð – ekki síst að mati Framkvæmdastjórnarinnar – en í stað þess að kanna málið af heilindum og fullri alvöru koma fram hugmyndir af því tagi sem Björn Bjarnason lagði fram um helgina.

Orðið á götunni er að í Brussel séu vandamálin mörg og Baroso og hans menn afar upptekið fólk. Þegar til lengdar lætur hafi  íslensk stjórnvöld ekki efni á að eyða tíma þessa fólks með tillögum sem ekki ganga upp.




Fast skot Þorgerðar Katrínar yfir Kalkofnsveg

14. júlí, 2008

Orðið á götunni er að nú sé það orðið fremur svart í samkiptum ríkisstjórnar og Seðlabanka.

Eftir því var tekið í strætóhúsinu við Lækjartorg á fimmtudaginn - við opnun gestastofunnar þar fyrir nýtt Tónlistar og ráðstefnuhús, þar sem loft hafa verið máluð svört eins og reyndar húsið allt - hvernig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins talaði yfir götuna til formanns bankastjórnar Seðlabankans.

Eftir að Björgólfur Guðmundsson hafði boðið gesti velkomna og sagt að þó tímar væru erfiðir og mikil óvissa ríkti í efnahagsmálum þjóðarinnar þá myndu framkvæmdir við húsið þó væntanlega verða á áætlun, þakkaði Þorgerður Katrín fyrir sig í stuttri ræðu.

Þorgerður benti á að úr útsýnisglugga Geststofunnar sæist ekki aðeins bygging Tónlistarhússins heldur einnig Seðlabankinn... og sagðist vonast til frjórri athafna í þessum Svörtuloftum en þeim handan götunnar.

Orðið á götunni er að viðstaddir, þar á meðal samráðherrar Þorgerðar, Björn Bjarnason og Össur Skarphéðinsson, hafi bara litið út um gluggann.




Forsetinn með bandarísku áhrifafólki í Vatnsdalsá

11. júlí, 2008

Orðið á götunni er að brúnum sé eitthvað lyft innan stjórnsýlsunnar yfir fundi Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands með bandarísku áhrifafólki í Vatnsdalsá í vikunni þar sem umræðuefnið var baráttan gegn loftslagsbreytingum. Ólafur fór til fundarins að beiðni hins heimsþekkta arkitekts Williams McDonoughs, sem hefur komið hingað árlega hin síðari ár og þá gjarnan með Orra Vigfússyni.

Meðal annarra fundargesta sem jafnframt voru við laxveiðar í Vatnsdalnum voru Laurie David, framleiðandi óskarsverðlaunamyndar Als Gore “An Inconvenient Truth“, stjúpsonur Johns Kerry fyrrum forsetaframbjóðanda og eitthvað af fjölmiðlafólki í viðbót. Laurie David bloggaði um stíft prógram Íslandsferðarinnar á Huffinton Post.

Leiðir McDonoughs og Ólafs munu hafa legið saman nokkrum sinnum að undanförnu þar sem þeir hafa verið ræðumenn á loftslagsþingum, m.a. á hjá Clinton Global Initiative í New York í fyrra og World Future Energy Summit í Abu Dhabi  í vetur. McDonough hefur í fyrri Íslandsferðum m.a. haft með sér kvikmyndastjörnur á borð við Darryl Hannah og Cameron Diaz.

McDonough er jafnframt ráðgjafi bandaríska fjárfestingafélagsins VantagePointVenture Partners, sem er afar vel tengt. Meðal annarra helstu ráðgjafa þar á bæ eru James Woolsey, fyrrum forstjóri CIA og Robert F. Kennedy, Jr. sem starfar sem lögmaður á sviði umhverfismála.

Orðið á götunni er að innan stjórnsýslunnar hafi einhverjir jafnan vakandi auga með fundum Ólafs og fjárfestingaraðilum. Fjárfestingar á Íslandi hafi þó ekki verið umræðuefni Vatnsdalsfundarins.

Á síðu Forseta Íslands segir eftirfarandi um fundinn: “Forseti á viðræður við hóp bandarískra áhrifamanna í byggingarlist, orkunýtingu og fjölmiðlun um baráttuna gegn loftslagsbreytingum, hvernig framganga háskóla, rannsóknarstofnana og fyrirtækja í Bandaríkjunum á undanförnum árum muni gera nýjum valdhöfum í Washington kleift að skipa Bandaríkjunum á skömmum tíma í forystu baráttunnar gegn loftslagsbreytingum.”

Og á vef Vatnsdalsár segir að hópnum hafi gengið vel í veiðinni: “misst um það bil 16 laxa en náð að landa 20 á 3 dögum og er það mjög ásættanlegt.”




Almenningur missir fjórðung Ingólfstorgs

8. júlí, 2008

Orðið á götunni er að það sæti furðu hversu sofandi unnendur miðborgarinnar hafa verið yfir því að borgin afhendi Pétri Þór Sigurðssyni, eiginmanni Jónínu Bjartmars,  fjórðung af Ingólfstorgi undir glæsihótel.

ingolfstorg.jpgEina manneskjan sem hefur hreyft mótmælum að ráði eftir að leið fannst til að varðveita NASA-salinn (með því að grafa eftirlíkingu hans ofaní kjallara) er Halla Bogadóttir, sem opnaði Kraum, verslun með íslenska hönnun í elsta húsi Reykjavíkur, Aðalstræti 10 í fyrra. Innkeyrsla bílakjallara hótelsins verður beint á móti þessu sögufræga húsi Innréttinganna.

Eftir að NASA bjargaðist og ljóst varð að gömlu húsin við suðurhlið torgsins myndu ekki hverfa, heldur bara færast út á Ingólfstorg (þau verða hluti hótelsins) og kannski af því að hinn mikils metni arkitekt Björn Ólafs var með í ráðum, þá heyrist engin andmæla því að stór hluti af sameign borgarbúa er þarna tekinn og seldur.

Orðið á götunni er að kannski heyrist svona lítið um þetta líka vegna þess að 100 daga meirihlutinn var með í plottinu frá byrjun, því “Ingólfstorg var ekki að virka.” Annað finnst Höllu og hjólabrettastrákunum á torginu.

Spurt er, gæti hver sem er líka fengið keyptan fjórðung af Lækjartorgi eða Austurvelli?

Í ummælum er bent á þessa greinargóðu frétt Lóu Aldísardóttur á Stöð 2 5. júní.




Þeir gætu vel hugsað sér að vinna hjá Guðmundi

3. júlí, 2008

Orðið á götunni er að REI sé rjúkandi rúst eftir að yfirmennirnir þrír og Grímur Björnsson hverfa þaðan á hæla Guðmundar Þóroddsonar auk lykilmannanna sem áður voru búnir að taka pokann sinn.  Guðmundur F. Sigurjónsson, framkvæmdastjóri hjá REI, sem Fréttablaðið hefur eftir í dag að styðji stefnumótunarvinnu sem fari fram hjá stjórn REI, er samt sagður óþreyjufullur eins og hinir, en hafi ákveðið að verða eftir til að sinna Indónesíuverkefni REI sem er skemmra á veg komið en verkefni hinna.

Fyrir útrásarstarfsemi Orkuveitunnar verður líka sár missir af Gesti Gíslasyni jarðfræðingi sem var á launum hjá Orkuveitunni en vann nánast eingöngu fyrir REI.

Jafn ljóst er talið að allir þessir menn gætu vel hugsað sér að vinna að svipuðum verkefnum áfram en þá undir stjórn hins brottrekna forstjóra.




Ögmundur afgreiðir málið

2. júlí, 2008

Orðið á götunni er að hafi Samfylkingin haft einhvern minnsta áhuga á að líta til vinstri um nýtt stjórnarsamstarf þá hafi Ögmundur afgreitt þann möguleika út af borðinu í blaðagreinum sínum í Mogganum og Fréttablaðinu í dag um að það þurfi að fara að huga að úrsögn úr EES.




Fólk missir bíla

2. júlí, 2008

Orðið á götunni er að aldrei hafi verið meira um það en nú að bankarnir endurheimti bíla sem fólk geti ekki borgað af. Algengt er líka núorðið að lán hafi hækkað yfir söluverðmæti bílanna.

Haft var eftir einum starfsmanni Vörslusviptingar ehf. sem fer heim til fólks og sækir vanskilabíla, að endurheimtingum hafi farið fjölgandi á árinu, en síðustu vikur hafi orðið “algjör sprenging í þessu.”





Leturstærðir


Leit


Aðrir miðlar